Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Bræðurnir Pétur Ingjaldur Pétursson til vinstri og Jón Hallur Pétursson til hægri. Myndin var tekin um miðbik áttunda áratugarins.
Guðmundur Guðnason733
Ingvar Ástmarsson með litla bróður sinn Ástmar Kára Ástmarsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<P>Þetta fólk kom allt að sýningum á leikritinu: Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi veturinn 1981. Aftast eru leikararnir Magnús B. Jónsson til vinstri og Jón Hallur Pétursson til hægri. Í miðröð frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Ardís Ólöf Arilíusdóttir hvíslari, Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný), Guðný Sigurðardóttir, Árni Geir Ingvarsson ljósamaður og Elín Njálsdóttir. Fremst eru frá vinstri: Helga Ottósdóttir, sem sá um leikskrá sýningarinnar og var jafnframt formaður Leikklúbbsins á þessum tíma, Guðbjörg Viggósdóttir (Gógó) sá um smink og hárgreiðslu og Saga Jónsdóttir leikstjóri. </P>
Arnar HU 1 - safn 89
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var fyrir hittingnum í Fellsborg . Á myndinni eru Guðjón Guðjónsson og dóttir hans Bergþóra Guðjónsdóttir sitjandi við borðið. Milli þeirra er Guðbjörg Ólafsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) sóknarprestur á Skagaströnd í 41 ár.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Systurnar Björg Ólafsdóttir (d. 1.3.2007) til vinstri og Karítas Laufey Ólafsdóttir fá sér molakaffi í eldhúsinu á Bogabraut 16.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 826
Karl Berndsen yngri spjallar við Guðbjörgu Ólafsdóttur í byrjun júlí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 526
Myndin var tekin í mars 2014 við dráttarbrautina. Á henni spjalla hjónin Guðrún Soffía Pétursdóttir og Guðjón Guðjónsson til vinstri við Jón Gunnarsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Dómhildur Jóndóttir (d. 18.10.2012) les upp á ókunnum stað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 656
Krakkarnir á myndinni láta snjókomu 4. desember 2014 ekki trufla sig við að nota símana sína útivið. Krakkarnir eru frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Victoría Sif Hólgeirsdóttir og óþekkt stúlka.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið leikritið: Stalin er ekki hér veturinn 1981. Leikstjóri var Saga Jónsdóttir. Á þessari mynd eru, frá vinstri, leikararnir: Guðný Sigurðardóttir, Magnús B. Jónsson, Elín Njálsdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný).
Árni Geir Ingvarsson - safn
Fólkið sem situr á tröppunum á Suðurvegi 3 er: aftast situr Þórunn Bernódusdóttir eigandi hússins, fyrir framan hana er Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996). Anna Sjöfn Jónasdóttir situr með systur sína Kristbjörgu Unu Guðmundsdóttur en þær eru dætur Þórunnar. Fyrir aftan þær hægra megin er Rebekka Laufey Ólafsdóttir og lengst til hægri er Anna H. Aspar (d. 1.9.1999). Fremst til vinstri er Bára Kristinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 641
Myndin var tekin á skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg 1. dember 2014. Hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir og Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) borða rjómatertu fremst á myndinni. Í baksýn er Sigríður Stefánsdóttir til vinstri. Magnús B. Jónsson horfir til hægri í átt að og bræðrunum Ólafi Halldórssyni og Páli Halldórssyni sem er í grárri hettupeysu.
Guðmundur Guðnason847
Jakob Þorsteinsson í Sæbóli með börnin sín. Frá vinstri: Sigríður Jakobsdóttir, Ísleifur Ólafur Jakobsson og Þorsteinn Magnús Jakobsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 645
23. júní 2014 var formlega opnuð göngubrú yfir Hrafná. Við það tækifæri var haldin Jónsmessubrenna og spákonurnar í Spákonuhofinu fluttu gjörning með aðstoð viðstaddra. Kuflklæddar spákonurnar eru Dagný Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri. Krakkarnir eru búnir að raða sér kringum eitthvert tákn sem þær gerðu á jörðina og fleiri fylgjast með. Brennan er í fullum gangi í baksýn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 729
Mæðginin Karitas Ólafsdóttir og Þórinn Brynjar Ingvarsson á þorrablóti á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný), sitjandi, og Guðný Sigurðardóttir í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Guðmundur Guðnason877
Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir) á fermingardaginn sinn 1961.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 642
Myndin var tekin á skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg 1. desember 2014. Á henni eru hjónin Ragnheiður Sigurjónsdóttir og Helgi Gunnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 818
Myndin í Bjarmanesi var tekin við undirskrift samnings um stofnun listamiðstöðvarinnar Nes 6. mars 2008. Magús B. Jónsson sveitarstjóri skrifar undir en hjá honum er óþekktur fulltrúi Byggðastofnunar, sem tók þátt í stofnun listamiðstöðvarinnar. Aftan við þá stendur fólk úr stjórn miðstöðvarinnar, frá vinstri: Steindór Rúberg Haraldsson, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Signý Richter.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Björg Ólafsdóttir (f. 18.10. 1924 - d. 1.3.2007).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 594
Fólk streymir út úr kirkjunni eftir fermingarmessu 24. maí 2014. Séra Bryndís Valbjörnsdóttir stendur í kirkjudyrum. Aðrir eru frá vinstri: Sigurður Björnsson sem ekur syni sínum Brynjari Sigurðssyni í hjólastól, óþekktur, Freydís Kristjánsdóttir, Ingibjörg María Reynisdóttir og Sindri Freyr Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 639
Myndin var tekin 1. desember 2014 á skólauppákomu Höfðaskóla í Fellsborg. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson með son sinn Sæþór í fanginu. Við hlið þeirra eru foreldrar Guðmundar, Stefán Jósefsson og Sigríður Gestsdóttir. Lengst til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Rúnar Ingvarsson um fermingaraldurinn (1963)
Guðmundur Guðnason304
Systkinin Óskar Óskarsson og Gígja Óskarsdóttir frá Ásholti á gönguferð á Höfðanum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessu prúðbúnu börn eru frá vinstri: Sonný Lísa Þorbjörnsdóttir, Helga Dröfn Melsteð og Þröstur Þorbjörnsson.
Guðmundur Guðnason035
Jósef Stefánsson (Jobbi) (d.9.12.2001) í Reykholti ættaður frá Kambakoti.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 172
Skagaströnd skiptist óformlega í innbæ og útbæ. Á myndinni, sem líklega var tekin kringum 1958 framan við Höfðabrekku (Bankastræti 10), eru nokkrir krakkar úr útbænum. Frá vinstri: óþekkt stúlka, Vigfús Elvan Friðriksson (d.7.12.2001), óþekktur strákur, Ólöf Jóhanna Smith (Lólý), Árni Björn Ingvarsson, Heiðar Elvan Friðriksson, Örn Berg Guðmundsson (Assi), Ólafur Bernódusson og Steindór Haraldsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 204
Eftir að hafa unnið í bæjarvinnunni yfir sumarið fóru krakkarnir með leiðbeinendum sínum um haustið í Kántrýbæ og borðuðu saman hamborgara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 2012 eða 2013. Frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Geir Arnarsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 846
Þessi mynd var tekin í Fellsborg 30. ágúst 2007. Ekki er vitað hvert tilefnið var en tónlistarfólkið er, frá vinstri: Þórarinn Grétarsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Hafþór Smári Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Á myndinni eru frá vinstri: Halla Björg Bernódusdóttir, Ari H. Einarsson og Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) Akri (Hólabraut 13). Halla og Ari eru hjón en Þórunn er föðuramma Höllu. Myndin var tekin í 85 ára afmæli Þórunnar 16. maí 1976.</p>
Axel Jóhann Hallgrímsson 7
Myndin var tekin á sjómannadegi einhvertíma á sjöunda áratugnum yfir planið hjá Hafnarhúsinu. Eins og sjá má var söltuð síld á planinu því síldarkassarnir eru þarna ennþá. Rörið sem flutti mjölið yfir í mjölskemmuna er enn til staðar þegar myndin var tekin og á bílaplaninu er nokkra "drossíur".
Ólafur Bernódusson 774
Myndin var tekin 23. apríl 2010 þegar Rannsóknarsetur Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra var formlega opnað í gamla kaupfélaginu á Skagaströnd. Viðstödd voru, meðal annarra, ráðherrar, rektorar háskólanna og ýmsir ráðamenn úr heimabyggð. Fyrsti forstöðumaður setursins, Lára Magnúsardóttir, er fjórða frá hægri í fremstu röð.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Fermingarbörn 1973 í Hólaneskirkju (eldri) með prestinum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996). Frá vinstri: Ragnar Högnason, Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Hörður Jónasson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús Bjarni Blöndal (d. 7.9.2001), Gréta Ingvarsdóttir, séra Pétur, Jóhann Grímsson, Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020), Lilja Guðjónsdóttir, Adolf H. Berndsen og Guðrún Ágústsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 534
Hjónin Guðjón Sigurðsson aðstoðarskólastjóri við Höfðaskóla og Vera Valgarðsdóttir skólastjóri skólans 2014 - 2019. Myndin var tekin í september 2014.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Þessi mynd var tekin í Höfðaskóla af sönghópi ungra stúlkna á einhverri skemmtun þar. Myndin var tekin 1967 - 1968. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Þorleifsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Lára Guðmundsdóttir, Sigríður Birna ? , Elsa Lára Blöndal, Lára Bylgja Guðmundsdóttir og Sigrún Lárusdóttir sem leikur undir á gítar. Ef þú manst hvers dóttir Sigríður Birna er, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason324
<P>Einar Þór Ásgeirsson frá Litla Felli.</P>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 587
Skógræktarfólk á Skagaströnd plantar nokkrum öspum sunnan við Spákonuhofið 18.október 2014. Fólkið er, frá vinstri: Ari Þórsson, Kristín Björnsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Bjarni Bragi Bessason og móðir hans, Jóhanna Karlsdóttir.
Guðmundur Guðnason169
Valgarður Bertelsson
Guðmundur Guðnason338
Fermingarbörn 1980 í Hólaneskirkju eldri. Frá vinstri í fremstu röð: Þórhildur Jakobsdóttir, Sæbjörg Drífa Kristjánsdóttir, Agnes Sævarsdóttir og Vala Rós Ingvarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Orri Sveinbjörnsson Blöndal, Guðjón Árnason og Kristján Karlsson. Aftasta röð frá vinstri: Jóhannes Sveinsson, Ari Þórsson, Einar Ásgeirsson, Þröstur Sigurðsson, Guðfinnur Bjarni Ottósson, Víðir Ólafsson og Fritz Hendrik Berndsen.
Guðmundur Guðnason289
Ef þú þekkir hvaða fólk þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Helgi Gunnarsson sem ungur drengur í útreiðartúr á rugguhesti á pallinum við heimili sitt í Stórholti (Bankastræti 3).
Ólafur Bernódusson 736
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir á leið í Reykjarfjörð nyrðri í 100 ára afmæli mæðginanna Guðrúnar Pálsdóttur (60 ára) og Halldórs Gunnars Ólafssonar (40 ára) 22. júní 2012.
Guðmundur Guðnason881
Fermingarbörn 1965 ganga til kirkju með prestinum, séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Stúlkurnar fremst á myndinni eru Ragnheiður Sigurjónsdóttir (til hægri) og Kristín Björnsdóttir. Næstir fyrir aftan þær koma Björn Bragi Sigmundson og Kristófer Einarsson. Aftast í hópnum eru, talið frá vinstri: Sigurður Kristinsson, Reynir Sigurðsson og Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 789
Fólk teygir á líkamanum í Hornvík eftir langa göngu á Hornbjargið 22. júlí 2010. Á myndinni eru tvenn hjón: Lára Guðmundsdóttir og Gunnar Svanlaugsson til vinstri og Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir til hægri. Fólkið var í hópi Skgastrendinga sem gengu um Hornstrandir í júlí 2010.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Kirkjan á þessari mynd er eldri kirkjan að Höskuldsstöðum, sem nú hefur verið fjarlægð. Fólkið framan við kirkjuna er, frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996), konan hans Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012), Kristín Mýrdal Karlsdóttir og Jón Hallur Sigurbjörnsson foreldrar Dómhildar og óþekktur.</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 715
Fólkið á miðri mynd var í dómnefnd á grímuballi Höfðaskóla 18. febrúar 2015 í Fellsborg. Til vinstri með tvöföld gleraugu er Trostan Agnarsson kennari. Í miðið er óþekkt listakona úr Nes listamiðstöðinni og til hægri er doktor James Kennedy.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hjördís Bára Gestsdóttir með óþekkt barn í fanginu
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Pétur Ingjaldur Pétursson æfir sig á gítar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 724
Þorrablót á hjúkrunarheimilinu Sæborg 24. janúar 2015, heimilisfólk og gestir. Vinstra megin við borðið nær okkur eru: Signý Richter, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Pétur Eggertsson og Sylvía Hrólfsdóttir. Hægra megin við borðið talið inn eftir borðinu: Ingibergur Guðmundsson, Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018), Adolf H. Berndsen, þrír óþekktir og Lýður Hallbertsson. Við borðið fjær okkur eru vinstra megin: Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018), Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og Sigurjón Ástmarsson. Hægra megin við borðið eru talið inn eftir borðinu: tvær óþekktar konur, Jökulrós Grímsdóttir og tveir óþekktir gestir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 665
Jólatónleikar kirkjukórs Hólaneskirkju í kirkjunni 17. desember 2014. Hugrún Sif Hallgrímsdóttir sjórnar og leikur á píanó.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Barnið á myndinni er óþekkt. Myndin var líklega tekin utan við Sunnuhvol (Sunnuvegur 1). Ef þú þekkir barnið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. </p>
Guðmundur Guðnason915
Óþekktu barn með kött. Ef þú þekkir barnið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason719
Afhending verðlauna fyrir sigur í kappróðri í unglingaflokki. Gunnar Sveinsson stýrimaður strákanna er lengst til vinstri, Ingvar Jónsson kynnir sjómannadagsins afhendir verðlaunin með hjálp Björgvins Jónssonar sem er lengst til hægri á myndinni. Ari Ólafsson er strákurinn fyrir miðri mynd með hendur í vösum og við hlið hans er Skúli Bjarnason með rautt hár. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason895
Gísli Snorrason í mars 1962
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þórarinn Brynjar Ingvarsson hallar sér hér upp að Lödu bifreið föður síns. Myndin var tekin utan við Héraðshælið á Blönduósi einhverntíma á áttunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 764
Heiðrún Tryggvadóttir kennari með umsjónarbekkinn sinn í íþróttahúsinu 19. apríl 2007. Frá vinstri: Brynjar Max Ólafsson, óþekktur, Sara Rut Fannarsdóttir, Sonja Ólafsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, óþekkt, Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir, Alex Már Gunnarsson og Heiðrún. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
larus030
Myndin var tekin í október 1991 í hófi í Fellsborg í tilefni af vígslu Hólaneskirkju. Á henni spila saman fyrir gesti, Julian Hewlett á píanó og Skarphéðinn Einarsson á trompet.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri í hlutverkum sínum í sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Stalin er ekki hér undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Leikritið var sýnt veturinn 1981.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<P>Hjónin séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) á tröppunum á óþekktri kirkju. </P>
1
…
52
53
54
…
79
Leita í myndasafninu
Leita