Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessu prúðbúnu börn eru frá vinstri: Sonný Lísa Þorbjörnsdóttir, Helga Dröfn Melsteð og Þröstur Þorbjörnsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Á myndinni eru frá vinstri: Halla Björg Bernódusdóttir, Ari H. Einarsson og Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) Akri (Hólabraut 13). Halla og Ari eru hjón en Þórunn er föðuramma Höllu. Myndin var tekin í 85 ára afmæli Þórunnar 16. maí 1976.</p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Þessi mynd er af séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d. 1.6.1996) sem smábarni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 204
Eftir að hafa unnið í bæjarvinnunni yfir sumarið fóru krakkarnir með leiðbeinendum sínum um haustið í Kántrýbæ og borðuðu saman hamborgara. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið 2012 eða 2013. Frá vinstri: Eymundur Lórens Grétarsson, Páll Halldórsson, Birkir Freyr Gunnarsson, Geir Arnarsson, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Linda Rún Einarsdóttir og Anton Þór Einarsson.
Guðmundur Guðnason681
Fermingarmynd af Aðalheiði Másdóttur frá Réttarholti
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 677
Þessar ungu stúlkur úr vinnuskólanum eru að leggja af stað frá áhaldahúsinu til að fegra bæinn með litskrúðugum blómum. Myndin var tekin 20. júní 2014. Á myndinni eru frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, óþekkt, Ellen Lind Sigurjónsdóttir og Eva Dís Gunnarsdóttir.
Axel Jóhann Hallgrímsson 89
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Karl Berndsen (d.12.2.1995) og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Guðmundur Guðnason019
Hver er þessi maður? Ef þú veist það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 811
Myndin var tekin 13. júní 2007 þegar fólk var að undirbúa sig fyrir hjólreiðakeppni á vegum umf Fram. Á myndinni eru frá vinstri: Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Daði Snær Stefánsson sonur hennar, Stefán Sveinsson maður hennar. Dökkhærði strákurinn á hjólinu er Elmar Jóhann Grétarsson, konan í bleiku peysunni er Vigdís Elva Þorgeirsdóttir, Péturína Jakobsdóttir er í rauðri peysu og strákurinn með hjálminn er Birkir Freyr Gunnarsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011) frá Vík með dótturson sinn, Ágúst Má Guðmundsson í fanginu. Myndin var tekin 1971 fyrir utan heimili Sigríðar Ágústsdóttur dóttur Guðnýjar og manns hennar Guðmundar Þ. Guðmundssonar á Laugateigi 9 í Reykjavík.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Skarphéðinn Einarsson frá Dagsbrún.
Guðmundur Guðnason039
Sófus Siglaugur Guðmundsson bóndi í Skrapatungu í Laxárdal fæddur 14. apríl 1926 og dáinn 2. ágúst 1991 .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 812
Systkinin Guðrún Sigurðardóttir og Gylfi Sigurðsson á spjalli við bróðurdóttur sína Aðalheiði Sif Árnadóttur í júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Guðrún Brynhildur Árnadóttir (d.1.12.1967) með Árna Geir Ingvarsson rúmlega árs gamlan árið 1964.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Jón Ingi Ingvarsson frá Sólheimum á barnsaldri.
Guðmundur Guðnason799
Ómar Másson frá Réttarholti á fermingardaginn 1970
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1050
Myndin var tekin eftir að Þórbjörn Jónsson (d.22.11.1996) til vinstri og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.208) til hægri höfðu skírt björgunarbátinn Þórdísi á sjómannadegi líklega kringum 1990. Báðir voru þessir heiðursmenn lengi virkir í starfi Slysavarnafélagsins og björgunarsveit þess en Þórdís tilheyrði félaginu.
Guðmundur Guðnason246
Ólafur Ásgeirsson á fermingardaginn sinn.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin né hvenær. Frá vinstri: Georg Rafn Hjartarson (d.13.9.2001) frá Vík, Árni Max Haraldsson og Ólafur Magnússon.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 714
Grímuball á vegum Höfðaskóla 18. febrúar 2015 í Fellsborg. Foreldrar með grímubúin börn sín í fanginu.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd eru hjónin Aðalbjörg Sigurðardóttir (1930-2015) og Þorbjörn Jónsson (1922 -1986) frá Akurgerði (Hólabraut 9) með 11 af 13 börnum sínum á fermingardegi Heiðdísar Þorbjörnsdóttur(1957). Aftari röð frá vinstri: Þráinn Þorbjörnsson(1955), Sigurður Þorbjörnsson(1953), Ísleifur Þorbjörnsson(1951), Guðbjörg Þorbjörnsdóttir(1949), Hrefna Þorbjörnsdóttir(1948) og Ómar Þorbjörnsson(1946-2021). Fremri röð: Heiðdís Þorbjörnsdóttir(1957), Kristjana Þorbjörnsdóttir(1959), Aðalbjörg, Sonný Lísa Þorbjörnsdóttir(1964), Heiðrún Þorbjörnsdóttir(1960), Þorbjörn og Þröstur Þorbjörnsson(1962). Á myndina vantar Hallbjörn Þorbjörnsson (1954)og Valborgu Þorbjörnsdóttur(1950). Myndin var tekin eftir að fjölskyldan var flutt í Kópavog.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Á þessari mynd eru bræðurnir Vigfús Elvan Friðriksson (d. 7.12.2001) til vinstri og Heiðar Friðriksson til hægri. </p>
Ólafur Bernódusson 740
Þessi hópur fór í afmæli í Reykjarfjörð nyrðri 22. - 24. júní 2012 með Öldunni Hu 112 . Standandi lengst til vinstri eru Ernst Guðni Hólmgeirsson háseti og Sigurjón Guðbjartsson skipstjóri á Öldunni. Krjúpandi frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, óþekkt listakona, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Ólafur Halldórsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Páll Halldórsson, Sigríður Sefánsdóttir og Guðrún Pálsdóttir afmælisbarn (60 ára). Standandi frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Karl Guðmundsson, Melody Woodnut, óþekktur, Svana Lára Hauksdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson afmælisbarn (40 ára), Stefán Ægir Lárusson, Inga Fjóla Sigurðardóttir, Ólafur Bernódusson, óþekktur listamaður, Soffía Magnúsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Jakob Kasper með börnin sín tvö Zelia Kasper og Lazer Kasper.
Guðmundur Guðnason188
Óþekktar stúlkur í óþekktri kirkju. Ef þú þekkir stúlkurnar eða kirkjuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 983
Fallbyssan skoðuð eftir að skotið var úr henni 30. maí 2008. Frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, óþekktur, Hallbjörn Björnsson, Stefán Jósefsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Lilja Dögg Hjaltadóttir og Hjalti Reynisson situr á hækjum sér. Maðurinn sem er að kíkja gegnum hlaupið er líklega Finnur Kristinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 173
Fermingarbörn sem fermd voru í Hólaneskirkju vorið 2001 með sóknarprestinum. Fremri röð frá vinstri: séra Magnús Magnússon, Rósa Björk Einarsdóttir, óþekkt stúlka, Albert Ingi Haraldsson, Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen og Ásdís Adda Ólafsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Hanna Rúna Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Sindri Njáll Hafþórsson og Eyþór Kári Egilsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Karítas Laufey Ólafsdóttir sem ung kona. Ekki er vita hvar eða hvenær myndin var tekin en sennilega var það á fimmta áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 846
Þessi mynd var tekin í Fellsborg 30. ágúst 2007. Ekki er vitað hvert tilefnið var en tónlistarfólkið er, frá vinstri: Þórarinn Grétarsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Hjörtur Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Hafþór Smári Gylfason.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<P>Hjónin séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) á tröppunum á óþekktri kirkju. </P>
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Jón Hallur Pétursson og Guðný Sigurðardóttir í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi undir stjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Frá vinstri: Ólafur Guðmannsson, Jón Hallur Pétursson, séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Anna Kristjánsdóttir og Ragnheiður Magnúsdóttir á fermingardaginn sinn 1973 í Höskuldsstaðakirkju.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Á þessari mynd eru þrjú systkini ásamt eiginkonu eins þeirra. Frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Amy Eva Eymundsdóttir (d. 7.3.2012) kona hans, Kristján Hjartarson (d. 2.8.2003) og Guðný Hjartardóttir (d. 14.3.2011). Myndin var tekin 1975 eða 1976.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri í hlutverkum sínum í sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Stalin er ekki hér undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Leikritið var sýnt veturinn 1981.
Guðmundur Guðnason059
Dóróthea Hallgrímsdóttir (d.17.10.2004) á Hólanesi með eitt af börnum sínum og Sigurðar Magnússonar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1119
Á Kántrýhátíð 13. ágúst 2009 flaug flugvél yfir íþróttavöllinn og úr henni var dreift karamellum við miklar vinsældir viðstaddra sem hlupu um og tíndu upp góðgætið.
Arnar HU 1 - safn 104
Áhöfn Arnars HU 1 stillir sér upp til myndatöku 27. júlí 2003. Krjúpandi eru frá vinstri: Gunnar Helgason, Gunnar Reynisson, Brynjar Pétursson, óþekktur, Þröstur Árnason, Finnur Kristinsson, Bæring Skarphéðinsson, Grétar Smári Hallbjörnsson og Ágúst Ómarsson. Standandi frá vinstri: Kristján Karlsson, Ingvar Þór Jónsson, Valdimar Björnsson, Hólmgeir Kristmundsson, Björn Sigmundsson, Guðlaugur Hjaltason, Reynir Lýðsson, Tryggvi Hlynsson, óþekktur, Slavko Velemir, Stefán Sveinsson, Guðjón Guðjónsson og Svanur Árnason. Tilefni myndatökunnar er óþekkt en það er greinilega verið að halda upp á eitthvað með því að skála í freyðivíni.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Mynd frá sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Stalin er ekki hér undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981. Á myndinni eru leikararnir, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (Bonný) og Elín Njálsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Feðgarnir séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og sonur hans Jón Hallur Pétursson heima á jólum.
Ólafur Bernódusson 804
Hluti af kirkjukór Hólneskirkju á æfingu fyrir gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar. Myndin var tekin 29. apríl 2007. Frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Þórarinn Grétarsson, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) (nær), Eygló Amelía Valdimarsdóttir (fjær), Cristina Silod Yecyec, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (nær) og Inga Rós Sævarsdóttir (fjær).
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Næst okkur á fremsta bekk, í óþekktri kirkju, situr Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.01.2012). Milli hennar og sessunauts hennar, sem er óþekkt, sér í Jón Ísberg sýslumann (d. 24.6.2009). Karlmaðurinn á fremsta bekk er Vigfús Magnússon (d. 22.10.1987) frá Skinnastöðum og Lucinda Árnadóttir (d. 17.8.1996) kona hans við hlið hans. Ragnheiður Brynjólfsdóttir (d.?) er síðan út við gluggann. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 836
Á Kántrýdögum í ágúst 2008 var KK fenginn til að vera með busk-námskeið fyrir áhugasama (busk = tónlistarlegt uppistand). Með honum mættu á Skagaströnd Þorleifur Guðjónsson bassaleikari og Leo Gillespie sem var þekktur buskari á þessum árum. Margir mættu á námskeiðið með gítarana sína og nutu leiðsagnar þessara meistara en fóru svo út á götu og reyndu fyrir sér með hattinn sinn á götunni fyrir framan sig. Á myndinni er Leo lengst til vinstri, þorleifur stendur með bassann og KK - Kristján Kristjánsson - situr framan við hann með svartan hatt. Aðrir á myndinni eru áhugasamir nemendur þeirra þriggja.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<font face="Times New Roman">Aðalbjörg Sigurðardóttir og Þorbjörn Jónsson frá Akurgerði með Sonný Þorbjörnsdóttur, sem var yngsta barn þeirra.</font>
Guðmundur Guðnason105
Stór hópur Skagstrendinga fór um vestfirði 1973. Hópurinn var allur tengdur umsvifum Guðmundar Lárussonar (d.15.10.2002) á Skagaströnd á einhvern hátt. Á myndinni eru frá vinstri: Guðný Sigurðardóttir, Guðbjörg (Bugga) Kristinsdóttir og Guðmundur Haukur Sigurðsson um borð í Fagranesinu á leið frá Ísafirði inn Djúpið að Ögri.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Fermingarmynd tekin í Hólaneskirkju (eldri) af fermingarárgangi 1969. Fremsta röð frá vinstri: Elsa Lára Sveinbjörnsdóttir Blöndal, Anna Guðmannsdóttir, séra Pétur Þ. Ingjaldsson og Eygló Gunnarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Líney Jósefsdóttir, Aðalheiður Másdóttir, Lára Bylgja Guðmundsdóttir, Lára Guðmundsdóttir og Pálfríður Bjarnadóttir. Aftasta röð frá vinstri: Grímkell Pálsson, Indriði Grímsson, Arelíus Viggósson, Jón Ingvar Valdimarsson og Stefán Kristinsson. </p><p><br></p>
Guðmundur Guðnason252
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) frá Ægissíðu með vinum sínum í Ásholti. Frá vinstri: Jóhannes Óskarsson, Gígja Óskarsdóttir, Guðmundur og Óskar Óskarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.1.9.1996), Jósef Stefánsson (d.9.12.2001) og Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007). Sennilega er myndin tekin á árbakka einhversstaðar og þeir félagar að fylgjast með óþekktum veiðimanni.</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 733
28. janúar 2015 héldu krakkarnir í Höfðaskóla gala-kvöld í veitingahúsinu Borg. Krakkarnir sáu um undirbúning, hjálpuðu til við matreiðslu sáu um framreiðslu og frágang eftir máltíðina sem fjöldi fólks keypti sig inn á. Á myndinni eru krakkarnir að gera klárt fyir kvöldið. Frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson?, Anton Þór Einarsson, Sigurbjörg Sigurpálsdóttir, Victoria Hólmgeirsdóttir, Trostan Agnarsson kennari (fjær), Jóna Margrét Sigurðardóttir (nær), óþekkt og Sigurður Aron Björnsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson, sem liggur útaf, og Ólafur Bernódusson í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur veturinn 1981.
Guðmundur Guðnason845
Óþekktar stúlkur. Ef þú þekkikr einhverja þeirra vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 779
Myndin var tekin á sameiginlegu grilli við hátíðatjaldið á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Fólk kom með grillmat að heiman og grillaði á sameiginlegum grillum sem voru utan við tjaldið. Á myndinni eru, vinstra megin við borðið: séra Guðmundur Karl Brynjarsson, Kamilla Gísladóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Hægra megin við borðið eru: Halldór Gunnar Ólafsson, Hildur Ingólfsdóttir, Oddur Valdimarsson og Magnea Valdimarsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason033
Líney Jósefsdóttir í Reykholti.
Baldur Eðvarðsson - safn 14
Jörvi ÞH 300 í höfninni á Skagaströnd. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf líklega einhverntíma á áttunda áratugnum fyrir aðila á Húsavík.
Arnar HU 1 - safn 83
Skipsfélagar um borð í Arnari HU 1 á óþekktum tíma. Frá vinstri: Óskar Þór Kristinsson, Þröstur Árnason, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Sævar Berg Ólafsson, Elvar Freyr Aðalsteinsson og Gunnar Helgason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1049
Nokkur hópur fólks tók sig til og gekk á Spákonufellið á Jónsmessukvöldi 2009. Þar var hópurinn uppi á miðnætti og horfði þaðan á sólina snerta hafflötinn í norðri áður en hún tók að fikra sig aftur upp á himnafestinguna. Ólafur Benródusson hvílir sig á steini en Jón Ólafur Sigurjónsson nartar í harðfisk til hægri. Molduxinn gnæfir yfir í baksýn.
Guðmundur Guðnason839
Þetta er Klara Jónsdóttir frá Ártúnum. Dóttir Sigríðar Ólafsdóttur og Jóns Tryggvasonar. Nú er hún búsett á Bakkaflöt í Lýtingsstaðahrepp. Hennar maður er Sigurður Friðriksson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 774
Fjöldi barna og fullorðinna fylgist með sýningu brúðuleikhúss á hátíð í kofabyggðinni um miðjan ágúst 2008.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) flytur predikun í Hofskirkju.
Baldur Eðvarðsson - safn 13
Ásdís Hu 10 var fyrsti báturinn sem smíðaður var í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf árið 1971. Á myndinn bíður báturinn sjósetningar. Vegna lélegra myndgæða er ekki hægt að þekkja fólkið né börnin á myndinni.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Á þessari mynd, sem var tekin í Bankastræti, leiðir Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) langömmubarnið sitt, Önnu Sjöfn Jónasdóttur. Anna er, eins og sjá má, með glæsilegt mjólkurskegg. Húsin í baksýn eru Kárastaðir nær og Flankastaðir fjær. Bæði húsin er nú horfin en nýtt var byggt að Flankastöðum. Myndin var tekin kringum 1965.
Ólafur Bernódusson 787
Gönguhópur frá Skagaströnd á leið af Hornbjargi niður í tjaldbúðirnar í Hornvík 21. júlí 2010. Jörundur gnæfir yfir til hægri . Á myndinni eru frá vinstri: Guðbjörg Gylfadóttir, Haraldur Árnason, Ólafur Bernódusson, Amy Ósk Ómarsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Gunnar Svanlaugsson og Lára Guðmundsdóttir.
1
…
53
54
55
…
79
Leita í myndasafninu
Leita