Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson1248
Æskuvinkonur gera sér glaðan dag með veisluföngum 20. júlí 1994. Tilefnið er óþekkt. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna) og Elísabet Eik Guðmundsdóttir.
Höfðaskóli - safn396
Þetta fólk var við kennslu í Höfðaskóla kringum 1965 þegar þessi mynd var tekin. Fólkið er frá vinstri: María Magnúsdóttir (d.2.2.2016), Sveinn Sævar Ingólfsson, Páll Jónsson (d.19.7.1979) skólastjóri, Jón Sveinn Pálsson, Elínborg Margrét Jónsdóttir (d.7.1.2007) og Eiríkur Kristinsson (d.4.10.1994). Myndina tók Þórður Jónsson.
Óskar Kristinsson safn093
Myndin var tekin 1995 eða 1996 í brúnni á Helgu Björgu Hu 7 sem var rækjufrystitogari sem Skagstrendingur hf átti 1995 - 2000. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) biður fyrir og blessar skipið og áhöfn þess. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Jón Indriðason, Jens Jónsson, séra Egill, Jóhannes Simonsen, Gylfi Guðjónsson, Hjörtur Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og Gestur Arnarson.
Ólafur Bernódusson1092
Myndin var tekin á Hrafndal í júlí 1996 þegar þar stóðu yfir framkvæmdir við vatnsveitu Skagastrandar. Á henni eru menn að dæla vatni upp úr einni af borholunum sem þar voru boraðar áður en gengið er frá henni til frambúðar. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Einar Karlsson, Gunnar Hafdal ? og Sigurjón Ástmarsson.
Óskar Kristinsson - safn 231
Óvenju stórt hal komið inn á dekkið á Örvari Hu 21. Annað sem er óvenjuleg á myndinni er hve stutt er yfir í Hoffellið SU 80. Ekki er vitað hvers vegna svo er og ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1522
Myndin var tekin í sundlaugarpartýi í sundlauginni á Skagaströnd. Þrjár stúlknanna eru óþekktar en lengst til vinstri er Eva Björgvinsdóttir og Rakel Jensína Jónsdóttir er fyrir miðri mynd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 596
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er einhver hátíð í gangi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg. Nemendurnir á henni eru, frá hægri: Guðjón Hall Sigurbjörnsson, Birna Ágústsdóttir, Þóra Lísebet Gestsdóttir, Ásdís Lýðsdóttir, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir og fjórir óþekktir nemendur. Birkir Rafn Gíslason spilar á gítarinn lengst til vinstri.
Guðrún Guðmundsdóttir 025
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd er Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) Sviðningi að draga út vinning í happdætti á hátíðakvöldverði hjá Kristine E. Jóhannsdóttur Húnfjörð.
Jónas 19
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Guðmundur Haukur Sigurðsson og Elín Njálsdóttir.
2001022
Á myndinni eru kennarar við Höfðaskóla árið 1960. Í aftari röð er Kristinn Pálsson til vinstri og Ingólfur Ármannsson til hægri. Sitjandi eru, frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson, Elínborg M. Jónsdóttir og Páll Jónsson skólastjóri.
Guðrún Guðmundsdóttir 037
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi skoðaðir. Á myndinni er Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri frá Skagaströnd að afhenda þeim Ólafi Pálssyni (d. 26.3.2002) frá Björgum til vinstri og Guðbjarti Guðjónssyni (d.23.9.1992) frá Vík á Skagaströnd happadrættisvinninga á hátíðakvöldverðinum. Vinningarnir voru derhúfur með konubrjósti ofan á derinu. Vakti það mikla kátínu þegar karlarnir skemmtu með því að prófa að sjúga brjóstin á húfunum sínum.
Óskar Kristinsson safn 146
Myndina tók Ómar Jakobsson um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1 (Japans Arnari) en ekki er vitað hvenær. Hárprúðu mennirnir til vinstri og hægri eru óþekktir en á milli þeirra er Sigurður Sigurðsson (Mansi).
Ólafur Bernódusson1122
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd er einn hópur að sýna sitt atriði. Bryndís Guðjónsdóttir er í balanum á gólfinu en yfir henni standa Ingólfur Sveinsson og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir. Í horninu sitja Dagný Marín Sigmarsdóttir vinstra megin og Hallbjörg Jónsdóttir til hægri. Áhorfendur á myndinni eru frá vinstri: Guðrún Pálsdóttir, Kristín Jónsdóttir, Ástmar Kári Ástmarsson og Kristján Blöndal.
Óskar Kristinsson safn 029
Starfsmenn Skagstrendings hf á einhverju ferðalagi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni eru frá vinstri: Guðjón Guðjónsson, Magnús Blöndal (d.7.9.2001), Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Vilhelm Jónsson, Ómar Jakobsson og óþekktur.
Guðrún Guðmundsdóttir 072
Myndin var tekin í Fellsborg þegar eldri borgarar á Skagaströnd tóku á móti gestum af Vestfjörðum einhverntíma á árunum 1989 - 1991. Marska hf gaf matinn sem boðið var upp á af framleiðsluvörum sínum. Konurnar með svunturnar sáu um matinn enda voru þær starfsstúlkur hjá Marska. Þær eru, frá vinstri: Kristín Sigurðardóttir, Eygló Gunnarsdóttir og Sylvía Hrólfsdóttir. Konurnar sitt hvoru megin við þær eru óþekktar en það er Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, umsjónarmaður félagsstarfs aldraðra á Skagaströnd, sem heldur á dóttur sinni Elínborgu Árnadóttur og við hlið hennar er sonur hennar, Þröstur Árnason. Lengst til hægri er sonur Sylvíu, Brynjar Pétursson.
Ingibergur Guðmundsson 381
Árið 1988 fóru fimm nemendur Höfðaskóla í heimsókn til vinabæjar Skagastrandar, Aabenraa, í Danmörku á einhvers konar friðarráðstefnu ásamt kennara sínum, Ingibergi Guðmundssyni. Á myndinni eru systurnar Svava Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Inga Lára Sigurðardóttir til hægri í hringekju að bíða eftir að hún fari af stað.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1472
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líkleg var það kringum 2002 á diskóteki á vegum Höfðaskóla í Fellsborg. Krakkarnir eru frá vinstri: Ellen Lind Sigurjónsdóttir, Telma Dögg Bjarnadóttir, Eva Dís Gunnarsdóttir og Stefán Velemir.
Skagaströnd - safn202
Í kringum aldamótin var mikill áhugi á línudansi (Kántrýdansi) á Skagaströnd. Hópur fólks hittist vikulega til æfa nýustu sporin og fóru síðan og kepptu í línudansi á landsvísu. Danshópurinn á myndinni - "Hófarnir" - lönduðu Íslandsmeistaratitli í línudansi árið 2001. Fólkið í efri röð á myndinni er, frá vinstri: Kristín Blöndal, Eygló Gunnarsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Kristjana Jóhannsdóttir og Drífa Kristjánsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Ása Ásgeirsdóttir, Sæmundur Gunnarsson og Linda Ævarsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari558
Hjónin í Ásbergi, Fritz Hendrik Magnússon (d. 19.10.1965) og Karla Ingibjörg Helgadóttir (d. 23.9.1986) . Ásberg stóð á lóðinni sunnan við Breiðablik á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Fisk Seafood - safn 275
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni er stjórn Skagstrendings hf og framkvæmdastjóri. Í aftri röð eru, frá vinstri: Þórður Magnússon, Egill Tryggvason, Gunnar Felixsson og Magnús B. Jónsson. Í fremri röð er Adolf H. Berndsen til vinstri og Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri félagsins til hægri.
Guðrún Guðmundsdóttir 056
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd í mars 1987. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) á Bergi, Sigríður Fanney Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) á Lækjarbakka og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) í Lundi.
Ólafur Bernódusson1169
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja frumsamið skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Rebekka Heiða Róbertsdóttir, Margrét Sigurðardóttir, Lilja Dögg Hjaltadóttir, Harpa Hlín Ólafsdóttir og Georg Þór Kristjánsson.
Höfðaskóli - safn 638
Inga Matthíasdóttir íþróttakennari tók þessa mynd í Fellsborg 1985 af krökkum úr Höfðaskóla sem hún þjálfaði í fimleikum. Í aftari röð eru frá vinstri: Kristjana Jónsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Inga Lára Sigurðardóttir? og Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir. Fremri röð frá vinstri: Arna Guðrún Jónsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Anna Dröfn Guðjónsdóttir og Guðný Finnsdóttir
Höfðaskóli - safn540
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1991 að fá afhent vitnisburðarblöðin sín eftir veturinn. Myndin var líklega tekin kringum árið 2000. Nemendurnir eru, frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, óþekkt, Patrik Snær Bjarnason, óþekkt, Gunnar Már Sæmundsson, Eyþór Vilhjálmsson, Elna Ragnarsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Jóhann Örn Stefánsson og Kristján Heiðmar Kristjánsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir136
Guðberg Stefánsson (d.15.9.1991) og Guðrún Guðbjörnsdóttir spjalla í fannfergi á Fellsbrautinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óþekktur ljósmyndari667
Fjölskyldan í Viðvík. Sitjandi eru hjónin, Gísli Einarsson (d.27.10.1969) og Guðný Þorvaldsdóttir (d.5.10.1953). Milli þeirra stendur sonur þeirra, Snorri Gíslason (d. 29.5.1994). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1496
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Börnin eru að fylgjast með einhverju skemmtiatriði.
Óþekktur ljósmyndari565
Hjónin í Baldursheimi, Pálmi Sigurðsson (d.21.4.1992) og Hólmfríður Hjartarson (d.15.12.1991). Þau hjón bjuggu síðar lengi í Pálmalundi (Hólabraut 27). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 252
Systurnar Rakel Petrea Finnsdóttir til vinstri og Guðný Kristín Finnsdóttir til hægri með föðrubróður sínum, Óskari Kristinssyni, í garðveislu við Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Óskar Kristinsson safn126
Mynd tekin um borð í ísfisktogaranum Arnari Hu 1. Á henni er gott karfahal á dekkinu en karlarnir eru að skera upp hákarl til að hleypa lifrinni og öðrum innyflum aftur í sjóinn. Fiskurinn sjálfur er síðan geymdur út í síðunni stjórnborðsmegin þ.e. vinstra megin á myndinni, þar sem einn er kominn í geymslu. Áður var þessu öfugt farið þegar lifrin var ákaflega verðmæt en oftar en ekki var fiskunum sjálfum hent í sjóinn aftur. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og karlarnir á henni eru óþekktir. Ljósmyndarinn var Vilhelm Þórarinsson.
Óþekktur ljósmyndari616
Hjónin í Höfðahólum, Guðmundur Rafnsson (d.23.9.1968) og Sigurbjörg Sveinsdóttir (d.15.2.1959). Þau voru leigjendur í Höfðahólum og eignuðust fimm börn saman áður en þau skildu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari621
Myndin var tekin utan við Lund við Strandgötu. Á henni er sambýlisfólkið Ole Omundsen (d. 19.10.1975) og Margrét Jóhannesdóttir (d.25.1.1976) lengst til vinstri. Fyrir miðri mynd situr óþekkt systir Ole en lengst til hægri er Björg Berndsen (d.15.12.1963). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1112
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni spreyta nemendur sig á að ganga á línu með aðra línu sér til stuðnings. Krakkarnir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn191
Myndin var tekin eftir viðskiptafund 25. febrúar 1992 á Nýja Sjálandi. Lengst til hægri er Ingólfur Sveinsson og næstur honum er Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf. Hinir mennirnir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn443
Myndin var tekin 13. maí 2000 af heldri borgurum á ferðalagi. Á myndinni er slakað á á einhverjum óþekktum áningarstað. Fólkið á myndinni er frá vinstri: Hrefna Hákonardóttir? (d.14.12.2004), Hallur Hilmarsson bílstjóri hópsins, Indriði Hjaltason (d.2.4.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir? (d.13.7.2003).
Þórunn Bernódusdóttir - safn 058
Þrjár dætur Guðmundar J. Björnssonar og Þórunnar Bernódusdóttur stilla sér upp til myndatöku heima í stofu. Myndin var tekin 1990. Systurnar eru, frá vinstri: Kristbjörg Una Guðmundsdóttir 3ja ára, Auður Eva Guðmundsdóttir 10 ára og Elísabet Eik Guðmundsdóttir 14 ára.
Höfðaskóli - safn511
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af nemendum Höfðaskóla fæddum 1974. Á henni eru þau í skólaferðalgi. Nemendurnir eru, frá vinstri: óþekktur, Atli Þórsson (fjær), Gunnar Halldór Hallbjörnsson (nær), Reynir Lýðsson, Jóhanna Karlsdóttir, Bryndís Gunnarsdóttir (fjær), Jón Heiðar Jónsson (nær), Baldur Magnússon (fjær), Björn Sigurðsson (nær), Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir (fjær), Guðný Kristín Finnsdóttir (nær), óþekkt, Svava Magnúsdóttir, Aðalheiður Steindórsdóttir, Friðrik Gunnlaugsson og Ása Ósk Ásgeirsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1491
Jósef Valur Þorláksson kyssir langömmu sína, Ragnheiði Birnu Hafsteinsdóttur (Bibbu) (d.26.8.2008), fyrir utan Spákonufellsrétt. Mamma Jósefs, Rakel Tryggvadóttir, fylgist með. Myndin var líklega tekin 2006 eða 2007.
Ólafur Bernódusson1185
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2016 eða 2017. Á henni er einn bekkur skólans með skemmtiatriðið sitt á sviðinu. Krakkarnir eru, frá vinstri: Bylgja Hrund Ágústsdóttir, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, tvær óþekktar stúlkur, Ólafur Halldórsson, Hekla Guðrún Þrastardóttir, Arna Rún Arnarsdóttir og Magnús Sólberg Baldursson. Sitjandi við borðið er svo Ingólfur Eðvald Björnsson.
Ingibergur Guðmundsson 428
Einbeittir í vinnuviku í Höfðaskóla í febrúar 1987, Baldur Magnússon til vinstri og Gunnar Halldór Hallbjörnsson til hægri.
Höfðaskóli - safn501
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu. Á myndinni er þáverandi 5. bekkur þannig að myndin var tekin árið 2000 eða 2001. Á myndinni eru, frá vinstri: Brynja Hödd Ágústsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, Ragnar Björnsson, Ómar Ísak Hjartarson, Alma Eik Sævarsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir, Ástrós Villa Vihelmsdóttir, Lena Rut Jónsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta nemandann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ljósmyndakeppni 2022 15
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók Svanur Sigurbjörnsson og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Höfðaskóli - safn438
Bekkjarfélagar úr Höfðaskóla fædd 1989 gera sér glaðan dag í Kántrýbæ 19. maí 2000. Krakkarnir eru, frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson, Sigþór Ottó Hallgrímsson, Maríanna Ástmarsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson, Arnrún Bára Finnsdóttir, Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006) og Ívar Kristberg Einarsson.
Óskar Kristinsson safn 043
Starfsmenn Skagstrendings hf saman úti að skemmta sér. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Maðurinn til vinstri er Birgir Þórbjarnarson en sá til hægri er óþekktur. Konan við borðið er Sigþrúður Magnúsdóttir og konan sem stendur í baksýn er Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn409
Myndin sýnir Svein S. Ingólfsson, Ragnheiði Söndru Ómarsdóttur og Kolbrúnu ?? klædd á japanska vísu í heimsókn í Höfðaskóla. Myndin var líklega tekin kringum 1990. Ef þú veist hvers dóttir Kolbrún er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 379
Árið 1988 fóru fimm nemendur Höfðaskóla í heimsókn til vinabæjar Skagastrandar, Aabenraa, í Danmörku á einhvers konar friðarráðstefnu ásamt kennara sínum, Ingibergi Guðmundssyni. Á myndinni er hópurinn að slappa af og horfa á sjónvarpið. Á gólfinu framan við rúmið er Inga Lára Sigurðardóttir en uppi í því eru, frá vinstri: Hólmfríður Oddsdóttir, Svava Guðrún Sigurðardóttir, Halldór Gunnar Ólafsson og Stefán Sveinsson.
Höfðaskóli - safn562
Krakkar úr Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Frá vinstri: Ester Ösp Víðisdóttir, Sindri Jóelsson og Valgerður Guðmundsdóttir skoða hvað þeim hefur tekist að festa á filmu það sem af er degi.
Óþekktur ljósmyndari564
Hjónin í Ásholti, Baldvin Magnús Jóhannesson (d.1.1.1981) og Línbjörg Árnadóttir (d.16.10.1966). Magnús var lausamaður í Ásholti. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn537
Nemendur Höfðaskóla fæddir 1989 bíða eftir vitnisburðarblöðunum sínum á sviðinu í Fellsborg einhverntíma kringum árið 2000. Guðrún Soffía Pétursdóttir kennari er lengst til vinstri með blöðin í höndunum og næstur henni er Ingibergur Guðmundsson skólastjóri. Nemendurnir eru, frá vinstri: Maríanna Ástmarsdóttir, Ívar Kristberg Einarsson, Guðmundur Ingi Ólafsson (d.18.11.2006), Ásþór Óðinn Egilsson, Arnrún Bára Finnsdóttir og Almar Freyr Fannarsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 087
Myndin var tekin 18. apríl 1991 af hópi eldri borgara frá Skagaströnd þegar þeir voru í heimsókn á Hvammstanga. Fólkið er, frá vinstri: Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011), Elínborg Árnadóttir, Ingvar Jónsson (d.18.1.2003), Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002), Guðný Finnsdóttir, Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011), Anna Halldórsdóttir Aspar (d.1.9.1999) og Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012).
Ólafur Bernódusson1133
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á henni er reykkafari úr slökkviliðinu að sýna nemendahópi hvernig slíkir líta út til að koma í veg fyrir hræðslu ef til alvöru kæmi síðar. Börnin á myndinni eru: talið frá vinstri: í efstu röð: Fjóla Dögg Björnsdóttir, Íris Ósk Jóhannesdóttir og Þórunn Bernódusdóttir kennari. Röð tvö frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir?, óþekkt, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir og Ívar Gylfason. Þriðja röð, frá vinstri: Sindri Jóelsson, Óðinn Örn Sævarsson, Guðmundur Björn Sigurgeirsson?, Ester Ösp Víðisdóttir og Eydís Ósk Einarsdóttir. Fremsta röð frá vinstri: Kristján Pétur Guðjónsson, Jón Atli Magnússon og Sigurgeir Snævar Árnason.
2001119
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Þorvaldur Skaftason vinstra megin og Guðmundur Haukur Sigurðsson til hægri.
Höfðaskóli - safn627
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er Heiða ?? kennari að fara yfir verkefni dagsins með Ragnheiði Ástu Rúnarsdóttur vinstra megin og Ingu Láru Sigurðardóttur hægra megin.
Höfðaskóli - safn590
Krakkarnir á myndinni eru að leita sér að bókum í bókakössunum sem voru fyrsti vísirinn að bókasafni Höfðaskóla. Krakkarnir eru, frá vinstri: Guðný Kristín Finnsdóttir, Jóhanna Karlsdóttir og Óskar Óaskarsson. Strákurinn í forgrunninum er líklega Halldór Gunnar Ólafsson. Myndin var tekin kringum 1990.
Höfðaskóli - safn617
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er mikið um að vera í smíðastofunni. Rúnar Loftsson leiðbeinandi er í dökkri skyrtu fyrir miðri mynd og hjá honum stendur Eiríkur Lýðsson. Næstur okkur á myndinni er Þröstur Árnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 094
Myndin var tekin í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp á öldrunarmóti 16. - 20. ágúst 1988. Á mótið mætti hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu. Á myndinni skála Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri hópsins og Friðrik Indriðason (d.20.11.1993) fyrir góðum degi. Hægra megin við þau sér í Guðbjart Guðjónsson (d.23.9.1992) og Önnu H. Aspar (d.1.9.1999). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1060
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er Þórunn Bernódusdóttir að stjórna einhverjum leik á túninu. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Súsanna Þórhallsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, óþekktur Þórðarson?, þrír óþekktir, Hákon Unnar þórarinsson, Þórunn, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Sóley Elsa Magnúsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 419
Myndin var tekin í Fellsborg 1987 eftir sveitakeppni í bridge á vegum Bridgeklúbbs Skagastrandar. Á henni er verðlaunasveit en hana skipuðu, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson, Vilhelm Jónsson og Sveinn Ingólfsson.
Gréta 013
Á myndinni eru menn líklega að vinna við nýbyggingu á Bogabraut 5. Mennirnir eru talið niður stigann: Sigmar Hróbjartsson (d. 5.11.2014), sonur hans Gunnlaugur Sigmarsson, Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017). Myndin var tekin einhverntíma á fyrri hluta sjöunda áratugarins.
Ingibergur Guðmundsson 395
Þessir vösku íþróttadrengir úr Höfðaskóla tóku þátt í skólamóti á Húnvöllum, þar sem þessi mynd var tekin, veturinn 1987. Frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, Reynir Lýðsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Óskar Ingi Þórsson (d.5.4.2007).
1
…
67
68
69
…
79
Leita í myndasafninu
Leita