Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn013
Skátafélagið Sigurfari á Skagaströnd var stofnað 26. mars 1959. Þessi mynd var því tekin 1964 þegar Sigurfari varð fimm ára. Á myndinni eru helstu foringjar félagsins á þessum tíma ásamt félagsforingjanum, Þórði Jónssyni. Sitjandi frá vinstri eru: þórir Ágústsson (d.24.9.2000), Helga Guðmundsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir og Þórður Jónsson (d.25.12.2009) félagsforingi. Standandi eru frá vinstri: Helgi Bjarnason (d.1.3.2007), Gunnlaugur Sigmarsson, Guðmundur Guðmundsson og Steindór Haraldsson.
Hallgrímur Kristmundsson safn056
Fremst á myndinni eru Anna Kristmundsdóttir til vinstri og systir hennar Ingibjörg Kristmundsdóttir til hægri. Hinar konurnar á myndinni eru óþekktar nema konan aftast til hægri er líklega Guðrún Helgadóttir? (d. 15.4.1987). Ef þú þekkir óþekktu konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 288
Samkvæmt upplýsingum Héraðsskjalasafns A-Hún eru þetta þær Elín Rannveig Jónsdóttir (1899-28.6.1984), Margrét Jónsdóttir og ókunn frá Hökuldsstöðum.
Jón Jónsson 421
Fermingarbörn sem voru fermd í Hólaneskirkju 1967 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt árið 1987. Myndin er úr einkasamkvæmi í kaffistofu Hólaness hf þar sem þau mættu með mökum sínum og kennurunum sínum frá því þau voru í grunnskólanámi Höfðaskóla. Á þessari mynd eru fermingarbörnin 20 árum eftir ferminguna ásamt hluta kennara sinna. Standandi frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Finnur Kristinsson, Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) kennari, Benóný Gunnarsson, Haraldur Árnason, Jón Gunnar Jósefsson, Einar Guðmundsson, Jón Geir Jónatansson og Böðvar Jónsson. Sitjandi frá vinstri: Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari, Halla Júlíusdóttir, Edda Þórarinsdóttir, Inga Stefánsdóttir, Guðrún Guðmannsdóttir, Svanhvít Halla Pálsdóttir og María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016) kennari.
Jósef H Sigurðsson - safn 035
Þessi mynd var líklega tekin við Óseyri á Skagaströnd. Veiðimennirnir eru feðgar úr Hólaneshúsinu, frá vinstri: Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002) og Jósep Hjálmar Sigurðsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 407
Hjónin í Árnesi á Skagaströnd þau Árni Björn Kristófersson (d. 11.10.1982) og Guðrún Sigurlína Teitsdóttir (d. 17.6.1978). Árni var verkamaður og frístundabóndi en Guðrún var mjög farsæl ljósmóðir.<br>
Héraðsskjalasafn A-Hún 374
Fjölskyldan á Keldulandi í Skagahreppi (nú Skagabyggð). Frá vinstri: Guðrún Ólafsdóttir (1866-apríl 1922), Sigurlína Lárusdóttir (1907-10.7.1986), Jón Lárusson (1903-1930), Ólafur Lárusson (1904-20.3.1933), Björn Lárusson (1902-20.3.1933) og Lárus Björnsson (1869-2.5.1936). Bræðurnir Ólafur og Björn fórust með bát frá Suðurnesjum ásamt tveimur öðrum mönnum. Annar þeirra var Karl Kristjánsson frá Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 413
Kvenfélagskonur í Skagahreppi (nú Skagabyggð), kvenfélagið Hekla. Sitjandi frá vinstri: Lísebet Gestsdóttir Brandaskarði, Svanlaug Halldórsdóttir Hólma (nú Króksseli) og Guðríður Jónasdóttir (d.20.4.1982) Steinnýjarstöðum. Standandi frá vinstri: Alda Friðgeirsdóttir Sviðningi (Kálfshamri), Ingibjörg Ólafsdóttir Örlygsstöðum, Árný Hjaltadóttir Steinnýjarstöðum og María Kristjánsdóttir Tjörn.
Árni Geir Ingvarsson - safn 850
Þessi mynd var tekin þegar Arnar Hu 1 2173 kom til Skagastrandar rétt fyrir jól 1992 ný smíðaður í Bergen í Noregi. Karlarnir í brúnni eru frá vinstri: Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipsstjóri, Árni Ólafur Sigurðsson fyrsti stýrimaður, Ernst Berndsen 1. vélstjóri, Gylfi Sigurðsson stjórnarformaður Skagstrendings hf og Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri fyriortækisins.
Héraðsskjalasafn A-Hún 377
Hjónin í Réttarholti á Skagaströnd. Þorbjörg Halldórsdóttir (1885-30.6.1970) og Jón Jónas Sölvason (1889-17.8.1969).
Árni Geir Ingvarsson - safn 875
Ekkert er vitað um þessar sparibúnu stúlkur. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.42007) en ekki er vitað hvar eða hvenær. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Elínborg Jónsdóttir - safn 21
Hópmyndataka við Másstaði í Vatnsdal. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Maðurinn með gráa skeggið, sem stendur aftan við steininn á miðri mynd, er Jón Kristmundur Jónsson (d.1947) bóndi á Másstöðum. Vinstra megin við hann er kona hans Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977) og vinstra megin við hana er dóttir þeirra Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Það eru þó líklega börn Jóns bónda af fyrra hjónabandi með afkomendur sína og tengdafólk. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 001
Hér hefur fólkið stillt sér upp til myndatöku framan við óþekkt fjárhús árið 1961. Þá var algengt að skepnuhús væru byggð úr asbesti á trégrind, eins og sést bak við fólkið, enda vissu menn þá ekki um hve heilsuspillandi efni asbest er. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingvar Jónsson (d. 29.7.1978) frá Brúarlandi, Edda Guðmundsdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir (Valdimars Núma Guðmundssonar), Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966) frá Brúarlandi, Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012) í Straumnesi dóttir hennar og Margrét Guðbrandsdóttir (d.30.3.2004), móðir Eddu á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 917
Mennirnir eru frá hægri: Guðbrandur Þorláksson frá Veiðileysu, Vilhelm Páll Lýðsson frá Víganesi - seinna bóndi í Reykjarfirði og óþekktur maður. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir manninn lengst til vinstri vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 431
Bára Svavarsdóttir frá Sauðárkróki og Páll Pétursson (1889-1963) frá Réttarholti á Skagaströnd. Bára er móðir Guðbjargar Ólafsdóttur á Hólabraut á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 452
Vilhelmína Andrésdóttir (1894- 24.8.1977) Ásgarði Skagaströnd og Sigríður Kristmundsdóttir (1870- 15.6.1941) Sigurðarhúsi á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 343
Guðrún Stefánsdóttir (d. 6.1.1992) með dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur (d. í maí 1995). Guðrún var ráðskona og bústýra hjá Sigurði Árnasyni bónda á Höfnum í Skagahreppi (nú Skagabyggð) í nokkur ár og er Sigríður dóttir hans. Guðrún giftist aldrei og náði tæplega 102 ára aldri.
Héraðsskjalasafn A-Hún 309
Magnús Daníelsson (d. 1.6.1993) frá Syðri-Ey og Jón Karlsson (d. 20.4.1997) frá Holtastaðakoti.
Hjördís Sigurðardóttir - safn050
Bræðurnir Adolf H. Berndsen og Hendrik Berndsen til vinstri ásamt frænda sínum Ernst Berndsen til hægri árið 1971.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn012
Myndin var tekin um mánaðamótin ágúst/september 1963 af skátum uppi í Gvendarskál í Hólabyrðu ofan við Hóla í Hjaltadal. Þá stóð yfir skátamót norðlenskra skáta að Hólum og fór hluti hópsins upp í skálina. Á myndinni hefur hópurinn stillt sér upp við altarið í skálinni en þar er sagt að Guðmundur Arason - Guðmundur góði - hafi reglulega gert bæn sína. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Karl Lúðvíksson, fjórar óþekktar stúlkur, Gissur Jóhannsson situr, Sigurjón Ástmarsson heldur á fánanum, Þorvaldur Skaftason stendur við hlið hans svo kemur óþekktur skáti en þá Bergur Jón Þórðarson með myndvél um hálsinn. Framan við Berg, dökkklædd, situr Hrafnhildur Jóhannsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Héraðsskjalasafn A-Hún 370
Pétur Hansen (d.19.11.1937) og Guðlaug Jónsdóttir (d.19.11.1931) frá Vindhæli. Pétur fæddist á Saurum 1849 en kom sem tökubarn að Vindhæli 1853 og elst þar upp til fullorðinsára. Guðlaug fæddist 1852 í Holtskoti í Biskupstungum. 1869 kemur hún, þá sautján ára, sem vinnukona að Vindhæli. Vorið 1875 giftust þau Pétur og Guðlaug og voru þá vinnuhjá hjá Árna Jónsssyni á Þverá í Hallárdal. Þaðan fara þau hjón 1876 til Nova-Scotia í Kanada bjuggu þar á nokkrum stöðum en áttu síðast heima í Hallson í N-Dakota þar sem þau dóu.
Héraðsskjalasafn A-Hún 322
Hjónin Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d. 12.7.2001) og Jónmundur Ólafsson frá Kambakoti í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð).
Héraðsskjalasafn A-Hún 256
Guðrún S. Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi á Skagaströnd er lengst til hægri á þessari mynd. Börnin og hinar konurnar eru óþekkt en ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn064
Konurnar tvær á þessari mynd eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn063
Mennirnir, sem stilla sér upp á tröppunum við Hólaneshúsið, eru óþekktir nema maðurinn með hattinn er Sigurður Sölvason (d. 24.9.1968) kaupmaður í versluninni Borg á Skagaströnd. Ef þú þekkir menninina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 433
Ekkert er vitað um þessa mynd annað en að hún kom til Héraðsskjalasafnsins úr búi Ólafs Guðmundssonar í Brautarholti á Skagaströnd. Líklega er hér um að ræða fermingar- eða skólasystkin og ágiskun er að Ólafur sé sjálfur á myndinni annar frá vinstri í miðröð. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn004
Sennilega eru skátarnir á myndinni við fánahyllingu á einhverju skátamóti kringum 1960. Fólkið er frá vinstri talið: óþekktur maður, óþekkt kona, Jónas B. Jónsson (d.1.4.2005) skátahöfðingi frá Torfalæk, Jón Ísberg (d.24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi, Gunnhildur Þórmundsdóttir skátaforingi á Blönduósi og Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 412
Þessi mynd sýnir nýstúdenta í garði Hressingarskálans í Reykjavík að gera sér glaðan dag 30.júní 1933. Myndin er frá séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) og er hann einhversstaðar á myndinni. Þér er látið eftir að finna Pétur sem var 22 ára þegar hún var tekin.
Héraðsskjalasafn A-Hún 329
Hjónin Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d. 13.7.2003) og Skafti Fanndal Jónasson (d. 2.9.2006). Þau hjón voru oft kennd við heimili sitt Dagsbrún sem Skafti byggði og stækkaði eftir því sem börnum þeirra hjóna fjölgaði en þau urðu fimm sem lifðu.
Jósef H Sigurðsson - safn 069
Myndin var tekin 1996 á fermingardegi Elvars Grétarssonar af fjölskyldunni sem þá bjó á Ránarbraut 7. Talið frá vinstri: Sigurlaug Díana Kristjánsdóttir, Jóhannes Villiam Grétarsson, Ívar Logi Grétarsson, Elvar Arinbjörn Grétarsson og Grétar Haraldsson.
Héraðsskjalasafn A-Hún 406
Þessi mynd var tekin 1939 á hlaðinu á Karlsminni á Skagaströnd. Því miður er fólkið á myndinni óþekkt.
Héraðsskjalasafn A-Hún 357
Hjónin Steinunn Þórdís Siemsen (d. 29.10.1953) og Carl Berndsen (d. 15.12.1954). Carl var kaupmaður og póstafgreiðslumaður á Skagaströnd í rúmlega hálfa öld; 1896 - 1947. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 140-141).
Héraðsskjalasafn A-Hún 346
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið að Hólum í Hjaltadal. Ekki er heldur vitað hvenær hún var tekin. Á henni eru frá vinstri prestarnir: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), séra Gísli Kolbeins og séra Sigurður Guðmundsson (d. 9.1.2010) vígslubiskup að Hólum.
Héraðsskjalasafn A-Hún 218
Hjónin Margrét Jónsdóttir (d. 21.11.1986) og Karl H. Árnason (d. 25.12.1995) frá Víkum í Skagahreppi (nú Skagabyggð).
Jón Jónsson 426
Fermingarsystur í Höskuldsstaðakirkju vorið 1981 ásamt sóknarprestinum og konu hans. Frá vinstri: Signý Gunnlaugsdóttir (d. 4.5.2015) Balaskarði, Kristín Ásgerður Blöndal Blöndubakka, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Jófríður Jónsdóttir Sölvabakka og Anna Lilja Björnsdóttir Syðra-Hóli.
Árni Geir Ingvarsson - safn 973
Með lagni mátti koma fimm manns fyrir í gömlu Willis jeppunum. Það hefur líklega verið gert í þessu tilfelli. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1950. Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) er lengst til vinstri á myndinni en aðrir eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvert þeirra vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Hallgrímur Kristmundsson safn008
Á myndinni eru feðginin, frá vinstri: Anna Kristmundsdóttir, Kristmundur Jakobsson (d.1.5.1976) og Ingibjörg Kristmundsdóttir frá Árbakkabúð á Skagaströnd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 173
Hjónin Björk Axelsdóttir kennari og Jón S. Pálsson kennari og skólastjóri frá Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 842
Hressir ungir menn í snjó. Fjær: Jón Indriðason til vinstri og Sigubjörn Fanndal Þorvaldsson(d.13.8.2000) til hægri. Nær okkur: Stefán Ægir Lárusson til vinstri og Ingimar Oddsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það hefur líklega verið um eða upp úr 1980.
Héraðsskjalasafn A-Hún 255
Á myndinni eru hjónin Þórey Jónsdóttir (1868 - 1914) og Björn Árnason (1870 - 1932) frá Syðri-Ey með börn sín. Frá vinstri: Árni Björnsson (1898 - 1978), Þórey, Sigurlaug Björnsdóttir (1896 - 1923), Þórarinn Björnsson (1903 - 1967), Björn og Stefán Björnsson (1905 - 1998).
Héraðsskjalasafn A-Hún 455
Fermingarbörn vorið 1954 frá Hólaneskirkju með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Frá vinstri: Hjalti Skaftason, Guðrún Angantýsdóttir, Laufey Ólafsdóttir (Sísí), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d. 10.9.1997) og séra Pétur.
Hallgrímur Kristmundsson safn047
Mynd tekin í Listigarðinum á Akureyri líklega kringum 1950 af þeim félögum Guðmundi Jóhannessyni til vinstri og Hallgrími Kristmundssyni (d.9.10.1998) til hægri.
Jósef H Sigurðsson - safn 026
Á þessari mynd eru fimm af átta börnum Sigurðar Magnússonar (d.2.8.2002) og Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Eitt barnið dó í frumbernsku en á myndinni eru: aftast er Jósep Hjálmar fæddur 1961, í næstu röð eru Sigríður fædd 1963 og Magnús Elías fæddur 1963 (d.16.9.2018). Fremst eru svo Hjörtur Þórarinn fæddur 1965 (d. 9.5.2015) og Rósa Dröfn fædd 1967. Líklega hefur myndin verið tekin um jólin 1970.
Hallgrímur Kristmundsson safn060
Þetta prúðbúna fólk er, talið frá vinstri: Birgir Árnason (d.2.2.2005), Jóninna Pálsdóttir, Guðmunda Árnadóttir og Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996). Birgir og Guðmunda voru systkin, Jóninna var mágkona þeirra og Þóbjörn var eiginmaður Guðmundu. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Hjördís Sigurðardóttir - safn074
Fermingar- og frændsystkini á fermingardaginn sinn vorið 1975. Frá vinstri: Hafþór Smári Gylfason, Þórey Jónsdóttir og Guðrún Björg Berndsen.
Héraðsskjalasafn A-Hún 334
Þessi mynd var tekin á hlaðinu á Þverá í Hallárdal í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð). Samkvæmt merkingu Héraðsskjalasafnsins er fólkið á myndinni frá vinstri: Jónína, Árni, Svanlaug, Þórey og Björn en börnin eru ekki nefnd. Árni var Jónsson (d.6.10.1918) og Svanlaug kona hans var Björnsdóttir (d. 6.1.1916). þau voru foreldrar Björns (d.24.8.1932) og Þórey, sem var Jónsdóttir (d. 22.3.1914), var fyrri kona Björns. Björn og Þórey bjuggu fyrst á Þverá en seinna á Ytri-Ey þar sem Björn var hreppsstjóri og kennari um tíma.
Gunnhildur Þórmundsdóttir safn006
Þessi mynd var tekin á einhverju móti skáta frá Skagaströnd og Blönduósi kringum 1960. Eins og sjá má á fjölda skáta á myndinni var skátastarfið afar vinsælt meðal ungmenna á stöðunum tveimur. Standandi á myndinni eru, frá vinstri: Jón Ísberg (d. 24.6.2009) félagsforingi á Blönduósi, þrír óþekktir, Árni Ólafur Sigurðsson í köflóttri skyrtu, fimm óþekktir, Jóhann Björn Þórarinsson, Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016), Pétur Jóhannsson, Birgir Júlíusson, Hallbjörn Björnsson, Jóhann Ingibjörnsson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, óþekkt, Brynja Axelsdóttir, Frímann Lúðvíksson, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigríður Pálsdóttir, óþekkt og Þórður Jónsson (d. 25.12.2009) félagsforingi Sigurfara á Skagaströnd. Krjúpandi frá vinstri: Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004), Örn Berg Guðmundsson, þrír óþekktir, Helgi Bjarnason (d.1.3.2007), Sigurjón Ástmarsson, fjórir óþekktir, ?Sigurður Hjálmarsson?, óþekktur, Steindór Haraldsson (nær), óþekktur (fjær), sjö óþekktir skátar, Margrét Valdimarsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, óþekkt, Fjóla Jónsdóttir og Jóhanna Hallgrímsdóttir. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu skátunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd annað hvort með myndinni eða á netfangið:
[email protected]
.
Hjördís Sigurðardóttir - safn047
Systurnar Guðrún Björg Berndsen vinstra megin og Steinunn Berndsen til hægri. Myndin hefur sennilega verið tekin kringum 1968.
Hallgrímur Kristmundsson safn013
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af þessu prúðbúna fólki né hvenær. Í aftari röð frá vinstri: Guðrún Teitsdóttir (d. 17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi, Anna eða Ingibjörg Kristmundsdóttir og Árni Kristófersson (d.11.10.1982) í Árnesi. Fólkið í fremri röðinni er óþekkt en ef þú þekkir einhvern í þeirri röð vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 342
Þessi hjón? eru óþekkt en myndin kom til Héraðsskjalasafnsins frá Soffíu Lárusdóttur á Skagaströnd. Til hennar kom hún úr Vindhælisbúinu. Ef þú þekkir þetta fólk á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 910
Á myndinni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með óþekktri vinkonu sinni, líklega í Kúvíkum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1940.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 045
Systurnar Gugga, Lilla og Simba eða Guðrún Angantýsdóttir, Dagný Hannesdóttir og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997).
Héraðsskjalasafn A-Hún 262
Elín Rannveig Briem (d. 4.12.1937) og Stefán Jónsson (d. 1910) maður hennar, sem var verslunarstjóri á Sauðárkróki. Elín var skólastjóri eða forstöðukona Kvennaskólans á Ytri-Ey 1883 - 1895. Stofnaði Hússtjórnarskóla Reykjavíkur 1897 og rak hann til 1901 en þá flutti hún norður á Blönduós og tók við stjórn Kvennaskólans á Blönduósi, sem var arftaki skólans á Ytri-Ey. Elín skrifaði Kvennafræðarann sem fyrst kom út um áramótin 1888-1889. Bókin seldist svo vel að það þurfti að endurprenta hana fjórum sinnum. Elín hlaut hina Íslensku fálkaorðu 1921 fyrst kvenna ásamt Þórunni Jónassen.
Hallgrímur Kristmundsson safn058
Ekki er vitað hvaða prúðbúna fólk þetta er. Ágiskun er konan til vinstri sé Guðrún Helgadóttir (d. 15..4.1987), maðurinn með hattinn sé Kristmundur F. Jakobsson (d. 1.5.1976) og við hlið hans sé konan hans Jóhanna Árnadóttir (d.5.1.1941). Maðurinn með húfuna er óþekktur. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd til að leiðrétta ágiskunina ef hún er röng.
Jósef H Sigurðsson - safn 056
Bræðurnir Kolbeinn Vopni Sigurðsson og Jósep Hjálmar Sigurðsson. Kolbeinn fæddist 1972 en Jósep 1961. Myndin hefur líklega verið tekin á fermingardegi Jóseps vorið 1975.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 060
Stúkan Höfðaborg nr. 267 starfaði á Skagaströnd á árunum 1950 - 1954 með fundarhöldum og skemmtunum. 1952 fóru stúkufélagar í ferðalag til Akureyrar og þessi mynd var líklega tekin í þeirri ferð. Í öftustu röð eru frá vinstri: Ásalaug Hafsteinsdóttir, Vera ?? og Guðrún Sigurðardóttir. Næst aftast frá vinstri: Kristinn Ásgrímsson (d.21.12.1971), Arvid ??, óþekktur og Jóhann Bjarnason (d.14.9.2015). Næst fremsta röð frá vinstri: Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), óþekktur, Úlfar Björnsson og Jón Jónsson (d.9.7.1991). Fremsta röð frá vinstri: Hörður Ragnarsson, óþekktur og Hallbjörn Hjartarson. (Heimild: Byggðin undir Borginni bls 278-279)<br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 16
Fermingarsystkin vorið 2001 í Hólaneskirkju með presti sínum. Presturinn er séra Magnús Magnússon en fermingarbörnin eru, frá vinstri í aftari röð: Hanna Lísa Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Katrín Hólmsteinsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson. Í fremri röð frá vinstri: Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Linda ??, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ingi Ernstsson og Ásdís Adda Ólafsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 925
Myndin var líklega tekin í Fögrubrekku sem er stutt frá Gjögri. Konan lengst til hægri er Lilja Jónsdóttir sem bjó á Djúpuvík í áratugi. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega kringum 1940. Ef þú þekkir hinar konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 222
Jón Hansson (d. 22.4.1940) Syðri Þverá í Vesturhópi með konu sinni Guðrúnu Árnadóttur ásamt fjórum börnum þeirra. Ef þú veist eitthvað meira um þetta fólk, t.d. nöfn barnanna, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Héraðsskjalasafn A-Hún 263
Systurnar Steinunn Árnadóttir (d. 11.2.2006), Margrét Árnadóttir (d. 2003) og Áslaug Árnadóttir (d. 1996) frá Höfðahólum á Skagaströnd.
1
…
39
40
41
…
79
Leita í myndasafninu
Leita