Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason003
Áslaug Hrólfsdóttir í Bjarmalandi
Guðmundur Guðnason036
Vilhelm Harðarson í Reykholti.
Guðmundur Guðnason867
Bogabraut 16. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Ævar Axelsson - safn007
Björn Guðmundsson frá Árbakka
Guðmundur Guðnason871
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Ævar Axelsson - safn005
Á myndinni hafa ungir Húnvetningar brugðið sér á ljósmyndastofu Ólafs Magnússonar í Reykjavík. Frá vinstri: Björn Helgason Efri - læk, Axel Helgason Læk, Þórhallur Jakobsson Neðri - Þverá og Indriði Brynjólfsson Ytri - ey.
Guðmundur Guðnason983
Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari í Ægissíðu á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason987

Kór Blönduóskirkju. Konan lengt til vinstri í aftari röð er Anna Tryggvadóttir við hlið hennar er Guðmann Hjálmarsson þá Jónas Tryggvason en framan við hann er Kristófer Kristjánsson, frá Köldukinn. Ungi maðurinn fyrir miðju er líklega Jón Kristinsson úr Laxárvirkjun en við hlið hans er Ingileif ?? frá Kleifum og síðan Guðfinna Pálsdóttir. Fyrir aftan Guðfinnu er Einar Þorláksson og lengst til hægri er Einar Guðlaugsson. Framan við Einar stendur Þorgerður Sæmundsen. Sólveig Sövik situr fyrir miðju fremst. Aðrir á myndinni eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason903
Grund. Sennilega var myndin tekin 1965.
Guðmundur Guðnason924

Konan sem situr með barnið (líklega Pálínu Harðardóttur) er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Konan sem situr hjá henni er Bára Þórðardóttir. Strákarnir í sófanum eru talið frá hægri: Valdimar Valdimarsson (Númason), Ernst Berndsen, Vilhelm Harðarson og Ólafur Valdimarsson (Númason). Myndin tekin ca 1970

Ævar Axelsson - safn008

Aftan á þessari mynd stendur skrifað með blekpenna: "Lárus Jóhannsson fæddur einn góðviðrisdag fyrir mörgum árum hefir leifi til að ríða tvíhjóla tík. Lögreglustjórin". Síðan hefur einhver látið Lárus hlægja að þessu með því að krota haaaaa inn á myndina. Lárus var m.a. bóndi á Höllustöðum og Kúskerpi. Hann var faðir Jóhönnu Lárusdóttur á Læk , konu Axels Helgasonar.

Ævar Axelsson - safn010
Axel Helgason frá Læk með hestinn sinn reiðubúinn í útreiðartúr.
Guðmundur Guðnason030
Rósberg Guðnason Snædal skáld og rithöfundur, f. 8.8.1991 og d. 9.1.1983, á heimaslóðum í Laxárdal sem þá voru komin í eyði. Rósberg var bróðir Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara.
Ævar Axelsson - safn003
Axel Helgason á Læk
Guðmundur Guðnason846
Maðurinn á myndinni er Jakob Þorsteinsson sem lengi bjó í Sæbóli á Skagaströnd með konu sinni Lilju Guðmundsdóttur og börnum sínum. Nöfn barnanna eru frá vinstri: Sigríður Jakobsdóttir, Þorsteinn Magnús Jakobsson og Ísleifur Ólafur Jakobsson.
Ævar Axelsson - safn028
Karla Helgadóttir frá Efra - læk.
Guðmundur Guðnason732

Kristján Jökulsson frá Núpi í Laxárdal á fermingardaginn sinn 1967.

Guðmundur Guðnason838
Konan lengst til vinstri er líklega Guðrún Björnsdóttir frá Ytri-Löngumýri. Í miðjunni er Alda Björnsdóttir frá Fjósum í Svartárdal og lengst til hægri er Guðrún Steingrímsdóttir frá Snæringsstöðum í Svínavatnshreppi.
Guðmundur Guðnason105
Þessi mynd var tekin eftir árekstur þessa tveggja jeppa. Líklega var myndin tekin á þjóðveginum neðan við Hvamm í Norðurárdal í Borgarfirði. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, hafa rekist saman H 94 og S 95. H var á þessum tíma á bílum úr Húnavatnssýslum en S á bílum frá Seyðisfirði og Norður Múlasýslu. Síðastur til að nota númerið H 94, áður en tekið var upp nýtt númerakerfi, var Ástmar Kári Ástmarsson á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason906
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir til vinstri með bróður sínum Hjalta Indriðasyni.
Guðmundur Guðnason077
Áhorfendur fylgjast spenntir með kúlunni svífa í kúluvarpskeppni á ókunnu íþróttamóti (Frá Úlfari Björnssyni?). Ef þú veist eitthvað um myndina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ævar Axelsson - safn001
Konan á myndinni er talin vera Guðrún Helgadóttir seinna húsfreyja á Karlsskála eiginkona Ernst Berndsen.
Guðmundur Guðnason020

Þessi mynd er sú fyrsta í fimm mynda röð frá Guðmundi Guðnasyni. Hinar myndirnar eru númer 2544, 2545, 2546 og 2547. Myndirnar sýna Ole Aamundsen hjálpa Lárusi Jónssyni lækni við að klifra yfir milligerði í Spákonufellsrétt. Lárus er prúðbúinn með hatt og sker sig þannig úr öðrum sem eru að störfum í réttinni.

Á þessari mynd eru frá vinstri: baksvipurinn á Þorkeli Magnússyni, Friðjón Guðmundsson með húfupottlok sem hann bjó til úr samanbrotnum bréfpoka, Ole Aamundsen með gleraugu og Lárus Jónsson læknir með hatt. Aðrir eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason072
Sigurður Þorbjörnsson frá Akurgerði á fermingardaginn sinn 1967.
Guðmundur Guðnason823
Stefanía Guðjónsdóttir á fermingardaginn sinn 1964.
Guðmundur Guðnason986
Þórey Ólafsdóttir sem lengi var á Árbakka.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn006
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) til vinstri og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til hægri. Hér eru þeir félagar í gervum sínum í stuttum leikþætti sem leikinn var á kvöldvöku Lionklúbbs Skagastrandar á sjöunda áratugnum í gömlu Tunnunni. Leikþátturinn var saminn af Bernódusi og fjallaði um mannlífið á Skagaströnd í léttum dúr. Konan sem Guðmundur lék hét Lofthæna Pétursdóttir því séra Pétur var með hænsni uppi á hálofti hjá sér.
Guðmundur Guðnason144
Á myndinni er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu með óþekktri vinkonu sinni (?Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003)?). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú veist hver konan er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason040

Myndin er af fólki sem lengi var í forystu á margvíslegan hátt á Skagaströnd. Fólkið er greinilega á fundi líklega stjórn sparisjóðsins eða fundur í Verkalýðsfélaginu. Myndin, sem er líklega tekin 1963 eða 1964, var tekin í afgreiðslu Sparisjóðs Skagastrandar í Miðnesi. Frá vinstri á myndinni eru: Björgvin Jónsson í Höfðabrekku (Bankastræti 10), Pálmi Sigurðsson í Pálmalundi (Hólabraut 27), Kristófer Árnason Sunnuhvoli (Sunnuvegur 1), Guðbjartur Guðjónsson Vík (Strandgata 4), Ingvar Jónsson hreppstjóri Skagavegi 2 (Norður - skála), Ólafur Guðlaugsson Sævarlandi, Kristján Hjartarson Grund, Haraldur Sigurjónsson Iðavöllum, Jóhanna Sigurjónsdóttir Héðinshöfða (Skagavegur 5 ?), Björgvin Brynjólfsson Miðnesi, Jóhanna Gunnlaugsdóttir Hólabraut 5.

Guðmundur Guðnason880
Fermingarbörn ganga úr kirkju eftir fermingu 1965. Fremst gengur Ragnheiður Sigurjónsdóttir. Síðan koma frá vinstri: Björn Sigmundson, Bergur Þórðarson, Kristófer Einarsson, Frits Bjarnason, Guðmundur Rúnar Kristjánsson og Jóhannes Pálsson.
Guðmundur Guðnason730
Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi. Myndin sennilega tekin á fermingardaginn hennar.
Guðmundur Guðnason035
Þekkir þú þennan mann? Ef svo er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason934
Skúli Árnason Gnýstöðum Vatnsnesi bróðir Guðmundar og Gunnlaugs Árnasona sem lengi bjuggu á Skagaströnd.
Ævar Axelsson - safn027

Guðrún Gísladóttir (f. 30.12.1863. - d.11.6. 1951). Systir (sammæðra) Lárusar Jóhannsonar föður Jóhönnu Lárusdóttur á Læk. Maður Guðrúnar var Halldór J. Halldórsson, meðal bara þeirra voru Sigvaldi bóndi í Stafni og Bjarni í Brautarholti á Blönduósi.

Guðmundur Guðnason887
Þetta fólk er óþekkt. Myndin var sennilega tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ævar Axelsson - safn002
Bræðurnir Björn Helgason (sitjandi) frá Efri - læk og Axel Helgason frá Læk.
Ævar Axelsson - safn009
Axel Helgason frá Læk.
Guðmundur Guðnason922
Óþekkt barn. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason894
Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir í mars 1962
Guðmundur Guðnason872
Hrefna Júlía Viggósdóttir á femingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason865
Akurgerði (Hólabraut 9). Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason861
Bogabraut 12. Myndin var sennilega tekin 1964 - 65.
Guðmundur Guðnason997
Ólafur Pálsson ( f. 03.05.1924 d: 26.03. 2004) frá Króksseli sem seinna bjó á Ytri - Björgum.
Guðmundur Guðnason790

Vilhjálmur Pálmason frá Holti

Guðmundur Guðnason981

Óskar Axelsson frá Ásholti til vinstri og Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari frá Ægissíðu.

Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn024
Lilja Bernódusdóttir úr Stórholti til vinstri með Önnu Sjöfn Jónasdóttur frænku sinni. Myndin var tekin í janúar 1968
Guðmundur Guðnason085

Örvar kristjánsson leikur á harmóniku við óþekkt tilefni.

Guðmundur Guðnason067

Mynd tekinn á Æsustöðum í Langadal , þarna má þekkja séra Birgi Snæbjörnsson (d. 17.7.2008) í hvítri skyrtu með uppbrettar ermar og við hlið hans, til vinstri, Guðmund Klemenzson (d. 24.12.1999) kennara í Bólstaðarhlíð. Pétur Guðlaugsson (d. 19.5.2006) fyrrum bóndi á Brandsstöðum og trúlega bræður hans tveir. Konurnar og stúlkan eru óþekktar. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason064

Systkinin Sigfríður Konráðsdóttir og Sigurjón Konráðsson með óskírða Konráðsdóttur (d. 16.12.1969).

Guðmundur Guðnason897
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir einhvern óþekktan karlakór syngja en síðan sungu kórarnir greinilega allir saman, eins og sjá má á öðrum myndum hér í safninu. Ef þú þekkir hvaða kór þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason876
Pétur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason980
Á þessari mynd eru frá vinstri: Guðmundur Guðnason póstur og ljósmyndari og Ásgeir Axelsson seinna bóndi á Litla-felli.
Guðmundur Guðnason041
Mynd tekin yfir Blönduós.
Guðmundur Guðnason004

Þessi mynd er tekin í fermingarveislu Valgarðs Jökulssonar,heima á Núpi. Talið frá hægri: Geirlaug Ingvarsdóttir frá Balaskarði, Guðmundur maður Bjargar Ingvarsdóttur frá Balaskarði, Karl Guðmundsson frá Vindhæli,Garðar Stefánsson frá Kúskerpi, Þorvaldur Jónsson fyrir endanum, fermingarbarnið og Signý Benediktsdóttir á Balaskarði.

Ævar Axelsson - safn029
Guðrún Helgadóttir frá Efri - læk. Seinna húfrú á Karlsskála.
Guðmundur Guðnason052
Bræðurnir á Hólanesi Magnús Sigurðsson til vinstri og Jósef Sigurðsson til hægri. Myndin tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason005

Hjónin í Hvammi í Langadal með börnin sín. Frá vinstri Sigurbjörg Hafsteinsdóttir sem situr með Soffíu Svölu Runólfsdóttur, Bjarni Runólfsson stendur framan við Rannveigu Runólfsdóttur og Njáll Runólfsson stendur framan við Hafstein Runólfsson. Lengst til hægri er svo Runólfur Aðalbjörnsson (d. 12.2.2016) bóndi í Hvammi.

Guðmundur Guðnason083
Þessa mynd tók Guðmundur Guðnason rétt fyrir 1960 af systrunum, frá vinstri: Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997), Dagný Hannesdóttir og Guðrún Angantýsdóttir. Á myndinni standa þær fyrir utan Bræðraminni en þar bjó móðuramma þeirra systra, Sigurbjörg Jónasdóttir (d. 25.4.1980). Bræðraminni stóð rétt norðan við Rjúnafell eða um það bil í vesturenda rækjuvinnslunnar sem nú stendur.
Guðmundur Guðnason905
Árbakkasteinninn stendur upp úr hafísnum sem annars þekur Húnaflóann í grennd við Skagaströnd. Myndin var sennilega tekin Hafísárið 1965.
Guðmundur Guðnason031
Rósberg G. Snædal (d. 9.1.1983). Hann var bróðir Guðmundar Guðnasonar (21.11.1988) frá Ægissíðu sem átti þessa mynd.
1

10
11
12

79
Leita í myndasafninu
Leita