Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Höfðaskóli - safn545
Nemendum Höfðaskóla í hóp á sal kringum Pál Leó Jónsson skólastjóra. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en Páll var skólastjóri 1986 - 1991 þannig að hún var tekin einhverntíma á því tímabili. Nemednunum og foreldrum þeirra er látið eftir að finna þá sem þeir þekkja á myndinni.
Skagaströnd - safn546
Konurnar á myndinni eru í faldbúningum. Faldbúningurinn dró nafn sitt af höfuðfatinu, faldinum, sem tilheyrði búningnum. Búningurinn er tvískiptur í upphlut og niðurhlut þar sem upphluturinn samanstendur af nærskyrtu, upphlut, treyju og kraga. Niðurhluturinn samanstendur af pilsi, svuntu og undirpilsi. Maðurinn er í karlbúningi með hnésíðum lokubuxum og skotthúfu. (heimild: annríki.is/thjodbuningar/faldbuningur/)
Guðrún Guðbjörnsdóttir147
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin í Fellsborg. Á henni er einhver veisla að fara í gang. Konurnar vinstra megin við borðið eru Guðný Sigurðardóttir nær okkur og Ragna Friðriksdóttir (d.5.2.1981) fjær. Hægra megin við borðið eru, frá vinstri: Högni Jensson (d.24.5.2018), Hallbjörn Björnsson og Gylfi Sigurðsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 374
Myndin var tekin á Skagastrandarvelli líklega árið 1988 eftir utanhúss íþróttamót á vegum USAH. Á myndinni er hópur íþróttafólks sem varð stigahæst á mótinu.
Gréta 038
Mennirnir á stillansinum eru, frá vinstri: Jón Kr. Jónsson (d.20.12.2017), Sigmar Hróbjartsson (d.5.11.2014) Þorbjörn Jónsson (d.2.9.1986) og Gunnlaugur Sigmarsson. Ekki er ljóst hvaða hús þeir eru að vinna við en líklega var það Bogabraut 3 eða 5. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1963.
Ólafur Bernódusson1166
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Sunna Björg Steingrímsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Sveinn Halldór Hallgrímsson og Björn Björgvinsson.
Óþekktur ljósmyndari570
Hjónin á Bjargi, Davíð Guðmundsson (d.25.2.1955) og Þórdís Hansdóttir (d.13.2.1956). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 245
Myndin var tekin í einhverju hófi Skagstrendings hf í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær. Á henni er Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri að heiðra Jón Helgason (d.1.12.2019) vélstjóra á sviðinu. Jón vann í áratugi á skipum félagsins sem vélstjóri.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1492
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin í réttinni við Vindhæli. Á henni eru, frá vinstri: Einar Guðmannsson?, Guðmundur Bergmann Magnússon (d.3.1.2010) og Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011).
Ljósmyndakeppni 2022 21
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tóku Sandra Setzkorn og Seth Iverson og sendu inn í flokkinn "Náttúra". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ingibergur Guðmundsson 399
Myndin var tekin veturinn 1987 á Húnavöllum þegar þar fór fram skólamót. Á henni eru, frá vinsti: Óskar Óskarsson nemandi í Höfðaskóla, Inga Matthíasdóttir íþróttakennari við Höfðaskóla og Kristinn Guðmundsson sem dæmdi í nokkrum kappleikjum á mótinu.
Ingibergur Guðmundsson 383
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Kolbrún Viggósdóttir, Ingibergur Guðmundsson og Anna Sjöfn Jónasdóttir. Öll störfuðu þau að sýningunni á einn eða annan hátt.
Höfðaskóli - safn556
Myndin var tekin af nemendum Höfðaskóla í skólaferðalagi. Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar tvær fremst á myndinni eru Jóna Gréta Guðmundsdóttir til vinstri og kristbjörg Una Guðmundsdóttir til hægri. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 234
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni er fólk kringum fundarborðið á efstu hæðinni í stjórnsýsluhúsinu á einhverjum viðskiptafundi á vegum Skagstrendings hf. Talið frá vinstri: Gylfi Sigurðsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson, óþekkt, Denis Lumbard, óþekktur, Magnús Schram, Hallbjörn Björnsson, Sveinn S. Ingólfsson og Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.16.7.2017).
Gréta 055
Aftan á þessari mynd stendur:"Kiddi og Mundi 1973". Ekki er vitað hver Kiddi er en Mundi = Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988) er til hægri. Ef þú veist nánari deili á Kidda vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óskar Kristinsson - safn208
Fjölmennt gæðanámskeið var haldið 22. september 1992 í Fellsborg. Skagstrendingur hf stóð fyrir námskeiðinu fyrir starfsfólk sem kom nálægt útgerðinni á einn eða annan hátt. Á þessari mynd eru hægra megin við borðið næst okkur, talið frá vinstri: Einar Gunnarsson, Jónas Þorvaldsson, Björn Sigurðsson, óþekktur og Börkur Árnason. Vinstra megin við borðið, frá vinstri: Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020), Jón Heiðar Jónsson, Einar Karlsson, Þráinn Bessi Gunnarsson, Þröstur Árnason, Guðmundur Henry Stefánsson ? og Ari Þórsson. Við næsta borð eru, frá vinstri: Steindór R. Haraldsson, Stefán Sveinsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004), Jón Sveinsson, Ingólfur Sveinsson, Gunnar Stefánsson og Óskar Þórðarson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 020
Konan til hægri á myndinni er Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra Hóli en seinna í Laufási á Skagaströnd. Konan til vinstri er Sigríður Ingimundardóttir (d.12.5.2017).
Árni Geir Ingvarsson - safn 1504
Flestir eða allir hafa gaman af að dorga. Aflinn skiptir ekki öllu máli heldur að njóta stundarinnar. Sumir fullorðnir fara á bryggjuna að dorga undir því yfirskini að þeir séu bara að hafa eftirlit með börnum sínum. Eins og myndin sýnir endar það oft með því að hinn fullorðni dorgar en barnið fylgist með. Ekki er vitað hvaða maður og barn eru á myndinni en hún er dæmigerð fyrir dorgveiði í Skagastrandarhöfn.
20230602_170212
Myndin var etkin á sjómannadaginn 2023. Fjöldi manns mætti við félagsheimilið til að taka þátt í lita-hlaupi og að renna sér í froðurennibraut. Á myndinni er fólk að klæða sig í sérstaka boli fyrir lita-hlaupið.
Ólafur Bernódusson1137
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er hluti nemendanna kominn út gegnum reykkófið og fleiri á leiðinni.
Ólafur Bernódusson1167
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja frumsamið skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Laufey Lind Ingibergsdóttir, Sunna Björg Steingrímsdóttir, Anita Ragnarsdóttir, Guðný Eva Björnsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Sveinn Halldór Hallgrímsson.
Höfðaskóli - safn571
Krakkarnir á myndinni voru í skólaferðalagi á vegum Höfðaskóla í Danmörku einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Þau eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Eydís Ósk Einarsdóttir, Ásdís Adda Ólafsdóttir, Jóna Gréta Guðmundsdóttir og Albert Ingi Haraldsson.
Óskar Kristinsson - safn165
Myndin var tekin 26. september 1991 en ekki er vitað hver tók hana. Hún er af fundi á Hótel Dagsbrún með undirmönnum á Örvari Hu 21. Fundarefnið var aðallega umræðan um föst frí sjómannanna. Á myndinni eru, frá vinstri: Steinunn Grímsdóttir skrifstofustjóri Skagstrendings hf, Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður (fjær), Axel Jóhann Hallgrímsson (nær), Guðmundur Gunnlaugsson og Adolf H. Berndsen stjórnarmaður.
Höfðaskóli - safn502
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu veturinn 2000 - 2001. Á henni er þáverandi 4. bekkur. Erfitt er að þekkja nemendurna vegna þess hve mikið andlitin eru máluð en á henni eru, frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir kennari, Kristján Steinar Kristjánsson, Patrik Snær Bjarnason, Sævar Hlynur Tryggvason, Elna Ragnarsdóttir, óþekktur, Aðalheiður Ragnarsdóttir, ?Jóhann Örn Stefánsson?, Hanna María Gylfadóttir, óþekkt, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tvær óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 537
Maðurinn á myndinni er hinn vinsæli íþróttakennari í Höfðaskóla Milan Djurica. Hjá honum eru Vignir Örn Hafþórsson í hvítum bol og Guðjón Hall Sigubjörnsson í blárri peysu. Myndin var tekin í Fellsborg líklega kringum 2002.
Óþekktur ljósmyndari477
Starfsfólk verslunar Kaupfélags Húnvetninga á Skagaströnd gerir sér glaðan dag með því að fara út að borða á Hótel Dagsbrún. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, vinstra megin við borðið: Sæmundur Gunnarsson nær og Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) fjær. Hægra megin við borðið eru, talið frá vinstri: Margrét Þorsteinsdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), Edda Pálsdóttir (d.8.4.2016) fjær og Steinunn Friðriksdóttir nær.
Ólafur Bernódusson1045
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin á henni eru, frá vinstri: Elna Ragnarsdóttir, Hafrún Eva Kristjánsdóttir, Hanna María Gylfadóttir, Sævar Hlynur Tryggvason og Þórður Indriði Björnsson.
Óþekktur ljósmyndari623
Hjónin á Karlsskála, Ernst Carl Frederik Berndsen (d.15.12.1954) og Steinunn Þórdís Siemsen Þorsteinsdóttir Berndsen (d.29.10.1953). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ólafur Bernódusson1040
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni streyma nemendur út um innganginn sem var vestan á skólanum að norðanverðu.
Ingibergur Guðmundsson 489
Myndin af bridgespilurunum í Bridgeklúbbi Skagastrandar var tekin í Fellsborg í janúar/febrúar 1985. Spilararnir við borðið fjærst eru, frá vinstri: Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Gunnar Stefánsson. Við borðið í miðjunni eru, frá vinstri: Ingibjörg Kristinsdóttir, Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Ólafur Bernódusson og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002).Við borðið næst okkur eru Eðvarð Hallgrímsson vinstra megin og Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020) hægra megin.
Óþekktur ljósmyndari586
Hjónin í Dvergasteini með syni sína. Matthildur Jóhannsdóttir (d.12.2.1953) og Björn Benediktsson Fossdal (d.23.10.1969). Synirnir eru: Snorri Sverrir Fossdal (d.7.10.1997) til vinstri og Auðunn Hafsteinn Fossdal (d.23.2.1962) til hægri. Dvergasteinn var lágreist hús sem stóð við Bankastræti rétt vestan við Skálholt (við Skagaveg). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óskar Kristinsson - safn 226
Myndin var tekin 3. september 1993. Þá var rússneskur rækjutogari að landa frosnum afurðum til frekari vinnslu á Skagaströnd. Áhöfn þessa togara var töluvert fjölmennari en gekk og gerðist á íslenskum togurum. Áhafnarmeðlimir höfðu mikinn áhuga á að kaupa gamla bíla sem voru svo hífðir um borð í togarann. Þetta varð til þess að lífleg viðskipti hófust á bryggjunni og þá virtist ástand og tegund bílanna ekki skipta máli. Greiðslur fyrir bíldruslurnar voru með ýmsu móti þar sem gjaldeyrir, Vodki og ýmislegt annað fljótandi kom við sögu. Á myndinni er Hörður Ragnarsson lengst til hægri. Yfir miðju þaki bílsins sést Jóhannes Sveinsson í tvílitri grárri peysu skoða ýmsan varning sem átti að vera greiðsla í viðskiptunum. Gráhærði maðurinn er Vilhjálmur Skaftason en aðrir eru áhafnarmeðlimir og ókunnugt fólk.
Óþekktur ljósmyndari514
Hjónin á Efri-Harrastöðum, Gunnlaugur Björnsson (d.8.5.1978) og Ósk Þorleifsdóttir (d. 14.7.1967). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 476
Þessi systkini voru hluti af stórum barnahópi þeirra Jóhannesar Pálssonar (d.9.3.1972) og Helgu Þorbergsdóttur (d.30.9.1970) frá Garði á Skagaströnd. Systkinin eru, frá vinstri: Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018), Elín Jóhannesdóttir (d.4.5.1995), Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Þorleifur Jóhannesson (d.6.11.1988). Myndin var tekin 1985.
Ólafur Bernódusson1250
Líklega var myndin tekin á vortónleikum tónlistarskólans kringum 1990 á sal í Höfðaskóla. Sé myndin skoðuð vel má á henni finna marga sem sett hafa svip sinn á samfélagið á Skagaströnd gegnum tíðina.
Skagaströnd - safn537
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Keflið er uppi á brekkunni neðan við Kaupfélagshúsið (Verslunarstjórahúsið). Einbúinn og hluti verksmiðjubygginganna eru til hægri. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 385
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru leikarar og starfsmenn sýningarinnar. Sýningin var fjölmenn því leikarar í henni voru 26 ásamt töluverðum fjölda starfsmanna sem að henni komu.
Höfðaskóli - safn469
Bekkjarkvöld nemenda Höfðaskóla fædd 1988 með foreldrum í Skíðaskálanum 1. maí 1997. Á myndinni eru, frá vinstri: Ragnheiður Erla Stefánsdóttir, Helga Bergsdóttir, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Sindri Jóelsson, Sigurgeir Snævar Árnason og Guðbjörg Kristinsdóttir.
Jónas 39
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Hallveig Ingimarsdóttir, Birna Blöndal (d.26.10. 2018) Einar Helgason og Guðbjörg Viggósdóttir.
Ólafur Bernódusson1063
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er hluti hópsins í leik á túninu. Frá vinstri: Elva Ösp Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Ástrós Villa Vilhelmsdóttir?, óþekkt, Eydís Inga Sigurjónsdóttir, fjórir óþekktir, Heiða Berglind Fannarsdóttir, Elín Rafnsdóttir, María Guðrún Guðmundsdóttir, tvö óþekkt börn og Helga Ólína Aradóttir. Aðrir eru óþekktir.
Skagastrond 2000
Skagaströnd árið 2000. Mikið frá höfninni og m.a. farið á skak með bræðrunum Árna og Sigurjóni Guðbjartssonum frá Vík. Hljóð og mynd í góðu lagi, tími 43 mínútur. Myndataka: Sigursteinn Guðmundsson
Ólafur Bernódusson1152
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Arnrún Hildur Hrólfsdóttir, Erla Mjöll Daðadóttir, Gunnar Andri Elvarsson, óþekktur og Helga Margrét Steingrímsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 449
Unglingar úr Höfðaskóla í skólaferðalagi um Snæfellsnes í maí 1986. Á myndinni eru, frá vinstri: Þorsteinn Styrmir Jónsson, Gunnar Þröstur Ásgeirsson, Jón Arnar Arnarsson, óþekkt, Svava Guðrún Sigurðardóttir, Rakel Jónsdóttir og tveir óþekktir. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn538
Myndin var tekin einhverntíma kringum árið 2000 af nemendum Höfðaskóla fæddum 1993 á sviðinu í Fellsborg á skólaslitum. Kamilla Hildur Gísladóttir kennari er lengst til vinstri og Ingibergur Guðmundsson skólastjóri er að rétta henni vitnisburðablöð barnanna. Nemendurnir eru, frá vinstri: Davíð Weerachai Víðisson, Guðjón Örn Kristjánsson, Ólína Selma Þórarinsdóttir, Sonja Sif Ólafsdóttir, Sara Rut Fannarsdóttir, Silfá Sjöfn Árnadóttir, Kristbjörg Dúfa Ragnheiðardóttir, Halla Björk Víðisdóttir, ? Sæmundsson, Elísabet Anna Blöndal Einarsdóttir, Brynjar Max Ólafsson, Árný Sif Kristínardóttir, Andrea Björk Kristjánsdóttir og Alex Már Gunnarsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 039
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi og suð-vesturlandi skoðaðir. Á myndinni er hópurinn í Perlunni í Reykjavík.
Höfðaskóli - safn575
Litlu Jól 1970 í Höfðaskóla. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðrún Björg Einarsdóttir, Sesselja Guðmundsdóttir, Guðrún Elvan Friðriksdóttir (d.14.2.2008) (nær), þrjár óþekktar stúlkur, óþekktur kennari (nær), Guðmundur Viðar Guðmundsson (fjær), Unnur Gunnarsdóttir, Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018) (nær), þrír óþekktir, Sigríður Björnsdóttir og þrír óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001012
Þessi mynd er af nokkrum skátaforingjum kringum árið 1963. Fremst fyrir miðju situr Ingólfur Ármannsson félgasforingi Sigurfara á Skagaströnd. Vinstra megin við hann er Tryggvi Þorsteinsson frá Akureyri.Aftan við Tryggva stendur Þórður Jónsson einnig úr Sigurfara og enn aftar er Jón Ísberg (með gleraugu) félagsforingi Bjarma á Blönduósi. Við hlið Þórðar er Gunnhildur Þórmundsdóttir einnig úr Bjarma. Lengst til hægri er svo Jóhannes Torfason úr Bjarma. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu þá athugasemd á
[email protected]
.
Ólafur Bernódusson1037
Myndin var tekin á aðventukvöldi í Hólaneskirkju í desember 1997. Húsfyllir var í kirkjunni og meðal atriða var að börnin á myndinni sungu sunnudagasöngvana sína við altarið.
Guðrún Guðbjörnsdóttir133
Myndin var tekin á USAH fundi en ekki er vitað hvenær. Á henni er Lárus Ægir Guðmundsson að lesa upp en við hlið hans stendur Sigríður Gestsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Óþekktur ljósmyndari542
Hjónin á Skeggjastöðum, Magnús Ólafur Tómasson (d.3.4.1942) og Ingunn Þorvalsdóttir (d.21.7.1971). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1521
Stúlkurnar á myndinni njóta sín á tónleikum í samkomutjaldinu á Kántrýdögum. Freyja Dís Jóhannsdóttir er til vinstri og Hekla Guðrún Þrastardóttir til hægri. Á milli þeirra eru tvær óþekktar stúlkur. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir153
Mynd frá borðhaldi, líklega í Bergen haustið 1992. Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf voru þá staddir þar í tilefni skírnar Arnars Hu 1 sem þá var verið að smíða þar. Arnar Hu 1 kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið vinstra megin við borðið er, frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023), óþekkt, Jóhannes Sveinsson og þrír óþekktir. Hægra megin við borðið eru, frá hægri: Finnur Kristinsson, Rakel Petrea Finssdóttir, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) og þrír óþekktir. Barnið fremst á myndinni er líklega Arnrún Bára Finnsdóttir.
Ólafur Bernódusson1230
Á myndinni er verið að steypa sökkulfætur undir raðhúsin á Ránarbraut 17 - 23 á Skagaströnd. Það, sem er verið að steypa á myndinni, voru 40 sm breiðir sökklar en síðan voru hinir eiginlegu sökklar steypir ofan á þessa "fætur". Eðvarð Hallgrímsson, skeggjaður í hvíta bolnum, byggði húsin að mestu upp á eigin reikning en seldi þau síðan á ýmsum byggingarstigum. Maðurinn í peysunni með ljósa kragann er Einar Þór Ásgeirsson og sá sem er lengst til hægri er líklega Þorsteinn Styrmir Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Myndin var tekin sumarið 1987.
Höfðaskóli - safn591
Þessar stúlkur skipuð keppnislið Höfðaskóla þegar þessi mynd var tekin, líklega í körfubolta eða blaki. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1988. Í aftari röð eru frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Hólmfríður Oddsdóttir, Inga Rós Sævarsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir og Hugrún Pálsdóttir. Í fremri röð frá vinstri: Helga Brynhildur Kristmundsdóttir (d.20.7.2021), Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir og Kristín Jóna Sigurðardóttir.
Höfðaskóli - safn552
Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands kom í heimsókn í Höfðaskóla í október 2002. Á myndinni eru nokkrir úr starfsliði skólans að bíða komu hans. Frá vinstri: Kristján Birgisson, Carl Erik Jakobsen, óþekkt og Dagbjört Bæringsdóttir
Inga Stefánsdóttir 4
Ekki er vitað hvar né hvenær þessi mynd var tekin af félögunum þremur. Þeir eru frá vinstri: Óskar Frímannsson (d.7.2.1950), Kjartan Jóhannsson og Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018).
Ólafur Bernódusson1130
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru Lovísa Vattnes (d.26.3.2018) og óþekktur að sýna eitthvert atriði. Kristín Jónsdóttir með dökkan hatt og Guðrún Pálsdóttir með hvítan hatt, fylgjast með.
Fisk Seafood - safn 271
Myndin var tekin 7. apríl 1982 í hófi í Fellsborg til að fagna komu frystitogarans Örvars HU 21 í fyrsta sinn til Skagastrandar. Mennirnir á myndinni, með myndir af Örvari, eru, frá vinstri: Jón Helgason (d.1.12.2019) vélstjóri, Lárus Ægir Guðmundsson sveitarstjóri Höfðahrepps (nú Sveitarfélagsins Skagstrandar), Guðjón Ebbi Sigtryggsson (d.6.7.2017) skipstjóri og Magnús Sigurðsson vélstjóri og útgerðarstjóri. Skagstrendingur hf lét smíða Örvar sem frystitogara hjá Slippstöðinni á Akureyri en togarinn var frumkvöðull sem frystitogari á Íslandi.
Guðrún Guðmundsdóttir 065
Myndin var tekin 1987 eða 1988 á hótel Dagsbrún. Tilefnið var heimsókn eldri borgara frá Hvammstanga til jafnaldra sinna á Skagaströnd. Á myndinni er Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, sem sá um félagsstarf aldraðra á Skagaströnd, og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) þáverandi oddviti á Skagaströnd. Guðrún heldur á bæjarmerki Hvammstanga, sem gestirnir færðu Skagaströnd að gjöf.
Ingibergur Guðmundsson 398
Þessar kátu stúlkur úr Höfðaskóla tóku þátt í skólamóti á Húnavöllum veturinn 1987. Í aftari röð, frá vinstri: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir. Í fremri röðinni, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir.
1
…
70
71
72
…
79
Leita í myndasafninu
Leita