Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 792
Myndin var tekin í Hornvík af hluta hóps Skagstrendinga sem þar voru í gönguferð í júlí 2010. Fólkið er að borða kvöldmat eftir að hafa gengið á Hornbjargið þann daginn. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Steindór Haraldsson, Jóney Hrönn Gylfadóttir, tveir synir hennar, Guðbjörg Hanna Gylfadóttir og Sigurjón Atli Sigurðsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) prestur á Höskuldsstöðum og Skagaströnd í 40 ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ingvar Sigtryggsson (d. 10.7.1988) með tveimur elstu sonum sínum. Rúnar Ingvarsson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri.
Guðmundur Guðnason237
Tónelsku stúkurnar tvær á þessari mynd eru óþekktar. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason893
Guðrún Angantýsdóttir með Sigurbjörgu Árdísi Indriðadóttur, dóttur sína, í fanginu í mars 1962
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 601
Eftir messu í Hólaneskirkju á sjómannadegi er ávallt lagður blómakrans að minnismerki um drukknaða sjómenn við kirkjuna. Það eru fermingarbörn ársins sem gera það með aðstoð einhvers fulltrúa sjómanna. Þessi mynd var tekin 2014 af fermingarbörnunum Valgerði Guðný Ingvarsdóttur og Viktori Má Einarssyni með kransinn og Árna Ólafi Sigurðssyni skipstjóra á hvítri skyrtu, Steindóri Haraldsyni meðhjálpara og séra Bryndísi Valbjörnsdóttur sóknarpresti.
guðmundur210
Konráð Guðmundsson fæddur 1944 oftast kallaður Konni litli til aðgreiningar frá afa sínum Konráð Klemenssyni sem ól hann upp með konu sinni Ólínu Sigurðardóttur Garðhúsum (Konnabæ).
Fisk Seafood - safn 261
Starfsfólk Rækjuvinnslunnar hf á ferðalagi til að heimsækja hausaþurrkun á Laugum og Norðanfisk á Húsavík. Á myndinni er hluti fólksins að skála á óþekktum veitingastað. Frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, Jón Heiðar Jónsson, Guðbjörg Vera Kristinsdóttir, Þórarinn Grétarsson og Magnús Guðmannsson.
Guðmundur Guðnason279
<p>Myndin er tekin í Hólaneskirkju-eldri. Prestarnir eru frá vinstri: séra Ólafur Hallgrímsson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, séra Robert Jack og séra Oddur Einarsson.</p>
Hrefna Jóhannesdóttir035
Systkinin Jóhannes Pálsson (d. 23.11.1986) og Sigríður Pálsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Kvenfélagskonur úr ýmsum kvenfélögum í Sambandi Austur Húnvetnskra Kvenna. Fremri röð frá vinstri: Geirlaug Ingvarsdóttir Balaskarði, Valgerður Ágústsdóttir Geitaskarði, Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi, Þorbjörg Bergþórsdóttir (d. 7.5.1981) Blönduósi, Vigdís Björnsdóttir (d. 14.3.1979) Blönduósi, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) Skagaströnd. í aftari röð frá vinstri: Sesselja Svavarsdóttir (d. 4.1.2000) Saurbæ, Sólveig Sövik Blönduósi, Aðalbjörg Þorgrímsdóttir (d. 22.11.2007) Holti, Elín Sygtryggvadóttir Kornsá, Soffía Lárusdóttir (d. 31.3.2010) Skagaströnd, ?Guðrún Jónsdóttir? Hnjúki , óþekkt, Sigríður Ólafsdóttir Ártúnum, Aðalbjörg Ingvarsdóttir Blönduósi og Þórhildur Guðjónsdóttir Ísberg Blönduósi. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Bræðurnir Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) til vinstri og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) til hægri við leiði móður sinnar, Þórunnar Samsonardóttur (d.11.10.1986), í Spákonufellskirkjugarði.
Guðmundur Guðnason781
Helgi Gunnarsson undir málverki af einum af bílum föður síns Gunnars Helgasonar.
larus018
Þessi mynd var líklega tekin í október 1991 þegar Hólaneskirkja var vígð. Á henni eru meðal annars fjórir prestar sem þjónuðu í Skagastrandraprestakalli. Frá vinstri á myndinni eru sérarnir: Ágúst Sigurðsson (d.22.8.2010), Bolli Gústavsson (d.27.3.2008) vígslubiskup á Hólum, Herra Ólafur Skúlason biskup, Oddur Einarsson fyrrverandi sóknarprestur, Guðni Þór Ólafsson prófastur, Sigurður Guðmundsson (d.9.1.2010) vígslubiskup á Hólum og Skálholti, Ægir Sigurgeirsson fyrrverandi sóknarprestur, Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) fyrrverandi sóknarprestur, óþekktur, Egill Hallgrímsson sóknarprestur þegar myndin var tekin og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu prestana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason867
Pétur Jóhannsson á fermingardaginn sinn 1961.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Pétur Ingjaldur Pétursson í febrúar 1972
Axel Jóhann Hallgrímsson 127
Myndin var tekin 14. mars 1992. Ekki er vitað um tilefnið né hvar hún var tekin. Á henni eru frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Jón Gunnarsson, Óskar Þór Kristinsson, Hafsteinn Pálsson, Hjörtur Guðmundsson, Jens Jónsson (fjærst), tvö óþekkt (nær) og Vigdís Ósk Ómarsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 5
Ólafur Bernódusson tekur þátt í einhverjum leik á sjómannadegi. Leikurinn felst m.a. í því að þræða nál og negla stóran nagla í planka. Á myndinni er Ólafur að þræða nálina. Gunnar Jón Jónsson í jakka og rúllukragapeysu og Gylfi Sigurðsson þungur á brún fylgjast með. Hægra megin eru Jón Geir Jónatansson og Karl Guðmundsson að fylgjast með einhverju sem er að gerast á planinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason235
Maðurinn í þessum gróskumikla garði er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 593
Þórarinn Brynjar Ingvarsson vert á Borginni fer yfir málin með Páli Halldórssyni fyrir einhver veisluhöld á Borginni. Myndin var tekin 1. nóvember.
Guðmundur Guðnason897
<P>Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir með brúðuna sína í mars 1962</P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 651
4. desember 2014 var haldin dálítil hátíð í Samkaup versluninni á Skagaströnd í tilefni af aðventunni sem þá var að hefjast. Meðal annars söng fólkið á myndinni nokkur lög fyrir gesti í andyri verslunarinnar. Tónlistarfólkið er frá vinstri: hjónin Sigríður Stefánsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson og aftan við þau eru hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Björg Ólafsdóttir (d. 1.3.2007) og mágur hennar Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) í sparifötunum á góðum degi.
Axel Jóhann Hallgrímsson 84
Stjórn og starfsfólk Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru í ferðalag um suðurland í júní 1992. ferðin tók nokkra daga og oft var fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: þórdís Sigurðardóttir, Heimir Guðmundsson og Rúnar Jósefsson.
Guðmundur Guðnason069
Sesselja Guðmundsdóttir (Sessý) frá Stórholti. Myndin tekin kringum 1970.
Ólafur Bernódusson 790
Myndin var tekin í Hornvík af hluta hóps Skagstrendinga sem þar voru í gönguferð í júlí 2010. Fólkið er að borða kvöldmat eftir að hafa gengið á Hornbjargið þann daginn. Fjallið lengst til vinstri í baksýn er Kálfatindur sem er mjög brattur uppgöngu og síðan þverhníptur í sjó fram að austanverðu. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Lára Guðmundsdóttir og Gunnar Svanlaugsson.
Fisk Seafood - safn 250
Fólkið á myndinni er hluti starfsfólks Rækjuvinnslunnar hf í heimsókn hjá Norðanfiski á Húsavík. Allir gestir verða að klæðst hlífðarfatnaði. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús Guðmannsson, Cornelia Silud Boncales (nær), Rósa B. Einarsdóttir (fjær), óþekktur, Cristina Silud Yecyec, Halldór Gunnar Ólafsson og tvær óþekktar konur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000.
Ólafur Bernódusson 733
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla 15. nóvember 2012 í Fellsborg. Á henni eru frá vinstri: Elva Þórisdóttir kennari, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri og Ingibergur Guðmundsson fyrrverandi skólastjóri.
Guðmundur Guðnason749
Guðmundur Jón Björnsson frá Jaðri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 717
17. janúar 2015 steiktu foreldrar og velunnarar barna í Höfðaskóla kleinur í eldhúsinu í skólanum. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir skólasfélagið til að unglingarnir kæmust í vorferðalag til útlanda að skóla loknum. Vinstra megin við borðið eru: baksvipir Lilju Daggar Hjaltadóttur og móður hennar Guðlaugar Grétarsdóttur, Einar Haukur Arason og Halldór Gunnar Ólafsson. Hægra megin við borðið eru frá vinstrI: Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, baksvipir Sigríðar Stefánsdóttur og Hrafnhildar Jóhannsdóttur og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir.
Guðmundur Guðnason003
Hjónin Birna Þuríður Jóhannesdóttir (d. 31.12.2006) frá Garði og Sveinn Sveinsson (d. 8.8.1977). Þau hófu sinn búskap á Skagaströnd en bjuggu lengst af í Höfnum á Reykjanesi.
Guðmundur Guðnason809
Ingibjörg Kristinsdóttir á fermingardaginn 1962.
Guðmundur Guðnason879
Ómar Þorbjörnsson á fermingardaginn sinn 1961.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Heiðdís Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði á fermingardaginn sinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd eru systurnar Karítas Laufey Ólafsdóttir til vinstri og Björg Ólafsdóttir (d. 1.3.2007) til hægri með óþekkt barn á milli sín. Myndin var sennilega tekin á seinni hluta fimmta áratugarins.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1463
Krakkarnir á myndinni voru líklega að leika sér í frímínútum í Höfðaskóla þegar myndin var tekin um miðjan mars 2012. Á henni eru frá vinstri: Jón Árni Baldvinsson, Ólafur Halldórsson, Mikael Garðar Hólmgeirsson, Telma Jónasdóttir, Benóný Bergmann Hafliðason, Karen Líf Sigurbjargardóttir og Andri Már Gunnarsson.
larus044
Mynd frá altarisgöngu í vígslumessu Hólaneskirkju 20. október 1991. Biskupinn Herra Ólafur Skúlason og séra Egill Hallgrímsson sóknarprestur útdeila brauði og víni með aðstoð meðhjálparans Steindórs Haraldssonar lengst til hægri.
María Magnúsdóttir - safn 351
María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Hólmsteinn R. Snædal (d.31.12.2015) í 90 ára afmæli Maríu 1. maí 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 488
Árlega eru haldin þorrablót á Sæborg fyrir heimilisfólk og gesti þeirra. Þessi mynd var tekin á einu slíku en ekki er vitað hvenær. Vinstra megin við borðið eru Signý Richter (fjær) og Margrét Matthildur Björnsdóttir (nær). Hægra megin við borðið eru frá vinstri: Guðrún Sigurðardóttir, Matthildur Jónsdóttir (d. 5.6.2015), Guðbjörg Eiríksdóttir, Lýður Hallbertsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Fannar Viggósson.
Ólafur Bernódusson 760
Myndin var tekin við áramótabrennu á gamlaárskvöld 2005 af glöðu fólki með stjörnuljós. Frá vinstri: Dagbjört Bæringsdóttir, Guðmundur Gunnlaugsson og Guðrún Pálsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 620
2014 voru sveitastjórnakosningar sem lentu á sjómannadegi þess árs. Kosið var í Höfðaskóla en ekki í Fellsborg eins og venja er. Á myndinni er kjörstjórnin. Frá vinstri: Pétur Eggertsson, Lárus Ægir Guðmundsson formaður kjörstjórnar, Ingibjörg Kristinsdóttir og Guðný Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason779
Ívan Grímur Norðquist
Guðmundur Guðnason330
Ungir töffarar úr útbænum. Frá vinstri: Reynir Sigurðsson úr Þórsmörk, Óskar Þór Kristinsson úr Héðinshöfða og Sævar Rafn Hallgrímsson úr Bragganum.
Guðmundur Guðnason067
Dóróthea Hallgrímsdóttir á Hólanesi með óþekkt barn í fanginu. Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 755
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Þá var gestum boðið upp á kaffi og meðlæti. Myndin var tekin af kennurum og nemendum sem sáu um að afgreiða kaffið. Frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir, Elva Þórisdóttir, María Ösp Ómarsdóttir, baksvipur Trostans Agnarssonar, Sigurður Gísli Guðjónsson og Sigurbjörg Laufey Sigurpálsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson á unglingsárum sínum.
Guðmundur Guðnason803
Ómar Másson frá Réttarholti á fermingardaginn 1970.
Guðmundur Guðnason677
Fermingarmynd af Stefáni Kristinssyni (Kúta).
Guðmundur Guðnason909
Indriði Hjaltason (d.2.4.2006).
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Jón Hallur Sigurbjörnsson með afabarn í fanginu.</p>
Guðmundur Guðnason837
Hafþór Smári Gylfason í töffaragallanum sínum
Árni Geir Ingvarsson - safn
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) bjó lengst af á Akri (Hólabraut 13). Hér er Hebbi í aðstæðum sem hann þekkti vel; á sjó á handfæraveiðum með bros á vör.
Guðmundur Guðnason085
Aðalheiður Guðmundsdóttir í Ásgarði.
Guðmundur Guðnason903
Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) ( Friðjón málari).
IMG_3923
Spallað á tröppum Hólaneskirkju fyrir gospel tónleika þar 29. apríl 2007. Hjónin Adolf H. Berndsen og Dagný Marín Sigmarsdóttir spjalla við Óskar Einarsson stjórnanda tónleikanna. Óskar er á milli þeirra hjóna.
Guðmundur Guðnason133
Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) er lengst til hægri á þessari mynd. Konurnar eru Guðrún Árnadóttir (d.7.4.2005) nær honum og Elísabet Árnadóttir (Bebbý)( d.16.3.2017) nágranni Guðmundar stendur aftan við dætur sínar Erlu og Vilborgu Másdætur. Myndin er tekin í ferð um Vatnsdalinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 679
Árið 2014 kvatt með áramótabrennu þar sem fjölmenni tók þátt í blysför að brennustæðinu og fylgdist svo með brennunni og flugeldasýningu björgunarsveitarinnar þegar líða tók á kvöldið.
Guðmundur Guðnason001
Þessi kona er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Axel Jóhann Hallgrímsson 94
Sumarið 1979 fóru starfsmenn Skagstrendings hf í ferðalag til að skoða Mývatn og umhverfi þess. Á þessari mynd eru frá vinstri: Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Gylfi Sigurðsson, Sveinn Ingólfsson, Magnús Sigurðsson og Árni Ólafur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson 851
25. ágúst 2013 sýndi fólk úr listamiðstöðinn, með hjálp nemenda, matargjörning í Höfðaskóla. Þau höfðu búið til eldfjöll, hraunbreiður og annað tengt íslenskri náttúru. Efniviðurinn var kökur og ýmislegt sem notað er til tertuskreytinga. Eftir að hafa virt listaverkið fyrir sér og myndað það í bak og fyrir var það borðað af þátttakendum og gestum þeirra. Nemendurnir eru í fremstu röð en listamennirnir standa fyrir aftan börnin.
1
…
50
51
52
…
79
Leita í myndasafninu
Leita