Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Jónas 48
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1195
Bekkjarmynd úr Höfðaskóla af nemendum fæddum 1972. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1985. Í aftari röð eru, frá vinstri: Stefán Sveinsson, Svava Guðrún Sigurðardóttir, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Þorlákur Sigurður Sveinsson, Óskar Óskarsson og Hólmfríður Oddsdóttir. Fremri röð, frá vinstri: Hólmgeir Hallbert Kristmundsson, Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur H. Bernódusson kennari, Hjalti Kristjánsson og Skúli Tómas Hjartarson.
Óþekktur ljósmyndari600
Hjónin í Grafarholti, Stefán Jónsson (d.4.5.1931) og Kristjana Júlíusdóttir (d.1.2.1975). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 9
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Rúnar Agnarsson Blönduósi, Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002) Bjargi og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) Sólheimum.
Óþekktur ljósmyndari630
Hjónin í Laufási, Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984) og Jónína Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari424
Þessar fjórar starfsstúlkur í þáverandi kaupfélagsverslun við Bogabraut sýna jólagjafir sem voru meðal þeirra sem til voru í búðinni. Konurnar eru, frá vinstri: Edda Pálsdóttir, Vigdís Viggósdóttir, Helga Hermannsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 21
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Magnús B. Jónsson og Elín Njálsdóttir. Bak við Elínu grillir í Bjarnhildi Sigurðardóttur (d. 22.4.2016).
Ólafur Bernódusson1078
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Eftir að yngstu börnin úr Höfðaskóla höfðu dregið um hvert þeirra fengi að taka skóflustnguna hlaut Þórður Óskarsson hnossið. Á myndinni er hann að bisa við að ná upp fyrstu torfunni meðan aðrir klappa fyrir honum.
Óþekktur ljósmyndari647
Sambýlisfólkið á Óseyri, Bjarni Jóhann Jóhansson (d. 12.9.1971) og Rósa Pálsdóttir (d.1.5.2002). Bjuggu síðar á Bjargi. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1202
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd er Hólmfríður Oddsdóttir ásamt óþekktir stúlku að sýna nýjustu tísku.
Ólafur Bernódusson1150
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngri nemendur skólans að syngja undir stjórn Hugrúnar Sifjar Hallgrímsdóttur tónmenntakennara, sem situr við píanóið. aftast til vinstri sér í Hildi Ingólfsdóttur skólastjóra.
2001052
Risa- karfahol um borð í Arnari HU 1. Á myndinni er verið að reyna að koma karfanum niður í móttökuna. Þar var hann svo tekinn og handteraður og frystur. Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri er kominn á skyrtunni niður á dekk til að fylgjast með. Hinir mennirnir eru líklega Óskar Þór Kristinsson til vinstri og Ingvar Þór Jónsson til hægri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Óskar Kristinsson - safn209
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd er spjallað í fundarhléi. Fólkið er, talið frá vinstri: Áki Áskelsson, óþekkt, Ingibjörn Sigurjónsson, Dagbjört Jóhannsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og Steinunn Grímsdóttir.
Höfðaskóli - safn546
Þessi mynd var tekin utan við "Gamla skólann" eða Bjarmanes eins og húsið heitir. Ekki er vitað hvenær en líkleg var það einhverntíma 1956 -57 því skólastarf var flutt í nýjan skóla - Höfðaskóla - haustið 1958. Sitjandi, frá vinstri: Sigrún Jósteinsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Harpa Friðjónsdóttir, Anna Eygló Fanndal Skaftadóttir, óþekkt, Fjóla Jónsdóttir, og Helga Ólafsdóttir. Standandi, frá vinstri: Pálfríður Benjamínsdóttir, óþekkt, Þórunn Bernódusdóttir, Elínborg M. Jónsdóttir kennari, Kristín Lúðvíksdóttir, óþekkt og Bylgja Angantýsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 075
Hjónin Anna Gísladóttir (d.22.7.1998) og Davíð Sigtryggsson (d. 3.7.1971) frá Neðri Harrastöðum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn513
Þessi mynd var tekin af nokkrum nemendum Höfðaskóla i skólaferðalagi á Arnarstapa í maí 1986. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Ægir Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Herdís Jakobsdóttir. Önnur röð frá vinstri: Jón Önfjörð Arnarsson, Viggó Magnússon og Elísabet Hallbjörnsdóttir. Þriðja röð, frá vinstri: Vigdís Ómarsdóttir, Inga Matthíasdóttir kennari og Jóhann Ásgeirsson. Aftasta röð, frá vinstri: Elín Anna Rafnsdóttir, Rafn Ingi Rafnsson og Davíð Reynisson. Álengdar til hægri er Sveinn Jónasson.
Ingibergur Guðmundsson 369
Myndin var tekin veturinn 1988 í Fellsborg af verðlaunahöfum í innanfélagsmóti Bridgeklúbbs Skagastrandar. Fólkið er, frá vinstri: Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Haraldur Árnason, Ólafur Bernódusson, Sólveig Róarsdóttir og Kristín Björnsdóttir.
Gréta 027
Á myndinni eru frændurnir Ólafur Björnsson (d.10.10.1972) frá Syðra Hóli til vinstri og Ögmundur Magnússon (d.9.3.1968) söðlasmiður á Sauðárkróki til hægri.
Jónas 33
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) og BirnaBlöndal (d.26.10.2018) í hlutverkum sínum í sýningunni. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir140
Myndin var tekin í Fellsborg 28. mars 1996 líklega á árshátíð Höfðaskóla. Krakkarnir á myndinni eru að flyta atriðið sitt fyrir gesti. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Jón Atli Magnússon, Sigurgeir Snævar Árnason, óþekkt, Ragheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Óðinn Örn Sævarsson, Guðmundur Björn Sigurgeirsson, Valgerður Guðmundsdóttir, Kristján Pétur Guðjónsson, Björgvin Matthías Hallgrímsson, Ester Ösp Víðisdóttir, Íris Ósk Jóhannesdóttir og Rebekka Maren Þórarinsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari625
Hjónin á Karlsskála, Ernst Georg Berndsen (d.21.8.1983) og Guðrún Laufey Helgadóttir (d.15.4.1987). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Höfðaskóli - safn547
Hallbjörn J. Hjartarson skemmtir, ásamt hljómsveit, utan við Kántrýbæ á fyrstu Kántrýhátíðinni 1995. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari635
Sambýlisfólkið á Litla-Felli, Guðmundur Júlíusson (d.1.1.1961) og Elísabet Kristjánsdóttir (d.6.3.1991). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1514
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún sýnir hluta af börnunum sem þátt tóku í kofasmíðum umf Fram það árið þegar þau buðu gestum til sín að skoða. Við suma kofana var boðið upp á veitingar. Á myndinni eru, frá vinstri: tvö óþekkt, Birgitta Rut Bjarnadóttir, með bleikan hatt, Guðrún Rós Hjaltadóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Aníta Ragnarsdóttir og Benný Blær Sæmundsen en aðrir eru óþekktir.
Jónas 40
Ekki er vitað hvaða fólk þetta er. Ef þú þekkir það vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn168
Myndin var tekin 4. október 1992, líklega í Noregi, af nokkrum forráðamanna Skagstrendings hf í skoðunarferð. Þá var þar í smíðum frystitogari fyrir félagið - Arnar Hu 1 - sem kom til Skagastrandar 22. desember 1992. Hann var síðan seldur frá félaginu 1995 eftir harkalegan niðurskurð á kvóta félagsins. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Magnús Sigurðsson, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús B. Jónsson, þrjú óþekkt, Guðjón Guðjónsson, óþekktur, Jóhannes Sveinsson (nær), óþekktur (fjær), Gylfi Sigurðsson (nær) og Adolf H. Berndsen (fjær).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1488
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var líklega einhverntíma kringum 2008. Á henni eru krakkar að sinna ýmsu í skólagörðunum sem voru sunnan við Fellsborg. Strákurinn sem er að rannsaka virkni vatnskranans er Auðunn Árni Þrastarson og stóri strákurinn er Torfi Friðrik Magnason. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn508
Dagný Úlfarsdóttir afhendir nemendum sínum, fæddum 1985, einkunnir sínar á skólaslitum Höfðaskóla í Fellsborg. Nemendurnir eru, frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Tinna Björk Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Anna Dúna Rúnarsdóttir, Eva Dögg Bergþórsdóttir, Dóra Rebekka Sævarsdóttir, Lilja Nótt Sæavarsdóttir, óþekkt, Eygló Amelía Valdimarsdóttir og Eva Rún Rúnarsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðmundsdóttir 10
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Frímann Hilmarsson (d.3.12.2009) Breiðavaði bílstjóri hópsins, Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) Sólheimurm og Ottó Valur Finnsson (d.10.11.1998) Blönduósi.
Ólafur Bernódusson1121
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd er einn af hópunum að sýna sitt atriði. Við borðið sitja Sigrún Jónsdóttir og Ingólfur Sveinsson en standandi eru Bryndís Guðjónsdóttir vinstra megin og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir til hægri.
Guðrún Guðmundsdóttir 097
Myndin var tekin 17. júní 1988 á Sauðárkróki þegar eldri borgarar þar buðu jafnöldrum sínum frá Skagaströnd í heimsókn. Á myndinni eru Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) frá Vík og Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum í kaffiboðinu.
Gréta 126
Konan lengst til hægri á myndinni er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra Hóli sem lengi bjó í Laufási á Skagaströnd. Hinar konurnar tvær eru óþekktar en ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn570
Myndin var tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003 af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalagi í Danmörku. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: Valgerður Guðmundsdóttir, Arnór Snorri Gíslason og Kristinn Andri Hjálmtýsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óþekktur ljósmyndari615
Hjónin í Höfðahólum, Sigríður Fanný Ásgeirsdóttir (d.11.12.2006) og Jóhann Frímann Pétursson (d.13.1.1999). Þau bjuggu seinna lengi á Lækjarbakka við Strandgötu. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 514
Myndin var tekin í maí 1985 af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalgi. Greinilega gistu þau í skólum einhversstaðar og á myndinni eru þau í einum þeirra. Nemendurnir eru, frá vinstri: Óli Hjörvar Kristmundsson, Jón Arnarsson, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir (nær), Guðmundur Oddsson (fjær), Ágúst Ómarsson?, Rakel Jakobínia Jónsdóttir?, Hallgrímur Oddsson og Hans Birgir Högnason. Aðrir á mynbdinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn456
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það einhvertíma kringum 2000. Á henni er eldri hluti nemenda Höfðaskóla á útivistardegi í maí við norðurhlíð Spákonufellsins, tilbúin að leggja í göngu á Borgarhausinn undir leiðsögn Lárusar Ægis Guðmundssonar, sem er lengst til vinstri. Í baksýn sést heim að Brandaskarði.
Ólafur Bernódusson1165
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Helgi Sveinn Árnason, Róbert Daði Bogason?, Birgitta Rut Bjarnadóttir, Sunna Björg Steingrímsdóttir og Guðný Eva Björnsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir 080
Myndin var tekin í Höfðaskóla í kaffipásu í félagsstarfi aldraðra veturinn 1987 - 1988. Á henni eru frá vinstri: Laufey Sigurvinsdóttir (d.21.12.1994), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003), Ragnheiður Birna Hafsteinsdóttir (d.26.8.2008) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993).
Ingibergur Guðmundsson 357
Þessi mynd var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur með skemmtiatriði á sal fyrir aðra í skólanum. Lesararnir hægra megin eru, frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Þóra Ágústsdóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir og Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir. Leikararnir, sem líklega eiga að vera jólasveinarnir, Grýla og Leppalúði, eru óþekktir en krakkarnir eru fædd árið 1978.
Þórunn Bernódusdóttir - safn 059
Myndin var tekin á pallinum við Suðurveg 3 líklega sumarið 1990. Á henni eru vinkonurnar og frænkurnar Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020) og Anna Sjöfn Jónasdóttir, sem situr með systur sína Kristbjörgu Unu Guðmundsdóttur.
Guðrún Guðmundsdóttir 026
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) frá Vík á Skagaströnd. Bjartur var mikill grallari og á myndinni er hann með gjöf frá ferðafélögum sínum. Gjöfin samastóð af hálfri flösku af mjólk og trúðagleraugum með áföstu nefi og skeggi. Allt vakti þetta mikla kæti hjá ferðalöngunum og ekki síst þegar Bjartur setti upp gleraugun alvanur að skemmta fólki.
Guðrún Guðmundsdóttir 12
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Aðalbjörg Þorgrímsdóttir (d.22.11.2007) Holti, Konráð Eggertsson (d.15.7.1995) Haukagili, Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) Sólheimum , Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) Kárastöðum og Þorsteinn Sigurjónsson Blönduósi.
Guðrún Guðmundsdóttir 16
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Elísabet Sigurgeirsdóttir (d.11.11.2015) Blönduósi, Rúnar Agnarsson Blönduósi, Kristine E. Jóhannsdóttir Húnfjörð Blönduósi (nær), Frímann Hilmarsson (d.3.12.2009) Breiðavaði bílstjóri hópsins (fjær), Pétur Björnsson (d. 19.1.1997) Skriðulandi, Þorsteinn Sigurjónsson Blönduósi, Sófus Guðmundsson (d.2.8.1991) Skrapatungu og óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1524
Skrúðganga frá höfninni að kirjunni í messu er fastur liður á hátíðahöldunum á sjómannadegi á Skagaströnd. Á þessari mynd er gönguhópurinn að koma að kirkjunni undir íslenska fánanum. Fánaberar eru: Finnnur Kristinsson, fremstur, Guðjón Guðjónsson í svörtum frakka, Hafþór S. Gylfason í gráum frakka og Stefán Sveinsson. Allir hafa þeir, eða hafa haft, sjómennsku að aðalstarfi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 54
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Magnús B. Jónsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016), Guðmundur Haukur Sigurðsson og Birna Blöndal (d.26.10.2018) í hlutverkum sínum í sýningunni.
2001050
Áhöfnin á Örvari Hu 21 hélt upp á 300 milljóna aflaverðmæti á kvótaárinu í september 1988, sem þá þótti gríðarlega mikið. Frá vinstri: Árni Sigurðsson, Sigurjón Ingólfsson, Páll Valgeirsson, Gylfi Guðjónsson, Kristján Alexandersson, Gunnar Jónsson, Finnur Kristinsson, Jóhannes Simonsen, Sigurbjörn Björgvinsson, Hjörtur Guðbjartsson (í efstu röð), Guðjón Ebbi Sigtryggsson skipstjóri, Björgvin Karlsson, Sævar Hallgrímsson, Axel Hallgrímsson (í efstu röð), Sigurður M. Alexandersson, Ingibjörn Sigurjónsson, Quentin Bates, Þórarinn Grétarsson (í efstu röð), Óli Sigurjón Pétursson, Rögnvaldur Ottósson, og Hafsteinn Pálsson. Myndin var tekin í Fellsborg.
Ólafur Bernódusson1198
Vinningslið kvenna í kappróðri á sjómannadegi tekur við verðlaunum sínum um borð í Örvari HU 21. Í sveitinni voru, frá vinstri: Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) stýrimaður, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Ásta Þórhalla Þórhallsdóttir, Aðalheiður Harðardóttir, Vigdís Ósk Ómarsdóttir, óþekkt og óþekkt barn. Lengst til vinstri er Ólafur Bernódusson kynnir dagsins. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1116
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Vikurnar fyrir daginn höfðu nemendur safnað tómum mjólkurfernum og límt saman eftir ákveðnu kerfi. Samlímingarnar voru svo settar saman í píramíta úti á skólalóð. Á myndinni er búið að byggja píramítann en hjá honum stendur Páll Svavarsson mjólkubússtjóri á Blönduósi en aðrir á myndini eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 533
Myndin var tekin í pylsupartýi við Höfðaskóla líklega á útivistardegi kringum 1990. Á myndinni eru, frá vinstri: ?Sigurður Haukur Grétarsson?, Særún Níelsdóttir (nær), óþekktur (fjær), þrjú óþekkt börn en bak við þau er Árni Max Haraldsson í grænni peysu. ?Guðrún Ásta Guðmundsdóttir?, Gunnar Guðmundsson og tveir óþekktir. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna og/eða getur staðfest að rétt sé það sem giskað er á, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn626
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Leiðbeinandinn William Sillar segir Stefáni Sveinssyni til með verkefni hans. Á töflunni bak við þá er skipulag hópsins fyrir daginn.
Ingibergur Guðmundsson 402
Myndin var tekin í vinnuviku í Höfðaskóla í desember 1987. Stúlkurnar á henni eru í óða önn að útbúa jólasveinadúkkur. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Svava Guðrún Sigurðardóttir, Soffía Lárusdóttir, Gígja Óskarsdóttir, Soffía Jónasdóttir og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 356
Á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Allir eru mættir á sal til að fylgjast með skemmtiatriðum frá bekkjunum. Næst okkur á myndinni eru Þröstur Árnason til vinstri og Óskar Ingi Þórsson (d.5.4.2007) hægra megin. Næst fremsta röð, frá vinstri: Ólafur Bernódusson kennari, Gunnar Halldór Hallbjörnssson, óþekkt, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Særún Níelsdóttir, Elísabet Eik Guðmundsdóttir, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir og Anna Dröfn Guðjónsdóttir. Í þriðju röð, frá vinstri: þrjár óþekktar stúlkur, Gígja Óskarsdóttir?, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir, Guðný Finnsdóttir og Svava Magnúsdóttir. Aftast eru: Jón Heiðar Jónsson í íþróttajakka, Ragnar Friðrik Gunnlaugsson í grænni peysu, Einar Haukur Arason kennari í svörtum jakkafötum og Elínborg Jónsdóttir (d.7.1.2007) kennari framan við hann, Jóhanna Ólafsdóttir kennari við hlið Einars og Vilborg Magnúsdóttir kennari lengst til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001014
Upp úr 1960 ákváðu skátarnir í Sigurfara á Skagaströnd að byggja sér skála í Brandaskarðinu. Hafist var handa við bygginguna og steyptur sökkull (og plata?) sem skátarnir gerðu undir leiðsögn vanra manna. Einhverra hluta vegna varð aldrei meira úr framkvæmdum í Brandaskarðinu en í stað þess byggður skáli í suðurhlíðum Spákonufellsins. Myndin var tekin af framkvæmdunum í Brandaskarðinu. Lengst til vinstri á myndinni sér í afturendann á Unumog bíl Jóhanns Péturssonar á Lækjarbakka en hann er fullorðni maðurinn á myndinni. Strákurinn í ljósu skyrtunni er Hallbjörn Björnsson og sá sem er lengst til hægri er bróðir hans Sigurður Björnsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1502
Þessi skemmtilega mynd sýnir börn, flest frá Skagaströnd, á skíðum í Tindastóli. Hér á ljósmyndasafninu er mynd af jólakorti eftir Sigurlaugu Jónasdóttur (d.30.12.2004) sem minnir á þessa mynd. Sú mynd er númer 18239.
Höfðaskóli - safn451
Myndin var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla einhvertíma kringum 2000. Kennarar eru að fá sér kaffi í "langa fríinu". Konurnar eru, frá vinstri: Guðrún Soffía Pétursdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir og Helga Ólína Aradóttir.
Ólafur Bernódusson063
Myndin var tekin um jólin 1989 þegar fram fór körfuboltamót í íþróttasalnum á Húnvöllum. Myndin var tekin í leik Hvatar á Blönduósi og Fram á Skagaströnd. Fannar Viggósson í Fram hefur skotið á körfuna en óþekktir leikmenn Hvatar bíða eftir hugsanlegu frákasti.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1489
Bjarmanes var byggt 1912 en endurbyggt 2004. Það var vígt þá um sumarið og þá var þessi mynd tekin. Á henni er Ingibergur Guðmundsson fjórði frá vinstri. Herbert Ólafsson (d.25.4.2007) er fyrir miðri mynd með staf og hjá honum er Ólafur Bernódusson. Annar frá hægri er svo Lárus Ægir Guðmundsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðmundsdóttir 18
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd er hópurinn í veitingahúsinu Brekku í Hrísey. Frá vinstri: óþekktur (nær), Rúnar Agnarsson Blönduósi (fjær), Sófus Guðmundsson (d.2.8.1991) Skrapatungu, Ottó Valur Finnsson (d.10.11.1998) Blönduósi, Hákon Árnason Reykhólum, Frímann Hilmarsson (d.3.12.2009) Breiðavaði bílstjóri hópsins, óþekktur, Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) Vík á Skagaströnd og Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) Sólheimum á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn465
Knattspyrnulið frá Höfðaskóla ásamt þjálfara sínum 28. júní 1997. Krjúpandi eru frá vinstri: Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Sigurbjörn Kristjánsson, Jón Atli Magnússon, Sigurgeir Snævar Árnason og Ívar Gylfason. Standandi frá vinstri: Albert Ingi Haraldsson, Kristján Pétur Guðjónsson, Sindri Njáll Hafþórsson, Eyþór Kári Egilsson, Arnór Snorri Gíslason og Garðar Geirfinnsson þjálfari og íþróttakennari.
Höfðaskóli - safn402
Nemendur Höfðaskóla fædd 1971 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Jóhanna Sigurjónsdóttir, Erlingur Ottósson, Björk Axelsdóttir kennari, Dagbjört Jóhannsdóttir og Hafdís Þorvaldsdóttir. Miðröð frá vinstri: Sveinn Jónasson, Baldur Eðvarðsson og þorsteinn Styrmir Jónsson. Fremsta röð frá vinstri: Hans Birgir Högnason, Viggó Magnússon, Hallgrímur Oddsson, Ægir Jónsson og Elín Rafnsdóttir.
1
…
69
70
71
…
79
Leita í myndasafninu
Leita