Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 956
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007 inni í stofu hjá miðstiginu þegar óþekktur jólasveinn úr Spákonufellinu kom í heimsókn. Frá vinstri: Anna Margrét Sigurðardóttir jólasveinn Leppalúðason og Elva Dröfn Árnadóttir kennari.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1468
Hjónin Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) og Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 993
Hafdís Baldvinsdóttir heldur á dóttur sinni Emblu Ágústsdóttur í eldhúsinu í Fellsborg 6. mars 2008 þegar söngvakeppni Höfðaskóla - Gargið - fór fram í húsinu. Maðurinn í baksýn, með gleraugu, er Jón Ólafur Sigurjónsson. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 899
Pétur Eggertsson formaður Rauðakross deildar Skagastrandar tekur við peningastyrk úr höndum Önnu Þrúðar Þorkelsdóttur formanns Rauðakrossins á Íslandi. Styrkurinn var veittur þegar nýtt húsnæði deildarinnar var tekið í notkun í apríl 1999. Fólkið sem fylgist með, til vinstri á myndinni, er frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Jensína Lýðsdóttir og Ása Jóhannsdóttir.
Barnaból - safn647
Krakkarnir í leikskólanum Barnaból syngja á 50 ára afmæli Höfðahrepps 1989. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Bára Þorvaldsdóttir, Guðrún Hrólfsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir og Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 801
Spjallað í heimkeyrslunni við Bogabraut 27. í júlí 2007. Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir íbúar hússins eru til vinstri í einhverjum framkvæmdum. Steindór Haraldsson, sem hallar sér upp að bílnum, og Pétur Ingjaldur Pétursson eru að spjalla við þau hjón.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1256
Myndin var tekin í Kjalarlandsrétt 8. september 2012. Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli er í bláröndóttri peysu en aftan við hann sér í son hans Guðmann Einar Magnússon. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Freyja Dís Jóhannsdóttir með bróður sinn Loga Hrannar Jóhannsson, Victoria Sif Hólmgeirsdóttir og Bylgja Hrund Ágústsdóttir. Aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 950
Ágúst Ingi Ágústsson kennari (með bindi) situr hjá umsjónarbekknum sínum á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007 í íþróttasalnum og bíður eftir að hefja dans kringum tólatréð. Nemendurnir eru frá vinstri: Ísabella Róbertsdóttir, óþekkt, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, Óskar Björnsson, Indriði Björnsson, Sólrún Ágústa Magnadóttir og Laufey Inga Stefánsdóttir
Ólafur Bernódusson 791
Myndin var tekin í Hornvík af hluta hóps Skagstrendinga sem þar voru í gönguferð í júlí 2010. Fólkið er að borða kvöldmat eftir að hafa gengið á Hornbjargið þann daginn. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Haraldur Árnason, Amy Ósk Ómarsdóttir, Sigurður Sigurðarson og Ólafur Bernódusson.
Ólafur Bernódusson 826
Myndin var tekin í Bjarmanesi 10. desember 2008 á stofnfundi Gleðibankans. Eins og sjá má var glatt á hjalla á fundinum, enda tilefnið skemmtilegt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1118
Kaffidrykkja á pallinum við Reykholt (Fellsbraut 6) 11. ágúst 2010 líklega eftir að fólkið á myndinni hafði lokið við að skreyta Fellsbrautina fyrir Kántrýhátíðina dagana á eftir. Fólkið er, frá vinstri: Dagný Dís Bessadóttir hjá pabba sínum Þráni Bessa Gunnarssyni, Björn Hallbjörnsson, Árni Geir Ingvarsson og Gunnlaugur Sigmarsson allt íbúar við Fellsbrautina.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1105
Mæðgurnar Kenný Hallbjörnsdóttir til vinstri og Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) til hægri að koma úr búðinni 1. ágúst 2010. Þar hitta þær feðgana Brynjar Sigurðsson, sem situr í hjólastól, og pabba hans Sigurð Björnsson sem eru að njóta sólarinnar.
Barnaból - safn603
Guðbjörg Viggósdóttir, Kristín Kristmundsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Ragnheiður Sigurjónsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Lilja Nótt Sævarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 904
Myndin er af hópi kvenna, ásamt leiðbeinanda, á námskeiði um rekstur fyrirtækja, sem haldið var í Höfðaskóla í febrúar 1999. Hörður Ríkarðsson leiðbeinandi er lengst til vinstri. Næst honum er Fjóla Jónsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir fyrir miðju í grárri peysu en aðrar á myndinni eru óþekktar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1117
Vatnspása í Jónsmessugöngu kvöldið 21. júní 2009. Þá gekk hópur fólks á Spákonufellið - Borgarhausinn- á toppinn til að horfa á sólarganginn þaðan um miðnættið. Sólin sleikti sjávarborðið í norðri áður en hún fór að lyfta sér aftur á himninum en gekk ekki undir á þessum lengsta degi ársins. Á myndinni eru frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Rósa Sigursteinsdóttir og Laufey Lind Ingibergsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir069
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Ekkert er vitað um fólkið á myndinni annað en að konan heitir Árný og maðurinn Aðalsteinn. Ef þú veist eitthvað um þetta fólk vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1465
Hjónin Guðmundur Jón Björnsson og Þórunn Bernódusdóttir í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1433
Sveinn Garðarsson (d.17.2.2019) og Guðný Björnsdóttir með tengdasonum sínum á þorrablóti 5. febrúar 2011 í Fellsborg. Ingvar Þór Jónsson er til vinstri og Slavko Velemir til hægri.
Ólafur Bernódusson 963
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Á henni nýtur Jonny King sinnar 15 mínútna frægðar meðal áhorfenda.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1531
Myndin er frá 26. nóvember 2011 þegar kveikt var á jólatrénu á Hnappstaðatúni það árið.
Guðrún Þórbjarnardóttir151
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún var tekin í veislu vegna gullbrúðkaups Jóns og Þorbjargar Halldórsdóttur (d.30.6.1970) sumarið 1966 í Skátaskálanum. Þorbjörg og Jón sitja til vinstri. Við hlið Jóns er Björgvin Jónsson (d.4.5.1992) sonur hans og kona Björgvins, Þorgerður Guðmundsdóttir (d.24.4.2008).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1345
Myndin var tekin í íþróttahúsinu 12. október 2012 af fólki sem var að horfa yfir salinn þar sem fram fór danssýning nemenda úr Höfðaskóla. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Péturína Laufey Jakobsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Cornelia Silud Boncales og Dagný Rósa Úlfarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 893
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Þóra Lísebet Gestsdóttir spilar á þverflautu við píanóundirleik Michael Jones kennara.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1126
Myndin var tekin 13. ágúst 2010 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Fólkið er frá vinstri: Birna Blöndal, Orri Blöndal sonur hennar og Guðjón Árnason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1383
Myndin var tekin í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Norðulandi vestra 13. október 2012. Á henni er Ólafur Bernódusson að sýna myndir og spjalla um þróun hafnargerðar á Skagaströnd. Á myndinni er hluti áheyrenda sem mættu á þennan viðburð. Fremst sitja, frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Sigurður Ingimarsson, Svava Valgerður Kristinsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Sigurjón Guðbjartsson. Aftan við Guðrúnu og Sigurjón sitja Ardís Ólöf Arelíusdóttir (d. 12.9.2018) til vinstri og Erna Berglind Hreinsdóttir til hægri Ingibergur Guðmundsson er aftan við þær og óþekktur. Standandi frá vinstri: þrír óþekktir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Fannar Viggósson, óþekkt, Viggó Brynjólfsson og Ólafur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1286
Lárus Ægir Guðmundsson og Elsa Lára Blöndal fara yfir sýningarskrá fyrir sýningu á verkum Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010) 20. júlí 2011. Sýningin var haldin í íþróttahúsinu á Skagaströnd þar sem sýnd voru fjölmörg og margvísleg verk Sveinbjörns, sem lengst af bjó á Skagaströnd.
Ólafur Bernódusson 1009
Á myndinni er Þorleifur Arason (d.11.11.1991) með verðlaunapeninga um hálsinn. Í baksýn er Ingibjörg Kristinsdóttir sem afhenti verðlaun í hófi í Kántrýbæ að loknum mótinu. Þorleifur var öflugur kastari og vann til fjölda verðlauna á íþróttamótum.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn117
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) utan við heimili sitt í Stórholti (Bankastræti 3) með með tvö af börnum sínum og eina litla systurdóttur. Börnin eru frá vinstri: Ólöf Jóhanna Smith (Lólý), Þórunn Bernódusdóttir og Ólafur Bernódusson.
Ólafur Bernódusson 833
Myndin var tekin í skíðaskálanum 6. desember 2007 en þá höfðu Gígja Óskarsdóttir og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir breytt skálanum í jólahús. Þar var til sölu ýmislegt jólaföndur og heitt súkkulaði með vöfflum og rjóma. Jólahúsið var skemmtilegt og fjölsótt þá daga sem það var opið. Á myndinni er fólk að njóta veitinganna og jólaandans á aðventunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1443
Á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Skemmtikraftarnir á sviðinu eru að leika heimsókn í Spákonuhofið. Leikararnir eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Benródusson, Guðni Már Lýðsson og Hallbjörg Jónsdóttir.
Ólafur Bernódusson 767
13. ágúst 2009 héldu íbúar við Bogabraut sameiginlega grilllveislu á götunni. Myndin er af hluta fólksins að borða.
larus058
Vígslumessa Hólaneskirkju 20. október 1991. herra Ólafur Skúlason biskup og séra Egill Hallgrímsson fyrir altarinu. Vinstra megin sitja vígslubiskuparnir: séra Bolli Gústavsson (nær) og séra Sigurður Guðmundsson (fjær). Hægra megin sitja séra Pétur Þ. Ingjaldsson (fjær) óþekktur prestur (nær).
Ólafur Bernódusson 742
Myndin var tekinn 24. nóvember 2013 í afmælisboði björgunarsveitarinnar Strönd á Skagaströnd í tilefni af 80 ára afmæli sveitarinnar. Á henni er Lárus Ægir Guðmundsson að kynna bók sem hann skrifaði um félagið og færði því að gjöf. Reynir Lýðsson formaður sveitarinnar er til hægri. Sitjandi við kaffiborð eru frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Þórunn Valdís Rúnarsdóttir (nær), Guðbjörg Viggósdóttir (fjær) og svo grillir í feðgana Magnús B. Jónsson (nær) og Baldur Magnússon (fjær), lengst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1422
Myndin var tekin 13. ágúst 2011 í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð. Næst okkur á myndinni eru hjónin Gígja Óskarsdóttir og Gunnar Þór með son sinn Andra Má. Til vinstri í lopapeysu er Arnór Snorri Gíslason en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn596
Myndin var tekin 6. júlí 2007 í leikskólanum Barnaból þegar haldið var upp á 30 ára afmæli skólans. Á myndinni eru frá vinstri: Egill Örn Ingibergsson, Hjörtur Máni Skúlason, Skúli Hjartarson faðir hans og Elmar Jóhann Grétarsson.
Ólafur Bernódusson 805
Hluti af kirkjukór Hólneskirkju á æfingu fyrir gospel tónleika undir stjórn Óskars Einarssonar. Myndin var tekin 29. apríl 2007. Frá vinstri: Cristina Silod Yecyec, Inga Rós Sævarsdóttir, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir (fremst), Bára þorvaldsdóttir (í miðju), Agnes Sævarsdóttir (aftast), Lilja Ingólfsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Guðrún Guðbjörnsdóttir, óþekktur baksvipur, Hallbjörg Jónsdóttir, tvær óþekktar konur og Guðrún Sigurðardóttir fremst til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1165
Húnabjörgin að koma í höfn eftir sjóferð. Áhöfnina er, talið frá vinstri: Hjalti Reynisson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, Carl Jakobsen, Péturína L. Jakopsdóttir og tveir óþekktir. Við stjórnvölinn uppi er skipstjórinn Ágúst Ómarsson. Ekkiitað hvenær myndin var tekin.
Guðrún Þórbjarnardóttir072
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir nema strákurinn sem er í aftari röð lengst til vinstri. Það er Frits M. Bjarnason frá Bjargi. Ef þú þekkir hin börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn619
Leikskólabörn úr leikskólanum Barnaból í skálaferð í Skíðaskálanum 3. júní 1999. Með þeim eru Lilja Ingólfsdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri til hægri. Börnin eru frá vinstri: Davíð Víðisson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir, Andrea Kristjánsdóttir, Árný Sif Kristínardóttir, Brynjar Max Ólafsson, Guðjón Örn Kristjánsson, Sonja Sif Ólafsdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Alex Már Gunnarsson, Halla Björk Víðisdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir og Ólína Selma Þórarinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1487
Íþróttamaraþon 25. mars 2011 í íþróttahúsinu á vegum Höfðaskóla. Krakkarnir stunduðu íþróttir í heilan sólarhring og söfnuðu áheitum til að komast í skólaferðalag til útlanda. Á myndinni eru, frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, óþekkt, Indriði Theódór Hjaltason, tvö óþekkt, Róbert Björn Ingvarsson, Aron Snær Fannarsson, Arnar Páll Guðjónsson, Magnús Jens Magnússon, Erna Ósk Björgvinsdóttir, Einar Ari Einarsson, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Ívan Árni Róbertsson, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, óþekktur og Rakel Jensína Jónsdóttir.
larus053
Myndin var tekin í vígslumessu Hólaneskirkju 20. október 1991. Sóknarpresturinn séra Egill Hallgrímsson er við altarið en til vinstri sitja, frá vinstri: séra Bolli Gústavsson vígslubiskup, séra Sigurður Guðmundsson vígslubiskup og Herra Ólafur Skúlason biskup. Hægra megin eru, frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson og óþekktur prestur.
Ólafur Bernódusson 864
Áhöfn Arnars HU 1 stillir sér upp við Arnar rétt fyrir jólin 1999 til að fagna því að vera fyrsta skipið á Íslandi að skila meira en miljarði í aflaverðmætum á einu ári. Fyrir framan áhöfnini sitja Gylfi Guðjónsson útgerðastjóri til vinstri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri til hægri. Standandi aftan við þá er stjórnarformaðurinn Adolf H. Berndsen.
Guðrún Þórbjarnardóttir165
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún var tekin í veislu í Skátaskálnum 1966 vegna gullbrúðkaups þeirra Jóns Sölvasonar og Þorbjargar Halldórsdóttur (d.30.6.1970) en þau sitja við enda borðsins. Hjá þeim stendur sonur þeirra, Björgvin Jónson (d.4.5.1992) sem er að halda ræðu. Ingvar Jónsson (d. 18.1.2003) frá Sólheimum sést yfir gulu blómaskreytinguna en á móti honum við borðið er nafni hans, Ingvar Jónsson (d.29.7.1978 í Norður-Skála. Við hlið Ingvars situr séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996) en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1089
Myndin var tekin 11. júní 2010 þegar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri afhefndir eigendum Spákonuhofsins lyklana að Gömlu tunnunni þar sem Spákonuhofið er til húsa í dag. Áður hafði áhaldahús hreppsins verið í húsinu. Kaupendurnir eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Barnaból - safn598
Myndin var tekin 6. júlí 2007 í leikskólanum Barnaból þegar haldið var upp á 30 ára afmæli skólans. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Jóhanna Guðrún Jónasdóttir leikskólastjóri á Blönduósi; Brynja Barðadóttir leikskólakennari, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri Barnabóls, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri Höfðaskóla, Lilja Ingólfsdóttir leikskólakennari, Guðný Björnsdóttir og Guðrún Sigurðardóttir.
Barnaból - safn606
Hópmynd af krökkunum og starfsliðinu í Lundi, sem er deild innan leikskólans Barnaból. Þessir krakkar voru þar 2006 - 2007. Starfsfólkið er frá vinstri: Lilja Ingólfsdóttir, Herdís Jakobsdóttir, Þorbjörg Bjarnadóttir, Guðlaug Grétarsdóttir (nær), Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d. 15.8.2015)(fær).
Ólafur Bernódusson 778
Myndin var tekin 27. febrúar 2011 á opnu húsi hjá Nes listamiðstöðinni. Ein listakonan sem þá var í listamiðstöðinni hafði bakað kökur, eina sneið á hvern íbúa Skagastrandar, sett á serviettu og merkt með nafni. Þetta vakti mikla kátínu og fjöldi Skagstrendinga kom til að fá sér kökusneið. Á myndinni er fólk að leita að sinni sneið. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Trostan Agnarsson, Birkir Gunnarsson, Guðlaug Grétarsdóttir, óþekkt, Erna Björgvinsdóttir, tveir óþekktir, Kristín Björnsdóttir, Saga Lind Víðisdóttir (fjær), Birgitta Bjarnadóttir (nær), óþekkt, Hjördís Sigurðardóttir (nær), Stefán Jósefsson (fjær), óþekkt, Sigríður Gestsdóttir, óþekkt, Sigríður Stefánsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 752
Starfsmannafélag Höfðahrepps fór í helgarferð í apríl 2011 og gisti á hóteli í Mývatnssveit. Á myndinni er hluti hópsins að fá sér drykk fyrir kvöldmatinn. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Guðmundur J. Björnsson, Erna Hreinsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir, baksvipur Fannars Viggóssonar, Magnús B. Jónsson og Lilja Ingólfsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir071
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Myndin var tekin 1960. Maðurinn með bindið er Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016) héraðslæknir og við hlið hans er Birgitta Vilhelmsdóttir (d. 6.1.1995) kona hans. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 783
Farangurinn ferjaður í land í Hornvík 21. júlí 2010. Gúmmíbáturinn flutti fólk og farangur í fjöruna í nokkrum ferðum og þaðan var mynduð keðja til að færa farangurinn á þurrt. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson um borð í bátnum, óþekktur áhafnarmeðlimur, Haraldur Árnason, Gunnar Svanlaugsson, Steindór Haraldsson, Gylfi Sigurðsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Sigurður Sigurðarson og Sigurjón Atli Sigurðsson. Fyrir miðri mynd blasir Hornbjargið við, Jörundur til vinstri og Kálfatindur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1460
Í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Bræðurnir Árni Halldór Eðvarðsson til vinstri og Hilmar Eðvarðsson til hægri fylgjast með réttarstörfum. Konan á myndinni er Sigrún Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1052
Þetta fólk starfaði allt við höfnina. Mennirnir hjá fiskmarkaðnum og konan er hafnarvörður. Frá vinstri: Haraldur Árnason, Sigurður Ingimarsson, Reynir Lýðsson og Þórey Jónsdóttir. Á myndinni, sem ekki er vitað hvenær var tekin, hafa þau komið auga á eitthvað skemmtilegt í dráttarbrautinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1436
Myndin var tekin 5. febrúar 2011 af skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg. Hér er verið að leika starfsmenn Helga Gunnarssonar sem eru í óða önn að koma fyrir nýju hafnarvigtarhúsi. Leikararnir í atriðinu eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Árni Halldór Eðvarðsson og Magnús B. Jónsson. Takið eftir fótabúnaði Halldórs.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 842
Í elhúsinu í Fellsborg 1. maí 2008 vegna einhverrar óþekktrar samkomu sem þá fór fram. Fólkið á myndinni er frá vinstri: hjónin Svenny Hallbjörnsdóttir og Gunnar Sveinn Halldórsson og Heiðrún Tryggvadóttir prestsfrú.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn101
Hjónin Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) með dóttur sína Lilju Bernódusdóttur (d.9.2.2020) vinstra megin og dótturdóttur Önnu Sjöfn Jónasdóttur til hægri. Myndin var tekin einhverntíma 1968 - 1970.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1408
Fólkið á myndinni slakar á yfir bjórglasi við Bjarmanes á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir, Guðlaugur Ingi Sigurðsson, Vala Rós Ingvarsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson. Herdís er mágkona systkinanna Ragnars og Völu en Guðlaugur er maður Völu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1116
Vatnspása á leiðinni á Spákonufellið - Borgarhausinn - 21. júní 2009. Þangað gekk hópur fólks Jónsmessugöngu það kvöld og var á toppnum á miðnætti til að sjá sólina ganga niður að sjávarfletinum í norðri áður en hún fór að hækka sig aftur á himninum. Laufey Lind Ingibergsdóttir situr vinstra megin og Guðrún Pálsdóttir til hægri. Standandi eru systkinin Karl Guðmundsson og Helga Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1490
Myndin var tekin 23. október 2011 en þá voru liðin 20 ár frá vígslu nýju Hólaneskikju (vígð 20. október 1991). Á myndinni er Guðrún Anna Halldórsdóttir að spila á saxófóninn sinn. Til vinstri sér í Þorbjörgu Bjarnadóttur sem söng með kirkjukórnum. Prestarnir sem sitja saman eru séra Magnús Magnússon til vinstri og séra Ægir Fr. Sigurgeirsson til hægri. Báðir þjónuðu þeir í kirkjunni um tíma.
Ólafur Bernódusson 931
Örvar Hu 2 kom til heimahafnar á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Á myndinni eru Elva Þórisdóttir og dóttir hennar Ásdís Adda Ólafsdóttir að gæða sér á tertu. Konan í gulu peysunni og maðurinn lengst til hægri eru óþekkt. Ef þú þekkir annað þeirra eða bæði vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1401
Gleði í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012. Frá vinstri: óþekkt, Fannar Viggósson, Guðbjörg Viggósdóttir, Viggó Magnússon, Magnea Harðardóttir og Anna Margrét Sigurðardóttir.
1
…
56
57
58
…
79
Leita í myndasafninu
Leita