Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Þórunn Bernódusdóttir - safn 066
Myndin var tekin á Sæborg 7. desember 1992. Konurnar á henni eru, frá vinstri: Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Ingunn Valdís Júlíusdóttir (d.22.4.1998), Kristjana Jóhannsdóttir og Auður Ágústsdóttir (d.21.1.1997). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari589
Starfsstúlkur í frystihúsi á Skagaströnd 1943 eða 1944. Samkvæmt texta myndarinnar eru þetta, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir (d.11.8.1971), Elísabet Kristjánsdóttir (d.6.3.1991), Matthildur Jóhannsdóttir (d.12.2.1953), Sigríður Helgadóttir (d.?), Helga Þorbergsdóttir (d.30.9.1970), Stella Lárusdóttir (d.?) situr framan við Helgu, Árný Magnúsdóttir (d.12.5.1996), Helga Sigurðardóttir (d.?), Sigríður Guðlaugsdóttir (d.25.3.1996), Ingunn Júlíusdóttir (d.22.4.1998), Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Skagaströnd - safn517
Myndin var tekin 13. maí 2000 þegar eldri borgara í Húnavatnssýslu heimsóttu eitthvert sjóminjasafn (?Síldarminjasafnið?). Á myndinni eru frá vinstri: Kristján Sigurðsson (d.4.12.2019), Helga G. Guðmundsdóttir, Ragnhildur J. Jónsdóttir (d.19.1.2005), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) og Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1554
Myndin var tekin utan við Hofskirkju 24. apríl 2011 að lokinni messu þar. Á myndinni eru frá vinstri: Sveinn Sveinsson Tjörn, óþekkt, Herdís Jakobsdóttir Skagaströnd, Ingibjörg Ólafsdóttir (d.21.7.2017) Örlygsstöðum og Rafn Sigurbjörnsson Örlygsstöðum.
Óskar Kristinsson safn130
Gott hal á dekkinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1 og verið að leysa frá pokunum. Myndin var tekin einhverntíma á árunum 1976 - 1982. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson. Á henni er Gylfi Guðjónsson lengst til vinstri, maðurinn í bláu peysunni er líklega Óskar Kristinsson og maðurinn í blárri peysu og brúnum buxum, aftarlega, er skipstjórinn Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017). Maðurinn í bússunum uppi á belgnum er Guðjón Guðjónsson. Aðrir eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 944
1. bekkur Höfðaskóla veturinn 1981 - 1982. Fremri röð frá vinstri: Jón Heiðar Jónsson, Atli Þór Þórsson, Svava Magnúsdóttir, Ása Ósk Ásgeirsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson, Guðný Kristín Finnsdóttir og Jóhanna Karlsdóttir. Í aftari röð frá vinstri: Berta Eyfjörð, Baldur Magnússon, Björn Sigurðsson, Friðrik Gunnlaugsson, Bryndís Fjóla Ingimarsdóttir, Aðalheiður Sif Árnadóttir og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari669
Hjónin í Vík, Hjörtur Jónas Klemensson (d.6.2.1965) og Ásta Þórunn Sveinsdóttir (d.2.11.1947). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 141
Myndin var tekin á afmælishátíð Leikklúbbs Skagastrandar en því miður er árið ekki þekkt. Á sviðinu er verið að flytja frumsaminn leikþátt. Leikendurnir eru frá vinstri: Pétur Ingjaldur Pétursson, Ragnar Jónsson, Guðmundur Jónsson, Egill Bjarki Gunnarsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir og óþekkt kona.
Höfðaskóli - safn505
10. bekkur Höfðaskóla í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi skólans veturinn 2000 - 2001. Á myndinni eru, frá vinstri: Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Stefán Agnar Gunnarsson, Anna María Magnúsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir (fjær), Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir (nær), Eva Dögg Bergþórsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir (fjær), Anna Dúna Rúnarsdóttir (nær), Birkir Rúnar Jóhannsson, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Eva Rúna Rúnarsdóttir og Ólafur Bernódusson kennari.
Skagaströnd - safn519
Eldri borgarar í Húnavatnssýslu heimsóttu eitthvert ókunnugt safn (?Síldarminjasafnið?) 13. maí 2000. Þá var þessi mynd tekin. Á henni eru frá vinstri: Elísabet Árnadóttir (d. 16.3.2017), óþekkt kona, óþekktur maður, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) og Hrefna Hákonardóttir (d.14.12.2004). Í horninu til hægri glittir í Jóhönnu Jónasdóttur (d.7.8.2020) og yfirlýsta konan fremst á myndinni er Guðrún Angantýsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1003
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Á myndinni er Ingibergur Guðmundsson kennari að skipuleggja skólablað með nokkrum nemendum. Frá vinstri: Hallgrímur Oddsson, óþekktur, Svanur Árnason, óþekkt (nær), Ingibergur, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og þrjú óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari658
Hjónin í Sólheimum (eldri), Guðmundur Þórarinn Jónsson (d.14.6.1963) og Steinunn Carla Berndsen Fritzdóttir (d.13.9.2002). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1638
Opið hús í Listamiðstöðinni Nes 21. febrúar 2012. Slík opin hús eru haldin mánaðarlega þar sem listamenn þess mánaðar sýna að hverju þeir eru að vinna á Skagaströnd. Ekki er vitað hvaða fólk er á myndinni.
Ólafur Bernódusson 1087
Á öskudegi 5. mars 2014 gerði starfsfólk greiðslustofu Vinnumálastofnunar sér dagamun og mætti í skrautlegum búningum í vinnuna. Á þessari mynd stendur Guðmundur Egill Eringsson á milli Herdísar Jakobsdóttur til vinstri og Guðrúnar Magnúsdóttur til hægri.
Óskar Kristinsson - safn151
Þessa mynd tók Ómar Jakobsson þegar verið var að landa á Skagströnd úr síðutogarnum Arnari Hu 1 vorið 1969. Arnar var fyrsta skip nýstofnaðs Skagstrendings hf og kom til Skagastrandar um jólin 1968. Fiskurinn var settur í stíur í lestinni þannig að það var töluvert verk að landa úr Arnari. Í þessari löndun er líka fiskur í stíum á dekkinu en yfir hann hefur verið breitt segl eins og sjá má. Fiskurinn var hífður í land í þar til gerðum málum eins og því sem sést hægra megin á myndinni. Málin klofnuðu í miðju þegar þau voru opnuð þannig að það tók bara augnablik að losa þau á vörubílspall. Maðurinn á lúgunni, með hvíta prjónahúfu er líklega Birgir Árnason (d.2.2.2005) og berhöfðaði maðurinn í lestinni er Páll Jóhannesson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Vigsla_Holaneskirkju_1991
Vígsla Hólaneskirkju 20. október 1991. Hljóð og mynd í góðu lagi. Lengd myndar 117 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016).
Óskar Kristinsson - safn160
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir eru: næst okkur er Ingvar Þór Jónsson, næstur honum er Þórarinn Grétarsson og þá kemur Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Maðurinn í hvítu peysunni er Einar Kristberg Einarsson en aftan við hann er Áki Áskelsson. Til hægri eru Óskar Kristinsson í jakka með loðkanti og Sveinn Gíslason.
Óskar Kristinsson - safn190
Myndin var tekin við flugskýlið á Blönduósflugvelli 10. maí 1992. Ekki er vitað hver tók myndina en tilefni hennar var flugferð, sem þetta fólk fór í, til Hornafjarðar. Þar skoðaði hópurinn íbúðablokk áður en farið var í að byggja eina slíka á Skagaströnd á Túnbraut 11. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Hallbjörn Björnsson, Kristinn Jóhannsson, Rolf Árnason, Helgi Gunnarsson, Kristín Kristmundsdóttir og Vilhelm Harðarson.
Óskar Kristinsson safn 054
Feðgarnir Ómar Jakobsson og Andri Þór Ómarsson í rólegheitunum heima. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1004
Myndin var tekin í Höfðaskóla 1985 í viku þegar hefðbundið skólastarf var brotið upp og nemendurnir völdu sér vinnusmiðjur til að vera í. Þessi hópur er að vinna við sauma gardínukappa. Vinstra megin við borðið er Bryndís Ingimarsdóttir og óþekkt stúlka. Hægra megin er óþekkt stúlka næst gluggunum, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir í miðjunni og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) næst okkur. Strákurinn við saumavélina er óþekktur.
Höfðaskóli - safn470
Bekkjarkvöld í Skíðaskálanum. Nemendur Höfðaskóla fædd 1988 ásamt foreldrum og kennara gera sér glaðan dag 1. maí 1997. Á myndinni eru frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Rebekka Þórarinsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir kennari, Steinunn Berndsen, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ásthildur Guðmundsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, þrjú óþekkt, Þorbjörg Magnúsdóttir, Helga Bergsdóttir og Gylfi Guðjónsson
Óskar Kristinsson - safn 235
Myndin var tekin inni í einum af gistikofunum í Kerlingafjöllum en ekki er vitað hvenær. Þá voru þar í gangi sumarnámskeið á skíðum. Á myndinni er Óskar Kristinsson innan um óþekkta vinkonur sínar á námskeiðinu.
Skagaströnd - safn506
Eldri borgarar og gestir þeirra á jólahlaðborði í Kántrýbæ. Líklega var myndin tekin 4. desember 1999. Vinstra megin við borðið eru, talið inn eftir borðinu: Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Ingvar Jónsson (d.18.1.2003), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Sigríður Vilhjálmsdóttir (d.21.1.2012), Guðný Finnsdóttir, Ragnhildur J. Jónsdótt (d.19.1.2005), óþekkt og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004). Hægra megin við borðið eru Birna Jónsdóttir Blöndal (d.26.10.2018) næst okkur, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) í bláum jakka og Guðrún Soffía Pétursdóttir innst. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Helgi Gunnarsson 6
Á myndinni eru starfsmenn Helga Gunnarssonar að vinna við að steypa neðri plötuna í vesturenda íþróttahússins vorið 1997. Sigurður Björnsson er maðurinn í bláa samfestingnum sem stendur hægra megin en Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) er til vinstri einnig í bláum samfestingi. Mennirnir í appelsínugula samfestingnum (?Hjalti Reynisson?) og sá sem er lengst til hægri er líklega Jóhannes Indriðason.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1493
23. október 2011 var haldið upp á 20 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju með hófi í Fellsborg. Þar var þessi mynd tekin. Við borðið næst okkur sitja frá vinstri: Agnar Gunnarsson, séra Sveinbjörn Einarsson, Hallbjörg Jónsdóttir, Viggó Brynjólfsson, Steindór Haraldsson, séra Dalla Þórðardóttir, Guðrún Pálsdóttir, Ólafur Bernódusson og Árni Geir Ingvarsson.
Skagaströnd - safn481
Myndin var tekin 4. desember 1998 í Kántrýbæ þegar eldri borgarar á Skagaströnd gerðu sér glaðan dag þar. Vinstra megin við borðið eru Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) og Anna H. Aspar (d. 1.9.1999) í dökkum jakka. Hægra megin við borðið eru, frá vinstri: Ingvar Jónsson (d.18.1.2003), Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011), María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Guðný Finnsdóttir.
Höfðaskóli - safn471
Gaman á bekkjarkvöldi í Skíðaskálanum 1. maí 1997 hjá nemendum Höfðaskóla fæddum 1988 með foreldrum og kennara. Frá vinstri: Valgerður Guðmundsdóttir, óþekkt, Helga Bergsdóttir, Þórdís Skúladóttir, Íris Ósk Jóhannesdóttir, Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018), Guðbjörg Kristinsdóttir, Aðalheiður Guðmundsdóttir, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Ester Ösp Víðisdóttir, Víðir Ólafsson og óþekktur.
Ólafur Bernódusson 1019
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Árdís Indriðadóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Sigrún Jónsdóttir.
Höfðaskóli - safn625
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er verið að skreyta ruslafötu með skapalónum sem krakkarnir bjuggu til. Frá vinstri: Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir, Jón Örn Stefánsson, Súsanna Þórhallsdóttir leiðbeinandi og Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir.
Skagaströnd - safn492
Myndin var tekin 27. maí 2002 á Dalvík þegar eldri borgarar úr Húnavatnssýslu fóru þangað í heimsókn. Á henni eru, frá vinstri: óþekkt kona, Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017), Elísabet Finnsdóttir, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Guðný Finnsdóttir og Friðgeir Ingibjörn Jóhannsson (d.31.3.2007).
Ragnar S. Ingvarsson - safn 39
Þrír kátir unglingar á röltinu framan við Karlsskála líklega kringum 1970. Krakkarnir eru frá vinstri: Gunnar Jón Jónsson, Sigríður Birna Björnsdóttir og Ragnar Smári Ingvarsson.
Ólafur Bernódusson 1082
Myndin var tekin á lokaballi Höfðaskóla 30. maí 2016 í Fellsborg. Á lokaballi borða nemendur í unglingadeild saman veislumat í sínu fínasta pússi. Kennararnir þjóna, uppábúnir, til borðs í þessum samkvæmum, sem enda með diskóteki fram eftir kvöldi. Á myndinni eru unglingar fæddir árið 2000. Þau eru, frá vinstri: Sonja Albertsdóttir, Arnrún Ösp Guðjónsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir, Georg Kristjánsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Jóna Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Rebekka Róbertsdóttir, Sigurður Aron Björnsson, Viktor Már Einarsson og Jóhannes Sigurpálsson.
Ólafur Bernódusson 979
Myndin var tekin á barnamóti umf Fram sumarið 1983 á Skagastrandarvelli. Á henni kastar Salóme Ýr Rúnarsdóttir kúlu og Guðbjörg Gylfadóttir bíður eftir að mæla kastið. Stúlkan í hvítu úlpunni er óþekkt en við öxl Guðbjargar horfir Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir á eftir kúlunni. Ef þú þekkir hvítklæddu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 001
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni er systir Jóns, Kristín Sölvadóttir (d.1950) með manni sínum Kristni Bjarnasyni (d.12.7.1968) ásamt börnum þeirra. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn501
Myndin var tekin í kaffitíma í félagsstarfi aldraðra í Fellsborg en ekki er vitað hvenær. Á henni eru leiðbeinendurnir í starfinu, Guðrún Soffía Pétursdóttir til vinstri og Ásthildur Gunnlaugsdóttir til hægri. Við borðshornið hjá þeim situr Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006).
Ólafur Bernódusson 1029
Sævar Hallgrímsson landar á Skagströnd fullfermi úr bát sínum Hafgeiri Hu 121 í september 1998. Með honum um borð er dóttir hans, Alma Eik Sævarsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1628
Myndin var tekin 11. júní 2011 í Kántrýbæ þegar sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi kom og heiðraði Hallbjörn Hjartarson fyrir framlag hans til kántrýtónlistar á Íslandi. Á myndinni er Hallbjörn til hægri með hönd undir kinn en hjá honum situr bróðir hans Sigurður Hjartarson (d.1.8.2020). Í horninu til vinstri sér í eiginkonu Hallbjörns, Amy Evu Eymundsdóttur (d.7.3.2012).
Ólafur Bernódusson 1018
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni er Guðmundur Haukur Sigurðsson í hlutverki sínu. Aftan við hann eru frá vinstri: Sigrún Jónsdóttir, Gubjörg Gylfadóttir, Árdís Indriðadóttir og Elín Njálsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari652
Hjónin í Sigurðarhúsi, Sigurður Jónsson (d.17.4.1956) og seinni kona hans, Steinunn Trine Friðrikka Hansen (d.21.10.1958). Byggt hefur verið við Sigurðarhús og í dag gengur það undir nafninu Miðnes. Myndin er úr bókinni Ættir Austur H'unvetninga.
Óþekktur ljósmyndari451
Hallbjörn Hjartarson starfsmaður í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Bogabraut. Annar starfsmaður, Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), sést í baksýn. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Sigurður Bjarnason - safn 057
Myndin var tekin 1. september 2001 í 90 ára afmæli Rósu Pálsdóttur (d. 1.5.2002) sem haldið var í Kántrýbæ. Á henni eru hjónin Sigurður Bjarnason, sonur Rósu, og Sigrún Lárusdóttir vinstra megin við borðið ásamt móður Sigrúnar, Svövu Steinsdóttur (d.8.12.2001). Á móti þeim við borðið er dóttir hjónanna, Inga Lára Sigurðardóttir með son sinn Sigurð Lárus Stefánsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 052
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd 1985 - 1986. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Á myndinni eru konurnar að dunda sér við ýmislegt sem í boði var upp á í félgasstarfinu. Konurnar eru frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) Asparlundi, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum, Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) frá Ási.
Óskar Kristinsson safn 038
Guðbjörg Ólafsdóttir snyrtir hár Ómars Jakobssonar í starfsmannaferð Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Skagaströnd - safn509
Myndin var tekin á jólahlaðborði í Kántrýbæ líklega 4. desember 1999. Á henni situr Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) fremst á móti móður sinni Birnu Jónsdóttur Blöndal (d.26.10.2018). Milli þeirra sjást Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) vinstra megin og Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson027
Leikklúbbur Skagastrandar setti Kardimommubæinn á svið í febrúar 1992. Á myndinni, sem tekin var á æfingu, eru Elín Njálsdóttir sem Soffía frænka og Hallbjörn Hjartarson sem Tóbías í turninum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1701
Fermingarbörn ganga til kirkju á fermingardaginn sinn 23. maí 2010 undir forystu séra Ursulu Árnadóttur. Fermingarbörnin eru frá vinstri: Anna Dís Ragnarsdóttir, Sigurlaug Máney Sæmundsen, Sigurbjörg Katla Valdimarsdóttir, Einar Ari Einarsson, Sigurbjörg Birta Berndsen, Eva Ósk Björgvinsdóttir, Ívan Árni Róbertsson, Guðmundur Árnason, Heba Líf Jónsdóttir, Freyja Sif Blöndal Einarsdóttir og Guðrún Anna Halldórsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson 1067
Húsfyllir var í Bókasafni Halldórs Bjarnasonar í Rannsóknarsetri HÍ á Skagaströnd 20. mars 2013 þegar Gleðibankinn stóð þar fyrir kvikmyndasýningu á gömlum filmum frá Skagaströnd. Myndirnar voru sýndar gegnum tölvu sem tengd var skjávarpa. Á myndinni er hluti áhorfendanna.
Óþekktur ljósmyndari517
Guðrún Stefánsdóttir (d.6.1.1992) bóndakona í Höfnum á Skaga með dóttur sína Sigríði Sigurðardóttur (d.17.6.1995). Guðrún var sambýliskona Sigurðar Árnasonar (d.10.6.1959) bónda í Höfnum. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn533
Ungir nemendur Höfðaskóla í reiptogi í fjörunni við Sandlæk. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var kringum 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Lena Rut Jónsdóttir, Þórey Fjóla Aradóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Ómar Ísak Hjartarson og Steinar Ólafsson? en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn543
Krakkarnir á myndinni voru nemendur Höfðaskóla í fjallgönguhóp á útvistardegi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum árið 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Hákon Unnar Þórarinsson, Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal (fjær), Árni Halldór Eðvarðsson (nær), Jón Atli Magnússon, óþekkt og Sonja Hjördís Berndsen
Óskar Kristinsson safn 039
Myndin var tekin á skemmtikvöldi, líklega á Hótel Íslandi, en ekki er vitað hvenær. Fólkið á myndinni var í hópi starfsmanna Skagstrendings hf sem var þarna saman í skemmtiferð. Fremst á myndinni eru hjónin Karl Berndsen (d.12.2.1995) og Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir en á milli þeirra er Ómar Jakobsson. Lengst til vinstri má þekkja Ástmar Kára Ástmarsson en hægra megin eru Guðrún Soffía Pétursdóttir og Finnur Kristinsson.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 054
Jólaboð á Mánabraut 5 kringum 1990. Húsráðendur eru Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) sem situr til vinstri og Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) sem snýr baki í ljósmyndarann. Aðrir við borðið eru frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, systir hennar Anna Sjöfn Jónasdóttir og móðir þeirra Þórunn Bernódusdóttir. Lengst til hægri er Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) sem er líka barnabarn húsráðendanna.
Óskar Kristinsson safn128
Þessa mynd tók Vilhelm Þórarinsson en ekki er vitað hvenær. Hún sýnir nokkra karla í matsalnum um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Sitjandi eru Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) vinstra megin og Hólmgeir Kristmundsson til hægri. Standandi eru óþekktur til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri.
Guðrún Þórbjarnardóttir118
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru frá vinstri: Ástríður, Jón og Jóhann. Ef þú veist eitthvað um þetta fólk vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 14
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var hún tekin í Fellsborg. Tilefnið er óþekkt. Fólkið á henni er, frá vinstri: Ómar Jakobsson, óþekkt kona, Viggó Brynjólfsson, Guðbjörg Viggósdóttir og Magnús B. Jónsson. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn179
Myndin var líklega tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær. Mokafli hefur fengist í trollið þannig að fiskurinn er blóðgaður áður en honum er hleypt niður í vinnsluna á millidekkinu. Mennirnir eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, þrír óþekktir, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), óþekktur, Sigurður Alexandersson, tveir óþekktir og Páll Valgeirsson.
Höfðaskóli - safn434
Dúndrandi diskótek í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006.
Höfðaskóli - safn494
Myndin var tekin á grímuballi Höfðaskóla í Fellsborg 20. febrúar 1996. Börnin á sviðinu eru óþekktir verðlaunahafar en lengst til hægri er Sverrir Brynjar Berndsen. Til vinstri eru Elva Dröfn Árnadóttir, Erla María Lárusdóttir og óþekkt. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn163
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur Gunnlaugsson, Adolf H. Berndsen, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018), Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), Jóhannes Sómonsen (nær), Jens Jónsson (fjær), Ingvar Þór Jónsson (nær) og Rúnar Jósefsson (fjær).
Óskar Kristinsson safn 042
Ekki er vitað hvenær þessir starfsmenn Skagstrendings hf gerðu sér glaðan dag með því að fara saman í ferðalag og út að borða á einhverju "showi", líklega á Hótel Íslandi. Þegar myndin var tekin er forrétturinn kominn á borðið og fólk að fara að borða. Vinstra megin við borðið eru, frá vinstri: María Konráðsdóttir (d.9.8.2003), Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Ástmar Kári Ástmarsson, Margrét Ólafsdóttir, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Steinunn Steinþórsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir og Guðjón Guðjónsson. Fólkið hægra megin við borðið er óþekkt.
1
…
61
62
63
…
79
Leita í myndasafninu
Leita