Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Óskar Kristinsson safn 147
Ekki er vitað hvenær Ómar Jakobsson tók þessa mynd né hvar en miðað við turninn í baksýn hefur það verið í einhverri erlendri höfn. Skipið er líka óþekkt. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Finnur Kristinsson, óþekkt kona (?Bjarnhildur Sigurðardóttir? (d.22.4.2016)), Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) og Stefán Jósefsson.
Óskar Kristinsson safn125
Starfsmenn Skagstrendings hf og makar í menningarferð í Reykjavík uppi á hóteli að snakka saman yfir snakki og fordrykk. Fólkið er frá vinstri: Gylfi Guðjónsson, óþekkt, Bóel Hallgrímsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Finnur Kristinsson og Hlíf Sigurðardóttir. Vilhelm Þórarinsson tók myndina en ekki er vitað hvenær.
Guðrún Guðmundsdóttir 047
Í ágúst 1993 bauð Skagstrendingur hf eldri borgurum á Skagaströnd í dagsferð um Vestur Húnavatnssýslu. Á myndinni er hópurinn sem fór í ferðina undir fararstjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Frá vinstri: Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) frá Másstöðum en seinna í Röðulfelli á Skagaströnd, Ólafur Pálsson (d.26.3.2004) frá Björgum, Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) frá Sviðningi, Heiðbjört Lilja Halldórsdóttir (d.1.7.2019) frá Eyjakoti, Júlíus Holtason Líndal bílstjóri, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd, Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) Skagaströnd, María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) frá Asparlundi á Skagaströnd. Litla stúlkan á myndinni er Elínborg Á. Árnadóttir, dóttir Guðrúnar fararstjóra.
Óskar Kristinsson safn 036
Myndin var tekin í einhverri ferð starfsmanna Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er hluti fólksins að hittast fyrir sameiginlega veislu um kvöldið, líklega á Hótel Ísland. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Kristján Ólafsson, tveir óþekktir, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Óskar Þór Kristinsson, óþekktur, Jón Ingi Ingvarsson, Ómar Jakobsson og óþekkt kona.
Óþekktur ljósmyndari617
Hjónin á Iðavöllum, Hallgrímur Jónsson (d.2.12.1983) og Anna Ragnheiður Fritzdóttir (d.4.3.1992). Hallgrímur var póstmeistari og símstöðvarstjóri. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Skagaströnd 1981 og 82
Sjómannadagurinn á Skagaströnd 1981 og 1982 einnig koma Örvars Hu 2, 1982. Ekkert tal en hljóð og mynd í góðu lagi, tími 16 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 039
Guðmundur J. Björnsson tók þessa mynd að aflokinni æfingu skipverja á Arnari Hu 1 - Japans Arnari - í notkun flotbúninga. Birgir Þórbjarnarson stýrimaður skolar af búningunum. Mennirnir í búningunum eru, frá vinstri: Ómar Jakobsson?, Hafþór Gylfason, Vilhelm Jónsson og óþekktur sem er að tala við Guðjón Ebba Sigtryggsson (d.16.7.2017) skipstjóra. Aðrir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari479
Starfsfólk Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd í kaffipásu frá markaðssölu verslunarinnar í félagheimilinu Fellsborg. Fólkið er, frá vinstri: hjónin Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012) og Hallbjörn Hjartarson, Helga Hermannsdóttir og Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það á áttunda áratugnum.
Höfðaskóli - safn404
Nemendur í Höfðaskóla fædd 1976. Krakkarnir eru, frá vinstri: Steinþór Carl Karlsson, Jósef Ægir Stefánsson, Arna Jónsdóttir, Kristján Gunnar Guðmundsson, Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Theódór Karlsson, Ingi Björgvin Kristjánsson (fær), Sigríður Margrét Oddsdóttir (nær), Arnar Haukur Ómarsson og Viggó M. Maríasson. Myndin var tekin kringum 1985.
Ingibergur Guðmundsson 404
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla veturinn 1987. Kennslukonurnar eru Jóhanna Ólafsdóttir til vinstri og Guðrún Kristjánsdóttir til hægri. Lengst til hægri er svo Páll Leó Jónsson þáverandi skólastjóri.
Höfðaskóli - safn492
Myndin var tekin í myndmenntatíma í Höfðaskóla 1. október 1998. Á henni eru, frá vinstri: Gunnar Már Sæmundsson, Alexander Ragnarsson, Elías Kristinn Sæmundsson, Hildur Sigrún Guðbrandsdóttir og Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir.
Jónas 3
Þessi mynd var tekin einhverntíma kringum 1980. Á henni eru afgreiðslustúlkur í verslun Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Helga Guðmundsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir og Steinunn Friðriksdóttir.
Höfðaskóli - safn444
Myndin var tekin 13. maí 2000 þegar heldri borgarar úr A- Húnavatnssýslu ferðuðust um á Norðurlandi. Þessi mynd var tekin í stoppi líklega í Síldarminjasafninu á Siglufirði. Fólkið er, frá vinstri: óþekkt, Elísbet Árnadóttir (d.16.3.2017), tvö óþekkt, Kristján A. Hjartarson (d.2.8.2003), Hrefna Hákonardóttir (d.14.12.2004)(fjær), Guðrún Angantýsdóttir (nær) og Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020).
Höfðaskóli - safn549
Fimm stúlkur úr Höfðaskóla. Frá vinstri: Lilja Bjarney Valdimarsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, óþekkt, Sara Rut Fannarsdóttir og Andrea Björk Kristjánsdóttir. Myndin var líklega tekin í október 2002. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari645
Hjónin í Móum, Sigurður Jónasson (d.6.2.1944) og Björg Bjarnadóttir (d.6.7.1959). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1489
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Maðurinn til hægri, með afmælispakka undir hendinni, er Guðjón Ólafsson sem var skólamálastjóri í A-Hún á þessum tíma. Börnin á myndinni eru flest fyrrverandi nemendur í leikskólanum.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 155
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru, frá vinstri: systkinin Guðmundur Jónsson og Kristín Jónsdóttir en til hægri er Guðbjörg Hanna Gylfadóttir.
Fisk Seafood - safn 277
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, afhendir Denis Lumbard, eigandi Norbrit Fish Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra á Örvari Hu 21, mynd sem þakklætisvott fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum áhafnarmeðlimum Örvars persónulegan viðurkenningarskjöld fyrir viðskiptin. Maðurinn til vinstri er Magnús Schram sem var starfsmaður Fiskileiða en það var sölufyrirtæki Skagstrendiings hf. Í dyrunum stendur Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 023
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd spjalla sman yfir kaffibolla, Grímur Gíslason (d.31.3.2007) frá Saurbæ og Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri frá Skagaströnd.
Guðrún Guðmundsdóttir 077
Eldri borgarar á Skagaströnd héldu sýningu í Höfaðaskóla í desember 1987 á munum sem þeir höfu gert í félagsstarfi aldraðra undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Á sýningunni seldu konur úr kvenfélaginu Eining kaffi og meðlæti. Á þessari mynd eru þær Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir (Stella) (d.8.12.2003) í Blálandi til vinstri og Sylvía Hrólfsdóttir í Vinaminni (Hólabraut 16) til hægri. Í baksýn grillir í hjónin Gunnlaug Sigmarsson og Steinunni Friðríksdóttur með son sinn Friðrik.
Óþekktur ljósmyndari563
Hjónin í Ásholti, Andrés Guðjónsson (d.5.10.1968) og Sigurborg Hallbjarnardóttir (d.3.12.1983). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn567
Hressir nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Oddur Valdimarsson, Sindri Jóelsson og Ívar Gylfason.
Ingibergur Guðmundsson 366
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Ólafur Bernódusson og Vilborg Magnúsdóttir.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 041
Karlmennirnir á myndinni eru fermingarbræður en konan er óþekkt. Mennirnir eru að skála í fermingarafmæli sínu, líklega 30 ára. þeir eru, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Ómar Jakobsson, Gísli Kristjánsson og Guðmundur Guðmundsson. Baksvipurinn er líklega af Erni Berg Guðmundssyni. Guðmundur J. Björnsson, sem er einn af fermingarbræðrunum, tók myndina.
Ólafur Bernódusson 1025
1998 hélt séra Guðmundur Karl Brynjarsson út vinsælu unglingastarfi í Hólaneskirkju. Myndin var tekin í nóvember á einni unglingastundinni uppi á lofti í kirkjunni. Séra Guðmundur stendur til hægri en unglingarnir eru, frá vinstri: Birna Þórkatla Sæmundsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Guðjón Ebbi Guðjónsson, óþekktur, Eva Rún Rúnarsdóttir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, tveir óþekktir, Vignir Örn Hafþórsson, Eyþór Ernstson, Tinna Björk Gunnarsdóttir og Jón Oddur Hjálmtýsson.
Óskar Kristinsson safn 045
Hjónin Guðjón Guðjónsson og Guðrún Soffía Pétursdóttir á ferðalagi með öðrum starfsmönnum Skagstrendings hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn161
Myndin var tekin 20. apríl 1992 á fundi með áhöfn Arnars Hu 1 (Japans Arnars) um ýmislegt sem betur mátti fara að mati framkvæmdastjórans Sveins S. Ingólfssonar. Rætt var um öryggismál, veikindi, slys og margt annað sem áhöfnin var beðin að hafa í huga í störfum sínum. Sjómennirnir á myndinni eru, sitjandi frá vinstri: Jón Þorgeirsson (d.21.1.2017), Gestur Arnarson, Guðmundur E. Guðmundsson og Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004). Standandi frá vinstri: Birgir Þórbjarnarson, Jóhann Ásgeirsson, óþekktur og Stefán Sveinsson. Ekki er vitað hver tók myndina en ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn194
Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf er lengst til hægri á þessari mynd sem var tekin í Kaohsiung í Taiwan 5. september 1991. Maðurinn lengst til vinstri er Magnús Schram fisksölumaður en á milli þeirra er óþekktur fulltrúi Galore International Corp..
Höfðaskóli - safn411
Þessi mynd var tekin á tröppunum sunnan á "Gamla skólanum" eða Bjarmanesi eins og húsið heitir. Þar var í áratugi rekinn barnaskóli Skagastrandar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Samkvæmt upplýsingum frá Helgu Berndsen er fólkið á myndinni eftirfarandi. Aftasta röð frá vinstri: Karl Þórólfur Berndsen (d.12.2.1995), Guðný Pálsdóttir (d.17.2.2005), Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010) og Birna Laxdal (d.1983). Miðröð frá vinstri: Pálína Hafsteinsdóttir (d.22.7.2008), Bogga Björnsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Þórey Ólafsdóttir, og Hrefna Björnsdóttir (d.8.10.2018). Fremsta röð frá vinstri: Helga Berndsen, Ólína Marta Steingrímsdóttir (d.4.2.1994), Ingibjörg Axelma Axelsdóttir (Didda) (d.6.3.2007) og Anna Steingrímsdóttir (d.26.3.2018). Stúlkan i glugganum er Þorgerður Laxdal (Didda) frá Felli.
Ragnar S. Ingvarsson - safn 130
Hópur fermingarbarna utan við Hólaneskirkju (eldri) á fermingardaginn sinn vorið 1985. Á myndinni eru frá vinstri: Vigdís Ómarsdóttir, Jóhanna Sigurjónsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir, Hans Birgir Högnason (fjær), Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Baldur Bragi Eðvarðsson (fjær, snýr baki í myndavélina), Erlingur Ottósson, Hallgrímur Oddsson, þorsteinn Styrmir Jónsson, Sveinn Ingvar Jónasson, Ægir Thorberg Jónsson, Viggó Magnússon og séra Oddur Einarsson. Krakkarnir í baksýn eru óþekktir en þar má sjá hluta af uppslætti fyrir nýja Hólaneskirkju.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1497
Lára Rúnarsdóttir og Birkir Rafn Gíslason skemmtu gestum á Kántrýhátíð með tónlistarflutningi. Ekki er vitað hvaða hátíð þetta var.
Höfðaskóli - safn535
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en það var einhverntíma kringum árið 2000. Á henni eru nemendur fæddir 1984 að bíða eftir vitnisburði sínum fyrir veturinn í Höfðaskóla. Nemendurnir eru, frá vinstri: Hákon Unnar Þórarinsson, Árni Halldór Eðvarðsson, Amy Ósk Hentze Ómarsdóttir, Leó Kristberg Einarsson, Jón Ingi Ragnarsson, Guðni Már Lýðsson, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Rebekka Laufey Ólafsdóttir og María Guðrún Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn452
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000. Kennarar slappa af í "langa fríinu". Þeir eru, frá vinstri: Dagný Úlfarsdóttir, Gunnlaug Gunnlaugsdóttir og Lárus Ægir Guðmundsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 059
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd tekin 5. desember 1986. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Hressa fólkið á myndinni er, frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) á Bergi, Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) Í Lundi, Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) Ási, Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) Vík og Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004).
Óþekktur ljósmyndari421
Myndin er af keppnissveit Kaupfélagsins í kappróðri kvenna á sjómannadegi. Stýrimaður er Sævar Hallgrímsson en ræðarar eru talið fram eftir bátnum: Kolbrún Viggósdóttir, óþekkt, Helga Hermannsdóttir, óþekkt, Hallbjörg Jónsdóttir og óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið rétt fyrir 1990.
Höfðaskóli - safn448
Kaffitími á kennarastofunni í Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000. Fólkið er, frá vinstri: Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Helga Ólína Aradóttir (nær), Elva Þórisdóttir (fjær) og Aðalheiður Sif Árnadóttir.
Óþekktur ljósmyndari574
Hjónin í Brautarholti, Ólafur Jón Guðmundsson (d.6.10.1985) og Lilja Þuríður Jakobsdóttir (d.19.7.1965). Ólafur var blindur síðustu æviár sín. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 040
Hópur fermingarsystkina hittist til að halda upp á fermingarafmæli sitt, líklega 30 ára. Myndina tók Guðmundur J. Björnsson í Skátaskálanum. Standandi frá vinstri: Sigurjón Ástmarsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Guðmundur J. Björnsson, Ómar Jakobsson, Örn Berg Guðmundsson, Þorvaldur Skaftason, Gunnlaugur Sigmarsson, Steindór R. Haraldsson, Guðmundur Guðmundsson og Gísli Kristjánsson. Sitjandi frá vinstri: Óþekkt Þorbjörnsdóttir, Kolbrún Jónsdóttir, Matthildur Hafsteinsdóttir Fosdal, Jóhanna Hallgrímsdóttir og Kristín Sigurðardóttir.
Óþekktur ljósmyndari642
Hjónin á Læk (Nýja Læk eða Neðri Læk) við Strandgötu, Kristján Axel Jón Helgason (d.27.7.1971) og Jóhanna Helga Lárusdóttir (d.12.12.1980). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn 040
Myndin var tekin á skemmtikvöldi, líklega á Hótel Íslandi, en ekki er vitað hvenær. Fólkið á myndinni var í hópi starfsmanna Skagstrendings hf sem var þarna saman í skemmtiferð. Fólkið er frá vinstri: Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Charlotta Traustadóttir, tvö óþekkt, Ástmar Kári Ástmarsson, Ómar Jakobsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016).
Óskar Kristinsson safn 089
Hjónin Ómar Jakobsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn568
Ungir nemendur Höfðaskóla bíða prúðir eftir mat sínum á veitingahúsi í Kaupmannahöfn í skólaferðalagi einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Sigurgeir Snævar Árnason, Jón Atli Magnússon og Eyþór Kári Egilsson
Óþekktur ljósmyndari604
Hjónin í Háagerði, Kristján Sigurðsson (d.3.11.1966) og Unnur Gíslína Björnsdóttir (d.14.12.1990). Þau bjuggu líka lengi í Þórshamri - Skagavegi 15 - á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 092
Myndin var tekin í ferðalagi eldri Húvetninga á öldrunarmót í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp 16. - 20. ágúst 1988. Á myndinni eru Anna H. Aspar (d.1.9.1999) og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) að kíkja á söngtexta fyrir rútusönginn. Hægra megin við þau spjallar Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990) við bílstjóra hópsins, Sigurð Ólafsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1044
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni fer Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) slökkvistjóri yfir eldvarnir á heimilum og hvetur nemendurna til að vera brunaverðir, hver heima hjá sér.
Ólafur Bernódusson1227
Hjónin Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) og Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Þau bjuggu lengst af í Stórholti (Bankastræti 3) með fjórum börnum sínum. Eftir að börnin voru farin að heiman fluttu þau í nýbyggða íbúð að Mánabraut 5. Bæði voru þau félagslynd og störfuðu með hinum ýmsu félögum á Skagaströnd.
Óþekktur ljósmyndari513
Sambýlisfólk á Brandaskarði, Vilhjálmur Benediktsson (d.21.10.1955) og Jensína Hallgrímsdóttir (d.6.2.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1490
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Börnin á myndinni eru að syngja fyrir gesti.
Guðrún Guðmundsdóttir 17
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) Bjargi Skagaströnd, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) Kárastöðum Skagaströnd, Jón Árnason ? Reykhólum og Rúnar Agnarsson Blönduósi. Á myndinni er hópurinn um borð í ferjunni Sæfara á leið til Hríseyjar.
Óþekktur ljósmyndari535
Sambýlisfólkið í Króki, Sveinbjörn Sigvaldason (d.18.7.1981) og Svanlaug Halldórsdóttir (d.26.2.2018). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn152
Aðgerð um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 einhverntíma vorið 1969. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Ómar Jakobsson, óþekktur, Gylfi Jóhannsson (fjær) og Björn Sigmundson (nær). Myndina tók Magnús B. Jónsson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn399
Myndin sýnir glögglega, með því að vera hreyfð, spenning og eftirvæntingu nemenda í Höfðaskóla þegar þeir tóku á móti forsetahjónunum, Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff, sem heimsóttu skólann 15. október 2002. Myndin var tekin utan við íþróttahúsið þar sem hjónin voru kvödd í lok heimsóknarinnar í skólann.
Óþekktur ljósmyndari543
Hjónin á Skeggjastöðum, Hjalti Árnason (d. 4.7.2010) og Anna Lilja Magnúsdóttir (d.18.8.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 060
Myndin var tekin 1986 eða´87 af vinum sem leigðu saman íbúð í Rauðagerði í Reykjavík. Unga fólkið á myndinni er, frá vinstri: Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Karl Berndsen (d.28.1.2020).
Guðrún Guðmundsdóttir 19
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992), Vík á Skagaströnd, reffilegur með hatt á höfði. Hægra megin við hann er bílstjórinn, Frímann Hilmarsson (d.3.12.2009) frá Breiðavaði.
Óþekktur ljósmyndari660
Hjónin á Spákonufelli, Jakob Jens Jóhannsson (d.5.6.1935) og Pálína Emma Jónsdóttir (d.29.2.1976). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn202
Myndin var tekin á fundi í Noregi 28. maí 1991. Á honum eru þrír Norskir fulltrúar og Sævar Hallgrímsson, með hönd undir kinn, og Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017), með gleraugu. Þeir voru fulltrúar Skagstrendings hf á fundinum. Fundarefnið var líklega að ganga frá ýmsum lausum endum í sambandi við nýsmíði fyrir Skagstrending hf.
Óþekktur ljósmyndari603
Sambýlisfólkið í Haugasundi, Rósant Júlíus Jósefsson (d.8.6.1951) og Sigurlaug Jóhannesdóttir (d.27.7.1952). Haugasund stóð við ströndina (Fjörubraut) ekki langt frá Grund, Garðhúsum og Óseyri. Áður var Rósant Júlíus giftur Ingibjörgu Jónsdóttur (d.6.9.1907). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari672
Hjónin í Þórshamri, Björn Sigurðsson (d.5.10.1999) og Elísabet Sigríður Frímannsdóttir (d.1.9.1990). Þau sér seinna hús á Jaðri og bjuggu þar. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn472
Bekkjarkvöld í Skíðaskálanum 1. maí 1997. Þarna komu saman nemendur Höfðaskóla fædd 1988 ásamt foreldrum sínum og kennara. Frá vinstri á myndinni: Björgvin Matthías Hallgrímsson, Ester Ösp Víðisdóttir, óþekkt, Víðir Ólafsson, Sigríður Gestsdóttir, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Rebekka Þórarinsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir kennari og Valgerður Guðmundsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
1
…
65
66
67
…
79
Leita í myndasafninu
Leita