Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson950
1. maí 2009 hélt María Magnúsdóttir (d.2.2.2009) upp á níræðisafmæli sitt í Fellsborg. Á myndinni er hún lengst til vinstri með þremur af fjórum börnum sínum. Næstur henni er Gunnar Jón Jónsson þá Fjóla Jónsdóttir og lengt til hægri er Magnús Björn Jónsson.
Ólafur Bernódusson949
1. maí 2009 hélt María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) upp á níræðisafmæli sitt í Fellsborg. Á myndinni er María með þremur af systkinum sínum í veislunni. Frá vinstri: Ásdís Magnúsdóttir, Björn Magnússon (d.13.11.2010), María og Hólmfríður Magnúsdóttir.
Ólafur Bernódusson931
Á vorin eru gjarnan einn til tveir útivistardagar í Höfðaskóla. Þá geta nemendurnir valið sér verkefni utan skólans. Eitt af verkefnunum í maílok 2008 var að ganga á Spákonufellið. Hópurinn á myndinni valdi það og myndin var tekin á Borgarhausnum 23. maí. Sitjandi frá vinstri: Stefán Velemir, Indriði Björnsson, Óskar Björnsson, Guðjón Páll Hafsteinsson, óþekkt, Viktor Örn Valdimarsson og Ingimar Guðjónsson. Standandi frá vinstri: Ágúst Ingi Ágústsson kennari, óþekkt, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Torfi Friðrik Magnason og Telma Dögg Bjarnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1120
Þrír hressir ungir menn við kvöldvöku á kántrýdögum í ágúst 2010. Mennirnir eru frá vinstri: Stefán Sveinsson, Indiði Hauksson og Ingvar Þór Jónsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn188
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var. Á henni eru frá vinstri í aftari röð: Lára Guðmundsdóttir, Pálfríður Bjarnadóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Aðalheiður Másdóttir. Í fremri röð frá vinstri: Lára Bylgja Guðmundsdóttir og Sigríður Gestsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 429
Þessi mynd var tekin 21. apríl 2013 sunnan við kirkjuna á svipuðum stað og áður stóð húsið Dagsbrún þar sem systkinin á myndinni áttu heima á sinni tíð. Frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Anna Skaftadóttir, Vilhjálmur Skaftason, Jónas Skaftason (d.17.11.2017) og Hjalti Skaftason.
Ólafur Bernódusson755
Rauða kross deildin á Skagaströnd hefur um árabil haft kaffisölu og fatamarkað 1. maí á hverju ári. Þessi mynd var tekin af rauða kross félögum og hjálparkokkum þeirra þann dag 2003 í húsi deildarinnar. Frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) sem heldur um dóttur sína Bergrósu Hafsteinsdóttur, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Alma Eik Sævarsdóttir, Pétur Eggertsson formaður deildarinnar í mörg ár, aftan við hann er Ívar Gylfason , Hrönn Árnadóttir, Sylvía Hrólfsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson sem styður á bak Guðjóns Páls Hafsteinssonar en aftan við Guðjón er Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006) og lengst til hægri er Brynjar Max Ólafsson.
Ólafur Bernódusson804
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Freydís Kristjánsdóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir og Dagný Dís Bessadóttir.
Hrefna Jóhannesdóttir007
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson829
Hópur fólks í hlíðum Spákonufells á niðurleið eftir að hafa gengið kvöldgöngu á Spákonufellið - Þórdísargöngu - 4. júlí 2009 á vegum Spákonuhofsins á Skagaströnd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn194
Fermingarbörn með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) í Hólaneskirkju eldri á fermingardegi sínum 29. apríl 1979. Í fremri röð eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir?, Björk Sveinsdóttir, séra Pétur, Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Margrét Ólafsdóttir. Í aftari röð eru frá vinstri: Ingólfur Sveinsson, Guðbjartur Sævarsson, Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015), Óli Axel Óskarsson, Valdimar Viggósson, Rögnvaldur Ottósson og Sigurður Jónsson.
Ólafur Bernódusson991
Þessar fjórar vinkonur voru á leið á skólaball þegar þessi mynd var tekin 7. maí 2010. Frá vinstri: Sigurlaug Máney Sæmundsen, Heba Líf Jónsdóttir, Sigubjörg Katla Valdimarsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Ólafur Bernódusson797
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og Ástríður Helga Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1055
Á myndinni er verið að klippa á borða til merkis um að flokkunarstöð Gámaþjónustunnar á Skagaströnd sé tekin í gagnið. Myndin var tekin 29. júlí 2010 af Adolf H. Berndsen oddvita til vinstri, Vilhelm B. Harðarsyni framkvæmdastjóra Gámaþjónustunnar á Skagaströnd í miðið og Magnúsi B. Jónssyni sveitarstjóra til hægri.
Ólafur Bernódusson807
Myndin af þessum prúðbúnu bekkjarfélögum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sonja Sif Albertsdóttir, Arnrún Guðjónsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Georg kristjánsson, Valgerður Ingvarsdóttir, Anna Margrét Sigurðardóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Viktor Már Einarsson og Jóhannes Hólmar Sigurpálsson.
Ólafur Bernódusson1004
Fólkið á myndinni var starfsfólk Rækjuvinnslunnar á Skagaströnd í desember 2000 þegar þessi mynd var tekin á Hótel Dagsbrún en þá var fólkið á námskeiði þar. Fólkið er frá vinstri: óþekkt, Kristín Björnsdóttir (nær), Sólveig Eiðsdóttir (fjær), Vilhjálmur Skaftason (nær), Þráinn Bessi Gunnarsson (fjær), óþekktur, Sveinþór Arason, Sigrún ?, Ólafur Guðmundssson, Berglind Karlsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Arnar Ólafur Viggósson, Cristina Silod Yecyec, Guðrún Magnúsdóttir, Ragnheiður Linda Kristjánsdóttir (nær), Sigurður Bjarnason (fjær), Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir (nær), Gylfi Sigurðsson (fjær), óþekkt, Róbert Jónasson, Heiðrún Níelsdóttir og Sigrún Lárusdóttir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson801
Myndin af þessum prúðbúnu drengjum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Dagur Freyr Róbertsson, Auðunn Árni Þrastarson, Pascal Gruenberger, Jóhann Almar Reynisson og Georg Kristjánsson.
Helga Berndsen 099
Bræðurnir frá Karlsskála. Adolf J. Berndsen til vinstri og Karl Berndsen (d.12.2.1995).
Ólafur Bernódusson1003
Þessar konur stofnuðu þrjú fyrirtæki undir sama þaki á Iðavöllum. Myndin var tekin þegar þær opnuðu fyrirtækin í desember 2000. Neðst situr Björk Sveinsdóttir sem opnaði tískufataverslun á loftinu, Birna Sveinsdóttir er í miðið en hún opnaði snyrtistofu í hluta jarðhæðarinnar og efst situr Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir sem opnaði hárgreiðslustofu í öðrum hluta jarðhæðarinnar.
Ólafur Bernódusson 731
Myndin var tekin þegar ráðafólk skálaði fyrir opnun hitaveitu á Skagaströnd 1. nóvember 2013 í dæluhúsinu á Skagaströnd. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson hreppsnefndarmaður, Jensína Lýðsdóttir hreppsnefndarmaður (fjær), Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK (nær), tveir óþekktir, Valgarður Hilmarsson sveitarstjórnarmaður á Blönduósi, Jón Ólafur Sigurjónsson hreppsnefndarmaður (fjær), Haukur Ásgeirsson raf- og hitaveiturstjóri (nær) og Adolf H. Berndsen oddviti hreppsnefndar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson798
Myndin af þessum prúðbúnu stúlkum var tekin á lokaballi unglinganna í Höfðaskóla í Fellsborg 30. maí 2016. Frá vinstri: Sunna Steingrímsdóttir, Arna Rún Arnarsdóttir, Snæfríður Dögg Guðmundsdóttir og Laufey Lind Ingibergsdóttir.
Ólafur Bernódusson833
Um miðjan ágúst 2009 var haldin kántrýhátíð á Skagaströnd. Þá var fólk hvatt til að vera með útimarkaði til að skreyta mannlífið á hátíðinni. Hjónin á Bogabraut 27 Guðrún og Ólafur tóku áskoruninni og settu upp matarmarkað í heimkeyrslunni hjá sér. Þar seldu þau hákarl, reyktan silung, bláber með rjóma, krækiber, heimagerðan krækiberjalíkjör, smákökur og heimagerða smörhnífa. Sem sagt "beint frá býli" í sólinni. Á myndinni er Guðrún Pálsdóttir lengst til vinstri með hjálparfólki sínu, tvö af barnabörnum sínum þau Ólaf Halldórsson og Guðrúnu Önnu Halldórsdóttur ásamt frænku þeirra Önnu Köru Eiríksdóttur lengst til hægri. þau þurftu svo að hætta sölunni eftir einn og hálfan tíma því þá var lagerinn að mestu uppseldur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1435
Sigursveit karla í kappróðri á sjómannadegi 2. júní 2012 með verðlaunapeninga sína. Frá vinstri: Ragnar Már Björnsson, Finnbogi Guðmundsson, Sæþór Ágústsson, Patrik Bjarnason, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Sævar Tryggvason sem líklega var stýrimaður sveitarinnar.
Vaktafélagar
Vaktfélagar um borð í Arnari HU 1 30. júlí 2004. Frá vinstri: Vilhjálmur Jónsson, Tryggvi Hlynsson, Guðni Már Lýðsson, Kristján Karlsson, Jónas Þorvaldsson, Hermann Guðjónsson, Guðlaugur Hjaltason og Grétar Smári Hallbjörnsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 42
Sumarið 1987 fóru starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf saman í ferðalag til Austurríkis og Þýskalands. Þessi mynd var tekin á einhverjum óþekktum áningarstað af þeim Rögnvaldi Ottóssyni til vinstri, Þórarni Grétarssyni í miðið og Rúnari Jósefssyni til hægri.
Fisk Seafood - safn 262
Starfsfólk Rækjuvinnslun hf á ferðalagi til að heimsækja hausaþurrkunar á Laugum og Norðanfisk á Húsavík. Á myndinni er hluti starfsfólksins að skála á óþekktum veitingastað. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Guðmundur Reynir Kristinsson, Jón Heiðar Jónsson, tvær óþekktar konur, Sólveig Eiðsdóttir, Þórarinn Grétarsson, Magnús Guðmannsson og Gígja Heiðrún Óskarsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var en en líklega var það kringum 2000.
María Magnúsdóttir - safn 347
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) í 90 ára afmælinu sínu 1. maí 2009 með þremur af fjórum börnum sínum. María er lengst til vinstri en næstur henni er Gunnar Jón Jónsson þá Fjóla Jónsdóttir og lengst til hægri er Magnús B. Jónsson. Á myndina vantar yngsta son Maríu, Ragnar Hlyn Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 670
Myndin var tekin á jólastund á hjúkrunarheimilinu Sæborg 29. desember 2014. Frá vinstri: séra Bryndís Valbjörnsdóttir, Jökulrós Grímsdóttir forstöðumaður heimilisins, Jóhann Jónasdóttir heimiliskona og Gestur Jónsson (d.27.1.2015) heimilismaður.
Ólafur Bernódusson825
Hjónin Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson í göngutúr með börnunum sínum 20. júní 2009. Páll Halldórsson er lengst til vinstri en Ólafur Halldórsson og Guðrún Anna Halldórsdóttir eru milli foreldra sinna.
Ólafur Bernódusson911
Í byrjun nóvember 2007 fóru starfsmenn Hólness hf í ferð til London og eyddu þar nokkrum dögum saman. Einn viðkomustaður margra í borginni var The London Eye - stóra Parísarhjólið sem þar er. Á myndinni eru inni í einu "egginu", frá vinstri: Ágúst Jónsson, Magnús Guðmannsson, Gylfi Sigurðsson, Erna Högnadóttir, Guðrún Pálsdóttir, Stefán Þór Árnason, Rósa Einarsdóttir, Kristín Björnsdóttir, Karitas Pálsdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Cristina Silod Yecyec (sitjandi), Erla Jónsdóttir (fjær) Juanita Siold Boncales (nær), Guðrún Guðbjörnsdóttir og Jóhann Ásgeirsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 564
Systkinin Geir Arnarsson og Þórlaug Svava Arnarsdóttir á framboðsfundi í Fellsborg 28. apríl 2014.
Helga Berndsen 138
Þessi jólamynd var líklega tekin um 1968. Á henni eru frændsystkinin Guðrún Einarsdóttir til vinstri og svo systkinin Karl Berndsen í miðið og Laufey Berndsen til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1353
Myndin var tekin í Skagabúð 27. maí 2012 en tilefni veislunnar á myndinni er ekki þekkt. Á henni eru systur með mökum sínum. Frá vinstri: Guðlaug Grétarsdóttir, Hjalti Viðar Reynisson, Auður Sandra Grétarsdóttir og Óli Hjörvar Kristmundsson.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn098
Þessi mynd var tekin í október 1986. Á henni eru hjónin Karitas Laufey Ólafsdóttir og Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988), sem sitja fremst, með börnum sínum, tengdabörnum og barnabörnum. Frá vinstri: Kristín Jónsdóttir með Jón Inga Ragnarsson í fanginu, Vala Rós Ingvarsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Gréta Ingvarsdóttir, Þórarinn Brynjar Ingvarsson, Árni Geir Ingvarsson, Rúnar Ingvarsson (fjær), Sigursteinn Ingvar Rúnarsson (nær), Perla Rúnarsdóttir og Rósa Sigursteinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1143
Það liggur vel á fólkinu á myndinni en ekki er vitað hvenær hún var tekin. Á henni eru systurnar Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008) til vinstri og Ólöf Jóhanna Smith til hægri með móðurbróður sinn, Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) á milli sín.
María Magnúsdóttir - safn 361
Róbert Freyr Gunnarsson 1. maí 2009 í 90 ára afmæli ömmu sinnar Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016).
Ólafur Bernódusson937
Myndin var tekin af krökkunum í 9. bekk á litlu jólum 18.12.2008. Frá vinstri: Unnar Leví Sigurbjörnsson, Telma Dögg Bjarnadóttir, Stefán Velemir, Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir (nær), Viktor Örn Valdimarsson (fjær), Elías Gunnar Hafþórsson, Guðjón Páll Hafsteinsson, Torfi Friðrik Magnason, Ellen Lind Sigurjónsdóttir og Tanja Rán Einarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1427
Þrír heiðursmenn einbeittir að fylgjast með einhverju atriði á sviðinu í Fellsborg 19. janúar 2012. Frá vinstri: Trostan Agnarsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Hafþór Smári Gylfason.
Helga Berndsen 120
Myndin var líklega tekin 1966. Á henni eru barnabörn hjónanna á Karlsskála, Ernst Berndsen (d.21.8.1983) og Guðrúnar Helgadóttur (d.15.4.1987). Í aftari röð eru frá vinstri: Laufey Berndsen sem situr með Fritz Hendrik Berndsen, Guðrún Einarsdóttir, Ernst Berndsen og Adolf H. Berndsen. Fremri röð frá vinstri: Karl Berndsen, Guðrún Björg Berndsen og Steinunn Berndsen.
Ólafur Bernódusson764
Vorið 2004 héldu samsýningu á verkum sinum þau Slavko Velemir og Steinunn Steinþórsdóttir í íþróttahúsinu á Skagaströnd. Þar sýndi Steinunn glerlistaverk en Slavko var með verk úr járni. Á myndinni eru þau með eitt af verkum Steinunnar á milli sín.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 459
Myndin var tekin í jólamessu í Hofskirkju á jóladag 2013. Séra Bryndís Valbjörnsdóttir er fyrir altarinu en kirkjukór Hólaneskirkju syngur við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur. Í kórnum eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Guðlaug Grétarsdóttir, Helga Dögg jónsdóttir, Sigurður Bjarnason, Árdís Indriðadóttir, Ólafur Bernódusson (fjær), Herdís Jakobsdóttir (nær), Dagný Hannesdóttir, Hafþór Gylfason, Þórarinn Grétarsson (fjær), Ragnhildur Ragnarsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn205
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvert tilefnið var. Fólkið var allt sóknarbörn séra Péturs Þ. Ingjaldssonar (d.1.6.1996) sem situr til vinstri í efri röð. Við hlið hans er eiginkona hans, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og síðan koma hjónin á Hofi, Aðalheiður Magnúsdóttir (d.?) og Hilmar Árnason (d.16.3.1988). Framan við þau krjúpa hjónin Alda Friðgeirsdóttir og Sigurður Pálsson sem bjuggu lengi í Króksseli.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1352
Feðgarnir Albert Ingi Haraldsson til vinstri og Haraldur Max Árnason til hægri í lok maí 2012.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1190
Gunnar Albertsson vélstjóri og Guðrún Guðmundsdóttir verslunarkona fyrir utan heimili Gunnars að Oddagötu 5, 22. júlí 2010.
Ólafur Bernódusson1002
Þessar konur stofnuðu þrjú fyrirtæki undir sama þaki á Iðavöllum en myndin var tekin þegar þær opnuðu fyrirtækin í desember 2000. Til vinstri er Birna Sveinsdóttir snyrtifræðingur sem var með snyrtistofu. Í miðið er Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir hárgreiðlukona sem var að opna hárgreiðslustofu og til hægri er Björk Sveinsdóttir sem opnaði tískuvöruverslun á loftinu á Iðavöllum.
Ólafur Bernódusson978
Stjórnarfólk í Sögufélagi Húnvetninga á fundi í Húnaveri 17. mars 2013. Standandi frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Ágúst Sigurðsson, Ingi Heiðmar Jónsson og Gunnlaugur Sigmarsson. Sitjandi frá vinstri: Gréta Björnsdóttir, Björk Axelsdóttir og Valgerður Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1429
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Á myndinni eru frá vinstri: Trostan Agnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Guðbjörg Ólafsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stjórnandi kórsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 416
Vinirnir Adolf J. Berndsen (d. 27.8.2018) til vinstri og Þór Arason (d.11.8.2018) til hægri. Myndin af þeim félögum var tekin 27. ágúst 2013.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1144
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af mæðgunum Guðrúnu Elvan Friðriksdóttur (d.14.2.2008) til vinstri, Björgu Ólafsdóttur (d.1.3.2007) í miðið og Ólöfu Jóhönnu Smith til hægri en það er létt yfir þeim mæðgum á myndinni eins og endranær.
Ólafur Bernódusson 723
Myndin er af atriði í leiksýningunni "Síldin kemur og síldin fer", sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið leikárið 1986 - 1987. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Guðmunda Ólafsdóttir, Óli Kristmundsson, Þórey Jónsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Kristín Jónsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, Steindór Haraldsson, Sigrún Jónsdóttir, Rut Jónasdóttir, Herborg Þorláksdóttir og Vigdís Viggósdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 544
Í mars 2014 fór starfsfólk Vinnumálastofnunar til Glasgow í Skotlandi í vinnu- og árshátíðarferð. Starfsfólk greiðslustofunnar á Skagaströnd fór að sjálfsögðu með í ferðina, margir með mökum sínum. Á myndinni, sem tekin var í Glasgow, eru frá vinstri: Guðrún Magnúsdóttir, Eygló Kristín Gunnarsdóttir, Inga Rós Sævarsdóttir, Kolbrún Ósk Eðvarðsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Sigurjón Ingólfsson, Eva Dögg Bergþórsdóttir og óþekktur.
Séra Pétur og Dómhildur - safn191
Þessi mynd var tekin í Höskuldsstaðakirkju af fermingarbörnum vorið 1973 með séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996) sem fermdi þau. Fermingarbörnin er frá vinstri: Ólafur Guðmannsson, Jón Hallur Pétursson, óþekkt stúlka og Ragnheiður Magnúsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1032
Hann er stórsnjó boltinn sem krakkarnir á myndinni gerðu. Krakkarnir eru frá vinstri: Elín Ósk Björnsdóttir, Benóný Bergmann Sæmundsen, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir og Victoría Hólmgeirsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 15
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en hún sýnir fólk fylgjast með einhverjum skemmtiatriðum á sjómannadegi. Frá vinstri: óþekkt barn, Valdimar Björnsson, Oddur Valdimarsson (fjær), Hjördís Sigurðardóttir (nær), Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og óþekkt stúlka.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1141
Á myndinni eru frá vinstri: Ellen Hekla Karen Andersen og Torfi Guðmundsson sem situr þarna undir konu sinni, hjónin Guðmundur Torfason (d.3.12.1991) og Þórhildur Jakobsdóttir (d.19.8.1996) en þau voru foreldrar Torfa og lengst til hægri er Magga ? sem var blind kona sem fylgdi þeim Guðmundi og Þórhildi. Þórhildur var oft kennd við Árbakka en þar býr í dag (2018) Jakob Guðmundsson sonur hennar og Guðmundur sem bróðir Torfa.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1431
Myndin var tekin á skemmtikvöldi kirkjukórs Hólaneskirkju í Kántrýbæ 21. janúar 2012. Þá hittust félagar í kórnum eina kvöldstund með mökum sínum, borðuðu góðan mat og skemmtu sér saman. Fremst á myndinni sitja, frá vinstri, systkinin Guðrún Sigurðardóttir, Gylfi Sigurðsson og Hjördís Sigurðardóttir. Standandi í fremri röð frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Herdís Jakobsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stjórnandi kórsins, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, Dagný Hannesdóttir og Þorbjörg Bjarnadóttir. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Sigurjón Guðbjartsson, Trostan Agnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Lilja Ingólfsdóttir, Ólafur Bernódusson, Bára Þorvaldsdóttir, Hafþór Smári Gylfason og Sigríður Stefánsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1139
Á þessari mynd frá 17. júlí 2011 er Guðmunda Árnadóttir (d. 26.1.2017) (Gumma á Flankastöðum) fyrir utan æskuheimili sitt, Árnes, ásamt börnum sínum. Frá vinstri: Ásdís Þórbjarnardóttir, Guðmunda, Guðrún Þórbjarnardóttir og Birgir Þórbjarnarson.
María Magnúsdóttir - safn 376
Myndin var tekin 1. maí 2009 í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) af ömmustráknum hennar Atla Þórssyni með dætrum sínum. Frá vinstri á myndinni eru: Sunna Lind Bang, Birta Líf Atladóttir (aftar), Sigrún Fjóla Atladóttir (framar) og Atli Þórsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1377
Bræðurnir Þórarinn Brynjar, Ragnar Smári og Árni Geir Ingvarssynir 19. ágúst 2012, talið frá vinstri.
Guðmundur Guðnason031
Guðmundur Kr. Guðnason, f. 11.3.1923 og d. 20.11.1988, póstur og ljósmyndari á heimaslóðum sínum í Laxárdal eftir að þar fór allt í eyði. Hann fæddist í Kárahlíð en ólst upp þar og á bæjunum Vesturá og Hvammi sem allt voru bæir í Laxárdalnum. Myndin var tekin í bæjarrústunum í Kárahlíð þar sem fjórir stakir steinar standa upp úr jörðinni. Þarna var leiksvæði Guðmundar og þriggja bræðra hans og eignuðu þeir sér steinana eftir aldri. Guðmundur stendur við minnsta steininn, sem var hans, því hann var yngstur þeirra bræðra.
1
…
47
48
49
…
79
Leita í myndasafninu
Leita