Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason031
Guðmundur Kr. Guðnason, f. 11.3.1923 og d. 20.11.1988, póstur og ljósmyndari á heimaslóðum sínum í Laxárdal eftir að þar fór allt í eyði. Hann fæddist í Kárahlíð en ólst upp þar og á bæjunum Vesturá og Hvammi sem allt voru bæir í Laxárdalnum. Myndin var tekin í bæjarrústunum í Kárahlíð þar sem fjórir stakir steinar standa upp úr jörðinni. Þarna var leiksvæði Guðmundar og þriggja bræðra hans og eignuðu þeir sér steinana eftir aldri. Guðmundur stendur við minnsta steininn, sem var hans, því hann var yngstur þeirra bræðra.
Guðmundur Guðnason061
Systurnar þórdís Lárusdóttir til vinstri og Sigríður Lárusdóttir til hægri. Báðar frá Grund.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 597
Á myndinni, frá 7. nóvember 2014, er lið Skagastrandar í spurningakeppninni Útsvar í sjónvarpssal. Ekki fer miklum sögum af árangri liðsins í keppninni en fulltrúarnir eru frá vinstri: Árni Friðriksson, Eva Dögg Björgvinsdóttir og Trostan Agnarsson.
Guðmundur Guðnason793
Andrés Baldursson, sem ólst upp í Þórshamri. Líklega er myndin tekin á fermingardaginn hans 1964.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 465
Þessi mynd var tekin af hópnum sem var á jólaballi í Fellsborg 28. desember 2013. Á sviðinu eru tónlistarmennirnir frá vinstri: Hjörtur Þór Guðbjartsson, Fannar Viggósson og Viggó Brynjólfsson.
Guðmundur Guðnason911
Eygló Guðbjartsdóttir. Myndin tekin ca 1965.
Axel Jóhann Hallgrímsson 6
Í tunnuboðhlaupi verða menn að sprengja blöðru í tunnunni með því að blása í hana. Ekki er vitað hver maðurinn í tunnunni er en Jón Ingi Ingvarsson situr á hækjum sér og fylgist með. Aftan við Jón í dökkri kápu með gleraugu er Hallbjörg Jónsdóttir í Þórsmörk. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var líklega tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Axel Jóhann Hallgrímsson 126
Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvert tilefnið var. Hún var tekin 14. mars 1992 og á henni eru frá vinstri: tvö óþekkt, Hjörtur Guðmundsson, Jens Jónsson, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) og Vigdís Ósk Ómarsdóttir.
Hrefna Jóhannesdóttir024
Í dánabúi Hrefnu Jóhannesdóttur frá Garði, sem lést 9. nóvember 2011 á hundraðasta og fyrsta aldursári, fannst 31 mynd af fólki. Fólkið á myndunum er nánast allt óþekkt enda myndirnar flestar mjög gamlar. Þær eru settar hér á vef ljósmyndasafnsins sem heimild og í þeirri von að einhver þekki einhvern á þeim. Þessi mynd er ein þessara mynda. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 524
Kaffi á kirkjuloftinu 9. mars 2014. Við borðið vinstra megin eru frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, óþekkt, Magnús B. Jónsson og hjá þeim stendur Lárus Ægir Guðmundsson. Við borðið nær frá vinstri: Svava Kristinsdóttir, Pétur Eggertsson, Sylvía Hrólfsdóttir, Sigurður Ingimarsson, Björn Ingi Óskarsson, Guðrún Angantýsdóttir, Árdís Indriðadóttir og Dagný Hannesdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1180
Krakkar úr bæjarvinnunni að fara að mála gangbrautir á götur Skagastrandar um miðjan júlí 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen, Ívan Árni Róbertsson og Sigurlaug Máney Sæmundssen.
Guðmundur Guðnason735
Valgarður Jökulsson frá Núpi í Laxárdal.
Fisk Seafood - safn 256
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar hf í kynnisferð m.a. í Norðanfiski á Húsavík. Á myndinni eru frá vinstri: Rósa B. Einarsdóttir, Baldvin Hjaltason, Cristina Silod Yecyec, Guðmundur Reynir Kristinsson, Þórarinn Grétarsson, óþekktur, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir og lengst til hægri er Magnús Guðmannsson. Ekki vitað hvenær myndin var teken líklega var það kringum 2000.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 420
Fjórar vinkonur á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Heba Líf Jónsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Guðmundur Guðnason743
<P>Frá vinstri, efri röð : Valgarður Jökulsson, Halla Jökulsdóttir, Kristján Jökulsson, Ingvar Ástmarsson. Fyrir framan Valgarð er Ástmar Kári Ástmarsson, næstur er Andrés Guðmundsson, sonur Bjargar frá Balaskarði og svo er Davíð Davíðsson, sumarbarn á Núpi, bróðursonur Gerðu húsmóður þar. Fremstur er svo Jón Tryggvi Jökulsson.</P>
Guðmundur Guðnason015
Hjónin Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) og Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) með dætur sínar Dagný Sigmarsdóttur (í fangi móður sinnar) og Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir. Myndin er sennilega tekin 1964.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 522
Hluti kirkjukórs Hólaneskirkju 9. mars 2014. Ekki er vitað um til efni myndatökunnar. Karlarnir eru frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sigurður Bjarnason. Konurnar frá vinstri: Helga Gunnarsdóttir, Heiðrún Tryggvadóttir og Guðbjörg Ólafsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 37
Hjónin Slavko Velemir og Birna Sveinsdóttir í Kántrýbæ á sjómannadaginn 2008. Til hægri er Óskar Þór Kristinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 512
Nokkur hópur listakvenna hélt samsýningu í sundlauginni á Skagaströnd í ágúst 2014. Á myndinni eru tveir gestir sýningarinnar með eina af listakonunum á milli sín. Frá vinstri : Steindór Haraldsson, Hrafnhildur Sigurðardóttir og Ólafur Bernódusson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 572
Nemendur 9. bekkjar Höfðaskóla gera útitilraun í sambandi við viðnám og mótstöðu framan við íþróttahúsið með kennara sínum Ólafi Bernódussyni í október 2014. Frá vinstri: Jóna Margrét Sigurðardóttir, óþekkt, Ólafur Bernódusson kennari (fjær), óþekktur (nær), Jóhannes Sigurpálsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Sonja Albertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Elín Ósk Björnsdóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Arnrún Guðjónsdóttir.
Guðmundur Guðnason854
Þetta er Júlíana Pétursdóttir, bróðurdóttir Rósu Pétursdóttur (d.10.10.1998) í Miðnesi.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<P>Tilefni þessarar myndatöku er óþekkt en myndin var tekin 1968 af þeim Bernódusi Ólafssyni (d. 18.9.1996) í Stórholti (Bankastræti 3) til vinstri og Ingvari Jónssyni (d. 29.7.1978) úr Norður-Skála til hægri. </P>
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Sigríður Ágústsdóttir frá Blálandi
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd er Rúnar Kristjánsson, einn af smiðunum sem komu að verkinu.
María Magnúsdóttir - safn 360
Systkinin frá Syðra-Hóli í 90 ára afmæli Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) 1.maí 2009. Systkinin eru frá vinstri: Ásdís Magnúsdóttir, Björn Magnússon (d.13.11.2010), María og Hólmfríður Magnúsdóttir.
Guðmundur Guðnason861
Fermingarbörn 1961 í Hólaneskirkju. Aftasta röð frá vinstri: Jóhann Björn (Baddi) Þórarinsson, Jóhann Ingibjörnsson, Páll Jónsson (d.19.7.1979) organisti, Búi Birgisson (d.18.9.2009), Sigurður Bjarnason og Ísleifur Haraldsson. Miðröð frá vinstri: Hrefna Júlía Viggósdóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Sigrún Kristófersdóttir og Pétur Jóhannsson. Fremsta röð frá vinstri: Steinunn Margrét Ellertsdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir og Fjóla Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 683
Lilja Ingólfsdóttir til vinstri og hjónin Þórunn Bernódusdóttir og Guðmundur J. Björnsson fylgjast með hátíðahöldum vegna opnunar göngubrúar yfir Hrafná 23. júní 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 573
Myndin var tekin 14. desember 2014 í Hólaneskirkju af, frá vinstri: séra Bryndís Valbjörnsdóttir, Kristín Árnadóttir djákni og séra Dalla Þórðardóttir prófastur.
Guðmundur Guðnason244
Bergþóra Huld Birgisdóttir og Ingvar Jónsson á fermingardaginn sinn í Hólaneskirkju (eldri).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 564
Systkinin Geir Arnarsson og Þórlaug Svava Arnarsdóttir á framboðsfundi í Fellsborg 28. apríl 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1234
Þessi mynd var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 2. desember 2012 af barnakór sem var að fara að syngja. Í fremstu röð frá vinstri: Þórunn Hólmgeirsdóttir, Sóley Sif Jónsdóttir, Ísabella Líf Tryggvadóttir og Arnrún Hildur Hrólfsdóttir. Í miðröð frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Andri Már Gunnarsson, Gabríel Goði Tryggvason og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Karen/Rakel Elvarsdóttir, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ingólfur Eðvald Björnsson og Ólafur Halldórsson.
Ólafur Bernódusson990
Hjónin Þórunn Bernódusdóttir og Guðmundur Jón Björnsson. Myndin var tekin 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 606
Myndin var tekin á sjómannadegi 2014 hjá Hólaneskirkju. Frá vinstri eru vinirnir Viggó Brynjólfsson, Kristín Ágústsdóttir og Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 653
Hjónin Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson syngja á uppákomu í Samkaupum á Skagaströnd 4. desember 2014.
Guðmundur Guðnason025
Fermingarbörn 1960 í Hólaneskirkju ásamt Séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru frá vinstri í efri röð: Stefán Ingólfsson (d. 21.10.2004), Ómar Þorbjörnsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Helgi Jónatansson (d.22.8.2020). Fremri röð frá vinstri: Dagný Hannesdóttir, Magdalena Axelsdóttir (d.3.7.2015), Pálfríður Benjamínsdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir.
Guðmundur Guðnason701
<P>Kirkjukór Hólaneskirkju. Í öftustu röð eru, frá vinstri: Georg Hjartarson (d.13.9.2001), Sævar Bjarnason, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992), Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989). Í miðröðinni eru, frá vinstri: Edda Pálsdóttir (d. 8.4.2016), Elísabet Árnadóttir, Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002), Elísabet Frímannsdóttir (d.1.9.1990) og Aðalbjörg Hafsteinsdóttir. Í fremstu röðinni eru, frá vinstri: Hjördís Bára Þorvaldsdóttir, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) organisti og stjórnandi, Sigríður Guðlaugsdóttir (d.25.3.1996), Áslaug Hafsteinsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.</P>
Axel Jóhann Hallgrímsson 81
Sigursveit í kappróðri á sjómannadegi með verðlaunapeninga í barminum og bikarinn í höndum. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin. Aftari röð frá vinstri: Jón Gunnar Jósefsson, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Rúnar Jósefsson og Geir Gígja? Fremri röð frá vinstri: Ragnar Högnason, Eiður Hilmarsson og Finnur Kristinsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1459
Þessi mynd var tekin 1. febrúar 2012 að loknum fundi í Fellsborg um hitaveitumál. Frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson sveitarstjórnarmaður, óþekktur, Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri Rarik, Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Jensína Lýðsdóttir sveitarstjórnarkona, Haukur Ásgeirsson rafveitu- og hitaveitustjóri á Blönduósi, Péturína Jakobsdóttir sveitarstjórnarkona, óþekktur, Halldór Gunnar Ólafsson sveitarstjórnarmaður, Pétur E. Þórðarson aðstoðarforstjóri Rarik, Ólafur Hilmar Sverrisson framkvæmdastjóri fjármálasviðs Rarik og Adolf H. Berndsen oddviti sveitarstjórnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 627
Myndin var tekin á árlegum jólamarkaði kvenfélagsins Heklu í Skagabúð 30. nóvember 2014. Auk ýmiss konar söluvarnings sem stendur þar til boða er selt kaffi og með því þennan dag, sem er afar vinsælt. Á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson.
Guðmundur Guðnason695
Konan til vinstri er óþekkt en konan til hægri er Dórothea Hallgrímsdóttir frá Hólanesi og barnið er Hjörtur Sigurðsson sonur hennar
Guðmundur Guðnason218
Myndin var tekin 1963. Andrés Árni Baldursson er til hægri á myndinni en hinn drengurinn er Sigurður Ólason frá Ólafsfirði sem var barnabarn Sigurðar Sölvasonar kaupmanns á Skagaströnd
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 674
Brennuvargar leggja síðustu hönd á áramótabrennu kvöldsins 31. desember 2014. Efst trónir Stefán Sveinsson og neðan við hann eru Páll Halldórsson, Birkir Gunnarsson og þrír óþekktir. Maðurinn í bláa gallanum til vinstri er líka óþekktur
Axel Jóhann Hallgrímsson 14
Myndin var tekin á sjómannadegi einhverntíma á sjöunda áratugnum. Á henni taka Sævar Hallgrímsson, til vinstri, og óþekktur maður þátt í leik sem felst í því að ná í epli með tönnunum á botni þvottabala sem er fullur af köldu vatni. Áhorfendur skemmta sér vel yfir andköfum keppendanna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 580
Þrír Skagstrendingar á spjalli utan við sjoppuna 14. maí 2014. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Steindór R. Haraldsson og Vilhelm Björn Harðarson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 483
Guðmundur Rúnar Kristjánsson situr í stafni báts síns á kyrrlátum degi í höfninni á Skagaströnd. Miðskips situr dóttir Rúnars, Guðrún Ásta en maðurinn í skutnum er óþekktur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason308
Guðmundur Rúnar Kristjánsson frá Grund til vinstri og Sigurður Bjarnason frá Bjargi til hægri. Myndin var tekin 1974 í Húsafelli við hina frægu kvíahellu þar.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1422
Mæðginin Hafþór Smári Gylfason og Guðrún Guðbjörnsdóttir á sjómannadegi 2. júní 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 401
Þessir ungu menn gera sér grein fyrir mikilvægi þess að vera með hjálm á reiðhjóli. Strákarnir eru frá vinstri: Sindri Freyr Björnsson, Magnús Sólberg Baldursson, Ólafur Halldórsson og Ingólfur Eðvald Björnsson. Myndin var tekin 7. ágúst 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 419
Ungir menn á þorrablóti í Fellsborg 2. febrúar 2013. Frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Ernst Guðni Hólmgeirsson, Sæþór Bragi Ágústsson og Sigurjón Elí Eiríksson.
Ólafur Bernódusson930
Bræðurnir Rúnar Jósefsson til vinstri og Stefán Jósefsson til hægri hafa skotið marga refi gegnum tíðina. Þessi sem Rúnar heldur á 16. maí 2008 var merkilegur fyrir þær sakir að hann var þrífættur því hann vantaði annan framfótinn. Fótinn hafði hann misst, einhverra hluta vegna, töluvert fyrr því þar sem hann átti að vera var bara vel gróið ör.
Axel Jóhann Hallgrímsson 99
Fermingarbörn ársins 1971 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1991 með því að eiga saman góða kvöldstund í kaffistofu Hólaness hf. Á myndinni er hópurinn ásamt kennara sínum til margra ára, Elínborgu Jónsdóttur (d. 7.1.2007). Á myndinni eru frá vinstri: Inga Stefánsdóttir? (nær), Vilhelm Þórarinsson (fjær), Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008), Guðjón Guðjónsson, Elínborg, Guðmundur Viðar Guðmundsson, Unnur Gunnarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Sesselja Guðmundsdóttir og Málfríður Jóhannsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 563
Adolf H. Berndsen og Péturína Laufey Jakobsdóttir á framboðsfundi í Fellsborg 28. apríl 2014.
Guðmundur Guðnason899
Dagný Hannesdóttir í mars 1962.
Guðmundur Guðnason155
Skíðagarpar á Skagaströnd. Fullorðni maðurinn á skíðunum er Guðni Sveinsson (d.15.11.1971) frá Ægissíðu. Börnin gætu verið systkinin Árni og Aðalheiður Másbörn frá Réttarholti. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 618
Fólk fylgist með skemmtiatriðum við höfnina á sjómannadegi 2014.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Á þessari mynd er fjölskylda herra Karls Sigurbjörnssonar biskups. Frá vinstri: óþekkt dóttir, Guðjón Karl Karlsson, Kristín Guðjónsdóttir, óþekkt fermingarstúlka, dóttir og herra Karl Sigurbjörnsson biskup.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1428
Vinir, bekkjarfélagar úr Höfðaskóla og meðlimir í hljómsveitinni Dornik. Frá vinstri: Ívan Árni Róbertsson, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Sigurbörg Katla Valdimarsdóttir, Sigurbjörg Birta Berndsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Myndin var tekin 19. janúar 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 506
Myndin var tekin í ágúst 2014 þegar opnaður var höggmyndagarður Erlendar Magnússonar framan við stjórnsýsluhúsið. Myndirnar eru allar úr járnarusli úr fórum endurvinnslu Hringrásar. Erlendur, í ljósbrúnum mittisjakka, snýr baki í ljósmyndrann meðan hann útskýrir verkin fyrir gestum.
Guðmundur Guðnason073
Sveinn Hall Másson frá Réttarholti á fermingardaginn sinn 1967
Axel Jóhann Hallgrímsson 86
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Ferðin þótti takast mjög vel og var oft mikið fjör á gististöðum á kvöldin með söng og spjalli. Á þessari mynd eru frá vinstri: Björgvin Karlsson (nær), Fanney Zophoníasdóttir (fjær), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017) og Guðrún Guðbjörnsdóttir.
1
…
48
49
50
…
79
Leita í myndasafninu
Leita