Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason660
Systurnar í Skálholti dætur Benjamíns Sigurðssonar (d.30.9.2004) og Láru Loftsdóttur (21.4.2010). Frá vinstri: Sóley Benjamínsdóttir, Guðrún Benjamínsdóttir (d. 10.6.1999) og Pálfríður Benjamínsdóttir. Myndin var líklega tekin 1960 í tilefni fermingar Pálfríðar.
Guðmundur Guðnason708
Bergdís Sigmarsdóttir á sviðinu í Tunnunni upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason555

Systkinin Sigmar Ólafsson (d. 30.10.1991), María Ólafsdóttir og Sigurjón Ólafsson ( d. 13.1.1971) í Húnaveri 1959.

Guðmundur Guðnason605
Andrés Árni Baldursson sem alinn var upp á neðri hæðinni í Þórshamri.
Guðmundur Guðnason669
Ferðafélagar í Siglufjarðartúr 15. júní 1968 stoppa til að rétta úr sér á óþekktum stað á leiðinni. Frá vinstri: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Hjalti Skaftason sonur hans, Ástmar Ingvarsson ( d. 10.10.1977) frá Balaskarði og Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi.
Guðmundur Guðnason622
Systkinin Jónína Baldursdóttir og Andrés Árni Baldursson frá Þórshamri með Hörð Baldursson bróður sinn á milli sín einhverntíma upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason609
Strákarnir á myndinni eru frá vinstri: Bræðurnir, Guðmundur Ingi Jónatansson (d.14.12.2015), Jón Geir Jónatansson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020)(stendur aftan við Jón Geir) í Höfðabrekku (Bankastræti 10) með þeim er frændi þeirra, Rúnar Hartmannsson úr Höfðatúni (Strandgata 6).
Guðmundur Guðnason630

Bræðurnir frá Bræðraborg, frá vinstri: Guðmundur Kristinsson (Lilli), Stefán Kristinsson (Kúti) (d. 2011) og Sigurður Kristinsson. Myndin var tekin upp úr 1960.

Guðmundur Guðnason726
Jól á Karlsskála. Guðrún Einarsdóttir dáist að skreyttu jólatré heimilisins.
Guðmundur Guðnason596
Þessi mynd var sennilega tekin á prestastefnu að Hólum í Hjaltadal árið 1962. Frá vinstri á myndinni eru: óþekktur, Margrét Konráðsdóttir (d. 17.9.1974) kaupmaður í versluninni Borg og Andrés Árni Baldursson. Óþekkti drengurinn var barnabarn Margrétar og Sigurðar manns hennar.
Guðmundur Guðnason024
Þessi mynd var líklega tekin í Laxárdal og fólkið á myndinni er líklega Klemensína Klemensdóttir (d. 12.6.1966) og sonur hennar Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu. Klemensína og Guðni Sveinsson (d. 15.11.1971) maður hennar voru síðustu ábúendur á Vesturá í Laxárdal með sonum sínum en þau fluttu þaðan 1939.
Guðmundur Guðnason042
Þessi mynd var tekin við aðaldyrnar að Reykholtsskóla í Borgarfirði. Ekki er vitað hvenær, hvaða fólk er á henni né hvert tilefnið var. Ef þú veist svörin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason804
Þröstur Þorbjarnarson með systur sinni Heiðrúnu Þorbjarnardóttur. Þau voru alin upp í Akugerði.
Guðmundur Guðnason738
Anna Bjarnadóttir til vinstri og systir hennar Hjálmfríður Bjarnadóttir frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8).
Guðmundur Guðnason810
Þetta par er óþekkt en myndin var tekin á Höfðanum. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason539
Systurnar Ólína Bjarnadóttir til vinstri og Pálfríður Bjarnadóttir til hægri. Systurnar áttu heima í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Myndin var tekin einhvertíma kringum 1960.
Skagaströnd - safn467
Nítjánda hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd (áður Höfðahreppur) frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2010 - 2014. Magnús Jónsson ekki kjörinn fulltrúi í nefndinni heldur ráðinn sveitarstjóri.
umf Fram245
Hjólreiðakeppni umf. Fram 1. maí 1976. Slíkar hjólreiðakeppnir, þar sem keppendur hjóluðu stóran hring um bæinn, voru haldnar á vegum Fram í nokkur ár. Á þessari mynd hafa þær Guðrún Berndsen til vinstri og Þórdís Sigurðardóttir tekið við verðlaunaskjölum sínum.
Guðmundur Guðnason651
Guðmundur Kristinsson (Lilli) frá Bræðraborg. Myndin var tekin upp úr 1960.
Skagaströnd - safn455
Sjöunda hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1962 - 1966.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn075
Myndin var sennilega tekin við Skálholt einhverntíma í kringum 1950. Stúlkurnar á myndinni eru óþekktar nema stúlkan þriðja frá vinstri í köflóttri kápu er Þórunn Bernódusdóttir og systir hennar Halla Björg Bernódusdóttir er í köflóttri kápu lengst til hægri. Þær systur áttu þá heima á neðri hæðinni í Skálholti. Birgir Þórbjarnarson frá Flankastöðum er á miðri mynd með húfu og heldur sennilega utan um systur sína Guðrúnu Þórbjarnardóttur. Við hlið hans, einnig með húfu er Ása Jóhannsdóttir frá Lækjarbakka og Selma Þórarinsdóttir (d. 14.9.1990) við hlið hennar með slaufu í hárinu. Líklega er stúlkan lengst til vinstri Helga Haraldsdóttir frá Jaðri. Ef þú þekkir einhverjar hinna stúlknanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason742
Klara Jónsdóttir frá Ártúnum.
Guðmundur Guðnason620
Jónína Baldursdóttir ólst upp á neðri hæðinni í Þórshamri.
Guðmundur Guðnason631
Stefán Kristinsson (Kúti) (d. 2011) frá Bræðraborg. Myndin var tekin upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason649

Vinirnir Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) í Dagsbrún til vinstri og Guðmundur Guðnason (Mundi póstur) (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu saman á góðri stundu

Guðmundur Guðnason654
Páll Ísólfsson við orgel í óþekktri kirkju
Guðmundur Guðnason836
Karlakórinn Vökumenn með stjórnanda sínum, Kristófer Kristjánssyni frá Köldukinn, 1.maí 1963 á Skagaströnd. Fimmti maður frá vinstri er Sveinn Þórarinsson og annar maður til hægri við Kristófer er Óskar Sigurfinnsson frá Meðalheimi. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern mannanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason038

Myndin var tekin við Höfðahólabæinn. Sitjandi á hestinum er Óskar Axelsson. Síðan
kemur móðir hans, Sveinbjörg Björnsdóttir (. 12.7.2001), með dóttur sína Guðríði Axelsdóttur í fanginu og
þá sonur hennar Ásgeir Guðni Axelsson (d. 8.6.2011) . Þau fluttu síðar að Litla-Felli 1955 eftir að hafa verið síðustu ábúendur í Höfðahólum.

Guðmundur Guðnason760
Þessar þrjár fallegu stúlkur báru sigur úr bítum í keppninni: Ungfrú Austur Húnavatnssýsla 1969, sem haldin var í Húnaveri. Þessi keppni var liður í fegurðarsamkeppni Íslands því sigurvegararnir í hverri sýslu fyrir sig tóku síðan þátt í keppni um fegurðardrottningu Íslands sem haldin var í Reykjavík. Stúlkurnar á myndinni eru, frá vinstri: Sóley Guðmundsdóttir Eiríksstöðum, Anna Grímsdóttir Ljótshólum og Kristín H. Guðmundsdóttir Hvammstanga.
Adolf H Berndsen - safn018
Fólkið, sem situr í makindum á góðviðrisdegi við Vækilvíkina á Höfðanum, er frá vinstri: Guðrún Helgadóttir frá Karlsskála (d. 15.4.1987), maður hennar Ernst Berndsen frá Karlsskála (d. 21.8.1983), Guðrún Björnsdóttir (Góa) úr Góubænum (Sæborg við Oddagötu) (d. 11.8.1971) og Lena Helgadóttir frá Læk (d?).
Guðmundur Guðnason597
Mynd tekin í 50 ára afmæli Þorfinns Bjarnasonar (f. 5.5.1918 - d. 6.11.2005). Þorfinnur er til hægri á myndinni en hjá honum situr Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) úr Höfðabrekku.
Guðmundur Guðnason788
Frænkurnar Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir og Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir kringum 1960.
Guðmundur Guðnason653

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps í Húnaveri líklega kringum 1965. Birgir Ingólfsson þekkir mennina sem eftirfarandi:

1. Röð frá vinstri: Hannes Guðmundsson Auðkúlu, Þórður Þorsteinsson Grund, Guðmundur Sigfússon Eiríksstöðum, Jósef Sigfússon Torfustöðum, Jón Tryggvason Ártúnum, Haraldur Karlsson Litla-Dal, Friðrik Björnsson Gili, Halldór Eyþórsson Syðri-Löngumýri, Björn Jónsson Gili, (?Guðmundur Sigurjónsson Rútsstöðum ?)

2. Röð frá vinstri: Sigmar Ólafsson Brandsstöðum, Pétur Guðmundsson Eiríksstöðum,? Árni Sigurjónsson Rútsstöðum? Sigurður Sigurðsson Leifsstöðum, Sigurjón Ólafsson Brandsstöðum, Pétur Sigurðsson Skeggstöðum, Sigvaldi Sigurjónsson Rútsstöðum, Ingólfur Bjarnason Bollastöðum, Bjarni Sigurðsson Barkarstöðum, Auðunn Guðmundsson Austurhlíð

3. Röð frá vinstri : Runólfur Aðalbjörnsson Hvammi, Jón Guðmundsson Eiríksstöðum, Sigurjón Stefánsson Steiná, Aðalsteinn Sigurðsson Leifsstöðum, Guðmundur Halldórsson Bergsstöðum, Guðmundur Tryggvason Finnstungu, Grímur Eiríksson Ljótshólum, Ingvar Þorleifsson Sólheimum, Georg Sigurvaldason Eldjárnsstöðum, Sigurgeir Hannesson Stekkjardal.

Guðmundur Guðnason022
Hulda Pálsdóttir 1937 stendur aftan á þessari mynd. Ef þú veist nánari deili á Huldu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason794
Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002). Myndin var tekin kringum 1960.
umf Fram171
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd eru þrír íþróttakappar úr umf Fram. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Hjörtur Guðmundsson og Karl Lúðvíksson. Allir kepptu þeir í mörg ár á íþróttamótum undir merki Fram á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason802
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu, póstur, orgelleikari, ljósmyndari og félagsmálamaður.
Guðmundur Guðnason828
Árni Hall Másson frá Réttarholti með systur sína Vilborgu Másdóttur. Myndin var tekin 1964 eða 1965.
Guðmundur Guðnason886
Þessar stúlkur eru óþekktar. Myndin var sennilega tekin í Reykjavík 1963. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason880

Bragi Steingrímsson frá Eyvindarstöðum í Blöndudal. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.

Guðmundur Guðnason670
Ferðafélagar í Siglufjarðartúr 15. júní 1968 stoppa til að rétta úr sér á óþekktum stað á leiðinni. Frá vinstri: Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku, Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Ástmar Ingvarsson ( d. 10.10.1977) frá Balaskarði, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) í Ægissíðu.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn065
Á myndinni er fólk á glaðri stund. Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996), Þóra Sigurgeirsdóttir (d. 9.5.1999), Jón Sölvason (d. 17.8.1969) og Þórey Jónsdóttir (d. 29.12.1966). Ekki er vitað hvar eða hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason559

Guðrún Sigurjónsdóttir frá Brandsstöðum.

Guðmundur Guðnason675
Áð einhversstaðar á leiðinni frá Skagaströnd til Siglufjarðar 15. júní 1968. Frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) frá Dagsbrún, Ástmar Ingvarsson (d. 10.10.1977) frá Balaskarði, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi og Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992) frá Höfðabrekku.
Guðmundur Guðnason598
Mynd tekin í 50 ára afmæli Þorfinns Bjarnasonar (f. 5.5.1918 - d. 6.11.2005). Þorfinnur er til hægri á myndinni en hjá honum situr Sigurður Sölvason (d. 24.9.1978) kaupmaður í versluninni Borg.
Guðmundur Guðnason834
Þessi mynd var tekin í Lundi af heimilisfólkinu þar og gestum þeirra. Frá vinstri: Sigurlaug Friðgeirsdóttir, Alma Ellertsson (d. 6.10.2000) (fædd Steinhaug) frá Alvadal í Österdal í Noregi , Margrét Jóhannesdóttir(d. ?), Ole Aamundsen (Óli norski) (d. ?), Anne Grete Gravningen, sem kenndi við Kvennaskólann á Blönduósi 1962 - 63 og Gurid Björnsson (d. 26.4.2007) frá Hlíð. Ole og Margrét voru hjón sem bjuggu í Lundi og Sigurlaug var vinnustúlka þeirra í mörg ár. Alma var eiginkona Sveins Ellertssonar mjólkurbússtjóra á Blönduósi. Myndin hefur líklega verið tekin 1962 eða 1963.
Skagaströnd - safn459
Ellefta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1978 - 1982. Elín Njálsdóttir var fyrsta konan sem kjörin var í nefndina.
Guðmundur Guðnason558
Guðmundur Guðnason er hér til hægri með Sigurjóni Ólafssyni frá Brandsstöðum, vini sínum. Myndin var tekin í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason610
Stúlka á myndinni er sennilega ?Ingibjörg Hartmannsdóttir? úr Höfðatúni (Strandgötu 6). Hún lést um 10 ára aldur úr bráða hvítblæði.Til vinstri fylgist frændi hennar, Helgi Jónatansson úr Höfðabrekku (Bankastræti 10), spenntur með. Ef þú þekkir stúlkuna með vissu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason878

Heimir Guðmundsson frá Finnstungu

Guðmundur Guðnason650
Kristinn Guðmundsson frá Bræðraborg með syni sína. Strákarnir eru frá vinstri: Guðmundur Kristinsson (Lilli), Stefán Kristinsson (Kúti) (d. 2011) og Sigurður Kristinsson.
Guðmundur Guðnason736
Strákarnir í Höfðabrekku (Bankastræti 10). Frá vinstri: Jón Geir Jónatansson, Guðmundur Ingi Jónatansson, Örn Berg Guðmundsson (Assi) og Helgi Jónatansson. Myndin var tekin á fermingardegi Assa 1963.
Guðmundur Guðnason698
Henrý Kristjánsson (d. 22.6.1972) frá Kárastöðum.
umf Fram176
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd eru tveir vaskir keppendur frá Hvöt á Blönduósi: Jóhann Sigurðsson og Þórhalla Guðbjartsdóttir.
Skagaströnd - safn460
Tólfta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1982 - 1986.
Guðmundur Guðnason652
Sigurður Kristinsson frá Bræðraborg. Myndin var tekin upp úr 1960.
Guðmundur Guðnason644
Drengurinn í strigaskónum er Kjartan Erlendsson frá Bólstaðarhlíð (nú Sauðárkróki). Maðurinn fjær á myndinni er Pétur Pétursson (d. 7.5.1977) á Höllustöðum en hinn maðurinn er Páll Helgi Halldórsson (d.18.12.1974). Myndin var tekin í Húnaveri.
Guðmundur Guðnason764
Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) frá Stórholti (Bankastræti 3) stillir sér upp við hákarlaskipið Ófeig á byggðasafninu á Reykjum. Bernódus mundi eftir bátnum í útgerð frá því að hann var strákur að alast upp í Reykjarfirði á Ströndum.
Guðmundur Guðnason629
Á þessari mynd sem tekin var einhverntíma upp úr 1960 er Kristinn Guðmundsson (d. 1.12.1986) með syni sína. Guðmundur Kristinsson (Lilli) er lengst til vinstri, Stefán Kristinsson (Kúti) (d. 2011) situr í fangi pabba síns og til hægri er Sigurður Kristinsson.
umf Fram189
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru þáverandi stjórnarmenn félagsins. Talið frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Axel Jóhann Hallgrímsson og Unnur Gunnarsdóttir.
1

19
20
21

79
Leita í myndasafninu
Leita