Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Elínborg Jónsdóttir - safn 24
Þessi mynd var tekin við Másstaði í Vatnsdal. Í aftari röð eru mæðgurnar Halldóra Gestsdóttir (d. 17.9.1977) lengst til vinstri og Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) önnur frá vinstri. Hinar konurnar eru óþekktar en Elínborg átti þrjár hálfsystur samfeðra, einn hálfbróður og þess utan einn uppeldisbróður. Það er því freistandi að áætla að óþekktu konurnar séu þær systur og eiginkonur mannanna. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn045
Þessi spariklæddu frændsystkini eru, í fremri röð frá vinstri: Laufey Berndsen með Hendrik Berndsen í fanginu, Karl Berndsen (d.28.1.2020), Guðrún Björg Berndsen og Steinunn Berndsen. Í aftari röð frá vinstri: Guðrún Einarsdóttir, Ernst Berndsen og Adolf H. Berndsen. Myndin var líklega tekin 1967.
Jósef H Sigurðsson - safn 097
Þessi mynd var tekin á skírnardegi Sigríðar Sigurðardóttur árið 1963. Á myndinni er hún í fangi móður sinnar Dórótheu Hallgrímsdóttur (d.17.10.2004). Faðir Sigríðar, Sigurður Magnússon (d.2.8.2002), situr með bróður hennar Magnús Sigurðsson en annar bróðir hennar, Jósep Sigurðsson situr á milli foreldra sinna.
Árni Geir Ingvarsson - safn 916
Fólkið í fremri röðinni er frá vinstri: Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) Kúvíkum, Sigríður Halla Pétursdóttir Djúpuvík, óþekkt barn hennar og Emma Magnúsdóttir (d. júní 2000) Djúpavík. Aftari röð frá vinstri: Skúli Alexandersson (d. 23.5.2015) alþingismaður frá Kjós, Jón Pétursson Reykjarfirði, Matthías Pétursson Reykjarfirði og Þorsteinn Jónsson Gjögri.<br><br>
Þórunn Bernódusdóttir - safn 025
Þetta eru skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd í "hike" ferð nálægt Skagaströnd vorið 1963. Slíkar ferðir voru gjarnan farnar á vorin og stóðu yfirleitt nokkuð langan dag þó stöku sinnum væru þær tveggja daga með gistingu einhversstaðar yfir nótt. Skátarnir eru frá vinstri: Helgi Bjarnason (d.1.3.2007) í Holti, Steindór Haraldsson í Höfðakoti, Þórður Jónsson (d.25.12.2009) í Herðubreið félagsforingi Sigurfara , Kristinn Lúðvíksson (d.15.6.2016) í Steinholti, Ester Axelsdóttir (d. ?) frá Læk, Helga Guðmundsdóttir úr Skeifunni, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti, Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti, Sigurður Pálmason í Pálmalundi og Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka.
Héraðsskjalasafn A-Hún 460
Hjónin Elísabet Björnsdóttir (1891-1974) og Fritz Hendrik Berndsen (1895-ágúst 1966) kaupmaður í Reykjavík með dætur sínar þrjár. Dæturnar þrjár heita Birna, Steinunn og Björg Ólöf en ekki er vitað hver þeirra er hver. Birna (d.?) og Steinunn (d. 5.1.2002) eru látnar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 888
Þessir þrír prúðbúnu menn eru óþekktir. Myndin hefur sennilega verið tekin í eða við Djúpuvík einhverntíma kringum 1940. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn078
Stúlkurnar á myndinni skarta áramótahöttum þó ekki sé víst hvenær myndin var tekin. Frá vinstri: Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.?), Ásta Georgsdóttir og Guðrún Einarsdóttir. Myndin var líklega tekin í gömlu Tunnunni einhvertíma kringum 1970
Árni Geir Ingvarsson - safn 949
Þessi mynd var tekin í Listigarðinum á Akureyri 1956. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er lengst til vinstri en hinir mennirnir eru óþekktir. Ef þú þekki þá vinsamlega sendu okkur þá athuagsemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 063
Prúðbúnir fulltrúar frá Skagaströnd á vinabæjarmóti í Växjö í Svíþjóð í ágúst árið 2000. Frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Jensína Lýðsdóttir og Adolf H. Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 21
Á myndinni er Heiðar Elvan Friðriksson og móðurbróðir hans Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Líklega var myndin tekin á fermingardegi Heiðars vorið 1968.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 021
Þessar systur eru dætur Jóns Ólafs Ívarssonar (d.2912.2013) og Guðrúnar Sigurðardóttur. Systurnar eru frá vinstri: Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Myndin var tekin 1966.
Hallgrímur Kristmundsson safn061
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin af þessum systkinum en líklega hefur það verið einhverntíma upp úr 1940. Frá vinstri: Anna Kristmundsdóttir, Hallgrímur kristmundsson (d. 9.20.1998) og Ingibjörg Kristmundsdóttir.
Adolf H Berndsen - safn046
Sambýlisfólkið Rolf Árnason (d.3.6.2014) og Anna Ármannsdóttir lyfta glasi á góðri stund í Fellsborg.
Árni Geir Ingvarsson - safn 959
Sennilega voru þetta starfstúlkur í síldarmötuneytinu í Djúpuvík. Efst í hópnum trónir Ester Magnúsdóttir í Djúpuvík seinna í Hafnarfirði. Hinar stúlkurnar eru óþekktar. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina líklega einhverntíma kringum 1940. Ef þú þekkir einhverja stúlknanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 095
Hér er Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) með þremur barnabörnum. Standandi er Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir en sitjandi framan við hana er systir hennar Dagný Marín Sigmarsdóttir. Barnið í fangi Dagnýjar er sonardóttir hennar Bjarnlaug Dagný Vilbergsdóttir. Myndin var tekin 1968.
Árni Geir Ingvarsson - safn 897
Mennirnir á þessari mynd eru óþekktir. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær né hvar. Ef þú þekkir einhvern mannanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn125
Á þessari mynd frá því í júlí 1996 eru bræðurnir Ernst Berndsen og Karl Berndsen (d.28.1.2020) til vinstri og frændi þeirra Hendrik Berndsen til hægri staddir á Háagerðisvelli.
Elínborg Jónsdóttir - safn 6
Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007), kennari og fræðimaður frá Másstöðum í Vatnsdal og seinna kennari á Skagaströnd í 50 ár, er önnur frá vinstri á þessari mynd. Hinar konurnar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Myndin hefur líklega verið tekin við Másstaði.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 039
Námsmeyjar í Kvennaskólanum á Blönduósi einhverntíma kringum 1959 - 1960. Lengst til vinstri í fremri röð er Árný Hjaltadóttir á Steinnýjarstöðum og næst lengst til hægri í þeirri röð er Guðrún Guðbjörnsdóttir á Skagaströnd. Aðrar eru óþekktar en ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 924
Óþekktir menn á Djúpavík einhverntíma kringum 1940. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 907
Á myndinni er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) með sex vinkonum sínum. Ef dæma má af klæðnaði kvennanna hafa þær unnið í mötuneyti sem líklega var starfrækt á Djúpuvík vegna síldarverksmiðjunnar þar og söltunarplansins. Myndin er frá 1936 en þá var Herbert 16 ára gamall. Einhverjar kvennanna eru Ragna, Gróa og Gunna Jóns en ekki er vitað hverjar kvennanna þær eru. Hinar konurnar eru óþekktar. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn069
Hér eru börn Sigurðar Guðmonssonar (d.5.8.1981) og Hallbjargar Jónsdóttur (d.22.12.1987) frá Þórsmörk á ferðalagi á Ströndum ásamt mökum sínum sumarið 2004. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (ds.27.8.2018), Hjördís Sigurðardóttir, Anna Heiður Guðmundsdóttir, Hlíf Sigurðardóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Guðrún Sigurðardóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Aðalbjörg Sigurðardóttir (d.10.12.2015), Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Reynir Sigurðsson.
Hjördís Sigurðardóttir - safn051
Kirkjukór Hólaneskirkju. Fremst situr stjórnandinn Julian Hewlett. Í fremstu röð kórfélaga frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Brenda Wilkinson, Rosemary Hewlett, Dagný Hannesdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Í miðröð frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d. 1.1.1996), Ása Jóhannsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Ian Wilkinson. Aftasta röð frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Sigurður Bjarnason og Gylfi Sigurðsson. Myndin var líklega tekin kringum 1995.
Ólafur Bernódusson 682
Ritnefnd Húnavökuritsins kynnir Húnavökuna 2001 í júní það ár í Kántrýbæ. Frá vinstri: Páll Ingþór Kristinsson, Magnús B. Jónsson, Stefán Á. Jónsson (d.29.6.2009) ritstjóri og Ingibergur Guðmundsson. Lengst til hægri er Björgvin Þórhallsson sem var formaður USAH á þessum tíma en ekki í ritnefndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn 918
Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er lengst til vinstri á þessari mynd og Guðrún Árnadóttir (d.?) er á milli hans og óþekkts manns. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940 í Djúpavík. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sednu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 901
Fólkið á myndinni er óþekkt og líka hvar og hvenær hún var tekin. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók hana þannig að sennilega hefur hún verið tekin á Djúpuvík.
Hjördís Sigurðardóttir - safn109
Sigurvegarar í sínum flokkum á golfmóti á Háagerðisvelli 7. júlí 1996. Frá vinstri: Guðmundur Kristinsson, Sverrir Brynjar Berndsen, Dagný Sigmarsdóttir og Stefán Kristinsson (d.19.5.2011).
Dagný Sigmarsdóttir - safn 060
Viningslið í róðri á Sjómannadegi. Frá vinstri: Þórunn Þorláksdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir og Lilja Kristinsdóttir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Hallgrímur Kristmundsson safn059
Fjórir félagar í sparigallanum við innsiglingavörðuna á Hólanesinu. Húsið til hægri er Bjarmanes (Gamli skólinn). Mennirnir eru frá vinstri: Hallgrímur Kristmundsson (d. 9.10.1998), óþekktur, Birgir Árnason (d.2.2.2005) og Guðmundur Jóhannesson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 96
Þessi tvö börn eru úr stórum systkinahópi þeirra Þorbjörns Jónssonar (d.2.9.1986) og Aðalbjargar Sigurðardóttur (d.10.12.2015) sem bjuggu í Akurgerði (Hólabraut 9). Ekki er vitað hvað börnin heita.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 009
Myndin er af skólastúlkum í Höfðaskóla ásamt kennara sínum fyrir utan "Gamla skólann" eða Bjarmanes eins húsið heitir. Myndin var tekin einhverntíma á sjötta áratugnum - fyrir 1958 þegar Höfðaskóli fluttist í nýtt húsnæði. Í fremri röð frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi, Halla Björg Bernódusdóttir í Stórholti, Harpa Friðjónsdóttir í Lækjarhvammi, Anna Skaftadóttir í Dagsbrún, Aðalheiður Jónsdóttir í Hólanesi, Dagný Þórðardóttir og Helga Ólafsdóttir í Suður-Skála. Aftari röð frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Guðrún Kristinsdóttir Kálfshamri, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti, Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari í Röðulfelli, Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti, Magdalena Axelsdóttir (d.?) frá Læk og Bylgja Angantýsdóttir. Strákarnir lengst til hægri eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 846
Konan sem er með þessi börn af leikskólanum er óþekkt. Barnið sem skyggnir fyrir augu er Haukur Ragnarsson. Framan við hann í appelsínugulum buxum er Kristján Gunnar Rúnarsson en stelpan með rauða dúskinn í húfunni er Elísabet Eik Guðmundsdóttir. Aðrir eru óþekktir. Myndin var líklega tekin rétt fyrir 1980.
Elínborg Jónsdóttir - safn 20
Fjölskyldan á Másstöðum í Vatnsdal. Frá vinstri: Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977), Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Jón Kristmundur Jónsson (d.1947).
Árni Geir Ingvarsson - safn 915
Skólamynd Finnbogastaðaskóla tekin á Naustvíkurskörðum. Frá vinstri : drengur sem kallaður var Benni og var Sigurðsson frá Djúpuvík. Sörli Ágústsson frá Kjós. Herbert Ólafsson frá Gjögri. Þorsteinn Jónsson frá Gjögri. Helgi Jónsson frá Reykjarnesi. Svanur Jóhannsson frá Djúpuvík. og drengur lengst til hægri sem er óþekktur.<br>(Heimild: Valgeir Benediktsson eftir munnlegri heimild Skúla Alexanderssonar frá Kjós)<br>
Hjördís Sigurðardóttir - safn065
Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) situr á tröppunum heima hjá sér á Bankastræti 9 með þrjú elstu börnin sín. Næst honum situr Guðrún Björg Berndsen þá Steinunn Berndsen og lengst til hægri er Adolf H. Berndsen. Myndin var tekin 1965.
Dagný Sigmarsdóttir - safn 069
Hér situr Angantýr Jónsson (d.28.7.1983) milli tvíburadætra sinna. Guðrún Angantýsdóttir er til vinstri og Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) til hægri.
Hjördís Sigurðardóttir - safn054
Adolf H. Berndsen á fermingardaginn sinn ásamt séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) sem fermdi hann í Hólaneskirkju vorið 1973.
Jósef H Sigurðsson - safn 041
Á myndinni eru fjórir ungir, hraustir menn. Frá vinstri: Axel Gígjar Ásgeirsson, óþekktur, Ólafur Ásgeirsson og Vilhelm Jónsson. Ekki er vitað hvenær né hvar myndin var tekin en ef þú þekkir óþekkta strákinn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn062
Góðviðrisdagur á Höfðanum. Frá vinstri: Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Fríða Hafsteinsdóttir, Bergur Jón Þórðarson og Adolf J. Berndsen (d. 27.8.2018) . Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 27
Þrjár óþekktar, prúðbúnar konur. Myndina tók Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) en ekki er vitð hvenær né hvar. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 961
Drengurinn annar frá hægri og stúlkan eru með poka í höndunum og eru líklega að gæða sér á einhverju nammi. Aftan á þessari mynd stendur: "Lilja 5 ara Lyður 8 ára Þorsteinn Rúnar 12 ára". Á myndinni eru frá hægri: Lilja Elsa Sörladóttir, Lýður Sörlason og Þorsteinn Rúnar Sörlason. Þau voru börn Sörla Hjálmarssonar (d.1.3.1984) og Guðbjargar Pétursdóttur (d.26.7.1987) á Gjögri í Árneshreppi. Drengurinn lengst til vinstri er óþekktur. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Elínborg Jónsdóttir - safn 22
Hópmyndataka við Másstaði í Vatnsdal. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1940. Maðurinn með gráa skeggið, fremst miðri mynd, er Jón Kristmundur Jónsson (d.1947) bóndi á Másstöðum. Vinstra megin við hann er kona hans Halldóra Gestsdóttir (d.17.9.1977) og milli þeirra er dóttir þeirra Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Það eru þó líklega börn Jóns bónda af fyrra hjónabandi með afkomendur sína og tengdafólk. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 026
Stoltir með reiðhjólin sín, Reynir Sigurðsson frá Þórsmörk til vinstri og Bergur Jón Þórðarson í Herðubreið til hægri. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1960.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 005
Þessi skólamynd var tekin af stúlkum úr Höfðaskóla á tröppum "Gamla skólans" eða Bjarmaness eins og húsið heitir. Í fremri röð eru frá vinstri: Sigurbjörg Kristjánsdóttir frá Háagerði, Helga Ólafsdóttir í Suður-Skála, Pálfríður Benjamínsdóttir í Skálholti, Sigríður ?, Þórunn Bernódusdóttir í Stórholti og Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti. Aftari röð frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir frá Sólvangi, Halla Björg Bernódusdóttir í Stórholti, Ástríður Bertelsdóttir í Drangey, Dagný Þórðardóttir, Anna Skaftadóttir í Dagsbrún, Harpa Friðjónsdóttir í Lækjarhvammi og Aðalheiður Jónsdóttir í Hólanesi. Tröppurnar sem stúlkurnar sitja í voru austan á húsinu með forstofu sem sér í. Tröppurnar og forstofan hafa nú verið brotin niður og húsið sjálft verið sett í sitt upprunalega horf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma rétt fyrir 1958 þegar Höfðaskóli var færður í nýtt hús.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 046
Systurnar Hallbjörg Jónsdóttir til vinstri og Þórey Jónsdóttir til hægri með systur sína, Sigrúnu Jónsdóttur, í vagni framan við fjárhús og hlöðu afa síns í Þórsmörk sumarið 1966.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 017
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið um 1950. Á henni eru frá vinstri: óþekkt kona, Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991) (Elsa), Ernst Berndsen (d.21.8.1983) í Karlsskála, Anne (?Jóhannsdóttir?), Unnur G. Björnsdóttir (d.14.12.1990) í Þórshamri og Anna H. Aspar (d.1.9.1999) í Stórholti. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Adolf H Berndsen - safn108
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból á Skagaströnd í heimsókn á Háagerðisvelli til að kynna sér golfíþróttina með kennurunum sínum. Kennararanir eru aftast og þeir eru, frá vinstri: Helga Bergsdóttir, Fjóla Ævarsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Erna Hreinsdóttir og Sesselja Guðmundsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Elínborg Jónsdóttir - safn 14
Með þessari mynd stendur: "fjölskylda í lit". Því miður er ekki vitað um hvaða fjölskyldu er að ræða. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn110
Golfkonur á Háagerðisvelli í júlí 1996. Frá vinstri: Fríða Hafsteinsdóttir, Dagný Sigmarsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 31
Á myndinni eru hjónin Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.5.10.2019) og Ingvar Karl Sigtryggsson (d. 10.7.1988) með börnum sínum, tengdadætrum og barnabörnum. Aftasta röð frá vinstri: Kristín Jónsdóttir kona Ragnars með Jón Inga Ragnarsson í fanginu. Ragnar Smári Ingvarsson, Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Rúnar Þór Ingvarsson. Miðröð frá vinstri: Vala Rós Ingvarsdóttir, Gréta Ingvarsdóttir, Árni Geir Ingvarsson, óþekkt stúlka og Rósa Margrét Sigursteinsdóttir kona Rúnars. Fremst sitja hjónin en við hlið þeirra er Sigursteinn Ingvar Rúnarsson. Tilefni myndatökunnar er óþekkt en líklega hefur Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) tekið myndina.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 25
Þessi mynd var líklega tekin einhverntíma á árunum 1953-55. Á henni eru frá vinstri: Ólöf Jóhanna Smith (Lólý), Halla Björg Bernódusdóttir, tvö óþekkt börn og Þórunn Bernódusdóttir. Myndina tók Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 675
Greiðslustofa Vinnumálastofnunar var formlega opnuð á Skagaströnd í byrjun maí 2007. Við það tækifæri kom ráðherra félagsmála í heimsókn ásamt ýmsum framármönnum Vinnumálastofnunar. Á þessari mynd eru starfsfólk og nokkrir gestir sem voru á staðnum. Frá vinstri: Líney Árnadóttir forstöðumaður greiðslustofunnar, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri á Skagaströnd, Magnús Stefánsson félagsmálaráðherra, Þorbjörg Bjarnadóttir, óþekkt, Jensína Lýðsdóttir, óþekkt, Eygló Gunnarsdóttir, óþekkt, Eva Gunnarsdóttir, Kristín Leifsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Sex síðast töldu konurnar eru starfsstúlkur greiðslustofunnar.
Hjördís Sigurðardóttir - safn073
Myndin var tekin á fermingardegi Ásdísar Þórbjarnardóttur vorið 1975 í Hólaneskirkju (eldri). með henni á myndinni eru amma hennar Guðrún Teitsdóttir (d.17.6.1978) ljósmóðir í Árnesi og presturinn séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996).
Adolf H Berndsen - safn103
Ungir kylfingar utan við Kántrýbæ eftir að hafa verið á Háagerðisvelli við golfiðkun. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1998.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 043
Námsmeyjar í Kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 skemmta með söng og spili. Lengst til hægri, með gítar, er Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk. Næst henni er Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti en aðrar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Hjördís Sigurðardóttir - safn081
Á ferðalagi á Akureyri. Frá vinstri: Adolf J. Berndsen (d.27.82018), Sigríður Ólafsdóttir (Sissa), Helga Berndsen og Gunnlaugur Árnason (d.14.9.2016).
Guðrún Sigurðardóttir - safn 037
Námsmeyjar í kvennaskólanum á Blönduósi veturinn 1959 - 1960 á tröppunum á íþróttahúsinu - skólanum - á Blönduósi ásamt íþróttakennaranum Axel ?. Lengst til vinstri er Guðrún Sigurðardóttir frá Þórsmörk og standandi fjórða frá vinstri er Ólína Hafsteinsdóttir frá Reykholti. Aðrar eru óþekktar. Ef þú þekkir einhverja þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Sigurðardóttir - safn 067
Vinahópur á tröppunum á Bogabraut 14. Frá vinstri: Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Jón Ólafur Sigurjónsson og Jóney Gylfadóttir. Myndin var tekin kringum 1980.
Árni Geir Ingvarsson - safn 960
Á þessari mynd er Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007) lengst til vinstri. Hún sendi móður sinni, Þórunni Samsonardóttur (d.11.10.1986) myndina og skrifaði aftan á hana:" Mamma herna serðu fagra mind af okkur Stellu og ungum manni hún er nú ekki góð af mer því nefið á mer er utá annari kynn, frá Boggu. á engra fyrir hebba og pabba". Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
1
…
41
42
43
…
79
Leita í myndasafninu
Leita