Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Adolf H Berndsen - safn018
Fólkið, sem situr í makindum á góðviðrisdegi við Vækilvíkina á Höfðanum, er frá vinstri: Guðrún Helgadóttir frá Karlsskála (d. 15.4.1987), maður hennar Ernst Berndsen frá Karlsskála (d. 21.8.1983), Guðrún Björnsdóttir (Góa) úr Góubænum (Sæborg við Oddagötu) (d. 11.8.1971) og Lena Helgadóttir frá Læk (d?).
Guðmundur Guðnason625
Steinunn Margrét Ellertsdóttir til vinstri og María Bjarnadóttir (d. 1984) frá Holti til hægri. Myndin var tekin upp úr 1960.
Skagaströnd - safn463
Fimmtánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1994 - 1998.
Skagaströnd - safn450
Þetta ar mynd af hreppsnefndarmönnum Höfðahrepps 1942 - 1946. Þeir sátu aðra hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939.
umf Fram260
Fundur með stjórnum aðildafélaga USAH 13. mars 1976. Fundarfólk hefur stillt sér upp undir vegg til myndatöku. Frá vinstri: Sigurður Guðmundsson Skagaströnd, Pétur Eysteinsson framkvæmdastjóri hjá USAH þetta sumar, Valgarður Hilmarsson Fremsta Gili, óþekktur, óþekktur, Pétur Pétursson Hólabæ, Magnús Sigurðsson Hnjúki, óþekktur, Magnús Ólafsson Sveinsstöðum, Guðmundur Haukur Sigurðsson Skagaströnd, Valdimar Guðmannsson Bakkakoti, Þórdís Sigurðardóttir Skagaströnd og Unnur Gunnarsdóttir Skagaströnd. Ef þú þekkir óþekktu mennina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason658
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti. Myndin tekin um 1965.
umf Fram149

Á árum áður stóð umf. Fram fyrir víðavangshlaupum á hverju vori. Hlaupið var þrisvar sinnum með viku millibili og þegar þeim var öllum lokið var samanlagður árangur keppenda látinn ráða röðinni. Ræsir og aðalstjórnandi hlaupanna var Lárus Ægir Guðmundsson og dáðust margir að raddstyrk hans þegar hann var að raða keppendum upp, ræsa þá af stað og hvetja áfram. Keppt var í nokkrum kynjaskiptum aldursflokkum. Á þessari mynd hafa elstu keppendurnir lokið hlaupinu og raða sér upp í skjóli við Volvo vörubíl Harðar Ragnarssonar fyrir utan pósthúsið (Tónlistarskólann). Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigurbjörn Kristjánsson, Ómar Jakobsson, Jón Jósefsson, Jón Indriðason, Magnús B. Jónsson, Þórarinn Ingvarsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Fannar Viggósson, Vilhjálmur Skaftason, Gunnar Stefánsson og Ársæll Ottósson. Aðrir eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason608
Barnið er óþekkt en gæti verið Heimir Sigmarsson? Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason549
María Sigurjónsdóttir Brandsstöðum og Soffía Ólafsdóttir (d. 30.8.1985) frá Mjóadal, í Húnaveri 1959.
Guðmundur Guðnason890
Þessi mynd af Unni Sólveigu Björnsdóttur var tekin 1963.
umf Fram275
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í 3000 metra hlaup. Frá vinstri: Óskar Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson og Sigurður Ingi Guðmundsson.
Skagaströnd - safn465
Sautjánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2002 - 2006.
Guðmundur Guðnason648
Tvíburasysturnar Guðrún Angantýsdóttir til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) til hægri með dætur sínar. Líklega er Guðrún með dóttur sína, Sigurbjörgu Árdísi Indriðadóttur en Sigurbjörg með sína dóttur, Jóhönnu Báru Hallgrímsdóttur.
Skagaströnd - safn458
Tíunda hreppsnefnd Höfðahrepps frá því að hann var stofnaður 1939. Þessir menn sátu í nefndinni 1974 - 1978.
Guðmundur Guðnason002
Þetta er Klemensína Karitas Klemensdóttir (d.12.6.1966) húsfreyja á Vesturá og Hvammi í Laxárdal en síðast í Ægissíðu á Skagaströnd.
Guðmundur Guðnason776
Þessi stúlka er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram183
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), ræðu í afmælinu.
Skagaströnd - safn454
Sjötta hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Mennirnir á myndinni voru í nefndinni 1958 - 1862.
Guðmundur Guðnason607

Þetta fólk er óþekkt en stúlkan gæti verið ?Bergdís Sigmarsdóttir með Heimi Sigmarsson? bróður sinn í fanginu. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason822
Sólveig Georgsdóttir á fermingardaginn sinn 1964.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 159
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með Silfá Sjöfn Árnadóttur í fanginu á stéttinni við Fellsbraut 5. Fjær er móðir Silfár, Herdís Jakobsdóttir, að bauka við grillið.
Skagaströnd - safn457
Níunda hreppsnefnd Höfðahrepps frá því að hann varð til 1939. Mennirnir á myndinni sátu í nefndinni 1970 - 1974.
Guðmundur Guðnason734
Þorvaldur Skaftason frá Dagsbrún á fermingardeginum sínum 1963.
Skagaströnd - safn466
Átjánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 2006 - 2010. Árið 2007 var nafni sveitarfélagsins breytt í: Sveitarfélagið Skagaströnd. Magnús Jónsson var ekki kjörinn fulltrúi heldur ráðinn sveitarstjóri.
umf Fram184

Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd heldur Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri ræðu í afmælishófinu.

Skagaströnd - safn461
Þrettánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1986 - 1990.
Guðmundur Guðnason016
Klemensína Klemensdóttir (d. 12.6.1966) frá Ægissíðu með sonarson sinn, Hún Snædal. Myndin var líklega tekin þegar Rósberg Snædal Guðnason (d. 9.1.1983), sonur Klemensínu, giftist Hólmfríði Magnúsdóttur (d. 6.7.2013) frá Syðra-Hóli.
Skagaströnd - safn464
Sextánda hreppsnefnd Höfðahrepps frá stofnun hans 1939. Fólkið á myndinni sat í nefndinni 1998 - 2002.
umf Fram173
Héraðsmót USAH 1983 var haldið á Skagaströnd 9. og 10. júlí. Á þessari mynd eru fræknar íþróttakonur úr umf Fram. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Þórhildur Jakobsdóttir, Laufey Vilmundardóttir og Birna Sveinsdóttir.
umf Fram153
Í nokkur ár stóð umf Fram fyrir hjólakeppnum á vorin. Hjólaður var ákveðinn hringur um bæinn, mislangur eftir aldri keppenda, og tími tekinn. Á þessari mynd eru stúlkur um það bil að leggja af stað. Stelpurnar eru frá vinstri: Jóhanna Sveinsdóttir, Hugrún Pálsdóttir og tvær óþekktar stúlkur. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason583
Skemmtun Lionklúbbs Skagastrandar 1967 í Tunnunni. Konurnar sem syngja fyrir áheyrendur við undirleik Guðrúnar Sigurðardóttur eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Áslaug Hafsteinsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir og Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016).
umf Fram189
Ungmennafélagið Fram átti 50 ára afmæli 1976. Í tilefni afmælisins gaf félagið út afmælisrit og haldin var vegleg afmælishátíð 28. desember 1976. Á þessari mynd eru þáverandi stjórnarmenn félagsins. Talið frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Axel Jóhann Hallgrímsson og Unnur Gunnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason826
María Bjarnadóttir (d. 1984) frá Holti.
umf Fram181
Öldungamót USAH var haldið á Skagaströnd 28. júlí 1983. Þar öttu kappi eldri íþróttamenn af báðum kynjum sér til gamans. Á þessari þrí-samsettu mynd má sjá fólk í hófinu eftir mótið en það var haldið í Kántrýbæ (sem síðar brann). Lengst til vinstri er Sveinn Ingólfsson, á mið myndinni eru Helga Guðmundsdóttir, dökkklædd og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Lengst til hægri er svo Gunnar Sveinsson.
Guðmundur Guðnason706

Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Sigrún Kristófersdóttir frá Sunnuhvoli, Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum, Bergdís Sigmarsdóttir, Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Búi Birgisson frá Straumnesi, Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti, óþekkt, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Jóhann Ingibjörnsson og Elíborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason567
Hjónin Jón Tryggvason (d. 7.3.2007) og Sigríður Ólafsdóttir með börnum sínum. Tryggvi Jónsson er til vinstri og Ingi Heiðmar Jónsson til hægri. Ólöf Una Jónsdóttir er í fangi móður sinnar, Klara Sólveig Jónsdóttir stendur framan við föður sinn, þá kemur Margrét Jónsdóttir og lengst til hægri er Guðrún Þóranna Jónsdóttir.
Guðmundur Guðnason812
Hjónin Jón Þorgeirsson og María Konráðsdóttir (d. 9.8. 2003) úr Sænska húsinu (Hólabraut 23) eru aftar en fólkið fyrir framan eru Sigurveig Jóhannsdóttir og Styrmir Haukdal Þorgeirsson.
Guðmundur Guðnason790
Þessi systkin áttu heima á Bogabraut 9. Þau eru frá vinstri: Jóhanna Ásmundsdóttir, Ásmundur Ásmundsson, Halldóra Ásmundsdóttir og fyrir framan er svo Kristján Pétur Ásmundsson. Myndin var sennilega tekin um 1960.
Guðmundur Guðnason730
Systurnar frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8). Frá vinstri: Pálfríður Bjarnadóttir, Ólína Bjarnadóttir, Hjálmfríður Bjarnadóttir og Anna Bjarnadóttir.
Guðmundur Guðnason830

Ragnheiður Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum

Guðmundur Guðnason740
Guðrún Þóranna Jónsdóttir frá Ártúnum.
Guðmundur Guðnason028
Ekki er víst hver drengurinn á hestinum er en sennilega er hann annar bræðranna: Húnn Snædal eða Hólmsteinn Snædal en þeir eru synir Rósberg G. Snædal (d.9.1.1983) bróður Guðmundar Guðnasonar (d. 21.11.1988) sem tók þessa mynd. Ef þú þekkir drenginn á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason684

Agnes Sævarsdóttir

Guðmundur Guðnason796
Maðurinn á myndinni er Magnús Hálfdánarson og með honum er kona hans Halldóra Þorsteinsdóttir á lítilli mynd. Sonur þeirra var Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) sem lengi var verksmiðjustjóri á Skagaströnd. Magnús bjó hjá fjölsyldu Ásmundar á Bogabraut 9.
Skagaströnd - safn451
Á þessari mynd er þriðja hreppsnefnd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Þessir menn voru í nefndinni 1946 - 1950.
umf Fram253
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd eru þrjár stúlkur úr Fram á veðlaunapallinum. Frá vinstri: Soffía Guðmundsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir og Kolbrún Viggósdóttir.
umf Fram259
Lára Guðmundsdóttir og Axel Jóhann Hallgrímsson voru stigahæstu einstaklingar Fram á héraðsmóti í sundi 13. ágúst (1976?). Lið Fram vann bikarinn, sem þau halda á milli sín, á mótinu.
umf Fram281
Héraðsmót USAH var haldið á Skagaströnd 15. og 18. júlí 1976. Á þessari mynd eru verðlaunahafar í kringlukasti. Frá vinstri: Ari Arason, Helgi Björnsson og Ingibergur Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason540
Mynd af Málfríði Jóhannsdóttur (Mallý) í Miðnesi 1 í jólakjólnum sínum. Myndin var tekin kringum 1960.
umf Fram251
Meistaramót yngri aldursflokka í frjálsum íþróttum var haldið í Kópavogi 10. og 11. júlí 1976. Keppendur frá USAH mættu til mótsins og stóðu sig vel. Á þessari mynd eru standandi frá vinstri Skagstrendingarnir: Kolbrún Viggósdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Ingibergur Guðmundsson fararstjóri, Sólveig Gunnarsdóttir og Soffía Guðmundsdóttir. Bergþór Þórisson frá Blönduósi krýpur fyrir framan.
Guðmundur Guðnason568
Þetta eru systur frá Ártúnum. Frá vinstri: Margrét, Klara Sólveig og Guðrún Þóranna Jónsdætur.
Guðmundur Guðnason030
Engu er líkara en þessi óþekkti knapi sé að spjalla við folaldið á myndinni. Ef þú veist hver knapinn er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason780
Óþekktur drengur (?Guðjón Árnason í Ásgarði?). Myndin var sennilega tekin 1969. Ef þú þekkir drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson082
Grímubúnir drengir á öskudaginn 1983 fyrir utan Bogabraut 24 (Asparlund). Frá vinstri: Óþekktur, Ægir Jónsson, Viggó Magnússon og Halldór Gunnar Ólafsson.
Guðmundur Guðnason832

Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum.

Guðmundur Guðnason634
Þessi maður er óþekktur. Ef þú veist hver hann er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason543
Þrjár systur úr Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) dætur Bjarna Loftssonar og Fanneyjar Jónsdóttur. Frá vinstri: Pálfríður Bjarnadóttir , Anna Bjarnadóttir og Ólína Bjarnadóttir
Guðmundur Guðnason014
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir nema maðurinn hægra megin uppi í bátnum er Bjarni Helgason (d. 30.12.1983) fá Holti. Sjá má einkennisstafina ST á bátnum sem nær lengst til vinstri. Ef þú þekkir mennina á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
umf Fram179
Öldungamót USAH var haldið á Skagaströnd 28. júlí 1983. Þar öttu kappi eldri íþróttamenn af báðum kynjum sér til gamans. Á þessari mynd, sem tekin var fyrir utan Kántrýbæ að móti loknu, eru keppendur og starfsmenn. Talið frá vinstri: Karl Lúðvíksson, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), óþekkt, hollenskur íþróttaþjálfari - nafn óþekkt, Kristófer Árnason (d. 10.5.2000), Gunnar Sveinsson, Ingibergur Guðmundsson, Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008), Þorleifur Arason (d. 11.11.1991), Sveinn Ingólfsson, ?Jón Bjarnason frá Ási?, Ingibjörg Kristinsdóttir (framar), Helga Guðmundsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Anna Skaftadóttir, Jón Arason, Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988) (framar), Pálmi Jónsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Jón Ingi Ingvarsson og Sigurður Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn453
Fimmta hreppsnenfd Höfðahrepps eftir stofnun hans 1939. Þessir menn sátu í nefndinni 1954 - 1958.
1

20
21
22

79
Leita í myndasafninu
Leita