Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Hallgrímur, Mundi og Snorri Gísla 027
<P>Frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Guðmundur Jóhannesson og Snorri Gíslason (d. 29.5.1994) á góðri stund.</P>
Texti2_Ljosm_GunnarAlbertsson
Gunnar Albertsson
Guðmundur Guðnason289
Herra Sigurbjörn Einarsson (d. 28.8.2008) biskup í stólnum í Hólaneskirkju - eldri á vísitasíuferð um landið.
Þórarinn Björnsson 094
Þórarinn Björnsson (Lilli Björns) (d. 24.5.1985) Bankastræti 9, Skagaströnd
Guðmundur Guðnason284
Guðmundur Guðnason er í fremstu röð, hattlaus í svörtum frakka. Haraldur Ólafsson er lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason359
Hreppsnefnd Höfðahrepps (nú Sveitarfélagið Skagaströnd) sennilega í einhverri spurningakeppni á sviðinu í Fellsborg eða á framboðsfundi. Frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002) sem var fulltrúi Alþýðubandalags í nefndinni, Jón Jónsson (d. 9.7.1991) sem var kosinn af lista Framsóknarflokksins, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) frá Alþýðuflokknum, Adolf J. Berndsen og Gylfi Sigurðsson sem báðir voru fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í hreppsnefnd. Lengst til hægri situr Georg Hjartarson (13.9.2001) en hann var ekki í hreppsnefnd og hefur sennilega verið stigavörður eða tímavörður ef um framboðsfund var að ræða.
Guðmundur Guðnason092
Frá vinstri: Hjálmfríður Bjarnadóttir og Anna Bjarnadóttir aldar upp í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Lengst til hægri er Ásdís Þórbjarnardóttir sem var alin upp á Flankastöðum (Bankastræti 7).
34_GisliEinarsson_Vidvik
Gisli Einarsson í Viðvík
Guðmundur Guðnason434
Starfsmenn í frystihúsi Hólaness hf á Hólanesi fyrir utan frystihúsið. Frá vinstri: Jóhann Jakobsson (d. 24.3.1987) Blálandi, Henrý Kristjánsson (22.6.1972) Kárastöðum, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) Skjaldbreið, Ólafur Guðlaugsson (d. 17.5.1998) Sævarlandi, Jón Árnason (d. 5.9.1993) Náttbrún, Sveinn Kristófersson (d. 9.5.1991) Litla Bergi, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) Sunnuhvoli, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Fjalli, Árni Max Haraldsson ( d. 6.12.1976) Litla Bergi, Jón Áskelsson (d. 26.3.1989) Hólanesi og Sigurður Magnússon (d. 2.8.2002) þá: Sólvöllum
Guðmundur Guðnason277
Maðurinn til vinstri er Sigurður Ísólfsson. Aðrir eru óþekktir en ef þú veist hvaða fólk þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason247
Fermingarárgangur 1981. Fremst frá vinstri: Bergþóra Huld Birgisdóttir, Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Svenny Hallbjörnsdóttir, Rósa Sigurðardóttir. Miðröð f.v.: Ólafur Ásgeirsson, Hafsteinn Pálsson, Ingvar Jónsson, Hrólfur Pétursson, Björn Hallbjörnsson. Aftasta röð f.v.: Þórarinn K. Þórsson, Birna Sveinsdóttir, Arnar Arnarsson, Erna Rós Magnúsdóttir og Ingvar Þór Jónsson. Myndin var tekin í Hólaneskirkju (eldri).
Jóhannes Pálsson og 10 börn hans 037
Jóhannes Pálsson skósmiður frá Garði (d. 9.3.1972) með 10 af börnum sínum. Fremri röð frá vinstri: Elín, Birna, Jóhannes Pálsson, Sigríður og Hrefna. Aftari röð frá vinstri: Guðjón, Hartmann, Jóhanna, Þorleifur, Guðmundur og Páll.
Ólafur Bernódusson020
Stoltir verðlaunahafar á golfmóti á Hágerðisvelli. Hér hefur greinileg verið keppt í karla- kvenna- og unglingaflokkum. Myndin er tekin einhverntíma kringum 1980. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Oliver Oliversson, Kristján??son, Ingvar Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Björn Sigurðsson, Karl Berndsen og líklega Sigurbjörn Kristjánsson sem horfir niður.
Steinþór Ólafsson 085
Steinþór Carl Ólafsson (d.18.9.1985) póstmeistari á Skagaströnd.
Sigurbjörn Kristjánsson 1970 077
Sigurbjörn Kristjánsson - Bjössi á Kárastöðum - (d. 10.9.1989). Myndin var tekin 1970 heima á Kárastöðum.
Guðmundur Guðnason346
Þetta káta fólk situr að kaffidrykkju. Frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Ágústa Ágústsdóttir og Georg Hjartarson(13.9.2001).
Lára Kristjánsdóttir 1981 053
Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993). Myndin var tekin 1981
Guðjón, Mundi, Gunna, Palli, Jonna, Hrefna, Sigga 017
Hluti systkinanna frá Garði, sem voru alls sextán. Frá vinstri: Guðjón Jóhannesson, Guðmundur Jóhannesson, Páll Jóhannesson, Guðrún Jóhannesdóttir, Jóhanna Jóhannesdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir, Sigríður jóhannesdóttir.
Guðmundur Guðnason149
Í Hofsrétt sumarið 1965. Hrönn Árnadóttir hjálpar Ingu Jónsdóttur í Náttbrún (Ólafsvöllum) að finna kindurnar sínar í safninu. Strákarnir á réttarveggnum eru óþekktir.
Kristín Lúðvíksdóttir 049
Kristín Lúðvíksdóttir. Myndin var tekin kringum 1965.
45_Helga_Dan_sidari_madur_hennar_Einar
Helga Daníelsdóttir frá Syðri-ey og maður hennar Einar Soderholm
img077
Gunnar Sveinsson skipstjóri og útgerðamaður fæddur 1939 um borð í Húna HU-1.
Magnús B Jónsson076
Á þessari mynd eru þau Þorvaldur Skaftason og Guðbjörg (Gógó) Viggósdóttir að leika einhverjar persónur á einhverri uppákomu í Kántrýbæ (eldri) á vegum Leikklúbbsins.
Guðmundur Guðnason170
Réttastörf í Spákonufellsrétt 1969. Frá vinstri eru: Óskar Jóhannesson, Kári Lárusson frá Ási, Frits M.Bjarnason Bjargi og bak við hann grillir í Jóhannes Hinriksson frá Ásholti.
Ólafur Bernódusson062
Sigurjón Guðbjartsson stjórnarformaður fiskvinnslufyrirtækisins Hólanes hf afhendir Ingibjörgu Kristinsdóttur fjárstyrk til umf Fram árið 1984.
guðmundur218
Handflakarar í frystihúsi Hólaness hf. Frá vinstri eru: Ólafur Guðlaugsson frá Sævarlandi, Jónas Skaftason, Árni Max Haraldsson frá Litla Bergi og Bertel Björnsson Drangey. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1960.
Guðmundur Guðnason245
Rósa Sigurðardóttir á fremingardeginum sínum með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) í Hólaneskirkju (eldri)
Jón Jónsson195
Laufey Sigurvinsdóttir frá Bergi (d. 21.12.1994) lengi heimilismaður á Sæborg.
Guðmundur Guðnason132
<P>Hluti fjölskyldunnar í Réttarholti á ferð um Vantsdal. Hjónin Már Hall Sveinsson og Elísabet Árnadóttir (Bebbý) með dætur sínar Vilborgu og Erlu. Með þeim er líka systir Elísabetar, Guðrún Árnadóttir lengst til hægri.</P>
Guðmundur Guðnason376
Þetta fólk var allt í kirkjukórnum. Þarna eru þau að taka þátt í einhvers konar spurningakeppni á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996) og Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011). Lengst til hægri grillir í Georg Hjartarson (d. 13.9.2001).
Jón Jónsson197
Dagný Guðmundsdóttir (f. 24.7.1907 - d. 22.4.2004)
Magnús B Jónsson075
Hér takast þeir í hendur Framsóknarmennirnir Magnús B. Jónsson, fulltrúi Framsóknar í hreppsnefnd Höfðahrepps og sveitarstjóri á Skagaströnd, til vinstri og Björn Pálsson (d. 11.4.1996) alþingismaður Framsóknarflokksins frá Löngumýri til hægri. Björn var mikill málafylgjumaður og hikaði ekki við að eiga í málaferlum við mann og annan þegar honum þótti gengið á rétt sinn. Björn var um tíma kaupfélagsstjóri á Skagaströnd og vinsæll útgerðarmaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason158
Tvær vaskar konur í Stafnsrétt 1963. Sigurbjörg Stefánsdóttir til vinstri og Þóra Sigurðardóttir frá Hvammi til hægri.
Pálmi Sig. og Hólmfríður Hjartard. 074
Hjónin í Pálmalundi (Hólabraut 27) á Skagaströnd Pálmi Sigurðsson (f. 22.2.1914 - d. 21.4.1992) og Hólmfríður Hjartardóttir (d. 15.12.1991).
Guðmundur Guðnason173
Hér er hópur Skagstrendinga í heimsókn í ókunnri kirkju. Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) er annar frá vinstri, Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.2992) er fimmti frá vinstri og Sigurbjörg Hjartardóttir (d. 14.7.1985) kona hans er í hvítri kápu með veski. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) er í miðjunni og leiðir tvo drengi. Við hlið drengsins hægra megin eru hjónin Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) og Hafsteinn Jónasson (d. 11.6.1975) frá Njálsstöðum og Páll Jónsson (d. 19.7.1979) er lengst til hægri. Aftast lengst til hægri er Hallbjörn Hjartarson en þriðja frá hægri í þeirri röð er Guðrún Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jón Jónsson201
Systkini frá Kárastöðum: Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) og Kári Kristjánsson (d. 11.12.1990) sem bæði voru heimilisfólk á Sæborg í nokkur ár.
Jón Jónsson196
Jóhanna Thorarensen frá Bergi (f. 18.11.1910 - d. 6.3.2004), lengi heimilismaður á Sæborg.
Guðmundur Guðnason181
Fólkið í þessum sönghópi er talið frá vinstri: Jóhanna Björnsdóttir frá Gili, Sigurjón Stefánsson Steiná, Sigfús Guðmundsson frá Eiríksstöðum, Friðrik Björnsson Gili og Sigurbjörg R. Stefánsdóttir. Myndin var tekin þegar karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps hélt tónleika á Húnavöku. Ártalið er óþekkt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn051
Guðbjartur Guðjónsson (Bjartur í Vík) og Bernódus Ólafsson (Benni Ólafs). Bjartur er til vinstri á myndinni. Þessi mynd er tekin á sýningu í skólanum á handavinnu í Félagssarfi eldri borgara í desember 1987. Einnig var sölusýning á handunnum munum og var verið að safna fyrir stórri kaffivél og læstum skáp undir handavinnu og lager . Þetta tókst. Kvennfélagið seldi kaffi til styrktar sér.
Guðmundur Guðnason188
Myndin var tekin 1970 í Stafnsrétt. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri:. Pétur Sigfússon bóndi í Álftagerði Seyluhreppi, Valtýr Guðmundsson bóndi í Brattahlíð í Svartárdal og Jónas Haraldsson á Völlum í Skagafirði sem skoðar markið á hrossinu. Sá með gleraugun er Björn Eysteinn Jóhannesson bóndi í Stokkhólma í Vallhólmi. Ljósklæddi maðurinn til hægri er Guðmundur Ó. Guðmundsson en hann var um skeið skrifstofumaður hjá Kaupfélagi Skagfirðinga.
Guðmundur Guðnason231
Þessi mynd var líklega tekin í heimsókn Lionsmanna frá Skagaströnd á Siglufjörð ásamt mökum sínum. Á myndinni sýnir séra Pétur Þ. Ingjaldsson? gestunum kirkjumuni. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri, Edda Pálsdóttir dóttir hans, óþekkt kona og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) ljósmyndari og skátaforingi.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn057
Guðrún Þórbjarnardóttir á sjötta áratugnum. Myndin var tekin utan við Stórholt.
Guðmundur Guðnason236
Stúlkurnar þrjár á þessari mynd eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason336
Þessi mynd af kirkjukórnum var tekin á einhverju námskeiði þar sem Kjartan Jóhannesson var leiðbeinandi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið snemma á sjöunda áratugnum. Aftari röð frá vinstri: Kjartan Jóhannesson söngþjálfari, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) Breiðabliki, Hallbjörn Hjartarson Brimnesi, Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) Höfðabrekku, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) Ægissíðu og Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) Bjarmalandi. Fremri röð frá vinstri: Ólína Gyða Hafsteinsdóttir (Lilla) Reykholti, Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966) Norður Skála, Erla Lárusdóttir, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Edda Pálsdóttir.
Guðmundur Guðnason360
Hér syngur kirkjukór Hólaneskirkju undir stjórn Kristjáns Hjartarsonar á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri í kórnum eru: Hildigunnur Jóhannsdóttir, Sævar Bjarnason, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurður Bjarnason, Bára Þorvaldsdóttir, óþekkt, Guðrún Sigurðardóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir og Elísabet Árnadóttir (Bebbý).
Margrét Pétursdóttir 065
Margrét Pétursdóttir. Ef þú veist eitthvað um þessa konu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Helga Þorbergsdóttir 027
Helga Þorbergsdóttir frá Garði (f. 30.4.1884 - d. 30.9.1970). Helga var gift Jóhannesi Pálssyni skósmið í 68 ár og eignuðust þau hjónin fjölda barna.
Hverjar eru þetta 030
Elísabet Frímannsdóttir - Beta á Jaðri (d. 1.9.1990) með litla stúlku. Ef þú þekkir stúlkuna , vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason167
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason147
Ungu mennirnir á réttarveggnum í Hofsrétt sumarið 1965 eru Bergur Jón Þórðarson til vinstri og Óskar Þór Kristinsson til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jörgen Berndsen 043
Jörgen Berndsen (f. 4.12.1922 - d. 25.11.2012) smiður frá Stóra Bergi á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason261
Guðmundur Guðnason með lítilli óþekktri vinkonu sinni. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson019
Hópmynd að lokinni verðlaunaafhendingu á golfmóti á Hágerðisvelli á góðviðrisdegi um hásumar. Myndin er tekin einhverntíma í kringum 1990 en golfklúbburinn var stofnaður 1985. Á fyrstu árum klúbbsins voru golfmót afar algeng og fjöldi manns tók þátt í þeim. Á myndinni eru, talið frá vinstri:Viggó Magnússon, Halldór Gunnar Ólafsson, Ingibergur Guðmundsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir situr með dóttur sína Elínu Ósk Ómarsdóttur, Guðmundur E. Guðmundsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Lilja Kristinsdóttir, Jónas Þorvaldsson, Bjarney Valdimarsdóttir, Oliver Oliversson, Guðrún Pálsdóttir, Vilhelm Jónsson, Adolf J. Berndsen, Gunnar Jónsson, óþekktur drengur, óþekkt kona með barn. Standandi hægra meginn við bílinn eru: Adolf H. Berndsen, Fritz Hendrik Berndsen, Ragnar Jónsson, Ragnar Ingvarsson, óþekkt kona, Þórarinn Ingvarsson og Jóhannes Sveinsson. Krjúpandi fyrir fram þá eru, frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Rúnar Loftsson, Ómar Jakobsson og Vilhjálmur Skaftason. Ef þú þekkir þá sem eru óþekktir á þessari mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Haddi, Sigga, Binna, Gunna, Jonna 024
Hluti systkinanna frá Garði, barna Jóhannesar Pálssonar (d. 9.3.1972) skósmiðs og Helgu Þorbergsdóttur (30.9.1970) konu hans, en þau voru gift í 68 ár. Systkinin eru frá vinstri: Hartmann Jóhannesson, Sigríður Jóhannesdóttir, Birna Jóhannesdóttir, Guðrún Jóhannesdóttir og Jóhanna Jóhannesdóttir.
Guðmundur Guðnason436
Þessar tvær vinkonur sem eru að drekka kaffisopa eru frá vinstri: Áslaug Hafsteinsdóttir og Helga Berndsen.
Guðmundur Guðnason252
Árið 1974 komu skíðaáhugamenn á Skagaströnd upp togbraut í Spákonufellinu. Togbrautin var þannig gerð að staur var komið fyrir uppi á hólnum fyrir ofan núverandi skíðaskála. Við staurinn var fest blökk og kaðall dreginn gegnum hana og í gegnum drifhjól sem tengt var við dráttarvél. Drifhjólið var gert úr gamalli drifkúlu undan bíl og á hana var fest hjól og drifskaft sem síðan var hengt aftan á beislið á dráttarvél og tengt við drifúttak vélarinnar. Skíðamenn héngu síðan í kaðlinum á leiðinni upp brekkuna. Í dag mundi svona útbúnaður aldrei vera viðurkenndur vegna öryggismála. 1979 var síðan keypt skíðalyfta og henni komið fyrir örlítið norðar í brekkunni og notuð þar í mörg ár. Maðurinn í úlpunni sem stendur við kaðalinn er Ásgeir Axelsson (d. 8.6.2011) en hann átti dráttarvélina og stjórnaði henni. Ásgeir var með spotta í hendinni sem tengdur var við ádrepara vélarinnar til að geta drepið á og þannig stoppað kaðalinn ef á þurfti að halda.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn034
Starfsfólk Hólaness hf í skemmtriferð til Reykjavíkur ásamt mökum. Mikið fjör var yfir kvöldverðinum í Þórskaffi 21. mars 1987 eins og sjá má. Frá vinstri eru á þessari mynd: Þorvaldur Skaftason, Erna Sigurbjörnsdóttir kona hans, Amy Eymudsdóttir, Bernódus Ólafsson, Anna H. Aspar konan hans, Þór Arason, Fjóla Jónsdóttir kona hans, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir kona hans. Fyrir aftan þau, við næsta borð, sér í Árna Jón Guðmundsson og Guðbjart Sævarsson.
Guðmundur Guðnason243
Hafsteinn Pálsson á fermingardaginn sinn vorið 1981 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1991) í Hólaneskirkju (eldri).
Guðmundur Guðnason246
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu og Kristín Lúðvíksdóttir úr Steinholti. Myndin var sennilega tekin kringum 1955.
Magnús B Jónsson045
Þátttakendur á fyrsta tölvunámskeiðinu á Skagaströnd ásamt leiðbeinanda sínum. Hópnum var skipt í tvo því aðsókn var svo góð. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Jónsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Þorbjörg Magnúsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Róbert Þórðarson, Guðný Sigurðardóttir, Diðrik ? leiðbeinandi, sem nú býr í Lúxemborg, Magnús B. Jónsson, Björk Axelsdóttir, Steinunn Grímsdóttir, Karl Lúðvíksson og Kjartan Birgisson.
1
…
15
16
17
…
79
Leita í myndasafninu
Leita