Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn455
Yngra stig Höfðaskóla í skólaferðalagi við Glaumbæ í Skagafirði. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið einhverntíma kringum 2002. Fremst á myndinni liggja Hanna Rúna Kristínardóttir vinstra megin og Kristbjörg Drífa Ragnheiðardóttir til hægri. Sitjandi frá vinstri: Sigurrós Rúnarsdóttir, Kristján Heiðmar Kristjánsson, Helena Mara Velemir, Hanna Gylfadóttir, Patrik Snær Bjarnason, Sunna Guðlaugsdóttir, Aðalheiður Ragnarsdóttir, Elísabet Einarsdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Þórir Óskar Björnsson (nær), Þórður Indriði Björnsson (fjær), Karl Aron Bender og Gunnar Már Sæmundsson. Standandi frá vinstri: María ???, Jóhann Örn Stefánsson, Guðlaugur Ómar Guðmundsson, óþekktur, Laufey Inga Stefánsdóttir, Guðjón Örn Kristjánsson, Sara Rut Fannarsdóttir, ?Ólína Selma Þórarinsdóttir?, Andrea Björk Kristjánsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Elna Ragnarsdóttir, Halla Björg Víðisdóttir, Alex Már Gunnarsson, Jóhann Már Berry, Brynjar Max Ólafsson, Kristján Ýmir Hjartarson, Sævar Hlynur Tryggvason og Alexander Ragnarsson.
Óþekktur ljósmyndari657
Hjónin á Sólbakka, Jón Pálsson (d.18.9.1931) og Margrét Sigurðardóttir (d.22.2.1947). Sólbakki stóð rétt austan við þar sem Spákonuhofið er í dag. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
hem017
Óþekktur ljósmyndari545
Hjónin á Steinnýjarstöðum, Stefán Sveinsson (d.3.5.1949) og Una Ólafsdóttir (d.4.8.1972). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 172
Konurnar á myndinni eru mágkonur. Fjær okkur er Vala Rós Ingvarsdóttir en nær okkur er Rósa Margrét Sigursteinsdóttir sem er gift Rúnari bróður Völu. Milli þeirra situr eiginmaður Völu, Guðlaugur Ingi Sigurðsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1987.
Óskar Kristinsson - safn 232
Óskar Kristinsson nýtur sólarinnar sunnan undir vegg með litlu frænku sinni Rakel Petreu Finnsdóttur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1710
Jólasveinarnir eru mættir á sviðið í Fellsborg á jóla-barnaballi Lions 26. desember 2012. Gestir fylgjast með uppátækju þeirra á sviðinu áður en dansað er kringum jólatréð.
Höfðaskóli - safn561
Stúkurnar á myndinni eru staddar í skipasafni í Roskilde í Danmörku. Það skoðuðu nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Rebekka Maren Þórarinsdóttir.
Ólafur Bernódusson 1021
Myndin var tekin í apríl 1998 þegar endurbygging Kántrýbæjar var að hefjast. Helgi Gunnarsson og hans menn byrjuðu á að flokka bjálkana sem húsið er byggt úr. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: óþekktur Ástu Þórhölluson, Sigurður Bjarnason (d.16.5.2022), Sigrún Lárusdóttir, óþekktur, baksvipur Rúnars Kristjánssonar og Helgi Gunnarsson. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari428
Myndin var tekin í byggingavördeild Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd í "Kjallaranum" í Kaupfélagshúsinu við Einbúastíg. Myndin var sjálfsagt tekin á vörutalningadegi. Á þeim eru Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum, sem var afgreiðslumaður í deildinn, og Ingibjörg Pálsdóttir (d.24.2.2004) frá Blönduósi, sem gjarnan var við vörutalningar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson safn 032
Hjónin Karl Rósinbergsson (d.29.2004) og Steinunn Steinþórsdóttir á einhverju rútuferðalagi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1112
10. janúar 2019 var formleg opnun á bókhalds- og rekstrarráðgjafafyrirtækinu Lausnamið. Á myndinni er eigandi fyrirtækisins Erla Jónsdóttir til vinstri og starfsmaður hennar Sigríður Gestsdóttir til hægri. Jóhann Ásgeirsson eiginmaður Erlu situr til vinstri og hlustar á konu sína bjóða gesti velkomna.
Óþekktur ljósmyndari531
Hjónin á Kálfshamri, Jóhannes Björnsson (d.14.6.1977) bóndi og Dagný Guðmundsdóttir (d.22.4.2004). þau bjuggu síðar í áratugi á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari440
Myndin var tekin af starfsstúlkum í verslun Kaupfélags Húnvetninga við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu) inni á kaffistofunni. Konurnar eru, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Sigrún Lárusdóttir og Steinunn Friðriksdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhverntíma á áttunda áratugnum.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1471
Fjör í sex ára afmæli Guðnýjar Evu Björnsdóttur í júní 2007. Krakkarnir fá útrás úti á lóð eftir rækilegan skammt af sykri í afmælinu og því full af orku. Ásdís Birta Árnadóttir er fyrir miðri mynd með svart hárband. Við hlið hennar er Aldís Embla Björnsdóttir í grænleitum fötum, systir afmælisbarnsins. Sigurður Aron Björnsson er í röndóttum bol og stuttbuxum. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn158
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Sævar Hjaltason?, Ernst Berndsen, Guðjón Guðjónsson, Vilhjálmur Jónsson, Hafþór Gylfason, Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson og Birgir Þórbjarnarson sem er standandi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1577
Félagarnir Steinn Rögnvaldsson til vinstri og Stefán Sveinsson til hægri að lokinni löndun eftir línuróður 29. desember 2011 á Sæfara SK 112. Með þeim á myndinni er sonur Stefáns, Daði Snær.
Höfðaskóli - safn559
Nemendur úr Höfðaskóla í skólaferðalagi á óþekktum stað líklega einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Krakkarnir eru, frá vinstri: Linda ??, Albert Ingi Haraldsson, Jóna Atli Magnússon og óþekktur. Ef þú manst hvers dóttir Linda er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 183
Til vinstri eru hjónin Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) og Ingvar Karl Sigtryggsson (d.10.7.1988). Til hægri eru hjónin Jón Helgason (d.1.12.2019) og Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011). Næst okkur á myndinni er afastrákur beggja hjónanna, Jón Ingi Ragnarsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það 1986 eða 1987.
Óþekktur ljósmyndari643
Hjónin á Læk, Jóhann Dalmann Jakobsson (d. 23.3.1987) og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (Stella) (d.8.12.2003). þau hjón bjuggu síðan lengi í Blálandi á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari429
Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) og Þorgerður Guðlaugsdóttir (d.21.12.1993) við vörutalningu í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari671
Hjónin í Þórshamri, Bogi Theodór Björnsson (d.29.1.1969) og Sigrún Jónsdóttir (d.4.4.1970). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari654
Hjónin, Gunnar Hermann Grímsson (d.11.9.2003) og Sigurlaug Helgadóttir (d.21.10.2009) bjuggu í húsinu Skagaströnd en það var líka stundum kallað Verslunarstjórahús og stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið. Gunnar var kaupfélagsstjóri á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari583
Hjónin í Drangey, Guðmundur Ari Gíslason Kaldbak (d.2.6.1956) og Sigríður Helga Gísladóttir (d.6.8.1970). Þau hjón eignuðust 14 börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn536
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1988 á sviðinu í Fellsborg að bíða eftir að fá í hendurnar vitnisburð sinn eftir veturinn í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin einhverntíma kringum árið 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Arnór Snorri Gíslason, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Ómar Ingi Ómarsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Jón Atli Magnússon, Ívar Gylfason, ?Sigurgeir Snævar Árnason? og Sindri Jóelsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1486
Mynd frá opnun gámastöðvar Gámafélagsins og Sorphreinsunar Vilhelms Harðarsonar ehf 29. júlí 2010. Á myndinni eru, frá vinstri: Adolf H. Berndsen oddviti sveitarfélagsins Skagastrandar, Vilhelm B. Harðarson eigandi og framkvæmdastjóri félagsins og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri. Á myndinni eru þeir að klippa borða og opna þannig gámastöðina formlega.
Óþekktur ljósmyndari593
Hjónin á Flankastöðum, Kristinn Ágúst Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Guðný Sigríður Finnsdóttir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 215
Yfirmennirnir á Arnari Hu 1 standa kátir á belgnum á trollinu eftir risa karfahal. Þeir eru Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri til vinstri og Guðjón Guðjónsson 1. sýrimaður til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn167
Myndin var tekin þegar áhöfn Örvars Hu 21 fékk viðurkenningu frá fiskútflytjanda fyrir gæðaframleiðslu um borð. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það upp úr 1990. Áhafnarmeðlimirnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson (nær), óþekktur (fjær), Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 142
Félagar í Leikklúbbi Skagastrandar héldu afmælishátíðir í Fellsborg fyrir félagsmenn sína 1986 og 1995, er klúbburinn varð 20 ára. Myndin var tekin í annarri hvorri þessara hátíða. Eins og sjá má skemmtu félagarnir sér vel við leik, söng og dans á hátíðunum. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, tveir óþekktir, Björgvin Karlsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Ólafur Bernódusson, Erna Berglind Hreinsdóttir, Bóel Hallgrímsdóttir, tveir óþekktir, Helga Guðmundsdóttir, óþekktur, Guðný Sigurðardóttir og Vigdís Viggósdóttir.
Óþekktur ljósmyndari546
Jón Hinrik Árnason (d.11.4.1986) bóndi á Steinnýjarstöðum sitjandi til vinstri. Kona hans, Sigurlaug Pálsdóttir (d.18.6.1965), situr til hægri. Milli þeirra er Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004) uppeldissonur þeirra. Standandi til vinstri eru dæturnar Una Guðrún Jónsdóttir (d.1.5.2009) og Ingiríður Jónsdóttir (d.21.10.2011) er til hægri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari676
Hjónin í Ægissíðu, sigurður Finnbogason Júlíusson (d.23.1.1980) og Guðbjörg Guðjónsdóttir (d.5.12.1965). Ægissíða stóð austan við veginn norður með Höfðanum austan við Laufás. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 989
Nýsmíðin Stakkur RE skírður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf 1983. Maðurinn við tunnuna er óþekktur en konan sem brýtur flöskuna er líklega Hjördís Sigurðardóttir.
Óskar Kristinsson - safn 262
Óskar Kristinsson, í bláum skíðagalla, á skíðanámskeiði í Kerlingarfjöllum. Hitt fólkið á myndinni er óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 1023
Myndin var tekin í apríl 1998 þegar endurbygging Kántrýbæjar var að hefjast. Á henni er vinnuflokkur Hega Gunnarssonar sem vann að byggingu hússins. Frá vinstri: Helgi Gunnarsson, tveir óþekktir, Rúnar Kristjánsson, og Baldvin Hjaltason.
Ólafur Bernódusson 1062
Rannsóknarsetur HáskóIa Íslands á Skagaströnd stóð fyrir skáldakynningu 31. október 2013. Á myndinni er Lára Magnúsardóttir forstöðumaður setursins með skáldunum sem lásu upp úr verkum sínum. Frá vinstri: Jón Kalmann Stefánsson, Eiríkur Guðmundsson, Lára og Óskar Árni Óskarsson.
Höfðaskóli - safn446
Kennarar við Höfðaskóla leika sér saman í íþróttahúsinu eftir skólalok 26. maí 2000. Ekki mátti mæta í partýið í sínum venjulegu fötum. Fólkið á myndinni er í blöðruhlaupi þar sem blaðran milli manna má ekki detta né springa meðan hlaupin er ákveðin vegalengd. Fólkið er, frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Helga Ólína Aradóttir, óþekkt, Ingibergur Guðmundsson, Sigríður Stefánsdóttir og Guðbjörg Ólafsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 120
Eitt af atriðunum á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984 var hópreið hestamanna um hátíðasvæðið. Þá var þessi mynd tekin af reiðmönnunum. Þeir eru, talið frá hægri: Hallbjörn J. Hjartarson, Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011), Ólafur Ásgeirsson, Jónatan Hjaltason, Jón Gunnarsson, Sveinn Ingi Grímsson, Rögnvaldur Ottósson, Hjalti Magnússon, Sævar Hjaltason, Magnús Blöndal og Gunnlaugur Sigmarsson.
Óþekktur ljósmyndari585
Hjónin í Draumalandi, Einar Guðjónsson (d.1.2.1961) og Ingibjörg Tómasdóttir (d.26.8.1980). Draumaland var lítið hús sem stóð norðan við Stórholt (Bankastræti 3). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn573
Þessi mynd var tekin af kennurum Höfðaskóla einhverntíma kringum 1970. Frá vinstri: tveir óþekktir, Jón S. Pálsson skólastjóri,, Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Eiríkur Kristinsson (d.4.10.1994)
Höfðaskóli - safn507
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru nemendur Höfðaskóla fæddir 1987 að taka á móti einkunnablöðunum sínum á sviðinu í Fellsborg. Nemendurnir eru frá vinstri: Rósa Björk Einarsdóttir, Björn Viðar Jóhannsson, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Eyþór Kári Egilsson, Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir, Friðvin Ingi Berndsen Ernstsson, Sindri Njáll Hafþórsson og Kristinn Andri Hjálmtýsson.
Höfðaskóli - safn515
Myndin var tekin af þessum nemendum á litlu jólum í Höfðaskóla. Krakkarnir eru, frá vinstri í fremri röð: Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Óli Hjörvar Kristmundsson, Herdís Jakobsdóttir, Elísabet Hallbjörnsdóttir, Katrín Sigurjónsdóttir og Jóney Hrönn Gylfadóttir. Aftari röð frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, Eiríkur Lýðsson, Jón Önfjörð Arnarsson, Hjalti Magnússon, Rafn Ingi Rafnsson og Davíð Reynisson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var einhverntíma kringum 1985.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1607
Sigursveit í kappróðri á sjómannadegi 2. júní 2012 tekur við verðlaunum sínum. Frá vinstri: Ragnar Björnsson, Finnbogi Guðmundsson stýrimaður sveitarinnar, Sæþór Bragi Ágústsson, Patrik Bjarnason, Stefán Velemir, Elías Gunnar Hafþórsson og Sævar Tryggvason.
Ólafur Bernódusson1077
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Fjöldi fólks mætti á skólalóðina og fylgdist með ásamt nemendum Höfðaskóla.
Óþekktur ljósmyndari581
Hjónin í Drangey, Jóhanna Benónýsdóttir (d.5.4.1957) og Pétur Andrésson (d.5.11.1973). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 25
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið í sjómannadags -partýi einhverntíma heima hjá Stefáni Jósefssyni sem sér í lengst til hægri á myndinni. Aðrir á myndinni eru meðeigendur Stefáns að Auðbjörgu hf, Jón Stefánsson (d.3.8.1991) til vinstri og Árni Björn Ingvarsson til hægri. Við hlið Árna situr kona hans, Guðrún Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn542
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á jólaballi í Höfðaskóla en líklega var það 1983. Á henni eru, frá vinstri: Gígja Heiðrún Óskarsdóttir, Ingibergur Guðmundsson kennari, Halldór Gunnar Ólafsson, Sigurbjörn Kristjánsson og Guðmundur Óskarsson.
Ólafur Bernódusson 1071
Listamenn úr Nes listamiðstöðinni fengu nokkra krakka úr Höfðskóla til að hjálpa sér 25. ágúst 2013 við að gera landslag úr ýmsum tegundum af mat. Þau fengu aðstöðu í eldhúsinu í skólanum og á myndinni má sjá afraksturinn, sem var síðan borðaður eftir myndatökur frá öllum hliðum. Í öftustu röð eru óþekktir listamenn nema Signý Richter sem er þriðja frá hægri. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Óðinn Örn Gunnarsson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Mikael Garðar Hólmgeirsson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Melody Woodnut, óþekktur, Birgitta Bjarnadóttir, óþekktur, Ólafur Halldórsson, óþekktur og Birta Bessadóttir.
Guðrún Þórbjarnardóttir051
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er verið að reka fé í almenninginn í Spákonufellsrétt einhverntíma á árunum 1960-65. Fólkið í röðinni er frá vinstri: Hafsteinn Sigubjarnarson (d.18.5.1974) með hatt, Konráð Guðmundsson, Jóhann Pétursson (d.13.1999), Björgvin Brynjólfsson (d.28.2.2007), óþekkt barn í grænni úlpu, Halla Björg Bernódusdóttir (nær), óþekktur (fjær), Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) (fjær), óþekktur strákur (nær), Þórunn Bernódusdóttir (fjær), óþekkt kona (nær), fimm óþekkt, Þórbjörn Jónsson (d.22.1.1996) með hvíta húfu (nær), óþekkt (fjær), Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968), óþekkt kona, Jóhannes Hinriksson (d.27.10.1973), Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Steingrímur Jónsson (d.15.1.1992). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á henni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari607
Sambýlisfólkið á Hnappsstöðum, Óskar Janúaríus Bergsson Laufdal (d.24.1.1946) og Helga Vilhelmína Sigurðardóttir (d.18.3.1974). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari510
Hjónin á Björgum, Jón Andrés Ólafsson (d.2.8.1985) og Sigurbjörg Jónsdóttir (d.22.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 156
Myndin var tekin í frumsýningarpartýi eftir frumsýningu á leikritinu "Síldin kemur og síldin fer" 7. mars 1987. Konan í hvítu peysunni er Jane Sillar (d.2017) en maðurinn í bláu skyrtunni er þáverandi eiginmaður hennar, William Sillar. Fremst á myndinni sér í hnakkann á Ingibergi Guðmundssyni en við borðið í baksýn sitja, frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, óþekkt, Ragnar Smári Ingvarsson (nær), óþekkt (fjær), Þorvaldur Skaftason með gítarinn er fjær og baksvipur Sigurbjörns Björgvinssonar nær. Lengst til hægri er svo Þórey Jónsdóttir.
Höfðaskóli - safn412
Myndin var tekin á tröppunum sunnan á "Gamla skólanum" eða Bjarmanesi eins og húsið heitir. Þar var rekinn barnaskóli Skagastrandar í áratugi. Í öftustu röð eru frá vinstri: Þorgerður Laxdal (d.27.6.2013), Hrefna Björnsdóttir (d. 8.10.2018) úr Stórholti og Birna Laxdal. Í næst öftustu röð eru frá vinstri: Helga Berndsen frá Karlsskála, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994) frá Höfðakoti, Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (d.6.3.2007) frá Læk, Sigurlaug Magnúsdóttir og Anný Jóhannsdóttir. Í næst fremstu röðinni eru, frá vinstri: Guðrún Björnsdóttir, Sigmund Jóhannsson (d.19.5.2012), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir í Reykholti og Anna Steingrímsdóttir (d.26.3.2018) frá Höfðakoti. Í fremstu röð, frá vinstri: ?Edda Pálsdóttir? (d.8.4.2016), Ingveldur Anna Pálsdóttir (d.6.8.2020), Ása Pálsdóttir og Stella Magnúsdóttir (d.14.1.2011).
Höfðaskóli - safn405
Nemendur Höfðaskóla fædd 1975. Fremsta röð frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Þröstur Árnason, Börkur Árnason, Hallgrímur Björgvinsson (d.10.8.2010), Svanur Árnason og Jóhannes Óskarsson. Miðröð frá vinstri: Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Særún Níelsdóttir, Áslaug Jóhannsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Soffía Lárusdóttir Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Berglind Karlsdóttir. Aftast frá vinstri: Berglind Hólm Harðardóttir og Vilborg Jóhannsdóttir. Myndin var tekin einhverntíma kringum 1983.
Óskar Kristinsson safn 041
Myndin var tekin á skemmtikvöldi, líklega á Hótel Íslandi, en ekki er vitað hvenær. Fólkið á myndinni var í hópi starfsmanna Skagstrendings hf sem var þarna saman í skemmtiferð. Frá vinstri: óþekktur, María Konráðsdóttir (d.9.8.2003), Ástmar Kári Ástmarsson og Margrét Ólafsdóttir.
Óskar Kristinsson safn139
Ingólfur Sveinsson og Ingibjörg Skúladóttir njóta sólarinnar uppi á brúarþaki á Arnari Hu 1 í heimagerðum hengirúmum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það gerði Hjörtur Guðbjartsson.
Höfðaskóli - safn474
Myndin var tekin 1. maí 1997 í Skíðaskálanum þegar þar stóð yfir bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fæddra 1988. Fólkið á myndinni átti börn í bekknum, þau eru frá vinstri: Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018), Aðalheiður Guðmundsdóttir og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Ólafur Bernódusson 946
Starfsmenn á unglingamóti umf Fram 1983 á Skagastrandarvelli. Frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson íþróttaáhugamaður, Guðbjörg Gylfadóttir afrekskona í íþróttum og Hrólfur Pétursson sem var góður íþróttamaður á þessum tíma. Áhorfendurnir eru óþekktir.
Skagaströnd - safn516
4. desember 1998 á jólhlaðborði í Kántrýbæ, eldri borgarar að gera sér glaðan dag. Frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir (d. 12.3.2020), Ragnhildur J. Jónsdóttir (d.19.1.2005), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004).
Óþekktur ljósmyndari619
Mæðginin á Karlsminni, Guðmundur Pálsson (d.14.12.1976) og móðir hans Sigríður Vilhelmína Jóhannesdóttir (d.24.9.1930) . Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
1
…
63
64
65
…
79
Leita í myndasafninu
Leita