Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Guðbjörnsdóttir168
Myndin var tekin 19. júlí 1996 þegar fólk frá Skagaströnd fór á nokkrum jeppum úr Miðfirði yfir Arnarvatnsheiðina og suður í Húsafell. Á myndinni er fólkið að borða nestið sitt í blíðunni. Frá vinstri: Baldvin Hjaltason, Ólafur Bernódusson, Guðrún Pálsdóttir, Sigríður Ólafsdóttir, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) og Vilhjálmur Skaftason.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1518
Ekki er ljóst hvort krakkarnir á myndinni eru að skoða sjálf sig í speglun sjávarins eða hvort þau eru að fylgjast með lífríknu í sjónum. Börnin eru óþekkt en báturinn gekk undir nafninu Litli- Kópur.
Óskar Kristinsson safn124
Starfsmenn Skagstrendings hf og makar í rútu á leið í menningarferð til Reykjavíkur. Vinstra megin eru Þorbjörg Magnúsdóttir að syngja og aftan við hana er Hjörtur Guðbjartsson að spila á gítar. Hægra megin er Guðjón Pálsson (d.14.12.1989) fremst, Björgvin Karlsson og Bóel Hallgrímsdóttir aftan við hann og aftar eru hjónin Gunnar Jón Jónsson og María Alexandersdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en hana tók Vilhelm Þórarinsson.
Höfðaskóli - safn483
Þessi mynd var líklega tekin kringum 1998 af nemendum í Höfðaskóla sem höfðu búið sér til flottar kórónur í tilefni af flippíþróttadegi í skólanum. Krakkarnir eru, frá vinstri: Lena Rut Jónsdóttir, Katrín Guðmundsdóttir, ?Ágústa Lóa Jóelsdóttir?, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir, Brynja Hödd Ágústsdóttir, Helga Dögg Jónsdóttir, óþekktur Óskarsson, Sunna Gylfadóttir, Arís Eva Vilhelmsdóttir, Ragnar Már Björnsson, Ómar Ísak Hjartarson og Steinar Ólafsson
Höfðaskóli - safn578
Bekkjarmynd af 9. bekkjar nemendum Höfðaskóla fæddum 1955 og var myndin því líklega tekin 1961. Kennarinn Eiríkur Kristinsson (d.4.10.1994) var kennari við skólann 1961 - 1972. Nemendurnir eru, frá vinstri: Gylfi Guðjónsson, óþekkt stúlka, Anna Kristín Guðmannsdóttir, Eygló Kristín Gunnarsdóttir og Jón Grímkell Pálsson (d. 11. 2.2012). Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn617
Í október/nóvember 1985 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla. Venjulegt skólahald fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Á myndinni er mikið um að vera í smíðastofunni. Rúnar Loftsson leiðbeinandi er í dökkri skyrtu fyrir miðri mynd og hjá honum stendur Eiríkur Lýðsson. Næstur okkur á myndinni er Þröstur Árnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari562
Hjónin í Ásgarði, Árni Hallgrímsson (d.4.5.1954) og Halla Guðlaugsdóttir (d.6.6.1924). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1064
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er leikur í gangi á túninu. Á myndinni eru, frá vinstri: þrjú óþekkt, Helga Ólína Aradóttir og Elín Rafnsdóttir. Unnur Kristjánsdóttir er í síðri ljósri kápu og Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) er með ljósa skuplu um höfuðið en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn397
Ekki er vitað hvaða tilefni var til þessarar myndatöku en á myndinni eru nokkrir skátar og einn kennari. Frá vinstri: óþekkt, Hrafnhildur Jóhannsdóttir (Abbý), Jónatan Jónsson (d.14.9.1990) kennari og skáld, Þórður Jónsson (d.25.12.2010) skátaforingi í Sigurfara á Skagaströnd, Bergur Jón sonur Þórðar og Þórir Ágústsson (d.24.9.2000). Myndin var tekin einhverntíma kringum 1965. Ef þú þekkir óþekktur stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1062
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er hópurinn að leika sér á túninu. Í baksýn má sjá íþróttahúsið í byggingu.
Höfðaskóli - safn590
Krakkarnir á myndinni eru að leita sér að bókum í bókakössunum sem voru fyrsti vísirinn að bókasafni Höfðaskóla. Krakkarnir eru, frá vinstri: Guðný Kristín Finnsdóttir, Jóhanna Karlsdóttir og Óskar Óaskarsson. Strákurinn í forgrunninum er líklega Halldór Gunnar Ólafsson. Myndin var tekin kringum 1990.
Gréta 013
Á myndinni eru menn líklega að vinna við nýbyggingu á Bogabraut 5. Mennirnir eru talið niður stigann: Sigmar Hróbjartsson (d. 5.11.2014), sonur hans Gunnlaugur Sigmarsson, Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017). Myndin var tekin einhverntíma á fyrri hluta sjöunda áratugarins.
Guðrún Guðmundsdóttir 094
Myndin var tekin í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp á öldrunarmóti 16. - 20. ágúst 1988. Á mótið mætti hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu. Á myndinni skála Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri hópsins og Friðrik Indriðason (d.20.11.1993) fyrir góðum degi. Hægra megin við þau sér í Guðbjart Guðjónsson (d.23.9.1992) og Önnu H. Aspar (d.1.9.1999). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1496
Myndin var tekin á afmælishátíð leikskólans Barnabóls þegar haldið var upp á 30 ára afmæli hans árið 2007. Börnin eru að fylgjast með einhverju skemmtiatriði.
Ingibergur Guðmundsson 459
Guðbjörg Gylfadóttir og Hjörtur Guðmundsson voru keppendur frá umf Fram á héraðsmóti USAH innanhúss um páska 1985 á Húnavöllum. Þá var þessi mynd tekin.
Óþekktur ljósmyndari511
Sambýlisfólkið á Blómsturvöllum í Kálfshamarsvík, Páll Benediktsson (d.6.12.1956) og Kristín Bjarnadóttir (d.30.9.1960). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 406
Þessir ungu menn sáu um að spila tónlist af plötum í vinnuviku í Höfðaskóla í desember 1987. Hátölurum var komið fyrir á göngunum þannig að allir gætu notið tónlistarinnar við vinnu sína hingað og þangað um skólann. Strákarnir eru Óskar Óskarsson til vinstri og Baldur Magnússon til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 444
Bridgeklúbbur Skagastrandar hélt upp á 20 ára afmæli sitt 1985 með innanfélagsmóti í Fellsborg. Á myndinni eru Súsanna Þórhallsdóttir og Haraldur Árnason að spila.
Höfðaskóli - safn477
Nemendur Höfðaskóla fóru í heimsókn í Blönduvirkjun 29. apríl 1997. Á þessari mynd er einn bekkur með kennara sínum. Í fremstu röð, frá vinstri: Unnur Kristjánsdóttir kennari, Íris Ósk Jóhannesdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og óþekktur. Miðröð, frá vinstri: óþekktur, Ester Ösp Víðisdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Ívar Gylfason, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Snævar Árnason og Kristján Pétur Guðjónsson. Aftast, frá vinstri: Rebekka Maren þórarinsdóttir, Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon, Óðinn Örn Sævarsson og Björgvin Matthías Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn493
Danssýning í Höfðaskóla 18. apríl 1996. Parið lengst til vinstri er óþekkt eins og konan þar. Ljóshærða stúlkan í köflótta pilsinu er Fjóla Dögg Björnsdóttir en dansherrann hennar er Kristján Pétur Guðjónsson. Lengra til hægri dansar Ásdís Adda Ólafsdóttir við ?Rebekku Maren Þórarinsdóttur?. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Kantryhátið 2000
Mynd frá Kántrýhátíð árið 2000. Hljóð og mynd í góðu lagi. Lengd myndarinnar er 53 mínútur en myndina tók Sigursteinn Guðmundsson læknir.
Óskar Kristinsson safn108
Starfsfólk frystihúss Hólaness hf á fundi í kaffistofunni 10. september 1992. Á fundinum var fólkinu tilkynnt að til stæði að ísfiskstogarinn Arnar Hu 1 mundi hætta að leggja upp afla í frystihúsið. Þetta voru alvarleg tíðindi fyrir starfsfólkið því uppistaðan í þeim afla sem unnin var í frystihúsinu kom frá Arnari. Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Anna Ásgeirsdóttir, Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Þorbjörg Ragna Þórðardóttir (d.15.2.2016), Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020), Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012), Bergljót Óskarsdóttir (d.22.2.2004), Inga Þorvaldsdóttir (d.14.12.2012).
Guðrún Guðbjörnsdóttir124
Myndin var tekin á hótel Dagsbrún þegar meðlimir kirkjukórs Hólaneskirkju gerðu sér glaðan dag með mökum sínum. Vinstra megin við borðið eru, talið inn eftir því: Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Dagný Hannesdóttir, tvær óþekktar konur og Guðrún Sigurðardóttir. Hildigunnur Jóhannsdóttir stendur í horninu til vinstri. Hægra megin við borðið eru: Sigmar Jóhannesson (d. 20.4.2000), Sigurbjörg Angantýsdóttir (d.10.9.1997), Sigurður Skagfjörð Bjarnason (d.16.5.2022) og Ása Jóhannsdóttir. Aftan við Ásu stendur Julian Hewlett stjórnandi kórsins 1989 - 1994. Myndin var tekin einhverntíma á því tímabili.
Ólafur Bernódusson1065
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd eru, frá vinstri: óþekktur, Skúli Már Matthíasson, Gunnlaugur Briem, Elvar Arinbjörn Grétarsson, fjögur óþekkt, Kristín Helga Ólafsdóttir, tveir óþekktir, Ragnheiður Erla Stefánsdóttir og Gunnar Helgason.
Höfðaskóli - safn560
Rósa Björg Blöndal Einarsdóttir, Hanna Rúna Gestsdóttir og Oddur Valdimarsson skoða bátasýningu í Roskilde í Danmörku í skólaferðalagi á vegum Höfðaskóla einhverntíma á árunum 2000 - 2003.
Höfðaskóli - safn576
Myndin var líklega tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1970. Þriðji frá vinstri (með gleraugu) er Jósef Sigurðsson og næstur honum hægra megin er Ástmar Kári Ástmarsson. Jón S. Pálsson er kennarinn en vinstra megin við hann er sonur hans Páll Jónsson (d. 13.5.2021). Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson003
Í júní 1991 gaf Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d. 11.12.2006) á Lækjarbakka, Höfðahreppi, fánastöng sem reist var þar sem áður hafði verið æskuheimili hennar að Höfðahólum. Við sama tækifæri var afhjúpaður minningarskjöldur um Höfðahóla, sem á öldum áður var eigandi að stórum hluta þess lands sem Skagaströnd stendur á í dag. Á myndinni þakkar Magnús B. Jónsson sveitarstjóri Sigríði gjöfina. Fólkið er frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Jóhann Frímann Pétursson (d.13.1.1999) eiginmaður Sigríðar, Sveinn S. Ingólfsson oddviti höfðahrepps, Sigríður, óþekktur og Magnús.
Ólafur Bernódusson1039
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á þessari mynd eru krakkarnir komin út í snjómugguna hjá slökkvibílnum.
Guðrún Guðmundsdóttir 064
Hjónin Skafti Fanndal Jónasson (d.2.9.2006) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) í kaffisamsæti á hótel Dagsbrún 1987 eða 1988. Tilefnið var heimsókn eldri borgara frá Hvammstanga til jafnaldra sinna á Skagaströnd. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1215
Á myndinni er Guðjón Guðjónsson - Jonni - skipstjóri með tvo af sonum sínum við skipshlið, líklega á Arnari Hu 1. Guðjón Ebbi Guðjónsson er til vinstri og Kristján Pétur Guðjónsson hallar sér upp að pabba sínum. Myndin var líklega tekin 1993 eða 1994 en tilefni myndatökunnar er nú gleymt.
Óþekktur ljósmyndari674
Hjónin í Þórsmörk, Guðrún Oddný Guðjónsdóttir (d.22.4.1951) og Jóhannes Jóhannesson (d.17.7.1937). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari579
Hjónin í Brúarlandi, Guðmundur Ragnar Árni Magnússon (d. 14.1.2000) og Steinunn Áslaug Jónsdóttir (d.1.2.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 467
Myndin var tekin í maí 1985 þegar elstu nemendur Höfðaskóla voru að klára skólagöngu sína í þar. Á myndinni eru, frá vinstri: tvö óþekkt, María Hjaltadóttir, Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007), Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Hulda Magnúsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn 237
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Á henni fylgist Hjörtur Guðbjartsson með Óskari Kristinssyni sem er að leysa frá pokanum á trollinu. Maðurinn sem snýr baki í myndavélina er óþekktur.
Óskar Kristinsson safn111
Myndin var tekin 3. september 1992 þegar verið var að steypa grunnplötu fjölbýlishússins við Túnbraut 11 á vegum Skagstrendings hf. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Jónas Þorvaldsson, Björn Sigurðsson (nær), óþekktur (fjær), óþekktur, Baldur Haraldsson og tveir óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari560
Hjónin í Ásgarði, Björn Þorleifsson (d.26.5.1956) og Vilhelmína Andrésdóttir (d.24.8.1977). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 081
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra í Höfðaskóla veturinn 1987 - 1988. Konurnar á myndinni eru frá vinstri: Sigurlaug Jónsdóttir (d. 15.8.2011), Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991), Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994) og Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003).
Höfðaskóli - safn579
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla 1970. nemendurnir eru, frá vinstri: Ragnar Haukur Högnason, þrír óþekktir, Guðrún Ágústsdóttir, Magnús Bjarni Blöndal (d.7.9.2001) (fjær), Vala Ingvarsdóttir (nær), Gréta Ingvarsdóttir (fjær), Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) (nær), Jón Hallur Pétursson og óþekkt. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari554
Hjónin á Hofi (áður í Víkum), Hilmar Árnason (d.16.3.1988) og Sólveig Aðalheiður Magnúsdóttir (d.4.4.1996). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari576
Hjónin í Brimnesi, Björn Árnason (d.24.8.1938) og Guðrún Sigurðardóttir (d.9.1.1964). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 419
Myndin var tekin í Fellsborg 1987 eftir sveitakeppni í bridge á vegum Bridgeklúbbs Skagastrandar. Á henni er verðlaunasveit en hana skipuðu, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Kristinn Guðmundsson, Vilhelm Jónsson og Sveinn Ingólfsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir136
Guðberg Stefánsson (d.15.9.1991) og Guðrún Guðbjörnsdóttir spjalla í fannfergi á Fellsbrautinni. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn 252
Systurnar Rakel Petrea Finnsdóttir til vinstri og Guðný Kristín Finnsdóttir til hægri með föðrubróður sínum, Óskari Kristinssyni, í garðveislu við Hólabraut 4. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985.
Ólafur Bernódusson1060
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er Þórunn Bernódusdóttir að stjórna einhverjum leik á túninu. Aðrir á myndinni eru, frá vinstri: Súsanna Þórhallsdóttir, Jón Ingi Ragnarsson, óþekktur Þórðarson?, þrír óþekktir, Hákon Unnar þórarinsson, Þórunn, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Sóley Elsa Magnúsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu börnin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson safn 031
Starfsmenn Skagstrendings hf á einhverju ferðalagi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Vangasvipurinn er af Ómari Jakobssyni en maðurinn sem er að tala við hann er Birgir Þórbjarnarson.
Óþekktur ljósmyndari521
Hjónin frá Hofi, Páll Jónsson (d.19.7.1979) og Sigríður Guðnadóttir (d.4.3.1964). Bjuggu lengi í Breiðabliki á Skagaströnd en Páll starfaði sem skólastjóri við Höfðaskóla í áratugi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn445
Myndin var tekin 13. maí 2000 þegar heldri borgarar í A- Húnavatnssýslu voru að ferðast saman. Myndin var líklega tekin í Síldarminjasafninu á Siglufirði. Fólkið er, frá vinstri: Guðrún Angantýsdóttir, Jóhanna Jónasdóttir (d.7.8.2020) Kristján Sigurðsson (d.4.12.2019), Helga Guðmundsdóttir (d.?), Óþekkt, Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) og Elínborg M. Jónsdóttir (d.7.1.2007).
Þórunn Bernódusdóttir - safn 031
Þessa mynd tók Guðmundur J. Björnsson um borð í síðutogaranum Arnari Hu 1 vorið 1969. Sjómennirnir sem eru að slægja eru, frá vinstri: Árni Petersen ("Spritti"), óþekktur, Ómar Jakobsson og Magnús B. Jónsson.
Höfðaskóli - safn461
Myndin var tekin á dansleik í Höfðaskóla kringum 1995. Á henni eru, frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Stefán Agnar Gunnarsson, Anna María Magnúsdóttir, Þröstur Árnason, Kolbrún Freyja þórarinsdóttir og Bæring Jón Skarphéðinsson.
Jónas 37
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Birna Blöndal (d.26.10.2018), Magnús B. Jónsson og Elín Njálsdóttir.
Heilsugæslan vígð 22.9
Vígsla heilsugæslunnar 22. september 2006. Hljóði er ábótavant í myndinni sem er 34 mínútur að lengd. Myndina tók Sigursteinn Guðmundsson (d.20.4.2016) læknir.
Ingibergur Guðmundsson 384
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Sigríður Ásgeirsdóttir, Björk Sveinsdóttir og Bergþór Gunnarsson. Öll unnu þau að sýningunni á einn eða annan hátt.
Ólafur Bernódusson1068
Segja má að þessi mynd sýni upphaf tölvualdar í Höfðaskóla. Hún var tekin í janúar 1997 og á myndinni eru fulltrúar fyrirtækja sem gáfu tölvur í nýstofnað tölvuver skólans. Fram að því höfðu verið til tvær, þrjár "kennaratölvur" í skólanum. Á myndinni eru, frá vinstri: Sæmundur Gunnarsson frá versluninni Borg, Sverrir Brynjar Berndsen úr skólafélaginu Rán, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018) starfsmannafélagi Arnars, Guðjón Hall Sigurbjörnsson frá skólafélaginu Rán, Jökulrós Grímsdóttir frá ??, Vilhelm Björn Harðarson frá Sorphreinsun Vilhelms Harðarsonar, Gylfi Guðjónsson frá Skagstrendingi hf, Gunnlaugur Sigmarsson frá Landsbankanum, Helgi Gunnarsson frá Trésmiðju Helga Gunnarssonar, Vilhelm Þór Þórarinsson frá Marstál, Sigurbjörn Kári Lárusson frá Trésmiðju Kára Lár., Adolf H. Berndsen frá Marska og Lárus Ægir Guðmundsson frá Hólanesi hf.
Jónas 20
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Elín Njálsdóttir og Hallbjörn Hjartarson (d2.9.2022).
Ingibergur Guðmundsson 439
Vinahópur frá Skagaströnd fór í gönguferð um Hornstrandir um verslunarmannahelgina 1986. Á þessari mynd er hluti hópsins. þau eru, frá vinstri: Mette Loyche, Ingibergur Guðmundsson, Hjörtur Guðmundsson og Kristinn Guðmudsson.
Höfðaskóli - safn602
Myndin var tekin í íþróttahúsinu á flippíþróttadegi Höfðaskóla árið 2000 eða 2001. Á henni eru þáverandi 9. bekkingar með umsjónarkennara sínum. Frá vinstri: Hörður Aðils Vilhelmsson, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, Ragnar Ásmundur Einarsson, Eiður Bjarki Þórarinsson, Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal, Sonja Hjördís Berndsen, Halla Línbjörg Hallgrímsdóttir, Elva Þórisdóttir kennari og Pétur ??. Barnið á myndinni er líklega Harpa Hlín Ólafsdóttir sem er dóttir Elvu kennara.
Höfðaskóli - safn437
Myndin er frá grímulballi Höfðaskóla 5. mars 2006 í Fellsborg. Sá sem er númer 44 á myndinni er Egill Örn Ingibergsson en númer 49 er Birgitta Bjarnadóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir
Ólafur Bernódusson1219
Hópur fólks að "hlaupa í skarðið" á íþróttavellinum með börnunum sínum. Líklega var myndin tekin í maí 2005 eða 2006 eftir að krakkarnir höfðu lokið keppni í víðavangshlaupi umf Fram. Á myndinni er Katrín Sigurjónsdóttir í dökkri úlpu með rauða rönd á ermunum. Hún heldur í hönd Ingibergs Guðmundssonar sem leiðir líka Guðbrand Magnússon hægra megin. Signý Richter leiðir Guðbrand svo kemur óþekktur og þá Halldór Gunnar Ólafsson. Milli Signýar og þess óþekkta sér í Lárus Ægi Guðmundsson og milli Guðbrands og Signýar er Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1493
Slakað á á bekk framan við Vélaverkstæði Skagastrandar í sólskininu. Mennirnir eru, frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Gylfi Sigurðsson, Jón Ólafur Sigurjónsson og Sigurjón Ingólfsson faðir hans. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 526
Á myndinni er brúðuleikhús í heimsókn í Höfðaskóla. Börnin næst okkur sitja á tröppunum sem voru vestan á skólanum en voru fjarlægðar fyrir mistök. Myndin var líklega tekin kringum 1995 því ekki eru hafnar framkvæmdir við íþróttahúsið sem er u.þ.b. þar sem leikhúsið er á myndinni.
1
…
68
69
70
…
79
Leita í myndasafninu
Leita