Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari611
Hjónin á Hólanesi, Sigurður Sölvason (d.24.9.1968) og Margrét Konráðsdóttir (d.16.9.1974). Þau hjón bjuggu seinna lengi í íbúð inn af verslun sinni, Borg. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Skagaströnd - safn516
4. desember 1998 á jólhlaðborði í Kántrýbæ, eldri borgarar að gera sér glaðan dag. Frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir (d. 12.3.2020), Ragnhildur J. Jónsdóttir (d.19.1.2005), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Haukur Gunnlaugsson (d.18.1.2004).
Óþekktur ljósmyndari654
Hjónin, Gunnar Hermann Grímsson (d.11.9.2003) og Sigurlaug Helgadóttir (d.21.10.2009) bjuggu í húsinu Skagaströnd en það var líka stundum kallað Verslunarstjórahús og stóð rétt vestan við Gamla kaupfélagið. Gunnar var kaupfélagsstjóri á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari583
Hjónin í Drangey, Guðmundur Ari Gíslason Kaldbak (d.2.6.1956) og Sigríður Helga Gísladóttir (d.6.8.1970). Þau hjón eignuðust 14 börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn154
Vorið 1969, sem var hafísvor, aflaði síðutogarinn Arnar Hu 1 svo vel að einu sinni kom hann í höfn og landaði óaðgerðum fiski á hafnargarðinn (Útgarð) og hélt svo aftur til veiða. Hópur fólks í landi var ræstur út til að gera að fiskinum sem síðan var unninn í frystihúsinu. Á myndinni, sem Magnús B. Jónsson tók, má sjá íshröngl í höfninni og steypt ker við bryggjuna í baksýn. Kerið var eitt af mörgum sem smíðað var í slippnum framan við Bjarmanes. Síldarfæribandið frá löndunarkrananum upp í verksmiðu sést líka á löndunarbryggjunni (Ásgarði). Fólkið á myndinni er óþekkt.
Óþekktur ljósmyndari456
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var í kveðjuhófi sem haldið var Maríu Magnúsdóttur (d.2.2.2016) til heiðurs þegar hún lét af störfum hjá Kaupfélagi Húnvetninga á Skagaströnd eftir áratuga störf. Hófið var haldið á Hótel Dagsbrún. Fólkið vinstra megin við borðið er, talið frá vinstri: Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Halldóra Þorláksdóttir (d.27.12.2017), Eðvarð Hallgrímsson, Jón Jónsson (d.9.7.1991), Hallbjörn Hjartarson og Halldór Hermannsson. Hægra megin við borðið, talið frá vinstri: Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016), Vigdís Viggósdóttir, óþekkt, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Helga Guðmundsdóttir, Steinunn Friðriksdóttir og Helga Hermannsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 140
Guðmundur Jónsson til vinstri og Fannar Viggósson til hægri spila undir söng kvennanna á myndinni. Konurnar eru fá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Þórey Jónsdóttir, Sigrún Jónsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir, Vigdís Viggósdóttir og Guðbjörg Viggósdóttir. Myndin var líklega tekin í einhverju afmælishófi hjá Leikklúbbi Skagastrandar í Fellsborg.
Höfðaskóli - safn569
Nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Strákarnir eru, frá vinstri: Ívar Gylfason, Sindri Jóelsson, Óðinn Örn Sævarsson og Oddur Valdimarsson
Óþekktur ljósmyndari593
Hjónin á Flankastöðum, Kristinn Ágúst Jóhannsson (d. 9.11.2002) og Guðný Sigríður Finnsdóttir. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn403
Hluti nemenda í Höfðaskóla fædd 1969 á litlu jólum. Frá vinstri: Stefán Ægir Lárusson (fæddur 1970), Þráinn Bessi Gunnarsson, Sigurbjörn Fanndal þorvaldssson (d.13.8.2000), Guðmundur Kristinn Oddsson, óþekktur, Kristjana Jóhanna Jónsdóttir og Sigríður Ólína Ásgeirsdóttir. Myndin var líklega tekin 1983 eða 1984.
Óskar Kristinsson - safn153
Myndina tók Magnús B. Jónsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 árið 1969. Mokafli hefur verið í síðasta hali því það er fiskur út um allt dekk. Karlarnir í aðgerðinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1485
Fólkið á myndinni er að njóta sólarinnar á pallinum á Oddagötu 5. Hjónin Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018) og Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) eru til vinstri en bróðir Gunnars, Óli Albertsson hallar sér fram á handriðið. Ekki er vitað hveær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari568
Hjónin í Barnaskólanum (Bjarmanesi) með elstu börn sín. Eðvarðsína Kristjánsdóttir (d.27.4.1944) og Einar Ragnar Guðmundsson (d.19.11.1984). Börnin eru Kristján Ragnarsson (d.13.7.2018) og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011). Sigurlaug var dóttir Eðvarðsínu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 078
Hluti sýnenda á sýningu eldri borgara í Höfðaskóla í desember 1987. Sýndir voru munir sem fólkið vann í félagsstarfi aldraðra undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Konurnar á myndinni eru, í aftari röð frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003). Sitjandi: Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) vinstra megin og Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006).
Höfðaskóli - safn408
Þessi mynd var tekin á skólaslitum Höfðaskóla í Fellsborg. Börnin á myndinni eru frá vinstri: óþekkt, lena Rut Jónsdóttir, óþekkt, Alma Eik Sævarsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Marínó Freyr Jóhannesson, Ómar Ísak Hjartarson, óþekktur, Ágústa Lóa Jóelsdóttir og óþekktur. Kennararnir lengst til vinstri eru óþekktir. Börnin fæddust 1990 þannið að myndin hefur líklega verið tekin einhverntíma á árunum 1997 - 2000. Ef þú þekkir einhvert óþekktu barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn159
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Jóhann Ásgeirsson, óþekktur, Reynir Lýðsson (standandi), Jón Sveinsson og Sigurbjörn ??. Ekki er vitað hver tók myndina.
Ólafur Bernódusson1129
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru Lovísa Vattnes (d.26.3.2018) til vinstri og Vigdís Ómarsdóttir hægra megin að flytja skemmtiatriði. Ingibergur Guðmundsson og Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) fylgjast spennt með.
Óþekktur ljósmyndari598
Hjónin í Garði, Jóhannes Pálsson (d.9.3.1972) og Helga Þorbergsdóttir (d.30.9.1970). Jóhannes var menntaður skósmiður. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn603
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg einhverntíma á árunum kringum 1990. Á henni er einn bekkur að sýna atriðið sitt. Nemendurnir eru, frá vinstri: Jóhannes Heiðmar Indriðason, Viktor Pétursson, Hrefna Dögg Þorsteinsdóttir, óþekkt, Sylvía Kristín Sigurþórsdóttir, María Jóna Gunnarsdóttir, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Ólafur Elínarson og Ragna Fanney Gunnarsdóttir
Ragnar S. Ingvarsson - safn 169
Myndin var tekin á árlegum piparkökudegi í leikskólanum Barnaból. Þá koma aðstandendur barnanna og hjálpa þeim við að baka og skreyta piparkökur. Á myndinni eru, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Vignir Örn Hafþórsson ömmustrákurinn hennar, Birkir Rafn Gíslason, Kolbrún Þórarinsdóttir (nær) og óþekktur (fjær). Myndin var líklega tekin 1987 eða 1988.
Óþekktur ljósmyndari634
Sambýlisfólkið á Litla-Felli, Þorsteinn Sigurbjörn Guðlaugsson (d.27.5.1982) og Hólmfríður Björg Kristjánsdóttir (d.24.11.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson 1048
Myndin var tekin í ágúst 1998 á Kántrýhátíð þegar þeir félagar, Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) og Jón E. Kristjánsson (d.20.6.2014), spila á sviðinu. Kristján á sög og Jón á harmóniku. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 134
Myndin var tekin í sjómannadagspartýi heima hjá útgerðarmanni og eiganda Ólafs Magnússonar HU 54, Stefáni Jósefssyni. Ekki er vitað hvaða ár hún var tekin en á henni eru, frá vinstri: Erna Sigurbjörnsdóttir, Þorvaldur Skaftason og Hjörtur Guðmundsson. Aftan við Hjört stendur Stefán og tekur myndir.
Óþekktur ljósmyndari584
Sambýlisfólkið í Drangey, Þórdís Alexandra Jósefsdóttir Stiesen (d.6.7.1948) og Jakob Guðmundsson (d.18.6.1932). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1499
Á einni kántrýhátíðinni mætti KK og hélt námskeið í skólanum í götuspilamennsku (buski). Einnig kom hann fram á hátíðinni m.a. með tónleikum í Bjarmanesi. Á myndinni er KK (Kristján Kristjánsson) til hægri á spjalli við Steindór Haraldsson sem er vinstra megin. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvaða ár þetta var.
Höfðaskóli - safn606
Niðursokkin í vinnu sína í Höfðaskóla. Líklega einhverntíma kringum 1988. Vinstra megin við borðið er Óskar Óskarsson og óþekkt stúlka en hægra megin er Gunnar Halldór Hallbjörnsson fjær og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir? nær. Lengst til hægri er svo Aðalheiður Sif Árnadóttir?. Myndina tók einhver nemandi í ljósmyndavali og framkallaði sjálfur.
Óskar Kristinsson - safn 220
Myndin var tekin af iðnaðarmönnum við járnsmíðar í Rækjuvinnslunni hf. Hún var í fremstu röð rækjuvinnslna, afar tæknivædd og afkastamikil. Mennirnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Björn Viðar Hannesson, Vilhelm Þórarinsson, Ari Þórsson (fjær) og Guðjón Árnason (nær). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn581
Myndin var tekin á skóla-íþróttamóti líklega á Húnavöllum. Á myndinni eru nokkrir keppendur úr Höfðaskóla. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1990. Á henni eru, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir (nær), Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir (fjær), Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (nær) og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir (fjær). Strákurinn í forgrunninum er óþekktur.
Óskar Kristinsson - safn185
Ekki er vitað um tilefni fundarins á myndinni og ekki vitað hvenær hún var tekin en hann var haldinn á Hótel Dagsbrún. Ljósmyndarinn er líka óþekktur. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Sigurjón Guðbjartsson, Sigríður Gestsdóttir, Haraldur Árnason, Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) og Kristinn Guðmundsson.
Óþekktur ljósmyndari551
Hjónin á Tjörn, Guðbjörg Rannveig Kristmundsdóttir (d.18.6.1967) og Sveinn Mikael Sveinsson (d. 7.4.1932). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari520
Hjónin í Hlíð á Skaga. Sigurbjörn Björnsson (d.11.10.1986) og Gurid Björnson (d.26.4.2007) (Gurid Sandsmark Sveinbjörnsson). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 041
Myndin var tekin á skemmtikvöldi, líklega á Hótel Íslandi, en ekki er vitað hvenær. Fólkið á myndinni var í hópi starfsmanna Skagstrendings hf sem var þarna saman í skemmtiferð. Frá vinstri: óþekktur, María Konráðsdóttir (d.9.8.2003), Ástmar Kári Ástmarsson og Margrét Ólafsdóttir.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 181
Á myndinni eru hjónin Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011) og Jón Helgason (d.1.12.2019) með dóttur sinni Kristínu Jónsdóttur. Ekki er vitað hvar né hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn206
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru næst okkur, talið frá vinstri: Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021) og Einar Kristberg Einarsson. Við næsta borð nær okkur eru, frá hægri: Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) og Gunnar Jónsson. Hægra megin við það borð eru, frá hægri: Gylfi Guðjónsson, Adolf H. Berndsen, Ingvar Þór Jónsson, Ernst Berndsen, Sigurjón Ingólfsson, Guðjón Árnason og Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000). Yfir höfuð Gylfa sér í Jón Sveinsson og inn eftir því borði hægra megin: Gunnar Stefánsson, Óskar Þórðarson, óþekktur og Ingibjörn Sigurjónsson. Á móti þeim við borðið eru Stefán Sveinsson, Ingólfur Sveinsson, óþekktur og Sigrún Jónsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 088
Þessar fjórar konur voru, ásamt hópi eldri borgara frá Skagaströnd, á ferð um Hvammstanga 18. apríl 1991. Þar var þessi mynd tekin af þeim. Frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Guðný Finnsdóttir.
Höfðaskóli - safn439
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1989 í pitsupartýi í Kántrýbæ 19. maí 2000. Vinstra megin við borðið, talið inn eftir því: Ásþór Óðinn Egilsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Maríanna Ástmarsdóttir og .....?Einarsson. Hægra megin við borðið. inn eftir því: Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006), Sigþór Ottó Hallgrímsson og Almar Freyr Fannarsson. Ef þú veist hvað drengurinn í grænu peysunni heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn094
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri þakkar séra Agli Hallgrímssyni (d.9.6.2021) blessun og fyrirbænir í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 eftir að hún kom fyrst í heimahöfn á Skagaströnd. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Jóhann Símonsen, Gylfi Guðjónsson og Lárus Ægir Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en hún var tekin 1995 eða 1996.
Óskar Kristinsson safn 033
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru nokkrir starfsmenn Skagstrendings hf og makar þeirra. Frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Margrét Ólafsdóttir, Kristján Ólafsson, Finnur Kristinsson, óþekktur og Óskar Þór Kristinsson.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 057
Myndin var tekin 1957 eða 1958 á sviðinu í gömlu Tunnunni, sem nú hýsir Spákonuhofið. Ekki er vitað hvert leikritið var en leikendurnir eru, talið frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Ari Jónsson, Hallbjörn Björnsson, Guðrún Þórbjarnardóttir, Jóhanna Valdimarsdóttir, Stefán Ingólfsson (d.21.10.2004) og Lárus Ægir Guðmundsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir152
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni eru frá vinstri: Jón, Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970) kona hans, Guðríður Bergsdóttir (d.10.6.1996) og Halldóra Pétursdóttir (d.23.12.1987) frá Höfðakoti.
Óskar Kristinsson - safn156
Kátir karlar á dekkinu á ísfisktogaranum Arnari Hu 1. þeir eru nýbúnir að skera hákarl því beiturnar liggja á dekkinu við hlið þeirra. Mennirnir eru, frá vinstri: Hafþór Gylfason, óþekktur vélstjóri, Þórarinn Eiðsson (d.14.6.2002), magnús Hjaltason (d.16.6.2014) og Guðmundur E. Guðmundsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né hver tók hana. Ef þú þekkir óþekkta vélstjórann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn516
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1983 þar sem nemendur fæddir 1972 flytja skemmtiatriði með kennaranum sínum. Aftari röð, frá vinstri: Hólmfríður Oddsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Óskar Þór Óskarsson, Kolbeinn Vopni Sigurðsson, Svava Guðrún Sigurðardóttir og Halldór Gunnar Ólafsson. Fremri röð, frá vinstri: Karl Lúðvíksson kennari, Hólmgeir Kristmundsson, Hjalti Kristjánsson, Stefán Sveinsson og Gunnar Þröstur Ásgeirsson.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 042
Þegar fermingarsystkin frá Hólaneskirkju vorið 1963 hittust til að halda uppá fermingarafmæli sitt (30 ára?) buðu þau til sín prestinum sínum og kennurum. Það fólk er á þessari mynd sem Guðmundur J. Björnsson tók. Frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), Sveinn S. Ingólfsson, Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007), Jón S. Pálsson og María Magnúsdóttir (d.2.2.2016).
Óskar Kristinsson - safn205
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið næst okkur, talið frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Hafþór Smári Gylfason, Stefán Sveinsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Ingólfur Sveinsson, óþekktur, Steinunn Grímsdóttir og Sigrún Jónsdóttir. Hægra megin við borðið talið inneftir því: Steindór R. Haraldsson, Jón Sveinsson, óþekktur, Óskar Þórðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1173
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru tæknimennirnir sem sáu um hljóð og lýsingu á samkomunni. Birkir Freyr Gunnarsson til vinstri og Ásdís Birta Árnadóttir til hægri.
Höfðaskóli - safn629
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni eru Hildur Inga Rúnarsdóttir og Jón Örn Stefánsson í tunnum sem þau voru að vinna með. Kennarinn þeirra Guðrún Kristjánsdóttir stendur hjá þeim.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 139
Á myndinni eru hjónin Rúnar Þór Ingvarsson og Rósa Margrét Sigursteinsdóttir. Til vinstri er móðir Rósu, Birgitta Vilhelmsdóttir (d.6.1.1995). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1516
Á myndinni, sem tekin var á einhverjum sjómannadegi, sýnir landhelgisþyrlan Sif björgun með því að hífa upp mann úr sjónum. Reyndar er maðurinn á myndinni úr áhöfn þyrlunnar og á leiðinni niður til að aðstoða mennina í sjónum við að setja á sig hífingarbeltið á réttan hátt.
Óskar Kristinsson safn 055
Ómar Jakobsson með börnum sínum tveimur Andra Þór og Elínu Ósk. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin
Óskar Kristinsson safn 117
Fiski pakkað í öskjur um borð í Örvari Hu 21. Hver askja var svo sett í frystitækin til frystingar áður en þeim var síðan pakkað þremur saman í stærri pappakssa og niður í lest þar sem frostið var um 30° C. Karlarnir á myndinni eru: næst okkur er óþekktur, Grétar Smári Hallbjörnsson er í miðjunni og Jóhann Ásgerisson fjærst. Myndina tók Ólafur Ásgeirsson 20. ágúst 1996.
Óskar Kristinsson safn123
Starfsmenn Skagstrendings hf og makar í rútu á leið í menningarferð til Reykjavíkur. Fólkið í vinstri sætaröðinni er, talið aftur eftir bílnum: Sævar R. Hallgrímsson, Sólveig Þorvaldsdóttir og Kristján Alexandersson, Bóel Hallgrímsdóttir og Björgvin Karlsson, Axel Hallgrímsson (d.25.2.2018) og Herborg Þorláksdóttir, Gunnar Jón Jónsson. Í aftasta sætinu frá vinstri: Inga Matthíasdóttir, Friðrik Gígja og Ingibjörg Skúladóttir. Í hægri sætaröðinni eru, talið aftur eftir bílnum: Guðbjörg Ólafsdóttir, Guðmundur Jónsson, Gylfi Guðjónsson, Sigrún Jónsdóttir og Vigdís Viggósdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær hún var tekin. Myndina tók Vilhelm Þórarinsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 041
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi og suð-vesturlandi skoðaðir. Á myndinni eru fararstjórarnir í ferðinni Guðrún Þ. Guðmundsdóttir til vinstri og Elísabet Sigurgeirsdóttir (d.11.11.2015) til hægri. Á milli þeirra er Guðmundur Frímann Þorsteinsson bílstjóri hópsins. Myndin var líklega tekin í Perlunni.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 068
Myndin var tekin í desember 1992 í Sæborg af hluta af heimilisfólkinu þar. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012), Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) (fjær), Ásta Bjarnadóttir (d.15.6.2008) (nær), Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002), Málfríður ? og Auður Ágústsdóttir (d.12.1.1997). Barnið á myndinni er Kristbjörg Una Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn440
Nemendur Höfðaskóla fædd 1989 gerðu sér glaðan dag í Kántrýbæ 19. maí 2000. Á myndinni eru í góðri sveiflu, frá vinstri: Maríanna Ástmarsdóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir, Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2000) og .....?Einarsson. Ef þú veist hvað drengurinn, Einarsson, heitir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn563
Myndin var tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003 í Danmörku af nemendum úr Höfðaskóla í skólaferðalagi. Krakkarnir á mýndinni eru, frá vinstri: Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson, Ívar Gylfason og Sindri Jóelsson
Ólafur Bernódusson 1049
Myndin var tekin af hópreið hestamanna á Kántrýhátíð í ágúst 1998. Hestamennirnir eru, frá vinstri: Magnús B. Böndal (d.7.9.2001), Magnús Hjaltason (d.16.6.2014), óþekktur, Jóel Berg Friðriksson og Kári Lárusson en aðrir eru óþekktir. Myndin var tekin þegar hestamennirnir stiltu sér upp á hæðina fyrir neðan stjórnsýsluhúsið þar sem fram fór brekkusöngur í framhaldinu.
Óskar Kristinsson - safn162
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Kristmundur Stefánsson (d.4.11.2000), Einar Ásgeirsson, Gunnar Jón Jónsson, Einar Kristberg Einarsson (nær), Kristján Alexandersson (fjær), Jón Alexandersson, Sigurjón Ingólfsson og Sveinn Gíslason.
Óskar Kristinsson - safn195
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, annar frá hægri, og Magnús Schram fisksölumaður, lengst til hægri, hitta viðaskiptavini í Japan 27. ágúst 1991. Japanarnir heita Jun Hariya og Masatashi Hirooha samkvæmt áleturn aftan á myndinni.
Óskar Kristinsson safn 144
Ómar Jakobsson tók þessa mynd á matartíma um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær. Á myndinni eru, frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019) Jón Gunnar Jósefsson og Gylfi Guðjónsson. Standandi er Gunnar Jón Jónsson.
Höfðaskóli - safn442
Myndin var tekin 13. maí 2000 af heldri borgurum á ferðalagi. Á henni eru konurnar á óþekktum áningarstað. Konurnar eru, frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007) bláklædd, óþekkt Finnsdóttir, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Elísabet Árnadóttir (d.16.3.2017) og Guðný Finnsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
64
65
66
…
79
Leita í myndasafninu
Leita