Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Jóla- og póstkort
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Fólk
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Veldu…
102 myndir
Flæði
Reitir
Halldór Pétursson 1
Mynd af jólakorti með mynd eftir listamanninn Halldór Pétursson. Ekki er vitað hvenær kortið kom út. Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar
Selma P. Jónsdóttir 26
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Barbara Árnason
Þessa mynd af hestum á mismunandi árstíðum gerði Barbara Árnason á jólakort. Ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Barbara Árnason (Barbara Moray Williams Árnason) (19.4.1911 – 31.12.1975) var ættuð frá Hampshire í Suður-Englandi. Hún stundaði nám listaskólann í Winchester og í Royal Collage of Art í London þaðan sem hún útskrifaðist 1935. Hún teiknaði fjöldan allan af bókakápum og myndskreytti sumar þeirra. Einnig er hún þekkt fyrir vefnaðarverk sín sem voru m.a. sýnd víða í London og París. Þá gerði hún þekktan myndbálk við Passíusálma Hallgríms Péturssonar.
Selma P. Jónsdóttir 31
Rjúpur í vetrarbúningi eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Óskar Kristinsson - safn 229
Jólakort frá Skagstrendingi hf jólin 1982. Kortið prýðir mynd af nýsmíðuðum frystitogaranum Örvari Hu 21.
Barbara Árnason
Barbara Árnason gerði þessa hestamynd á jólakort. Ekki er vitað hvenær. Barbara Árnason (Barbara Moray Williams Árnason) (19.4.1911 – 31.12.1975) var ættuð frá Hampshire í Suður-Englandi. Hún stundaði nám listaskólann í Winchester og í Royal Collage of Art í London þaðan sem hún útskrifaðist 1935. Hún teiknaði fjöldan allan af bókakápum og myndskreytti sumar þeirra. Einnig er hún þekkt fyrir vefnaðarverk sín sem voru m.a. sýnd víða í London og París. Þá gerði hún þekktan myndbálk við Passíusálma Hallgríms Péturssonar.
Selma P. Jónsdóttir 28
Selma P. Jónsdóttir gerði þetta jólakort af hröfnunum en ekki er vitað hvenær. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Leifur Breiðfjörð 2
Leifur Breiðfjörð gerði myndina á þessu jólakorti. Myndina nefndi hann Jarðteikn en ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Leifur Breiðfjörð (24.6.1945) nam í Myndlista-og handíðaskóla Íslands og stundaði síðan nám í glerlist í The Edenburgh College of Art í Edinborg. Leifur hefur verið brautryðjandi í íslenskri glerlist og má finna verk hans víða m.a. sem altaristöflu í Hólaneskirkju og stórt verk í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum hér á landi og erlendis.
Selma P. Jónsdóttir 25
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Bjarni Jónsson 5
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd en ekki er vitað hvenær hann gerði hana. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 6
Bjarni Jónsson gerði mikið af myndum á jólakort og þá var rjúpan vinsælt viðfangsefni hjá honum. Þetta er ein af þeim myndum en ekki er vitað hvenær Bjarni gerði hana. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Gerður Helgadóttir 1
Gerður Helgadóttir fæddist 11. apríl 1928 í Norðfirði en flutti til Reykjavíkur með fjölskyldu sinni þegar hún var 11 ára. Hún var myndhöggvari sem stundaði nám í list sinni í virtum skólum á Íslandi, Ítalíu og Frakklandi. Líklega er risastór mósaíkmynd á Tollstöðvarhúsinu í Tryggvagötu í Reykjavík hennar þekktasta verk. Þá eru steindir gluggar Gerðar í nokkrum stórum kirkjum bæði á Íslandi og erlendis. Hún var líka þekkt fyrir þrívíð abstrakt verk sín úr járni. Gerður var sæmd riddarakrossi hinnar íslensku fálkaorðu 1974. Erfingjar Gerðar gáfu Kópavogsbæ 1400 listaverk eftir hana 1977, að henni genginni, og eru þeim gerð góð skil í Gerðasafni þar í bæ. Gerður lést 17. maí 1975 aðeins 47 ára að aldri. Á þessu jólakorti er mynd af einu af glerlistaverkum Gerðar.
Bjarni Jónsson 8
Jólakort eftir Bjarna Jónsson en ekki er vitað hvenær hann gerði þessa mynd. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Guðný Kristjánsdóttir 2
Guðný Kristjánsdóttir fæddist 18. júní 1941 í Ártúni en flutti í Háagerði á Skagaströnd með foreldrum sínum 1943. Þar ólst hún upp en lauk landsprófi í Hlíðardalsskóla og bjó á fullorðinsárum í Reykjavík þar sem hún vann skrifstofustörf. Guðný teiknaði og málaði m.a. myndir á jólakort fyrir Félag einstæðra foreldra. Guðný var tvígift og eignaðist fjögur börn á árunum 1961 – 1971. Hún lést 19. september 2022. Þessa mynd af stúlku með nýju dúkkuna sína á jólunum gerði Guðný líklega árið 1989.
Jóhannes Frímannsson 1
Þessa vetrarmynd á jólakorti gerði Jóhannes Frímannsson en ekki er vitað hvenær. Jóhannes Frímannsson (14.11.1919 – 20.10.1997) var sjálflærður í list sinni. Jóhannes merkti myndir sínar með eiginnafni sínu og fyrir kom að reynt var að selja verk hans sem málverk eftir Jóhannes Kjarval. Það segir töluvert til um gæði verka Jóhannesar Frímannssonar.
Selma P. Jónsdóttir 27
Jólakort eftir Selmu P. Jónsdóttur. Ekki er vitað hvenær hún gerði þessa mynd. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Bjarni_Jonsson_55
Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans. Þetta er útfærsla Bjarna á jólasveininum Ketkróki.
Guðmundur Thorsteinsson (Muggur) 1
Guðmundur Pétursson Thorsteinsson - Muggur - fæddist 5. september 1891 á Bíldudal. Hann fluttist til Kaupmannahafnar 1903 með fjölskyldu sinni og bjó ýmist þar eða á Íslandi. Hann stundaði nám í Det Kongelige danske Kunstakademi á árunum 1911 – 1915. Muggur var fjölhæfur listamaður sem vann ekki bara með liti heldur gerði hann líka klippimyndir og var góður leikari og söngvari. Þá samdi hann og myndskreytti bókina Dimmalimm, sem margir þekkja. Muggur varð ekki nema 32 ára gamall því hann lést úr berklum 26. júlí 1924 á heilsuhæli í Sölleröd í Danmörku. Jólakortið hér á myndinni er sýnishorn af verkum Muggs.
Skagaströnd - safn544
Óþekkt kona í peysufötum. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin. Á vefsíðunni: annríki.is/thjodbuningar/peysufot/ segir eftirfarandi um peysuföt: "Peysuföt er kvenbúningur sem konur báru hversdagslega og til spari. Hann hefur þróast í gegnum aldirnar eða allt frá 15.-16. öld. Búningurinn dregur nafn sitt af efri hlutanum sem var upprunalega prjónuð peysa. Búningurinn samanstendur af peysu, pilsi, svuntu, slifsi, brjósti og húfu. Á fyrri hluta 19. aldar þróaðist peysan í að vera saumuð flík. Eftir 1870 var ekki algegnt að prjóna þær enda mikil vinna að gera slíkt. Á 19. öld voru peysufötin gjarnan blá en eftir miðbik aldarinnir urðu þau svört og eru það enn í dag. Þannig þróaðist peysan eftir tísku og framboði á efnum og tillegi hverju sinni. Ullarband í peysurnar var auðvelt að ná í. Það var unnið heima á bæjum. Einnig var flutt inn ullarband sem hæglega gæti hafa verið notað í útsaum og fínni prjónaskap. Eitt af aðaleinkennum peysunnar er lítill felldur listi á baki hennar sem kallast stakkur. Hefur peysan stundum verið nefnd stakkpeysa eftir honum. Einnig hafa peysuföt verið nefnd húfubúningur eftir prjónuðu húfunni sem konur bera við hann".
Guðný Kristjánsdóttir 1
Guðný Kristjánsdóttir fæddist 18. júní 1941 í Ártúni en flutti í Háagerði á Skagaströnd með foreldrum sínum 1943. Þar ólst hún upp en lauk landsprófi í Hlíðardalsskóla og bjó á fullorðinsárum í Reykjavík þar sem hún vann skrifstofustörf. Guðný teiknaði og málaði m.a. myndir á jólakort fyrir Félag einstæðra foreldra. Guðný var tvígift og eignaðist fjögur börn á árunum 1961 – 1971. Hún lést 19. september 2022. Þessa mynd af Skyrgámi gerði Guðný 1989.
Johann_Briem_2
Jóhann Briem (1907 - 1991) var í listnámi hjá Jóni Jónssyni málara, Eyjólfi Eyfells og Ríkharði Jónssyni. Hélt síðan til Dresden í Þýskalandi 1929 og nam list sína þar til 1934. Heimkominn stundaði hann listsköpun sína ásamt því að kenna í 35 ár við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Manneskjan og dýr eru oft í fyrrúmi í verkum Jóhanns. Þetta jólakort er sýnishorn af list Jóhanns.
Kristinn G. Jóhannsson 1
Myndin á þessu jólakorti er eftir Kristinn G. Jóhannsson. Líklega var myndin gerð 1988. Kristinn G. Jóhannsson (21.12.1936), frá Ólafsfirði og Akureyri, var við nám í Myndlista-og handíðaskólanum en fór svo til Edinborgar og vann að list sinni þar. Hann var skólastjóri á Patreksfirði, Ólafsfirði og Akureyri en vann alltaf að málverkum sínum samhliða vinnunni. Hann hefur teiknað myndir í fjölmargar bækur en er mjög fjölhæfur því hann hefur notað dúkristur, vatnsliti, grafík og olíuliti í listsköpunn sinni auk teikninganna.
Jóhannes Kjarval 1
Þetta er mynd af jólakorti með mynd eftir Jóhannes Kjarval. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Jóhannes Kjarval (15.10.1885 – 13.4.1972). Eftir einn vetur í London, við að skoða söfn og mála, fór hann í Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn og útskrifaðist þaðan 1917. Þá fór hann til Rómar og dvaldi þar og víðar á Ítalíu til 1920. 1928 dvaldist hann svo í París en annars vann hann að list sinni á Íslandi. Jóhannes Kjarval skipar stóran sess í íslenskri menningar- og listasögu og má kalla hann risa meðal íslenskra listamanna. Hann málaði víða um land m.a. hér á Skagaströnd.
Jóhann Briem 1
Þetta jólakort gerði Jóhann Briem. Ekki er vitað hvenær. Jóhann Briem (1907 - 1991) var í listnámi hjá Jóni Jónssyni málara, Eyjólfi Eyfells og Ríkharði Jónssyni. Hélt síðan til Dresden í Þýskalandi 1929 og nam list sína þar til 1934. Heimkominn stundaði hann listsköpun sína ásamt því að kenna í 35 ár við Gagnfræðaskóla Vesturbæjar. Manneskjan og dýr eru oft í fyrrúmi í verkum Jóhanns.
Bjarni Jónsson 39
Bjarni Jónsson gerði þessa myndd á jólakort, líklega árið 1982. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 50
Þetta er mynd af jólakorti frá 1962 eftir Bjarna Jónsson. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 42
Bjarni Jónsson gerði þessa mynd fyrir jólakort, líklega árið 1980. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni Jónsson 7
Bjarni nsson gerði þetta jólakort 1986. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Leifur Breiðfjörð 1
Þetta jólakort skartar mynd eftir glerlistamanninn Leif Breiðfjörð. Ekki er vitað hvenær Leifur gerði myndina. Leifur Breiðfjörð (24.6.1945) nam í Myndlista-og handíðaskóla Íslands og stundaði síðan nám í glerlist í The Edenburgh College of Art í Edinborg. Leifur hefur verið brautryðjandi í íslenskri glerlist og má finna verk hans víða m.a. sem altaristöflu í Hólaneskirkju og stórt verk í flugstöð Leifs Eiríkssonar. Hann hefur haldið margar einkasýningar og tekið þátt í mörgum samsýningum hér á landi og erlendis.
Bjarni Jónsson 10
Húsbóndinn kemur heim úr kaupstaðnum og er vel fagnað. Myndin er af jólakorti eftir Bjarna Jónsson. Ekki er vitað hvenær myndin var gerð. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Baltasar Samper
Þessa mynd gerði Baltasar Samper á jólakort 1986. Baltasar Samper fæddist 9. janúar 1938 í Barselona á Spáni og stundaði nám við Listaháskólann þar. Hann hefur búið á Íslandi með Kristjönu konu sinni frá 1963. Hann hefur haldið tugi einkasýninga auk sýninga með Kristjönu. Hans þekktasta verk er líklega málverk sem þekur alla veggi og loft kirkjunnar í Flatey.
Selma P. Jónsdóttir 30
Þetta jólakort er eftir Selmu P. Jónsdóttur en ekki er vitað hvenær hún gerði myndina. Selma Polly Jónsdóttir (30.12.1940 – 2.8.2013). Lærði myndlist í Reykjavík og Glasgow en kenndi seinna mynd- og glerlist. Hún málaði mikið með pastellitum og er þekkt fyrir jólakortamyndir sínar. Þessi mynd er sýnishorn af þeim.
Skagaströnd - safn547
Myndin er af skjaldarmerki Íslands frá 12. febrúar 1919 sem Ríkharður Jónsson myndhöggvari teiknaði að undangenginni samkeppni. Þá hafði Ísland öðlast fullveldi (1.desember 1918) en var í konungssambandi við Danakonung. Merkið breyttist svo eftir lýðveldisstofnunina 1944 m.a. þannig að kórónan hvarf úr merkinu og teikningin af landvættunum var öðruvísi. Myndin er af Brjefspjaldi frá 1920 úr póst- og jólakortasafni Elísabetar Árnadóttur (d.16.3.2017) frá Réttarholti.
Bjarni Jónsson 32
Bjarni Jónsson gerði þessa jólakortamynd, líklega árið 1987. Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans.
Bjarni_Jonsson_54
Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans. Þetta er útfærsla Bjarna á jólasveininum Stekkjarstaur
Skagaströnd - safn546
Konurnar á myndinni eru í faldbúningum. Faldbúningurinn dró nafn sitt af höfuðfatinu, faldinum, sem tilheyrði búningnum. Búningurinn er tvískiptur í upphlut og niðurhlut þar sem upphluturinn samanstendur af nærskyrtu, upphlut, treyju og kraga. Niðurhluturinn samanstendur af pilsi, svuntu og undirpilsi. Maðurinn er í karlbúningi með hnésíðum lokubuxum og skotthúfu. (heimild: annríki.is/thjodbuningar/faldbuningur/)
Bjarni_Jonsson_57
Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans. Á myndinni er Askasleikir eins og Bjarni sá hann fyrir sér.
Skagaströnd - safn545
Konan á myndinni er í skautbúningi en litla stúlka í upphlut. Skautbúninginn hannaði Sigurður Guðmundsson málari á árunum 1858 - 1860 sem breytingu á faldbúningnum sem var eldri hátíðabúningur kvenna og hann var óánægðu með.
Ásgrímur Jónsson Vor á Þingvöllum 1930
Ásgrímur Jónsson fæddist 4. mars 1876. Hann var við nám í Konunglega listaháskólanum í Kaupmannahöfn á árunum 1900 – 1903. Ásgrímur var fyrstur Íslendinga til að gera myndlistina að aðalstarfi. Frægastur er hann fyrir landslagsmálverk sín sem seljast á háu verði, séu þau yfirleitt föl. Þá er hann einnig þekktur fyrir myndskreytingar íslenskra þjóðsagna og ævintýra. Ásgrímur hlaut margs konar viðurkenningar fyrir list sína m.a. fékk hann fálkaorðuna og var gerður að heiðursprófessor við Háskóla Íslands. Þegar Ásgrímur lést, 5. apríl 1958 ánafnaði hann íslensku þjóðinni öll eftilátin verk sín ásamt húseign sinni að Bergstaðastræti 74 í Reykjavík. Myndin á þessu jólakorti eftir Ásgrím heitir: "Vor á Þingvöllum 1930".
Halldór Pétursson 14
Halldór Pétursson (26.9.1916 – 16.3.1977) var þekktur myndlistarmaður og teiknari. Hann lauk prófi í auglýsingateiknun frá Kunsthåndværksen í Kaupmannahöfn 1938 en var svo í framhaldsnámi í Minneapolis School of Art og Art Students League í New York árin 1942 – 1945. Hann myndskreytti fjölda bóka og rita, hafði mikinn áhuga á hestum og gerði margar myndir af þeim. Fræg verk eftir Halldór eru t.d. merki Reykjavíkurborgar (1951), merki Flugleiða og merki Rafmagnsveitna Reykjavíkur. Þá hannaði hann alla peningaseðla sem voru gefnir út á árunum 1960 – 1981. Halldór var þekktur meðal almennings fyrir teikningar sínar, ekki síst skopteikningar. Hann teiknaði mikið af jólakortum og þetta, með mynd af jólasveinunum þrettán í ófærðarbasli, er ein þeirra.
Bjarni_Jonsson_56
Bjarni Jónsson (15.9.1934 – 8.1.2008) var kennaramenntaður og lærði myndlist í Handíðaskóla Íslands og hjá Jóhannesi Kjarval og Ásgrími Jónssyni. Bjarni er einkum þekktur fyrir fjölmargar teikningar sínar af áraskipum sem varðveittar eru í Þjóðminjasafninu. Hann myndskreytti fjölmargar náms- og fræðibækur en þekktust af þeim er fimm binda bókaröðin: Íslenskir Sjávarhættir. Þar fyrir utan var hann afkastamikill við jólakortagerð og er þetta eitt sýnishorn af þeirri vinnu hans. Þetta kort sýnir útfærslu Bjarna á jólasveininum Skyrgámi.
Skagaströnd - safn542
Þetta jólakort var gefið út til styrktar byggingu Hólaneskirkju. Aftan á kortinu kemur fram að arkitektar hennar voru Ormar Þór og Örnólfur Hall. Ekki er vitað hvenær kortið var gefið út en líklega var það á seinni hluta níunda áratugarins.
1
2
Leita í myndasafninu
Leita