Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason325
Ekki er vitað hvar eða hvenær þessi mynd var tekin af Guðmundi Guðnasyni (d. 21.11.1988) með ?Þórey Ólafsdóttur? frá Árbakka vinkonu sinni. Ef þú getur staðfest að konan sé Þórey Ólafsdóttir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason 2 403

Þessa mynd tók Þorvaldur Skaftason af kirkjukór Hólaneskirkju á heimili séra péturs Þ. Ingjaldssonar í Höfða árið 1971. Þorvaldur var þá nýkjörinn formaður kórsins. Sitjandi frá vinstri: Elísabet Árnadóttir, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Guðrún Sigurðardóttir. Standandi frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989), Bjarni Harðarson, Rúnar Hartmannsson, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003), Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011), Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), Sigurður Bjarnason, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000) og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988).
Guðmundur Guðnason339
Þessi mynd var tekin í heimsókn krikjukórs Hólaneskirkju til Hvammstanga. Tímasetningin er ekki þekkt en á myndinni eru frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Aðalheiður Guðmundsdóttir (d. 24.9.2011), Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Einar ??, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Sigrún Lárusdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dagný Hannesdóttir, Sævar Bjarnason og Kristján Hjartarson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn009
Fermingarbörn frá 23. maí 1999 í Hólaneskirkju. Fremri röð frá vinstri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Eva Dögg Bergþórsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Eva Rún Rúnarsdóttir, Birna Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, séra Guðmundur Karl Brynjarsson, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Kristrún Lilja Sævarsdóttir, Daníel Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason 2 495
Fermingarbörn í Hólaneskirkju (eldri) árið 1982 ásamt prestinum séra Oddi Einarssyni. Fremri röð frá vinstri: Ársæll Ottósson, Ingimar Oddsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Sigurbjörn Kristjánsson, Jón Hilmar Indriðason og Guðmundur Óskarsson. Aftari röð frá vinstri: Árni Jón Guðmundsson (d. 8.1.2006), Kristín Karlsdóttir, séra Oddur, Guðmunda Ólafsdóttir og Þórarinn Brynjar Ingvarsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn150
Systkinin á þessari mynd eru Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og Karl Ómar Jónsson (d. 23.2.2014).
Jón Jónsson347
Skíðagarpar með páskaeggja-verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Friðrik Birgisson, Brynjar Pétursson, Sigríður Einarsdóttir skíðakennari og Skúli Tómas Hjartarson.
umf Fram 316
Í mörg sumur voru haldnar Ungmennabúðir USAH á Húnavöllum. Karl Lúðvíksson var í forsvari fyrir búðirnar, sem voru vel sóttar af börnum úr héraðinu, meðan þær voru starfræktar. Á þessari mynd er einn hópur nemenda í íþróttabúðunum einhverntíma kringum 1975. Leiðbeinendur á myndinni, með Karli, eru bræðurnir Þorsteinn og Guðmundur Jenssynir frá Reykjaskóla í Hrútafirði. Ekki er vitað hvor þeirra er hver. Standandi eru frá vinstri: leiðbeinandi, Jón Heiðarsson,Bryndís Heiarsdóttir, Sigurður Jóhannesson, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989), Hafsteinn Pálsson, Valdimar Viggósson, Bergþór Gunnarsson, Ragnar Jónsson, Skafti Fanndal Jónasson, Karl Lúðvíksson búðastjóri, Ingólfur Sveinsson, Jóhannes Sveinsson (fjær), Þorbjörg Eðvarðsdóttir (nær), leiðbeinandi, Birna Sveinsdóttir og Orri Blöndal. Börnin í fremri röðinni eru, frá vinstri: Sigurjón Eðvarð Karlsson, tveir óþekktir, ?? Hilmarsson (í Stíganda), tveir óþekktir Agnarssynir Leví, Guðmundur Jónsson (d.?), Guðmundur Lúðvík Gunnarsson, Berglind Stefánsdóttir, Unnar Ingvarsson og tvö óþekkt. Ef þú þekkir einhvern af hinum óþekktu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason 2 384
Um þessa mynd er ekkert vitað annað en að aftan á henni stendur skrifað: " A. sundsveit 8. stofa". Ef þú þekkir einhvern á myndinni eða veist eitthvað um hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson335
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Birna Sveinsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 408
Þessi börn eru óþekkt en hugsanlega eru þau, eða einhver þeirra, Jónsbörn frá Köldukinn. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson334
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir frá Brandaskarði, Anna Þór Birgisdóttir og Jóney Gylfadóttir.
Guðmundur Guðnason 2 382

Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps er 90 ára nú á Sumardaginn fyrsta 2015 sem þýðir að hann var stofnaður þann dag árið 1925. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af kórfélögum en það hefur sennilega verið einhverntíma á sjöunda áratugnum. Ljósmyndasafn Skagastrandar óskar kórnum til hamingju með langa starfsævi. Á myndinni eru:

Fremsta röð frá vinstri : Guðmundur Sigurjónsson Rútsstöðum, Björn Jónsson (d.18.2.1991) Gili, Guðmundur Sigfússon (d. 27.3.1993) Eiríksstöðum, Elsa Óskarsdóttir Fagranesi, Gerður Aðalbjörnsdóttir (d. 12.6.2007) Hólabæ, Guðrún Jakobsdóttir (d. 5.1. 2005) Grund, Jón Tryggvason (d. 7.3.2007) Ártúnum, Árni Jónsson Víðimel og sr.Birgir Snæbjörnsson (d. 17.7.2008) Æsustöðum.

Önnur röð frá vinstri: Árni Sigurjónsson Rútsstöðum , Pétur Sigurðsson (d. 11.5.2000) Skeggstöðum, Sigvaldi Sigurjónsson Rútsstöðum, Sigurjón Ólafsson (d. 13.1.1971) Brandsstöðum, Pétur Pétursson (d. 7.5.1977) Höllustöðum, Guðmundur Tryggvason Finnstungu, Jónas Tryggvason (d. 17.8.1983) Ártúnum, Guðmundur Jósafatsson Austurhlíð og Runólfur Aðalbjörnsson Hvammi.

Þriðja röð frá vinstri: Jón Guðmundsson Eiríksstöðum, Sigurjón Stefánsson Steiná, Bjarni Sigurðsson Barkarstöðum, Ingvar Þorleifsson Sólheimum, Guðmundur Halldórsson (d. 13.6.1991) Bergsstöðum, Aðalsteinn Sigurðsson (d.21.8. 2005) Leifsstöðum, Sigurgeir Hannesson (d. 8.2.2005) Stekkjardal, Ingólfur Bjarnason (d. 22.5.2000) Bollastöðum og Grímur Eiríksson (d. 22.5.1993) Ljótshólum.

Fjórða röð frá vinstri: Sigmar Ólafsson (d. 30.10.1991) Brandsstöðum, Þórður Þorsteinsson (d. 8.8.2000) Grund, Haraldur Karlsson (d.30.10.2007) Litladal, Auðunn Guðmundsson Austurhlíð, Pétur Guðmundsson Eiríksstöðum, Sigurður Sigurðsson (d. 5.7.1984) Leifsstöðum, Hannes Guðmundsson (d. 10.9.2008) Auðkúlu, Halldór Eyþórsson (d. 21.9.2007) Syðri-Löngumýri, Jósef Sigfússon Torfustöðum, Friðrik Björnsson (d. 3.1.
Guðmundur Guðnason290
Jónína Valdimarsdóttir og Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988). Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin.
Skagaströnd - safn377
Þessir fermingarbræður eru Valgarður Hilmarsson frá Fremstagili til hægri en drengurinn til vinstri er óþekktur. Kirkjan er líklega Holtastaðakirkja. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson295
Þessir ungu drengir hafa raðað sér upp eftir að hafa tekið þátt í víðavangshlaupi á vegum umf. Fram á Skagaströnd í maímánuði einhverntíma á árunum kringum 1985. Frá vinstri á myndinni eru: Jón Arnarson í rauðleitri úlpu, Þröstur Árnason, Baldur Magnússon, Svanur Árnason, Theódór Karlsson með rauða og gráa húfu, Gunnar Halldór Hallbjörnson með gleraugu, Atli Þórsson, Björn Sigurðsson, Jón Heiðar Jónsson og Reynir Lýðsson. Maðurinn í bláu úlpunni í baksýn er Vilhelm Jónsson.
umf Fram 338
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1975- 1980. Á henni eru íþróttagarpar frá umf Fram á Skagaströnd með viðurkenningarskjöl sín. Frá vinstri: óþekktur, Sólveig Gunnarsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Soffía Guðmundsdóttir,Steinunn Berndsen, Þórdís Guðmundsdóttir og Hafþór Gylfason. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né fyrir hvað krakkarnir fengu viðurkenningarskjölin.
Guðmundur Guðnason 2 448
Bræðurnir frá Þórsmörk Reynir Sigurðsson til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri . Myndin var tekin fyrir utan Akurgerði en þar var heimili systur þeirra bræðra Aðalbjargar Sigurðardóttur. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Leikklúbbur Skagastrandar - safn061
Sex við sama borð og enginn lýgur er einþáttungur sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið sem kaffileikhús á Hótel Dagsbrún leikárið 1996 - ´97. Leikstjóri verksins var Einar Þorbergsson. Á myndinni skála eftir frumsýningu, flestir þeirra sem komu að uppsetningu verksins. Frá vinstri: Peter Wheeler (krýpur) sem sá um tónlistarflutning í verkinu, Jóhannes Óskarsson, Jensína Lýðsdóttir, Steindór Haraldsson, Vigdís Ómarsdóttir, Einar Þorbergsson leikstjóri (krýpur), Elín Njálsdóttir og Hólmgeir Kristmundsson.
Guðmundur Guðnason 2 499
Myndin er tekin sumarið 1988 á Flúðum/Vesturbrún 6 þar sem Ingi Heiðmar Jónsson frá Ártúnum og Auður Harpa Ólafsdóttir bjuggu. Ingi Heiðmar og Auður eru á sinn hvorum enda en gestirnir á milli þeirra eru Stefán Gunnarsson frá Æsustöðum og kona hans Hertha W. Jónsdóttir. Ljósmyndarinn Guðmundur Guðnason sem hefur væntanlega verið í heimsókn hjá þeim Stefáni, gömlum nágranna þegar foreldrar Guðmundar bjuggu í Hvammi á Laxárdal en Stefán á Æsustöðum. Ungbarnið er Halla Ósk Heiðmarsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 414
Á þessari mynd eru hjónin Bergur Jón Þórðarson og Eydís Ólafsdóttir með tveimur dætrum sínum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Barnaból - safn334
28. ágúst 2001 kom lögreglan í heimsókn í leikskólann Barnaból. Þá var þessi mynd tekin. Starfskonurnar eru Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri til hægri. Lögreglumaðurinn er óþekktur og hver og einn verður að þekkja sjálfan sig á myndinni.
Guðmundur Guðnason 2 437

Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né af hvaða tilefni. Hún virðist vera tekin í listigarðinum á Akureyri. Maðurinn sem krýpur lengst til vinstri er Gunnar Albertsson og beint aftan við hann, með ljósa derhúfur (sixpensara), er Jón Jónsson (d. 9.7.1991). Við hægri hlið Jóns situr Kristinn Ásgrímsson í Hjarðarholti. Lengst til vinstri, sitjandi, er Hallbjörn Hjartarson og síðan Úlfar Björnsson. Strákarnir við hlið Gunnars gætu verið ?Hörður Ragnarsson og Gylfi Sigurðsson? Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason 2 407
Þessi fjölskylda flutti frá Skagaströnd að Núpi í Laxárdal árið 1957 en flutti síðan á Blönduós 1976 en þá fór Núpur í eyði. Hjónin eru Valgerður Kristjánsdóttir og Jökull Sigtryggsson. Valgerður situr undir Valgarði Jökulssyni, Halla Jökulsdóttir er á milli hjónanna og Jökull situr með Kristján Jökulsson.
Guðmundur Guðnason 2 417
Þessi kona, sem var ljósmynduð á ljósmyndastofu Ólafs Magnússonar í Reykjavík, er óþekkt. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athuagsemd.
Guðmundur Guðnason 2 385
Þessi mynd var tekin á kirkjutröppunum við Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri á myndinni eru: séra Guðni Þór Ólafsson, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson sóknarprestur á Skagaströnd 1987 - 1990, Sigurgeir Árni Ægisson, Jóhanna Ólafsdóttir, Hafdís Hanna Ægisdóttir, Kristín Guðmundsdóttir og Sigurgeir Magnússon.
Guðmundur Guðnason 2 445
Þetta fólk stendur á tröppum óþekktrar kirkju. Maðurinn lengst til vinstri, aftast með hatt, er Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu en lengst til hægri í sömu röð er Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri frá Breiðabliki. Konan fremst til hægri, með slæðu, er Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) frá Jaðri. Maðurinn með svörtu húfuna aftast gæti verið ?Hrólfur Jónsson? (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi og konan framan við hann gæti verið ein af dætrum Hafsteins Sigurbjarnarsonar frá Reykholti?. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson340
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Brynjar Pétursson, Björn Sigurðsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekkta drenginn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Jónsson339
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Páll Jónsson frá Brandaskarð og Þórarinn Ingvarsson.
Skagaströnd - safn381
Kirkjukór Hólaneskirkju kringum 1970. Frá vinstri á myndinni: Edda Pálsdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Elísabet Árnadóttir (Bebbý), Sævar Bjarnason (fjær), Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) (nær), Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988), Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004), Björgvin Jónsson (d. 4.5.1992), Björg Björnsdóttir söngstjóri, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Áslaug Hafsteinsdóttir, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990), Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989), Guðrún Sigurðardóttir og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn143

Fólkið á myndinni eru foreldrar séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d. 1.6.1996) þau Guðrún Pétursdóttir (d. 24.7.1951) og Ingjaldur Þórðarson (d. 23.7.1944). Myndin var tekin í nóvember 1907.

Guðmundur Guðnason 2 479

Ekki er vitað hvenær þessi sólríka mynd var tekin af fjölskyldunni í Réttarholti á pallinum framan við húsið. Fremst eru hjónin Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) og Elísabet Árnadóttir með ung óþekkt börn í fanginu. Fyrir aftan þau standa, frá vinstri: Vilborg Másdóttir, tvær óþekktar stúlkur, Aðalheiður Másdóttir og Erla Másdóttir. Aftast standa, frá vinstri: Sveinn Másson, Árni Másson, óþekkt, og Ómar Másson (d. 16.6.2002).

umf Fram 311
Þessir ungu drengir halda á viðurkenningarskjölum sem þeir unnu sér inn með sigrum í einhverri íþrótt - líklega víðavangshlaupi árið 1982. Frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Brynjar Pétursson og Arnar Haukur Ómarsson.
Jón Jónsson343
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir frá Brandaskarði, Áslaug Gunnarsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir.
Skagaströnd - safn378
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin né hvenær. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, Jóhann Jakobsson ?(d. 24.3.1987), óþekkt, Hrólfur Jakobsson ?(d. 27.12.1996), Ólína Gyða Hafsteinsdóttir, fjögur óþekkt, Guðrún Angantýsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og fjögur óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn336

13. september 2001 fóru krakkarnir í leikskólanum Barnaból út á golfvöll - Háagerðisvöll - til að kynna sér golfíþróttina. Á þessari mynd eru krakkarnir ásamt nokkrum foreldrum, golfurum og starfsmönnum Barnabóls. Frá vinstri: Kristín Birna Guðmundsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson, Þórey Jónsdóttir, Jón Ólafur Ívarsson (d. 29.12.2013), Fjóla Ævarsdóttir, Adolf H. Berndsen og Ragnheiður Sigurjónsdóttir. Börnin eru óþekkt

Jón Jónsson269
Á þessari mynd eru leikararnir í Saumastofunni sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið undir leikstjórn Halldórs Laxnes veturinn 1984. Á myndinni eru, talið frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Þórður Jónsson044
Á þessari mynd, sem var tekin á tröppum Höfðaskóla af nemendum fæddum 1948 og 1949 ásamt kennara sínum, eru frá vinstri: fremsta röð: Árni Björn Ingvarsson, Gissur Jóhannsson, Helgi Bjarnason (d. 1.3.2007) og Gísli Kristjánsson. Önnur röð: Ólöf Smith, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Helga Guðmundsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, Guðbjörg Þorbjörnsdóttir og Anna Bára Sigurjónsdóttir. Þriðja röð: María Jónsdóttir, Hrefna Júlía Viggósdóttir, Þórunn Sigurðardóttir, Jóna Kristjánsdóttir, María Bjarnadóttir (d. 1984) og Ester Axelsdóttir. Aftasta röð: Jóhann Ingibjörnsson, Þórir Ágússon (d. 24.9.2000), Elínborg Jónsdóttir (d. 7.1.2007) kennari, Sigurður Bjarnason og Árni Björn Birgisson.
Skagaströnd - safn365
Golfarar sem tóku þátt í golfmóti á Hágerðisvelli 1991 raða sér upp við nýreistan golfskálann á vellinum. Frá vinstri: Karl Berndsen (d. 12.2.1995), Dagný Sigmarsdóttir, Adolf H. Berndsen, Soffía Pétursdóttir, óþekktur, Hjördís Sigurðardóttir, Kristín Mogesen, (krýpur), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Fanney Zophaníasdóttir, Ingibergur Guðmundsson, óþekktur, Jón Sigurðsson, Árni Jónsson (með svarta húfu) , óþekktur, Guðmundur Kristinsson, þrír óþekktir og Vilhelm Jónsson. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn007

Á þessari mynd eru hjónin Kristján Kristófersson og Guðrún Jónsdóttir Espólín með börn sín Bergþóru Önnu Kristjánsdóttur og Jón Espólín Kristjánsson. Líklega var myndin tekin kringum 1930.

Jón Jónsson342
Skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Viggó Magnússon og Stefán Ægir Lárusson.
umf Fram 330
Á þessari mynd eru ungir íþróttamenn úr umf. Fram á Skagaströnd. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma kringum 1975. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Hjörtur Guðmundson (sitjandi), Kristján Blöndal, Hafþór Gylfason, Sigurjón Ingólfsson (fjær), Guðrún Berndsen (nær) og Sólveig Gunnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 498
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) situr í stólnum en Bergur Jón Þórðarson tyllir sér á stólarminn hjá honum.
Guðmundur Guðnason 2 462
Þessi mynd var tekin sumarið 1986 við sumarbústað póstmannafélagsins að Rauðabergi í Austur Skaftafellssýslu. Á henni eru frá vinstri: Einar Karlsson, Kristín Blöndal Sigurðardóttir, Dagný Hannesdóttir, Jóhanna Karlsdóttir, Karl Guðmundsson og Berglind Karlsdóttir.
umf Fram 322
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson sem kenndi fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Þessi mynd er af námskeiðskrökkum - líklega frá Blönduósi - en þau eru öll óþekkt. Ef þú veist nöfn þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn003
Þessi mynd var tekin á skólatröppunum við Höfðaskóla. Á myndinni, sem tekin var 1972, eru krakkar sem fædd voru 1962 og því saman í bekk. Fremsta röð frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Erla Másdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Guðrún Guðmundsdóttir og Sólveig Gunnarsdóttir. Í miðröð frá vinstri: Jóhann Grímsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Gunnar Gunnarsson og Vilhelm Harðarson. Aftast eru frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Guðmundur Jónsson og Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002).
Guðmundur Guðnason 2 491

Fermingarbörnin Anna Aðalheiður Halldórsdóttir frá Móbergi og Sigurður Örn Ágústsson frá Geitaskarði standa hér á tröppum Holtastaðakirkju ásamt séra Oddi Einarssyni sem fermdi þau í kirkjunni árið 1984. Maðurinn til vinstri er Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011).

Guðmundur Guðnason 2 476
Ekki er vitað um tilefni þessarar myndatöku né hvar myndin var tekin. Í öftustu röð frá vinstri: séra Hjálmar Jónsson, Sólveig Sigríður Einarsdóttir (Sísa), Margrét Jónsdóttir, séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, Guðrún Kristjánsdóttir og Sigurður Daníesson. Fremri röð frá vinstri: Bjarni Th. Rögnvaldsson, Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988), séra Ólafur Hallgrímsson, Helga Kristjánsdóttir, séra Yrsa Þórðardóttir, séra Dalla Þórðardóttir, Margrét Bóasdóttir, séra Sigurpáll Óskarsson og séra Kristján Valur Ingólfsson.
umf Fram 342
Þessir tveir herramenn hafa starfað ötullega innan ungmennafélagshreyfingarinnar í allmörg ár auk annarra félagsstarfa. Mennirnir eru frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson frá Skagaströnd og Magnús Ólafsson frá Sveinsstöðum. Tilefni handtaksins er óþekkt en tengist mjög líklega einhverjum sigrum umf Fram félaga.
Skagaströnd - safn380
Ekki er vitað hvenær þessi mynd af kirkjukórnum var tekin en sennilega hefur það verið einhverntíma í kringum 1970. Fremst krjúpa bræðurnir Jón Hallur Pétursson til vinstri og Pétur Ingjaldur Pétursson til hægri. Sitjandi frá vinstri: Hrólfur Jónsson (d. 1.8.1989) frá Bjarmalandi, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) frá Njálsstöðum, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004). Standandi frá vinstri: Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) Grund, Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) Norður-Skála, Georg Hjartarson (d. 13.9.2001), Elísabet Árnadóttir Réttarholti, Ása Hafsteinsdóttir, Hallbjörn Hjartarson frá Vík, Bára Þorvaldsdóttir, Elísabet Frímannsdóttir (d. 1.9.1990) Jaðri, Sævar Bjarnason Bjargi, Guðrún Sigurðardóttir og Edda Pálsdóttir.
Jón Jónsson336
Ungir skíðagarpar með verðlaunin sín í skíðabrekkunni í Spákonufelli einhverntíma kringum 1985. Frá vinstri: Páll Jónsson frá Brandaskarð, Jóhannes Sveinsson og Sigurbjörn Kristjánsson.
Guðrún Soffía Pétursdóttir - safn014
Líklega var þessi mynd tekin við skólaslit Höfðaskóla í Fellsborg kringum 1990. Krakkarnir í bláu jökkunum voru spilarar í lúðrasveit sem í voru krakkar af svæði Tónlistarskóla Austur Húnavatnssýslu en stjórnað af Skarphéðni Einarssyni. Frá vinstri á myndinni eru: Arnar Ólafur Viggósson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Sigurður Berndsen, Jón Örn Stefánsson, Halla Kristín Árnadóttir, Guðrún Björg Elísdóttir, Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Elín Ósk Ómarsdóttir, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Bjarnhildur Níelsdóttir o g tvö óþekkt.
umf Fram 314
Þessar konur kepptu um árabil í kastgreinum fyrir umf. Fram á Skagaströnd. Frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Kolbrún Viggósdóttir og Guðbjörg Gylfadóttir sem setti Íslandsmet í kúluvarpi 1992 en metið stendur enn þagar þetta er skrifað í janúar 2015.
Guðmundur Guðnason 2 362
Þessi mynd var tekin vestan við húsið Lækjarhvamm (Suðurvegur 1) líklega 1956. Önnur frá vinstri í öftustu röðinni er Anna Skaftadóttir og hægra megin við hana er Harpa Friðjónsdóttir, sem átti heima í Lækjarhvammi með foreldrum sínum. Stúlkan við hlið Hörpu er líklega Sigrún Kristófersdóttir. Sitjandi framan við Önnu er Björn Ómar Jakobsson en milli þeirra stendur Eyrún Birgisdóttir. Harpa heldur í Ragnheiði Lindu Kristjánsdóttur. Lengst til hægri í öftustu röðinni er Búi Þór Birgisson (d.18.9.2009) en sennilega er það Birgir Þórbjarnarson sem er lengst til vinstri í öftustu röð. Við hlið Björns Ómars í fremstu röð er Guðmundur Rúnar Kristjánsson og lengst til hægri í röðinni er Árni Björn Ingvarsson. Aftan við hann stendur systir hans, Elínborg Ingvarsdóttir og hallar sér að Sigrúnu. Á þessum tíma bjuggu systkinin Björn Ómar, Guðmundur Rúnar og Ragnheiður Linda í litlu húsi á sömu lóð - Gamla Lækjarhvammi - ásamt foreldrum sínum. Húsið stóð til vinstri, út við götuna, rétt utan við ramma þessarar myndar.
Guðmundur Guðnason 2 383

Þessi mynd var tekin í Félagsheimilinu á Blönduósi líklega á Húnavöku 1963 af karlakórnum Vökumenn á Blönduósi . Sitjandi eru talið frá til vinstri: Kristófer Kristjánsson frá Köldukinn, Einar Guðlaugsson (d. 2.4.2008), Jón Kristjánsson (d. 20.6.2014) frá Köldukinn og Jóhann Jónsson (d. 21.3.2004) frá Beinakeldu. Standandi frá vinstri: Benedikt Björnsson Blöndal , Jakob Sigurfinnsson (d. 27.3.1966) frá Hurðabaki, Sigurður Sigurðsson frá Blöndubakka, Páll Eyþórsson (d. 20.7.2002) frá Hvassafelli á Blönduósi, Heiðar Kristjánsson frá Hæli, Þorbjörn Sigurðsson (d. 20.7.2013) Blönduósi, Björn Sigurfinnsson (d. 22.3.1987) frá Hurðabaki, Óskar Sigurfinnsson frá Meðalheimi og Reynir Hallgrímsson frá Kringlu og Guðmann Hjálmarsson (d. 21.8.1973) Blönduósi .

umf Fram 324
USAH stóð fyrir félagsmálanámskeiðum fyrir aðildarfélög sín í mars-apríl 1976. Námskeiðin voru haldin á Blönduósi og Skagaströnd fyrir fullorðna og einnig var farið í skólana í sýslunni með námskeið fyrir elstu nemendurna. Leiðbeinandi á námskeiðunum var Ólafur Oddsson eða Pétur Eysteinsson sem kenndu fólk ræðumennsku, fundarsköp og almennt að koma fram. Á þessari mynd er Kristín Líndal frá Holtastöðum lengst til vinstri en hinar eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn382
Myndin var tekin á tröppum Hólaneskirkju eldri þegar biskupinn kom í heimsókn í sóknina einhverntíma rétt fyrir 1970. Á myndinni er biskup með sóknarnefndarmönnum, presti og organista. Frá vinstri: Páll Jónsson (d. 19.7.1979) skólastjóri og formaður sóknarnefndar, Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) hreppstjóri og meðhjálpari, Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) póstur, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Grétar Smári Hallbjörnsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) smiður, herra Sigurbjörn Einarsson biskup (d. 28.8.2008), Hallbjörn Hjartarson verslunarmaður og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) organisti kirkjunnar.
Jón Pálsson og Björk Axelsdóttir - safn005
Þessir krakkar, sem voru saman í bekk í Höfðaskóla, fæddust 1947 og 1948. Á myndinni eru þau með kennara sínum Jóni S. Pálssyni. Standandi frá vinstri: Pétur Jóhannsson, Ísleifur Haraldsson, Jóhann Björn Þórarinsson, María Bjarnadóttir (d.1984), Jóhann Ingibjörnsson, Jón S. Pálsson kennari, Búi Þór Birgisson (d. 18.9.2009), Steinunn Margrét Ellertsdóttir (d. 2014), Sigurður Bjarnason og Árni Björn Birgisson. Sitjandi frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Birna Guðjónsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Jóhanna Valdimarsdóttir.
Guðmundur Guðnason 2 480
Fermingarbörn í Hólaneskirkju (eldri) vorið 1978 ásamt sér Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996). Í fremstu röð frá vinstri: Skafti Fanndal Jónasson, Bergþór Gunnarsson, séra Pétur, Karl Berndsen og Axel Gígjar Ásgeirsson. Miðröð frá vinstri: Vilborg Másdóttir, Hjalti Hólmar Indriðason, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Jónsdóttir, Einar Karlsson, Soffía Guðmundsdóttir, Sveinn Kristjánsson og Sigurður Georgsson. Aftasta röð frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Guðbjörg Gylfadóttir, Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Guðjón Pálsson (d. 14.12.1989) og Vilhelm Jónsson.
Guðmundur Guðnason 2 373
Á þessari myn er karlakór að syngja í Höfðaskóla en þar voru tvær samliggjandi stofur, sem hægt var að opna á milli, oft notaðar fyrir ýmis konar uppákomur. Kórinn á myndinni er líklega karlakórinn Heimir úr Skagafirði en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1

32
33
34

79
Leita í myndasafninu
Leita