Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1530
10. ágúst 2012 var Ólafur Bernódusson með götusölu utan við verslunin Samkaup í samvinnu við tvo af afastrákunum sínum. Þeir buðu upp á kæstan hákarl, nýbakað rúgbrauð, rabbarbarasafa og nýtínd krækiber. Salan gekk ágætlega þó að hún hafi aðallega verið haldin til gamans og til að krydda mannlífið þennan blauta ágústdag. Á myndinni eru frá vinstri: Ólafur Halldórsson, Ingvar Gýgjar Sigurðsson, Páll Halldórsson og Ólafur Bernódusson.
Barnaból - safn637
Myndin var tekin á öskudeginum 1982 af krökkum úr leikskólanum Barnaból í verslun kaupfélagins. Af augljósum ástæðum eru börnin óþekkt en starfsstúlkurnar eru frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir og Bára Þorvaldsdóttir. Myndina tók Jón Jónsson (d.9.7.1991) sem þá var verslunarstjóri í kaupfélaginu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1570
Myndin var tekin á jóla-barnaballi Lions í Fellsborg 26. desember 2011. Gengið kringum jólatréð og sungið með jólasveinunum,
Ragnar S. Ingvarsson - safn 108
Hjónin Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) og Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988) í jólaheimsókn á Suðurveginum hjá syni sínum Ragnari Smára og tengdadóttur Kristínu Jónsdóttur sem er á milli þeirra á myndinni. Ekki er vitað hvaða ár myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1054
27. júní 1998 var nýbygging Kántrýbæjar vígð með pompi og prakt. Gamli Kántrýbær brann að stórum hluta 22. október 1997 en fljótlega eftir það var hafist handa við að byggja nýtt hús á grunni þess sem brann. Þannig liðu ekki nema 8 mánuðir frá brunanum að vígslunni sem myndin er frá. Hún sýnir fólk hlýða á Hallbjörn J. Hjartarson, eiganda Kánrýbæjar, þar sem hann fer yfir byggingarsögu hússins. Á myndinni er eiginkona Hallbjörns, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), í hvítri blússu til vinstri. Aðrir gestir eru m.a. tvær bræður Hallbjörns, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003), með rautt bindi hægra megin við miðju og lengst til hægri er Sigurður Hjartarson (d.1.8.2020).
Halldór Gunnar Ólafsson 4
Myndin var líklega tekin kringum 1980. Á henni eru frá vinstri: Róbert Freyr Gunnarsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Viggó Magnússon, Stefán Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna).
Skagaströnd - safn515
Myndin var tekin 4. desember 1998 Kántrýbæ þegar eldri borgarar á Skagaströnd mættu þar á jólahlaðborð. Fólkið hægra megin við borðið er óþekkt en vinstra megin eru, frá vinstri: Hrefna Hákonardóttir (d.14.12.2004), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Ragnhildur J. Jónsdóttir (d.19.1.2005), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004).
Skagaströnd - safn486
Hjónin Birna Jónsdóttir (d.26.10.2018) og Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010) eru vinstra megin við borðið á þessari mynd en hjá þeim situr Ingvar Jónsson (d.18.1.2003). Myndin var tekin 4. desember 1998 í Kántrýbæ þegar eldri borgarar á Skagaströnd gerðu sér glaðan dag þar.
Ólafur Bernódusson 987
Myndin var tekin 22. september 1983 þegar Landsbankaútibúið á Skagaströnd var opnað formlega. Þá var reyndar liðið u.þ.b. eitt ár frá því að Landsbankinn yfirtók starfssemi Sparisjóðs Skagastrandar. Á myndinni eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ragnar Arnalds Alþingismaður og ráðherra, Adolf J. Berndsen oddviti Höfðahrepps, Róbert Þórðarson (d.26.11.2011) útibústjóri á Skagaströnd, Páll Pétursson Alþingismaður og ráðherra og baksvipur Bernódusar Ólafssonar (d.18.9.1996).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 136
Myndin var tekin í einhverju kaffisamsæti í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær né hvert tilefnið var. Á henni eru Ragnar Smári Ingvarsson og Anna Jóna Geirsdóttir.
Barnaból - safn630
Nokkur börn úr leikskólanum Barnaból, ásamt íþróttakennara og starfsstúlkum, sýna fimleika í íþróttahúsinu 15. október 2002 fyrir Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands, sem var þá í heimsókn. Á gólfinu sitja frá vinstri: Carl Erik Lehman Jakobsen, María Jóna Sigurðardóttir, Fjóla Ævarsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, tvö óþekkt og Lilja Dögg Hjaltadóttir. Fyrir aftan eru frá vinstri: Dorrit Moussaieff forsetafrú, Stella Kristjánsdóttir skólastjóri Höfðaskóla, herra Ólafur Ragnar Grímsson forseti, Örnólfur Thorsson forsetaritari og tvö óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1669
Myndin var tekin 3. júlí 2012 af "útifundi" Skógræktarfélags Skagastrandar við trjálund neðan við Hólabergin. Á fundinum var verið að ræða gerð stígs gegnum skógræktina austan við tjaldsvæðið. Fólkið er, frá vinstri: Róbert Freyr Gunnarsson, Ari Þórsson, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Kristín Björnsdóttir, Ólafur Bernódusson (fjær), Guðmundur J. Björnsson (nær) og Ólafur Halldórsson.
Ólafur Bernódusson 1006
Myndin var tekin á öldungamóti USAH á Skagastrandarvelli 1983. Á henni stekkur Jón Ingi Ingvarson langstökk. Hjörtur Guðmundsson er með hrífuna. Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) (með gleraugu) heldur í málbandið. Strákurinn í hvítu treyjunni er Gunnar Halldór Hallbjörnsson en bak við hann er Ingibergur Guðmundsson og tveir óþekktir. Lengst frá með svart hár og skegg er Jón Gunnar Jósefsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1532
26. nóvember 2011 var kveikt á jólatrénu á Hnappstaðatúninu það árið. Þá var þessi mynd tekin.
Guðrún Þórbjarnardóttir139
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er Halldór Halldórsson Snæhólm (d.28.11.1964) ásamt konu sinni Elínu Kristínu Guðmundsdóttur (d.6.4.1988) og börnum þeirra. Halldór var mágur Jóns Sölvasonar.
Sigurður Bjarnason - safn 055
Myndin var tekin 1. september 2001 í 90 ára afmæli Rósu Pálsdóttur (d. 1.5.2002) sem haldið var í Kántrýbæ. Sitjandi frá vinstri eru systurnar: Rósa Pálsdóttir, Hulda Pálsdóttir (d.29.9.2011) og Þorbjörg Jóninna Pálsdóttir (d.21.3.2018). Fyrir aftan þær stendur hálfbróðir þeirra, Knútur Berndsen (d.31.8.2013).
Ólafur Bernódusson 926
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 í skötuveislu togaramanna í Fellsborg. Á henni eru nokkrar konur að dást að litlu barni. Barnið er Bernódus Óli Einarsson. Móðir hans, Anna Sjöfn Jónasdóttir er í blárri peysu. Langamma hans, Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999), snýr baki í okkur. Vinkonur Önnu Sjafnar, Dagný Marín Sigmarsdóttir gulklædd og Jóney Hrönn Gylfadóttir í grárri peysu, eru að skoða Benna litla. Litla barnið er dóttir Dagnýar, Sigurbjörg Birta Berndsen.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1663
Myndin var tekin 30. júní 2011 af krökkunum í Vinnuskólanum á leið heim í hádegismat. Krakkarnir eru frá vinstri: Eva Ósk Björgvinsdóttir, Halldóra Guðmundsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir, Hanna Lísa Hafliðadóttir (d.13.7.2015), Sylvía Hrólfsdóttir, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, óþekkt, Egill Örn Ingibergsson, Aron Breki Hjartarson, Viktor Valdimarsson og Elías Gunnar Hafþórsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir048
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Hún er klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög léleg. Á henni eru hjónin Iris Jónsdóttir (d.8.9.1963) og Hákon Magnússon (d.2.8.2020) ásamt dætrum sínum. Iris drukknaði í höfninni á Skagaströnd í hræðilegu slysi er hún ók fram af hafnargarðinum með dætur sínar í bílnum. Dætrunum var bjargað úr sjónum en ekki náðist að bjarga Irisi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1601
Myndin var tekin á sjómannadaginn 2. júní 2012. Lárus Ægir Guðmundsson er í ræðustól að ryfja upp sorglegan atburð þegar Íris Jónsdóttir drukknaði í höfninni á Skagaströnd 8. september 1969. Þeim félögum Birgi Þórbjarnarsyni til vinstri og Sigurði Björnssyni til hægri, tókst að bjarga tveim ungum dætrum Írisar og systur hennar úr ísköldum sjónum. Við þetta tækifæri voru þeir félagar sæmdir heiðursmerki sjómannadagsins. Konan á milli þeirra Birgis og Sigurðar er Auður Hjördís Sigurðardóttir sem tók við heiðursmerki fyrir hönd aldraðs föður síns, Sigurðar Árnasonar (d.26.3.2013) en honum tókst að bjarga skipverja sem féll útbyrðis af bát sem Sigurður var skipstjóri á 7. nóvember 1961. Þótti ganga kraftaverki næst að Sigurður skyldi finna manninn í kolamyrkri án allra hjálpartækja nema áttavita og dýptarmælis.
Ólafur Bernódusson 1066
23. mars 2013 hélt Eggert Þór Bernharðsson (d.31.12.2014) sagnfræðingur fyrirlestur í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd, sem hann nefndi "Fjársjóður í fjölskyldualbúminu". Einnig voru til sýnis nokkrar fjölskyldumyndir úr Ljósmyndasafni Skagastrandar. Fyrirlesturinn var vel sóttur og á þessari mynd má sjá nokkra áhugasama fylgjast með myndasýningu Eggerts. Frá vinstri: Adolf H. Berndsen, Steindór Haraldsson, Sigríður Stefánsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, Árni Geir Ingvarsson (fjær), Dagný Marín Sigmarsdóttir (nær), Herdís Jakobsdóttir (fjær), Halldór Gunnar Ólafsson (nær),Vilhelm Harðarson (fjær), Hjördís Sigurðardóttir (nær), Ingibergur Guðmundsson, Kristín Kristmundsdóttir (fjær), Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) (nær), Signý Richter, Guðbjörg Kristinsdóttir, Melody Woodnut, Rebekka Þórarinsdóttir og Eggert Þór fyrirlesari.
Ólafur Bernódusson 998
Myndin sýnir hluta gesta á upplestarakvöldi haustið 1984. Þá komu skáldin Þórarinn Eldjárn og Olga Guðrún Árnadóttir í heimsókn og lásu úr verkum sínum í kjallaranum í Fellsborg. Fólkið á myndinni er frá vintri: Jón S. Pálsson, Bjarney Valdimarsdóttir (nær), Björk Axelsdóttir (fjær), óþekkt, Guðný Sigurðardóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Jón Jónsson (d.9.7.1991), Magnús B. Jónsson og baksvipur Bernódusar Ólafssonar (d.18.9.1996).
Óskar Kristinsson safn 046
Hjónin Sigþrúður Magnúsdóttir og Hafþór Smári Gylfason á ferðalagi með öðrum starfsmönnum Skagstrendings hf. Ekki er vitað hær myndin var tekin.
Barnaból - safn604
Lilja Ingólfsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir, Guðlaug Grétarsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Herdís Jakobsdóttir
Ragnar S. Ingvarsson - safn 129
Börnin á myndinni voru fermd í Hólaneskirkju (eldri) vorið 1985. Í fremri röð eru, frá vinstri: Hallgrímur Oddsson, Erlingur Ottósson, Hafdís Þorvaldsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir og Vigdís Ómarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Viggó Magnússon, Ægir Thorberg Jónsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Sveinn Ingvar Jónasson og Baldur Bragi Eðvarðsson. Presturinn, séra Oddur Einarsson, situr framan við hópinn.
Ólafur Bernódusson 929
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson blessar Örvar HU 2 þegar hann kom í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn á Þorláksmessu 1998. Áður hét skipið Blængur NK 117 frá Neskaupstað. Maðurinn í leðurjakkanum er Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
gunnar029
Fólkið á myndinni er að fagna nýju skipi í sinni eign. Um var að ræða annað hvort Húna Hu 1 eða Húna II Hu 2. Húni Hu 1 var smíðaður í Þýskalandi 1957 en Húni II á Akureyri 1963. Ekki er vitað um hvort skipið var að ræða. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ólöf Guðmundsdóttir (d.5.9.2002), óþekktur, Björn Pálsson (d.11.4.1996) eiginmaður Ólafar, bóndi, kaupfélagsstjóri , útgerðarmaður og Alþingismaður. Lengst til hægri er Hákon Magnússon (d.2.8.2020) skipstjóri. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn512
Eldri borgarar gerðu sér glaðan dag 4. desember 1998 og skelltu sér á jólahlaðborð í Kántrýbæ. Þá var þessi mynd tekin. Til vinstri er Hrefna Hákonardóttir (d.14.3.2011). Hægra megin við borðið eru, talið frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) kona hans, Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011) og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) bróðir hennar.
Guðrún Þórbjarnardóttir073
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Líklega eru börnin á myndinni systkini en þau eru óþekkt. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 93
Vala Rós Ingvarsdóttir og Karl Berndsen (d.28.1.2020) í nánu samtali.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1463
Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016) læknir og sambýliskona hans Kristin Ágústsdóttir sitja hjá Aðalbjörgu Ingvarsdóttur í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Barnaból - safn557
Piparkökubakstur í leikskólanum Barnaból 28. nóvember 1998. Við borðið eru hjónin séra Guðmundur Karl Brynjarsson og Kamilla Hildur Gísladóttir að aðstoða börnin sín Kristínu Gyðu og Felix Arnkel við baksturinn. Til vinstri sér í Helgu Ólínu Aradóttur.
Ólafur Bernódusson 868
Myndin var tekin í desember 1999 á jólaföndurdegi í Höfðaskóla. Fólkið á myndinni eru vinstri: óþekktur, Dóra Jónasdóttir, Linda Björk Ævarsdóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Jensína Lýðsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir og Dagbjört Bæringsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1498
Frændsystkinin Hafþór Smári Gylfason og Hallbjörg Jónsdóttir í Fellsborg 23. október 2011 í 20 ára afmælishófi Hólaneskirkju. Bæði sungu þau í kirkjukórnum á þessum tíma.
Ólafur Bernódusson 966
Eitt af sýningaratriðunum á fyrstu kántrýhátíðinni 1984 var að snara bolakálf af hestbaki. Tuddi var ekkert meira en til í að taka þátt í atriðinu og strauk úr girðingunni. Honum var þó fljólega náð aftur og farið með hann í girðinguna. Á myndinni heldur Vilhjálmur Skaftason í tudda meðan skepnan róar sig niður.
Guðrún Þórbjarnardóttir115
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Myndin var líklega tekin 1966 í veislu í Skátaskálanum vegna gullbrúðkaups Jón og Þorbjargar Halldórsdóttur (d.30.6.1970) konu hans. Vinstra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Teitný Guðmundsdóttir (d.28.2.2000), Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001), Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992) (nær), óþekktur (fjær), séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) situr við enda borðsins. Hægra megin við borðið er Jóhanna Gunnlaugsdóttir (d.18.4.2012) í hvítri blússu en bak við hana grillir í mann hennar, Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1712
Myndin var tekin á jóla-barnaballi Lions í Fellsborg 26. desember 2010. Á henni eru hjónin Jakob Casper og Andrea Casper með dóttur sína Zeliu Casper. Í barnastólnum er líklega nýfæddur sonur þeirra Lazer Casper. Til hægri situr Svetlana Markovic en strákurinn er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 958
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg vegna vígslu nýs verslunarhúss Kaupfélags A-Hún við Bogabraut á Skagaströnd. Líklega var þetta árið 1983. Myndinni eru iðnaðarmenn og fleiri sem að byggingunni komu. Mennirnir vinstra megin við borðið eru óþekktir en hægra megin eru, talið frá vinstri: Gunnlaugur Sigmarsson múrari, Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) málari, Einar Hjartarson verslunarstjóri, Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) smiður, Helgi Gunnarsson verktaki og smiður, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) smiður, Hrólfur Pétursson smiður, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) oddviti og Sigfús Jónsson sveitarstjóri.
Ólafur Bernódusson 865
Þessa mynd tók Páll Pálsson ljósmyndari af 10. bekkingum í Höfðaskóla veturinn 2000 - 2001. Aftasta röð frá vinstri: Tinna Björk Gunnarsdóttir, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Jenny Lind Sigurjónsdóttir, Anna María Magnúsdóttir og Eygló Amelía Valdimarsdóttir. Miðröð frá vinstri: Ólafur Bernódusson umsjónarkennari, Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Lilja Nótt Sævarsdóttir og Guðrún Hjálmtýsdóttir. Fremst frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Dóra Björk Magnúsdóttir og Birkir Rúnar Jóhannsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1595
Myndin var tekin í Fellsborg 21. maí 2011 þegar þar fór fram vísindaveisla á vegum Háskóla Íslands. Eins og sjá má var viðburðurinn fjölsóttur enda bæði skemmtilegur og fræðandi.
Ólafur Bernódusson 902
Myndin var tekin í febrúar 1999 af hluta af starfsfólki Rækjuvinnslunnar á tölvunámskeiði í tölvuveri Höfðaskóla. Halldór Gunnar Ólafsson framkvæmdastjóri vinnslunnar leiðbeinir konunum á myndinni. Konurnar eru talið frá okkur: Jóhanna Karlsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, Gígja Heiðrún Óskarsdóttir og Cristina Silod Yecyec.
Ólafur Bernódusson 1068
Húsfyllir var í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Rannsóknarsetri HÍ á Skagaströnd 20. mars 2013 þegar Gleðibankinn stóð þar fyrir kvikmyndasýningu á gömlum filmum frá Skagaströnd. Myndirnar voru sýndar gegnum tölvu sem tengd var skjávarpa. Á myndinni er hluti áhorfendanna sem allir skemmtu sér vel.
Ólafur Bernódusson 1091
10. apríl 2014 var haldin kynning á því merka riti, Flateyjarbók, í Rannsóknarsetri HÍ á Skagaströnd. Um kynninguna sá Svanhildur Gunnarsdóttir en hún var safnakennari hjá Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Hún sýndi líka áhöld og efni sambærileg við það sem notað var við ritun Flateyjarbókar. Á myndinni er hluti gesta á kynningunni. Lengst til vinstri er Svanhildur en aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Signý Richter, Jóhannes Torfason, Dagný Marín Sigmarsdóttir og Herdís Jakobsdóttir. Næst okkur sitja: Trostan Agnarsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðmundur Ólafsson og Silfá Sjöfn Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1280
Myndin var tekin 17. júlí 2011 í Árnesi, elsta húsinu á Skagaströnd. Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017), sem er önnur frá vinstri, er í heimsókn í æskuheimili sitt með börnum sínum þremur. Þau eru Guðrún Árný Þórbjarnardóttir, sem situr og skrifar í gestabókina, Birgir Þórbjarnarson og Ásdís Björg Þórbjarnardóttir.
Ólafur Bernódusson 941
Leikklúbbur Skagastrandar setti Kardimommubæinn á svið í febrúar 1992. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jón Ólafur Sigurjónsson, Ólafur Magnússon, óþekktur, Fannar Viggósson, Steindór Haraldsson, Jensína Lýðsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, óþekktur hestur, Hildur Inga Rúnarsdóttir og Elva Dröfn Árnadóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1586
Skrúðganga á sjómannadaginn 2. júní 2012 gengur til messu í kirkjunni í lögreglufylgd undir íslenskum fánum.
Skagaströnd - safn526
Spilað í félagsstarfi aldraðra í kjallara Fellsborgar. Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) situr við borðsendan til vinstri. Á móti honum við hinn enda borðsins er kona hans Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003). Hægra megin við borðið í hvítri peysu er systir Skafta, Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020). Á móti henni er Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 883
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á Kántrýhátíð í ágúst 1999. Þá fór þar fram kántrýdanskeppni, sýning og kennsla. Á myndinni er einn danshópurinn að sýna sitt atriði í keppninni. Kántrýdans geta allir stundað óháð vaxtarlagi og aldri.
Ólafur Bernódusson 1020
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Elín Njálsdóttir, Árdís Indriðadóttir og Dagný Sigmarsdóttir.
Ólafur Bernódusson 901
Systkinin frá Akurgerði voru 13 talsins. Í júní 1999 komu systkinin á Skagaströnd með mökum sínum og gróðursettu eitt tré fyrir hvert systkinanna, barna Aðalbjargar Sigurðardóttur (d.10.12.2015) og Þorbjörns Jónssonar (d.2.9.1986). Myndin var tekin við það tækifæri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 153
Myndin var tekin á þorrablóti í Fellsborg, líklega var það árið 1987. Á myndinni er verið að grínast með heimsmet Marska í pizzugerð sem sett var heimilissýningu í Laugardalshöll 1986. Á myndinni eru, frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Kristín Jónsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 101
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Fellsborg en líklega hefur það verið á sjómannadegi. Á henni eru frá vinstri: óþekktur, Stefán Jósefsson, Hjörtur Guðbjartsson, Pétur Ingjaldur Pétursson, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Björn Sigurbjörnsson.
Skagaströnd - safn494
27. maí 2002 fóru eldri borgarar í Húnavatnssýslu í heimsókn til Dalvíkur þá var þessi mynd tekin. Maðurinn á myndinni eru Guðmundur Theódórsson (d. 28.2.2020) hjá honum er kona hans Elín Grímsdóttir og lengst til hægri er Margrét Árnadóttir. Konan í rauðu peysunni er óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1030
Myndin var tekin 18. ágúst 2006 þegar kántrýhátíð stóð sem hæst. Á henni eru á spjalli frá vinstri: Ragnheiður Magnúsdóttir, Vilhjálmur Skaftason. Sævar Rafn Hallgrímsson og Salóme Jóna Þórarinsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 135
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Fellsborg en það var greinilega stuð á mannskapnum þegar það var gert. Fólkið er frá vinstri: Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Karl Berndsen (d.28.1.2020), Guðmundur Jónsson og Guðbjörg Hanna Gylfadóttir.
Ólafur Bernódusson 985
Fólk að fylgjast með áhafnarmeðlimum Arnars HU 1 að prófa bjögunarbúnað skipsins á sjómannadegi 1984.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 95
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá Stefáni Jósefssyni útgerðarmanni Ólafs Magnússonar HU 54. Á henni eru, frá vinstri: hjónin Súsanna Þórhallsdóttir og Rúnar Jósefsson. Hjá þeim, lengst til hægri, situr Guðjón Pálsson (Dúi) (d.14.12.1989).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1307
Hjónafólk frá Skagaströnd við veisluborð á Hótel Reynihlíð 6. október 2012. Fólkið er: næst okkur er Ragnar Smári Ingvarsson en konan hans Kristín Jónsdóttir tók myndina. Þá kemur bróðir Ragnars, Árni Geir Ingvarsson og á móti honum situr kona hans, Herdís Jakobsdóttir. Halldór Gunnar Ólafsson er á skyrtunni á móti sinni konu, Sigríði Stefánsdóttur. Innst er svo Jón Ólafur Sigurjónsson móti Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur konu sinni.
Ólafur Bernódusson 1034
Þessi mynd af áhöfn Arnars Hu 1 var tekin í september 1998 þegar þeir komu að landi með met afla. Fólkið á myndinni er, standandi frá vinstri: ? Gylfadóttir, Ívar Gylfason, ? Gylfadóttir, Guðjón Guðjónsson skipstjóri (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Grétar Smári Hallbjörnsson, Gunnar Reynisson, Hafþór Smári Gylfason, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhann Ásgeirsson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), óþekktur, Björn Sigurþór Sigmundsson, Gestur Arnarson, Róbert Gunnarsson, Sigurjón Ingólfsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson með Mikael Garðar Hólmgeirsson í fanginu, Tryggvi Hlynsson, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Kristinsson og Þröstur Árnason.
Ólafur Bernódusson 983
"Svona gerum við þegar...." sungið og leikið á litlu jólum 1983 í Höfðaskóla. Krakkarnir eru frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Inga Kristjánsdóttir og tvö óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
1
…
59
60
61
…
79
Leita í myndasafninu
Leita