Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Fisk Seafood - safn 276
Fyrirtækið Norbrit Fish Sales Limited í Grimsby sá lengi vel um að selja afurðir Skagstrendings hf í Bretlandi undir vörumerkinu Eagle Brand. Á þessari mynd, sem tekin var utan við Stjórnsýsluhúsið 1. júní 1991, eru áhafnir Örvars Hu 21, framkvæmdastjóri Skagstrendings hf ásamt hjónunum June og Dennis Lumbard sem voru eigendur Norbit Fish. Þegar myndin var tekin höfðu þau nýlokið við að afhenda öllum áhafnarmeðlinum viðurkenningarskjöld fyrir góða framleiðsluvöru og góð viðskipti gegnum árin.
Guðrún Guðbjörnsdóttir154
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í Noregi, líklega í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Adolf H. Berndsen, óþekktur, Guðjón Guðjónsson, óþekktur, Sveinn S. Ingólfsson og Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002). Arnar er í baksýn, ókláraður.
2001118
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Jónas Baldursson og Anna Jóna Geirsdóttir í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 521
Starfsfólk Höfðaskóla og makar þeirra fóru í vorferð um héraðið eftir að skóla lauk. Ekki er vitað hvert árið er en líklega var það kringum 1995. Á myndinni, sem tekin var á Hofi í Vatnsdal, eru nokkur úr hópnum að taka þátt í einhverjum leik sem skipuleggjendur fararinnar lögðu fyrir þá. Fólkið er, frá vinstri: Signý Richter, Ólafur Bernódusson, Unnur Kristjánsdóttir (d. 19.6.2023) og Ingibergur Guðmundsson.
Jónas 42
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson og Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) í hlutverkum sínum í sýningunni.
Ólafur Bernódusson1051
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin, foreldarar og aðrir gestir njóta veitinga úti á leiksvæði skólans.
IMG_2970
Myndin var tekin á skátamóti kringum 1960. Á henni eru skátar úr skátafélaginu Sigurfara á Skagatrönd ásamt skátum úr óþekktu(m) félögum. Skátarnir úr Sigurfara eru, aftasta röð frá vinstri: Eygló Guðbjartsdóttir, Helga Jóhannesdóttir, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Júlía Júlíusdóttir, Ester Axelsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir, Þórunn Bernódusdóttir og Stefán Ingólfsson. Í næst öftustu röð, frá vinstri: Jóna Kristjánsdóttir, Sigrún Jósteinsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Anna Skaftadóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, Helga Ólafsdóttir, Jóhann Ingibjörnsson og Grétar Haraldsson. Fremst eru sex óþekktir í tveimur röðum. Þá kemur Hallbjörn Björnsson, þrír óþekktir, Pétur Jóhannsson, Lárus Ægir Guðmundsson, Kristinn Lúðvíksson, Sigurjón Magnússon, Jóhann Björn Þórarinsson og Frímann Lúðvíksson. Fremst til hægri situr Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara
Höfðaskóli - safn509
Myndin var tekin í eyjasiglingu elstu nemenda Höfðaskóla í skólaferðalagi í Vestmannaeyjum. Nemendurnir eru fæddir 1971 og 1972 þannig að myndin var líklega tekin vorið 1987. Frá vinstri: Hjalti Kristjánsson, tveir óþekktir, Hafdís Fanndal Þorvaldsdóttir, Viggó Magnússon, Ægir Jónsson, óþekktur, Óskar Þór Óskarsson og Baldur Bragi Eðvarðsson. Ef þú þekkir óþekktu nemendurna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir169
Fólkið á myndinni var starfsfólk Rækjuvinnslunnar hf á Skagaströnd. Þegar myndin var tekin voru þau í skoðunarferð í fiskvinnslu á Húsavík eða á Laugum þar sem fór fram þurkun á þorskhausum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Fólkið er, frá vinstri: Kristín Björnsdóttir, óþekkt, Cristina Silod Yecyec, óþekktur, Sólveig Eiðsdóttir, Guðrún Jóna Björgvinsdóttir, Magnús Guðmannsson, Juanita Silod Boncales og Guðmundur Kristinsson.
Ólafur Bernódusson1080
Myndin var tekin í skemmtisiglingu á Kátrýhátíð í ágúst 1996 um borð í Hafrúnu Hu 12. Næst okkur á myndinni frá vinstri: óþekkt stúlka (nær), Anna Sjöfn Jónasdóttir (fjær), Lilja Bernódusdóttir (d.9.2.2020), Guðrún Pálsdóttir, tvö óþekkt og Sigurður Björnsson með son sinn Harald Brynjar Sigurðsson í fanginu. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Höfðaskóli - safn610
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin af þessum hressu körlum. Þeir eru, frá vinstri: Birgir Árnason (d.2.2.2005) hafnarvörður, Snorri Gíslason (d.29.5.1994) sjómaður og Stefán Jósefsson skipstjóri og útgerðarmaður.
Ingibergur Guðmundsson 522
Starfsfólk Höfðaskóla og makar þeirra fóru í vorferð um héraðið eftir að skóla lauk. Ekki er vitað hvert árið er en líklega var það kringum 1995. Á myndinni, sem tekin var á Hofi í Vatnsdal, eru nokkur úr hópnum að taka þátt í einhverjum leik sem skipuleggjendur fararinnar lögðu fyrir þá. Fólkið er, frá vinstri: Bryndís Björk Guðjónsdóttir, Elva Þórisdóttir og Hafþór Freyr Sigmundsson.
Ólafur Bernódusson1214
Krakkar að hlaupa af stað í einu af víðavangshlaupum umf Fram, sem haldin voru í mörg ár í byrjun sumars. Mikil þátttaka var í hlaupunum hjá yngri kynslóðunum en keppt var í nokkrum aldursflokkum. Lárus Ægir Guðmundsson var stjórnandi og ræsir keppnanna. Myndin var tekin vorið 1993.
2001127
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér, undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Guðný Sigurðardóttir og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum í verkinu.
Ólafur Bernódusson1071
Myndin var tekin í apríl 1997 af hópi fólks að sýna kántrýdans í Fellsborg. Mikill áhugi fyrir slíkum dönsum var um tíma á Skagströnd og æfingar reglulega. Hópur dansara fór seinna á Íslandsmót í slíkum dönsum og kom út sem Íslandmeistari. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Eygló Gunnarsdóttir óþekkt, Signý Magnúsdóttir (d.7.4.2016), Kristín Sigurðardóttir Blöndal, Magnús B. Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir, Þórunn Júlíanna Guðmundsdóttir og Kristín Sigurðardóttir.
Höfðaskóli - safn565
Elstu nemendur Höfðaskóla fóru í skólaferðalag til Danmerkur einhverntíma á árunum 2000 - 2003. Þá var þessi mynd tekin af þeim Óðni Erni Sævarssyni og Elvu Þórisdóttur kennara.
Ingibergur Guðmundsson 556
Mennirnir á myndinni eru að steypa gangbraut yfir Fellsbraut við gatnamótin við Oddagötu. Maðurinn til vinstri er Helgi Gunnarsson en á móti honum er Hrólfur Pétursson. Maðurinn í bláa gallanum er Hjalti Magnússon.
Ingibergur Guðmundsson 524
Myndin sýnir vinnubrögð við steypuvinnu áður en farið var að versla við steypustöðvar. Gömul hrærivél var notuð til að hræra steypuna. Mölinni var mokað í vélina með dráttarvél í skúffuna utan á vélinni. Síðan var einum poka af sementi skellt ofan á mölina, vatni ausið inn í hana áður en skúffan var hífð upp og þá sturtaðist mölin og sementið inn í hana. Þegar steypan var orðin vel samlöguð var sturtað úr henni hinum megin í sílóið á myndinni sem kranabíll hífði svo á réttan stað þar sem hleypt var úr sílóinu. Myndin var tekin í september 1996 þegar verið var að steypa einhvern hluta hússins að Suðurvegi 13 á Skagaströnd. Karlarnir á myndinni eru, frá vinstri: Ómar Jakobsson, Helgi Gunnarsson, Viktor Pétursson og Pétur Eggertsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1484
Hjónin Vilhelm Björn Harðarson og Kristín Kristmundsdóttir utan við heimili sitt, Reykholt (Fellsbraut 6) með barn í kerru. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1098
Arnar Hu 1 í heimahöfn í fyrsta sinn í lok mars 1996. Arnar keypti Skagstrendingur hf af rússneskum aðilum þar sem skipið var gert út til veiða við strendur Kóreu. Á myndinni er hluti fólksins sem mætti á bryggjuna til að fagna heimkomu Arnars. Nokkrir á myndinni áttu eftir að vera í áhöfn hans um árabil þar á meðal Guðjón Guðjónsson sem enn (2022) er skipstjóri á Arnari. Guðjón er lengst til vinstri á myndinni.
Ingibergur Guðmundsson 396
Myndin var tekin á Húnavöllum veturinn 1987 þegar þar fór fram skólamót í íþróttum. Krakkarnir á myndinni kepptu fyrir hönd Höfðaskóla á mótinu. Þau eru, frá vinstri: Jón Heiðar Jónsson, Brynjar Pétursson, Björn Sigurðsson og Hugrún Pálsdóttir.
Jónas 47
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Magnús B. Jónsson í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 470
Kennarar í þungum þönkum á kennarastofu Höfðaskóla í vinnuviku í október/nóvember 1985. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Rúnar Loftsson, Guðrún Guðmundsdóttir,, Ólafur Bernódusson og Marinó ??.
Ólafur Bernódusson1135
Myndin var tekin á eldvarnardegi í Höfðaskóla í desember 1995. Á rýmingaræfingunni var forstofa skólans fyllt af leikhúsreyk til að gera hlutina eins raunverulega og hægt var. Á myndinni er Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) kennari að fylgja nokkrum af nemendum sínum gegnum reykkófið. Nemendurnir eru, frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson, Ásþór Óðinn Egilsson og Guðmundur Ingi Ólafsson (d. 8.11.2006). Allir eru bognir eða skríða eins og maður á að gera ef til eldsvoða kemur
Ólafur Bernódusson1164
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Anita Ragnarsdóttir, Benný Blær Sæmundsen, Helgi Sveinn Árnason og Róbert Andri Bogason?.
Guðrún Guðbjörnsdóttir131
Myndin var tekin 1. nóvember 1997 í Höfðaskóla. Þann dag voru konurnar á myndinni á námskeiði í gerð grænmetisrétta undir leiðsögn Sóveigar Eiríksdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Sólveig Eiríksdóttir, tvær óþekktar konur, Steinunn Berndsen, Íris Valgeirsdóttir, Hjördís Sigurðardóttir og Soffía Lárusdóttir (31.3.2010).
Ólafur Bernódusson1059
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er leikur í gangi og krakkarnir eru, frá vinstri: Maríanna Ástmarsdóttir?, Bæring Jón Skarphéðinsson, óþekkt, Adolf Þór Lúðvíksson, óþekktur, Ólafur Guðmundsson, Geirþrúður Guðmundsdóttir, Lísebet Gestsdóttir og Hanna Rúna Gestsdóttir. Ef þú þekkir óþekktu krakkana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Jónas 67
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson til vinstri og Árni Björn Ingvarsson til hægri í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1160
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur skólans að flytja atriði síns bekkjar. Börnin eru, frá vinstri: Daði Snær Stefánsson, Birta Dögg Bessadóttir, Dagur Freyr Róbertsson, Freydís Kristjánsdóttir, Jóhann Almar Reynisson, Jón Árni Baldvinsson og Snæfríður Guðmundsdóttir.
2001040
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin af krakkahóp á skólatröppunum en það hefur líklega verið kringum 1963. Á henni eru, vinstra megin, talið upp tröppurnar; Rúnar Jósefsson, Reynir Sigurðsson og Óskar Þór Kristinsson. Milli Reynis og Óskars sér í Berg Jón Þórðarson. Lengst til hægri, talið upp tröppurnar: Sævar Rafn Hallgrímsson, óþekktur, Ísleifur Þorbjörnsson, Fritz M. Bjarnason og Jóhannes Pálsson. Stelpan sem er með hendur í vösum í úlpu með hvítum kraga er Kristín Björnsdóttir, aftan við hana til hægri er Ragnheiður Alda Sigurjónsdóttir , en síðan kemur Sigríður Einarsdóttir. Aftan við Kristínu til vinstri er Björn Bragi Sigmundson. Við hlið hans hægra megin sér í Guðmund Rúnar Kristjánsson og síðan Ólaf H. Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Þessir krakkar voru öll fædd 1951 og því saman í bekk í Höfðaskóla.
2001013
Myndin var tekin í sameiginlegri útilegu skáta úr Sigurfara á Skagaströnd og einhverra annarra Ekki er vitað hvar myndin var tekin en líklega var það kringum 1960. Ingólfur Ármannsson félagsforingi Sigurfara situr fremst til hægri. Aftan við hann aftast frá hægri: þrír óþekktir, Jóhann Ingibjörnsson, Frímann Lúðvíksson, óþekktur, Hallbjörn Björnsson (með skátabát á höfðinu), Stefán Ingólfsson, Lárus Ægir Guðmundsson, fjórir óþekktir, Helga Jóhannesdóttir, Sigrún Jósteinsdóttir (Siddý), þrjú óþekkt, Hrefna Júlía Júlíusdóttir, Anna Skaftadóttir og Helga Ólafsdóttir. Í fremmri röðinni eru, frá vinstri: óþekkt, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekkt, Pálfríður Benjamínsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Magdalena Axelsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Ef þú þekkir einhvern þeirra vinsamlega sendu þá athugasemd á
[email protected]
.
Guðrún Guðmundsdóttir 027
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru þau að fá sér snúning, Fanney Halldórsdóttir (d.21.6.2005) frá Sviðningi og Snorri Gíslason (d.29.5.1994) frá Höfðatúni á Skagaströnd.
Ingibergur Guðmundsson 371
Myndin var líklega tekin á fyrstu Kántrýhátíðinni 1984. Fólkið á myndinni er að koma frá hátíðasvæðinu á tjaldsvæðinu við Hólabergin. Fólkið er, frá vinstri: óþekktur maður (fjær), Elísabet Eik Guðmundsdóttir (nær), Auður Eva Guðmundsdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Bryndís Björk Guðjónsdóttir og Anna Elínborg Gunnarsdóttir (d.26.3.2023).
Ólafur Bernódusson1119
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru Dagný Marín Sigmarsdóttir og Hallbjörg Jónsdóttir að flytja sitt atriði. Áhorfendurnir eru Kristján Blöndal vinstra megin og Ástmar Kári ástmarsson til hægri.
Guðrún Guðbjörnsdóttir139
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin né hvar. Prúðbúna fólkið vinstra megin við borðið er, frá vinstri: Haraldur Árnason, Sólveig Róarsdóttir, Gylfi Sigurðsson, Helga Jóhannesdóttir, Sveinn Ingólfsson og Bjarney Valdimarsdóttir. Á móti þeim sitja, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, tvö óþekkt, Karl Berndsen (d.12.2.1995), Ingibjörg Fríða Hafsteinsdóttir (d.20.5.2023) Guðný Sigurðardóttir og Hallbjörn Björnsson.
2001047
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin. Á henni eru þrjá systur. Frá vinstri: Hjördís, Aðalbjörg og Guðrún Sigurðardætur. Þær eru dætur Sigurðar Guðmonssonar og Hallbjargar Jónsdóttur frá Þórsmörk á Skagaströnd.
Höfðaskóli - safn510
Myndin var tekin í skólaferðalagi elstu nemenda Höfðaskóla líklega vorið 1987. Nemendurnir eru, frá vinstri: Viggó Magnússon, Þorlákur Sveinsson, Þorsteinn Styrmir Jónsson, Jóhann Ásgeirsson, Óli Hjörvar Kristmundsson, Davíð Reynisson, Hallgrímur Oddsson, Hólmgeir kristmundssonog óþekktur bílstjóri.
Ingibergur Guðmundsson 388
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og óþekkt kona. Ef þú þekkir hana vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1049
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Barnið vinstra megin inni í stýrishúsinu er óþekkt en til hægri er Þórður Indriði Björnsson. Utan við húsið er Telma Dögg Bjarnadóttir?
2001032
Félagarnir Árni Ólafur Sigurðsson frá Þórsmörk til vinstri og Pétur Jóhannsson frá Lækjarbakka til hægri. Báðir voru sjómenn og sóttu eiginkonur sínar til Ólafsvíkur. Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega hefur það verið kringum 1970.
Óþekktur ljósmyndari677
Hjónin í Garði á Skagaströnd: Helga Þorbergsdóttir (d.30.9.1970) og Jóhannes Pálsson (d.9.3.1972).
Guðrún Guðbjörnsdóttir121
Á myndinni eru bræðurnir Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) til vinstri og Georg Rafn Hjartarson (d.13.9.2001) til hægri. Milli þeirra situr Ágústa Ágústsdóttir söngkona. Hún kom nokkrum sinnum til Skagastrandar til að kenna fólkinu í kirkjukórnum söng en þeir bræður voru meðlimir í kórnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001116
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Leikararnir á myndinni eru, frá vinstri: öxlin á Jónasi Baldurssyni, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Anna Sjöfn Jónasdóttir, Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Berndsen
Guðrún Guðmundsdóttir 044
Farin var sumarferð aldraðra í A-Húnavatnssýslu um Norðausturland dagana 21. - 24. júní 1993. Gist var á Hótel Tanga í Vopnafirði. Á myndinni eru Helgi Sveinbjörnsson (d.11.10.1995) frá Blönduósi og Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) frá Kárastöðum á Skagaströnd prúðbúin að bíða eftir matnum í hátíðakvöldverði ferðarinnar.
Ólafur Bernódusson1243
Í lok maí 1994 kom mikið flóð í Giljá og bjó til stórt skarð í þjóveginn rétt sunnan við bæinn Stóru Giljá. Þar sem alveg var ófært yfir ána á venjulegum farartækjum selflutti jarðýtan á myndinni nokkuð að fólki yfir ána, t.d. fólk sem kom með Norðurleiðarrútunni að sunnan. Fólkið á myndinni er óþekkt.
2001102
Myndin var tekin um borð í síðutogaranum Arnari HU 1 1968 eða 1969. Þá var kvótakerfið ekki komið þannig að menn máttu veiða eins og þeir gátu. Á myndinni er nýbúið að taka trollið og fiskur er fljótandi um allt dekk og aðgerð í gangi, Karlarnir þurftu að beygja sig eftir hverjum fiski, blóðga og gera að honum áður en honum var hent upp í þvottapontuna. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Árni Petersen, ?Finnur Kristinsson?(nær), ?Sigurjón Haraldsson? og óþekktur.
Ólafur Bernódusson1061
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er leikur í gangi á túninu. Á henni eru, frá vinstri: óþekktur, Lilja Nótt Sævarsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, þrír óþekktir, Anna María Magnúsdóttir, Þórunn Júlíanna Guðmundsdóttir, Elva Ösp Gunnarsdóttir, Jenný Lind Sigurjónsdóttir, ?Ástrós Villa Vilhelmsdóttir? og fjórir óþekktir. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 360
Myndin var tekin á litlu jólum í Höfðaskóla líklega 1990. Á henni eru nemendur fæddir 1975 að flytja skemmtiatriði fyrir aðra nemendur og kennarana. Krakkarnir eru, frá vinstri: Særún Níelsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir, Linda Rós Haukdal Rúnarsdóttir, Berglind Karlsdóttir, Börkur Hrafn Árnason og Elísabet Eik Guðmundsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 500
Myndin var tekin á æfingu á Saumastofunni í Fellsborg í nóvember 1984. Á henni eru leikkonurnar í hlutverkum sínum. Frá vinstri: Hallbjörg Jónsdóttir, Sigurbjörg Árdís indriðadóttir (sitjandi), Guðbjörg Gylfadóttir, Sigrún Jónsdóttir, ,Elín Njálsdóttir og Dagný Marín Sigmarsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir160
Arnar Hu 1 var smíðaður í Bergen 1992 fyrir Skagstrending hf. Þegar hann kom til heimahafnar í fyrsta sinn 22. desember 1992 var hann stærsta fiskiskip Íslendinga. Myndin var tekin í Bergen í hófi sem haldið var til að fagna afhendingu skipsins til eigendanna. Á henni eru, hlaðnir gjöfum, frá vinstri: Magnús Sigurðsson (d.17.1.2023) útgerðarstjóri Skagstrendings hf, Finnur Kristinsson yfirvélstjóri og eftirlitsmaður útgerðarinnar með smíðinni og Jóhannes Sveinsson sem einnig var eftirlitsmaður með smíðinni. Framan við þá situr Helga Jóhannesdóttir eiginkona Sveins Ingólfssonar framkvæmdastjóra félagsins en hún gaf skipinu nafn.
Ingibergur Guðmundsson 553
Gylfi Sigurðsson til vinstri og Hallgrímur Kristmundsson (d.9.10.1998) til hægri landa afla úr bát sínum Helgu Björgu Hu 7 í Skagastrandarhöfn. Meðeigandi þeirra tveggja var Jón Ólafur Ívarsson (Daddi) (d.29.12.2013). Helgu Björgina gerðu þeir félagar út í áratugi.
2001015
Upp úr 1960 ákváðu skátarnir í Sigurfara á Skagaströnd að byggja sér skála í Brandaskarðinu. Hafist var handa við bygginguna og steyptur sökkull (og plata?) sem skátarnir gerðu undir leiðsögn vanra manna. Einhverra hluta vegna varð aldrei meira úr framkvæmdum í Brandaskarðinu en í stað þess byggður skáli í suðurhlíðum Spákonufellsins. Myndin var tekin af framkvæmdunum í Brandaskarðinu. Á henni eru, frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Jóhann Björn Þórarinsson, Frímann Lúðvíksson, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson (aftar), Steindór Rúniberg Haraldsson (nær), Árni Ólafur Sigurðsson, Ísleifur Haraldsson, Gissur Jóhannsson (aftar), Sævar Rafn Hallgrímsson (nær), Hallbjörn Björnsson, Pétur Jóhannsson (aftar), Reynir Sigurðsson (nær), Jóhann Ingibjörnsson og Bergur Jón Þórðarson
Árni Geir Ingvarsson - safn 1530
Kántrýhátíðin 2001 var mjög fjölmenn. Öll tjaldsvæði á Skagaströnd fylltust svo fólk kom sér fyrir hvar sem grænan blett var að finna. Eins og sjá má tjaldaði fólk meðal annars utan í Einbúanum en ekki er vitað annað en að álfarnir þar hafi umborið átroðninginn þessa helgi í ágúst.
Ólafur Bernódusson1128
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd er einn hópurinn með skemmtiatriði. Ekki er vitað hverjir leikararnir eru en baksvipi áhorfenda eiga, frá vinstri: Kristín Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Guðný Sigurðardóttir, Ástmar Kári Ástmarsson og Kristján Blöndal.
Guðrún Guðbjörnsdóttir135
Myndin var tekin á aðalfundi umf Fram í Fellsborg en ekki er vitað hvenær. Fólkið á myndinni fylgist vel með því sem fram fer. Fólkið er, frá vinstri: Birna Sveinsdóttir, Guðmunda Sigurbrandsdóttir (d.15.8.2015), María Ösp Gunnarsdóttir, Elva Dröfn Árnadóttir, óþekkt, Ingólfur Bjarnason og Kristinn Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson1170
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni spilar Valgerðu Guðný Ingvarsdóttir á þverflautu sem hluta af skemmtiatriði bekkjar síns. Börnin eru, frá vinstri: Sigurður Aron Björnsson, Valgerður, Rebekka Heiða Róbertsdóttir og Margrét Sigurðardóttir.
Halldór Gunnar Ólafsson 011
Myndin ver tekin um borð í Örvari Hu 21 einhverntíma á árunum, 1992 eða 93. Grínið er að Þröstur Árnason hefur verið lagður á kassabindivélina og rígbundinn þannig að hann getur ekki hreyft sig. Gestur Arnarson til vinstri og Hafsteinn Pálsson til hægri passa upp á að Þröstur detti ekki á nefið.
Höfðaskóli - safn 639
Þessi hópur fimleikakrakka úr Höfðaskóla sýndi listir sínar m.a. á árshátíð skólans 1985. Þessi mynd var tekin í Fellsborg af hópnum á æfingu ásamt kennara sínum Ingu Matthíasdóttur íþróttakennara, sem er til vinstri hjá hópnum. Í neðstu röðinni eru, frá vinstri: Anna Dröfn Guðjónsdóttir, Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir, Skúli Tómas Hjartarson, Kristjana Jónsdóttir, María Rós Karlsdóttir og Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir. Í næst neðstu röð,frá vinstri: Inga Lára Sigurðardóttir, Ragnheiður Ásta Rúnarsdóttir og Ragnheiður Sandra Ómarsdóttir. Næst efst: Vilborg/Áslaug Jóhannsdóttir vinstra megin og Guðný Finnsdóttir hægra megin. Efst trónir Arna Guðrún Jónsdóttir
Ingibergur Guðmundsson 486
Á myndinni er Anna Dröfn Guðjónsdóttir að keppa í langstökki án atrennu á unglingamóti USAH líklega árið 1985. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 023
Á myndinni eru, frá vinstri, systkini frá Syðra Hóli: Jóhanna Björnsdóttir (d.28.8.1991), Ragnheiður Björnsdóttir (d.6.11.1958), Ólafur Björnsson (d.10.10.1972), Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.1988) Laufási og Lárus Björnsson (d.30.9.1985). Fjóla er systurdóttir þeirra systkinanna.
1
…
74
75
76
…
79
Leita í myndasafninu
Leita