Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason538
Þessi litla stúlka er óþekkt. Ef þú veist hver þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason455
Hér spjalla saman, frá vinstri: séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Sigurjón Ástmarsson og Hrólfur Jakobsson (d. 27.12.1996).
Guðmundur Guðnason577
Þessi stúlka og barnið eru óþekkt. Ef þú þekkir stúlkuna eða barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason467
Þessar stúlkur voru félagar í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Myndin var tekin kringum 1960 þegar skátafélagið starfaði af sem mestum krafti. Efri röð frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir Stórholti, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum, Magdalena Axelsdóttir (d. 2015) Læk og Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti. Fermri röð frá vinstri: Ester Axelsdóttir Læk, María Bjarnadóttir (d. 1984) Holti/Eyri, Sigríður Ágústsdóttir Blálandi og Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý) Skála. Myndina tók Guðmundur Kr. Guðnason.
Guðmundur Guðnason416
Sigrún Jósteinsdóttir (Siddý) frá Sólvangi.
Adolf H Berndsen - safn007
Ánægðir með góðan afla úr Skagaheiðinni. Frá vinstri: Stefán Stefánsson frá Kambakoti (d.2.1.1988), Kristján Hjartarson; frá Grund (d. 2.8.2003) og Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem var fjórði veiðifélaginn í túrnum.
Guðmundur Guðnason339
Fermingarbörn vorið 1980 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni í Hólaneskirkju eldri. Fremsta röð frá vinstri: Þórhildur Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, séra Pétur, Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Orri Sveinbjörnsson Blöndal, Guðjón Árnason og Kristján Karlsson. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Ari Þórsson, Einar Ásgeirsson, Þröstur Sigurðsson, Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson og Fritz Hendrik Berndsen.
Adolf H Berndsen - safn019

Þetta fólk stillir sér upp fyrir myndatöku á hlaðinu á Karlsskála.Frá vinstri: Carl Berndsen kaupmaður Karlskála, Sigurður Jónsson hreppstjóri, Björg Berndsen Karlskála, tvær óþekktar konur, sem eru sennilega eiginkona og dóttir Björns Kristjánssonar kaupmanns frá Sauðárkróki, sem er með staf á myndinni og lengst til hægri er Ólafur Lárusson kaupfélagsstjóri á Skagaströnd.

Guðmundur Guðnason342
Ágústa Ágústdóttir söngkona og prestsfrú hallar sér að Guðmundi Guðnasyni. Guðrún Guðbjörnsdóttir fylgist með.
Adolf H Berndsen - safn016
Þessir herramenn eru í lautarferð á Kaupfélagstúninu. Þeir fá sér í staupinu og hlusta á tónlist úr grammófón. Frá vinstri: Gísli Ísleifsson (d.?) sýslumaður, Carl Berndsen (d.15.12.1954) kaupmaður, Ewald Hemmert (d.15.7.1943) verslunarstjóri og ljósmyndari og Jón Árnason (d. ?) sýsluskrifari.
Guðmundur Guðnason443
Marías Bjarni Viggósson frá Gunnarshólma.
Guðmundur Guðnason550
Margrét og Sigrún Guðlaugsdætur í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason541
Hjónin í Miðnesi 1, Högni Jensson og Ragna Friðriksdóttir (d. 5.2.1981).
Guðmundur Guðnason578
Barnið er ókunnugt. Ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason659
Páfríður Benjamínsdóttir frá Skálholti. Myndin var tekin 1960 við fermingu Pálfríðar.
Guðmundur Guðnason623
Frá vinstri á myndinni eru: María Bjarnadóttir (d. 1984) frá Holti, Steinunn Margrét Ellertsdóttir og Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði (sem var rifið 2002 og nýtt hús byggt á lóðinni - Hólabraut 9). Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason728
Örn Berg Guðmundsson (Assi) frá Höfðabrekku á fermingardeginum sínum 1963.
Skagaströnd - safn449
Á myndinni er fyrsta hreppsnefnd Höfðahrepps sem varð til 1939 við skiptingu Vindhælishrepps hins forna í Skagahrepp, Höfðahrepp og Vindhælishrepp. Nú hafa Vindhælis- og Skagahreppur sameinast aftur í Skagabyggð og Höfðahreppur hefur skipt um nafn yfir í Sveitarfélagið Skagaströnd.
Adolf H Berndsen - safn017
Fritz H. Berndsen, sem byggði Árnes 1899 og bjó þar, situr hér við stofuborðið í Árnesi ásamt seinni konu sinni Jónínu J. Berndsen. Fritz leggur kapal en Jónína er með eitthvað á prjónunum. Enn má fara í heimsókn í Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd og er nú safn. Þar má meðal annars skoða ljósalampann sem sést á myndinni.
Guðmundur Guðnason611
Einar Guðjónsson (d.1.2.1961) frá Bjarmalandi en hann var bróðir Andrésar Guðjónssonar (d.5.10.1968) verslunarmanns á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason544
Árni Björn Birgisson frá Straumnesi
Guðmundur Guðnason606
Helgi Jónatansson (d.22.8.2020) alinn upp í Höðabrekku (Bankastræti 10).
Guðmundur Guðnason593
Guðrún Angantýsdóttir.
Guðmundur Guðnason553
Gestir á Lionfundi á Skagaströnd sennilega einhverjir hátt settir menn innan Lionhreyfingarinnar á Íslandi. Frá vinstri: Séra Pétur þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur, Þorfinnur Bjarnason (d. 6.11.2005) oddviti Höfðahrepps, Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri Höfðaskóla, ókunnur gestur, Valdimar Númi Guðmundsson (d. 14.3.1972) bifreiðastjóri, óþekktur gestur, Jón Pálsson kennari (seinna skólastjóri), Sveinn S. Ingólfsson kennari (seinna framkvæmdastjóri Skagstrendings hf), Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) bifreiðastjóri og Páll Þorfinnsson(d. 1.9.1993) rafvirki.
Guðmundur Guðnason814
Jón Þorgeirsson í Sænska húsinu (Hólabraut 23) er til vinstri en hinn maðurinn er Styrmir Haukdal Þorgeirsson bróðir hans. Veiði dagsins er á borðinu fyrir framan þá.
Guðmundur Guðnason438
Birna Guðjónsdóttir, sennilega á fermingardaginn sinn því myndin var tekin í Hólaneskirkju eldri.
Guðmundur Guðnason571

Klara Sólveig Jónsdóttir frá Ártúnum fædd 1952 með köttinn Klóa.

Skagaströnd - safn447
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var í einhverri heimsókn fólks frá Skagaströnd til vinabæjar á norðurlöndum - líklega Aabenraa. Á henni eru frá vinstri: Jökulrós Grímsdóttir, Adolf H. Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir og Magnús B. Jónsson. Hermennirnir eru óþekktir en þeir eru danskir miðað við fánann sem er á öxl eins þeirra.
Guðmundur Guðnason477
Sigurður Magnússon og Carlotta ? Ef þú veist deili á þessu fólki og hvers dóttir Carlotta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn456
Áttunda hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1966 - 1970.
Guðmundur Guðnason710
Vilhjálmur Skaftason
Adolf H Berndsen - safn033
Ungir knattspyrnumenn ásamt þjálfara og liðsstjóra frá umf. FRAM á Skagaströnd til í að mæta hvaða andstæðingi sem er. Aðal styrktaraðili liðsins var Marska á Skagaströnd. Myndin var tekin á Hvammstanga sennilega á árunum 1985 - 1987 af Vigdísi Þorsteinsdóttur. Standandi frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Jón Heiðar Jónsson, Friðrik Gunnlaugsson, Björn Sigurðsson, Vilhjálmur Jónsson, Atli Þórsson, Baldur Magnússon, Einar Guðjónsson, Róbert Freyr Gunnarsson og Ingvar Jónsson. Krjúpandi frá vinstri: Jósef Ægir Stefánsson, Þröstur Árnason, Guðmundur Henry Stefánsson, Brynjar Pétursson, Börkur Árnason, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Viktor Pétursson, Leifur Guðjónsson (frá Grindavík) Svanur Árnason og Jónas Þorvaldsson.
Kristín Björnsdóttir019
Systkinin frá Jaðri á myndinni eru, talið frá vinstri: Pálína Sigríður Frímannsdóttir (d. 5.7.1962) sem seinna bjó í Steinholti, Finnur Frímannsson (d. 18.3.1968) og Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990).
Guðmundur Guðnason639
Pétur Guðlaugsson (d. 19.5.2006) frá Brandsstöðum.
Guðmundur Guðnason497
Leikarar í óþekktri leiksýningu. Frá hægri: Ingvar Jónsson Sólheimum (d. 18.1.2003), Sigríður Ásgeirsdóttir Lækjarbakka (d. 11.12.2006), Guðmunda Árnadóttir Flankastöðum , Guðbjartur Guðjónsson (d. 23.9.1992) frá Vík og líklega Þórbjörn Jónsson (d. 22.11.1996).
Adolf H Berndsen - safn006
Þessir ungu athafnamenn eru frændurnir: Birkir Rafn Gíslason til vinstri, Sverrir Berndsen í miðjunni og Sigurður Berndsen til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1985.
Guðmundur Guðnason655
Valdimar Guðmundsson (d. 4.4.2015) myndin líklega tekin kringum 1965.
Guðmundur Guðnason557
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) er til vinstri í fremri röð og við hlið hans er Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971)frá Brandssstöðum. Í aftari röðinni er Ásólfur Guðlaugsson til vinstri og séra Birgir Snæbjörnsson á Æsustöðum til hægri. Myndin var tekin í Húnaveri 1959.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn081

Þessi úrklippa úr Tímanum er frá árinu 1973 af Skagstrendingum sem eru að leggja í langferð til Japan til að sækja Arnar Hu 1, sem var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf. Á myndinni, sem sýnir hluta áhafnarinnar sem fór, eru frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Gylfi Guðjónsson, Birgir Þórbjarnarson, Gunnlaugur Árnason, Gylfi Sigurðsson og Óskar Þór Kristinsson. Í bókinni: "Sjósókn frá Skagaströnd & vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson segir svo um Arnar HU 1:

" ....Togarinn var smíðaður úr stáli í Muroan í Japan árið 1973 fyrir Skagstrending h/f sem gerði hann út til ársins 1995. Hann var 462 brl. með 2000 ha Niigata vél. Togarinn kom til heimahafnar á Skagaströnd 15. október 1973 og var tekið á móti honum með mikilli viðhöfn enda merk tímamót og viðburður í litlu byggðarlagi. Mikil vinna, erfiði og barátta lá að baki svo mikilli fjáfestingu sem þessi kaup voru. Flestir bæjarbúar, sem og fjölmargir aðkomumenn úr hérði og lengra að, mættu á bryggjuna og hlustuðu á ræðuhöld og síðan voru veitingar um borð í glæstu fleyi. Það var mikil hátíð í bæ og á bryggjunni var strengdur stór borði sem á stóð "Velkominn Arnar". Við móttökuna töluðu Jón Jónsson formaður stjórnar Skagstrendings h/f, Sveinn Ingólfsson framkv.stj. Skagstrendings h/f, Jón Ísberg sýslumaður, Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri og alþingismennirnir Pálmi Jónsson og Ragnar Arnalds. Sr. Pétur Þ. Ingjaldsson flutti hugleiðingu og blessaði skipið.

Frá desember 1992 til ágúst 1994 hét skipið Arnar HU 101 svo tók við nafnið Arnar II HU 101 og svo í maí 1995 nefndist það Arnar gamli HU 101 og var þá bæði ís- og saltfiskskip. Árið 1993 var skipið selt dótturfélagi Skagstrendings h/f á Kýpur og fékk nafnið REX og var þetta fyrirkomulag til að uppfylla lagakröfur um úreldingu rúmmáls skipa vegna kaupa á nýjum Arnari. Rex var seldur Samherja h/f á Akureyri í sep
Kristín Björnsdóttir015
Hjónin á Jaðri með systur húsbóndans á pallinum hjá Jaðri. Frá vinstri: Elíasbet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) húsfrú að Jaðri, Sigurbjörg Sigurðardóttir og Björn Sigurðsson (d. 5.10.1999) bróðir hennar og húsbóndi á Jaðri.
Guðmundur Guðnason375
Hér syngja í kvartett, við undirleik Steinunnar Berndsen, frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Sævar Bjarnason, Sigmar Jóhannesson og óþekktur. Myndin var tekin á einhverri uppákomu á vegum kirkjukórsins í Fellsborg. Ef þú veist hver fjórði maðurinn í kvartettinum er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn011
Guðmundur Guðnason eða Mundi póstur (d. 21.11.1988) með einkennishúfuna og reiðhjólið sem fylgdi starfi hans sem bæjarpóstur á Skagaströnd. Hér er Mundi fyrir utan heimili sitt Ægissíðu þar sem hann bjó með foreldrum sínum meðan þau lifðu.
Adolf H Berndsen - safn020
Fritz H. Berndsen stendur í gættinni á heimili sínu í Árnesi, sem hann byggði 1899. Árnes er safn í dag um gamalt heimilishald. Á rekkunum kringum Fritz er hann að þurrka saltfisk.
Guðmundur Guðnason724
Aðalbjörg Sigurðardóttir (Bagga) frá Akurgerði með son sinn Þröst Þorbjörnsson í fanginu.
Guðmundur Guðnason547
Fjölskyldan í Straumnesi. Inga Þorvaldsdóttir (d. desember 2012) og Birgir Árnason (d. 2.2.2005) með Eyrúnu dóttur sína á milli sín. Fyrir framan sitja synir þeirra, Búi Þór (d. 18.9. 2009) til vinstri og Árni Björn til hægri.
Guðmundur Guðnason569
Guðrún Þóranna Jónsdóttir frá Ártúnum fædd 1950.
Guðmundur Guðnason536
Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016).
Adolf H Berndsen - safn014
Ole Aamundsen (Óli norski) í Lundi var m.a. umboðsmaður fyrir Shell olíufélagið á Skagaströnd. Hér er hann við birgðatank félagsins að auglýsa Rotella smurolíu frá Shell.
Guðmundur Guðnason546
Búi Þór Birgisson frá Straumnesi (d. 18.9.2009).
Guðmundur Guðnason478

Jóhann Salberg Guðmundsson sýslumaður Skagfirðinga og frú.

Kristín Björnsdóttir010
Þessi sumarmynd er af hjónunum Birni Sigurðssyni (d. 5.10.1999) og Elísabetu Frímannsdóttur (Betu) (d. 1.9.1990) frá Jaðri, börnum þeirra og gesti. Frá vinstri: Hallbjörn Björnsson, Jón Guðmundsson, Guðmundur J. Björnsson, Björn, Kristín Björnsdóttir, Elísabet og Sigurður Björnsson.
Adolf H Berndsen - safn021
Þessi mynd var tekin 1933 eða 1934. Þetta prúðbúna fólk á myndinni var flest allt skylt eða tengt fjölskylduböndum. Tilefni myndatökunnar er óþekkt. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Fremsta röð: Maríus Helgason, Steinþór Ólafsson og Theodór Ólafsson. Önnur röð: Ólafur Lárusson, Sigríður Ólafsdóttir, Sigríður Berndsen, Olga Berndsen, óþekktur, María Berndsen, Margrét Berndsen, Björg Berndsen, Fritz H. Berndsen og óþekktur maður fyrir aftan hann. Þriðja röð: Steinunn Berndsen með Árna Ólaf Ólafsson (Kúta) í fanginu, Carl Berndsen, Hedrik Berndsen og Regína Hansen. Aftasta röð: Ernst Berndsen og Hannes Kjartansson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn069
Í skemmtiferð - líklega í Vaglaskógi - í kringum 1950. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Pálsdóttir, Gunnar Helgason (d. 19.10.2007), Ásdís Pálsdóttir og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996).
Adolf H Bernsden - safn023
Hér standa, við framleiðsluvörur Marska, mennirnir á bak við fyrirtækið. Frá vinstri: Heimir Fjeldsteð framkvæmdastjóri Rækjuvinnslunnar, Steindór R. Haraldsson framleiðslustjóri Marska og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf.
Guðmundur Guðnason390
Þessi bátur, Bliki, endaði ævidaga sína á túninu á Litla Felli eftir að hafa gegnt hlutverki sínu á sjó. Börnin frá Felli skemmta sér um borð. Axel Gígjar Ásgeirsson er í stýrishúsinu, Einar Ásgeirsson heldur á fánanum og hjá honum stendur Ólafur Ásgeirsson. Stúlkan í grænu buxunum er líklega Anna Guðrún Ásgeirsdóttir en barnið í köflóttu peysunni er óþekkt. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason588
Myndin er tekin framan við Víðimýrarkirkju í Skagafirði. Lengst til vinstri er Andrés Árni Baldursson, fullorðni maðurinn er óþekktur en drengurinn til hægri er líklega Ari Ólafsson. Ef þú þekkir fullorðna manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason534
Ingvi Sveinn Eðvarðsson
Guðmundur Guðnason570
Margrét Jónsdóttir frá Ártúnum fædd 1954.
Skagaströnd - safn452
Fjórða hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Þessir menn voru í nefndinni 1950 - 1954.
Guðmundur Guðnason744
Ólöf Pálmadóttir frá Holti.
1

18
19
20

79
Leita í myndasafninu
Leita