Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson404
Stefán Ægir Lárusson þáverandi kennari leikur undir kórsöng á skólaslitum Höfðaskóla í Fellsborg 1990. Stúlkurnar eru frá vinstri: Ólína Laufey Sveinsdóttir, Bryndís Axelsdóttir, Sylvía Kristín Sigurþórsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Rakel Sara Gunnarsdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir og Ragna Fanney Gunnarsdóttir.
Ólafur Bernódusson220
Guðmundur Haukur Sigurðsson framkvæmdastjóri saumastofunnar Violu innan um framleiðsluvörur saumastofunnar. Sjálfur klæðist hann peysu sem var vinsæl framleiðsluvara Violu. Saumastofan var rekin á efstu hæðinni í Gamla kaupfélaginu. Myndin var tekin í nóvember 1987.
Ólafur Bernódusson336
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Elínu var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson300
Haldin var hátíð vegna 50 ára afmælis Höfðahrepps 3. ágúst 1989. Meðal annars var rekið útvarp í kjallara Fellsborgar helgina sem afmælishátíðin stóð. Á þessari mynd tekur Magnús B. Jónsson lengst til vinstri viðtal við tónlistarmennina Viggó Brynjólfsson, Þorvald Skaftason og Kristján Blöndal.
Ólafur Bernódusson325
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Kristínu var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Kvenfélagið Eining - safn022
Kvenfélagið Eining bauð eldri borgurum á Skagaströnd í ferðalag sumarið 1985. Á þessari mynd eru þær Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) frá Lækjarbakka til vinstri og Fanney Halldórsdóttir (d. 21.6.2005) frá Sviðningi við minnismerki um Þorvald víðförla við Stóru Giljá.
Ólafur Bernódusson412
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Stefán Ægir Lárusson kennari nemendum 5. bekkjar vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Hjörtur Jónas Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir, Halla Krsitín Árnadóttir, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Sigurður Berndsen, Pétur Hinrik Herbertsson, Árný Guðrún Ólafsdóttir og Ólína Laufey Sveinsdóttir.
Kvenfélagið Eining - safn021
Ekki er kunnugt um tilefni þess að þessar vösku kvenfélagskonur buðu upp á kaffi í Höfðaskóla í desember 1986. Konurnar eru frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Ása Jóhannsdóttir og Lísebet Gestsdóttir.
Ólafur Bernódusson272
Í desember 1988 var komið fyrir ruslapressu um borð í Arnari Hu 1. Var þetta gert til að minnka umfang ruslsins, sem getur orðið umtalsvert, á þessum 26 manna vinnustað í löngum 30 - 35 sólarhringa túr. Maðurinn á myndinni er Gunnar Reynisson kokkur á Arnari.
Kvenfélagið Eining - safn042
Þetta ágæta fólk ræður hér ráðum sínum í eldhúsinu í Fellsborg. Tilefnið og tímasetning er ókunn. Frá vinstri: Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Díana Kristjánsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003).
Ólafur Bernódusson421
Þessi fríski hópur vann að þökulagningu í ágústlok 1990 í hallanum sunnan við Stóra Berg, sem sést í baksýn, en það stóð sunnan við Fellsbraut nálægt kirkjunni. Á myndinni eru frá vinstri: Þóra Ásgeirsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Magnús Helgason, Milan Djurica, Kristín Þórðardóttir, Bryndís Ingimarsdóttir (aftast), Ragnar Friðrik Gunnlaugsson, Þröstur Árnason, Jóhannes Indriðason, Jósef Stefánsson og Hjörtur Jónas Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson396
Þessi mynd var tekin af Magnúsi B. Jónssyni við störf sín í Búnaðarbanka Íslands, útibúinu á Skagaströnd, í maí 1990 skömmu áður en hann tók við starfi sveitarstjóra Höfðahrepps.
Ólafur Bernódusson334
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Bóel var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson472
Þessi mynd var tekin 1991 sennilega á aðventukvöldi í desember. Krakkar syngja við undirleik flautu- og klarinet leikara. Presturinn er séra Egill Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson379
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyir þorrablót í febrúar 1989. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Vigdís Viggósdóttir og Bergþór Gunnarsson. Ekki er ólíklegt að í þessu atriði sé verið að gera grín að heimsókn frú Vigdísar Finnbogadóttur forseta til Skagastrandar sumarið 1988..
Ólafur Bernódusson488
Hólanes hf bauð starfsfólki sínu ásamt mökum til grillveislu framan við hótel Dagsbrún í júní 1992. Grillveislan var vel sótt enda var starfsfólk Hólaness margt á þessum árum. Þessi mynd er af kokkunum sem grilluðu ofan í mannskapinn. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson, Björgvin karlsson, Sigríður Gestsdóttir, Steindór R. Haraldsson, Sigurjón Guðbjartsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson348
Ársþing USAH 1989 var haldið á Skagaströnd. Þingstörfin fóru fram í kaffistofu Hólaness hf en síðan var haldið hóf í Fellsborg. Á þessari mynd taka hjónin Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson við viðurkenningu fyrir hönd Guðbjargar dóttur sinnar úr höndum Sigurlaugar Hermannsdóttur formanns USAH.
Ólafur Bernódusson410
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Sigríður Laufey Einarsdóttir kennari afhendir nemendum 3. bekkjar vitnisburði sína.Nemendurnir eru talið frá vinstri: Arnór Haukdal Rúnarsson, Bjarney Katrín Gunnarsdóttir, Auður Eva Guðmundsdóttir, Kristinn Björgvinsson, Rakel Petrea Finnsdóttir, Sigurður Haukur Grétarsson, Fjóla Sigurbjörg Ómarsdóttir, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Ástmar Sigurjónsson og Valrún Eva Vilhelmsdóttir.
Ólafur Bernódusson416
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Ingibergur Guðmundsson nemendum í 9. bekk vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Jóhanna Guðrún Karlsdóttir, Aðalheiður M. Steindórsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Guðný Kristín Finnsdóttir, Baldur Magnússon, Ragnar Friðrik Gunnlaugsson, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, Atli Þór Þórsson, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Björn Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson279
Kvenfélagið Einingin hefur reynst Skagstrendingum ákaflega þarft félag. Hafa konurnar í félaginu t.d. verið iðnar við að safna fé og gefa ýmis tæki til heilsugæslunnar á staðnum auk þess að bera hag aldraðra mjög fyrir brjósti. Þessi mynd var tekin í júní 1989 í læknisbústaðnum/heilsugæslunni af nokkrum Einingarkonum eftir að þær höfðu fært stofnuninni ný tæki. Frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Særún Jónsdóttir, María Konráðsdóttir (d. 9.8.2003), Þórunn Þorláksdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Lísebet Gestsdóttir, Birna Blöndal, Hjördís Sigurðardóttir og Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010).
Ólafur Bernódusson376
Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) í desember 1989.
Ólafur Bernódusson403
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg . Á þessari mynd eru nemendur 1. bekkjar. Frá vinstri: Andri Þór Ómarsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson, Ólafur Guðmundsson, Karen Peta Karlsdóttir, Erla Björgheim Pálsdóttir, Hafsteinn Auðunn Björnsson og Magnús Árni Hallgrímsson.
Ólafur Bernódusson358
Þessi mynd var tekin í september 1989 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhenti Dagbjörtu Bæringsdóttur lyklana að nýrri leiguíbúð að Skagavegi 12.
Ólafur Bernódusson377
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu á skemmtiatriðum kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Frá vinstri: Vigdís Viggósdóttir, Bergþór Gunnarsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Þórey Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Fannar Viggósson og Ingibergur Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson343
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Steindór Haraldsson, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d. 25.9.2006) og Þorvaldur Skaftason.
Ólafur Bernódusson484
Rolf Árnason (d.3.6.2014) tilbúinn við teig eitt á Háagerðisvelli í júní 1992.
Ólafur Bernódusson380
Þessi mynd var tekin á lokaæfingu á skemmtiatriðum kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Á myndinni eru frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Þórey Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson og Vigdís Viggósdóttir. Þau eru að leika sauðsvartan almúgann sem er að reyna að koma auga á frú Vigdísi Finnbogadóttur forseta í heimsókn hennar til Skagastrandar sumarið 1988.
Ólafur Bernódusson455
Í júní 1991 gaf Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) á Lækjarbakka, Höfðahreppi, fánastöng sem reist var þar sem áður hafði verið æskuheimili hennar að Höfðahólum. Við sama tækifæri var afhjúpaður minningarskjöldur um Höfðahóla, sem á öldum áður var eigandi að stórum hluta þess lands sem Skagaströnd stendur á í dag. Á myndinni þakkar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri Sigríði gjöfina. Fólkið er frá vinstri: Magnús sveitarstjóri, Helga Jóhannesdóttir, Jóhann Pétursson (d.13.1.1999) eiginmaður Sigríðar, Sigríður, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ása Jóhannsdóttir, dóttir Sigríðar, Sveinn S. Ingólfsson oddviti Höfðahrepps og Steindór R. Haraldsson
Ólafur Bernódusson382
<p>Þessi mynd var tekin á lokaæfingu skemmtiatriða kvöldið fyrir þorrablót í febrúar 1989. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Sigrún Jónsdóttir og Dagný Sigmarsdóttir. Atriðið á myndinni átti að gerast í frystihúsinu þess vegna er flæðilínan á myndinni. </p>
Ólafur Bernódusson413
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Hér afhendir Sigríður Einarsdóttir nemendum 6. bekkjar vitnisburði sína. Nemendurnir eru frá vinstri: Viktor Pétursson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Sylvía Kristín Sigurþórdóttir, Íris Jóna Gunnarsdóttir, Ólafur Magnússon, Ragna Fanney Gunnarsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Jóhannes Heiðmar Indriðason og Þorlákur Ómar Guðjónsson.
Ólafur Bernódusson342
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd var tekin á æfingu. Á henni eru frá vinstri: Óskar Þór Óskarsson og Þorvaldur Skaftason.
Ólafur Bernódusson357
<p>Óskar Kristinsson safnar vélhjólum. Á þessari mynd, sem tekin var sumarið 1989 er hann við þrjú þeirra fyrir utan heimili sitt.</p>
Ólafur Bernódusson164
Krakkar fædd 1972 og 73 í Höfðaskóla héldu maraþonsund í sundlauginni á Skagaströnd 1987 eða 1988. Þetta var áheitasund til að safna í ferðasjóð krakkanna. Krakkarnir skiptust á um að synda í heilan sólahring og var hver og einn ákveðinn tíma ofan í í einu. Á þessari mynd fagna krakkarnir vel heppnuðu sund-átaki í lokin og áhorfendur klappa þeim lof í lófa. Kunnugir munu þekkja nokkur andlit meðal áhorfenda, bæði lífs og liðin.
Ólafur Bernódusson201
Jólatónleikar Tónlistarskólans á Skagaströnd 1987. Á myndinni syngur stúlknakór Höfðaskóla undir stjórn Jane Sillar tónlistarkennara. Stúlkurnar eru frá vinstri: Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg Jóhannsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), ?Hanna Ægisdóttir?, Berglind Karlsdóttir, óþekkt, Sandra Ómarsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir, Ólína Sveinsdóttir, Helga Kristmundsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Kristín Jóna Sigurðardóttir, óþekkt og Inga Lára Sigurðardóttir.
Óþekktur ljósmyndari162
Systurnar frá Mánaskál í Laxárdal. Frá vinstri: Margrét Sigurðardóttir (d. 8.9.1982), Sigurbjörg Sigurðardóttir (d. ?), Guðrún Sigurðardóttir (d. 18.9.2002) og Lára Sigurðardóttir (d. 9.12. 2008).
Ólafur Bernódusson120
Vorið 1986 var haldið námskeið fyrir starfsfólk Rækjuvinnslunnar. Á þessari mynd er Steindór R. Haraldsson sem þá vann hjá Marska sem hýst var í Rækjuvinnslunni.
Ólafur Bernódusson408
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Þessar tvær stúlkur lásu ljóð á skólaslitunum. Bergþóra Guðjónsdóttir er vinstra megin en Salóme Ýr Rúnarsdóttir er til hægri.
Ólafur Bernódusson418
Sveinn Ingi Grímsson var grenjaskytta um árabil. Hér er hann nýkominn af greni sumarið 1990 með yrðling sem hann tók lifandi eftir að hafa eytt foreldrum hans. Það merkilega við yrðlinginn er að hann er greinilega blendingur villts dýrs og búrdýrs sem hefur sloppið úr búri sínu.
Kvenfélagið Eining - safn030
Á vegum kvenfélagsins Einingar fór hópur fólks í heimsókn á ellideildina á Héraðshælinu á Blönduósi og skemmtu vistmönnum með ýmsum uppákomum. Á þessari mynd eru frá vinstri: Hjördís Sigurðardóttir, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Jón Arnarson.
Ólafur Bernódusson331
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Julian var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson337
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Hallbjörgu var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Kvenfélagið Eining - safn037
Kvenfélaskonur úr Einingu funda í herbergi sínu í Fellsborg. Frá vinstri: Þórunn Þorláksdóttir, Una Dagbjört Kristjánsdóttir, Birna Blöndal (d.26.10.2018), Ása Jóhannsdóttir, Steinunn Grímsdóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir (Obba).
Ólafur Bernódusson329
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Óla Hjörvari var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson113
Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) reri stundum til fiskjar að gamni sínu og til að ná sér í fisk í soðið. Almennt voru þorskarnir sem hann dró ekki eins stórir og þessi sem mældist 140 cm á lengd og vó 38 kg. Þorskinn fékk Skafti í róðri vorið 1986.
Ólafur Bernódusson327
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Einari Hauk var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson219
Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri í brúnni á Örvari Hu 21 eftir góðan túr í apríl 1988.
Óskar Kristinsson - safn178
Myndin var tekin á einhverri árshátíð Skagstrendings hf í Fellsborg. Á henni eru stjórnarmenn og framkvæmdastjóri félagsins að taka þátt í léttu gríni. Mennirnir eru, frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson veislustjóri, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri, Gylfi Sigurðsson og Hallbjörn Björnsson.
Ólafur Bernódusson 509
<p>Arnar Hu 1 kom til heimahafnar í fyrsta sinn 23. 12. 1992 nýsmíðaður frá Noregi. Öllum var boðið um borð að skoða hið nýja skip af útgerð skipsins Skagstrendingi hf. Skipið var ekki gert út lengi frá Skagaströnd því það var selt til Grænlands nokkrum árum síðar. Á þessari mynd ávarpar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri áhöfn og gesti. Lengst til hægri er Gunnar Sveinsson þá Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson stýrimaður og dóttir hans Elva Dröfn Árnadóttir. Aðrir eru óþekktir.</p>
Ólafur Bernódusson405
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Páll Leó Jónsson skólastjóri í ræðustól.
Ólafur Bernódusson332
Leikklúbbur Skagastrandar æfði og sýndi leikritið: Láttu ekki deigan síga Guðmundur, eftir þær Eddu Björgvinsdóttur og Hlín Agnarsdóttur, veturinn 1989. Þessi mynd af Þórdísi var tekin til að nota í leikskrána með leikritinu.
Ólafur Bernódusson424
Elva Ösp Gunnarsdóttir í júlí 1990.
Ólafur Bernódusson281
Kvenfélagið Einingin hefur reynst Skagstrendingum ákaflega þarft félag. Hafa konurnar í félaginu t.d. verið iðnar við að safna fé og gefa ýmis tæki til heilsugæslunnar á staðnum auk þess að bera hag aldraðra mjög fyrir brjósti. Á þessari mynd frá júní 1989 standa stjórnarkonur Sjúkrasjóðs Einingar við ný tæki sem kvenfélagið færði heilsugæslunni að gjöf. Frá vinstri: Birna Blöndal, Ása Jóhannsdóttir og Soffía Lárusdóttir( d. 31.3.2010).
Ólafur Bernódusson409
Skólaslit Höfðaskóla 1990 í Fellsborg. Á myndinni er Jóhanna Jónsdóttir kennari að afhenda nemendum 2. bekkjar vitnisburði sína. Nemendurnir er frá vinstri: Bæring Jón Skarphéðinsson, Álfheiður Guðmundsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Sigrún Líndal Þrastardóttir, Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Hallgrímur Þór Axelsson,Trausti Magnússon , Birna Ágústsdóttir, Ragna Hrafnhildur Magnúsdóttir, Davíð Bragi Björgvinsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Inga Valdís Heimisdóttir, Heiðrún Ósk Níelsdóttir, Kristrún Linda Jónasdóttir og Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir.
Ólafur Bernódusson315
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Yngstu börnin að perla eitthvað fallegt. Frá vinstri: Heiðrún Ósk Níelsdóttir, óþekkt, karen Petrea Karlsdóttir, óþekkt(við gluggann), Gunnar Helgason, óþekktur, þrjú óþekkt börn, Birkir Rafn Gíslason og Ólafur Guðmundsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson312
6. - 11. nóvember 1989 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Á þessari mynd eru Arnar Ólafur Viggósson til vinstri og Sigurður Berndsen í góðum gír í smíðahópi.
Kvenfélagið Eining - safn097
Þessi mynd er úr ferðalagi eldri borgara um Vatnsdal og í Þingeyrakirkju í júlí 1997 á vegum kvenfélagsins Eining. Á myndinni eru frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), Birna Blöndal (d.26.10.2018), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) og Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004).
Ólafur Bernódusson417
Bar var opnaður á hótel Dagsbrún í júní 1990. Var það að öllum líkindum fyrsti barinn sem opnaður var frá því að gistihúsið í Viðvík lagði upp laupana. Á þessari mynd eru frá vinstri: Ingibjörn Sigurjónsson, Árni Geir Ingvarsson, Ágúst Ómarsson og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Ólafur Bernódusson371
Kristján Kristjánsson (d. 10.10. 2007) frá Steinnýjarstöðum, sóknarnefndarformaður í Hofssókn og Rafn Sigurbjörnsson frá Hlíð, oddviti Skagahrepps, á tröppum Hofskirkju eftir að endurbyggingu hennar var lokið í desember 1989. Kristján er til vinstri á myndinni.
Kvenfélagið Eining - safn041
Kvenfélagið Eining hefur alltaf borið hag eldri borgara fyrir brjósti. Oft hafa kvenfélagskonur boðið eldra fólki í einhverja dagsferð að sumri. Þessi mynd var tekin í einu slíku ferðalagi sumarið 1986. Frá vinstri: Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Hrefna Jóhannesdóttir (d. 9.11.2011), Sigríður Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006), Lára Kristjánsdóttir (d. 6.9.1993) og Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011).
Ólafur Bernódusson386
Skákþing Norðurlands var haldið í Fellsborg á Skagaströnd dagana 2.-5. mars 1989. Á þessari mynd spjalla saman þeir Lárus Ægir Guðmundsson, þáverandi formaður Skákklúbbs Skagastrandar, til vinstri og Jóhann Guðmundsson frá Holti í Svínadal. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
24
25
26
…
79
Leita í myndasafninu
Leita