Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Lárus Ægir og Helga 059
Systkinin Lárus Ægir Guðmundsson til vinstri og Helga Guðmundsdóttir til hægri. Myndin tekin um 1950.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn056
Þórunn Bernódusdóttir á sjötta áratugnum. Myndin tekin utan við Stórholt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn053
Fjölskyldan í Stórholti (Bankastræti 3 efri hæð). Anna Halldórsdóttir Aspar og Bernódus Ólafsson með börnin sín. Þórunn til vinstri, Ólafur Halldór í miðjunni og Halla Björg til hægri. Lilja situr í fangi móður sinnar.
Guðmundur Guðnason102
Óþekkt ungabarn. Myndin gæti verið tekin 1962. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson198
Hrefna Jóhannesdóttir frá Garði (f. 3.9.1911 - d. 9.11.2011), heimilismaður á Sæborg í mörg ár.
Hrólfur, Bogi, Steingr., Andrés, Björn, Sigurbj. 029
Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996), Bogi Björnsson, Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992), Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968), Björn Þorláksson og Sigurbjörn Kristjánsson (d. 10.9.1989). Mennirnir eru greinilega í skemmtiferð en tilefnið og hvenær myndin var tekin er óþekkt.
Ólafur Bernódusson039

Í nokkur ár var Arnar Hu 1 málaður á Skagaströnd þ.e.a.s. árleg "skvering" önnur en botmálning var framkvæmd á Skagaströnd. Oft var fenginn einhver verkstjóri og síðan ráðinn hópur unglinga til verksins. Á myndinni er einn slíkur unglingahópur sem málaði skipið í ágúst 1983. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson, Sigurbjörn Þorvaldsson, Guðmundur Óskarsson, Arnar Erlingsson, Björn Hallbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Ingimar Oddsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Arnar Arnarsson, Pálína Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.

Jón Jónsson220
Hjónin Sigurbjörg K.G. Hjartardóttir (Bogga í Vík) (d.17.7.1985) og Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) í Vík á sjómannadegi.
Lárus og Lára, börn og tengdabörn 057
Hjónin Lára Kristjánsdóttir og Lárus G. Guðmundsson með börnum sínum og tengdabörnum. Frá vinstri í fremri röð: Ingibjörg Lárusdóttir, Kristjana Sigurbjörg Lárusdóttir, Lára Kristjánsdóttir, Erla Valdimarsdóttir og Soffía S. Lárusdóttir. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Magnússon, Jörgen Berndsen, Lárus G. Guðmundsson, Guðmundur Lárusson og Guðmundur Jóhannesson.
María Magnúsdóttir 066
María Magnúsdóttir frá Syðra - Hóli kennari og verslunarmaður á Skagaströnd.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn036
Uppábúnar kvenfélagskonur úr kvenfélaginu Einingin á Þorrablóti í Tunnunni einhverntíma á sjöunda áratugnum. Frá vinstri: Elísabet (Bebbý) Árnadóttir frá Réttarholti, Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri Harrastöðum, Sigríður Ásgeirsdóttir frá Lækjarbakka, Gestheiður Jónsdóttir Bogabraut 5, Anna Halldórsdóttir Aspar úr Stórholti, Helga Berndsen frá Karlsskála og Karla Helgadóttir í Ásbyrgi. Svona klæddar gengu þessar konur um beina á þorrablótinu.
Lilja Andrésd. og Elísabet Berndsen 060
Lilja Andrésdóttir til vinstri og Elísabet Berndsen til hægri.
36_Þura_Litla_Bergi_1947
Þuríður á Litla-bergi, 1947
Guðmundur Guðnason184
Réttastörfum að ljúka í Spákonufellsrétt 1969. Drengurinn á myndinni er Guðmundur Viðar Guðmundsson en baksvipinn á Ágúst Jakobsson Blálandi.
Guðmundur Guðnason322
Friðrik Björnsson og Erla Hafsteinsdóttir frá Gili í Svartárdal.
Magnús B Jónsson085

Björn Pálsson alþingismaður frá Löngumýri á ferð á Skagaströnd að vetri til. Hann var meðal annars kaupfélagsstjóri hjá Kaupfélagi Skagstrendinga - KAST - um tíma. Þá var hann með útgerð á Skagaströnd og lét smíða eikarbátinn Húna ll á Akureyri og er hann enn varðveittur. Eftirfarandi ljóð var samið um Björn af óþekktum höfund og komst á flot.

Björn hinn ríki vex og verður stórmenni
hann stjórnar bæði KAST og löngu mýrinni
og er hann keypti flaggskipið í flota norðurlands
þá frétti allur heimurinn um afrek þessa manns
því hefur nú verið spáð að saga verði um hann skráð
og sagt í útvarps sendingum frá Sameinuðu þjóðunum
að hann mun leysa Hammerskjöld af hólminum.

Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir og Sigursteinn Guðmundsson læknir 022
Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir (d. 17.6.1978) á tali við Sigurstein Guðmundsson lækni um borð í Arnari Hu 1. Myndin sennilega tekin árið 1973.
Guðmundur Guðnason228
Frændsystkinin Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson í Hólaneskirkju (eldri) eftir ferminguna sína vorið 1981.
Ólafur Bernódusson021
Verðlaunahafar í kvennaflokki á golfmóti á Háagerðisvelli kringum 1990. Frá vinstri: Bjarney valdimarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Eldri borgarar á Skagaströnd 008
Eldri Skagstrendingar í skemmtiferð á vegum kvenfélagsins Einingar 6. júní 1969. Farið var til Hvammstanga og að Reykjum í Miðfirði. Þessi mynd var tekin í félagsheimilinu á Hvammstanga. Frá vinstri á myndinni eru: Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986), Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006), Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974), Tvær óþekktar konur, Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.3.7.1981) , Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003), Lárus Guðmundsson (d. 21.9.1981), óþekktur maður og kona, Fjóla Gísladóttir (d. 5.11.1991), Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Fremst standa í röð f.v. systkinin: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978), Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969) og Steingrímur Jónsson (d. 15.1.1992). Milli Laufeyjar og Steingríms eru Guðmundur Pétursson (d. 30.6.1987), og Páll Jónson (d. 19.7.1979)(aftar), en Svein Kristófersson (d. 9.5.1991) ber yfir höfuð Steingríms. Konan með svörtu húfuna er Margrét Björnsdóttir (d. 11.9.1993) og Sigurður Guðmundsson (d. 2.12.1984) maður hennar við hlið hennar. Konan aftast til hægri er Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000), þá koma Guðlaugur Guðlaugsson (d. 8.7.1990) og Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974).
Guðmundur Guðnason171
Óþekkt barn að róla sér í útbænum undir stjórn barnapíu . Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason187
Guðmundur Kr. Guðnason frá Ægissíðu(d. 21.11.1988) ljósmyndari, póstur og organisti með harmonikuna sína um jól.
Guðmundur Guðnason251
Íslenskur hundur fyrir utan Stóra Berg, sem nú er horfið. Í baksýn sér í Iðavelli. Þetta var Skúmur sem Þórarinn Hjartarson (d. 28.1.1991) átti en hann bjó á Stóra Bergi.
Guðmundur Guðnason227
Bræður frá Hólanesi. Magnús Sigurðsson til vinstri og Jósef Sigurðsson til hægri.
Jón Jónsson192

Jónína Guðrún Valdimarsdóttir frá Kárastöðum á 100 ára afmæli þann 29. nóvember 2016. Þessi aldna heiðurkona er mannasættir sem talar aldrei illa um nokkurn mann þrátt fyrir oft erfiða æfi. Lengi var hún ráðskona hjá bræðrunum Kára (d.11.12.1990) og Sigurbirni Kristjánssonum (d.10.9.1989) á Kárastöðum og hélt þeim heimili ásamt dóttur sinni. Jónína eignaðist tvö börn, Svavar Bergmann Indriðason 1939, sem lést 1.nóv. 2010, og Kristínu Ragnheiði Sigurðardóttur 1949, sem var með móður sinni á Kárastöðum. Jónína dvelur nú á Sæborg í góðu yfirlæti og og við góða líðan. Myndina af Nínu tók Jón Jónsson árið 1990.

Magnús B Jónsson044
Þátttakendur á fyrsta tölvunámskeiðinu á Skagaströnd ásamt leiðbeinanda sínum. Hópnum var skipt í tvo því aðsókn var svo góð. Á myndinni eru frá vinstri: Áslaug Gunnarsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Elínborg Jónsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Gunnlaugur Sigmarsson, Ingibjörg Kristinsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir, Ágúst Jónsson, Ólafur Bernódusson, Katrín Sigurjónsdóttir, Jón Pálsson, Ingibergur Guðmundsson, óþekktur leiðbeinandi og Jóhanna Gunnlaugsdóttir.
Lúðvík Kristjánsson heiðraður á sjómannadaginn 064
Lúðvík Kristjánsson ( d. 10.2. 2001) heiðraður á sjómannadegi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn070
Í skemmtiferð - líklega í Vaglaskógi - kringum 1950. Töffararnir á myndinni eru Gunnar Helgason ( d. 19.10.2007) til vinstri og Bernódus Ólafsson ( d. 18.9.1996) til hægri.
Lilja Andrésdóttir 061
Lilja Andrésdóttir dóttir Andrésar Guðjónssonar kaupmanns á Skagaströnd og Sigurborgar Hallbjarnardóttur. Lilja flutti til Bandaríkjanna.
Guðmundur Guðnason069
Á þessari mynd, sem tekin var á ókunnum stað, er fólk úr kirkjukór Hólaneskirkju. Fremst frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi, óþekktur, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi, Páll Jónsson (d.19.7.1979) Breiðabliki organisti Hólaneskirkju, Sigríður Guðnadóttir (d. 4.3.1964) Breiðabliki, óþekkt, Ása Hafsteinsdóttir Reykholti, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu, og þrír óþekktir. Aftar frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, óþekkti, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og óþekkt. Myndin hefur sennilega verið tekin um 1960.
Elísabet og Margrét Hemmertsdætur 012
Systurnar Elísabet og Margrét Hemmert.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn019
Myndin er tekin í listigarðinum á Akureyri á árunum fyrir 1950. Frá vinstri eru: Vilborg Jónsdóttir (d.?) Bergi, Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) Stórholti og systurnar Guðný Pálsdóttir (d.17.2.2005) og Guðfinna Pálsdóttir (d. 27.4.2015).
Guðmundur Guðnason080
Þetta eru Sturluhólssystkinin. Frá vinstri er Sturla, Bjarni og Guðrún Snorrabörn.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn044
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Á þessari mynd situr hluti hópsins að kvöldverði á veitingahúsi. Frá vinstri eru: Sigurjón Guðbjartsson, Björn Ingi Óskarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir kona Björns bak við þau eru hjónin Guðrún Angantýsdóttir og Indriði Hjaltason. Hinum megin við borðið eru Hallgrímur Kristmundsson, Sigríður Baldursdóttir, Ingvi Þór Guðjónsson og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý).
Guðrún Teitsd. og Árni Kristóf. 021
Hjónin Guðrún Teitsdóttir ljósmóðir (d. 17.6.1978) og Árni Kristófersson (d. 11.10.1982) í Árnesi
Jónína Valdimarsdóttir 1970 042
Jónína Valdimarsdóttir sem lengi var ráðskona hjá bræðrunum Kára og Sigurbirni á Kárastöðum. Myndin sennilega tekin á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason233
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið 1962 -1964. Tilefni ferðarinnar er ekki þekkt en á myndinni eru, frá vinstri: Hafsteinn Sigurbjarnarson (d.18.5.1974), Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Friðjón Guðmundsson (d. 7.1.2001), sem býður brjóstsykur, óþekktur, ?Kristín Björnsdóttir?, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, óþekkt fólk en maðurinn lengst til hægri er Hörður Ragnarsson.
Guðmundur Guðnason319
Réttað í Spákonufellsrétt. Rauðhærði drengurinn í grænu peysunni er Guðmundur Viðar Guðmundsson en drengurinn til vinstri við hann er Heimir Sigmarsson. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson024
Landsbanki Íslands stóð fyrir víðavangshlaupum ungmenna á hverju vori í mörg ár. Útibúið á Skagaströnd lét ekki sitt eftir liggja og voru haldin slík hlaup í mörg ár. Þátttakendu komu af "markaðssvæði" Landsbankans, Skagaströnd, Blönduósi, Hvammstanga og úr sveitunum. Þessi mynd er tekin á árunum kringum 1985 og sýnir verðlaunahafa í strákaflokki. Á myndinni eru þekkt: Anna Dröfn Guðjónsdóttir lengst til vinstri, Atli Þórsson á verðlaunapalli með númer 3 á maganum, Bjarni Gaukur Arason er efstur, númer10, og til hægri við verðlaunahafana sér í Guðnýju Finnsdóttur. Ef þú þekkir hina krakkana á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason312
Fé rekið til réttar í Spákonufellsrétt.
Guðmundur Guðnason182
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Eggert Skarphéðinsson frá Sólheimum skoðar mark á kind. Maðurinn til hægri er Ingvi Guðnason en á milli þeirra er drengurinn Magnús Blöndal.
Guðmundur Guðnason310
Smalað til réttar í Hofsrétt utan við Steinnýjarstaði. Bræðurnir Óskar Jóhannesson nær okkur og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) fjær í fyrirstöðu. Maðurinn lengst til vinstri er óþekktur.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn045
Árið 1985 fór hópur starfsmanna og stjórnenda Hólaness hf og Skagstrendings hf til London í skemmtiferð ásamt mökum sínum. Á þeim tíma unnu tugir manna hjá hvoru fyrirtæki fyrir sig þannig að ferðin var fjölmenn miðað við íbúafjölda á Skagaströnd á þeim tíma. Hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir og Árni Guðbjartsson uppábúin yfir kvöldverði á veitingastað í London.
Lárus og Lára, börn og tengdab. 056
Á myndinni eru hjónin Lára Kristjánsdóttir og Lárus G. Guðmundsson með börnum sínum og tengdabörnum. Þau hjónin sitja fremst en hitt fólkið er, talið frá vinstri: Sigurður Magnússon, Ingibjörg Lárusdóttir, Jörgen Berndsen, Kristjana Sigurbjörg Lárusdóttir, Guðmundur Lárusson, Erla Valdimarsdóttir, Guðmundur Jóhannesson og Soffía S. Lárusdóttir.
Guðmundur Guðnason179
Alþingishátíð var haldin á Þingvöllum 1930. Hátíðin var haldin til að minnast þess að 1000 ár voru þá liðin frá því að allsherjarþing var sett þar árið 930. Hátíðin stóð dagana 26. - 28. júní og þangað kom Kristján 10. konungur Danmerkur og þá ennþá, Íslands. Gríðarlegt fjölmenni var á hátíðinni en á þessari mynd er Kristján konungur með kaskeiti fyrir miðri mynd. Myndin er úr safni Guðmundar Guðnasonar en ekki tekin af honum enda fæddist hann árið 1923. Á myndinni er nafn ljósmyndarans:K.K. Bergen.
Lísa Berndsen og Stella 1945 062
Elísabet Berndsen (Lísa) vinstra megin og Kristjana Sigurbjörg Lárusdóttir (Stella) til hægri.
Guðmundur Guðnason148

Aftan á þessari mynd af fjórum konum stendur : Frá v. Kamilla frá Dalvík, 2. Sigrún Ármannsdóttir, 3. ?, 4. Sigríður frá Dalvík. 1954. Ekki er vitað hvar myndin var tekin en hugsanlega tengjast konurnar Kvennaskólanum á Blönduósi á einhvern hátt. Ef þú veist eitthvað meira um myndina og konurnar á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Ólafur Bernódusson023
Verðlaunahafar í karlaflokki á innanfélagsmóti í golfi á Háagerðisvelli. einhverntíma á árunum í kringum 1990. Þessir menn voru sigursælir á golfmótum þessara ára. Frá vinstri: Ómar Jakobsson, Oliver Oliversson og Jón Ingi Ingvarsson
Guðmundur Guðnason169
Börnin á þessari mynd frá árinu 1962 eru ekki auðþekkt en líklega eru þetta útbæingarnir Árni Þórhallsson lengst til hægri, Halla Þórhallsdóttir í miðjunni og Marías Bjarni Viggósson til vinstri. Þau hafa verið á aldrinum 5 -10 ára þegar myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari127
Lokahátíð vinnuskólans á Skagaströnd 1998. Magnús Ólafsson bæjarverkstjóri þakkar fyrir gjöf sem honum var færð við þetta tækifæri. Myndin var tekin í Kántrýbæ 14. ágúst 1998.
Guðmundur Guðnason118
Willis jeppi líklega í eigu Jósefs Stefánssonar í Reykholti. Myndin er tekin í mynni Hrafndals á gangnadegi 1967.
Neyðarfatnaður Dómhildur, María, Soffía Sig. 070
Konurnar í kvenfélaginu Einingin á Skagaströnd prjónuðu og gáfu nærföt, sokka og fleira um borð í skip gerð út frá Skagaströnd. Á myndinni eru frá vinstri: Dómhildur Jónsdóttir (d. árið 2012), María Konráðsdóttir (d. 9. 8. 2003) og Soffía Sigurðardóttir (d.11.9.1968) við stafla af prjónlesi við afhendingu þess til togaranna á Skagaströnd
Nemendur Barnaskólans á Skagaströnd 069
Á myndinni eru nemendur barnaskólans á Skagaströnd einhverntíma um 1940 í skólaferðalagi til Hreðavatns. Myndin er á bls. 152 í bókinni Byggðin undir Borginni og samkvæmt henni eru á myndinni: Fjóla Sigurðardóttir, Inga Þorvaldsdóttir, Ingunn Gísladóttir, Sigurbjörg Óskarsdóttir, Elín Jónsdóttir, Sigurlaug Jónsdóttir, Árni Andrésson, Unnur Stefánsdóttir, Knútur Berndsen, Soffía S. Lárusdóttir, Birgir Árnason, Ingibjörg Kristmundsdóttir, Þórarinn Björnsson, Jens Jónsson, Sigurjón Jóhannsson kennari, Björn Kristjánsson, Guðný Sigurðardóttir, Hjörtur Hjartarson, Kristjana S. Lárusdóttir og Jóhann Bogason.
Guðmundur Guðnason306
Réttað í Skrapatungurétt. Maðurinn með ljósu húfuna er Garðar Stefánsson (d. 14.3.1999) frá Kúskerpi, Magdalena Jónsdóttir (d.3.4.1972) frá Sölvabakka er stúlkan á miðri mynd og Frímann Hilmarsson (d. 3.12.2009) frá Fremsta - Gili er í blárri peysu hægra megin við hana. Stefán Ágústsson (d.22.11.1989) frá Ytri - Ey er á myndinni í bakgrunni og einnig Hallgrímur Einarsson (d.3.4.1998) frá Neðri - Mýrum. Milli Magdalenu og Frímanns sér í Þorstein Hafþórsson Blönduósi í rauðum vatnsbuxum.
Jón Jónsson194
Guðný Hjartardóttir (f. 28.6.1918 - d. 14.3.2011) frá Blálandi var ein af systkinunum frá Vík, lengi heimilismaður á Sæborg.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn061
Fermingarsystkin sem fermd voru 18. maí 1958 af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju. Fremsta röð frá vinstri: Harpa Friðjónsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Kristinn Lúðvíksson, Anna Skaftadóttir, Bylgja Angantýsdóttir. Önnur röð: Helga Ólafsdóttir, Sigrún Jóhannesdóttir. Þriðja röð: Konráð Guðmundsson, Sævar Bjarnason, Björn Sigurðsson. Aftasta röð: Sigurjón Magnússon, Birgir Þórbjarnarson. Myndin var tekin í gömlu kirkjunni á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason157
Fólkið á kóræfingunni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Stella (Kristjana Sigurbjörg) Lárusdóttir 086

Kristjana Sigurbjörg (Stella) Lárusdóttir (f. 12.6.1926) frá Skagaströnd

Guðmundur Guðnason324
Séra Gunnar Árnason Æsustöðum í Langadal.
Guðmundur Guðnason280
Eldri borgara frá Skagaströnd á ferðalagi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið kringum 1970. Sennilega var myndin tekin utan við Móhellu á Ásbrekku, sem var samkomuhús Vatnsdælinga. Allir sem þekktir eru á myndinni eru látnir í dag. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Soffía Lárusdóttir, Laufey Jónsdóttir, Hafsteinn Sigurbjarnarson, Halldór Pétursdóttir, óþekktur, óþekktur, Teitný Guðmundsdóttir, Baldvin Jóhannesson, óþekkt, óþekkt, Sigurður Guðmonsson, Guðmundur Pétursson, Guðlaugur Guðlaugsson, Þórunn Samsonardóttir, Páll Jónsson, óþekkt, óþekktur, óþekkur, óþekkt, Margrét Sigurðardóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Gunnlaugur Björnsson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, óþekktur drengur, óþekktur, Pétur Þ. Ingjaldsson, Guðbjörg Guðjónsdóttir, Lárus Guðmundsson, óþekktur drengur, Dómhildur Jónsdóttir, Ólafur Guðmundsson, Jón Ólafsson, Ingvar Jónsson, Björgvin Jónsson, óþekkt, Valdimar Valdimarsson, Ástmar Ingvarsson, Guðný Hjartardóttir, Steingrímur Jónsson og Kristinn Jóhannsson. Ef þú þekkir einhvern óþekktan á myndinni, eða veist hvar myndin var tekin, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1

14
15
16

79
Leita í myndasafninu
Leita