Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson1201
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd eru tvíburarnir Svanur Árnason og Þröstur Árnason að stíga niður af "sviðinu". þröstur er til hægri
Ingibergur Guðmundsson 437
Vinahópur frá Skagaströnd fór saman í gönguferð um Hornstrandir um verslunarmannahelgina 1986. Á þessari mynd er hluti hópsins léttklæddur á "köldum klaka" einhversstaðar á leiðinni. Kristinn Guðmundsson er til vinstri og Ingibergur Guðmundsson til hægri en stúlkan á milli þeirra er óþekkt.
Guðrún Guðbjörnsdóttir129
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 af konum í kennslueldhúsinu í Höfðaskóla. Þarna eru þær í óða önn að matreiða grænmetisrétti því þær voru á námskeiði í slíkri matargerð. Frá vinstri á myndinni: Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sólveig Eiríksdóttir leiðbeinandi, Íris Valgeirsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir, Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2011) og Þórunn Bernódusdóttir.
Ólafur Bernódusson1070
Myndin var tekin í apríl 1997 af hópi fólks að æfa kántrýdans í Fellsborg. Mikill áhugi fyrir slíkum dönsum var um tíma á Skagströnd og æfingar reglulega. Hópur dansara fór seinna á Íslandsmót í slíkum dönsum og kom út sem Íslandmeistari. Í röðinni næst okkur eru: Þórunn Júlíanna Guðmundsdóttir hvítklædd, Magnús B. Jónsson, Guðrún Pálsdóttir og Steinunn Steinþórsdóttir. Hægra megin við Þórunni sjást: óþekkt, Jensína Lýðsdóttir, Sólveig Eiðsdóttir, óþekkt, María Alexandersdóttir og óþekkt. Milli Magnúsar og Þórunnar sjást: Signý Richter, Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Ragnheiður Magnúsdóttir og óþekkt. Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) sést á milli Magnúsar og Guðrúnar.
Ingibergur Guðmundsson 362
Tveir efstu í karlaflokki á fyrsta golfmóti Golfklúbbs Skagastrandar á Hágerðisvelli í september 1985. Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001) í efstu tröppu og Jón Ingi Ingvarsson í annarri. Ólafur Bernódusson mótsstjóri afhendir verðlaunin.
Jónas 12
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Elín Njálsdóttir.
Ólafur Bernódusson1149
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Krakkarnir á myndinni voru að flytja atriði yngri nemenda á skemmtuninni. Krakkarnir eru, frá vinstri: Arna Rún Arnarsdóttir, Ólafur Halldórsson, Benný Blær Sæmundsen Árnadóttir og Magnús Sólberg Baldursson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001059
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 en ekki er vitað hvenær. Þegar mjög mikið fiskaðist, eins og á myndinni, þurfti að blóðga fiskinn niður í móttökuna því það tók töluverðan tíma að vinna hann í frystinguna. Á myndinni eru, frá vinstri: Ólafur Ásgeirsson, Ragnar Högnason með bláa lambhúshettu, Jón Alexandersson, Gunnar Jónsson með bláa húfu, óþekktur, Sigurður Alexandersson, óþekktur, Hjörtur Guðbjartsson bograndi á hnjánum, Quentin Bates og Páll Valgeirsson.
Höfðaskóli - safn624
Í febrúar 1987 var haldin vinnuvika í Höfðaskóla og þá var þessi mynd tekin. Venjulegt skólahald var fellt niður en nemendur og kennarar unnu að ýmsum óhefbundnum verkefnum. Þessir ungu menn eru að gantast í pásu. Þeir sitja framan við "Fuglaskápinn" en í honum var geymt safn skólans af uppstoppuðum fuglum og nokkrum öðrum forvitnilegum gripum úr náttúrunni. Vegna breytinga á húsnæði skólans eru fuglarnir því miður ekki sýnilegir lengur heldur í kössum í geymslu. Strákarnir á myndinni eru frá vinstri: Árni Max Haraldsson, ?Ólafur Elínarson?, Þorlákur Ómar Guðjónsson og Viktor Pétursson.
Guðrún Guðmundsdóttir 057
Myndin er frá félagsstarfi aldraðra á Skagaströnd 1987. Þá var starfið í skólastofu á neðri hæðinni í Höfðaskóla undir stjórn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur. Frá vinstri: Guðbjartur Guðjónsson (d.23.9.1992) frá Vík, Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) og Sigurlaug Jónsdóttir (d.15.8.2011) frá Ási.
Ingibergur Guðmundsson 362
Myndin var tekin í maí 1988 á kennarastofunni í Höfðaskóla. Á henni eru kennararnir Torfhildur Stefánsdóttir og Magnús Ólafsson (d.23.7.2012).
Ingibergur Guðmundsson 377
Myndin var tekin 1988 þegar fólkið á henni var í vinabæjarheimsókn í Växjö í Svíþjóð. Guðmundur Sigvaldason (d.8.2.2017) þáverandi sveitarstjóri er til vinstri og Hildugunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) fulltrúi Norræna félagsins á Skagaströnd til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 517
Myndin var tekin í maí 1985 þegar þessir kennarar voru í skólaferðalagi með nemendur úr Höfðaskóla. Inga Matthíasdóttir íþróttakennarai er til vinstri og Jón S. Pálsson Skólastjóri til hægri. Ekki er vitað hvar myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn564
Beðið eftir matnum í skólaferðalagi nemenda Höfðaskóla til Danmerkur einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Stúlkurnar á myndinni eru, frá vinstri: Hanna Rúna Gestsdóttir, Fjóla Dögg Björnsdóttir, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, Kristbjörg Una Guðmundsdóttir og Ester Ösp Víðisdóttir.
2001104
Myndin var tekin 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er síðutogarinn Arnar HU 1, sem var fyrsta skip Skagstrendings hf. Þetta var mikið aflaskip og á myndinni er búið að landa úr honum afla á bryggjuna (Útgarð) og þar er fólk úr landi á kafi í aðgerð svo Arnar geti aftur haldið til veiða. Þessi aðferð var síðan bönnuð. Þá var gripið til þess ráðs að Arnar lagðist í Kálfshamarsvík og þar var fólk ferjað um borð til að hjálpa til í aðgerðinni. Segja má að þetta skip hafi lagt grunninn að velgengni Skagstrendings hf.
Höfðaskóli - safn 640
Þessa mynd tók Inga Matthíasdóttir íþróttakennari í Fellsborg 1985 af fimleikahópi nemenda úr Höfðaskóla sem hún þjálfaði. Myndin var tekin á æfingu fyrir árshátíð þar sem hópurinn sýndi listir sínar. Sitjandi á gólfinu eru, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, María Rós Karlsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kristjana Jónsdóttir og Arna Guðrún Jónsdóttir. Standandi eru, frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir, Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir. Efst standa Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir vinstra megin og Guðný Finnsdóttir hægra megin.
Ingibergur Guðmundsson 361
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fæddir 1974 að flyta skemmtiatriði fyrir aðra nemendur og kennarana. Frá vinstri: Jón Heiðar Jónsson, Svava Magnúsdóttir, Guðbjörg Kristmundsdóttir og Guðný Finnsdóttir.
Gréta 111
Aftan á þessa mynd, sem var tekin utan við Hótel Villa Nova, er skráð: "Tekið á Sauðárkrók, af nemendum þar í útskurði. Margrét Björnsd. Syðra-Hóli er með á myndinni". Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) oftast kennd við Laufás er önnur frá vinstri í þriðju röð en aðrir á myndinni eru óþekktir. Á mynd númer 20032 má sjá hluta af verkefnum hópsins sem var í læri hjá Geir Þormar. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1107
Myndin var tekin í maí 1996 þegar félagskonur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Myndin var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni flytur Birna Blöndal (d.26.10.2018) ræðu og er að heiðra þær Jónu Guðrúnu Vilhjálmsdóttur (d.13.7.2003) vinstra megin og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010) til hægri. Sitjandi til hægri er Steinunn Grímsdóttir en aðrar á myndinni eru óþekktar.
Ólafur Bernódusson002
Myndin var tekin fyrir jólin 1991 í Hólaneskirkju þegar þar var haldin aðventumessa. Á henni er séra Egill Hallgrímsson (d.9.6.2021) fyrir altarinu ásamt fermingarbörnum sem fermdust vorið 1992. Til vinstri situr meðhjálparinn Steindór Haraldsson. Fermingarbörnin eru, frá vinstri: Hjörtur Jónas Guðmundsson, Arnar Ólafur Viggósson, Viðar Guðmundsson, Jón Örn Stefánsson, Þóra Ágústsdóttir, Árný Guðrún Ólafsdóttir, Bergþóra Hrund Guðjónsdóttir, Guðrún Björk Elísdóttir, Salóme Ýr Rúnarsdóttir, Halla Kristín Árnadóttir, Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir, Ásta Ýr Ásgeirsdóttir, Þórunn Ævarsdóttir, Sigurður Berndsen, Ólína Laufey Sveinsdóttir og Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir. Á myndina vantar Jón Ólaf Sigurjónsson sem tilheyrði hópnum. Hópurinn var sá fyrsti sem fermdist frá Hólneskirkju hinni nýrri en hún var vígð 20. október 1991. Fyrstur allra til að fermast frá kirkjunni var Arnar Ólafur Viggósson.
Ingibergur Guðmundsson 471
Skúli Tómas Hjartarson og Jóney Hrönn Gylfadóttir að flétta bastkörfur í vinnuviku í Höfðaskóla í október/nóvember 1985.
Höfðaskóli - safn460
Einhvertíma að vori til kringum 2000 var lögreglan fengin til að koma og skoða reiðhjól nemenda í Höfðaskóla. Á myndinni eru þau tilbúin með hjálmana sína, frá vinstri: Sævar Hlynur Tryggvason, Ragnar Már Björnsson, Patrik Snær Bjarnason, Sigurrós Ósk Rúnarsdóttir og tveir óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 433
Þór Gunnlaugsson lögreglumaður talar við börn úr Höfðaskóla í vinnuviku í febrúar 1987. Stúlkan til vinstri í grænköflóttri peysu er Árný Guðrún Ólafsdóttir. Aftan við hana sitja Heiða Ósk Stefánsdóttir kennari og Eygló Gunnarsdóttir. Viktor Pétursson styður hönd undir kinn og horfir til himins en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 010
Á myndinni eru, frá vinstri, systurnar Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991), Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) og Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958) frá Syðra Hóli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001099
Myndin var tekin við Hvalá á Ströndum 2003. Þá voru þar á ferð nokkrir Skagstrendingar á jeppunum sínum en ekki er hægt að fara lengra út Strandir á bílum en að Hvalánni. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson, Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson, ?Indriði Hauksson?, Eiríkur Lýðsson og Ari Jón Þórsson.
Höfðaskóli - safn485
Myndin var tekin á útivistardegi í Höfðaskóla, líklega vorið 2000. Krakkarnir eru að leggja í sjóferð á Benna Ólafs Hu. Krakkarnir stjórnborðsmegin eru, frá vinstri: Stefán Agnar Gunnarsson, Guðrún Sigríður Hjálmtýsdóttir og Dóra Rebekka Sævarsdóttir. Bakborðsmegni, frá vinstri: Anna Dúna Rúnarsdóttir, Eva Rún Rúnarsdóttir, Anna María Magnúsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, Eygló Amelía Valdimarsdóttir, Tinna Björk Gunnarsdóttir, óþekkt og Birkir Rúnar Jóhannsson. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jónas 43
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinsttri: Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Eðvarð Hallgrímsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
2001029
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það einhverntíma kringum 1965. Á henni eru að skemmta sér: Árni Ólafur Sigurðsson í horninu til vinstri, Þórarinn Björnsson í miðjunni og Örn Berg Guðmundsson til hægri. Í baksýn er svo fólk í keleríi.
Höfðaskóli - safn534
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum árið 2000. Á henni eru nemendur Höfðaskóla fædd 1986 að bíða eftir vitnisburðum sínum eftir veturinn á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson skólastjóri, Sonja Hjördís Berndsen, Eiður Bjarki Þórarinsson, Hörður Aðils Vilhelmsson, Ragnar Ásmundur Einarsson, Sóley Elsa Magnúsdóttir Blöndal, Sigurbjörg Dís Konráðsdóttir, Þórunn Júlía Guðmundsdóttir, Eydís Inga Sigurjónsdóttir og Pétur ??
2001131
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak, undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á þessari mynd eru leikararnir, frá vinstri: Birna Blöndal, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Höfðaskóli - safn548
Ungir nemendur utan við Höfðaskóla á sólardegi. Líklega var myndin tekin í október 2002 og krakkarnir að bíða eftir heimsókn Ólafs Ragnars Grímssonar forseta í skólann. Krakkarnir eru frá vinstri: Bergrós Helga Hafsteinsdóttir, tvær óþekktar, Ívan Árni Róbertsson, óþekkt, Sigubjörg Katla Valdimarsdóttir, Hanna Maria Gylfadóttir, fimm óþekkt, ?Fannar Guðlaugsson?, Sigríður Sól Indriðadóttir og óþekktur. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu krökkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir167
Myndin var tekin 19. júlí 1996 þegar fólk frá Skagaströnd fór á nokkrum jeppum úr Miðfirði yfir Arnarvatnsheiðina og suður í Húsafell. Á myndinni eru menn að mýkja jeppana með því að hleypa örlítið úr dekkjunum. Fólkið á henni er, frá vinstri: Vilhjálmur Skaftason, Ólafur Bernódusson, Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi), Sigríður Ólafsdóttir, Gylfi Sigurðsson og Baldvin Hjaltason.
Guðrún Guðmundsdóttir 100
Stór hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu fór í sumarferðalag um Borgarfjörð og Þingvelli 13.- 16. ágúst 1989. Á myndinni dansa Rúnar Agnarsson og Guðrún Þ. Guðmundsdóttir, fararstjóri hópsins, á danskvöldi í Reykholti þar sem hópurinn gisti.
Guðrún Guðmundsdóttir 099
Stór hópur eldri borgara úr Húnavatnssýslu fór í sumarferðalag um Borgarfjörð og Þingvelli 13.- 16. ágúst 1989. Á myndinni dansar Snorri Gíslason (d.29.5.1994) við óþekkta konu frá Reykhólum á danskvöldi í Reykholti þar sem hópurinn gisti.
Gréta 114
Systkinin á myndinni eru, frá vinstri: Guðjón Örn Arason, Þórey Fjóla Aradóttir og Lýður Ragnar Arason.
Ólafur Bernódusson1161
Myndin var líklega tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg vorið 2014. Á henni eru nokkra stúlkur að sýna frumsaminn dans. Stúlkurnar eru, frá vinstri: Anna Marie Gruenberger, Ástríður Magnúsdóttir, Freyja Dis Jóhannsdóttir, Bylgja Ágústsdóttir, Arna Rún Arnarsdóttir og Karen Líf Sigurbjargardóttir. Á gólfinu framan við sviðið er Sara Diljá Hjálmarsdóttir kennari.
Ólafur Bernódusson1188
Skólahljómsveit skemmtir á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg líklega 2016. Ólafur Halldórsson spilar á bassa, Snæfríður Guðmundsdóttir syngur og Laufey Lind Ingibergsdóttir spilar á gítar og syngur.
Óþekktur ljósmyndari665
Hjónin á Sæbóli, Indriði Brynjólfsson (d.8.12.1977) og Ingunn Margrét Díana Guðborg Gísladóttir (d.23.10.1951). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
20240928_221411
28. september 2024 héldu meðlimir hljómsveitarinnar Janus tónleika í Bjarmanesi fyrir fullu húsi. Janus er langlíf hljómsveit sem kemur saman með nokkurra ára millibili til að skemmta sér og öðrum. Meðlimir sveitarinnar eru, frá vinstri: Fannar Viggósson, Þórarinn Grétarsson, Hjörtur Guðbjartsson, Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson. Lengst til hægri sér í Magnús B. Jónsson einn af gestunum á tónleikunum.
Gréta 016
Myndin var tekin utan við gamla bæinn á Syðra Hóli. Á henni eru, frá vinstri: óþekkt stúlka, Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958) og Ásdís Magnúsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1222
Á myndinni eru vinningshafar í kvennaflokki á meistaramóti Golfklúbbs Skagastrandar 1986 með verðlaun sín. Frá vinstri: Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Guðrún Pálsdóttir.
Óþekktur ljósmyndari557
Hjónin á Örlygsstöðum með tvo af sonum sínum. Frá vinstri: Sigurlaug Björnsdóttir (d.7.9.1982), Björn Haraldsson (d.21.9.1988), Haraldur William Sigurjónsson (d.13.5.1986) og Grétar Jón Haraldsson. Hjónin Haraldur og Sigurlaug bjuggu mjög lengi á Iðavöllum á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1506
Kántrýhátiðum lauk ávalt með messu í samkomutjadinu. Messurnar nutu mikilla vinsæld og alltaf var húsfyllir eins og er á þessari mynd. Í messunum var mikil áhersla lögð á líflegan söng sem kirkjukór Hólaneskirkju leiddi með aðstoð ýmissa betur þekktar söngvara og tónlistramanna.
Jónas 50
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Bjarnhildur Sigurðardóttir (22.4.2016), Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í sýningunni.
20240312_100026
Pokakast er skemmtilegur leikur þar sem þrautin er að kasta litlum grjónapokun ofan í gat á skábretti í sjö metra fjarlægð. Leikurinn hentar mjög vel fyrir eldra fólk sem þarf að hreyfa sig innan marka. Á myndinni, sem tekin var í mars 2024 í íþróttahúsinu, eru að keppa sín á milli,og við sjálf sig, frá vinstri: Sævar Rafn Hallgrímsson, Pétur Eggertsson, Guðmundur Ólafsson, Eygló Gunnarsdóttir, Guðrún Pálsdóttir og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson1081
Myndin var tekin á Kántrýhátíð í ágúst 1996. Þá var boðið upp á skemmtisiglingu með bátum frá Skagaströnd. þessi mynd var tekin um borð í Hafrúnu HU 12. Næst okkur til vinstri er Sigurður Björnsson með son sinn Harald Brynjar í fanginu og Ernst Berndsen hallar sér upp að lunningunni en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jónas 51
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Birna Blöndal (d.26.10.2018) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í sýningunni.
Jónas 31
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Birna Blöndal og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1125
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru konurnar á myndinni að flytja hugljúft jólaatriði. Konurnar eru, frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Lovísa Vattnes (d.26.3.2018), Elín Njálsdóttir, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006), Vigdís Ómarsdóttir og Jensína Lýðsdóttir.
Ólafur Bernódusson1158
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nemendur að flytja tónlistaratriði með tónmenntakennara sínum, Hugrúnu Sif Hallgrímsdóttur. Börnin eru, frá vinstri: Magnús Sólberg Baldursson, Karen/Rakel Elvarsdóttir, Ástríður Magnúsdóttir, Ólafur Halldórsson, Rakel/Karen Elvarsdóttir, Ívan Orri Eiríksson, Pétur Atli Árnason, Ingólfur Eðvald Björnsson, Freyja Dís Jóhannsdóttir, Hekla Guðrún Þrastardóttir og Guðrún Björgvinsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 525
Myndin var tekin þegar verið var að steypa upp húsið á Suðurvegi 13 á Skagaströnd í september 1996. Eins og sjá má var það gert upp á gamla mátann með hrærivél. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Pétur Eggertsson, Viktor Pétursson, Helgi Gunnarsson, Sigurjón Ástmarsson Hannes Óskarsson, Hrólfur Pétursson og Ómar Jakobsson.
Ljósmyndakeppni 2022 14
Í maí - júní 2022 stóð Gleðibankinn fyrir opinni ljósmyndakeppni. Gefin voru upp sex þemu/verkefnaflokkar og áttu keppendur að senda inn eina mynd í hverjum flokki. Ekki var skylda að taka þátt í öllum flokkunum. Þriggja manna valnefnd valdi síðan fimm bestu myndirnar í hverjum flokki, sem voru síðan prentaðar í A 3 stærð. Þær myndir voru svo sýndar í Bjarmanesi og Fellsborg sinn hvorn daginn. Um 200 manns kom á sýninguna og kaus bestu mynd í hverjum flokki. Þessa mynd tók helena Mara Velemir og sendi inn í flokkinn "Gleði/hamingja". Myndin var ein af fimm sem valnefndin valdi á sýninguna í þessum flokki.
Ólafur Bernódusson1168
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja frumsamið skemmtiatriði. Börnin eru, frá vinstri: Viktor Örn Einarsson, Valgerður Guðný Ingvarsdóttir, Victoría Hólmgeirsdóttir, Elín Ósk Björnsdóttir og Sigurður Aron Björnsson.
2001001
Nokkrir Skagstrendingar í hópi ferðamanna í útsýnisferð á Japan. Ástæða þess að Skagstrendingarnir voru þarna var að þeir voru að sækja Arnar HU 1 sem var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf og smíðaður í Japan. Eins og sjá má var myndin tekin í ágúst 1973. Skagstrendingarnir eru hægra megin á myndinni. Í fremstu röð eru,frá hægri: Óskar Þór Kristinsson, Gylfi Guðjónsson og Gylfi Sigurðsson. Í aftari röðinni eru, frá hægri; Árni Ólafur Sigurðsson, Gunnlaugur Árnason og Birgir Þórbjarnarson. Aftast stendur svo Reynir Sigurðsson upp úr hópnum.
Ingibergur Guðmundsson 390
Á myndinni er leikstjórinn, Þröstur Guðbjartsson (d.17.7.2021) (sitjandi) að gefa Hallveigu Ingimarsdóttur og Þorvaldi Skaftasyni leiðbeiningar á æfingu á leikritinu Fyrsta Öngstræti til hægri, sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið veturinn 1987- ´88. Í baksýn eru aðrir leikarar sýningarinnar í kaffipásu í eldhúsinu í Fellsborg.
2001508
Myndin var tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Þá fór hátíðin að mestu fram á tjaldsvæðinu og þar var sett upp sviðið á myndinni. Á henni er frumkvöðullinn Hallbjörn J. Hjartarson að syngja fyrir gesti við undirleik óþekktra hljóðfæraleikara.
Höfðaskóli - safn432
Kaffiveisla starfsfólks Höfðaskóla í eldhúsinu í Fellsborg á árshátíð Höfðaskóla 24. febrúar 2006. Hér var um "Pálínuboð" að ræða þ.e. hver og einn kom með eitthvað á kaffiborðið. Fólkið er, talið frá vinstri: Guðbjörg Ólafsdóttir, Svandís Hannesdóttir, Erna Berglind Hreinsdóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Carl Erik Jakobsen, Einar Arason, Anna Margrét Sigurðardóttir, Sigurður Magnússon, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) og Dagbjört Bæringsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1515
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Hún sýnir hluta af börnunum sem þátt tóku í kofasmíðum umf Fram það árið þegar þau buðu gestum til sín að skoða. Stúlkan lengst til vinstri er óþekkt en Harpa Hlín Ólafsdóttir bendir og til hægri er Birta Dögg Bessadóttir.
2001028
Ekki er vitað í hvaða leikriti þetta fólk er að leika en líklega var það leikritið Tengdamamma, í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar, sem sett var upp 1959 í gömlu Tunnunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Guðmunda Árnadóttir, Steingrímur Jónsson, Ingvar Jónsson, Ingólfur Ármannsson, ?Sigurbjörg Angantýsdóttir?, Þórey Jónsdóttir, Bernódus Ólafsson, Ástmar Ingvarsson og Helga Berndsen.
Höfðaskóli - safn512
Nokkrir nemendur Höfðaskóla í skólaferðalagi við Gullfoss en ekki er vitað hvenær. nemendurnir eru, frá vinstri: Jóhanna Gunnlaugsdóttir, ?Óli Hjörvar Kristmundsson?, Rakel Jónsdóttir, Kristjana Jónsdóttir, Arnar Erlingsson, Davíð Reynisson, Rafn Ingi Rafnsson og Hjalti Viðar Reynisson
1
…
72
73
74
…
79
Leita í myndasafninu
Leita