Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
larus085
Framkvæmdir við Hólaneskirkju skoðaðar 10. október 1989. Frá vinstri: séra Ægir Fr. Sigurgeirsson, baksvipur Gunnars Einarssonar innanhússarkitekts, Örnólfur Hall arkitekt, Helgi Gunnarsson verktaki við byggingu kirkjunnar og Páll Þorfinnsson (d..1.9.1993) rafverktaki við bygginguna.
Guðrún Þórbjarnardóttir059
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru fjórir menn frá Skagaströnd, líklega staddir við Skrapatungurétt en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Karlarnir eru frá vinstri: Fritz H. Magnússson (d.19.10.1965), Ole Aamundsen (d.??), Jónatan Á. Jónsson (d.17.7.1971) og Jón Sölvason.
Guðrún Þórbjarnardóttir061
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru synir Jóns. Frá vinstri: Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996), Jens Jónsson (d.7.12.1975) og Björgvin Jónsson (d.4.5.1992). Myndin var tekin í garðinum við Flankastaði, heimili Þórbjörns, sumarið 1963. Húsið næst í baksýn er Kárastaðir, sem nú er horfið.
Ólafur Bernódusson 961
Myndin var tekin á fystru Kántrýhátíðinni 1984. Óþekkt stúlka syngur fyrir gesti við undirleik hljómsveitar. Sviðið var reist í skjóli við bergin við tjaldsvæðið. Slagorðið: "Hið villta vestur er hér" var síðan notað áfram á þeim hátíðum sem haldnar voru næstu ár. Á myndinni má þekkja Önnu Ásgeirsdóttur aftan við Ólaf Magnússon í ljósum jakka í krakkahópnum. Aðrir eru óþekktir.
Guðrún Þórbjarnardóttir134
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni eru hjónin Jón og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970) lengst til vinstri í aftari röðinni. Þá kemur tengdadóttirin Guðmunda Árnadóttir (d.26.1 2017), maður hennar Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996), Björgvin Jónsson, tengdadóttirin Hlín Kristensen (d.28.4.1984) og Jens Jónsson (d.7.12.1975) maður hennar. Börnin á myndinni eru óþekkt en líklega er Birgir Þórbjarnarson lengst til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 834
Myndin var tekin 26. júní 2008 í Bjarmanesi. Ekki er vitað um tilefni myndatökunnar en það var greinilega húsfyllir.
Skagaströnd - safn499
Kaffispjall í félagsstarfi aldraðra í Fellsborg. Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) stendur en við borðið eru, frá vinstri; Guðrún Soffía Pétursdóttir, Guðrún Angantýsdóttir, Ásthildur Gunnlaugssdóttir og Guðný Björnsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 26
Þessi mynd var tekin af hjónunum Gunnhildi Lindu Vigfúsdóttur (d.30.1.2018) og Heiðari Elvan Friðrikssyni þegar þau voru í tilhugalífinu á áttunda áratugnum.
Ólafur Bernódusson 867
Myndin var tekin á jólaföndurdegi foreldrafélags Höfðskóla í skólanum í desember 1999. Á slíkum föndurdögum mættu foreldra með börnum sínum og unnu eitthvað fallegt í höndunum. Yfirleitt var húsfyllir á þessum viðburðum.
Ólafur Bernódusson 921
Myndin var tekin í febrúar 1999 þegar Kristín Helga Gunnarsdóttir skáld er að árita bækur fyrir krakka úr Höfðaskóla eftir að hafa lesið upp fyrir þau á vegum átaksins "Skáld í skólum". Kristbjörg Una Guðmundsdóttir er lengst til hægri, Rósa Björg Einarsdóttir er í rauðri peysu og aftan við hana er Sonja Hjördís Berndsen. Sú sem snýr baki í okkur er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1720
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið kringum 1975. Á henni eru frá vinstri: Þórarinn Brynjar Ingvarsson, Árni Geir Ingvarsson og Vala Rós Ingvarsdóttir. Myndin var tekin um borð í óþekktum bát.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1472
Kleinubakstur í fullum gangi í kennslueldhúsinu í Höfðaskóla 28. september 2011. Kleinurnar voru síðan seldar til ágóða fyrir skólafélagið Rán svo unglingarnir kæmust í skólaferðalag til útlanda. Litla stúlkan á myndinni er Klara Ósk Hjartardóttir að aðstoða móður sína Vigdísi Ómarsdóttur. Strákurinn í grænu peysunni er sonur Vigdísar, Aron Breki Hjartarson. Konan með röndóttu svuntuna er Þorgerður Þóra Hlynsdóttir en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn545
Myndin var tekin 17. ágúst 1998 í leikskólanum Barnaból. Sesselja Guðmundsdóttir til vinstri og Þórunn Bernódusdóttir til hægri sitja með börnunum í matartíma. Krakkarnir eru frá vinstri: Halla Björk Víðisdóttir (nær), óþekktur (fjær), Sonja Sif Ólafsdóttir, Saga Lind Víðisdóttir, Ólöf Hafþórsdóttir og Kristín Gyða Guðmundsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1520
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að spila og syngja atriði síns bekkjar. Frá vinstri: Elín Ósk Björnsdóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Viktor Már Einarsson, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Jóhannes Hólmar Sigurpálsson, óþekkt og Victoría Sif Hólmgeirsdóttir
Skagaströnd - safn529
Myndin var tekin í heimsókn eldri borgara á eitthvert óþekkt safn 27. maí 2003. Ottó Ákason (d.17.9.2005) stendur innan við borðið en konan til vinstri er óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Barnaból - safn653
Hópmynd tekin í leikskólanum Barnaból, líklega árið 2000. Fremsta röð frá vinstri: Ísak Karl Tryggvason, Jón Margeir Vilhjálmsson, Egill Örn Ingibergsson, Aldís Embla Björnsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, Elmar Jóhann Grétarsson, Ólafur Þór Víðisson, Ásdís Rán Kristjánsdóttir og Halldóra Ósk Guðmundsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Guðmann Einar Magnússon, Ástrós Anna Gestsdóttir, Einar Ari Einarsson, Anna Dís Ragnarsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, Freyja Sif Einarsdóttir, Friðmar Kári Eiríksson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Guðrún Anna Halldórsdóttir, Guðrún Helga Magnúsdóttir, Eik Guðmundsdóttir og Kristný Huld Einarsdóttir. Þriðja röð frá vinstri: Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), Elvar Geir Ágústsson, Aron Breki Hjartarson, Róbert Björn Ingvarsson, Aron Snær Fannarsson, Ægir Jónas Jensson, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Valgerður Sif Indriðadóttir, Ívan Árni Róbertsson, Saga Lind Víðisdóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir og Ragnheiður Sigurjónsdóttir sem heldur á Rakel. Aftasta röð frá vinstri: Valrún Eva Vilhelmsdóttir, Sylvía Ósk Hrólfsdóttir, Kristmar Ingi Ragnarsson, Lilja Ingólfsdóttir, Ingunn Embla Kristínardóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Indriði Theódór Hjaltason, Heba Líf Jónsdóttir, Sæþór Bragi Ágústsson, Sesselja Guðmundsdóttir, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Fjóla Ævarsdóttir, Linda Rós Ómarsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Sigurjón Elí Eiríksson, Ernst Guðni Hólmgeirsson, Úlfur Guðmundsson, Magnús Jens Magnússon og Helga Bergsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1478
Myndin var tekin í félagsheimilinu á Blönduósi 10. nóvember 2011 á tónleikum. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Skarphéðinn Einarsson, Haukur Ásgeirsson, Helga Dögg Jónsdóttir og Benedikt Blöndal.
Ólafur Bernódusson 1070
Myndin var tekin 1. nóvember 2013 í dæluhúsi hitaveitunnar á Skagaströnd þegar veitan var formlega vígð. Á henni er sveitastjórnafólk, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Jensína Lýðsdóttir, Péturína Jakobsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson öll úr hreppsnefnd á Skagaströnd. Lengst til hægri er Valgarður Hilmarsson bæjarstjórnarmaður á Blönduósi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1192
Myndin var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju 5. desember 2010 af kór kirkjunnar. Fremsta röð frá vinstri: Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Ásdís Birta Árnadóttir, sem söng með kórnum þetta kvöld, Elva Dröfn Árnadóttir, Guðrún Sigurðardóttir og Hjördís Sigurðardóttir. Miðröð frá vinstri: Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018), Bára Þorvaldsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir og Lilja Ingólfsdóttir. Aftasta röð frá vinstri: Sigurjón Guðbjartsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurður Bjarnason, Ólafur Bernódusson, Trostan Agnarsson og Hafþór Gylfason. Stjórnandi kórsins, Hugrún Sif Hallgrímsdóttir, spilar undir á píanó.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1402
Brekkusöngur að fara að hefjast í hólunum neðan við stjórnsýsluhúsið 12. ágúst 2011 á Kántrýhátíð. Fólkið er frá vinstri: Helga Dögg Jónsdóttir, Árni Geir Ingvarsson, Ragnar Smári Ingvarsson, Einar Guðmundsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Bernódus Óli Einarsson. Litla stúlkan við hlið Önnu Sjafnar er dóttir hennar, Þórhildur Lilja Einarsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir045
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög slæm. Hún er samt birt hér vegna þess hve skemmtileg hún er. Myndin er líklega tekin kringum 1965 af mönnum frá Skagaströnd sem voru í vinnu hjá síldaröltunarstöð Gunnars Halldórssonar á Raufarhöfn. Mennirnir eru frá vinstri: Sigurður Pálmason, ?Árni Sigurðsson ?, Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988), Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), Kristinn Guðmundsson (d.1.12.1986), óþekktur, Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), ?Pétur Jóhannsson?, Georg Hjartarson (d.13.9.2001), Hartmann Jóhannesson (d.22.12.1976) og Kristófer Árnason (d.10.5.2000). Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Sigurður Bjarnason - safn 056
Myndin var tekin 1. september 2001 í 90 ára afmæli Rósu Pálsdóttur (d. 1.5.2002) sem haldið var í Kántrýbæ. Á henni eru börn Rósu og Bjarna J. Jóhannssonar (d.2.9.1971) manns hennar. Systkinin eru frá vinstri: Sigurður Skagfjörð Bjarnason, Sævar Bjarnason, Frits M. Bjarnason, Anna Bjarnadóttir, Jóhann Karl Bjarnason (d. 14.9.2015) og Ragna Bjarnadóttir. Lengst til hægri, með gítar, er kona Sigurðar, Sigrún Lárusdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir103
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru hjónin Jón og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970) til vinstri og Kristbjörg ? til hægri. Ef þú veist hver Kristbjög var vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 948
Umf Fram stóð fyrir reiðhjólakeppni um bæinn í nokkur vor undir stjórn Lárusar Ægis Guðmundssonar. Á myndinni, sem tekin var vorið 1981 eða 1982, er Lárus að afhenda sigurvegurum í einum flokknum viðurkenningarskjölin sín. Strákarnir eru frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Stefán Ægir Lárusson og Viggó Magnússon.
Inga Stefánsdóttir 2
Börnin á myndinni eru óþekkt nema Karl Guðmundsson sem er barnið með hvítu húfuna. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hún var líklega tekin nálægt staðnum þar sem kirkjan er í dag. Ef þú þekkir einhvert barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd. Til gamans koma hér nokkrar ágiskanir: Aftast með hettu: Ása Jóhannsdóttir ??, vinstra megin við hana: ?? Bertelsdóttir ??, til hægri við Karl: Helga Guðmundsdóttir systir hans ??, Strákurinn sem er fjórði frá vinstri (fjær okkur): Sigurður Bjarnasaon ?? og þriðja frá hægri er: ?? Sigurðardóttir frá Hólanesi ??. Getur þú staðfest þessar ágiskanir ?
Guðrún Þórbjarnardóttir160
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni eru frá vinstri: Jón Sölvason, Þorbjörn Sigurðsson og Árni Kristófersson (d.11.10.1982). Jón og Árni eru langafar Þorbjörns. Myndin var tekin 1966.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1441
Myndin var tekin á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Greinilegt að fólk í salnum skemmtir sér vel yfir skemmtiatriðunum á sviðinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1214
Heyskapur á Höfðahólatúninu þar sem tjaldsvæðið er í dag. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Þar sem fólkið er fremur ógreinilegt er giskað á að það sé úr sömu fjölskyldu, sem heyjaði túnið í mörg ár. Frá vinstri: Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004) að raka, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) að bera upp í sæti, Óskar Jóhannesson að raka, Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997) að raka og Páll Jóhannesson. Ef þú getur staðfest að þetta sé rétt ágiskun vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1629
Á þorrablóti 4. febrúar 2012. Leikhópurinn segir frá, á sinn hátt, þegar sendiherra Bandaríkjanna kom og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Halldór Gunnar Ólafsson leikur Hallbjörn til vinstri og Hafþór Gylfason sendiherrann til hægri. Áhorfendur í bakgrunni eru leiknir af, frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, María Ösp Ómarsdóttir, Trostan Agnarsson, Elva Dröfn Árnadóttir, Guðni Már Lýðsson og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir029
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er greinilega klippt út úr dagblaði og því eru myndgæðin léleg. Líklega eru konurnar á myndinni eitthvað tengdar kvenfélaginu Eining á Skagaströnd. Á henni eru í fremri röð frá vinstri: Helga Berndsen, Soffía Lárusdóttir (d.30.3.2010) og Margrét Konráðsdóttir (d.17.9.1974). Aftari röð frá vinstri: Guðríður Valdimarsdóttir (d.1.4.2018), Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) og Björk Axelsdóttir.
Skagaströnd - safn518
Eldri borgarar í Húnavatnssýslu fóru saman í ferðalag 13. maí 2000. Þá var þessi mynd tekin á ókunnum áningarstað. Á henni eru frá vinstri: Hrefna Hákonardóttir (d.14.12.2004), Hallur Hilmarsson bílstjóri hópsins og Indriði Hjaltason (d.2.4.2006)
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn134
Fólkið á myndinni eru systkini. Frá vinstri: Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019), Björg Ólafsdóttir (d.1.3.2007), Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Líklega var myndin tekin 1986.
Ólafur Bernódusson 940
Leikklúbbur Skagastrandar setti upp leikritið Kardimommubærinn í febrúar 1992. Myndin var tekin á æfingu. Á henni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Ingólfur Bjarnason, Rúnar Jóhannsson og Jón Ingvar Valdimarsson sem léku ræningjana. Þá kemur Elín Njálsdóttir í hlutverki Soffíu frænku. Ekki er vitað hver lék ljónið en Steindór Haraldsson var Bastían bæjarfógeti. Jóney Hrönn Gylfadóttir og Jensína Lýðsdóttir í hlutverkum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1437
Mynd af skemmtiatriði á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011. Leiknir eru starfsmenn Helga Gunnarssonar sem greinilega eru mjög hrifnir af konunni með borðann. Frá vinstri: Árni Halldór Eðvarðsson, Ólafur Bernódusson, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Hafþór Smári Gylfason, Guðni Már Lýsson og Þorgerður Þóra Hlynsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir113
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er sonardóttir hans, Guðrún Þórbjarnardóttir með manni sínum Sigurði Óla Sigurðssyni og Þórbirni syni þeirra á skírnardegi hans.
Ólafur Bernódusson 895
Myndin var tekin í apríl 1999 þegar húsnæði Rauðakross deildarinnar á Skagaströnd var vígt. Á myndinni er fólkið sem var í stjórn deildarinnar á þeim tíma. Frá vinstri: Jensína Lýðsdóttir, Ása Jóhannsdóttir, Björn Ingi Óskarsson, Pétur Eggertsson formaður og Kristján Kristjánsson (d.10.10.2007).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1652
Ian Witting sendiherra Breta á Íslandi kom í heimsókn til Skagastrandar sumarið 2011. Á myndinni er hann, í blárri skyrtu, staddur á skrifstofu fiskmarkaðarins að kynna sér starfsemi hans. Aðrir á myndinni eru Jón Ólafur Sigurjónsson, út við gluggann, Ólafía Lárusdóttir við hlið Ians, Reynir Lýðsson framkvæmdastjóri markaðarins og Péturína Laufey Jakobsdóttir kona hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1295
Myndin var tekin 24. september 2012 þegar fólk á grjóthleðslunámskeiði sækir grjót í skriðuna við Tjörn á Skaga. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Geir Arnarson, Bjarney Ragnhildur Jónsdóttir, Ingvar Gýgjar Sigurðarson, óþekktur leiðbeinandi á námskeiðinu og Ólafur Bernódusson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1287
Lárus Ægir Guðmundsson og Elsa Lára Blöndal fara yfir sýningarskrá fyrir sýningu á verkum Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010) 20. júlí 2011. Sýningin var haldin í íþróttahúsinu á Skagaströnd þar sem sýnd voru fjölmörg og margvísleg verk Sveinbjörns, sem lengst af bjó á Skagaströnd. Á myndinni má sjá nokkur verkanna á sýningunni.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn140
Myndin var tekin 30. apríl 2001 við Suðurveg 3. Á henni eru börn Bernódusar Ólafssonar (d.18.9.1996) og Önnu Halldórsdóttur Aspar (d.1.9.1999) með bróður Bernódusar, Herbert Ólafssyni (d.25.4.2007). Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Halla Björg Bernódusdóttir, Herbert, Þórunn Bernódusdóttir og Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020).
Sigurður Bjarnason - safn 058
Myndin var tekin 1. september 2001 í 90 ára afmæli Rósu Pálsdóttur (d. 1.5.2002) sem haldið var í Kántrýbæ. Á myndinni eru börn Rósu og barnabörn að syngja fyrir hana en þau eru öll mjög gott söngfólk. Frá vinstri: Sigurður Bjarnason en bak við hann sér í Sævar Bjarnason, Anna Bjarnadóttir, Ragna Bjarnadóttir, Sigrún Lárusdóttir kona Sigurðar, Inga Lára Sigurðardóttir og Svava Sigurðardóttir.
Barnaból - safn558
Piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 28. nóvember 1998. Cristina Silod Yecyec hjálpar syni sínum Indiða Theódór Hjaltasyni við baksturinn. Konan í baksýn er óþekkt.
Barnaból - safn605
Börnin á myndinni eru fædd 2004 og 2005.
Guðrún Þórbjarnardóttir127
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru hjónin Jón Sölvason og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970) með barnabarn sitt þorbjörn Jensson (Hobba) sem situr á hryggjarlið úr hval.
Ólafur Bernódusson 924
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 í árlegri skötuveislu togaramanna í Fellsborg. Á borðinu næst okkur má þekkja Skafta Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) í blárri peysu. Sonur hans Jónas Skaftason (d.17.11.2017) situr við hlið hans en gráhærða konan við borðið er kona Skafta og móðir Jónasar, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003). Aðrir sem þekkja má á myndini eru Hrólfur Pétursson, María Magnúsdóttir og Óskar Þór Kristinsson og e.t.v. fleiri.
Ólafur Bernódusson 888
Myndin var tekin á vortónleikum Tónlistarskólans í Hólaneskirkju í maí 1999. Á henni spilar María Markovic á fiðluna sína við undirleik Michael Jones kennara á píanó.
Ólafur Bernódusson 988
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Fólkið á myndinni er frá vinstri: óþekkt, Pálmi Jónsson (d.9.10.2017) Alþingismaður og ráðherra, Stefán Guðmundsson (d.10.9.2011) Alþingismaður, Jón S. Pálsson, Jón Ingi Ingvarsson, Karl Berndsen (d.12.2.1995), óþekktur og Bjarney Valdimarsdóttir .
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1330
Árni Geir Ingvarsson spjallar við Almar Atla Ólafsson og Stefaníu Hrund Stefánsdóttur á horninu hjá Fellsbraut 9, 10. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1700
Myndin var tekin í gospelmessu í Hólaneskirkju 23. október 2010. Aukinn kirkjukór syngur syngur af hjartans list undir stjórn Óskars Einarssonar sem situr við píanóið. Húsfyllir var í kirkjunni þetta kvöld.
Ólafur Bernódusson 1015
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1699
Þessir krakkar, nemendur Höfðaskóla, voru að undirbúa sundlaugarpartý þegar myndin var tekin 3. september 2010. Krakkarnir eru frá vinstri: Alma Vignisdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Sigurlaug Máney Sæmundsen og Erna Ósk Björgvinsdóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir037
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er sonur hans, Jens Jónsson (d.7.12.1975), og fjölskylda hans. Frá vinstri: þorbjörn Jensson, Jens Jónsson (d.7.12.1975) og Hlín Kristensen (d.28.4.1984) kona hans og Arna Jensdóttir.
Ólafur Bernódusson 930
Örvar HU 2, áður Blængur NK 117, kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd á Þorláksmessu 1998. Þá var öllum boðið að skoða skipið og þiggja kaffiveitingar. Myndin var tekin í borðsalnum af hluta fólks sem þáði boðið. Guðrún Soffía Pétursdóttir er lengst til vinstri. Maðurinn í hvítu stuttermaskyrtunni er Sigurbjörn Björgvinsson matsveinn, Sólrún Ólína Sigurðardóttir er í blárri úlpu, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir er í gulri úlpu og Hjörtur Guðmundsson situr við borðið með son sinn í fanginu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 962
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni sem haldin var 1984. Þá hafði verið komið fyrir tvöfaldri "svifbraut" milli bergjanna við tjaldsvæðið. Svifbrautin naut mikilla vinsælda meðal krakkanna.
Guðrún Þórbjarnardóttir076
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Jón með tveimur (?afa?) stúlkum. Ef þú þekkir stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 981
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983 þegar verið var að syngja og dansa kringum jólatréð. Upp við vegginn eru kennararnir Magnús B. Jónsson í köflóttri peysu og Guðmundur Haukur Sigurðsson með gleraugu. Nemendurnir eru frá vinstri: Valdimar Númi Hjaltason, Guðmundur Óskarsson ?, Kristjana Jónsdóttir, Jón Arnarson (nær), Jóhann Ásgeirsson (fjær), tveir óþekktir, Svava Sigurðardóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson (næst) Baldvin Sveinsson (í miðið), Davíð Reynisson (fjærst), Magnús kennari, Rafn Ingi Rafnsson, Sigurbjörn Kristjánsson með jólahúfu, Þorlákur Sveinsson, Stefán Ægir Lárusson, óþekktur, Arnar Erlingsson, Ingvi Sveinn Eðvarðsson og Guðmundur kennari. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1414
Á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Hjónin Guðbrandur Magnússon og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir spjalla við Sigríði Ólínu Sigurðardóttur, sem er á milli þeirra.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1555
Myndin var tekin utan við Hofskirkju 24. apríl 2011 að lokinni messu þar. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Sveinn Sveinsson bóndi á Tjörn, Hafþór Gylfason, Aldís Embla Björnsdóttir, Sigurjón Guðbjartsson og Hrafnhildur Jóhannsdóttir.
Helgi Gunnarsson 34
15. mars 1998 var íþróttahúsið vígt með viðhöfn. Á myndinni er Adolf H. Berndsen oddviti í ræðustól en faðir hans, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018), er á leið úr stólnum eftir að hafa flutt hamingjuóskir og afhent gjöf frá Olís.
Guðrún Þórbjarnardóttir066
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Jón lengst til vinstri, óþekkt kona í miðjunni og Lárus Björnsson (d.27.5.1987) frá Grímstungu í Vatnsdal. Ef þú þekkir konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
58
59
60
…
79
Leita í myndasafninu
Leita