Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason869
Ísleifur Haraldsson á fermingardaginn sinn 1961.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 621
Sveitastjórnarkosningar 2014 bar upp á sjómannadaginn það ár. Á myndinni eru glaðbeittir frambjóðendur og kjósendur utan við skólann þar sem kjörfundur fór fram. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Halldór Gunnar Ólafsson en þeir tveir voru í framboði, Sigurjón Guðbjartsson, Helgi Gunnarsson, Sverrir Brynjar Berndsen og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018).
Axel Jóhann Hallgrímsson 33
Myndin var tekin á sjómannadegi 2008 í Kántrýbæ. Sjómennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jónas Fanndal Þorvaldsson, Daníel Guðmundsson, Guðni Már Lýðsson, Ómar Ingi Ómarsson og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftan við þilið stendur Gylfi Guðjónsson.
María Magnúsdóttir - safn 354
Þórey Fjóla Aradóttir til vinstri með ömmu sinni Fjólu Jónsdóttur til hægri í 90 ára afmæli langömmu sinnar, Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016), 1. maí 2009.
Vaktfélagar
Vaktfélagar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Þórarinn Grétarsson, Sigurður Thoroddsen, Jón Örn Stefánsson, Ríkarð Svavar Axelsson (fjær) , Hafsteinn Björnsson (nær), Elvar Freyr Svavarsson (nær), óþekktur, Baldur Magnússon, óþekktur og Grétar Smári Hallbjörnsson. Myndin var tekin 11. september 2013.
Guðmundur Guðnason689
Guðrún Friðriksdóttir
Guðmundur Guðnason043
Séra Pétur Þ.Ingjaldsson (d.1.6.1996) fyrir altarinu í Hofskirkju 1967.
guðmundur211
<P>Trausti Bertelsson frá Drangey</P>
Guðmundur Guðnason687
<P>Sigurbjörg Guðmundsdóttir frá Neðri-mýrum á fermingardaginn sinn á tröppum Höskuldsstaðakirkju. </P>
Guðmundur Guðnason254
Myndin var tekin í eldhúsinu á Ásholti. frá vinstri: Guðmundur Kr. Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu, Óskar Axelsson í Ásholti og sonur hans Björn Ingi Óskarsson.
Guðmundur Guðnason697
Tvö óþekkt börn í sparifötunum.
Guðmundur Guðnason709
Kári Lárusson frá Ási með tvo til reiðar.
Ingibergur Guðmundsson 310
Sigurvegarar á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Háagerðisvelli í september 1985. Frá vinstri: Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001), Eygló Gunnarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Jón Ingi Ingvarsson og Oliver Oliversson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 666
13. júní 2014 hittist starfsfólk Greiðslustofu Vinnumálastofnunar í veiðihúsinu í Laxárdal, grillaði og átti notalega stund saman með mökum sínum og börnum. Á myndinni er Inga Rós Sævarsdóttir lengst til vinstri. Atli Þór Gunnarsson situr við borðið og Ársæll Óskarsson stendur við borðsendann. Ekki er vitað hvert barnið á myndinni er.
Ólafur Bernódusson 771
Messa á Kántrýhátíð 17. ágúst 2008. Myndin sýnir hluta kirkjukórsins sem söng og óþekktan einsöngvara. Lengst til hægri er stjórnandinn og undirleikarinn Óskar Einarsson.
Axel Jóhann Hallgrímsson 98
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf saman í ferðalag til Mývatns til að skoða það og nágrenni þess. Á myndinni er nestispása og fjöldasöngur. Í fremstu röð á myndinni eru frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Jón Helgason, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003). Aftar eru frá vinstri: Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sveinbjörg Hallgrímsdóttir, Karl Guðmundsson og Helga Jóhannesdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 567
Stákarnir að gera allt klárt fyrir næsta túr á Arnari Hu 1 30. apríl 2014. Á dekkinu eru frá vinstri: Guðmundur Henrý Stefánsson, Guðjón Guðjónsson, Gunnar Helgason, Rúnar Jósefsson, og Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson. Á efra dekkinu eru óþekktur til vinstri Þröstur Árnason í miðið og óþekktur til hægri.
Guðmundur Guðnason312
Til hægri á myndinni er Elinbjörg Petrea Jónsdóttir húsfreyja Skrapatungu fædd 1895 á Tittlingastöðum í Víðidal ( seinna Laufás ). Hin konan er óþekkt og ef þú veist hver hún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason905
Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020).
Guðmundur Guðnason801
Birna Bjarnadóttir á fermingardaginn 1970
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 694
Myndin var tekin af hluta gesta á Gleðibankakvöldi í Bjarmanesi 23. janúar 2014. Þar sem boðið var upp á fyrirlestur og myndasýningu Maríu Markovic um dvöl sína á Salomonseyjum í Suður-Kyrrahafi. Á myndinni eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir (nær), Björk Sveinsdóttir (fjær), Bára Þorvaldsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Ása Ásgeirsdóttir, Finnur Kristinsson (nær), Herdís Jakobsdóttir (fjær), Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson (nær), Hallbjörg Jónsdóttir (fjær), Guðbjörg Kristinsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 85
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var fjör hjá hópnum á gististöðunum á kvöldin, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Þórdís Sigurðardóttir og Herborg Þorláksdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 101
Fermingarbörn frá 1971 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli 1991 ásamt mökum sínum með því að hittast eina kvöldstund og rifja upp gamla tíma. Á myndinni eru frá vinstri: Þorsteinn Jakobsson, Gunnar Stefánsson og Málfríður Jóhannsdóttir, sem var ein af fermingarhópnum 1971.
Guðmundur Guðnason075
Stúlkan til vinstri á myndini er Halla Árný Júlíusdóttir dóttir hjónana Júlíusar Árnasonar og Steinunnar Guðmundsdóttur frá Höfðabergi. Til hægri er Áslaug Hrólfsdóttir frá Bjarmalandi dóttir Hrólfs Jónssonar og Sigríðar Guðlaugsdóttur.
Guðmundur Guðnason093
Anna Bjarnadóttir frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8).
Axel Jóhann Hallgrímsson 51
Þau bíða í samkomutjaldinu eftir næsta dagskrárlið á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Frá vinstri: Guðrún Björg Berndsen sem situr hjá hjónunum Sævari Hallgrímssyni og Ragnheiði Magnúsdóttur.
Guðmundur Guðnason737
Halla Jökulsdóttir frá Núpi og Óskar Eiríksson sem lengi var í Skrapatungu
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) sem ung stúlka.
larus023
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum 1989 - 1994. Á henni syngja saman kirkjukórarnir á Skagaströnd og Blönduósi í Fellsborg undir stjórn Julians Hewlett fyrir fullan sal af fólki. Ekki er vitað um tilefni myndatökunnar.
Guðmundur Guðnason841
<P>Myndin er sennilega af skólabekk því maðurinn sem standur aftast er séra Jón Kr. Ísfeld. Drengurinn fremst til hægri er Sævar Hafsteinsson Fossdal en aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.</P>
Axel Jóhann Hallgrímsson 91
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: Helga Jóhannesdóttir, Guðný Sigurðardóttir og Hallbjörn Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 493
Sungið á þorrabblóti. Textinn fjallaði um tilraunir Steindórs Haraldssonar til að búa til nýja síldarrétti. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Árni Eðvarðsson, Guðni Már Lýðsson, Sigríður Stefánsdóttir, Hafþór Gylfason, Hallbjörg Jónsdóttir, Ólafur Bernódusson og Eygló Amelía Valdimarsdóttir. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Axel Jóhann Hallgrímsson 97
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf í ferð að Mývatni til að skoða það og nágrenni þess. Á þessari mynd eru frá vinstri, fremst: Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Elín Njálsdóttir, Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir. Aftar frá vinstri: Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Árni Ólafur Sigurðsson og Charlotta Traustadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 638
Myndin var tekin 1. desember 2014 í Fellsborg á skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg. Við borðið í forgrunni eru frá vinstri: Vilhelm B. Harðarson, Gunnar Reynisson, Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) og Vilhjálmur Skaftason. Við borðið til vinstri eru hjónin Stefán Jósefsson og Sigríður Gestsdóttir til vinstri en Lárus Ægir Guðmundsson til hægri.
Guðmundur Guðnason322
<p>Talið frá vinstri eru þetta systkynin: Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001), Heiðar Elvan Friðriksson (Teni) og Guðrún Friðriksdóttir (d.14.2.2008).
Guðmundur Guðnason699
Á myndinni, sem tekin er við Spákonufellsrétt eru, frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Óskar Þór Kristinsson og Sævar Rafn Hallgrímsson
larus099
Þessi mynd var líklega tekin um 1960 af beitingamönnum í "Aðalbjargarskúrnum" sem var beitingaskúr sem stóð nokkurn veginn þar sem vestari hluti Vélaverkstæðis Skagastrandar er í dag. Beitingamennirnir á myndinni voru í mörg ár landmenn/beitingamenn fyrir Aðalbjörgu Hu 7. Mennirnir eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) í Stórholti (Bankastræti 3), Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) á Flankastöðum (Bankastræti 7), Jóhann Pétursson (d.13.1.1999) á Lækjarbakka, Hörður Ragnarsson frá Ásgarði og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) í Skeifunni (Hólabraut 25). Framan við karlana standa svo synir Jóhanns; Gissur Jóhannsson fyrir framan pabba sinn og Pétur Jóhannsson framan við Guðmund.
Axel Jóhann Hallgrímsson 62
Fylgst með skemmtiatriðum á túninu sunnan við Árnes á Kántrýhátíð í ágúst 2009. Frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Ólafur Bernódusson með afastrákinn Ólaf Halldórsson í fanginu og Guðmundur J. Björnsson lengst til hægri.
Guðmundur Guðnason071
Fermingarbörn 1967 í Hólaneskirkju (gömlu). Fremsta röð frá vinstri: Sveinn Hall Másson, Edda Þórarinsdóttir, Ólína Bjarnadóttir, Inga Stefánsdóttir, Finnur Kristinsson. Miðröð frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Þorbjörnsson, Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001), Jón Geir Jónatansson, Jón Jósefsson, Guðmundur Kristinsson. Aftasta röð frá vinstri: Karl Guðmundsson, Gylfi Jóhannsson, Sigurður Sigurðsson, Benóný Gunnarsson, Böðvar Jónsson, og Ingibergur Guðmundsson.
Kvennaskolinn_oldhouse[1]
Kvennaskólinn á Ytri-Ey í Vindhælishreppi (nú Skagabyggð) var rekinn í þessu húsi.Skólinn var fyrsti kvennaskóli Húnvetninga og hóf starfssemi á þessum stað 1883. Skólinn var í þessu húsi til 1901 þegar hann var fluttur í nýbyggt hús á Blönduósi. Á myndinni eru skólastúlkur ásamt kennurum og gestum einhverntíma á þessu tímabili.Skagfirðingar tóku þátt í rekstrinum meðan skólinn var á Ytri-Ey en hættu þátttöku þegar hann var fluttur til Blönduóss. Við þjóðveginn sunnan við Ytri-Ey er minnismerki um þennan merka skóla. Fyrsta skólastýra skólans var sú merka kona Elín Briem sem var þá nýútskrifuð úr húsmæðrakennaraskóla í Kaupmannahöfn. Hún kenndi og stýrði skólanum frá stofnun til 1895 er hún flutti til Reykjavíkur þar sem hún stofnaði hússtjórnarskóla Reykjavíkur. Elín kom svo aftur norður og tók við stjórn kvennaskólans er hann flutti 1901 til Blönduóss í tvö ár og svo enn á ný 1910 til 1915. Elín fékk riddarakross Hinnar íslensku fálkaorði árið 1921 og var þá önnur af tveim fyrstu konunum sem þann heiður hafa hlotið. <br>
Árni Geir Ingvarsson - safn 1472
Í Spákonuhofinu má sjá vaxmynd í fullri stærð af Þórdísi spákonu frá Spákonufelli. Á þessari mynd hefur Jensína Lýðsdóttir, sem var fyrirmyndin við gerð styttunnar, stillt sér upp við hlið Þórdísar. Þær stöllur eru óneitalega mjög líkar þó hárgreiðslan sé ekki sú sama enda rúmlega 1000 ár á milli þeirra. þær eiga einnig það sameiginlegt að vera, eða hafa verið, áhrifakonur í samfélaginu á Skagaströnd. Myndin var tekin 23. júní 2011.
Axel Jóhann Hallgrímsson 100
Fermingarbörn frá 1971 héldu upp á 20 ára fermingarafmæli sitt 1991 með því að hittast eina kvöldstund og rifja upp gömul kynni með mökum sínum. Á myndinni eru hjónin Vilmar Kristinsson og Unnar Gunnarsdóttir, sem fermdist 1971, ásamt kennara fermingarhópsins til margra ára, Elínborgu Jónsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 561
Þessi mynd var tekin 28. apríl 2014 í Fellborg. Líklega var tilefnið framboðskynning fyrir sveitastjórnarkosningar í lok maí. Húsfyllir var á fundinum eins og sjá má.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Þessi mynd var tekin fyrir framan hús Georgs Hjartarsonar (d. 13.9.2001) og Helenu Ottósdóttur (d. 22.11.2007) að Oddagötu 1 vorið 1965. Barnið er Georg Ottó Georgsson sonur þeirra. Maðurinn sem stendur við hlið Helenu er þýskur jarðfræðistúdent, Peter Everts, sem vann doktorsverkefni sitt um Skagann og dvaldi á Skagaströnd við rannsóknir sínar. Peter var í fæði hjá Helenu og Georg og hélst vinátta með þeim meðan þau hjón lifðu. Maðurinn við hlið Georgs er þýskur vinur Peters sem kom að heimsækja hann til Skagastrandar. </p><p>.</p>
Axel Jóhann Hallgrímsson 70
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1983 í Fellsborg. Frá vinstri á myndinni: Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992), óþekkt, Jón Ingi Ingvarsson, Þórarinn Ingvarsson, Guðjón Pálsson (d.14.12.1989), Ragnheiður Magnúsdóttir, Eiður Hilmarsson (næst), Sævar Hallgrímsson (aftar), Ingvar Þór Jónsson (aftan við Sævar), óþekktur (fjærst), Birgir Þórbjörnsson (nær), Gunnar Reynisson (fjær) og Steinunn Steinþórsdóttir lengst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 548
Myndin var tekin 20. setember 2014 þegar fólkið á henni fylgdist með afhjúpun á listaverkinu Sólúr á Hnappstaðatúninu. Fólkið er frá vinstri: hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir en til hægri er Hjördís Sigurðardóttir systir Gylfa.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 430
Nes listamiðstöð hefur haft ýmis skemmtileg áhrif á Skagaströnd á þeim rúmlega 10 árum (2019) sem hún hefur starfað. Eitt af verkefnum listamanna sem dvöldu þar í júní 2013 var að gera leikna stuttmynd. Fengu þeir unglinga á staðnum í lið með sér til að leika og útbjuggu upptökusal á efstu hæðinni í síldarverksmiðjunni sem var auð. Á þessari mynd eru unglingarnir í búningum sínum ásamt leikstjóra myndarinnar en nafn hans er óþekkt. Unglingarnir eru frá vinstri: Aron Snær Fannarsson, Birta Dögg Bessadóttir, Eymundur Lórens Grétarsson, María Jónasdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir og Elmar Jóhann Grétarsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Pétur Ingjaldur Pétursson að lesa uppi í rúminu sínu. Kisi nýtir sér mýkt koddans til að fá sér lúr.
Ólafur Bernódusson 735
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni syngja yngri börn skólans fyrir gesti við undirleik Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur en lengst til vinstri á sviðinu er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri.
Guðmundur Guðnason260
Guðmundur Guðnason með lítilli óþekktri vinkonu sinni. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á spjalli á Kántrýhátíð 2001. Frá vinstri: Anna Sjöfn Jónasdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Bernódus Óli Kristinsson (í kerrunni) og Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001).
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Eldri borgarar á ferðalagi. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin. Aftast til vinstri er Elísabet Sigurgeirsdóttir, Vignir Jónsson, óþekktur, Sófus Guðmundsson (d. 2.8.1991) frá Skrapatungu (krýpur með rautt bindi), Pálmi Ólafsson (d. 6.12.2005) frá Holti, séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) er með svartan hatt og hjá honum stendur Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) kona hans. Hægra megin við Dómhildi er Sigurður Pálsson og hægra meginn við hann er Aðalbjörg Þorgrímsdóttir (d. 22.11.2007) frá Holti. Fyrir framan Sigurð krýpur Alda Friðgeirsdóttir kona hans en við hlið hennar, bláklædd, er Ingibjörg Lárusdóttir (d. 20.9.2010) frá Skagaströnd. Pétur B. Ólason (d. 18.7.1998) frá Miðhúsum ber í hópferðamiðstöðvarmerkið á bílnum. Davía Guðmundsdóttir (d. 17.1.1999) Blönduósi er skáhallt til vinstri framan við Pétur Ólason. Hægra megin við Pétur í öftustu röð er Rúnar Agnarsson Blönduósi. Konurnar þrjár fyrir framan Rúnar eru frá vinstri: Ingibjörg Pétursdóttir Blönduósi, Helga Guðmundsdóttir Blönduósi og María Jónsdóttir frá Húnsstöðum, Helgi Helgason (d. 16.9.2005) Blönduósi er í röndóttri peysu með jakkann á handleggnum. Hallur Hilmarsson er aftan við Helga til hægri og Skafti Kristófersson (d. 26.6.2001) frá Hnjúkahlíð er í svörtum leðurjakka með hvítan poka í hönd og styður sig við staf. Lengst til hægri er svo Torfi Jónsson (d. 17.7.2009) frá Torfalæk. Aðrir eru óþekktir en ef þú þekkir hitt fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Guðmundur Guðnason685
Þetta eru fermingarbörn ársins 1967 á Höskuldsstöðum, aftari röð frá vinstri: Sigurbjörg Guðmundsdóttir á Neðrimýrum, Guðrún Guðmannsdóttir Vindhæli, Hlíf Sigurðardóttir frá Hafursstöðum og Björg Björnsdóttir frá Ytra-Hóli. Fyrir framan eru frá vinstri: Kristján Jökulsson frá Núpi og Lúðvík Kemp Efri Lækjardal.
Axel Jóhann Hallgrímsson 39
Árið 1987 fóru starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf í sumarferðalag til Austurríkis og Þýskalands. Þá var þessi mynd tekin á einhverjum óþekktum áningarstað. Við borðið sitja, talið frá vinstri: Eiður Hilmarsson, Selma Þórarinsdóttir (d.14.9.1990), Birgir Þórbjarnarson, Guðrún Garðarsdóttir, Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992) og Jón Ingi Ingvarsson.
Guðmundur Guðnason691
Edda og Björk Sigurðardætur
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í félagsheimilinu Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd eru framkvæmdirnar hafnar og búið að saga göt í vegg til að stækka bókasafnið inn í herbergið sem sést á bak við Ásdísi Birtu Árnadóttur.
Guðmundur Guðnason863
Frændsystkinin Búi Birgisson (d.18.9.2009) og Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason101
Óþekkt kona með barn. Myndin gæti verið tekin 1962. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason891
Guðrún Angantýsdóttir í mars 1962
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Séra Friðrik Friðriksson</p>
1
…
49
50
51
…
79
Leita í myndasafninu
Leita