Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
IMG_3923
Spallað á tröppum Hólaneskirkju fyrir gospel tónleika þar 29. apríl 2007. Hjónin Adolf H. Berndsen og Dagný Marín Sigmarsdóttir spjalla við Óskar Einarsson stjórnanda tónleikanna. Óskar er á milli þeirra hjóna.
Ólafur Bernódusson 733
Myndin var tekin á Elínborgardegi Höfðaskóla 15. nóvember 2012 í Fellsborg. Á henni eru frá vinstri: Elva Þórisdóttir kennari, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri og Ingibergur Guðmundsson fyrrverandi skólastjóri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Guðný Sigurðardóttir Jón Hallur Pétursson og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Guðmundur Guðnason777
Kristján Helgi Gunnarsson ungur maður í sparifötunum.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) til vinstri með séra Bolla Gústavssyni (d. 27.3. 2008) vígslubiskupi að Hólum til hægri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn

Hjónin séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd og Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012).

Guðmundur Guðnason807
Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum á fermingardaginn 1962
Ólafur Bernódusson 851
25. ágúst 2013 sýndi fólk úr listamiðstöðinn, með hjálp nemenda, matargjörning í Höfðaskóla. Þau höfðu búið til eldfjöll, hraunbreiður og annað tengt íslenskri náttúru. Efniviðurinn var kökur og ýmislegt sem notað er til tertuskreytinga. Eftir að hafa virt listaverkið fyrir sér og myndað það í bak og fyrir var það borðað af þátttakendum og gestum þeirra. Nemendurnir eru í fremstu röð en listamennirnir standa fyrir aftan börnin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 510
Margt er sér til gamans gert. 14. ágúst 2014 fengu krakkar á Skagaströnd að leika sér í slökkvifroðu-braut sem starfsmenn sveitarfélagsins útbjuggu með hjálp slökkviliðsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 517
Hjónin Guðbjörg Lýðsdóttir og Lýður Hallbertsson mála um borð í bát sínum Dagrúnu Hu 121 í lok ágúst 2014.
Séra Pétur og Dómhildur - safn

Á myndinni eru hjónin Karl Ómar Jónsson og Ólöf Stefánsdóttir með tvö af börnum sínum. Drengurinn er Stefán Karlsson en barnið í fangi móður sinnar er óþekkt.

Séra Pétur og Dómhildur - safn
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) til vinstri og Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) gera leikfimiæfingar. Konan á milli þeirra er óþekkt. Myndin var tekin 25.10.1991.
Ólafur Bernódusson 846
Á hverju vori í nokkur ár stóð Landsbankinn fyrir víðavahlaupi við útibú sitt á Skagaströnd. Þessi mynd var tekin af áhorfendum og keppendum 5. maí 2007. Á myndinni eru frá vinstri: óþekkt kona, Jón Heiðar Jónsson, Kristín Birna Guðmundsdóttir, Björn Hallbjörnsson, Rakel Jensína Jónsdóttir (nær), óþekkt (fjær), Ívan Árni Róbertsson (nær), Aðalheiður Sif Árnadóttir (fjær), óþekkt (nær) Guðrún Pálsdóttir (fjær), Sigríður Stefánsdóttir með son sinn Ólaf Halldórsson í fanginu, Magnús Guðmannsson og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 652
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson (Jonni) syngja og spila á uppákomu í Samkaupum á Skagaströnd 4. desember 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 555
10. apríl 2014 var kynning á Flateyjarbók og fleiru í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd. Myndin sýnir hluta þeirra sem sóttu þessa kynningu. Frá vinstri: Silfá Sjöfn Árnadóttir, Guðmundur Ólafsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Trostan Agnarsson (nær), óþekktur (fjær), Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn

Jón Hallur Pétursson

Séra Pétur og Dómhildur - safn
Á þessari mynd eru þau ungu hjónin Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sitjandi í sófa ásamt óþekktri konu með kött. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason041
Kristín Lúðvíksdóttir í Steinholti. Myndin líklega tekin 1963.
Séra Pétur og Dómhildur - safn

Þetta fólk kom allt að sýningum á leikritinu: Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi veturinn 1981. Aftast eru leikararnir Magnús B. Jónsson til vinstri og Jón Hallur Pétursson til hægri. Í miðröð frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Ardís Ólöf Arilíusdóttir hvíslari, Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný), Guðný Sigurðardóttir, Árni Geir Ingvarsson ljósamaður og Elín Njálsdóttir. Fremst eru frá vinstri: Helga Ottósdóttir, sem sá um leikskrá sýningarinnar og var jafnframt formaður Leikklúbbsins á þessum tíma, Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) sá um smink og hárgreiðslu og Saga Jónsdóttir leikstjóri.

Guðmundur Guðnason037
Barnið á myndinni er Þórður Kristinn Jóhannsson , Doddi, dóttursonur Þórðar Jónssonar skátaforingja á Skagaströnd. Myndin er líklega tekin 1963.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 586
Skógræktarfólk á Skagaströnd að planta nokkrum öspum sunnan við Spákonuhofið 18. október 2014. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Ari Þórsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, óþekktur, Guðrún Pálsdóttir og Kristín Björnsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 11
Myndin var tekin á sjómannadegi kringum 1970. Lengst til hægri er Jón Ingi Ingvarsson jakkafataklæddur með mjótt bindi. Aftan við hann vinstra megin við lögregluþjóninn er Bernódus Ólafsson (d.1.9.1996). Maðurinn með húfu, yfirvaraskegg, gleraugu og hendur í vösum er Gunnlaugur Björnsson (d. 8.5.1978) frá Harrastöðum. Brosmildi maðurinn vinstra megin við hinn lögregluþjóninn er Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988) og strákurinn til vinstri með gleraugun, sem horfir á ljósmyndarann, er Guðmundur Viðar Guðmundsson. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 798
Jólasveinar koma í heimsókn í jólakaffi hjá eldri borgurum í Fellsborg 17. desember 2007. Frá vinstri: Guðríður Líneik Daníelsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Margrét Matthildur Björnsdóttir, Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012) og Jónína Valdimarsdóttir. Jólasveinarnir eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Jón Hallur Pétursson og Guðný Sigurðardóttir í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér. Leikklúbbur Skagastrandar sýndi leikritið undir stjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007) bjó lengst af á Akri (Hólabraut 13), sjómaður og ljósmyndari.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 534
Hjónin Guðjón Sigurðsson aðstoðarskólastjóri við Höfðaskóla og Vera Valgarðsdóttir skólastjóri skólans 2014 - 2019. Myndin var tekin í september 2014.
Árni Geir Ingvarsson - safn

Þesi mynd sýnir starfsfólk Kaupfélags Húnvetninga á óþekktum tíma. Í aftari röð frá vinstri: Þorlákur Jakobsson (d. 25.7.1975), Ásgeir Blöndal (d. 1.2.1968) Blöndubakka, Tómas R. Jónsson (d. 10.5.1986), tveir óþekktir, Sæmundur Pálsson klæðskeri frá Akureyri, Kristinn Magnússon (d. 26.11.1979) frá Kleifum ( var útibússtjóri búðarinnar fyrir innan á) og óþekktur drengur. Í fremri röð frá vinstri: Magdalena Björnsdóttir (d. 6.5.1986), Ásta Tómasdóttir, Jón Baldurs (d. 1.8.1971) sem þá var kaupfélagsstjóri, Theódóra Arndís Berndsen (d. 25.1.2007), Bryndís Þorvaldsdóttir og Sigríður Indriðadóttir (d. 6.11.1983). Árið 1936 tók til starfa karlmannafata-saumastofa í kjallara kaupfélagshússins eins og fram kemur í ritinu: "Húnaþing 1" í grein eftir Pétur Ólason frá Miðhúsum. Saumastofunni veitti Sæmundur forstöðu og þar unnu þær Magdalena og Sigríður.

Guðmundur Guðnason749
Guðmundur Jón Björnsson frá Jaðri.
Ólafur Bernódusson1016
Vinnuflokkur tyllir sér niður í tilefni af reisugilli þjónustuhússins sem þeir byggðu á tjaldstæðinu. Myndin var tekin í júlí árið 2000. Karlarnir eru frá vinstri: Helgi Gunnarsson verktaki, Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), Gunnar Helgason, Sigurður Björnsson, Baldvin Hjaltason, Árni Halldór Eðvarðsson, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) og Hrólfur Pétursson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn

Þessar prúðbúnu konur eru frá vinstri: Elsa Geirlaugsdóttir Efri Lækjardal, Karla Helgadóttir (d. 25.9.1986) Ásbergi, Skagaströnd, Soffía Sigurðardóttir (d. 24.10.2002) Njálsstöðum (seinna Sæbóli, Skagaströnd) og Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) Skagaströnd (áður Höskuldsstöðum). Tilefni myndatökunnar er óþekkt.

Ólafur Bernódusson 847
Landsbankahlaup var haldið á hverju vori í nokkur ár við útibú bankans á Skagaströnd. Á myndinni eru keppendur og gestir að fylgjast með 5. maí 2007. Frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Sigríður Stefánsdóttir með son sinn Ólaf Halldórsson í fanginu, Magnús Guðmannsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Róbert Freyr Gunnarsson með son sinn Dag Frey Róbertson í fanginu, Dagný Marín Sigmarsdóttir, óþekkt og Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 589
Sjálfboðaliðar Rauða kross deildarinnar á Skagaströnd 19. október 2014 í Höfðaskóla. Ekki er vitað af hvaða tilefni myndin var tekin en konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Sigurlaug Lára Ingimundardóttir (fremst), Guðrún Magnúsdóttir (í miðið), Ásthildur Guðmundsdóttir (aftast), Sigrún Líndal Þrastardóttir, Kristín Birna Guðmundsdóttir, Jensína Lýðsdóttir (nær), Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir (fjær), Þórunn Bernódusdóttir og barn. Ef þú veist tilefni myndatökunnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason901
Örn Berg Guðmundsson (Assi) sem ólst upp í Höfðabrekku.
Guðmundur Guðnason833
Systkynin Hafþór Smári Gylfason og Guðbjörg Gylfadóttir.
Guðmundur Guðnason679
Fermingarmynd af Önnu Guðmannsdóttur frá Vindhæli.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 717
17. janúar 2015 steiktu foreldrar og velunnarar barna í Höfðaskóla kleinur í eldhúsinu í skólanum. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir skólasfélagið til að unglingarnir kæmust í vorferðalag til útlanda að skóla loknum. Vinstra megin við borðið eru: baksvipir Lilju Daggar Hjaltadóttur og móður hennar Guðlaugar Grétarsdóttur, Einar Haukur Arason og Halldór Gunnar Ólafsson. Hægra megin við borðið eru frá vinstrI: Hallbjörg Jónsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, baksvipir Sigríðar Stefánsdóttur og Hrafnhildar Jóhannsdóttur og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þetta eru systkinin Arnar Haukur Ómarsson og Fjóla Sigurbjörg Ómarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 600
Hefð er fyrir því á Skagaströnd að kór sjómanna syngur við messu á sjómannadegi. Þessi mynd var tekin í Hólaneskirkju á sjómannadegi 2014. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir stjórnandi kórsins situr við píanóið. Hinir hljóðfæraleikararnir eru: Unnar Leví Sigurbjörnsson, næst okkur, Fannar Viggósson í miðjunni og Guðmundur Egill Erlendsson fjærst. Í fremri röð í kórnum eru frá vinstri: Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Árni Halldór Eðvarðsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Ragnar Már Björnsson, Gísli Reynisson, Stefán Jósefsson og Jóhann Hafsteinsson. Aftari röð frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Sigurjón Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Bernódusson, Þórarinn Grétarsson, Gylfi Sigurðsson og Hafþór Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) Akri (Hólabraut 13) ásamt dætrum sínum, Björg Ólafsdóttir (d. 1.3.2007) er til vinstri og Karítas Laufey Ólafsdóttir til hægri. Myndin var tekin í 85 ára afmæli Þórunnar 16. maí 1976.
Guðmundur Guðnason089
Íris Sveinbjörnsdóttir fyrrverandi eiginkona og barnsmóðir Jónasar Skaftasonar (d.17.11.2017)
Guðmundur Guðnason013
Mennirnir á myndinni eru óþekktir og einnig staðurinn sem þeir eru á. Ef þú þekkir mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason336
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson með fermingardrengnum Kristjáni Karlssyni í Hólaneskirkju eldri vorið 1980.
Axel Jóhann Hallgrímsson 66
Myndin var tekin á árshátíð Skagstrendings hf haustið 1983 í Fellsborg. Á henni eru Sigurbjörn Kári Lárusson til vinstri, Egill Bjarki Gunnarsson í miðið og Guðrún Guðmundsdóttir til hægri.
Axel Jóhann Hallgrímsson 44
Sumarið 1987 fóru starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf í ferð til Austurríkis og Þýskalands. Þessi mynd var tekin í bjórstoppi á ókunnum stað. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017), Árni Ólafur Sigurðsson, Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017) og Hlíf Sigurðardóttir.
Guðmundur Guðnason865
Sigurður Bjarnason á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason741
Strákurinn til hægri er Ástmar Kári Ástmarsson en Davíð Davíðsson sumardrengur að Núpi í Laxárdal er til vinstri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Bræðurnir Jón Hallur Pétursson og Pétur Ingjaldur Pétursson. Pétur vinnur landafræðiverkefni fyrir skólann og nýtur aðstoðar bróður síns en kisi lætur fara vel um sig.
Guðmundur Guðnason077
Systurnar Dagný Marín Sigmarsdóttir til vinstri og Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 894
Myndin var tekin 11. desember 2007 í Höfðaskóla þar sem jólaundirbúningur stóð sem hæst. Frá vinstri: Sæþór Bragi Ágústsson, Sara Rut Fannarsdóttir og Herdís Baldvinsdóttir kennari.
Guðmundur Guðnason852
Áslaug Jónsdóttir Hólanesi og Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý) Blálandi. Báðar fæddar 1943. Myndin líklega tekin sumarið 1958.
Guðmundur Guðnason811
Hrefna Þorbjörnsdóttir frá Akurgerði á fermingardaginn 1962
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson vorið 1968 (fæddur 1959).
Guðmundur Guðnason310

Þessi mynd er tekin í hringferð um landið sumarið sem hringvegurinn opnaði (1974). Ferðast var í tveim rútum í boði fyrirtækja Guðmundar Lárussonar. Á myndinni eru, í fremstu röð frá vinstri: Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Elísabet Árnadóttir, Ása Jóhannsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson, Axel Jóhann Hallgrímsson, Ómar Jakobsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir, Magnús Margeirsson, Stefanía Guðjónsdóttir, Friðbjörg Oddsdóttir og Hjalti Skaftason. Standandi frá vinstri: Rúnar Gíslason bílstjóri frá Sleitustöðum í Skagafirði, Már Hall Sveinsson, óþekkt, óþekkt, Jón Jónsson, María Magnúsdóttir, óþekktur, Margrét ?, Eðvarð Jóhannesson, óþekktur, Sigurður Bjarnason, Guðrún Angantýsdóttir, Indriði Hjaltason, Birgir Árnason, Inga Þorvaldsdóttir, Kristófer Árnason, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Jóninna Pálsdóttir, Sigmar Jóhannesson, Kristín Björnsdóttir, Laufey Sigurvinsdóttir, Árni Max Haraldsson og Jón Þorgeirsson. Ef þú þekkir einhverja fleiri á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.

Guðmundur Guðnason873
Steinunn Margrét Ellertsdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Axel Jóhann Hallgrímsson 125
Myndin var tekin 25. september 1992. Ekki er vitað hvar myndin var tekin né hvert tilefnið var en á henni eru frá vinstri: Reynir Lýðsson, Arnar Arnarsson, Rúnar Loftsson og Jón Gunnarsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn

Frá vinstri: Elísabet Sigurgeirsdóttir Blönduósi, María Jónsdóttir (Dadda) frá Húnsstöðum og Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) Skagaströnd.

Árni Geir Ingvarsson - safn
Systurnar Halla Björk Víðisdóttir til vinstri og Ester Ösp Víðisdóttir til hægri á stéttinni framan við heimili sitt á Mánabraut 7.
Guðmundur Guðnason057
Helga Guðmundsdóttir Hólabraut 25. Myndin sennilega tekin kringum 1960.
Axel Jóhann Hallgrímsson 40
Starfsmenn og stjórn Skagstrendings hf fóru saman til Austurríkis og Þýskalands sumarið 1987. Þá var þessi mynd tekin af hluta hópsins. Frá vinstri: Jón Ingi Ingvarsson, Gylfi Sigurðsson, Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Birgir Þórbjarnarson, Guðrún Garðarsdóttir, Ingibjörg Skúladóttir, Hjörtur Guðbjartsson og Þórarinn Grétarsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Bræðurnir Pétur Ingjaldur Pétursson til vinstri og Jón Hallur Pétursson til hægri. Myndin var tekin um miðbik áttunda áratugarins.
1

51
52
53

79
Leita í myndasafninu
Leita