Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1438
Sungið í skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Fólkið á sviðinu er, frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Fannar Viggósson, Halldór Gunnar Ólafsson, Hrefna Þorsteinsdóttir, Guðni Már Lýðsson, Þorgerður Þóra Hlynsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson, Hafþór Smári Gylfason, Elva Dröfn Árnadóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Ólafur Bernódusson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1456
Myndin var tekin 9. september 2011 í sundlaugarpartrýi kvöldið áður en lauginni var lokað fyrir veturinn. Fyrir tilkomu hitaveitu var sundlauginni lokað að loknu skólasundi í september og ekki opnuð aftur fyrr en í maí, þegar skólasund hófst á ný. Síðasta kvöldið áður en hleypt var úr lauginni var haldið partý fyrir krakkana í unglingadeildinni í Höfðaskóla. Eins og sjá má var vinsælt að fara í froðubað í heita pottinum.
Ólafur Bernódusson 965
Eitt af sýningaratriðunum á fyrstu kántrýhátíðinni 1984 var að snara naut af hestbaki. Fenginn var bolakálfur að láni til að snara. Snörnunin gekk vel því tuddi stóð grafkyrr og skipti sér ekkert af hestamanninum. Allt í einu var þó eins og hann áttaði sig og þá tók hann strikið og ruddist gegnum girðinguna sem hróflað hafði verið upp kringum hann, burt frá skarkala hátíðarinnar. Fljótlega náðist hann þó aftur en þá var hann gjörsamlega staður og neitaði algjörlega að láta reka sig. Þá gripu menn til þess ráðs að draga hann nauðugan viljugan inn í girðinguna aftur. Í það verk gengu þeir Magnús B. Jónsson sem togar í halann og Jonny King sem tekur á múlnum. Við þessa aðgerð nutu þeir félagar aðstoðar nokkurra ungmenna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1197
Myndin var tekin á aðventukvöldi 5. desember 2010 eftir að öll ljós í kirkjunni voru slökkt og allir viðstaddir fengu lifandi ljós á kertin sín meðan þeir sungu saman Heims um ból. Á myndinni er Sylvía Hrólfsdóttir með ömmustelpuna sína, Arnrúnu Hildi Hrólfsdóttur en í baksýn sér m.a. í kór kirkjunnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1354
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Fólkið er, frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Þórarinn Brynjar Ingvarsson, Árni Geir Ingvarsson og Guðmundur Jón Björnsson.
Ólafur Bernódusson 841
Húsfyllir í samkomutjaldinu á kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Þar fóru fram ýmis skemmtiatriði ætluð bæði börnum og fullorðnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1625
Skólahljómsveitin Dornik spilar í Fellsborg 4. febrúar 2012 á þorrablóti. Krakkarnir eru frá vinstri: Sigurbjörg Birta Berndsen, Heba Líf Jónsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Guðrún Anna Halldórsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1497
Leiksýning á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 29. mars 2011. Ekki er vitað hvaða leikrit var verið að sýna en leikararnir eru frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Aldís Embla Björnsdóttir, ?Róbert Björn Ingvarsson? og Aron Snær Fannarsson
Guðrún Þórbjarnardóttir147
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans Jens Jónsson (d.7.12.1975) með tvö af börnum sínum. Hobbi (þorbjörn Jensson) situr á kúnni Bót og systir hans Karen styður við hann. Myndin var tekin í túninu við Réttarholt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1564
Þessir krakkar mættu á jólaball Lions í Fellsborg á annan í jólum 2011. Frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Einar Ari Einarsson, Benóný Bergmann Sæmundsen og Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015). Í baksýn er Inga Rós Sævarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 952
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 19. desember 2007. Fremri röð frá vinstri: Guðrún Rós Hjaltadóttir, Anna Margét Sigurðardóttir kennari, Egill Örn Ingibergsson, Elvar Geir Ágústsson, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Ásdís Birta Árnadóttir og Elva Dröfn Árnadóttir kennari. Efri röð frá vinstri: Birta Dögg Bessadóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, óþekktur, Aron Breki Hjartarson, óþekkt, Halldóra Guðmundsdóttir, Gunnþór Ingi Kristjánsson, tveir óþekktir, Ísak Karl Tryggvason, Róbert Björn Ingvarsson og Friðmar Kári Eiríksson
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 967
Myndin var tekin í danstíma í Fellsborg 9. október 2006. Kara Arngrímsdóttir danskennari leiðir hópinn. Börnin eru, talin frá Köru: óþekktur, Hallbjörg Jóndóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, tveir óþekktir, Dagur Freyr Róbertsson, Sveinn Hallgrímsson, Sunna Steingrímsdóttir, Aníta Ósk Ragnarsdóttir, Auðunn Árni Þrastarson, Daði Snær Stefánsson, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir og óþekkt. Í andyrinu standa Lilja Nótt Sævarsdóttir til vinstri og Elín Rafnsdóttir til hægri. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 880
Myndin ver tekin í ágúst 1999 þegar Kántrýhátíð var í gangi. Eitt af atriðunum þar var kraftakeppni þar sem fengnir voru menn til að keppa í að hlaupa með þunga malarpoka ákveðna vegalengd á sem stystum tíma. Á myndinni er Jósef Stefánsson á fullu að snúa við til að ná í næsta poka Stefán Ægir Lárusson snýr baki í okkur en hann tók á móti pokunum. Áhorfendur fylgjast spenntir með.
Ólafur Bernódusson 920
Skáldið Þorgrímur Þráinsson áritar bók eftir sig fyrir Lilju Nótt Sævarsdóttur eftir að hafa lesið úr bókinni fyrir krakka í Höfðaskóla í febrúar 1999 á vegum átaksins "Skáld í skólum".
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1495
Hjónin Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson spjalla við Gunnar Sveinsson, sem er lengst til hægri, á Bogabrautinni 8. nóvember 2011.
Ólafur Bernódusson 1007
Myndin var tekin á öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Á henni stekkur Gunnar Sveinsson langstökk. Hjörtur Guðmundsson er með hrífuna, Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) er með málbandið og fylgist með að stigið sé rétt á plankann, Gunnar Halldór Hallbjörnsson er strákurinn í hvítu treyjunni og aftan við hann er Ingibergur Guðmundsson. Karl Lúðvíksson stendur hjá Ingvari og skráir niður árangur keppenda. Sigurbjörn Þorvaldsson (d.13.8.2000) fylgist með með hendur í vösum og yfir öxl hans gægist Jón Gunnar Jósefsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1320
Myndin var tekin 10. ágúst 2011 þegar íbúar við Fellsbraut voru að skreyta götuna sína fyrir Kántrýhátíð dagana á eftir. Frá vinstri: Rúnar Jósefsson, Einar Haukur Arason, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir og Vilhelm Björn Harðarson.
Barnaból - safn468
Myndin var tekin 1997 í leikskólanum Barnaból. Aftari röð frá vinstri: Ólöf Hafþórsdóttir, óþekkt, Halla Björk Víðisdóttir, tveir óþekktir og Elías Gunnar Hafþórsson. Fremri röð frá vinstri: óþekkt, Saga Lind Víðisdóttir, Ellen Lind Víðisdóttir og þrír óþekktir strákar. Konan til hægri er óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 866
Þessa mynd tók Páll Pálsson ljósmyndari af starfsfólki Höfðaskóla veturinn 2006 - 2007. Nöfn fólksins eru á myndinni.
Barnaból - safn640
Myndin var tekin á öskudaginn 1979. Krakkar úr leikskólanum Barnaból á ferð ásamt starfsstúlkum þar. Starfsstúlkurnar eru frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Bára Þorvaldsdóttir, Kristín Jónsdóttir og Svava Svavarsdóttir. Atli Þór Þórsson og Björn Sigurðsson eru lengst til vinstri í krakkahópnum og Ragnar Friðrik Gunnlaugsson er þriðji frá hægri í köflóttri skyrtu. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1333
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 þegar Jónsstígur var formlega opnaður. Stígurinn liggur um skógræktarsvæði Skógræktarfélags Skagastrandar en hann höfðu félagsmenn gert þá um sumarið. Lengst til hægri er Ari Jón Þórsson, formaður félagsins, að ávarpa gesti. Stígurinn er nefndur eftir Jóni Jónssyni (d.9.7.1991) sem lengi var formaður Skógræktarfélagsins. Ari Jón er dóttursonur Jóns.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1461
Í Spákonufellsrétt 11. september 2011. Fólk á fullu að draga fé sitt í dilka. Fólkið er, frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Sigrún Guðmundsdóttir, Ingimar Gísli Guðjónsson og Elva Þórisdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Þórbjarnardóttir068
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Ekkert er vitað um fólkið á myndinni né hvar hún var tekin sumarið 1963. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1166
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hvar. Á henni sýnir óþekktur maður hópi fólks handbrögðin við fláningu og kjötnýtingu á sel. Í áhorfendahópnum má þekkja Karitas Laufey Ólafsdóttur (d.15.10.2019) í ljósum jakka til vinstri og Guðjón Ingimarsson skeggjaðan í skrautlegri peysu leiðandi son sinn Harald Guðjónsson. Aftan við Guðjón vinstra megin er annar sonur hans, Ingimar Guðjónsson. Líklega var myndin tekin 2004 eða 2005.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1196
Myndin var tekin 5. desember 2010 á aðventukvöldi í Hólaneskirkju. Krakkarnir á henni léku helgileik fyir kirkjugesti. Sitjandi eru frá vinstri: Auðunn Árni Þrastarson, Páll Halldórsson, Benóný Bergmann Sæmundsen, Viktor Örn Einarsson og Egill Örn Ingibergsson. Standandi frá vinstri: Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Laufey Sigurpálsdóttir, Guðrún Rós Hjaltadóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Anita Ósk Ragnarsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Laufey Lind Ingibergsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Anton Þór Einarsson. Við píanóið til vinstri er Hugrún Sif Hallgrímsdóttir sem stjórnaði tónlistarflutningi á aðventukvöldinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1508
2. apríl 2011 fóru þessi tvenn hjón á myndinni í skoðunarferð um Kröfluvirkjun eða gufustöðina í Bjarnarflagi. Hér hafa þau stillt sér upp við eina gufutúrbínuna (gufuhverfilinn) til myndatöku. Frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir og Árni Geir Ingvarsson maður hennar, Björn Hallbjörnsson með konu sinni Lilju Ingólfsdóttur.
Ólafur Bernódusson 863
Áhöfn Arnars HU 1 og gestir skála, rétt fyrir jólin 1999, fyrir að vera fyrsta áhöfnin sem skilar meira en miljarði í aflaverðmætum á einu ári.
Guðrún Þórbjarnardóttir158
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni eru fjórir ættliðir. Talið frá vinstri: Jón Sölvason, Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996), Guðrún Þórbjarnardóttir og Þorbjörn Sigurðsson, sonur hennar. Myndin var tekin 1966.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1294
Myndin var tekin 24. september 2012 af fólki á námskeiði í grjóthleðslu. Frá vinstri: Geir Arnarson, óþekktur leiðbeinandi námskeiðsins, Barney Ragnhildur Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Ingvar Gýgjar Sigurðarson.
Ólafur Bernódusson 1092
Þessi mynd var tekin 14. ágúst 2014 af listamönnum sem héldu blandaða samsýningu í sundlauginni á Skagaströnd. Listamennirnir dvöldu í Nes listamiðstöðinni nema Hrafnhildur Sigurðardóttir sem er í bláum jakka á myndinni. Hún er listamaður en jafnframt í stjórn miðstöðvarinnar. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 792
Myndin var tekin á Þorláksmessu 2010 á jólamarkaði í Djásn og Dúllerí. Það var handverksmarkaður sem rekinn var í kjallaranum á gamla kaufélaginu nokkur sumur ásamt því að vera með jólamarkað dagana fyrir jólin. Á myndinni eru frá vinstri: Slavko Velemir, Svetlana Markovic, Ingvar Þór Jónsson og Birna Sveinsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn
Hjónin á Flankastöðum með tvö eldri börn sín. Frá vinstri: Guðmunda Árnadóttir (Gumma), Guðrún Þórbjarnardóttir, Birgir Þórbjarnarson og Þórbjörn Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1356
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 á Kántrýhátíð. Fólkið á myndinni var hluti af starfsfólki BioPol á þeim tíma. Frá vinstri: Bjarni Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Soffía Karen Magnúsdóttir, Svana Lára Hauksdóttir og Magnús Stefánsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1198
Myndin var tekin rétt fyrir aðventukvöld í Hólaneskirkju 5. desember 2010. Á henni er séra Úrsula Árnadóttir að fara yfir málin með upplesurum um kvöldið. þeir eru frá vinstri: Ásdís Birta Árnadóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015) og Kristján Örn Róbertsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1606
Mennirnir á myndinni er báðir togaraskipstjórar. Birgir Þórbjarnarson er til vinstri og Guðjón Guðjónsson til hægri. Hjá þeim standa konurnar þeirra Guðrún Garðarsdóttir hjá Birgi og Guðrún Soffía Pétursdóttir hjá Guðjóni. Myndin var tekin á sjómannadeginum 2. júní 2012 en þá var Birgir heiðraður fyrir björgunarafrek sem hann vann þegar hann var 18 ára gamall.
Ólafur Bernódusson 879
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru Leó Kristberg Einarsson og Eydís Inga Sigurjónsdóttir að lesa fyrir fólk úr sögu skólans.
Uppboð Réttarholti
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er í gangi uppboð á ýmsum eigum Jóns og Þorbjargar konu hans þegar þau brugðu búi í Réttarholti eftir 30 ára búskap þar og fluttu inn á Blönduós árið 1958.
Guðrún Þórbjarnardóttir034
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru Jón og kona hans, Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.1970) með son sinn, Jens Jónsson (d.7.12.1975), á milli sín. Myndin var líklega tekin 1967.
Guðrún Þórbjarnardóttir035
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Ekki er vitað um tilefni veislunnar á myndinni sem fór fram í Skátaskálanum sumarið 1966. Fólkið hægra megin við borðið er frá hægri: Jóhanna Lárusdóttir (d.?) Læk, Jóhann F. Pétursson (d.13.1.1999) Lækjarbakka og Sigríður F. Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) kona hans, Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1337
23. maí 2012 mætti lögreglan við Höfðaskóla til að skoða reiðhjól nemenda og leggja þeim lífsreglurnar í sambandi við umferðina. Á myndinni eru Agnes Sævarsdóttir kennari og Höskuldur B. Erlingsson lögreglumaður sem er að skoða hjólið hjá Daða Snæ Stefánssyni. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn437
Myndin var tekin í Barnabóli vorið 1998. Fremri röð frá vinstri: Valþór Óli Vilhelmsson, Þórður Indriði Björnsson og óþekktur. Aftari röð frá vinstri: Elías Kristinn Sæmundsson, Þórir Óskar Björnsson og Alexander Ragnarsson. Til hægri situr á bekk Davíð Víðisson. Ef þú þekkir óþekktu strákana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1282
Myndin var tekin 17. júlí 2012 fyrir utan Árnes, sem er elsta húsið á Skagaströnd. Á henni er Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) með börnum sínum en í Árnesi var æskuheimili Guðmundu. Frá vinstri á myndinni eru: Ásís Björg Þórbjarnardóttir, Guðmunda, Guðrún Árný Þórbjarnardóttir og Birgir Þórbjarnarson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 942
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla ganga syngjandi kringum jólatré í íþróttasalnum á litlu jólum 19. desember 2007. Litlu jólin eru ávallt mjög skemmtileg þar sem allir mæta í sínu fínasta pússi og margir fá að prófa jólafötin sín í fyrsta sinn það árið.
Skagaströnd - safn490
Myndin var tekin 27. maí 2002 á Dalvík. Við borðið næst okkur eru, frá vinstri: Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011), Sigurður Pálsson og Ragnhildur ?. Við borðið fjær er Gerður Hallgrímsdóttir í gulri peysu en aðrir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1303
Fólkið á myndinni er að fá sér lystauka fyrir matinn á Hótel Reynihlíð 6. október 2012. frá vinstri: Sigríður Stefánsdóttir, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, Ragnar Smári Ingvarsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Kristín Jónsdóttir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1352
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 þegar Kántrýhátíð stóð sem hæst. Á henni er fólk af miklum áhuga að leita að, og tína upp, karamellur sem varpað var úr flugvél yfir íþróttavöllinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1522
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að flytja atriði síns bekkjar. Þeir eru frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Kristján Örn Róbertsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.17.2015), Aldís Embla Björnsdóttir, og Gunnþór Ingi Kristjánsson.
Barnaból - safn621
Leikskólabörn í leikskólanum Barnaból láta fara vel um sig fyrir svefninn í Skíðaskálanum 3. júní 1999. Til vinstri sitja strákarnir Alex Már Gunnarsson, Davíð Víðisson og Brynjar Max Ólafsson. Sitjandi upp við gaflinn eru, frá vinstri: Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir, Halla Björk Víðisdóttir, Lilja Ingólfsdóttir leikskólakennari og Árný Sif Kristínardóttir. Liggjandi eru frá vinstri: Guðjón Örn Kristjánsson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir og Sara Rut Fannarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1588
Guðlaugur Ómar Guðmundsson syngur og spilar á gítar í sjómannamessu á sjómannadeginum 2. júní 2012 í Hólaneskirkju. Til vinstri er "sjómannakórinn" þ.e. karlakór sem syngur í messum á sjómannadögum. Í honum voru, þetta árið, talið frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurjón Guðbjartsson, Ólafur Bernódusson, Árni Ólafur Sigurðsson, Þórarinn Grétarsson, Stefán Jósefsson, Trostan Agnarsson, Hafþór Gylfason og Gylfi Sigurðsson. Undirleikararnir eru frá vinstri: Ívan Árni Róbertsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir137
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Myndin var líklega tekin í hlaðvarpanum við Réttarholt. Konan og stúlkurnar eru óþekktar en hugsanlega eru þetta Hlín Kristensen (d. 28.4.1984) tengdadóttir Jóns með dætur sínar Örnu og Karen. Ef þú getur staðfest það eða þekkir þær stöllur vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1668
Fólkið á myndinni er úr Skógræktarfélagi Skagastrandar. Á myndinni sem tekin var 3. júlí 2012 eru þau að skoða teikningu af fyrirhuguðum stíg - Jónsstíg - gegnum skógræktina austan við tjaldsvæðið. Fólkið er frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Kristín Björnsdóttir, Ólafur Bernódusson, Róbert Freyr Gunnarsson og Ari Þórsson formaður félagsins.
Ólafur Bernódusson 884
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Jóhann Örn Ólafsson danskennari kennir ungum krökkum undirstöðuna í kántrýdansi. Eins og sjá má var þátttakan mjög mikil og allir skemmtu sér vel.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1346
Myndin var tekin 25. maí 2012 af útskrift 10. bekkjar Höfðaskóla það árið. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Guðrún Anna Halldórsdóttir, Lilja Svandís Hallgrímsdóttir, Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri, Sigurbjörg Birta Berndsen, Ívan Árni Róbertsson, Einar Ari Einarsson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Ólafur Bernódusson umsjónarkennari bekkjarins, Anna Dís Ragnarsdóttir, Eva Dögg Björgvinsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Heba Líf Jónsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Arnar Páll Guðjónsson (í hvarfi) og Aron Snær Fannarsson.
Ólafur Bernódusson 869
Myndin var tekin í desember 1999 á jólaföndurdegi foreldrafélags Höfðaskóla í skólanum. Á myndinni eru einbeittar í föndrinu Ásthildur Guðmundsdóttir í hvítri peysu og Guðrún Soffía Pétursdóttir í fjóluárri peysu. Milli þeirra situr dóttir Ásthildar, Valgerður Guðmundsdóttir. Við borðið í baksýn stendur Dagbjört Bæringsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir053
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru frá vinstri: Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Þóra ??, Jón Sölvason og Þórey Jónsdóttir (d.29.12.1966).
Ólafur Bernódusson 1008
Myndin var tekin á öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Þorleifur Arason (d.11.11.1991) kastar kúlunni. Ingibergur Guðmundsson er tilbúinn að mæla kastið en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 984
Hreppsnefndarmennirnir Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Jón Jónsson (d.9.7.1991) til hægri keppa í eggjahlaupi á sjómannadegi 1984. Áhorfendur skemmtu sér vel og bíða eftir að eggin falli úr skeiðunum hjá þeim félögum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1505
Matarboð í gangi 8. nóvember 2011. Krakkarnir á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Rós Hjaltadóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Aron Breki Hjartarson, Ásdís Birta Árnadóttir, Eva Dögg Björgvinsdóttir og Aldís Embla Björnsdóttir. Tilefni matarboðsins er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1440
Skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Í atriðinu er verið að gera eitthvert grín að framboðsmálum á Skagaströnd. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Árni Halldór Eðvarðsson og Hafþór Smári Gylfason. Í baksýn sér í Dagnýu Marín Sigmarsdóttur og Guðna Má Lýðsson.
Ólafur Bernódusson 891
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Tónlistarmennirnir eru, frá vinstri: Björn Viðar Jóhannsson, Eyþór Kári Egilsson og séra Guðmundur Karl Brynjarsson kennari þeirra. Lengst til hægri sér í Skarphéðinn Einarsson skólastjóra Tónlistarskóla A-Hún.
1
…
57
58
59
…
79
Leita í myndasafninu
Leita