Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Elísabet Knudsen - ljósm. H Einarsson Akureyri 011
Elísabet Knudsen. Um þessa konu er lítið vitað annað en hún bar mjög fyrir brjósti lestarakennslu barna. Ef þú veist eitthvað um Elísabetu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson027
JólatónleikarTtónlistarskólans haldnir í Höfðaskóla 1986. Steinunn Berndsen kennari leikur með nemendum sínum sem eru frá vinstri: Salóme Rúnarsdóttir, Hildur Inga Rúnarsdóttir og Bergþóra Huld Guðjónsdóttir.
Þórbjörn og Kristófer 095
Þetta eru mágarnir Þórbjörn Jónsson (f. 19.11.1917 - d. 22.1 1996) frá Flankastöðum (Tóti Flankur) til vinstri og Kristófer Árnason (f. 31.1.1916 - d. 10.5.2000) til hægri. Kristófer var bróðir Guðmundu konu Þórbjarnar.
Guðmundur Guðnason061
Óþekktur maður með tvö börn. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn054
Bekkjarmynd tekin á tröppum Höfðaskóla 1958 eða 1959. Fremsta röð frá vinstri: Frímann Lúðvíksson, Sigurður Björnsson, Kristinn Lúðvíksson. Önnur röð: Sigurbjörg Kristjánsdóttir, Harpa Friðjónsdóttir, Anna Skaftadóttir, Bylgja Angantýsdóttir, Ástríður Bertelsdóttir. Þriðja röð: Jóhanna Bertelsdóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir. Fjórða röð: Helga Jóhannesdóttir, Jóhanna Bertelsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Efsta röð: Ingólfur Ármannsson kennari, Sigurjón Magnússon, Konráð Guðmundsson, Birgir Þórbjarnarson. Þetta fólk var fyrsti hópurinn til að útskrifast úr núverandi skólahúsnæði sem tekið var í notkun haustið 1958.
Guðmundur Guðnason164

Í Stafnsrétt 1963. Guðmundur Guðmundsson (d. 29.8.1976) bóndi að Fossum er sá sem er með höndina í fatla. Hinn maðurinn er Baldur Sigurðsson frá Vesturhlíð í Lýtingsstaðahreppi.

Ólafur Bernódusson034
Sjálfboðaliðar við byggingu skíðaskálans við Skagaströnd í nóvember 1983. Skálinn var að lang mestu leyti byggður í sjálfboðavinnu enda var skíðmennska þá almenn á Skagaströnd. Við hlið skálans var diskalyfta sem var notuð mjög mikið af bæjabúum. Skálinn var byggður á einu ári, gerður fokheldur um haustið 1983 og síðan innréttaður um veturinn og vorið 1983- 1984. Á myndinni eru frá vinstri: Þorbjörg Magnúsdóttir, Guðjón Guðjónsson, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Gylfi Guðjónsson, Magnús B. Jónsson, Magnús Sigurðsson og Ingibergur Guðmundsson. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn059
Systurnar Þórunn og Halla Björg Bernódusdætur fyrir utan heimili sitt í Skálholti. Þórunn, sem er til vinstri, er fimm ára á myndinni en Halla Björg var 6 ára. Myndin var tekin 1950.
Guðmundur Guðnason074
Sigurður Þorbjörnsson frá Akurgerði á fermingardaginn sinn 1967.
Sigurlaug Jónsdóttir Ási 078
Sigurlaug Jónsdóttir frá Ási fyrir utan Hólaneskirkju.
Guðmundur Guðnason196

Félagsheimilið Húnaver. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið á sjöunda áratugnum.

Jóhannes Pálsson með afkomendum sínum 038
Jóhannes Pálsson skósmiður frá Garði (d. 9.3.1972) með afkomendum sínum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn058
Þessir krakkar voru öll alin upp í útbænum - undir Höfðanum. Frá vinstri: Finnur Kristinsson úr Héðinshöfða, sem nú hefur verið rifinn, Unnur Gunnarsdóttir, sem átti heima á neðri hæðinni í Stórholti, er í vagninum, Ólafur Bernódusson sem átti heima á efri hæðinni í Stórholti og Eygló Gunnarsdóttir systir Unnar Myndin var tekin um 1960 á blettinum framan við Stórholt. Kárastaðir, sem nú eru horfnir og Höfðabrekka í baksýn. Héðinshöfði stóð við Skagaveg, Stórholt er Bankastræti 3, Kárastaðir voru Bankastræti 5, en Höfðabrekka er Bankastræti 10.
Guðmundur Guðnason153

Ingvar S. Pálsson (d. 18.10.1968) frá Balaskarði í Laxárdal.

Lárus Ægir ferming 1960 058
Fermingabörn í Hólaneskirkju 1960. Sitjandi frá vinstri: Dagný Hannesdóttir, Magdalena Axelsdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir. Standandi frá vinstri: Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Ómar Þorbjörnsson, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) organisti, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn032
Herbert Ólafsson sjómaður og ljósmyndari sem lengi bjó á Akri (Hólabraut 13) á Skagaströnd
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn039

Starfsfólk Rækjuvinnslu og frystihúss Hólanes hf fór saman í skemmtiferð til Kaupmannahafnar. Ferðin var farin einhverntíma kringum 1980. Á myndinni eru frá vinstri: Hjónin Guðný Finnsdóttir og Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) þá kemur Steindór Gíslason (d. ?) framkvæmdastjóri fyrirtækisins, Guðrún Sigurðardóttir og hjónin Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Anna Halldórsdóttir Aspar (d. 1.9.1999) . Myndin er líklega tekin í flugstöðinni á Kastrup í Kaupmannahöfn

Guðmundur Guðnason203
Guðrún Lárusdóttir í Ási er til vinstri en stúlkan til hægri er Gréta Jónsdóttir frá Laufási.
Guðmundur Guðnason183
Guðmunda Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum.
Óli Ásgeirs og Guðm. Jóh. 072
Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum til vinstri og Guðmundur Jóhannesson frá Garði í blíðviðri í skógarlundi á óþekktum stað.
Guðmundur Guðnason071
Aftan á þessari mynd stendur: "Sverrir Haraldsson og 3 strákar. Myndin tekin á Litla-Vatnsskarði". Fleira er ekki vitað um myndina en ef þú veist hvaða stráka er um að ræða vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason154
Prestur predikar í ?Hofskirkju?. Presturinn er óþekktur. Ef þú þekkir hann og /eða kirkjuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn042
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Úti á götu í London í góðu skapi eru frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Helga Jóhannesdóttir, Sigrún Lárusdóttir kona Sigurðar og Sveinn Ingólfsson maður Helgu.
Guðmundur Guðnason163

Aftan á þessa mynd hefur Guðmundur ljósmyndari skrifað: "Sigurður Ísólfsson við orgel Skálholtsdómkirkju". Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.

Guðmundur Guðnason130
Þennan bíl átti Már Hall Sveinsson (d.1.3.2008) í Réttarholti nágranni Guðmundar Guðnasonar ljósmyndara þessarar myndar.
Guðmundur Guðnason137

Kristján Kristófersson (d. 30.3.1973) bóndi í Köldukinn í Torfalækjarhreppi.

28_Bjarnina_ Litla_Bergi_1945
Bjarnina á Litla-bergi, 1945
Lárus Ægir og Helga 059
Systkinin Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Helga Guðmundsdóttir til hægri. Myndin tekin um 1950.
Ludvig R. Kemp og Hjörtur 1953 063
Lúðvík R. Kemp (f. 8.8.1889 - d. 30.7.1971) með brennivínsflösku og vinur hans Hjörtur Laxdal frá Sauðárkróki
Guðmundur Guðnason070
Unnur Gunnarsdóttir úr Stórholti (seinna Lundi) til vinstri og Fjóla Sigurðardóttir frá Höfðakoti til hægri á fermingardaginn sinn.
Guðmundur Guðnason165
Hjónin frá Réttarholti; Þorbjörg Halldórsdóttir (d. 30.6.1970) og Jón Sölvason (d. 17.8.1969). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún var tekin framan við Flankastaði (Bankastræti 7) en þar bjó Þórbjörn sonur þeirra með sína fjölskyldu.
Elísabet á Jaðri - Mynd Loftur 010
Elísabet Frímannsdóttir - Beta á Jaðri.
Elínborg með bekk Kalla og Begga 009
Bekkjarmynd af börnum í Höfðaskóla fæddum 1953. Myndin gæti verið tekin ca 1963. Aftasta röð frá vinstri: Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001) Lækjarhvammi, Böðvar Jónsson Sænska húsinu, Ólína Bjarnadóttir Bjarnarhöfn, Gylfi Jóhannsson Lækjarbakka og Sveinn Mássson Réttarholti. Miðröð frá vinstri: Sigurður Þorbjörnsson Akurgerði, Gísli Bergsson Hólanesi, Jón Geir Jónatansson Höfðabrekku, Jón Jósefsson Reykholti, Finnur Kristinsson Héðinshöfða og Guðmundur Kristinsson Bræðraborg. Fremsta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson Hólabraut 25, Halla Júlíusdóttir Höfðabergi, Elínborg Jónsdóttir kennari Röðulfelli, Edda Þórarinsdóttir Höfðaborg og Ingibergur Guðmundsson Hólabraut 25.
Ólafur Bernódusson060
Á myndinni er Sveinn S. Ingólfsson að afhenda Lárusi Ægi Guðmundssyni styrk frá útgerðarfyrirtækinu Skagstrendingi hf til ungmennafélagsins Fram. Myndin er tekin 1984 og það er Sveinn sem er til vinstri.
Díana, Grétar og synir 007

Hjónin Grétar Haraldsson og Sigurlaug Díana Kristjánsdóttir með syni sína þrjá. Drengirnir eru frá vinstri: Jóhannes William Grétarsson, Ívar Logi Grétarsson og Elvar Arinbjörn Grétarsson. Myndin tekin 1990 - ´95.

Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn041
Sýslunefndarmenn vorið 1985. Sýslunefndir voru endanlega lagðar niður 31. desember 1988 með lögum sem samþykkt voru á Alþingi 1986. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Ísberg sýslumaður, Björn Jónsson Ytra-Hóli, Stefán Á. Jónsson Kagaðarhóli, Sigurður Ö. Þorbjarnarson Geitaskarði, Bernódus Ólafsson Skagaströnd, Þorfinnur Björnsson Ytri-Löngumýri, Gísli Pálsson Hofi, Sveinn Sveinsson Tjörn, Jón Tryggvason Ártúnum, Valgarður Hilmarsson Fremstagili og Ólafur Magnússon Sveinsstöðum.
Guðmundur Guðnason152
Í Hofsrétt sumarið 1965. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Árnason Náttbrún (Ólafsvöllum), Lárus Árnason Ási og Páll Jóhannesson Sunnuvegi 3. Maðurinn í köflóttu skyrtunni er Jón Sigurðsson (f:14.4.1927, d:1.9.1983) sem um tíma bjó á Árbakka.

Ólafur Bernódusson061
Myndin er tekin 1984 eftir að fulltrúar stærstu fyrirtækja á Skagatrönd höfðu afhent ungmennafélaginu Fram styrki til starfssemi sinnar. Frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir frá Fram, Sigurjón Guðbjartsson stjórnarformaður fiskvinnslufyrirtækisins Hólanes hf, Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri útgerðarfyrirtækisins Skagtrendingur hf og Lárus Ægir Guðmundsson formaður umf Fram.
Jón H. Þorgeirsson og María Konráðsdóttir 040
Hjónin Jón Þorgeisrsson og María Konráðsdóttir sem lengst af bjuggu í Sænska húsinu (Hólabraut 23).
Guðmundur Guðnason174
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Kári Kristjánsson frá Kárastöðum skyggnist um eftir fé sínu.
Ægir Einarsson frá Garði 096
Ægir Einarsson frá Garði (f. 13.8.1928 - d. 3.1.2002) bakari og lögreglumaður.
Guðmundur Guðnason156
Björn Jónsson Gili Svartárdal með tvo til reiðar í Stafnsrétt 1963.
Óþekktur ljósmyndari122
Starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf gerðu sér glaðan dag í Þórskaffi 1977. Í forgrunni myndarinnar er Gylfi Guðjónsson annars eru frá vinstri: Sigurður Óli Sigurðsson, Helga Ottósdóttir, Guðmunda Árnadóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir, Ásdís Þórbjarnardóttir, Vilhjálmur Sigurðsson, Hafþór Gylfason, Egill Bjarki Gunnarsson, Birgir Þórbjarnarson, Þórbjörn Jónsson (d. 22.1.1996) og aftan við hann er Árni Ólafur Sigurðsson.
Haddi á Iðavöllum og fjölskylda - held ég 023
Hjónin Sigurlaug Björnsdóttir (d. 7.9.1982) og Haraldur Sigurjónsson (d. 13.5.1986) frá Iðavöllum með tvo eldri syni sína. Björn Haraldsson (d. 21.9.1988) situr hjá móður sinni en Grétar Haraldsson er í fangi föður síns.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn004
Björg Ólafsdóttir (d. 1.3.2007) sem lengi bjó á Skagaströnd og var mjög virk í leiklistarlífi á staðnum.
Sigríður Björnsdóttir og Hrólfur Jakobsson 075

Hjónin Sigríður Björnsdóttir (d. 16.6.1979) og Hrólfur Herbert Jakobsson ( d. 27.12.1996) í skógalundi í tihugalífinu.

Jón Ólafsson 041

Bogi Thomsen Holm fæddur 6. sept 1873 dáinn 8.okt 1949

Guðmundur Guðnason175
Aftan á þessari mynd stendur skrifað: "Efri röð frá v. Lárus Jónsson, Snorri Arnfinnsson, Jóhann Daníelsson, Pálmi Guðnason, Kári Snorrason, Hörður Agnarsson, Steingrímur Björnsson. Neðri röð frá v. ". Fleira stendur ekki þannig að eigandi myndarinnar kláraði aldrei að merkja myndina. Ekkert fleira er vitað um myndina en ef þú þekkir konurnar á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson193
Lára Kristjánsdóttir lengi heimilismaður á Sæborg (d. 6.9.1993).
Guðmundur Guðnason202
Þessi mynd af systrunum í Skálholti var sennilega tekin um 1960. Frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Benjamínsdóttir (d. 10.6.1999) og Sóley Benjamínsdóttir. Foreldrar þeirra voru Benjamín Sigurðsson (d. 30.9.2004) og Lára Loftsdóttir (d. 21.4.2010).
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn052
Horft á spennandi efni í sjónvarpinu í stofunni í Stórholti (Bankastræti 3). Frá vinstri Björg Ólafsdóttir, Ólafur Bernódusson og Bernódus Ólafsson. Myndin er tekin einhverntíma snemma á áttunda áratugnum.
Ólafur Ásgeirsson 071
Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum.
Hallgrímur, Mundi og Snorri Gísla 026
Þessir prúðbúnu og hressu félagar frá Skagaströnd staupa sig á Íslensku brennivíni undir húsvegg. Frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Guðmundur Jóhannesson og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún var tekin að húsabaki á Blönduósi, bak við Snorrahús. Til vinstri er Pétursborg og stóra húsið er gamla Samkomuhúsið með sparisjóð A-Hún á neðri hæðinni.
Ólafur Bernódusson022
Lengst til vinstri er Oliver Oliversson þá kemur Ingvar Jónsson, greinilega sigurvegari á mótinu því hann er með bikar, og síðan til hægri er faðir Ingvars, Jón Ingi Ingvarsson. Þessir menn voru sigursælir á innanfélagsmótum Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli á árunum kringum 1990
Lára Kristj. og Lárus G Guðm. 052
Hjónin Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) og Lárus G. Guðmundsson (d.21.9.1981).
Óli Ásgeirs, Mundi og Snorri Gísla 073
Frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson (d. 27.12.1995) frá Höfðahólum, Guðmundur Jóhannesson frá Garði og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) frá Viðvík í óþekktum skógarlundi.
Guðmundur Guðnason075

Hástökkvarinn á myndinni er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Stefán Ingólfsson og Lárus Ægir 084

Fermingarbræðurnir 1960, Stefán Ingólfsson (d. 21.0.2004) til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.

Stella Lárusdóttir og fjölskylda 087
Hjónin Kristjana Sigurbjörg (Stella) Lárusdóttir (f. 12.6.1926) og Jörgen Berndsen (f. 4.12.1922 - d. 25.11.2012) með börnum sínum. Börnin eru frá vinstri: Lára Berndsen, Fritz H. Berndsen, Bjarki Berndsen og Bára Berndsen. Myndin var tekin á sjötta áratugnum.
Kalli, Lára, Ingibergur 044
Systkin, börn Guðmundar Jóhannessonar og Soffíu S. Lárusdóttur. Frá vinstri: Karl Guðmundsson, Lára Guðmundsdóttir og Ingibergur Guðmundsson. Karl og Ingibergur eru tvíburar eins og sjá má. Myndin er tekin um 1960. Þessir krakkar eru yngstu þrjú börn Guðmundar og Soffíu en auk þeirra áttu þau tvo eldri syni og eina eldri dóttur.
1

13
14
15

79
Leita í myndasafninu
Leita