Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 885
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá fór þar fram Kántrýdansa- keppni, sýning og kennsla. Á myndinni er dansflokkurinn sem sigraði í keppninni en nöfnin á fólkinu eru því miður óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 772
Steinunn Steinþórsdóttir og Árni Geir Ingvarsson á hátíð í kofabyggðinni um miðjan ágúst 2008.
Ólafur Bernódusson 870
Myndin var tekin á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból í desember 1999. Á myndinni eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson (nær), Helga Ólína Aradóttir (fjær) á milli þeirra má greina Höllu Björk Víðisdóttur, Ólöf Hafþórsdóttir, Hafþór Freyr Sigmundsson, Saga Lind Víðisdóttir, Kristín Ólafsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir og Sigríður Stefánsdóttir. Barnið næst okkur á myndinni er Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Hér situr Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) á milli tveggja óþekktra kvenna. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 882
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá fór þar fram kántrýdanskeppni og kennsla. Á myndinni eru gestir að spreyta sig á danssporunum undir stjórn Jóhanns Arnar Ólafssonar danskennara. Fremst á myndinni eru tvær Gunnur, Guðrún Pálsdóttir í blárri skyrtu og Guðrún Sigurðardóttir í grænni peysu og svörtum bol.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1173
17. ágúst 2010 var þessi mynd tekin í listamiðstöðinni. Frá vinstri: Victoría Sif Hólmgeirsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Ásdís Birta Árnadóttir, óþekkt listakona, Aldís Embla Björnsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir (nær) og Egill Örn Ingibergsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1360
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Götur bæjarins voru skírðar upp á nýtt og skreyttar á ýmsa vegu. Guðbjörg Ólafsdóttir situr vinstra megin við borðið og Ása Jóhannsdóttir hægra megin. Milli þeirra er Árni Geir Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1293
Myndin var tekin 26. apríl 2012 þegar Árni Geir Ingvarsson tekur á móti fjárstyrk frá Menningarráði Norðurlands vestra til að halda ljósmyndasýningu á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1260
Myndin var tekin af réttarstörfum í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Fremst á myndinni er Stefán Stefánsson bóndi á Ytri-Ey. Vinstra megin við hann er Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka með skegg á spjalli við frístundabóndann Árna Halldór Eðvarðsson með grá húfu. Milli þeirra grillir í Magnús Guðmannsson bónda á Vindhæli. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 814
Nokkrir þátttakendur í kvennahlaupi ÍSÍ 16. júní 2007. Talið frá vinstri: óþekkt stúlka, Guðbjörg Viggósdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Sigríður Gestsdóttir og Péturína Jakobsdóttir.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
<p>Kristín Mýrdal Karlsdóttir með Pétur Ingjald Pétursson, ömmustrákinn sínn í fanginu.</p>
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) og konan hans Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) á ferð með óþekktum eldri konum. Ef þú þekkir konurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi litla stúlka er gæti verið Ásdís Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum. Ef þú þekkir hana með vissu vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 772
Kántrýmessa á Kántrýhátíð 17. ágúst 2008. Á myndinni sést hluti kirkjukórsins sem söng í messunni og einsöngvarinn Hafþór Gylfason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1501
Halloween í félagsmiðstöðinni Undirheimar 28. október 2011. Skrautlegir búningar og förðun gerir erfitt að þekkja hver er hvað á myndinni þannig að hér verður hver og einn að spreyta sig.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Pétru Ingjaldur Pétursson lætur fara vel um sig í stofunni heima.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1003
Dómnefnd í söngvakeppni Höfðaskóla - Garginu - að störfum í Fellsborg 6. mars 2008 meðan gestir kvöldsins njóta veitinga. Frá vinstri: Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, Kristín Kristmundsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1007
Fólk í gönguferð 19.mars 2008. Líklega var um að ræða hreyfiátak á vegum starfsfólks Greiðslustofu vinnumálastofnunar. Frá vinstri: Eygló Gunnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Ómarsdóttir, Kristín Leifsdóttir, Kristján Hjartarson sem ekur systur sinni Klöru Hjartardóttur í kerru, Hjörtur Guðmundsson og Runólfur Gautason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 820
Jósef Þorláksson færir langömmu sinni Ragnheiði Hafsteinsdóttur blóm undir réttarvegg 3. september 2006. Foreldrar Jósefs, Rakel Tryggvadóttir og Þorlákur Sigurður Sveinsson, fylgjast með.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 946
Myndin var tekin í íþróttasalnum á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Á henni situr Ólafur Bernódusson kennari með umsjónarbekknum sínum og fylgist með happadrættisútdrætti. Á bekknum aftan við Ólaf eru frá vinstri: Eva Dís Gunnarsdóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir, Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Tanja Rán Einarsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson, Torfi Friðrik Magnason, Viktor Örn Valdimarsson, Unnar Leví Sigurbjörnsson, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Guðjón Pálsson
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn111
Þórunn Samsonardóttir (d.11.10.1986) með börnum sonar síns Bernódusar Ólafssonar (d.18.9.1996). Talið frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir,Þórunn Samsonardóttir með Lilju Bernódusdóttur (d.9.2.2020) í fanginu, Ólafur H. Bernódusson Halla Björg Bernódusdóttir. Myndin var tekin 1960.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 996
Myndin var tekin 6. mars 2008 í Fellsborg þegar söngvakeppni Höfðaskóla - Gargið - fór þar fram. Krakkarnir eru frá vinstri: Óskar Björnsson á bassa, Sara Rut Fannarsdóttir söngur, Elías Gunnar Hafþórsson á trommum, Andrea Björk Kristjánsdóttir söngur, Sonja Sif Ólafsdóttir söngur og flauta og Unnar Leví Sigurbjörnsson á gítar. Lengst til vinstri sér í Jón Ólaf Sigurjónsson sem var hljóðmaður og aðstoðaði þátttakendur í keppninni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1064
Fjölskyldan á Flankastöðum. Hjónin Guðmunda Árnadóttir (d.26.2017) og Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) með tvö af börnum sínum, Guðrúnu Þórbjarnardóttur og Birgir Þórbjarnarson. Yngsta dóttir þeirra hjóna, Ásdís Þórbjarnardóttir, var ekki fædd þegar myndin var tekin, sem líklega var kringum 1950.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1258
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012 þegar réttarstörf stóðu sem hæst. Tanja Rán Einarsdóttir er til vinstri með svart hárband. Halla María Þórðardóttir er ljóshærð í rauðri úlpu. Linda Rún Einarsdóttir er í hvítri Henson hettupeysu til hægri. Daði Snær Stefánsson er í bláum samfestingi og Árni Halldór Eðvarðsson er með gráa húfu á höfði. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn472
Myndin var tekin 7. júlí 1998 í leikskólanum Barnabóli. Frá vinstri: Sigurjón Elí Eiríksson, óþekkt, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir (fjær), Eva Dís Gunnarsdóttir (nær), Guðjón Páll Hafsteinsson og Fjóla Ævarsdóttir leiðbeinandi.
Ólafur Bernódusson 881
Danssýning á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá var haldin kántrýdanssýning og kennsla í íþróttahúsinu undir stjórn Jóhanns Arnar Ólafssonar danskennara. Á myndinni eru nokkrir danshópar saman að sýna einn dans.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) við vinnu sína heima.
Guðmundur Guðnason239
Þetta fólk er óþekkt en myndin virðist vera tekin í Munaðarnesi. Ef þú þekkir fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 765
Hluti af kántrýhátíð 2006 var að fara í heimsókn í kofabyggð krakkanna í tómstundaskóla umf Fram. þessi mynd var tekin 18. ágúst og á eru frá vinstri: Jónas Skaftason (d.17.11.2017), Hjörtur Guðbjartsson, Vilhjálmur Skaftason og Salóme Jóna Þórarinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1086
Þetta fólk var að njóta sólarinnar á tröppunum við Karlsskála 5. júní 2010. Lengst til vinstri eru hjónin Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), sem alinn var upp á Karlsskála, og Hjördís Sigurðardóttir kona hans. Konan með sólgleraugun er dóttir þeirra Guðrún Björg Berndsen og maðurinn hægra megin er sonur þeirra Adolf H. Berndsen. Framan við hann situr dóttir hans, Sigurbjörg Birta Berndsen. Ljóshærða konan til hægri er Ásdís Björg Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum. Dökkhærða konan fyrir miðri mynd er Hjálmfríður Erla Bjarnadóttir úr Bjarnarhöfn.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996) með son sinn Jón Hall Pétursson á fermingardaginn hans vorið 1973.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Í öftustu röð frá vinstri: Karl Ómar Jónsson, Ólöf Stefánsdóttir kona hans og Kristín dóttir þeirra, Dómhildur Jónsdóttir (d. 18.10.2012) og séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d. 1.6.1996). Frá vinstri í sófanum: Björn Karlsson, Kristín Mýrdal Karlsdóttir og Jón Hallur Sigurbjörnsson, foreldrar Dómhildar. Lengst til hægri í sófanum situr Jón Hallur Pétursson. Fremst á myndinni eru frá vinstri: Jón Hallur Karlsson og Pétur Ingjaldur Pétursson.
larus025
Á myndinni er Guðmundur Ingi Leifsson sóknarnefndarformaður á Blönduósi að afhenda Aðalbjörgu Hafsteinsdóttur starfssystur sinni á Skagaströnd, sálmabækur að gjöf frá Blönduóskirkju. Myndin var tekin í hófi í Fellsborg í október 1991 eftir vígslu Hólaneskirkju.
Ólafur Bernódusson 903
Áhugasamir nemendur á námskeiði um rekstur fyrirtækja í Höfðaskóla í febrúar 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 951
Á myndinni , sem tekin var á litlu jólum í Höfðakóla 19. desember 2007, er Heiðrún Tryggvadóttir kennari lengst til vinstri með umsjónarbekknum sínum. Frá vinstri: Heiðrún, Tryggvi Fjölnisson sonur hennar, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Ragnheiðardóttir (fjær), Freyja Einarsdóttir (nær), Andrea Kristjánsdóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Lilja Bjarney Valdimarsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir og Alex Már Gunnarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1281
Jón Ólafur Sigurjónsson, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Herdís Jakobsdóttir, lengst til hægri, fá sér kakósopa í Gunnfríðarstaðarskógi 16. desember 2012 eftir að hafa valið sér jólatré í skóginum.
Barnaból - safn439
Afmæli Indriða Theódórs Hjaltasonar í Barnabóli 20. maí 1998. Börnin eru frá vinstri: Sigurjón Elí Eiríksson, þrjú óþekkt börn, Indriði Theódór með kórónu, Eva Dís Gunnarsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Þorgerður Björk Guðmundsdóttir og ?Unnar Leví Sigurbjörnsson?. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 871
Myndin var tekin í desember 1999 á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnabóli. Á henni er Sesselja Guðmundsdóttir að aðstoða ?Aldísi Emblu Björnsdóttur? við baksturinn. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Arnar HU 1 - safn 70
Hljómsveitaræfing á frívaktinni um borð í Arnari HU 1 fimmta maí 2004. Hljómsveitarmeðlimir eru frá vinstri: Guðlaugur Hjaltason, Þröstur Árnason, Hafþór Gylfason, Ernst Berndsen og Fannar Viggósson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Herbert Ólafsson (d. 25.4.2007).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 937
Myndin var tekin 11. desember 2007 Höfðaskóla - íþróttahúsi - á jólaföndurdegi. Á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir kennari að hjálpa nokkrum nemendum að leggja síðustu hönd á gripi sína. Stúlkan með gleraugun er Birta Dögg Bessadóttir og strákurinn með gleraugun er Unnar Leví Sigurbjörnsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 966
Myndin var tekin í fermingu Svönu Dísar Þórarinsdóttur 1. apríl 2007. Með henni á myndinni er pabbi hennar Þórarinn Brynjar Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Systurnar Karítas Laufey Ólafsdóttir til vinstri og Björg Ólafsdóttir (d. 1.3.2007) til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en þær systur voru fæddar um 1930.
Barnaból - safn476
Þórunn Bernódusdóttir leikskólakennari tekur þátt í leikriti með krökkunum í Barnabóli 5. desember 1997. Strákurinn með hattinn er óþekktur en stúlkan fjær er Sonja Sif Ólafsdóttir en nær er Halla Björk Víðisdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1121
Þrír ættliðir á íþróttavellinum 13. ágúst 2010 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Þarna er fólkið líklega að bíða eftir karamelluregni sem dreift var úr flugvél yfir völlinn. Fólkið er: Lárus Ægir Guðmundsson, Soffía Lárusdóttir og Stefán Logi Svansson.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Óþekkt fólk. Ef þú veist hvaða fólk þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Séra Pétur og Dómhildur - safn
Jón Hallur Pétursson til vinstri og Ólafur Bernódusson til hægri í hlutverkum sínum í leikritinu Stalin er ekki hér, sem Leikklúbbur Skagastrandar sýndi veturinn 1981 í leikstjórn Sögu Jónsdóttur.
Árni Geir Ingvarsson - safn
<p>Bræðurnir Rúnar Ingvarsson til vinstri og Ragnar Smári Ingvarsson til hægri. Myndin var sennilega tekin seint á sjötta áratugnum. </p>
Ólafur Bernódusson 766
13. ágúst 2009 afhentu nokkrar hannyrðakonur heilsugæslunni á Skagaströnd bútasaumsteppi sem þær höfu unnið í sameiningu. Myndin var tekin við þetta tækifæri þegar starfsfólk heilsugæslunnar tók við gjöfinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 944
Árleg er haldin brunaæfing í Höfðaskóla í samvinnu við slökkviliðið á Skagaströnd. Þá er tæmingaráætlun skólans virkjuð til að kenna nemendum rétt viðbrögð og til að læra hvað betur má fara í neyðartilvikum eins og ef eldur kemur upp í húsnæðinu. 13. desember 2007 var haldin slík æfing og til að gera hlutina sem raunverulegasta var forstofan fyllt af reyk og nemendurnir þurftu að fara í gegnum kófið með kennurum sínum. Á myndinni er Elva Þórisdóttir að taka við nemendum um leið og þeir koma út úr reyknum.
Guðmundur Guðnason083
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) var oft fengin til að koma ínn á heimili til að taka fjölskyldumyndir og/eða myndir af einhverjum fjölskyldumeðlimum. Þetta ungabarn er Jón Tryggvi Jökulsson á Núpi, nýskírður. Myndin tekin í stofusófanum á Höskuldsstöðum.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Æskuvinirnir Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) til vinstri og Ólafur Thorarensen (d. ?) til hægri hittast aftur eftir 40 ár á pallinum við skíðaskálann.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 797
Jólakaffi hjá eldri borgurum á Skagaströnd 17. desember 2007 í Fellsborg. Frá vinstri : Margrét Matthildur Björnsdóttir, óþekkt, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), Svava Kristinsdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, Peggy Lynn Berry, Sylvía Hrólfsdóttir, María Magnúsdóttir (d. 2.2.2016), Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012), Guðný Björnsdóttir, Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og baksvipur Guðríðar Líneikur Daníelsdóttur.
Barnaból - safn469
Nestistími í leikskólanum Barnaból sumarið 1997. Við borðið fjær okkur situr óþekktur strákur. Við borðið nær eru frá vinstri:Davíð Víðisson, Brynjar Max Ólafsson, óþekktur, Alex Már Gunnarsson, Telma Dögg Bjarnadóttir og Elías Kristinn Sæmundsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
larus026
Séra Egill Hallgrímsson ávarpar fólk í hófi í Fellsborg í október 1991. Hófið var haldið í tilefni af vígslu Hólaneskirkju þennan dag.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Þessi mynd var tekin við húsvegg í Sólvangi. Á henni eru uppeldissystkinin Sigurjón Magnússon (d. 16.3.2007) og Sigrún Jósteinsdóttir (Sidda). Þau voru bæði fædd árið 1944.
Barnaból - safn471
Mikill spenningur ríkir á þessari mynd sem var tekin á litlu jólum í leikskólanum Barnaból 18. desembar 1997. Jólasveinninn útdeilir sleikibrjóstsykrum og spjallar við börnin sem eru í sparifötum í tilefni dagsins.
Ólafur Bernódusson 782
Myndin var tekin 21. júlí 2010 um borð í hraðskreiðum báti af hluta fólks sem var á leið í Hornvík til að fara í gönguferð um Hornstrandir. Frá vinstri: helmingurinn af Gunnari Svanlaugssyni, Haraldur Árnason, Lárus Ægir Guðmundsson, Gylfi Sigurðsson og Sigurjón Atli Sigurðsson.
Barnaból - safn555
Krakkarnir úr leikskólanum Barnaból í heimsókn í Hólaneskirkju 10. desember 1998. Tilefni heimsóknarinnar var að skila af sér jólagjöfum til fátækra barna í útlöndum. Séra Guðmundur Karl Brynjarsson situr undir syni sínum Felix Guðmundssyni lengst til vinstri. Guðrún Sigurðardóttir starfsstúlka er aftan við hópin vinstra megin en hægra megin eru starfsstúlkurnar Fjóla Ævarsdóttir í ljósri peysu og Sesselja Guðmundsdóttir í rauðri peysu.
Guðmundur Guðnason137
<P>Séra Jón Kr. Ísfeld með nemendum sínum 1963 - 1964 á Brandsstöðum þar sem Jón bjó. Aftari röð frá vinstri: Heimir Guðmundsson Finnstungu, Guðrún Þ. Jónsdóttir Ártúnum, Ragnheiður og Ingibjörg Guðmundsdætur Eiríksstöðum, Halldóra Jónmundsdóttir Auðkúlu, Auður Björnsdóttir Brandsstöðum og Tryggvi Jónsson Ártúnum. Fremri röð frá vinstri: Bragi Steingrímsson Eyvindarstöðum, séra Jón Kr. Ísfeld, Eiríkur Grímsson Ljótshólum og Grétar Guðmundsson Finnstungu. </P>
1
…
55
56
57
…
79
Leita í myndasafninu
Leita