Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
036
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum
mundi550
Dansleikur í Fellsborg. Hljómsveitin Gautar frá Siglufirði leikur fyrir dansi.
008
Guðmundur Guðnason í Ægissíðu, póstur á Skagaströnd. Mynd tekin ca 1939
055
Ósk Þorleifsdóttir Efri-Harrastöðum við heyskap. Í baksýn eru gömlu fjárhúsin á Efri-Harrastöðum
Guðmundur Guðnason688

Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Inga Stefánsdóttir, Sigríður Sigurðardóttir og Jósef Sigurðsson. Þrjú barnanna voru börn Sigurðar Magnússonar og Dórotheu Hallgrímsdóttur frá Hólanesi. Inga dvaldi hjá þeim hjónum á táningsárum sínum.

058
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum í snjó. Spákonufell í baksýn.
051
Þórey Daníelsdóttir frá Búrfelli með hest ca 1940
029
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum og Brynhildur Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði bregða sér í karlmannsföt. Myndin tekin ca 1948.
006
Anna Pálsdóttir frá Húnsstöðum og Þuríður Steingrímsdóttir frá Reykjavík. Myndin var tekin 1946
Guðmundur Guðnason707

Ekki er vitað af hvaða tilefni þessi prúðbúnu ungmenni tróðu upp á sviðinu í Gömlu Tunnunni. Myndin er sennilega tekin upp úr 1960 e.t.v. á einhverri hátíð tengdri ungmennafélaginu Fram eða stúkunni á Skagaströnd. Á myndinni má þekkja, frá vinstri: Jóhanna Valdimarsdóttir (Númadóttir), Helgi Þór Bjarnason (d. 1.3. 2007) frá Holti, Jóhanna Hallgrímsdóttir (Júdý), Steindór Haraldsson frá Höfðakoti, Guðrún Þórbjarnardóttir frá Flankastöðum, Guðmundur Guðmundsson úr Skeifunni, Árni Björn Ingvarsson frá Sólheimum, Bergdís Sigmarsdóttir, Gissur Jóhannsson frá Lækjarbakka, Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti, Búi Birgisson frá Straumnesi, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Birna Guðjónsdóttir, Elínborg Ingvarsdóttir frá Sólheimum og Jóhann Ingibjörnsson.

053
Una Jónsdóttir frá Steinnýjarstöðum á hestbaki með hund með sér
012
Gunnlaugur Björnsson frá Efri-Harrastöðum
Guðmundur Guðnason710
Smalamennska í Borginni. Féð rekið heim að rétt.
059
Hjónin Hróbjartur Jónasson og Vihelmína Helgadóttir frá Hamri í Hegranesi í heimsókn á Skagaströnd
Guðmundur Guðnason709
Bergdís Sigmarsdóttir á sviðinu í Tunnunni upp úr 1960.
Guðmundur Guðnasonr674
Á þessarri mynd, sem er tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum, eru skólabörn úr núverandi Húnavatnshreppi. Standandi eru, frá vinstri: Tryggvi Jónsson frá Ártúnum, Auður Ísfeld frá Bólstað, Halldóra Jónmundsdóttir frá Auðkúlu, Ingibjörg Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum, Ragnheiður Guðmundsdóttir frá Eiríksstöðum, Guðrún Jónsdóttir frá Ártúnum og Heimir Guðmundsson frá Finnstungu. Sitjandi eru, talið frá vinstri: Grétar Guðmundsson frá Finnstungu, Eiríkur Grímsson frá Ljóshólum, Jón Kr. Ísfeld kennari og Bragi Steingrímsson frá Eyvindarstöðum.
mundi598
Skagstrendingar á ferðlagi, þarna má þekkja Elínu Njálsdóttir í rauðri peysu við hlið hennar er maður hennar Magnús Ólafsson (d.23.7.2012).
064
Sigmar Hróbjartsson með Gunnlaug son sinn í fanginu við húshornið á Efri-Harrastöðum
Guðmundur Guðnason699
Tveir óþekktir knapar þeysa af stað í kappreiðum. Mennirnir og staðurinn eru óþekkt.
Guðrún Guðbjörnsdóttir109
Fermingarbörn 1975 á skólatröppunum. Frá vinstri: Egill Bjarki Gunnarsson, Þórey Jónsdóttir, Lilja Kristinsdóttir, Ásdís Þórbjörnsdóttir ?, Hjálmfríður Bjarnadóttir, Guðrún Berndsen, Hafþór Gylfason, Jósef Sigurðsson, Ástmar Kári Ástmarsson og Páll Jónsson.
Guðmundur Guðnason681
Myndin var tekin á Lions-dansleik á Siglufirði 15. júní 1968. Til vinstri er Jón Ísberg (d. 24.6.2009) sýslumaður og kona hans Þórhildur Ísberg. Maðurinn til hægri er óþekktur. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
028
Brynhildur Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði bregður á leik. Mynd tekin ca 1948
Guðmundur Guðnason798
Fossinn fyir ofan bæinn Hof. Í baksýn eru Fjallsöxlin til vinstri og Steinnýjarstaðafjall til hægri. Milli þeirra er Litla skarð.
Guðmundur Guðnason726
Björn Magnússon Syðra-hóli.
Guðmundur Guðnason770
Séra Pétur Ingjaldsson sóknarprestur flytur predikun í Höskuldsstaðakirkju við vígslu hennar 1963. Í kórnum sitja prestar þeirra á meðal herra Sigurbjörn Einarsson biskup til hægri. Prestarnir til vinstri eru séra Þorsteinn B. Gíslason í Steinnesi og Jón Kr. Ísfeld í Bólstað.
042
Jóhanna Gunnlaugsdóttir frá Efri-Harrastöðum og Brynhildur Vilhjálmsdóttir frá Brandaskarði bregða á leik í karlmannsfötum.
Guðmundur Guðnason696
Hjónin á Syðra-hóli þau Björn Magnússon og Ingunn Lilja Hjaltadóttir.
Guðmundur Guðnason687
Rúningur í réttunum. Þá var fénu smalað um mitt sumar og kindurnar voru rúnar því ullin var verðmæt. Myndin er úr Hofsrétt á Skagahreppi (nú Skagabyggð) og var tekin rétt fyrir 1960. Konan sem situr með lamb í fanginu er Brynhildur Vilhjálmsdóttir (d.7.4.2011) frá Brandaskarði en aðrir myndinni er óþekktir. Hundurinn á réttarveggnum hét Kópur og var í eigu Páls J. Pálssonar frá Bakka. Kópur var felldur haustið 1960.
Guðmundur Guðnason706
Mynd tekin af Höfðanum yfir Skagaströnd. Fremst fyrir miðri mynd er Gunnarshólmi sem í daglegu tali gekk undir heitinu Grafarbakki vegna nálægðar sinnar við mógrafir Skagtrendinga.
033
Heimir Sigmarsson í snjó
mundi564
Ókunnugt fólk á ókunnum stað
010
Talið frá vinstri: Björn Arason Örlygsstöðum, Brynhildur Vilhjálmsdóttir Brandaskarði, Gunnar Albertsson Keldulandi, Ásgerður Pálsdóttir Bakka, María Pálsdóttir Bakka, Helgi Pálsson Bakka, Benedikt Vilhjálmsson Brandaskarði, Árni Hólm Skeggjastöðum, Jón Vilhjálmsson Brandaskarði, Páll Vilhjálmsson Brandaskarði, Örn Guðmundsson kennari frá Þverárdal. Myndin tekin ca 1944.
021
Ingibjörg Daníelsdóttir Búrfelli, Erlendur Hallgrímsson Tungunesi, Þórey Daníelsdóttir Búrfelli
mundi568
Signý Gunnlaugsdóttir (d.4.5.2015) hjá ömmu sinni Signý Benediktsdóttur frá Balaskarði.
mundi541
Þau sem þarna gaumgæfa eitthvað undir steini eru frá vinstri: Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Dagný Hannesdóttir (Lilla), Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Hrafnhildur Jóhannsdóttir og Hrólfur Jónsson (d.1.8.1989) frá Bjarmalandi
Guðrún Guðbjörnsdóttir004
Pálína Freyja Harðardóttir er hér til vinstri en Kristjana Erlingsdóttir til hægri
Guðmundur Guðnason686
Sunnudagaskólabörn sunnan við gömlu kirkjuna á Skagaströnd. Fólkið sem stendur aftan við börnin er, talið frá vinstri: Hrefna Björnsdóttir, Sigurbjörg Angantýsdóttir, Dómhildur Jónsdóttir, Guðný Hjartardóttir, Guðrún Teitsdóttir, Herra Sigurbjörn Einarsson biskup, Magnea Þorkelsdóttir biskupsfrú, séra Pétur Ingjaldsson, Páll Jónsson, Björk Axelsdóttir og óþekkt kona. Börnin eru óþekkt en eru æska Skagastrandar á þeim tíma sem myndin er tekin.
mundi608
Veisla í Fellsborg af óþekktu tilefni. Fólkið á myndinni er, talið frá vinstri: Jónas Skaftason, Ástmar Ingvarsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, óþekkt fólk. Hægra megin við borðið er Halldóra Pétursdóttir frá Höfðakoti fremst og Sigríður Ásgeirsdóttir frá Lækjarbakka næst.
062
Aðalheiður Frímannsdóttir og Lilja Andrésdóttir á Skagaströnd. Myndin tekin um 1940. Húsið í baksýn er Árnes en til vinstri, með hvítum gafli, er Sæból
013
Björgvin Guðmundsson frá Saurum. Myndin tekin ca 1939
mundi572
Fjölskyldan í Réttarholti. Frá vinstri: Már Hall Sveinsson (d. 1.3.2008) og Elísabet Árnadóttir með dætrum sínum Aðalheiði, Erlu Björg og Vilborgu. Hjá þeim eru gestir þeirra Sigurður Ingólfsson og frú ásamt syni þeirra.
037
Ásgerður, helgi og María Pálsbörn frá Bakka í Skagahreppi (nú Skagabyggð)
Guðrún Guðbjörnsdóttir048
Lúðvík Kristjánsson til vinstri og Gunnar Helgason til hægri heiðraðir á sjómannadegi.
005
Gunnar Albertsson frá Keldulandi og Jón Vilhjálmsson frá Brandaskarði. Á myndinni eru þeir ca 11 - 13 ára gamlir
Guðrún Guðbjörnsdóttir039
Tónlistarfólkið og hjónin Julian og Rosemary Hewlett
068
Sigurbjörn Kristjánsson frá Kárastöðum á Skagaströnd
Guðrún Guðbjörnsdóttir029
Kaffitími í saltfiskvinnslu Hólaness hf. Frá vinstri: Gunnar Albertsson, Aðalheiður (Dússý) Harðardóttir, Erla Theodórsdóttir, Danica Zupancic, Inga Kristjánsdóttir, Högni Jensson, Hrafnhildur Jóhannsdóttir, Davíð Reynisson, Sigfús Sævar Sigurðsson, Óþekkt, Sigrún Benediktsdóttir og Ottó Ákason
Guðmundur Guðnason689
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn lengst til hægri er Lárus Árnason (d. 21.5.2011) frá Ási. Aðrir eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason724
Fermingarbörn ganga til kirkju. Frá hægri: Guðbjörg Viggósdóttir, Guðbjörg V. Kristinsdóttir, Guðrún Lárusdóttir, Linda Kristjánsdóttir, Sigríður Gestsdóttir, Heiðar Friðriksson, óþekktur, Ingvar Ástmarsson, óþekktur, Magnús Guðlaugsson, óþekktur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir026

Frá vinstri á myndinni: Hallgrímur Kristmundsson, Gylfi Sigurðsson og Jón Ólafur Ívarsson (Daddi). Þeir sitja við borðið niðri í lúkarnum á Helgu Björgu Hu 7 sem þeir áttu og réru til fiskjar á í 20 ár. Hallgrímur V. Húnfjörð Kristmundsson (d. 9.10.1998) var vélstjóri um borð en hann átti þrjú börn með konu sinni Ingibjörgu Axelmu Axelsdóttur áður en þau skildu. Börnin voru: Jóhanna, Sævar Rafn og Axel Jóhann. Gylfi var stýrimaður um borð í Helgunni. Hann á þrjú börn: Hafþór, Guðbjörgu og Jóney með Guðrúnu Guðbjörnsdóttur konu sinni. Lengst til hægri er Jón Ólafur eða Daddi eins og hann er alltaf kallaður. Daddi var skipstjóri á Helgu Björgu og hann á fjögur börn með konu sinni Guðrúnu Sigurðardóttur - sem er reyndar systir Gylfa. Börn þeirra Dadda og Guðrúnar eru: Þórey, Hallbjörg, Sigrún og Ingvar Þór. Þessir þrír menn voru ákaflega samhentir um að láta hlutina ganga í útgerðinni og þrátt fyrir titlatogið hér að ofan gengu þeir allir í öll störf um borð Í Helgu Björgu, enda gekk útgerðin vel hjá þeim félögum.

048
Ósk Þorleifsdóttir Efri-Harrastöðum og Elísabet Þorleifsdóttir systir hennar frá Móbergi í Langadal. Myndin tekin um 1950.
049
Svava Sigmundsdóttir frá Björgum. Myndin tekin ca 1941
Guðmundur Guðnason749
Grímuball í Tunnunni 1963. Í þá daga var mikið lagt upp úr því á grímuböllum að þekkjast ekki. Þess vegna er að sjálsögðu ekki hægt að segja til um hver er hver á þessari mynd.
Guðmundur Guðnason764

Leikarar frá hægri eru: Steindór Haraldsson og Pétur Jóhannsson en hinir tveir eru óþekktir.

Guðmundur Guðnason701
Óþekkt leikrit sýnt í Tunnunni sennilega á vegum Höfðaskóla upp úr 1960. Frá vinstri í hlutverkum sínum: Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka, óþekkt og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti.
Guðmundur Guðnason675
Braggarnir á myndinni gengdu margs konar hlutverkum hver fyrir sig. Braggarnir lengst til hægri voru íbúðabraggar þar til þeir voru rifnir. Sá sem er lengst til vinstri var einnig íbúðabraggi með skrifstofu sveitarfélagsins í norðurendanum, seinna bílaverkstæði. Bragginn í miðið var skátaskáli og seinna mötuneyti. Lenst til vinstri á myndinni sér í hafnarvigtarskúrinn.
Guðmundur Guðnason737
Ólína Bjarnadóttir frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8).
Guðrún Guðbjörnsdóttir100

Frjálsíþróttalið USAH á íþróttamóti á óþekktum stað. Myndin sennilega tekin upp úr 1980 á henni eru, talið frá vinstri: standandi: Helgi Þór Helgason, óþekkt, Sigríður Gestsdóttir, Kári Kárason, Guðbjörg Gylfadóttir, Jóhann Sigurðson, Þórhalla Guðbjartsdóttir, Laufey Vilmundardóttir, Hafþór Gylfason og Hjörtur Guðmundsson. Fremri röð frá vinstri: Kári Einarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Sigurður Guðmundsson, Kristján Frímannsson frá Breiðavaði, Sigurbjörg Guðmundsdóttir, Guðbjartur Guðmundsson, Steinunn Snorradóttir, Helga Yngvadóttir, Kristjana Jónsdóttir og Þórhildur Jakobsdóttir.

Guðmundur Guðnason739
Systurnar í Bjarnarhöfn með frænku sinni úr Skálholti. Frá vinstri: Pálfríður Bjarnadóttir, Anna Bjarnadóttir, Guðrún Benjamínsdóttir (d. 10. 6.1999), Hjálmfríður Bjarnadóttir og Ólína Bjarnadóttir. Systurnar voru aldar upp í Bjarnarhöfn (Bankastræti 8) en Guðrún ólst upp í Skálholti. Systurnar og Guðrún voru systkinabörn.
Guðmundur Guðnason695
Réttað í Spákonufellsrétt. Maðurinn á miðri mynd er Þorkell Magnússon (d. 30.8.1968) frá Goðhól. Maðurinn lengt til hægri er Baldvin Jóhannsson (d. 1.1.1981) frá Ásholti og bak við hann er Jóhannes Hinriksson (d. 27.10.1973) einnig frá Ásholti. Aðrir eru óþekktir.
1

6
7
8

79
Leita í myndasafninu
Leita