Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Héraðsskjalasafn A-Hún 190
Hjónin Jón Jónsson (d. 1935) og Halldóra Einarsdóttir (d. 1957) frá Kirkjubæ í Norðurárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Höfðaskóli - safn 336
Þessir nemendur Höfðaskóla unnu í samkeppni um áróðursefni fyrir reykleysi á vegum Tóbaksvarnarnefndar. Verðlaunin voru ferðalag til Danmerkur, sem þessir krakkar fóru í um vorið. Myndin var tekin árið 2000 eða 2001. Aftari röð frá vinstri: Kristinn Andri Hjálmtýsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Hanna Rúna Gestsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson, Björn Viðar Jóhannsson, Rósa Björg Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Ásdís Adda Ólafsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 255
Samkvæmt því sem stendur á þessari mynd eru þetta systkinin frá Holti á Ásum, Björn Magnússon Syðra-Hóli og Margrét Magnúsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 262
Engar upplýsingar eru um þetta fólk. Myndin virðist hafa verið tekin erlendis samkvæmt stimplinum neðst til hægri. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Fisk Seafood - safn 149
Stjórn og framkvæmdastjóri Skagstrendings hf árið 2000. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Þórður Magnússon, Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri, Adolf H. Berndsen stjórnarformaður, Egill Tryggvason og Einar Benediktsson.
María Magnúsdóttir - safn 269
Þessi fallegu börn eru óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 142
Hjónin Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir og Björn Einarsson sem bjuggu í Hillebrantshúsi á Blönduósi.
María Magnúsdóttir - safn 184
Aftan á myndinni stendur:" Guðrún, Auðbjörg, Indíana Albertsdætur frá Neðstabæ".
María Magnúsdóttir - safn 162
Aftan á þessa fjölskyldumynd stendur: "Páll Steingrímsson Ingibjörg og börn Njálsstöðum". Ljósmyndasafnið veit að tveir af drengjunum munu vera Þormóður Pálsson og Guðmar Pálsson en veit ekki nöfn hinna systkinanna. Ef þú veist nöfnin, og e.t.v. þekkir þau á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 173
Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017) og Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) frá Laufási.
María Magnúsdóttir - safn 034
Þessi mynd var tekin á blíðum sumardegi við trjálund í túninu á Syðra Hóli. Fólkið á myndinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 015
Kaffitími í Rækjuvinnslunni hf. Frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d. 14.12.2012), Líney Jósefsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Sigurður Bjarnason. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
María Magnúsdóttir - safn 280
Myndin var tekin á hlaðinu á Syðra-Hóli. Frá vinstri: Hólmsteinn Snædal (d. 31.12.2015), Jóhanna Albertsdóttir (d.3.3.1996), Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) og Sigurlaug Kristjánsdóttir seinna húsfreyja á Tjörn á Skaga.
María Magnúsdóttir - safn 031
Þessi systkini eru börn hjónanna í Asparlundi (Bogabraut 24), Jóns Jónssonar (d. 9.7.1991) og Maríu Magnúsdóttur (d. 2.2.2016). Systkinin eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Fjóla Jónsdóttir með Ragnar H. Jónsson í fanginu og Gunnar Jón Jónsson. Myndin var líklega tekin 1964 eða 1965.
María Magnúsdóttir - safn 129
Aftan á þessari mynd stendur:"Jóhannes 14 ára, Eiríkur 5 ára, Magga 11 ára, Jana 10 ára, Vatni ?". Ef þú veist einhver deili á þessum börnum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 229
Á þessari mynd eru tvær konur nafngreindar. Jóhanna Björnsdóttir frá Syðra-Hóli lengst til vinstri og Hallfríður hjúkrunarkona á Sauðárkróki lengst til hægri. Hinar tvær eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson592
Á myndinni er séra Guðmundur Karl Brynjarsson í hópi unglinga fæddra 1983 - 1985 í æskulýðsstarfi í Hólaneskirkju. Fremst frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir (framar) og Birna Sæmundsdóttir (aftar). Næsta röð: séra Guðmundur Karl, tvær óþekktar og Kristrún Lilja Sævarsdóttir (seinna: Lilja Nótt Sævarsdóttir). Strákarnir eru frá vinstri: Jón Oddur Hjálmtýsson, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Gunnlaugur Briem, Vignir Örn Hafþórsson, Magnús Filip Sævarsson, Eyþór Ernstsson og Gunnar Helgason. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 044
Systkinin Magnús B. Jónsson, Gunnar Jón Jónsson og Fjóla Jónsdóttir heima í Asparlundi (Bogabraut 24). Myndin var líklega tekin 1958 eða 1959.
Páll J. Pálsson safn 21
Fermingarsystkini frá Hofskirkju vorið 1955. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Sigurður Kristjánsson Björgum, Ágúst Friðgeirsson Sviðningi, Ásta Kristjánsdóttir Steinnýjarstöðum og Óli Albertsson Keldulandi.
Ólafur Bernódusson590
Myndin var tekin á kvöldvöku Leikklúbbs Skagastrandar einhverntíma kringum 1980. Á sviðinu eru frá vinstri: Birna Blöndal, Ólöf Ardís Arelíusdóttir, Kristín Jónsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Gylfadóttir, óþekkt, Dagný Sigmarsdóttir, Helga Ottósdóttir?, Inga Matthíasdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Guðmunda Ólafsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Bernódus Ólafsson (d. 1.9.1996), óþekkt, Guðný Sigurðardóttir, Ingibergur Guðmundsson, Rúnar Loftsson, Þórey Jónsdóttir,Vigdís Viggósdóttir, Ólafur Bernódusson, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) með harmóniku.
María Magnúsdóttir - safn 232
Hjúkrunarkonan er Jóhanna Björnsdóttir (d.23.8.1991) frá Syðra-Hóli. Konan standandi fyrir miðju í aftari röð er líklega Elínborg Ósk Einarsdóttir (d.9.12.1972) frá Síðu og konan fremst til vinstri er líklega systir hennar Magdalena S. Einarsdóttir (d.3.3.1985) frá Síðu. Aðrar konur á myndinni eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari 389
Myndin var tekin af hreppsnefnd Höfðahrepps ásamt nokkrum mökum 1987 í opinberri heimsókn til Sandgerðis en sveitarfélögin höfðu þá nýlega stofnað til formlegs vinabæjarsambands. Frá vinstri: Guðmundur Sigvaldason sveitarstjóri (1986 - 1990), Heimir Fjeldsteð hreppsnefndarmaður, Herborg Þorláksdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson hreppsnefndarmaður, Torfhildur Stefánsdóttir sveitastjórafrú, Guðmundur Haukur Sigurðsson hreppsnefndarmaður, Bjarney Valdimarsdóttir, Magnús B. Jónsson hreppsnefndarmaður, Guðbjörg Viggósdóttir, Hallur Hilmarsson bílstjóri, Hjördís Sigurðardóttir og Adolf J. Berndsen hreppsnefndaroddviti.
María Magnúsdóttir - safn 282
Konan á myndinni er Hallbera Jónsdóttir ljósmóðir kona Björns Einarssonar frá Síðu. Þau bjuggu á Svansgrund og seinna í mörg ár í Hillebrantshúsi á Blönduósi. Börnin eru óþekkt en líklega eru það barnabörn Hallberu og Björns. <br> <br>
María Magnúsdóttir - safn 037
Það fer vel um þau systkinin Fjólu Jónsdóttur og Gunnar Jón Jónsson í jólaboði á heimili foreldra sinna Maríu Magnúsdóttur og Jóns Jónssonar í Asparlundi (Bogabraut 24). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
María Magnúsdóttir - safn 054
Þetta par er óþekkt. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hérðasskjalasafn A-Hún 154
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd.
María Magnúsdóttir - safn 036
Þessi mynd var líklega tekin á hlaðinu á Syðra Hóli. Samkvæmt texta aftan á myndinni eru á henni, talið frá vinstri: Hjónin Hólmfríður Magnúsdóttir og Rósberg G. Snædal (d. 9.1.1983) , hjónin Sigurbjörg Jónsdóttir (d.15.1.1985)og Stefán Einarsson (d.25.6.1969) frá Höskuldsstöðum og hjónin á Syðra Hóli Jóhanna Albertsdóttir(d.3.3.1996) og Magnús Björnsson (d.20.7.1963). Tilefni myndatökunnar var ferming Ásdísar Magnúsdóttur frá Syðra Hóli 20. maí 1945.
María Magnúsdóttir - safn 068
Því miður er ekkert vitað um þessa mynd þannig að allar upplýsingar um fólkið á henni væru vel þegnar. Líklega er hér um bekk í skóla að ræða og þá gæti konan lengst til hægri í miðröðinni verið kennarinn. Endilega, ef þú þekkir einhvern á myndinni, sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson589
Myndin var tekin kringum 1980 af málaragengi unglinga sem unnu við að mála togarann Arnar Hu 1 (Japans-Arnar) í Skagastrandarhöfn. Þessi fjörmikli hópur vann verkið undir verkstjórn fullorðinna. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Indriðason, Sigurbjörn Kristjánsson, Ingvar Jónsson, óþekktur, Þráinn Bessi Gunnarsson (fjær með húfu), Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000), Guðmundur Óskarsson (fjær), Arnar Erlingsson, Björn Halbjörnsson, Þórarinn Ingvarsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir (nær), Ingimar Oddsson (í miðið), Arnar Arnarsson (fjærst), Pálína Freyja Harðardóttir, Kristjana Jónsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og Guðmunda Ólafsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 278
Þetta fólk er frá Syðra-Hóli. Frá vinstri: Björn Magnússon (d. 13.11.2010), Hólmfríður Magnúsdóttir (d.6.7.2013), Ragnheiður Björnsdóttir (d.?) og Ólafur Björnsson (d.?).
María Magnúsdóttir - safn 252
Þessi mynd hefur verið send heim til gamla landsins úr Vesturheimi (Kanada) en aftan á henni stendur: "Ólína Hermansdóttir Hillman, Jón Rugnvaldur Hermanson Hillman, Herman (Harry) Hermanson Hillman, Johann Hermanson Hillman. 1896 ? ". Börnin á myndinni eru börn Hermanns Jónssonar frá Hóli á Skaga og Margrétar Ögmundsdóttur frá Fjalli á Skaga. Þau fóru til Kanada og bjuggu í Alberta. Hermann kenndi sig við Hól og tók upp ættarnafnið Hillmann.
María Magnúsdóttir - safn 284
Óþekktar konur. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 007
Sigursveit í kappróðri unglinga á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum úr höndum Lárusar Ægis Guðmundssonar kynnis dagsins. Frá vinstri: Lárus, Ingimar Oddsson, Katrín Sigurjónsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Guðmundur Oddsson, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d. 13.8.2000) og Vilhjálmur Skaftason stýrimaður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari379
Þessi mynd var tekin á tröppum Höfðaskóla einhverntíma snemma á sjöunda áratugnum af skátunum í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Fremsta röð frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, Ólöf Jóhanna Smith (Lólý), Jóhanna Valdimarsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir Steinholti, Hrefna Júlía ?, Sigrún Kristófersdóttir Sunnuhvoli og Pétur Jóhannsson Lækjarbakka. Röð nr.2. frá vinstri: Kristinn Lúðvíksson Steinholti, Helga Ólafsdóttir Suður Skála, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir Asparlundi, Magdalena Axelsdóttir Læk og Sigurður Bjarnason Bjargi. Röð nr 3 frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Pálfríður Benjamínsdóttir Skálholti, Halla Björg Bernódusdóttir Stórholti, Anna Skaftadóttir Dagsbrún, Sigrún Jósteinsdóttir Sólvangi og Jóhann Björn Þórarinsson Höfðaborg. Röð nr 4. frá vinstri: Ísleifur Haraldsson Jaðri, Sigurbjörg (eða Guðrún) Kristjánsdóttir Háagerði, Guðrún Þórbjarnardóttir Flankastöðum, Þórunn Bernódusdóttir Stórholti og Birgir Júlíusson Höfðabergi. Röð nr. 5. frá vinstri: Búi Birgisson Straumnesi, Stefán Ingólfsson Ólafsvöllum, Ómar Þorbjörnsson Akurgerði, Árni Sigurðsson Sólvöllum/Hólanesi, Grétar Haraldsson Iðavöllum og Hallbjörn Björnsson Jaðri. Aftast standa, frá vinstri, skátaforingjarnir: Þórður Jónsson (d.25.12.2009) og Ingólfur Ármannsson.
Ólafur Bernódusson 560
Myndin var tekin af börnum á leikjanámskeiði ungmennafélagsins Fram einhverntíma kringum 1982. Börnin eru frá vinstri: Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Helga Kristmundsdóttir?, Jóney Gylfadóttir, Svanur Árnason, Jóna Sigurðardóttir (aftar), óþekkt stúlka (framar), Þröstur Árnason, Óli Hjörvar Kristmundsson (aftast), óþekktur (í miðið), Ragna Fanney Gunnarsdóttir (fremst), Hallgrímur Oddsson (aftast), Kristján Gunnar Guðmundsson (í miðið), Jónas Fanndal Þorvaldsson (fremst), óþekkt, Baldur Magnússon? (aftast), Elísabet Eik Guðmundsdóttir (fremst), Óskar Ingi Þórsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Árný Helgadóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Hugrún Sigurðardóttir, Baldur Eðvarðsson, Theódór Karlsson, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Atli Þórsson, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Gunnar Halldór Hallbjörnsson. Ef þú þekkir einhver af óþekktu börnunm á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 086
Á myndinni eru hreppsnefndarmenn Vindhælishrepps á hlaðinu á Syðra Hóli. Frá vinstri: Þórarinn Þorleifsson (d.24.4.1973) Skúfi , Magnús Daníelsson (d.1.6.1993) Syðri Ey, Magnús Björnsson (d. 20.7.1963) Syðra Hóli, Björn Jónsson (d. 21.4.1992) Ytra Hóli og Ingvar Pálsson (d.18.10.1968) Balaskarði. Myndina tók María Magnúsdóttir en ekki er vitað hvenær.
María Magnúsdóttir - safn 149
Aftan á þessa mynd er skráð: "Hópurin minn, ekki allur samt. Some of John Hillman´s family. Granddaughter Ruth. Dóttur Marilyn. Dóttur June, hired man, Clifford´s wife - Deemie, John´s kona Dora, granddaughter Lois, dottir Johanna. Kona Viola + son Elmer. Evarta Alberta Canada 1945?".
María Magnúsdóttir - safn 264
Á þessari mynd stendur: " Svavar Ögmundsson og Sigurbjörg Sauðárkróki".
Fisk Seafood - safn 122
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún er frá ferðalagi starfsfólks og stjórnenda Hólaness hf til Reykjavíkur. Slíkar "menningarferðir" voru farnar nokkrum sinnum í boði Hólaness hf og voru vel heppnaðar og vinsælar. Þessi mynd var tekin á Grillinu á hótel Sögu þar sem hópurinn borðaði veislumat í boði Hólaness hf.. Á myndinni eru hjónin Sigurður Bjarnason og Sigrún Lárusdóttir.
Höfðaskóli - safn 381
Nemendur Höfðaskóla syngja saman lagið: "Ó, Borgin mín", eftir Hallbjörn Hjartarson við texta Kristjáns Hjartarsonar(d. 2.8.2003) Myndin var tekin einhverntíma kringum 1989 líklega í tilefni af 50 ára afmæli skólans. Aftarlega í miðjum hópnum er Páll Leó Jónsson skólastjóri en hann var skólastjóri Höfðaskóla 1986 - 1991. Síðan verður hver og einn að þekkja andlitin á myndinni.
María Magnúsdóttir - safn 099
Vinkonurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Syðra Hóli til vinstri og Rannveig? vinkona hennar úr menntaskóla. Föðurnafn Rannveigar er óþekkt en hún flutti snemma til Noregs og hefur búið þar síðan. Ef þú veist föðurnafn hennar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 088
Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013) frá Syðra Hóli með son sinn Hún Snædal í fanginu. Myndin hefur líklega verið tekin 1945 eða 1946.
Fisk Seafood - safn 161
Þessi mynd var tekin af áhöfnum Arnars Hu 1 hinn 23. desember 1999. Þá hafði Arnar náð því takmarki, fyrstur íslenskra togara, að aflaverðmæti landaðs afla á árinu var komið yfir einn milljarð. Af þessu tilefni var drifið í myndatöku og á eftir bauð útgerðin upp á léttar veitingar um borð fyrir áhöfnina og aðstandendur þeirra. Á myndinni eru frá vinstri: Tryggvi Hlynsson, Bæring Skarphéðinsson, Guðmundur Andersson (nær), Ólafur Ásgeirsson (fjær), Ernst Berndsen, Ingvar Þór Jónsson, Ágúst Ómarsson, Ósvald Indriðason (fjær), Ingibjörg Skúladóttir (d.30.7.2023) (nær), Sigurjón Ingólfsson, Hólmgeir Kristmundsson, Valdimar Viggósson, Indriði Sigurðsson (nær), Hafþór Gylfason (fjær), Jónas Þorvaldsson, Óskar Kristinsson (nær), Einar Ásgeirsson (í miðið), Reynir Lýðsson (fjærst), Þröstur Árnason (fjær), Jóhannes Indriðason (nær), Einar Kristberg, Guðjón Guðjónsson, Guðmundur Finnbogason, Guðmundur Gunnlaugsson?, Björn Sigurðsson, Árni Ólafur Sigurðsson (nær), Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002) (fjær), Sævar Berg Ólafsson (nær), Jóhann Ásgeirsson (fjær), Slavko Velemir, Bjarni Ottósson, Guðmundur Henry Stefánsson, Gunnar Reynisson, Alfreð Hafsteinsson, Víðir Jóhannesson og Finnur Kristinsson. Eins og sjá má á borðanum voru aflaverðmætin orðin einn milljarður og 25 milljónir þennan dag. "Milljarðakassinn" er svo fyrir framan hópinn.
María Magnúsdóttir - safn 020
Helga Ottósdóttir í heimsókn hjá Kristófer Árnasyni (d.10.5.2000) verkstjóra í Rækjuvinnslunni hf.
Fisk Seafood - safn 072
Þessi hópur starfsfólks Hólaness hf útskrifaðist 7. desember 1989 sem sérhæfðir fiskvinnslumenn eftir nám í fiskvinnslufræðum. Var þetta þriðji hópur starfsfólks Hólaness hf sem útskrifaðist á rúmum tveimur árum. Fremri röð frá vinstri: Drífa Kristjánsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004), Signý Magnúsdóttir og Súsanna Þórhallsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Stefán Sveinsson, Þórður Sigurðsson, Úrsúla Kristjánsdóttir, Vilhjálmur Jónsson og Rut Jónasdóttir.
Páll J. Pálsson safn 19
Heimilisfólk á Bakka í Skagahreppi 1951. Sitjandi eru hjónin María Ólafsdóttir (d.4.7.1975) og Páll Tómasson (d. 3.6.1963) bændur á Bakka 1923 - 1960. Standandi eru börn þeirra, frá vinstri: Björg Þóra Pálsdóttir, Lilja Guðrún Pálsdóttir, Jakobína Pálsdóttir (d. 28.11.2003), Páll Jónatan Pálsson, Ólafur Helgi Pálsson (d. 22.1.2011), Þorgrímur Pálsson (d. 7.9.2013), Guðríður Ásgerður Pálsdóttir (d. 27.2.2015) og María Pálsdóttir.
María Magnúsdóttir - safn 021
Þórarinn Hjartarson (d.28.1.1991) og Signý Ástmarsdóttir pakka frystri rækju í Rækjuvinnslunni hf. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Héraðsskjalasafn A-Hún 225
Margrét Jónsdóttir (d. ?) frá Stóra-Bergi með þrjú börn sín. Ef þú veist nöfn barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 274
Fólkið á myndinni er óþekkt. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 192
Texti aftan á þessari mynd segir: "Hjónin Þorlákur og Ingiríður". Ef þú veist eitthvað um þessi góðu hjón t.d. hvar þau bjuggu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 176
Aftan á myndinni stendur: "1. Manni frændi (Hermann Hillmann) 2. Winnie Davidson, kona Haraldar 3. Amma 4. Lena frænka 5. Pjetur frændi ".
Páll J. Pálsson safn 27
Myndin var tekin á hlaðinu á Efri Harrastöðum í Skagahreppi (nú Skagabyggð) árið 1913. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri talið: Guðjón Einarsson bóndi á Efri Harrastöðum, tveir óþekktir enskir menn, Einar Guðjónsson og Andrés Guðjónsson (d. 5.10.1968). Vikapilturinn sem stendur framan við hesta Einars er Sigvaldi Benediktsson. Ensku mennirnir komu til að leita að gulli í Harrastaðahelli en það reyndist allt vera glópagull (járnkís FeS2) sem þar fannst.
María Magnúsdóttir - safn 089
Fermingarsystkin frá Höskuldsstaðakirkju líklega vorið 1933. Stúlkan lengst til vinstri er María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) frá Syðra Hóli. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 272
Fólkið á þessari mynd er óþekkt. Myndin var tekin í Montana í bandaríkjunum af Helenu Taylor ljósmyndara. Myndin hefur síðan verið send heim til Íslands til ættingjanna þar. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 241
Þessi mynd var tekin framan við gamla bæinn á Syðra-Hóli líklega kringum 1950. Fullorðna fólkið er talið frá vinstri: Ásdís Magnúsdóttir, Sveinbjörn Albert Magnússon (Atli) (d. 13.11.1987) , María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016), Jón Jónsson (d. 9.7.1991), Ragnhildur ? frá Mýrum (d.?), Jóhanna Albertsdóttir (d. 3.3.1996), Magnús Björnsson (d. 20.7.1963), Hólmfríður Magnúsdóttir (d. 6.7.2013), Lárus Björnsson (d. 1985), Ragnheiður Björnsdóttir (d. ?) og Ólafur Björnsson (d. ?). Strákurinn lengst til vinstri er óþekktur en hinir eru; Húnn Snædal til vinstri og Hólmsteinn Snædal til hægri (d. 31.12.2015).
María Magnúsdóttir - safn 254
Aftan á þetta póstkort stendur skrifað: "Ingibjörg Jóhannsdóttir Thorlaksson og sonur hennar Benedikt, lítill og 3 önnur börn hennar". Þau börn munu heita Sölvi, Aðalbjörg og Anna samkvæmt því sem ritað er framan á kortið. Reyndar hefur litla myndin verið límd á kortið eftir á.
Jón Jónsson 433
Myndin var tekin 1984 þegar haldið var upp á 75 ára afmæli Hallbjargar Jónsdóttur (d. 22.12.1987) sem lengst af bjó í Þórsmörk. Með henni á þessari mynd eru synir hennar og Sigurðar Guðmonssonar (d. 5.8.1981). Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Reynir Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 149
Hólmfríður M. Guðjónsdóttir (d.1974) frá Neðstabæ í Vindhælishreppi og María Guðrún Ögmundsdóttir (d. 1945) frá Syðra-Hóli Vindhælishreppi (nú Skagbyggð).
María Magnúsdóttir - safn 066
Aftan á þessari mynd stendur: "Hellir neðan við Syðri-Hóli". Fólkið á myndinni er óþekkt en a.m.k. konurnar eru prúðbúnar með hatta. Ef þú veist eitthvað um þessa mynd vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
María Magnúsdóttir - safn 002
Messu í gömlu Hólaneskirkju lokið. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til hægri og óþekktur prestur til vinstri þakka fólki fyrir komuna. Maðurinn lengst til vinstri er Sigurbjörn Kristjánsson (d.10.9.1989) frá Kárastöðum. Teitný Guðmundsdóttir (d. 28.2.2000) er að fara að stíga niður tröppurnar en fyrir aftan hana, í ljósri kápu, er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir er að koma út um kirkjudyrnar ásamt óþekktir gamalli konu. Hjá barnavagninum standa hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
36
37
38
…
79
Leita í myndasafninu
Leita