Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason196
<P>Árni Másson frá Réttarholti heldur í hestinn sinn við Spákonufellsrétt eftir göngurnar haustið 1962. Hesturinn var í eigu föður Árna, Más Hall Sveinssonar og hét hann Krummi. </P>
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þórunn Samsonardóttir (d. 11.10.1986) (Tóta á Akri) með klárinn sinn. Myndin var sennilega tekin vestur í Kúvíkum þar sem Þórunn bjó áður en hún fluttir til Skagastrandar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1144
18. ágúst 2004 fór starfsfólk vinnuskólans saman í rafting í Austari- og Vestari Jökulsá í Skagafirði til halda upp á lok skólans það sumarið. Fremst, liggjandi: Aðalheiður Rögnvaldsdóttir vinstra megin og Heiða Berglind Fannarsdóttir hægra megin. Krjúpandi frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Sindri Jóelsson, Hanna María Gylfadóttir, Albert Haraldsson, Jóhann Már Berry, Ester Ösp Víðisdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir og Katrín Guðmundsdóttir. Standandi frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006), Alma Eik Sævarsdóttir, Oddur Aron Valdimarsson, Ragnar Björnsson, Eydís Ósk Einarsdóttir, Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir og óþekktur.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Meðlimir Kvenfélags Höskuldsstaðasóknar prúðbúnar til myndatöku. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvert tilefnið var. Á myndinni eru frá vinstri: Efri röð: Jóhanna Blöndal Blöndubakka, Erla Jakobsdóttir Síðu, Þorgerður Guðlaugsdóttir (d. 21.12.1993) Neðri Lækjardal, Helga Guðmundsdóttir Höskuldsstöðum, Elsa Ingvarsdóttir (d. 11.12.2007) Balaskarði, Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) Höskuldsstöðum. Fremri röð: Geirlaug Ingvarsdóttir Balaskarði, formaður, Signý Gunnlaugsdóttir Balaskarði, Magdalena Einarsdóttir (d. 3.3.1985) Síðu, Elsa Geirlaugsdóttir Efri Lækjardal, Erla Aðalsteinsdóttir Sturluhóli, Björg Benediktsdóttir (d. 20.11.1991) Efri Lækjardal og Signý Benediktsdóttir (d. 7.1.1991) Balaskarði.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin í lokahófi starfsmanna Höfðahrepps 1998 í Kántrýbæ. Frá vinstri: Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012), Guðmundur Guðmundsson, Lilja Kristinsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Kristín Þórðardóttir, Rósa Björg Högnadóttir og Guðrún Soffía Pétursdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 776
Myndin var tekin 16. ágúst 2008 á kántrýhátíð. Fólk er að leggja af stað í Þórdísargöngu á Spákonufellið undir leiðsögn Ólafs Bernódussonar sem er fremst á myndinni með svitaband um ennið. Milli 70 og 80 manns tóku þátt í göngunni og þáðu kaffi og meððí þegar komið var niður aftur um fjórum tímum seinna.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Bræðurnir Rúnar Ingvarsson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri. Myndin var sennilega tekin í kringum 1960.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 917
Jólaföndur í Höfðaskóla - íþróttahúsi - 10. desember 2007. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Eyjólfsdóttir kennari, Sigurður Aron Björnsson, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir (fjær), Jóhannes Sigurpálsson (nær), Rebekka Laufey Sigurpálsdóttir, Aron Breki Hjartarson (nær), Sara Rut Fannarsdóttir (fjær), Ívan Árni Róbertsson (fjær) og Laufey Lind Ingibergsdóttir (nær).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 719
17. janúar 2015 steiktu foreldrar og velunnarar barna í Höfðaskóla kleinur í eldhúsinu þar. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir vorferð unglinganna til útlanda eftir að skóla lauk. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, baksvipur Báru Þorvaldsdóttur, Sigurjón Guðbjartsson, baksvipur Hrafnhildar Jóhannsdóttur og Hallbjörg Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1211
Myndin var tekin 11. júní 2011 þegar Kántrýsetrið var opnað í Kántrýbæ. Við opnunina skemmtu margir landsþekktir tónlistarmenn þar á meðal Björgvin Halldórsson. Á myndinni eru þau fyrir utan Kántrýbæ, Margrét Blöndal, sem kom mikið að uppsetningu sýningarinnar á Kántrýsetrinu, Hallbjörn Hjartarson kántrýkóngur, en um hann og hans feril snerist sýningin að mestu og svo er Björgvin Halldórsson lengst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1255
Gangnamenn reka hluta af safninu eftir þjóðveginum til réttar í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Gangnamennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 918
Skemmtilegt í jólaföndri í Höfðaskóla - íþróttahúsinu - 10. desember 2007. Á myndinni eru, frá vinstri: Elva Þórisdóttir kennari (fjær), Sigurjón Elí Eiríksson (nær), Magnús Jens Magnússon, Sæþór Bragi Ágústsson, Elva Dröfn Árnadóttir kennari og Sigurlaug Máney Sæmundsen.
larus041
Myndin var tekin 20. október 1991 við vígslu Hólaneskirkju. Biskupinn yfir Íslandi Herra Ólafur Skúlason stendur fyrir miðju altari en beggja vegna við hann eru byggingarnefndar - og sóknarnefnadarfólk kirkjunnar. Frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Fjóla Jónsdóttir, Aðalbjörg Hafsteinsdóttir, Árni Ólafur Sigurðsson, Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Sigurjón Guðbjartsson, biskupinn, Steindór Haraldsson meðhjálpari, Gylfi Sigurðsson, Gunnlaugur Sigmarsson, Guðbjörg Ólafsdóttir og Stefán Jósefsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi litli drengur er óþekktur. Myndin var tekin yst á Höfðanum.
Guðmundur Guðnason125
Myndin er tekin í Hofskirkju við óþekkt tækifæri. Á myndinni eru frá vinstri: Séra Pétur þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Kári Steinsson (d. 24.7.2007) Sauðárkróki, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) kona séra Péturs, Friðgeir Eiríksson (d.17.5.1985) Sviðningi, Guðmundur Guðnason (d.21.11.1988), sem var organisti í Hofskirkju, Sigurður Pálsson Króksseli og Alda Friðgeirsdóttir kona hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1112
Vinnuskólagrill sumarið 2010. Frá vinstri: tvær óþekktar stúlkur, Anna Dís Ragnarsdóttir, Jóhann Örn Stefánsson, Ásdís Birta Árnadóttir, Guðlaugur Ómar Guðmundsson (fjær), Kristbjörg Ragnheiðardóttir (nær), Sonja Sif Ólafsdóttir, óþekkt, Aron Breki Hjartarson og Kristín Gerður Óladóttir.
Ólafur Bernódusson 837
Myndin var tekin á kántrýhátíð 18. ágúst 2007. Á henni er dorgveiðikeppni í fullum gangi en fjöldi fólks tók þátt í henni og skemmti sér vel á bryggjunni í mjög góðu veðri þó aflinn væri ekki mikill hjá öllum.
Arnar HU 1 - safn 74
Vaktfélagar um borð í Arnari HU 1. Frá vinstri: Ómar Ingi Ómarsson, óþekktur, Hallbjörn Freyr Ómarsson, Þröstur Árnason, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Arnar Ólafur Viggósson, óþekktur, Gunnar Helgason og Guðmundur Finnbogason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 980
Ólafur Bernódusson kennari og göngustjóri afhendir Ágústi Inga Ágústssyni kennara viðurkenningarskjal fyrir að hafa gengið á topp Spákonufells 23. .maí 2008. Óskar Björnsson og Torfi Friðrik Magnason bíða eftir sínum skjölum. Fjallgangan var hluti af valkvæðum atriðum á útivistardögum í Höfðaskóla
Guðmundur Guðnason081
Þessi blómlega stúlka er Guðrún Snorradóttir á Sturluhóli.
Axel Jóhann Hallgrímsson 88
Stjórn og starfsmenn Skagstrendings hf, ásamt mökum, fóru saman í ferðalag um suðurland í júní 1992. Oft var fjör á kvöldin á gististöðum hópsins, mikið sungið og spjallað. Á þessari mynd eru frá vinstri: Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992), Guðrún Garðarsdóttir, Birgir Þórbjarnarson og María Konráðsdóttir (d.9.8.2003).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 920
Elva Þórisdóttir kennari og Heba Líf Jónsdóttir nemandi í Höfðaskóla í jólaundirbúningi 10. desember 2007.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Gylfi Sigurðsson um fermingaraldurinn ca 1954-5.</p>
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1054
Myndin var tekin 28. nóvember 2009 þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúninu það árið. Á henni eru Björn Hallbjörnsson og Lilja Ingólfsdóttir með tvö af þremur börnum sínum. Börnin eru Ingólfur Eðvald Björnsson dökklæddur og Guðný Eva Björnsdóttir í rauðum samfestingi.
Guðmundur Guðnason065
Sigfríð Konráðsdóttir og óskírð Koráðsdóttir (d. 16.12.1969)
Ólafur Bernódusson 850
Félagar í Lionsklúbbi Skagastrandar máluðu Hólaneskirkju í september 2007. Málararnir eru frá vinstri: Árni Geir Ingvarsson, Guðmundur Finnbogason, Gunnar Reynisson, Halldór Gunnar Ólafsson, Magnús B. Jónsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Adolf H. Berndsen, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Guðjón Guðjónsson og séra Fjölnir Ásbjörnsson.
Ólafur Bernódusson 842
Björgvin Halldórsson syngur gospel með auknum kirkjukór Hólaneskirkju í kántrýmessu á kántrýhátíð 4. ágúst 2002. Við píanóið er stjórnandinn og undirleikarinn Óskar Einarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1323
Þessir íbúar við Fellsbrautina skreyttu, ásamt fleirum, götuna sína 10. ágúst 2011 fyrir Kántrýhátíðina dagana á eftir. Fólkið er frá vinstri: Kristín Birna Guðmundsdóttir, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Björn Hallbjörnsson og Einar Haukur Arason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 947
Dansað kringum jólatréð á litlu jólum Höfðaskóla 19. desember 2007 í íþróttasalnum. Allir taka þátt í söng og hreyfileikjum, sem tilheyra jólaböllum, og skemmta sér vel í sparifötunum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1193
Ásdís Birta Árnadóttir syngur einsöng með kirkjukór Hólaneskirkju á aðventukvöldi 5. desember 2010. Fyrir aftan hana má sjá, talið frá okkur: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Sigurjón Guðbjartsson og til hægri, Halldór Gunnar Ólafsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi ungi drengur er Rúnar Þór Ingvarsson en myndin var sennilega tekin á sjötta áratugnum.
Ólafur Bernódusson 743
Myndin var tekin 24. nóvember 2013 í 80 ára afmælisboði björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd í húsnæði hennar við höfnina. Margir gestir komu og þáðu kaffisopa og skoðuðu ný og gömul björgunartæki sveitarinnar.
Guðmundur Guðnason683
Fermingarmynd af Pálfríði Bjarnadóttur
Ólafur Bernódusson 862
Skipstjórarnir á Arnari HU 1, Guðjón Guðjónsson til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri, fagna frábærum aflaverðmætum Arnars Hu 1 árið 1999. Þá var Arnar fyrsta skipið á Íslandi til að fiska fyrir meira en milljarð á einu ári. Strákurinn til vinstri er Kristján Pétur sonur Guðjóns skipstjóra. Myndin var tekin um borð rétt fyrir jólin 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 989
Húsfyllir á pákabingói í Fellsborg 22. mars 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1034
Dorgveiðikeppni á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Fjölmargir tóku þátt í blíðu veðri en aflabrögð voru heldur dræm.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 718
17. janúar 2015 steiktu foreldrar og velunnarar barna í Höfðaskóla kleinur í eldhúsinu þar. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir vorferð unglinganna til útlanda að skóla loknum. Á myndinni eru frá vinstri: Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Trostan Agnarsson kennari, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Dagný Hannesdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Einar Haukur Arason
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1210
Hjónin Árni Geir Ingvarsson og Herdís Jakobsdóttir með dætrum sínum á aðfangadag 2010. Frá vinstri: Herdís, Helga Dögg Jónsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir og Árni Geir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Árið 2012 voru gerðar allmiklar breytingar í kjallaranum í Fellsborg. Bókasafnið fékk stærra og betra húsnæði að norðanverðu og gerður var einn salur úr þremur herbergjum að sunnanverðu. Þar fara nú fram ýmsir fundir og félgastarf aldraðra hefur þar aðstöðu. Á þessari mynd er Árni Halldór Eðvarðsson, sem var einn af verkamönnunum sem vann verkið.
Ólafur Bernódusson 794
Gylfi Sigurðsson með dætrum sínum á Geirólfsnúpi. Guðbjörg Hanna Gylfadóttir er vinstra megin og Jóney Hrönn Gylfadóttir til hægri. Þau voru þarna með hópi Skagastrendinga sem gekk um Hornstrandir nokkra daga í júli 2010. Út við sjóndeildarhring til vinstri rís Kálfatindur á Hornbjargi þverhníptur úr sæ.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1442
Myndin var tekin af skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Skemmtikraftarnir á sviðinu eru frá vinstri: Hrefna Þorsteinsdóttir, Guðni Már Lýðsson, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Hafþór Smári Gylfason, Elva Dröfn Árnadóttir, Ólafur Bernódusson, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Halldór Gunnar Ólafsson
Guðmundur Guðnason229
Guðríður Axelsdóttir (Gýja) frá Litla Felli.
Guðmundur Guðnason248
Ernst G. Berndsen frá Karlsskála (d. 21.8.1983).
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Stúlkan og konan á myndinni eru óþekktar. Ef þú veist hverjar þær eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 817
Skólabörn úr Höfðaskóla bíða þolinmóð í anddyri Fellsborgar á æfingu fyrir Elinborgardag 16. nóvember 2007. Standandi er Róbert Ingvarsson en sitjandi eru frá vinstri: tvö óþekkt, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Viktor Örn Einarsson, Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Auðunn Árni Þrastarson, Tryggvi Fjölnisson ?, óþekktur, Eymundur Lórens Grétarsson og óþekktur. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Arnar HU 1 - safn 112
Skipsfélagarnir á Arnari HU 1 Finnur Kristinsson til vinstri og Rúnar Jósefsson til hægri með konu Rúnars, Súsönnu Þórhallsdóttur, á góðri stundu á óþekktum stað og tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 739
Myndin var tekin við vígslu Bjarmness í júní 2004 eftir gagngera endurbyggingu. Maðurinn með stafinn er Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) en hjá honum er bróðursonur hans Ólafur Bernódusson. Ingibergur Guðmundsson er fjórði frá vinstri og bróðir hans Lárus Ægir Guðmundsson er annar frá hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Fermingarbörn 1976 í Hólaneskirkju (eldri) með prestinum Pétri Þ. Ingjaldssyni. Aftari röð frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Gestur Arnarson, Þórarinn Eiðsson, Magnús Sigurðsson (framar), séra Pétur, Gunnar Þór Gunnarsson, Vilhelm Harðarson, Pétur Ingjaldur Pétursson og Georg Ottó Georgsson. Fremri röð frá vinstri: Dagný Sigmarsdóttir, Rannveig Jónsdóttir, Erla Másdóttir, Sólveig Gunnarsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Guðrún Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 994
Myndin var tekin 3. mars 2008. Þá fór fram Gargið í Fellsborg en það var söngvakeppni Höfðaskóla. Krakkarnir á myndinni eru í eldhúsinu þar að bíða eftir að röðin komi að þeim á sviðinu. Krakkarnir eru frá vinstri: Sara Rut Fannarsdóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Unnar Leví Sigurbjörnson og Óskar Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1031
Myndin var tekin 18. ágúst 2006 af hjónunum Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018) og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010) á gangi með systur Guðmundar, Hrefnu Jóhannesdóttur (d.9.11.2011), lengst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 823
Myndin var tekin í Bjarmanesi í júní 2008 af ungu fólki að fylgjast með einhverjum óþekktum atburði þar. Frá vinstri: Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónssson og Vignir Örn Hafþórsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 835
Myndin var tekin í Bjarmanesi 26. júní 2008. Ekki er vitað um tilefni myndatökunnar en greinilegt að það var húsfyllir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1040
Myndin var tekin 20. júní 2006 þegar krakkar voru að undirbúa skólagarðana sunnan við íþróttavöllinn og setja niður kartöflur og planta grænmeti.
Ólafur Bernódusson 786
Áning undir Jörundi á Hornbjargi 21. júlí 2010, Kálfatindur sveipaður þoku í baksýn. Á myndinni eru frá vinstri: Haraldur Árnason, Guðjörg Gylfadóttir, Ólafur Bernódusson, Gunnar Svanlaugsson, Sigurður Sigurðarson, Lárus Ægir Guðmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Sigurjón Atli Sigurðsson.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Pétur Ingjaldur Pétursson og amma hans í sófanum heima í Höfða.
Barnaból - safn440
Afmælisveisla í Barnabóli 22. maí 1998. Ekki er vitað hvaða stúlka á afmæli en hún situr við borðsendann með kórónu. Vinstra megin við borðið eru, talið inn eftir borðinu: Valþór Óli Vilhelmsson, Þórir Óskar Björnsson, óþekktur, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, þórður Indriði Björnsson og óþekktur. Hægra megin við borðið, talið inn eftir borðinu: Alex Már Gunnarsson, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Þrjú óþekkt börn, Brynjar Max Ólafsson og óþekkt stúlka. Stúlkan við borðsendann, nær okkur, er líka óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 843
Kvistur smíðaður á húsið á Fellsbraut 4 6. maí 2008. Á myndinni eru eigendurnir og hjónin, Einar Haukur Arason og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir með son sinn Einar Ara Einarsson á milli sín.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<P>Séra Þorsteinn Gíslason (d. 8.6.1980) í Steinnesi og kona hans Ólína Benediktsdóttir (d. 26.2.1996).</P>
Ólafur Bernódusson 769
Myndin var tekin 11. janúar 2010 þegar fulltrúar úr kvenfélaginu Eining afhentu heilsugæslunni á Skagaströnd nuddbekk og fleiri tæki að gjöf. Á myndinni eru frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir hjúkrunarkona, Gígja Óskarsdóttir frá Einingu, Jóhanna Sigurjónsdóttir frá Einingu, Ingibjörg Kristinsdóttir frá Einingu, Ingunn Björnsdóttir sjúkraþjálfari með barn, óþekkt, Christine Weinert sjúkraþjálfari og Angela Berthold sjúkraþjálfari,
1
…
54
55
56
…
79
Leita í myndasafninu
Leita