Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Óþekktur ljósmyndari441
Steinunn Friðriksdóttir, starfsstúlka Kaupfélags Húnvetninga í versluninni við Einbúastíg (gamla kaupfélaginu), stillir sér upp með nokkrum viðskiptavinum verslunarinnar. Myndin var líklega tekin á áttunda áratugnum. Frá vinstri: Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Steinunn, Eðvarð Hallgrímsson og Jón Ingi Ingvarsson.
Óþekktur ljósmyndari543
Hjónin á Skeggjastöðum, Hjalti Árnason (d. 4.7.2010) og Anna Lilja Magnúsdóttir (d.18.8.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Fisk Seafood - safn 277
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var á hótel Dagsbrún 1. júní 1991, afhendir Denis Lumbard, eigandi Norbrit Fish Guðjóni Ebba Sigtryggssyni (d.16.7.2017) skipstjóra á Örvari Hu 21, mynd sem þakklætisvott fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin. Við þetta tækifæri afhenti Dennis líka öllum áhafnarmeðlimum Örvars persónulegan viðurkenningarskjöld fyrir viðskiptin. Maðurinn til vinstri er Magnús Schram sem var starfsmaður Fiskileiða en það var sölufyrirtæki Skagstrendiings hf. Í dyrunum stendur Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn399
Myndin sýnir glögglega, með því að vera hreyfð, spenning og eftirvæntingu nemenda í Höfðaskóla þegar þeir tóku á móti forsetahjónunum, Ólafi Ragnari Grímssyni og Dorrit Moussaieff, sem heimsóttu skólann 15. október 2002. Myndin var tekin utan við íþróttahúsið þar sem hjónin voru kvödd í lok heimsóknarinnar í skólann.
Höfðaskóli - safn500
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi Höfðaskóla 2001 eða 2002 Þá voru þessir krakkar í 8. bekk. Krakkarnir eru, frá vinstri: Katrín Inga Hólmsteinsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Linda ??, Hanna Rúna Gestsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir, Kristinn Hjálmtýsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Eyþór Kári Egilsson (fjær), Albert Ingi Haraldsson og Rósa Björk Blöndal Einarsdóttir. Kennarinn þeirra, lengst til hægri, er Ingibergur Guðmundsson.
Óþekktur ljósmyndari618
Hjónin á Jaðri, Kristín Pálsdóttir (d.26.2.1948) og Frímann Finnsson (d. 18.3.1937) kennari. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn598
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 2000. Hún var tekin á árshátíð Höfðaskóla það ár í Fellsborg. Krakkarnir eru að flytja atriðið sitt á hátíðinni. Frá vinstri: Þórey Fjóla Aradóttir?, Arnrún Bára Finnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Ester Ösp Víðisdóttir, Almar Freyr Fannarsson og Ragnheiður Erla Stefánsdóttir.
Halldór Gunnar Ólafsson 012
Þröstur Árnason á kassabindivélinni um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Hann tekur þátt í gríni félaga sinna og leyfir þeim að binda sig með kassaböndum. Vinstra megin er Brynjar Pétursson en Gestur Arnarsson er til hægri.
Óþekktur ljósmyndari613
Sambýlisfólkið í Höfðahólum, Axel Ásgeirsson (d.27.9.1965) og Sveinbjörg Ósk Björnsdóttir (d.12.7.2001). Bjuggu seinna á Litla Felli. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson safn097
Hafdís Þorvaldsdóttir og Ingvi Sveinn Eðvarðsson vinna við fiskpökkun um borð í Arnari Hu 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn597
Kolbrún Jenny Ragnarsdóttir til vinstri og Halla Kristín Árnadóttir til hægri hlusta á leiðbeiningar Ólafs Bernódussonar kennara í jólaföndri í Höfðaskóla einhverntíma kringum 1990. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari637
Hjónin á Lækjarbakka, Jakob Pétur Stefánsson (d.29.6.1962) og Marta Guðmundsdóttir (d.31.5.1957). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 098
Stór hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu fór í sumarferðalag um Borgarfjörð og Þingvelli 13.- 16. ágúst 1989. Á myndinni er hópurinn að leggja af stað en í dyrum bílsins er Hallur Hilmarsson bílstjóri hópsins.
Óþekktur ljósmyndari573
Hjónin á Bjargi, Ragnar Þorsteinsson (d.17.9.1999) og Jónína Sigurlaug Stefánsdóttir (d.15.12.2000). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1099
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood: Skjöldin fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni af áhöfninni eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Níels Grímsson, Björn Gunnarsson, Gunnar Reynisson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðmundur E. Guðmundsson, Ágúst Ómarsson, Jóhann Ásgeirsson, Björn Sigurðsson, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Hafþór Smári Gylfason, Grétar Smári Hallbjörnsson, Guðmundur Henry Stefánsson, Ólafur Ásgeirsson og Einar Haukur Arason.
Óþekktur ljósmyndari547
Hjónin á Sviðningi, Friðgeir Ágúst Eiríksson (d.17.5.1985) og Fanney Halldórsdóttir (d. 21.6.2005). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Jónas 44
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson, Magnús B. Jónsson og Jón Helgi Eiðsson.
Ingibergur Guðmundsson 352
Myndin var líklega tekin 1989. Strákarnir á henni eru að perla í Höfðaskóla, líklega í vinnuviku sem þá stóð yfir. Frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Árni Max Haraldsson, Kjartan Arnþór Þórðarson, Pétur Hinrik Herbertsson ? og Viktor Pétursson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 062
Þessi söngelska og hæfileikaríka fjölskylda söng á Hótel Dagsbrún fyrir eldri borgara frá Hvammstanga þegar þeir heimsóttu jafnaldra sína á Skagaströnd 1987 eða 1988. Söngfólkið er, frá vinstri: Svava Guðrún Sigurðardóttir, Sigurður Skagfjörð Bjarnason (d.16.5.2022), Inga Lára Sigurðardóttir og Sigrún Lárusdóttir.
Óskar Kristinsson - safn192
Sveinn S. Ingólfsson heilsar lítilli stúlku á Nýja Sjálandi að sið heimamanna með því að nudda saman nefjum. Myndin var tekin 25. febrúar 1992 þegar Sveinn var í landinu í viðakiptaerindum fyrir Skagstrending hf, þar sem hann var framkvæmdastjóri.
Ólafur Bernódusson1113
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni spreyta nemendur sig á að ganga á línu með aðra línu sér til stuðnings. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson safn093
Myndin var tekin 1995 eða 1996 í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 sem var rækjufrystitogari sem Skagstrendingur hf átti 1995 - 2000. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar skipið og áhöfn þess. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Indriðason, Jens Jónsson, séra Egill, Jóhannes Simonsen, Gylfi Guðjónsson, Hjörtur Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Gestur Arnarson.
Óþekktur ljósmyndari616
Hjónin í Höfðahólum, Guðmundur Rafnsson (d.23.9.1968) og Sigurbjörg Sveinsdóttir (d.15.2.1959). Þau voru leigjendur í Höfðahólum og eignuðust fimm börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn204
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22.september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru vinstra megin við borðið, talið frá vinstri: Hafsteinn Pálsson, Hjörtur Guðmundsson, Slavko Velemir, Óli Albertsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Bergþór Gunnarsson og Björn Viðar Hannesson. Hægra megin við borðið, talið frá hægri: Einar Kristberg Einarsson, Valgarður Jökulsson (d.19.10.2021), Kristján Alexandersson ?, Sigurður Alexandersson, Þórarinn Grétarsson, Sigurbjörn Björgvinsson, óþekktur og Jens Jónsson. Við næst borð eru Gunnar Benónýsson til hægri með grátt hár og gleraugu. Við hlið hans eru Gunnar Jónsson en aðrir vinstra megin við borðið eru óþekktir. Yfir höfuð Gunnars Benónýssonar sér í Ernst Berndsen og við hlið hans eru Sigurjón Ingólfsson og Guðjón Árnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn468
Bekkjarkvöld í Skiðaskálanum 1. maí 1997 með nemendum Höfðaskóla fæddum 1988 og foreldrum þeirra. Á myndinni er í gangi keppni í að byggja úr Lego kubbum. Til vinstri á gólfinu eru Þorbjörg Magnúsdóttir og Aðalheiður Guðmundsdóttir en hægra megin eru Víðir Ólafsson og Ásthildur Guðmundsdóttir. Við borðið til vinstri situr Gylfi Guðjónsson undir syni sínum Ívari Gylfasyni. Konan með rauða trefilinn er Guðbjörg Kristinsdóttir og hjá henni situr dóttir hennar Rebekka Þórarinsdóttir. Undir landakortinu á veggnum sitja Sindri Jóelsson til vinstri og Sigurgeir Snævar Árnason til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 211
Sveinn S. Ingólfsson, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, flytur ræðu á einhverjum fundi á Hótel Dagsbrún. Með honum á myndinni er Denis Lumbard fiskkaupmaður frá Bretlandi til hægri og óþekktur maður til vinstri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn424
Myndin var tekin í Fellsborg 24. febrúar 2006 af árshátíðaratriði 7-8 ára barna Höfðaskóla. Frá vinstri: Friðmar Kári Eiríksson, Eymundur Lórens Grétarsson, tveir óþekktir, Egill Örn Ingibergsson, Guðrún Hjaltey Hallgrímsdóttir, Birta Dögg Bessadóttir, María Jóna Jónasdóttir og þrjú óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1189
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg líklega árið 2016. Á henni dansa kennarar og starfsfólk skólans við undirleik skólahljómsveitar. Hljómsveitina skipuðu Ólafur Halldórsson á bassa, Snæfríður Guðmundsdóttir söng og Laufey Lind Ingibergsdóttir á gítar og söng. Aftan við hljómsveitina má þekkja Finnboga Guðmundsson, Helgu Gunnarsdóttur, í bláum kjól, og Ingu Jónu Sveinsdóttur með appelsínugula hárkollu.
Ólafur Bernódusson 1019
Myndin var tekin vorið 1998 í Hólaneskirkju þegar Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012), prestsekkja eftir séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.1.6.1996), afhenti séra Guðmundi Karli Brynjarssyni, þáverandi sóknarpresti, nýjan hökul.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 060
Myndin var tekin 1986 eða´87 af vinum sem leigðu saman íbúð í Rauðagerði í Reykjavík. Unga fólkið á myndinni er, frá vinstri: Anna Elínborg Gunnarsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Karl Berndsen (d.28.1.2020).
Þórunn Bernódusdóttir - safn 041
Karlmennirnir á myndinni eru fermingarbræður en konan er óþekkt. Mennirnir eru að skála í fermingarafmæli sínu, líklega 30 ára. þeir eru, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Ómar Jakobsson, Gísli Kristjánsson og Guðmundur Guðmundsson. Baksvipurinn er líklega af Erni Berg Guðmundssyni. Guðmundur J. Björnsson, sem er einn af fermingarbræðrunum, tók myndina.
Óþekktur ljósmyndari513
Sambýlisfólk á Brandaskarði, Vilhjálmur Benediktsson (d.21.10.1955) og Jensína Hallgrímsdóttir (d.6.2.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1490
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Börnin á myndinni eru að syngja fyrir gesti.
Ingibergur Guðmundsson 366
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Ólafur Bernódusson og Vilborg Magnúsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari549
Hjónin á Syðra-Kálfshamri, Guðmundína MARGRÉT Guðmundsdóttir (d.11.10.1971) og Eðvald Júlíusson (d. 21.1.1937). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1035
Myndin var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1997. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) er aftan við altarið en fermingarbörnin eru, frá vinstri: María Guðrún Guðmundsdóttir, Heiða Brglind Fannarsdóttir, Hákon Unnar Þórarinsson og Rebekka Laufey Ólafsdóttir. Börnin tvö eru óþekkt.
Höfðaskóli - safn400
Þessi bekkjarsystkin eru fædd 1970 og 1971. Þau eru: aftast frá vinstri: Davíð Reynisson, Jóhann Ásgeirsson og Óli Hjörvar Kristmundsson. Næst aftast frá vinstri: Rafn Ingi Rafnsson, Jón Önfjörð Arnarsson og Eiríkur Gunnar Lýðsson. Í næst fremstu röð frá vinstri: Jóney Hrönn Gylfadóttir, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, Herdís Þórunn Jakobsdóttir og Rakel Jakobína Jónsdóttir. Fremst frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir og Katrín Bryndís Sigurjónsdóttir. Myndin var tekin einhverntíma á árunum kringum 1985.
Höfðaskóli - safn459
Lögreglan skoðar reiðhjól nemenda við Höfðaskóla einhverntíma kringum 2000.
Ólafur Bernódusson1043
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni sýnir Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) slökkvistjóri nemendum réttu handtökin við að slökkva eld með slökkvitæki eins og til eru á flestum heimilum - og í skólanum.
Höfðaskóli - safn503
Annar bekkur veturinn 2000 - 2001 á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu. Á myndinni eru, frá vinstri: Sonja Sif Ólafsdóttir, Ólína Selma þórarinsdóttir, óþekkt, Kristbjörg Dúfa Ragnheiðardóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Andrea Kristjánsdóttir, óþekkt, Guðjón Örn Kristjánsson, Brynjar Max Ólafsson, Alex Már Gunnarsson, Halla Björk Víðisdóttir og Fanney Svavarsdóttir kennari. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðmundsdóttir 030
Vorið 1991 fór hópur eldri borgara í heimsókn til jafnaldra sinna á Blönduósi til að hlýða á ferðakynningu Sigurðar Guðmundssonar. Þá var þessi mynd tekin, frá vinstri: Sigríður Guðlaugsdóttir (d.25.3.1996) frá Bjarmalandi á Skagaströnd, Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) frá Lundi á Skagaströnd og Kristófer Guðmundur Árnason (d.10.5.2000) frá Sunnuhvoli á Skagaströnd en seinna á Blönduósi.
Guðrún Guðmundsdóttir 7
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd er Sófus Guðmundsson (d.2.8.1991) Skrapatungu með nokkrum ferðafélögum sínum.
Höfðaskóli - safn551
Nemendur Höfðaskóla bíða eftir komu forsetans Ólafs Ragnars Grímssonar í heimsókn í skólann í október 2002. Nemendurnir eru, frá vinstri: Ásþór Óðinn Egilsson, óþekktur, Almar Freyr Fannarsson, óþekktur, Oddur Valdimarsson (fjær), Sólrún Ágústa Magnadóttir (nær), Sara Rut Fannarsdóttir, Ómar Ingi Ómarsson og tevir óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 413
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla í maí 1987. Fólkið á henni er, frá vinstri: kennararnir Ólafur Bernódusson, Heiða Ósk Stefánsdóttir og Guðrún Kristjánsdóttir. Lengst til hægri er Páll Leó Jónsson skólastjóri.
Ólafur Bernódusson1048
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin hafa stillt sér upp við hlið prinsins og prinsessunnar, sem sitja á borðinu. þau eru Hanna María Gylfadóttir og Sævar Hlynur Tryggvason. Vinstra megin við þau standa Elna Ragnarsdóttir og Hafrún Eva Kristjánsdóttir. Hægra megin standa Guðjón Örn Arason og Patrik Snær Bjarnason næst borðinu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari651
Hjónin í Réttarholti, Anna Sigríður Sölvadóttir (d.19.10.1965) og Páll Pétursson (d.22.10.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 062
Þessar fimm vinkonur hittust heima hjá einni þeirra í janúar 1992. Konurnar búa hingað og þangað á landinu þannig að þær hittast sjaldan allar í einu. Konurnar eru frá vinstri: Halla Björg Bernódusdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Guðrún Þórbjarnardóttir og Kristín Lúðvíksdóttir.
Óskar Kristinsson safn122
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 þegar vélstjórinn, Björgvin Karlsson, er að rafsjóða í hlera. Ekki er vitað hvenær en myndina tók Vilhelm Þórarinsson. Maðurinn í rauðu peysunni er skipstjórinn, Guðjón Ebbi Sigtyggsson (d.16.7.2017). Brosmildi maðurinn með vettlingana í höndunum er Ásgeir Blöndal og Baksvipur Einars Guðmundssonar í brúnum jakka. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1513
Krakkar úr vinnuskólanum leika sér í vatnsrennibraut sem útbúin var fyrir þau í brekkunni við íþróttavöllinn. Krakkarnir eru, frá vinstri: Sylvía Hrólfsdóttir, óþekktur, Tanja Rán Einarsdóttir, Þorgerður Guðmundsdóttir, tvær óþekktar, Líney Þorláksdóttir, Linda Rós Hentze Ómarsdóttir, Anna Dís Ragnarsdóttir og Aldís Birta Árnadóttir. Fólkið uppi á kantinum er óþekkt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari621
Myndin var tekin utan við Lund við Strandgötu. Á henni er sambýlisfólkið Ole Omundsen (d. 19.10.1975) og Margrét Jóhannesdóttir (d.25.1.1976) lengst til vinstri. Fyrir miðri mynd situr óþekkt systir Ole en lengst til hægri er Björg Berndsen (d.15.12.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1112
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni spreyta nemendur sig á að ganga á línu með aðra línu sér til stuðnings. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn396
Þetta fólk var við kennslu í Höfðaskóla kringum 1965 þegar þessi mynd var tekin. Fólkið er frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Sveinn Sævar Ingólfsson, Páll Jónsson (d.19.7.1979) skólastjóri, Jón Sveinn Pálsson, Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Eiríkur Kristinsson (d.4.10.1994). Myndina tók Þórður Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1523
Myndin var tekin í sundlaugarpartýi í sundlauginni á Skagaströnd. Krakkarnir á henni eru í froðubaði í heita pottinum og setja ekki fyrir sig að hafa lítið pláss hvert fyrir sig. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 536
Myndin var tekin á gróðursetningardegi Höfðaskóla í hlíðum Spákonufells, líklega kringum 1994. Konan á myndinni er Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari en maðurinn er Ágúst Bragason. Barnið á myndinni er óþekkt.
Höfðaskóli - safn482
Myndin var tekin á toppi Spákonfells - á Borgarhausnum - við vörðuna sem þar er og geymir gestabókina. Hún var líklega tekin kringum 2000 og á henni eru nemendur eldri bekkja Höfðaskóla það ár á útivistardegi að vori. Með hópnum eru tveir kennarar; Ólafur Bernódusson og Lárus Ægir Guðmundsson. Getur þú fundið þá á myndinni ?
Jónas 62
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Árni Björn Ingvarsson (baksvipur) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Jónas 30
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Rúnar Loftsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Magnús B. Jónsson.
Óþekktur ljósmyndari537
Sambýlisfólkið í Króki, Sigurður Gíslason (d.25.7.1921) og Valgerður Sigurðardóttir (d.13.10.1959). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 386
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Næst okkur á myndinni til vinstri er fyrst óþekktur maður en svo kemur Þröstur Guðbjartsson (d.17.7.2021) sem var leikstjóri sýningarinnar. Þröstur setti upp fleiri sýningar með Leikklúbbnum og var einkar skapandi listamaður. Aðrir á myndinni voru leikarar og starfsmenn við sýninguna.
Höfðaskóli - safn605
Líklega er verið að mála andlit nemendanna vegna flippíþróttadags Höfðaskóla. Myndin var tekin einhverntíma kringum 2002. Á henni eru, frá vinstri: tvö óþekkt, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir (fjær) og óþekkt (nær).
1
…
66
67
68
…
79
Leita í myndasafninu
Leita