Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason820
Birna Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962
Ævar Axelsson - safn013
Axel Helgason frá Læk og kona hans Jóhanna Lárusdóttir á ferðalagi í sparifötunum.
Guðmundur Guðnason825
Á myndinni eru frá vinstri: Lilja Ásmundsdóttir (d. 2.4.1990) frá Holti, Birna Bjarnadóttir, dóttir hennar og Steinunn Sveinsdóttir frá Ásbúðum sem ól Lilju upp. Á veggnum milli þeirra hangir mynd af hálfbróður Lilju, Hauki Hansen en þau voru sammæðra.
Guðmundur Guðnason758
Leikarar eru, frá vinstri: Steindór Haraldsson, Kristín Lúðvíksdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, óþekktur, óþekktur og Pétur Jóhannsson.
Guðmundur Guðnason901
Hof í Skagabyggð. Nú hefur íbúðarhúsið verið jafnað við jörðu og nýtt byggt á svipuðum stað.
Guðmundur Guðnason984
Ásgeir Axelsson seinna bóndi á Litla-felli.
Guðmundur Guðnason813
Óþekkt kona fyrir framan en María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003) í Sænska húsinu (Hólabraut 23) fyrir aftan. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason738
Drengurinn lengst til hægri er Ingvar Ástmarsson. Hinir eru bræður frá Núpi í Laxárdal Valgarður Jökulsson lengst til vinstri og Kristján Jökulsson í miðið.
Guðmundur Guðnason841
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason822
<P>Anna Bára Sigurjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1962.</P>
Guðmundur Guðnason731
Hafþór Gylfason
Guðmundur Guðnason835
Þessi mynd var tekin í Lundi af heimilisfólkinu þar og gestum þeirra. Frá vinstri: Margrét Jóhannesdóttir (d. ?), Sigurlaug Friðgeirsdóttir, Gurid Björnsson (d. 26.4.2007) frá Hlíð, Anne Grete Gravningen kennari við Kvennaskólann á Blönduósi 1962-63, Alma Ellertsson (d. 6.10.2000) (fædd Steinhaug) frá Alvadal í Österdal í Noregi og Ole Aamundsen (Óli norski) (d. ?). Ole og Margrét voru hjón sem bjuggu í Lundi og Sigurlaug var vinnustúlka þeirra og heimilsföst hjá þeim hjónum í mörg ár. Alma var eiginkona Sveins Ellertssonar mjólkurbússtjóra á Blönduósi. Myndin var sennilega tekin 1962 eða 1963.
Guðmundur Guðnason909
Hópreið á fjölmennu hestamannamóti í Húnaveri 1964.
Ævar Axelsson - safn023
Árni Guðmundsson var bróðir Jóns Guðmundssonar sem lengst bjó á Sölvabakka.
Guðmundur Guðnason839
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason908
Sævar Bjarnason frá Bjargi.
Ævar Axelsson - safn032
Hjónin Axel Helgason og Jóhanna Lárusdóttir frá Læk. Saman eignuðust þau tíu börn.
Guðmundur Guðnason799
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu til vinstri og Þorbjörn Jónsson (2.9.1986) frá Akurgerði til hægri.
Guðmundur Guðnason796
Fermingarbörn ganga til kirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni 1964. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Andrés Árni Baldursson, Guðmundur Jónatansson, Árni Ingibjörnsson, Ingþór Þorfinnsson, Óskar Jóhannesson, Stefán Jósefsson og Rúnar Ingvarsson. Stúlkurnar eru óþekktar
Guðmundur Guðnason037
Aftan á þessari mynd stendur: "Þarna er Lilja og Lóa fyrir aftan vagninn. Kveðja frá Dísu og Lilju". Ef þú kannt einhver deili á Lilju og Lóu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ævar Axelsson - safn018
Þorvaldur Axelsson frá læk með Bryndísi dóttur sína.
Guðmundur Guðnason854
Fermingarbörn árið 1964 ganga til Hólaneskirkju. Drengurinn lengst til vinstri er Óskar Jóhannesson frá Sunnufelli (Sunnuvegur 3) en sá til hægri er Guðmundur Ingi Jónatansson frá Höfðabrekku (Bankastræti 10). Presturinn er séra Pétur Þ. Ingjaldsson en stúlkurnar eru óþekkta þessari mynd.
Guðmundur Guðnason834
Guðbjörg Gylfadóttir nokkuð mörgum árum áður en hún varð Íslandsmeistari í kúluvarpi.
Guðmundur Guðnason076
Pálína Freyja Harðardóttir sem var alin upp í Póshúsinu (Bogabraut 10).
Guðmundur Guðnason994
Katrín Líndal, frá Bakkakoti
Guðmundur Guðnason014
Börn Lárusar Valdimarssonar og Ingibjargar Daníelsdóttur sem lengi bjuggu í Grund. Systkinin eru, frá vinstri: Þórdís Lárusdóttir, Sigríður Lárusdóttir, Magnús Lárusson og Grímur Valdimar Lárusson.
Guðmundur Guðnason842
Skóla- eða fermingarhópur með leiðbeinanda sínum. Séra Jón Kr. Ísfeld er maðurinn á myndinnni en hægra megin við hann situr Sævar Hafsteinsson Fossdal. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlegast sendu okkur þá upplýsingar þar um.
Guðmundur Guðnason034
Aðalsteinn Jörgensen í Reykholti.
Ævar Axelsson - safn033
Jóhann Jakobsson sem lengst af bjó í Blálandi með konu sinni Katrínu (Stellu) Sigurjónsdóttur og einkadótturinni Hrafnhildi.
Guðmundur Guðnason728
Filippía Helgadóttir Syðri-ey.
Guðmundur Guðnason017
Bylgja Angantýsdóttir með tvær systurdætur sínar Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur til vinstri og Sigurbjörgu Árdísi Indriðadóttur til hægri. Myndin tekin 1961 eða ´62.
Guðmundur Guðnason892
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir með brúðuna sína í mars 1962
Guðmundur Guðnason896
Sigurbjörg Angantýsdóttir með Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur, dóttur sína í fanginu í mars 1962.
Guðmundur Guðnason982
Óskar Axelsson seinna bóndi í Neðri Lækjardal og síðan í Ásholti á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason010
Jóhannes Hinriksson frá Ásholti fæddur 21.01.1904, dáinn 27.10. 1973.
Guðrún Guðbjörnsdóttir112
Lúsíuhátíð í Höfðaskóla. Konurnar á myndinni eru, talið frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dóra Hallgrímsdóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Halla Jökulsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Guðmundur Guðnason801
Ernst Berndsen (d. 21.8.1983) frá Karlsskála. Hann var hafnarvörður við Skagastrandarhöfn í áratugi og jafnframt lóðs á Húnaflóa.
Guðmundur Guðnason682
Líney Jósefsdóttir í fermingarkirtlinum sínum á fermingardaginn.
Ævar Axelsson - safn016
Sigrún Sveinsdóttir og Axel Helgason voru uppeldissytkin á Efri - læk. Sigrún varð seinna kaupmannsfrú í Reykjavík en Axel bjó á Læk.
Ævar Axelsson - safn022
Standandi á myndinni er Guðrún Helgadóttir frá Efri - læk, seinna húsfrú á Karlsskála. Sitjandi er uppeldissystir hennar, Sigrún Sveinsdóttir.
Guðmundur Guðnason985
Gígja Axelsdóttir frá Litla-felli.
Guðmundur Guðnason916
Lúsíur í skólanum. Frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dóróthea Hallgrímsdóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Halla Jökulsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir og Sigrún Lárusdóttir. Myndin tekinn einhverntíma á árunum 1965 - 1970.
Guðmundur Guðnason836
Frá vinstri: Steinunn Berndsen, Hafþór Smári Gylfason og Guðrún Berndsen.
Guðmundur Guðnason874
Ísleifur Haraldsson á fermingardaginn sinn 1961.
Ævar Axelsson - safn020
<P>Hjónin Sigríður Björnsdóttir og Hrólfur Jakobsson í skemmtiferð með tvö börn. Stúlkan er líklega Sylvía dóttir þeirra en drengurinn á myndinni er óþekktur.</P>
Ævar Axelsson - safn021
Ragheiður Brynjólfsdóttir ( f.22.5.1901- d.10.6.1994) frá Ytri - Ey sem var þekkt kona á sinni tíð; kennari í kvennaskólanum og grunnskólanum og var með veitingahússrekstur á Blönduósi um tíma.
Guðmundur Guðnason803
Systurnar (frá vinstri): Kristjana Þorbjarnardóttir, Heiðdís Þorbjarnardóttir og Heiðrún Þorbjarnardóttir frá Akurgerði.
Guðmundur Guðnason760
Bærinn Ásholt
Guðrún Guðbjörnsdóttir102
Frá vinstri á myndinni: Áslaug Gunnarsdóttir, Hulda Magnúsdóttir, Stefán Ægir Lárusson, Páll Jóhannesson, Pálína Harðardóttir og Jóney Gylfadóttir. Myndin tekin á áttunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason910
Guðrún Angantýsdóttir
Guðmundur Guðnason899
Þessi mynd af bókmenntakettlingi var að öllum líkindum tekin í herbergi Guðmundar Guðnasonar í Ægissíðu. Myndin ber merki áhugamála hans með eigin ljósmyndum á veggjum, trúarlegt tákn, bækur og væntumþykja hans um dýr.
Guðmundur Guðnason915
<P>Einhverntíma í kringum 1960 var haldið skíðamót í Hörfellinu. Það var Ingólfur Ármannsson kennari og skátaforingi sem sá um framkvæmdina með góðra manna hjálp. Keppt var í bruni og skíðastökki en keppendur þurftu að ganga upp brekkuna með skíðin sín á bakinu til að geta tekið þátt í keppninni. Því miður eru keppendurnir óþekktir á myndunum en þarna voru keppendur eins og : Birgir Júlíusson, Birgir Þórbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Þórunn Bernódusdóttir og fleiri. Fólk þurfti að ganga alllanga leið áður en komið var á skíðasvæðið því enginn akvegur liggur upp að Hörfelli. Á myndinni má sjá keppendur og áhorfendur á leið á keppnissvæðið. </P>
Ævar Axelsson - safn011
Jóhann Guðmundsson f.10.júní.1821 d. 22.apríl 1895. Jóhann var með herðakistil og þess vegna festist viðurnefnið "hnútur" við hann. Hann var þrígiftur og eignaðist 15 börn með þessum þremur konum sínum. Af þeim dóu átta á barnsaldri þar með talin fjögur börn sem dóu á sama ári - reyndar á sama hálfa mánuðinum. Eitt af börnum Jóhanns sem komust til fullorðinsára var Lárus Jóhannsson sem var faðir Jóhönnu Lárusdóttur sem var gift Axel Helgasyni frá Læk og eignaðist með honum átta börn.
Guðmundur Guðnason128
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari í Ægissíðu, uppáklæddur með sparihattinn gleður sig með bættum kaffisopa. Myndin sennilega tekin 1969.
Guðmundur Guðnason862
Búi Birgisson á fermingardaginn sinn 1971.
Ævar Axelsson - safn012
Karla Helgadóttir og bróðir hennar Axel Helgason uppábúin á ungligsárum sínum. .
Guðmundur Guðnason885
Þessi stúlka er óþekkt. Myndin var tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason977
Margrét Jóhannesdóttir (til vinstri) og Sigurlaug Friðgeirsdóttir í Lundi.
Guðmundur Guðnason018
Hjónin Karl Guðmundsson frá Vindhæli og Dagný Hannesdóttir með frumburð sinn Einar Karlsson. Myndin var sennilega tekin 1964.
Guðmundur Guðnason870
Sigurður Bjarnason á fermingardaginn sinn 1961.
1
…
9
10
11
…
79
Leita í myndasafninu
Leita