Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson1203
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvær ungar stúlkur að sýna spariföt. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
20230602_170212
Myndin var etkin á sjómannadaginn 2023. Fjöldi manns mætti við félagsheimilið til að taka þátt í lita-hlaupi og að renna sér í froðurennibraut. Á myndinni er fólk að klæða sig í sérstaka boli fyrir lita-hlaupið.
Ólafur Bernódusson001
Þessi mynd var tekin á aðventukvöldi í desember 1991. Á henni eru fermingarbörn ársins í hvítu kyrtlunum við altarið ásamt kór yngri barna. Spilararnir fremst eru, frá vinstri: Bergþóra Hrönn Guðjónsdóttir, sem var eitt af fermingarbörnunum, Hallgrímur Axelsson, Guðjón Hall Sigurbjörnsson og óþekkt. Séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) er svo lengst til vinstri og Steindór Haraldsson meðhjálpari situr framan við hann. Fermingarbörnin eru,frá vinstri: þrír óþekktir, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir,þrjár óþekktar stúlkur, Þórunn Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólína Laufey Sveinsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson. Stjórnandi kórsins er líklega Edith Molnar. Aðra á myndinni verður hver og einn að þekkja fyrir sig.
Guðrún Guðbjörnsdóttir128
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 af konum á námskeiði í gerð grænmetisrétta. Myndin var tekin framan við kennslueldhúsið í Höfðaskóla en krjúpandi lengst til vinstri er Sólveig Eiríksdóttir sem var leiðbeinandi á námskeiðinu. Hinar konurnar eru, krjúpandi frá vinstri: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Guðbjörg Ólafsdóttir, Steinunn Berndsen og Guðrún Guðbjörnsdóttir. Standandi frá vinstri: óþekkt, Sigríður Lárusdóttir (d.18.11.2015), Þórunn Bernódusdóttir, Íris Valgeirsdóttir, Díana Kristjánsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) og Hjördís Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson1242
Fólkið á myndinni er statt í tveggja hæða útsýnisstrætó í London. Þau voru hluti af hópi Skagstrendinga sem þangað fór til að fara á tónleika með hljómsveitinni Rolling Stones. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Sigríður Gestsdóttir, Finnur Kristinsson, Stefán Jósefsson, Guðbjörg Ólafsdóttir, Ólafur Bernódusson og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir (Día Anna).
Gréta 060
Systkinin á myndinni eru Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958) og Ólafur Björnsson (d.9.5.1970) frá Syðra Hóli. Myndin var líklega tekin í Listigarðinum á Akureyri en ekki er vitað hvenær.
Óskar Kristinsson safn 083
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún sýnir fótboltaleik á Kaupfélagstúninu á sjómannadegi. Ekki er heldur vitað hvernig skipað var í liðin en annað liði spilaði í bússum (klofstígvélum) en hitt liðið í sjóstökkum. Engar sögur fara af hvernig leikurinn fór en margur keppandinn gekk fram af sér í leiknum.
Óþekktur ljósmyndari587
Hjónin á Finnsstöðum, Hafsteinn Sigurbjarnarson (d. 18.5.1974) og Laufey Jónsdóttir (d. 25.12.1969). Þau hjón bjuggu í áratugi í Reykholti á Skagaströnd. Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Óþekktur ljósmyndari532
Hjónin á Keldulandi, Albert Erlendsson (d. 2.3.1984) og Sigulína Lárusdóttir (d. 10.7.1986). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Guðrún Guðmundsdóttir 065
Myndin var tekin 1987 eða 1988 á hótel Dagsbrún. Tilefnið var heimsókn eldri borgara frá Hvammstanga til jafnaldra sinna á Skagaströnd. Á myndinni er Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, sem sá um félagsstarf aldraðra á Skagaströnd, og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) þáverandi oddviti á Skagaströnd. Guðrún heldur á bæjarmerki Hvammstanga, sem gestirnir færðu Skagaströnd að gjöf.
Ingibergur Guðmundsson 398
Þessar kátu stúlkur úr Höfðaskóla tóku þátt í skólamóti á Húnavöllum veturinn 1987. Í aftari röð, frá vinstri: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Soffía Lárusdóttir, og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir. Í fremri röðinni, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir og Hólmfríður Anna Ólafsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 409
Myndin var tekin sumarið 1987 af hluta hóps Skagstrendinga í gönguferð um Hornstrandir. Á myndinni er hópurinn í nestisstoppi líklega efst á Skálakambi við Hlöðuvík. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Hjörtur Guðmundsson, Hafsteinn Pálsson og Kristinn Guðmundsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir145
Ekki er vitað hvar þessir Skagstrendingar eru staddir né hvenær myndin var tekin. Á henni eru, frá vinstri: Sigurður Bjarnason (d.16.5.2022), Björn Ingi Óskarsson, Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001), óþekkt, Jóninna Pálsdóttir (d.21.3.2018), tvö óþekkt, Benóný Gunnarsson og Adolf H. Berndsen.
Höfðaskóli - safn433
Diskótek í fullum gangi á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 24. febrúar 2006.
Ólafur Bernódusson1155
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngri nemendur skólans að flytja einhver skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: María Gret Gunnarsdóttir, Klara Ósk Hjartardóttir, Bylgja Hrund Ágústsdóttir, Brynjar Daði Finnbogason, Jón Árni Baldvinsson, Sindri Freyr Bjönsson og Almar Atli Ólafsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 042
Eldri borgarar í Austur Húnavatnssýslu fóru í sumarferð 9. - 12. júní 1992. Farið var yfir Kjöl og ýmsir staðir á suðurlandi og suð-vesturlandi skoðaðir. Á myndinni var hópurinn staddur á Þingvöllum. Frá vinstri: Rúnar Agnarsson, Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri, Ólafur Pálsson (d.26.3.2004) frá Björgum og Jón Þórðarson (d.1995) frá Reykhólum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir167
Myndin var tekin 19. júlí 1996 þegar fólk frá Skagaströnd fór á nokkrum jeppum úr Miðfirði yfir Arnarvatnsheiðina og suður í Húsafell. Á myndinni eru menn að mýkja jeppana með því að hleypa örlítið úr dekkjunum. Fólkið á henni er, frá vinstri: Vilhjálmur Skaftason, Ólafur Bernódusson, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi), Sigríður Ólafsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Baldvin Hjaltason.
Jónas 29
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Rúnar Loftsson, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Magnús B. Jónsson.
Guðrún Guðbjörnsdóttir130
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 í Höfðaskóla. Þann dag voru konurnar á myndinni á námskeiði í gerð grænmetisrétta undir leiðsögn Sóveigar Eiríksdóttur. Á myndinni eru konurnar að smakka á réttunum sem þær höfðu matreitt. Konurnar eru, frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, fjórar óþekktar konur, Díana Kristjánsdóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010), óþekkt kona og Hjördís Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson1180
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2014 eða 2016. Á henni eru, frá vinstri: Sonja Dröfn Helgadóttir kennari, Vera Ósk Valgarðsdóttir skólastjóri og Guðjón Sigurðsson aðstoðarskólastjóri.
Ingibergur Guðmundsson 479
Fólk úr skíðadeild umf Fram situr og spjallar um framhaldið í sambandi við skíðaskálann vorið 1985. Fólkið er, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Erla María Lárusdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir, Ólafur Bernódusson og Guðmundur J. Björnsson.
Guðrún Guðmundsdóttir 099
Stór hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu fór í sumarferðalag um Borgarfjörð og Þingvelli 13.- 16. ágúst 1989. Á myndinni dansar Snorri Gíslason (d.29.5.1994) við óþekkta konu frá Reykhólum á danskvöldi í Reykholti þar sem hópurinn gisti.
2001131
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak, undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á þessari mynd eru leikararnir, frá vinstri: Birna Blöndal, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Höfðaskóli - safn548
Ungir nemendur utan við Höfðaskóla á sólardegi. Líklega var myndin tekin í október 2002 og krakkarnir að bíða eftir heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar forseta í skólann. Krakkarnir eru frá vinstri: Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, tvær óþekktar, Ívan Árni Róbertsson, óþekkt, Sigubjörg Katla Valdimarsdóttir, Hanna Maria Gylfadóttir, fimm óþekkt, ?Fannar Guðlaugsson?, Sigríður Sól Indriðadóttir og óþekktur. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu krökkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 114
Systkinin á myndinni eru, frá vinstri: Guðjón Örn Arason, Þórey Fjóla Aradóttir og Lýður Ragnar Arason.
Skagaströnd - safn539
Myndin var tekin 1946-47 þegar síldarverksmiðjan var í byggingu. Á myndinni eru óþekktir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf, sem sáu um allan vélbúnað í verksmiðjunni. Hér eru þeir að bregða á leik í brekkunni hjá Einbúanum, sem er kletturinn til hægri. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 437
Vinahópur frá Skagaströnd fór saman í gönguferð um Hornstrandir um verslunarmannahelgina 1986. Á þessari mynd er hluti hópsins léttklæddur á "köldum klaka" einhversstaðar á leiðinni. Kristinn Guðmundsson er til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri en stúlkan á milli þeirra er óþekkt.
Guðrún Guðbjörnsdóttir129
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 af konum í kennslueldhúsinu í Höfðaskóla. Þarna eru þær í óða önn að matreiða grænmetisrétti því þær voru á námskeiði í slíkri matargerð. Frá vinstri á myndinni: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sólveig Eiríksdóttir leiðbeinandi, Íris Valgeirsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2011) og Þórunn Bernódusdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 572
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin á kennarastofunni í Höfðaskóla en líklega var það kringum 1995. Þórunn Bernódusdóttir er til vinstri og Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) til hægri. Til gamans má geta þess að báðar þessar konur áttu sinn tíma sem leikskólastjórar á leikskólanum Barnaból.
Gréta 046
Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) í Laufási er til vinstri á myndinni en konan til hægri er ekki þekkt. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Gréta 105
Myndin var tekin við Laufás 1964. Stúlkurnar tvær eru Gréta Jónsdóttir í Laufási til vinstri og Aðalheiður Másdóttir í Réttarholti til hægri. Í baksýn er Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) móðir Grétu.
Höfðaskóli - safn502
Myndin var tekin á flippíþróttadegi Höfðaskóla í íþróttahúsinu veturinn 2000 - 2001. Á henni er þáverandi 4. bekkur. Erfitt er að þekkja nemendurna vegna þess hve mikið andlitin eru máluð en á henni eru, frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir kennari, Kristján Steinar Kristjánsson, Patrik Snær Bjarnason, Sævar Hlynur Tryggvason, Elna Ragnarsdóttir, óþekktur, Aðalheiður Ragnarsdóttir, ?Jóhann Örn Stefánsson?, Hanna María Gylfadóttir, óþekkt, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tvær óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn553
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla bíður komu Ólafs Ragnars Grímssonar forseta Íslands í heimsókn í skólann í október 2002. Frá vinstri: Björk Hlöðversdóttir, tvær óþekktar, Sólrún Ólína Sigurðardóttir, Sigríður Sól Indriðadóttir, Arnór Snorri Gíslason (fjær), óþekkt (nær), Valgerður Guðmundsdóttir, óþekkt, Friðvin Ingi Ernstsson Berndsen, Sindri Njáll Hafþórsson, óþekktur, Albert Ingi Haraldsson, Eyþór Kári Egilsson, Sindri Jóelsson og óþekktur.
Guðrún Guðmundsdóttir 091
Myndin var tekin á Hólmavík 16. ágúst 1988 af Húnvetningum á leið á öldrunarmót í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp dagana 16.- 20. ágúst. Fólkið er,frá vinstri: Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020), Guðrún Þ. Guðmundsdóttir fararstjóri, óþekkt, Friðrik Indriðason (d.20.11.1993), óþekkt, Valgerður Kristjánsdóttir, Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004), óþekkt, Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996), Jóhanna Sigurjónsdóttir (d.15.12.1990), óþekkt, Snorri Gíslason (d.29.5.1994), Soffía A. Sigurðardóttir (d.24.10.2002), Ingvar Jónsson (d.18.1.2003), þrjú óþekkt, Anna H. Aspar (d.1.9.1999), Sigurður Ólafsson bílstjóri hópsins, Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) og Rúnar Agnarsson. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 513
Nemendur úr Höfðaskóla stilla sér upp til myndatöku í skólaferðalagi vorið 1985, líklega á Þingvöllum. Sitjandi fremst er, frá vinstri: Herdís Jakobsdóttir?, Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Erlingur Ottósson, Viggó Magnússon og Hans Birgir Högnason. Standandi í fremstu röð, frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Sveinn Jónasson, Sigríður Ásgeirsdóttir, Hulda Magnúsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Katrín Sigurjónsdóttir, Áslaug Sif Gunnarsdóttir, Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) og Rafn Ingi Rafnsson. Aðrir á myndinni, talið frá vinstri: Arnar Erlingsson, Davíð Reynisson (nær), Hjalti Magnússon ? (fjær), Óli Hjörvar Kristmundsson, Reynir Lýðsson, Guðmundur Oddsson, óþekktur, Baldur Eðvarðsson, Jóhanna Sigurjónsdóttir, óþekktur, Stefanía Elísabet Hallbjörnsdóttir, Rakel Jakobína Jónsdóttir, Dagbjört Jóhannsdóttir (nær), óþekktur (fjær), óþekktur, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Stefán Ægir Lárusson, Jón Arnarsson, Ægir Jónsson og Þráinn Bessi Gunnarsson. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu nemendunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 464
Arna Guðrún Jónsdóttir og Jónas Fanndal Þorvaldsson sigurvegarar í sínum aldursflokki í 17. júní móti umf Fram 1985 með verðlaunabikara sína. Aðrir á myndinni eru, talið frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Heimir Guðmundsson,tveir óþekktir, Arnar Arnarsson, óþekkt. Guðný Finnsdóttir, óþekktur, Hugrún Sigurðardóttir (nær), Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir (fjær).
Ólafur Bernódusson1114
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Kennararnir höfðu útbúið þrautabraut á skólavellinum sem nemendur fóru í gegnum sér til gamans. Á myndinni keppa nemendur í belgjahoppi. Stúlkan til vinstri er Sigurbjörg Konráðsdóttir en á móti henni keppir Eydís Inga Sigurjónsdóttir. Lengst til vinstri er Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) kennari. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Óskar Kristinsson - safn 239
Trollið tekið. Karlarnir á myndinni eru óþekktir. Þeir eru að passa að höfuðlínan sé klár þ.e. lendi ekki undir keðjunni sem er fest í bobbingana. Bobbingar eru stórar járnkúlur við neðri kantinn á opinu á trollinu. Þeir skrönglast svo eftir botninum þegar veitt er með því. Kúlulínan - höfuðlínan - er aftur á móti efst í opinu á trollinu og heldur því opnu í sjónum með floti sínu. Það er því mikilvæg að bobbingalínan og höfuðlínan flækist ekki saman því þá er trollið lokað í sjónum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 570
Myndin var tekin á sjómannadegi en ekki er vitað hvenær. Á henni er sigursveit í kappróðri fullorðinna karla að taka á móti sigurlaunum sínum. Frá vinstri: Ragnar Smári Ingvarsson stýrimaður sveitarinnar, Víðir Ólafsson, Jón Gunnar Jósefsson, Ragnar Haukur Högnason, Gunnar Þór Gunnarsson, Hafsteinn Pálsson og Hjalti Sævar Hjaltason. Kynnir dagsins, Magnús B. Jónsson, er í ræðupúltinu tilbúinn að afhenda bikarinn.
Gréta 127
Því miður er ekkert vitað um þessa fallegu mynd af prúðbúnu konunum. Myndin er póstkort og aftan á henni stendur: "Fjóla Fjóla Sigurðardóttir Laufási Skagaströnd". Ef þú þekkir einhverja af konunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1237
Þessi hópur gekk Laugaveginn saman einhverntíma kringum 1990. Myndin var tekin í Landmannalaugum áður en lagt var af stað. Maðurinn í rauðu úlpunni með bláa húfu er Ólafur Bernódusson. Framan við hann krýpur Lárus Ægir Guðmundsson. Hægra megin við Ólaf eru hjónin Gylfi Sigurðsson og Guðrún Guðbjörnsdóttir en framan við þau krýpur dóttir þeirra, Jóney Hrönn Gylfadóttir. Hinir ferðafélagarnir komu hingað og þaðan af landinu.
Jónas 35
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Elín Njálsdóttir, Lárus Ægir Guðmundsson og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson1040
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni streyma nemendur út um innganginn sem var vestan á skólanum að norðanverðu.
Gréta 079
Mæðgur frá Neðri Harrastöðum. Anna Gísladóttir (d.22.7.1998) með dætur sínar Jóhönnu Davíðsdóttur vinstra megin og Aðalheiði Davíðsdóttur til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 462
Myndin var tekin á sjómannadegi 1985. Tunnuboðhlaup var árvisst og vinsælt atriði á sjómannadegi. Fólk var látið hlaupa ákveðna vegalengd og skríða gegnum tunnu á miðri leið og leysa einhverja þraut þar. Við endamarkið beið svo gjarnan einhver önnur þraut áður en hlaupið var til baka og næsti maður í liðinu tók við. Á þessari mynd eru Eðvarð Hallgrímsson nær okkur og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) fjær, í tunnunum, að blása í blöðrur þangað til þær springa.
Óþekktur ljósmyndari540
Sambýlisfólkið á Ósi í Nesjum, Jóhann Jósefsson (d.29.4.1980) og Rebekka Guðmundsdóttir (d.30.9.1959). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Fisk Seafood - safn 274
Myndin var tekin 7. apríl 1982 þegar Örvar Hu 21 kom í fyrsta sinn til heimahafnar á Skagaströnd nýr frá Akureyri. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Sveinn S. Ingólfsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf, Gylfi Sigurðsson stjórnarmaður í félaginu, Magnús Ólafsson (d. 23.7.2012) stjórnarmaður, Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002) stjórnarmaður, Gunnar Ragnars framkvæmdastjóri Slippstöðvarinnar á Akureyri og Stefán Reykjalín stjórnarformaður Slippstöðvarinnar.
Ólafur Bernódusson1042
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni fylgjast nemendurnir með Magnúsi Ólafssyni (d.23.7.2012) slökkvistjóra þar sem hann sýnir rétt handtök við að slökkva eld í potti með eldvarnarteppi.
2001509
Á myndinni er hópur ungmenna að gróðursetja trjáplöntur á reitnum norðan vð söluskálann. Til vinstri á myndinni er Aðalbjörg Hafsteinsdóttir dökkklædd. Jón Jónsson formaður skógræktarfélgs Skagastrandar er hægra megin á myninni með ljósa húfu með skaft í hendinni. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ekki er heldur vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1179
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2014 eða 2016. Á árshátíðum komu kennarar og starfsfólk gjarnan fram með eitt skemmtiatriði sem sýndi það fólk í öðru ljósi en vant var í skólanum. Á myndinni er eitt slíkt dansatriði í gangi. Fólkið er, frá vinstri: Sigurður Hreiðarr Björgvinsson, Helga Gunnarsdóttir, Berglind Rós Helgadóttir, Dagný Rósa Úlfarsdóttir, Finnbogi Guðmundsson, Guðrún Elsa Helgadóttir, Svenny Hallbjörnsdóttir, Ásdís Erla Steingrímsdóttir, Sara Diljá Hjálmarsdóttir og Guðjón Sigurðsson.
2001027
Þessi mynd var tekin einhvertíma kringum 1965. Á henni eru Áslaug Hrólfsdóttir í Bjarmalandi til vinstri og Guðbjörg Vera Kristinsdóttir í Héðinshöfða til hægri. Aftan við Guðbjörgu sér í Eddu Þórarinsdóttur í Höfðaborg.
Ólafur Bernódusson1201
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvíburarnir Svanur Árnason og Þröstur Árnason að stíga niður af "sviðinu". þröstur er til hægri
Ólafur Bernódusson1070
Myndin var tekin í apríl 1997 af hópi fólks að æfa kántrýdans í Fellsborg. Mikill áhugi fyrir slíkum dönsum var um tíma á Skagströnd og æfingar reglulega. Hópur dansara fór seinna á Íslandsmót í slíkum dönsum og kom út sem Íslandmeistari. Í röðinni næst okkur eru: Þórunn Júlíanna Guðmundsdóttir hvítklædd, Magnús B. Jónsson, Guðrún Pálsdóttir og Steinunn Steinþórsdóttir. Hægra megin við Þórunni sjást: óþekkt, Jensína Lýðsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, óþekkt, María Alexandersdóttir og óþekkt. Milli Magnúsar og Þórunnar sjást: Signý Richter, Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Ragnheiður Magnúsdóttir og óþekkt. Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) sést á milli Magnúsar og Guðrúnar.
Ingibergur Guðmundsson 362
Tveir efstu í karlaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Hágerðisvelli í september 1985. Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) í efstu tröppu og Jón Ingi Ingvarsson í annarri. Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir verðlaunin.
Ingibergur Guðmundsson 397
Þessir krakkar úr Höfðaskóla kepptu, ásamt fleirum úr skólanum, á skólamóti á Húnavöllum 1987, þar sem þessi mynd var tekin. Í fremri röð eru, frá vinstri systurnar: Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir, Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir og Margrét Jóhannsdóttir. Standandi eru, frá vinstri: Sigvaldi Guðmundsson, Baldur Magnússon, Skúli Tómas Hjartarson og Atli Þór Þórsson.
Jónas 12
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Elín Njálsdóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir 100
Stór hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu fór í sumarferðalag um Borgarfjörð og Þingvelli 13.- 16. ágúst 1989. Á myndinni dansa Rúnar Agnarsson og Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, fararstjóri hópsins, á danskvöldi í Reykholti þar sem hópurinn gisti.
Höfðaskóli - safn401
Nemendur í Höfðaskóla fædd 1974 ásamt kennara sínum. Aftasta röð frá vinstri: Svava Magnúsdóttir, Guðný Kristín Finnsdóttir, Atli Þór Þórsson, Ása Ósk Ásgeirsdóttir, Friðrik Gunnlaugsson og Björk Axelsdóttir kennari. Miðröð frá vinstri: Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir, Björn Sigurðsson, Jóhanna Karlsdóttir, Gunnar Halldór Hallbjörnsson og Jón Heiðar Jónsson. Fremsta röð frá vinstri: Aðalheiður Sif Árnadóttir, Baldur Magnússon, Reynir Lýðsson og Bryndís Ingimarsdóttir. Myndin var tekin kringum 1985.
Guðrún Guðmundsdóttir 074
Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010) í desember 1987 á sýningu í Höfðaskóla á munum sem eldri borgarar gerðu í félgsstarfi aldraðra. Maðurinn með kaffibollann er Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) og standandi með hendur á mjöðmum er Jóhanna Thorarensen (d. 6.3.2004).
Ólafur Bernódusson1115
Myndin var tekin á útivistardegi Höfðaskóla í maí 1996. Vikurnar fyrir daginn höfðu nemendur safnað tómum mjólkurfernum og límt saman eftir ákveðnu kerfi. Samlímingarnar voru svo settar saman í píramíta úti á skólalóð. Á myndinni eru fernukubbarnir komnir út á lóð og á að fara að raða þeim saman. Krakkarnir og kennararnir á henni eru óþekktir.
1
…
71
72
73
…
79
Leita í myndasafninu
Leita