Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 1034
Þessi mynd af áhöfn Arnars Hu 1 var tekin í september 1998 þegar þeir komu að landi með met afla. Fólkið á myndinni er, standandi frá vinstri: ? Gylfadóttir, Ívar Gylfason, ? Gylfadóttir, Guðjón Guðjónsson skipstjóri (fjær), Kristján Pétur Guðjónsson (nær), Grétar Smári Hallbjörnsson, Gunnar Reynisson, Hafþór Smári Gylfason, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Jóhann Ásgeirsson, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), óþekktur, Björn Sigurþór Sigmundsson, Gestur Arnarson, Róbert Gunnarsson, Sigurjón Ingólfsson, óþekktur, Sævar Berg Ólafsson, Svanur Árnason, Reynir Lýðsson og Jónas Fanndal Þorvaldsson. Krjúpandi frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson með Mikael Garðar Hólmgeirsson í fanginu, Tryggvi Hlynsson, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Kristinsson og Þröstur Árnason.
Ólafur Bernódusson 983
"Svona gerum við þegar...." sungið og leikið á litlu jólum 1983 í Höfðaskóla. Krakkarnir eru frá vinstri: Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Pálína Harðardóttir, Bergþóra Birgisdóttir, Laufey Vilmundardóttir, Guðmunda Ólafsdóttir, Sigríður Ásgeirsdóttir, Inga Kristjánsdóttir og tvö óþekkt. Ef þú þekkir þau vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1671
Nemendur og kennarar á leikskólanum Barnaból brjóta upp daginn með því að fara í skrúðgöngu um bæinn 5. júlí 2012. Kennararnir eru, frá vinstri: Vigdís Birta Haraldsdóttir, Aldís Embla Björnsdóttir, Lilja Ingólfsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir leikskólastjóri, Ásthildur Gunnlaugsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Börnin eru frá vinstri: Valdimar Viggó Baldursson, óþekkt, óþekktur, Snæbjörn Arnarsson, Birgitta Rún Finnbogadóttir, óþekkt, Sigríður Kristín Guðmundsdóttir, þrjú óþekkt og Aþena Guðbjörg Baldursdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1519
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru nokkrir nemendur að flytja atriði síns bekkjar. Krakkarnir eru frá vinstri: Páll Halldórsson, Anton Þór Einarsson, Birkir Freyr Gunnarsson, María Jóna Jónasdóttir, óþekkt og Eymundur Lórens Grétarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1494
23. október 2011 var haldið upp á 20 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju með hófi í Fellsborg eftir messu í kirkjunni. Myndin var tekin í hófinu.
Óþekktur ljósmyndari453
Halldór Hermannsson afhendir Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) blóm eftir að hann tók við sem verslunarstjóri í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. María hafði gegnt því embætti nokkru áður. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en staðurinn er Hótel Dagsbrún sem rekið var á miðhæðinni í Stjórnsýsluhúsinu.
Barnaból - safn436
Myndin var tekin vorið 1997 eða 1998 af útskriftarhópi Barnabóls það árið. Fremri röð frá vinstri: Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Guðjón Örn Kristjánsson og ? Einarsdóttir. Aftari röð frá vinstri: óþekkt, Brynjar Max Ólafsson, Davíð Víðisson og Alex Már Gunnarsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn513
Myndin er frá jólahlaðborði í Kántrýbæ, sem eldri borgarar á Skagaströnd sóttu, 4. desember 1998. Hægra megin við borðið sér í Hauk Gunnlaugsson (d.18.1.2004) en vinstra megin eru, talið frá vinstri: Ásthildur Gunnlaugsdóttir, Guðný Finnsdóttir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) og óþekkt kona.
Ólafur Bernódusson 1005
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á myndinni er verið að baka pönnukökur fyrir alla í skólanum. Lengst til vinstri eru tvær óþekktar. Ása Ásgeirsdóttir er við enda borðsins. Þá koma frá vinstri: óþekkt, Elísabet Hallbjörnsdóttir, óþekkt, Árný Helgadóttir (fjær), Elín Ómarsdóttir (nær),tveir óþekktir, Hólmgeir Kristmundsson og óþekkt.
Skagaströnd - safn530
Eldri borgara úr Húnavatnssýslu hittust 27. maí 2003 en ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin. Á henni eru frá vinstri: Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Guðmundur Theódórsson (d.28.2.2020). Konan í rauðu peysunni, sem sést aftan á, er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari461
Sveinn Þórarinsson ók lengi vörum frá Blönduósi til verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagströnd. Á þessari mynd er hann að afferma bílinn við verslunina við Bogabraut. Samstarfsfélagarnir Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) og Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015) taka á móti vörunum og þykir greinilega gaman í vinnunni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn169
Ekki er vitað um tilefni fundarins á myndinni en líklega eitthvað tengist það fiskviðskiptum á einhvern hátt. myndin var tekin einhverntíma á árunum 1984 - 1986 í fundarherbergi á efstu hæð í stjórnsýsluhúsinu. Vinstra megin við borðið sitja tveir óþekktir menn en Sigfús Jónsson þáverandi sveitarstjóri sýnir öðrum þeirra einhverja pappíra. Hægra megin við borðið sitja, talið inn eftir borðinu: Lárus Ægir Guðmundsson, óþekktur, Adolf H. Berndsen og Magnús B. Jónsson. Standandi við enda borðsins er Ingólfur Sveinsson.
Óþekktur ljósmyndari534
Fjölskyldan í Króksseli á mynd sem líklega var tekin kringum 1945. Á henni eru hjónin Páll Júlíus Sigurðsson (d.9.11.1953) og Ingibjörg Ólafsdóttir (d.6.3.1991) með börnum sínum Sigríði Guðný (d.1.10.2020), Ólafi (d.26.3.2004) og Sigurði. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1656
Hjónin Jón Ólafur Sigurjónsson og Hugrún Sif Hallgrímsdóttir spila og syngja í Hólaneskirkju 23. júní 2011. Meðal áheyrenda í kirkjunni var Jan Witting sendiherra Breta á Íslandi.
Óskar Kristinsson safn 037
Hjónin Finnur Kristinsson og Guðbjörg Ólafsdóttir skemmta sér vel í einhverri rútuferð starfsmanna Skagstrendings hf ásamt mökum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1017
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni er Halldór með blómvönd að lokinni sýningunni en hjá honum eru Fannar Viggósson undirleikari og Guðmunda Ólafsdóttir hvíslari.
Barnaból - safn470
Gengið kringum jólatré á litlu jólum í leikskólanum Barnaból 18. desember 1997. Strákur í hvítri skyrtu og gráu vesti til vinstri er Guðjón Örn Kristjánsson. Þórir Óskar Björnsson er nær okkur í blárri peysu. Hjá honum í rauðum kjól er Laufey Inga Stefánsdóttir. Alexander Ragnarsson er lengst til hægri í bláu vesti. Gegnum jólatréð má sjá andlit Telmu Daggar Bjarnadóttur. Stúlkan í rauða og svarta kjólnum hægra megin við tréð er Eva Dís Gunnarsdóttir og við hið hennar er Silfá Sjöfn Árnadóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Barnaból - safn467
Myndin var tekin 18. desember 1997 á litlu jólum í Barnabóli. Sitjandi frá vinstri: Alex Már Gunnarsson, óþekkt, Guðjón Páll Hafsteinsson, tvö óþekkt börn, Telma Dögg Bjarnadóttir, tvær óþekktar stúlkur, Tanja Rán Einarsdóttir og Silfá Sjöfn Árnadóttir. Standandi frá vinstri: óþekktur, Indriði Theódór Hjaltason, Þórir Óskar Björnsson, óþekktur, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, sex óþekkt börn, Alexander Ragnarsson og Brynjar Max Ólafsson. Ef þú þekkir einhvert af óþekktu börnunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Skagaströnd - safn500
Eldri borgarar á Skagaströnd stytta sér stundir með spilum í Fellsborg. Jónína Valdimarsdóttir (d. 12.3.2020) snýr baki í okkur. Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) er vinstra megin við borðið, Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) bróðir hennar situr við borðsendann og Gunnar Helgason (d.19.10.2007) er hægra megin við borðið.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 73
Brennivín var greinilega vinsæll drykkur meðal ungmenna á árunum kringum 1970. Þá þótti líka töff að láta mynda sig með flösku þó innihaldið væri ekkert endilega drukkið í framhaldinu. Á myndinni veifa flöskunum sínum, frá vinstri: Heiðar Elvan Friðriksson, Hrönn Árnadóttir og Gylfi Jóhannsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1603
Á myndinni, sem tekin var á sjómannasdaginn 2. júní 2012, eru unglingar sem sigruðu í kappróðri í sínum aldursflokki þann daginn. Krakkarnir eru frá vinstri: Aldís Embla Björnsdóttir, Eva Ósk Björgvinsdóttir, Páll Halldórsson, Arnar Páll Guðjónsson, Ívan Árni Róbertsson, Guðrún Anna Halldórsdóttir og Finnur Kristinsson stýrimaður sigurliðsins.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn135
Systkinin Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) til vinstri, Þórunn Bernódusdóttir til hægri og Ólafur Bernódusson sitjandi framan við þær. Tilefni myndatökunnar, 2. júní 1995, var stúdentsútskrift Lilju frá Fjölbraut í Breiðholti.
Guðrún Þórbjarnardóttir060
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru tengdadætur hans þrjár. Frá vinstri: Hlín H. Kristensen (d.28.4.1984), kona Jens Jónssonar, Guðmunda Árnadóttir (d.26.1.2017) kona Þórbjörns Jónssonar og Þorgerður Guðmundsdóttir (d.24.4.2008) kona Björgvins Jónssonar. Myndin var tekin í garðinum við Flankastaði, heimili Guðmundu og Þórbjörns, sumarið 1963.
Ólafur Bernódusson 938
Fólk að fylgjast með niðurrifi Hólaneskirkju eldri 24. febrúar 1992.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 102
Myndin var tekin á dansleik í Fellsborg en ekki er vitað hvenær. Á henni er Páll Þorfinnsson (d.1.9.1993) næst okkur. Við hlið hans situr kona hans Jóna Guðjónsdóttir og standandi er Kári Kristjánsson (d.11.12.1990). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1013
Myndin var tekin 1985 þegar verið var að leggja síðustu hönd á smíði Skíðaskálans í hlíðum Spákonufellsins. Á henni eru frá vinstri: Gylfi Guðjónsson, Magnús B. Jónsson og Magnús Sigurðsson. Börnin á myndinni eru óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari572
Hjónin Bjarni Jóhannsson (d.12.9.1971) og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) áttu lengi heimili á Bjargi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn410
Myndin var tekin á tröppum Hólaneskirkju eldri. Ekki er vitað hvert tilefni myndatökunnar var né hvenær myndin var tekin. Presturinn lengst til hægri er séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996). Í aftari röðinni eru, frá vinstri: Helga Berndsen, Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018), óþekkt, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994), óþekkt, Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Anna Steingrímsdóttir og óþekkt. Í fremri röð, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir, Stella Magnúsdóttir (d.14.12011), þorgerður Laxdal (d.27.6.2013), Sigurlaug Magnúsdóttir, Anný Jóhannsdóttir, þrjú óþekkt og séra Pétur. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 996
Saumastofan Viola var stofnuð kringum 1970 og starfaði á efstu hæðinni í gamla kaupfélaginu. Á þessari mynd sem tekin var 1984 er Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) verkstjóri í Violu að afhenda séra Oddi Einarssyni, fulltrúa Rauða krossins, ullarteppi að gjöf. Teppin sem fóru til Rauða krossins eru í kössunum bak við þau.
Guðrún Þórbjarnardóttir073
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Líklega eru börnin á myndinni systkini en þau eru óþekkt. Ef þú þekkir börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1307
Hjónafólk frá Skagaströnd við veisluborð á Hótel Reynihlíð 6. október 2012. Fólkið er: næst okkur er Ragnar Smári Ingvarsson en konan hans Kristín Jónsdóttir tók myndina. Þá kemur bróðir Ragnars, Árni Geir Ingvarsson og á móti honum situr kona hans, Herdís Jakobsdóttir. Halldór Gunnar Ólafsson er á skyrtunni á móti sinni konu, Sigríði Stefánsdóttur. Innst er svo Jón Ólafur Sigurjónsson móti Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur konu sinni.
Skagaströnd - safn512
Eldri borgarar gerðu sér glaðan dag 4. desember 1998 og skelltu sér á jólahlaðborð í Kántrýbæ. Þá var þessi mynd tekin. Til vinstri er Hrefna Hákonardóttir (d.14.3.2011). Hægra megin við borðið eru, talið frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Sveinbjörn Blöndal (d.7.4.2010), Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) kona hans, Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011) og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) bróðir hennar.
Ólafur Bernódusson 1103
23. júní 2014 var vígð ný göngubrú yfir Hrafná niður við ósa hennar. Á myndinni eru spákonurnar/völvurnar úr Spákonuhofinu að koma á staðinn þar sem þær frömdu spágjörning. Völvurnar eru Dagný Marín Sigmarsdóttir til vinstri og Sigrún Lárusdóttir til hægri. Milli þeirra sér í Heiðrúnu Eiríksdóttur með svarta húfu og til hægri, í bláum jakka, er maður hennar Árni Friðriksson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 93
Vala Rós Ingvarsdóttir og Karl Berndsen (d.28.1.2020) í nánu samtali.
Halldór Gunnar Ólafsson 5
Myndin var tekin eftir heimkomu úr veiðitúr á Skagaheiðinni líklega kringum 1985. Á henni eru frá vinstri: Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna), Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson, Guðmundur Jón Björnsson og Ólafur Bernódusson
Skagaströnd - safn480
Myndin var tekin á góðri stund í Kántrýbæ 4. desember 1998. Á henni eru frá vinstri: óþekkt, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007), Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.12.2012) og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1525
16. nóvember er fæðingardagur Jónasar Hallgrímssonar og þess vegna Dagur Íslenskrar tungu. Þessi mynd var tekin þann dag 2011 á skemmtun Höfðaskóla í Fellsborg. Skólinn helgar þennan dag minningu Elínborgar Jónsdóttur (d.7.1.2007) kennara. Á myndinni eru gestir að njóta veitinga af hlaðborði í lok skemmtunarinnar.
Ólafur Bernódusson 1052
Tónlistarmennirnir Pálmi Gunnarsson og Magnús Eiríksson leiða brekkusöng í hólunum fyrir vestan stjórnsýsluhúsið á Kántrýhátíð í ágúst 1998.
Helgi Gunnarsson 29
Myndin var tekin sumarið 1997 í reisugilli íþróttahússins af starfsmönnum Helga Gunnarssonar sem sá um að byggja húsið. Mennirnir eru, frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Rúnar Kristjánsson, Björn Sigurðsson, Rolf Árnason (d.3.6.2014), Hrólfur Pétursson, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurjón Karlsson, Einar Gunnarsson, Gunnar Dór Karlsson, Árni Max Haraldsson (fjær), Sigurður Björnsson (nær), óþekktur, Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011), Gunnar Helgason, Magnús Hjaltason og Hjörtur Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1634
Myndin var tekin 11. júní 2011 á efri hæðinni í Kántrýbæ. Á henni láta fara vel um sig, frá vinstri: Einar Ari Einarsson, Eva Ósk Björgvinsdóttir, Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, Rakel Jensína Jónsdóttir og Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017).
Óþekktur ljósmyndari518
Hjónin í Höfnum á Skaga, Jón Benediktsson (d.30.12.2003) og Elínborg Teitný Björnsdóttir (2.5.1971). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1057
Myndin var tekin við vígslu nýja Kántrýbæjar 27. júní 1998 af fjölskyldu Hallbjörns J. Hjartarsonar eiganda bæjarins. Frá vinstri: Hallbjörn J. Hjartarson, Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) kona hans, Svenný H. Hallbjörnsdóttir, Gunnar Sveinn Halldórsson maður hennar, Kenny A. Hallbjörnsdóttir, Ómar Sigurbjörnsson maður hennar og Grétar Smári Hallbjörnsson. Tónlistarmennirnir í baksýn eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1596
Myndin var tekin í Fellsborg 21. maí 2011 þegar þar fór fram vísindaveisla á vegum Háskóla Íslands. Viðburðurinn var fjölsóttur enda bæði skemmtilegur og fræðandi. Á myndinni eru Halldór Gunnar Ólafsson vinstra megin og Lárus Ægir Guðmundsson hægra megin að horfa hvor á annan gegnum glerræmur sem brjóta myndina á skemmtilegan hátt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn136
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) með börnum sínum. Þau eru frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) og Ólafur Halldór Bernódusson. Myndin var líklega tekin kringum 1980.
Skagaströnd - safn493
Myndin tekin á Dalvík 27. maí 2002 þegar eldri borgarar úr Húnavatnssýslu fóru þangað í heimsókn. Á henni eru, frá vinstri: Sigríður Pálsdóttir (d.1.10.2020), Ólafur Pálsson (d.26.3.2004), Margrét Ásmundsdóttir (d.11.11.2015), Anna Margrét Tryggvadóttir (d.31.8.2007) og óþekktur maður.
Ólafur Bernódusson 1065
23. mars 2013 hélt Eggert Þór Bernharðsson (d.31.12.2014) sagnfræðingur fyrirlestur í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd, sem hann nefndi "Fjársjóður í fjölskyldualbúminu". Einnig voru til sýnis nokkrar fjölskyldumyndir úr Ljósmyndasafni Skagastrandar. Fyrirlesturinn var vel sóttur og á þessari mynd má sjá nokkra áhugasama fylgjast með myndasýningu Eggerts. Frá vinstri: Steindór Haraldsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Sigríður Stefánsdóttir (nær), Árni Geir Ingvarsson (fjær), Dagný Marín Sigmarsdóttir, Halldór Gunnar Ólafsson (nær), Herdís Jakobsdóttir (fjær), Ingibergur Guðmundsson, óþekkt, Vilhelm Harðarson, Hjördís Sigurðardóttir, Signý Richter (fjær), Kristín Kristmundsdóttir (nær) og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018).
Ólafur Bernódusson 1041
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Sviðið á Hnappstaðatúninu og gestir að fylgjast með skemmtiatriðum.
Ólafur Bernódusson 1051
Eitt af vinsælustu atriðum á kántrýhátíðum var messa á sunnudeginum. Þessi mynd var tekin á Kántrýmessu í Hólaneskirkju á kántrýhátíð í ágúst 1998. Eins og sjá má var svo vel mætt í messunni að fólk stóð og þurfti jafnvel að sitja á gólfinu.
Ólafur Bernódusson 980
Myndin var tekin sumarið 1983 á barnamóti umf Fram á Skagastrandarvelli. Sigurbjörn Fanndal þorvaldsson (d.13.8.2000) kastar kúlunni. Til vinstri horfir Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir á. Bak við Sigurbjörn eru Vala Rós Ingvarsdóttir til vinstri og Birna Sveinsdóttir til hægri. Guðbjörg Gylfadóttir heldur í málbandið en Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) er kuldaleg með hendurnar upp í peysunni. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 91
Huggulegt kvöld á Suðurveginum. Frá vinstri: Ragnar Hlynur Jónsson, Sigrún Jónsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1102
23. júní 2014 var vígð ný göngubrú yfir Hrafná niður við ósa hennar. Á myndinni er brúin og hluti gesta sem voru viðstaddir vígsluna og brennu, sem haldin var þegar kveikt var í kestinum í baksýn til vinstri.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 163
Á myndinni eru nokkrir af leikurunum í "Síldin kemur og síldin fer" í hléi á sýningunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Herborg Þorláksdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Sýningin var á vegum Leikklúbbs Skagastrandar vorið 1987.
Ólafur Bernódusson 876
Myndin var tekin í nóvember 1999 þegar haldið var upp á 60 ára afmæli Höfðaskóla. Þá voru nemendur með ýmiskonar viðburði í stofunum. Hver sýning var sýnd nokkrum sinnum yfir daginn þannig að allir sem vildu gátu séð þær allar þó 2-3 væru í gangi hverju sinni. Á myndinni eru krakkarnir að syngja fyrir fólk og leika það sem sungið er um. Krakkarnir eru frá vinstri: Ómar Ísak Hjartartarson, Patrik Snær Bjarnason, tvö óþekkt, Rósa Björg Einarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir ? (fjær), óþekkt (nær), Lilja Nótt Sævarsdóttir, óþekktur, Arnrún Bára Finnsdóttir (nær), Þórunn Júlíana Guðmundsdóttir (fjær), Sara Rut Fannarsdóttir, Hörður Aðils Vilhelmsson og óþekkt. Lengst til hægri stendur Aðalheiður Sif Árnadóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 1036
Tveir starfsmenn Hafrannsóknarstofnunar taka sýni úr 8 metra löngum hnúfubakskálfi sem Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson drógu til hafnar á bát sínum Benna Ólafs Hu í ágúst 1998.
Ólafur Bernódusson 1107
23. júní 2014 var vígð ný göngubrú yfir Hrafná niður við ósa hennar. Á myndinni er fólk sem kom og var við vígluhátíðina. Frá vinstri: Andrés Árni Baldursson, óþekkt, Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) og kona hans Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1044
Kúrekinn Hallbjörn J. Hjartarson - faðir Kántrýhátíðanna - kom ríðandi með hópreið hestamanna að sviðinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Þar fór hann af baki og hóf að skemmta gestum af sviðinu. Hjá honum á myndinni er hestamaðurinn Jóel Berg Friðriksson.
Ólafur Bernódusson 1035
Í ágúst 1998 drógu Guðmundur J. Björnsson og Ólafur Bernódusson dauðan hnúfubak til hafnar á bát sínum Benna Ólafs. Daginn eftir var hvalurinn dreginn upp í fjöru og tveir starfsmenn frá Hafrannsóknarstofnun komu til að skoða hann og taka úr honum sýni. Hvalurinn vakti mikla athygli og margir komu og skoðuðu hann í fjörunni. Á myndinni er starfsstúlka frá Hafró, til hægri á myndinni í sjóbuxum, að taka húðsýni og margir krakkar fylgjast með. Annar starfsmaður er í grænum stígvélum til vinstri á myndinni. Mennirnir tveir, hinum megin við hnúfubakinn, eru séra Guðmundur Karl Brynjarsson í ljósri peysu og Gunnlaugur Sigmarsson.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 63
Myndin var tekin á fermingardegi Ragnars Smára Ingvarssonar vorið 1968 utan við heimili hans að Bogabraut 16. Á myndinni eru, frá vinstri: Ari H. Einarsson, Birgir Árnason (d.2.2.2005), Ingvar Sigtryggsson (d.10.7.1988) faðir Ragnars, Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Herbert Ólafsson (d.25.4.2007). Árni Geir Ingvarsson, bróðir Ragnars, situr á nýja reiðhjólinu, sem hefur líklega verið fermingargjöf til Ragnars.
Óskar Kristinsson safn 035
Hittingur í hótelherbergi í einhverri ferð starfsmanna Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: Finnur Kristinsson, Steinunn Steinþórsdóttir, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) og Kristján Ólafsson.
Ólafur Bernódusson 1046
Áhorfendur á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð í ágúst 1998 njóta skemmtatriða á sviðinu.
1
…
60
61
62
…
79
Leita í myndasafninu
Leita