Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Skagaströnd - safn541
Myndin var tekin 1947 þegar starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf stilltu sér upp í tröppunum upp á olíu/lýsistankinn sem þeir höfðu þá lokið við að smíða. Tankurinn stóð syðst undir Höfðanum ásamt öðrum af sama tagi. Starfsmennirnir héldu til í tjöldum við Höfðann meðan á smíðunum stóð. Mennirnir eru óþekktir. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Óþekktur ljósmyndari553
Hjónin í Víkum, Karl Hinrik Árnason (d.25.12.1995) og Margrét Jónsdóttir (d.21.11.1986). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 455
Myndin var tekin í 10 ára afmælishófi Leikklúbbs Skagastrandar þann 22. nóvember 1985 í Fellsborg. Þar skemmtu félagar klúbsins hver öðrum með ýmis konar atriðum sem ekki áttu öll erindi á opinberar skemmtanir. Á þessari mynd er Birna Blöndal (d.26.10.2018), lengst til vinstri, að kenna ballet þeim, frá vinstri: Magnúsi B. Jónssyni, Ingibergi Guðmundssyni, Ólafi Bernódussyni og Guðmundi Hauk Sigurðssyni. Að sjálfsögðu klæddu menn sig upp í viðeigandi búninga en grín var gert að Guðmundi fyrir að hann hefði ekki haft efni á að koma sér upp balletbúningi. Eins og sjá má voru þeir félagar ákaflega liprir í hreyfingum þó dálítið megi setja út á samhæfingu þeirra.
Gréta 012
Börnin á myndinni voru öll innbæingar. Þau eru, frá vinstri: Guðbjörg Þorbjörnsdóttir, Magnús B. Jónsson, Fjóla Jónsdóttir, Hrefna Þorbjörnsdóttir, Ísleifur Þorbjörnsson (d.28.8.2021) og Lára Berndsen. Þorbjörns systkinin áttu heima í Akurgerði (Hólabraut 9). Systkinin Fjóla og Magnús áttu heima í Asparlundi (Bogabraut 24).
Ingibergur Guðmundsson 401
Íþróttastrákar úr Höfðaskóla á skólamóti í Húnavöllum veturinn 1987. Aftari röð, frá vinstri: Sigvaldi Guðmundsson, Þorlákur Sigurður Sveinsson, Skúli Tómas Hjartarson og Óskar Óskarsson. Í fremri röð, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Brynjar Pétursson, Hólmgeir Kristmundsson og Stefán Sveinsson.
2001114
Þessi illa lýsta mynd var tekin á leikárinu 1982 - 1983. Á henni eru leikarar í sýningu Leikklúbbs Skagastrandar á verkinu: Er þetta ekki mitt líf ? á sviðinu í Fellsborg. Frá vinstri: Magnús Blöndal, Þorvaldur Skaftason, Vilmundur Árnason, Guðný Sigurðardóttir, Eðvarð Hallgrímsson, Díana Kristjánsdóttir, Karl Lúðvíksson, Guðbjörg Viggósdóttir, Ólafur Bernódusson, Magnús B. Jónsson, Guðjón Sigurvaldason leikstjóri, Elín Njálsdóttir, Kristján Blöndal og Ágústa Friðriksdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir122
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru prestshjónin og kirkjukór Hólaneskirkju á góðri stund. Frá vinstri: séra Pétur Þ. Ingjaldsson (d.11.6.1996), Dómhildur Jónsdóttir (d.18.10.2012) kona hans, Aðalheiður Guðmundsdóttir (d.24.9.2011), Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988), Georg Rafn Hjartarson (d.13.9.2001), Guðrún Guðbjörnsdóttir, Helga Hermannsdóttir, Einar Helgason, Hildigunnur M. Jóhannsdóttir (d.1.1.1996), Sigrún Lárusdóttir (nær), óþekktur (fjær), Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Helga Guðmundsdóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Dagný Hannesdóttir (nær), óþekktur (fjær), Sævar Bjarnason og Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) stjórnandi kórsins.
2001515
Á myndinni eru börn á leikskólanum Barnaból árið 2003 - 2004. Krakkarnir á henni eru í eldri deildinni, Sæbóli. Konurnar á myndinni eru Helga Bergsdóttir og Herdís Jakobsdóttir á gólfinu til vinstri. Hægra megin eru Lilja Ingólfsdóttir aftar og Guðbjörg Viggósdóttir á gólfinu. Börnin eru, frá vinstri aftast: óþekkt stúlka og Anton Þór Einarsson. Í miðröð, frá vinstri: óþekkt stúlka, Guðmann Einar Magnússon, Brynjar Guðmundsson, Ísak Karl Tryggvason og Birkir Freyr Gunnarsson. Fremst, frá vinstri: ?Sveinn Hallgrímsson?, Sigurjón Elí Eiríksson og ?Birgitta Bjarnadóttir?.
2001120
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Berndsen í hlutverkum sínum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir132
Myndin var tekin í París þegar nokkrir Skagstrendingar voru þar á ferðalagi. Ekki er vitað hvenær. Vinstra megin við borðin eru Jón Ingi Ingvarsson og kona hans Laufey Ingimundardóttir (d.31.12.1992). Móti Laufey situr Guðrún Garðarsdóttir, Gylfi Sigurðsson við hlið hennar og Birgir Þórbjarnarson er næst okkur á myndinni.
Fisk Seafood - safn 273
Myndin var tekin 7. apríl 1982 í hófi í Fellsborg af tilefni þess að frystitogarinn Örvar HU 21 kom til heimahafnar á Skagaströnd þann dag í fyrsta sinn. Á myndinni eru hjónin Una D. Kristjánsdóttir og séra Oddur Einarsson að spjalla við Kára Kristjánsson (d.11.12.1990). Til vinstri sér í Indriða Hjaltason (d.2.4.2006) og til hægri er Snorri Gíslason (d.29.5.1994).
Óþekktur ljósmyndari606
Hjónin í Herðubreið, Lárus Guðmundur Guðmundsson (d.21.9.1981) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
2001046
Á myndinni eru hjónin í Þórsmörk, Sigurður Guðmonsson og Hallbjörg Jónsdóttir með eitt af barnabörnum sínum, Aðalheiði Sif Árnadóttur. Myndin hefur líklega verið tekin kringum 1980.
Ólafur Bernódusson1109
Myndin var tekin í maí 1996 á útivistardegi Höfðaskóla. Eitt af verkefnum dagsins var að nemendur drógu bíldruslu gegnum bæinn frá höfninni og að sorpmóttökunni við Fjörubraut. Á þessari mynd eru krakkarnir að byrja að draga upp brekkuna frá höfninni.
Ólafur Bernódusson1245
Myndin var tekin í skíðaskálanum 14. maí 1993. Þá borðaði starfsfólk Höfðaskóla saman þar ásamt mökum sínum og gerði sér glaðan dag. Fólkið á myndinni eru kennararnir Carl Erik Lehman Jakobsen og Unnur Kristjánsdóttir (d.19.6.2023).
2001007
Ekki er vitað hvar þessi mynd var tekin af skátastúlkum úr Sigurfara á Skagaströnd og Bjarma á Blönduósi ásamt félagsforingjunum Þórði Jónssyni og Gunnhildi Þórmundsdóttur (með gleraugu). Myndin var líklega tekin einhverntíma á árunum 1960 - 1964. Á henni eru í efstu röð frá vinstri: óþekkt, Sigrún Kristófersdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir,Guðrún Þórbjarnardóttir, Þórunn Bernódusdóttir, Pálfríður Benjamínsdóttir, ?Helga Ólafsdóttir?, óþekkt, Hrafnhildur Jóhannsdóttir,Fjóla Jónsdóttir, og ?Birna Guðjónsdóttir?. Allar í miðröð og þær sem krjúpa eru óþekktar nema Ingibjörg Kristinsdóttir sem krýpur önnur frá hægri í frmstu röð.
Jónas 45
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak eftir Jökul Jakobsson í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru í hlutverkum sínum, frá vinstri: Jón Helgi Eiðsson, Magnús B. Jónsson og Birna Blöndal (d.26.10.2018).
Fiskvinnsla í Hólanesi hf
Hreyfimynd sem sýnir fiskvinnslu í Hólanesi hf.
Guðrún Guðbjörnsdóttir127
Sú hefð hefur myndast að kór sjómanna = karlakór syngi við messuna á sjómannadegi í Hólaneskirkju. Á þessari mynd er sjómannakórinn sem söng á sjómannadaginn 11. júní 1995. Mennirnir eru frá vinstri, fremri röð: Björgvin Karlsson, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Guðbjartsson, Stefán Jósefsson, Ástmar Kári Ástmarsson, Gylfi Sigurðsson og Þórarinn Grétarsson. Aftari röð frá vinstri: Karl Guðmundsson (d.11.12.2011), Sigurður Skagfjörð Bjarnason (d.16.5.2022), Halldór Gunnar Ólafsson, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og Hafþór Smári Gylfason. Stjórnandi kórsins og undirleikari Ingibjörg Pálsdóttir stendur fremst til hægri.
Ólafur Bernódusson1041
Myndin var tekin á brunaæfingu í Höfðaskóla í desember 1992. Þá er skólinn yfirgefinn eftir ákveðnu kerfi eftir því hvar hver og einn er staddur í byggingunni ef eldur kemur upp. Þegar út er komið raða allir sér upp með bekknum sínum og kennarinn telur hvort ekki séu allir komnir út og tilkynnir skólastjóra og eða slökkvistjóra. Á myndinni eru nemendur að forða sér niður stiga við svalirnar sunnan á skólanum.
Gréta 128
Hjónin í Laufási, Margrét Björnsdóttir (d.11.9.1993) frá Syðra Hóli og Sigurður Guðmundsson (d.2.12.1984). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson1086
Myndin var tekin sumarið 1996 í stund milli stríða í Rækjuvinnslunni hf, sem var notuð til að dytta að húsinu. Stúlkurnar á myndinni voru vanari að standa við pillunarbandið og/eða pökkunarbandið inni en að vera í naglhreinsun úti. Stúlkurnar eru frá vinstri: Guðrún Elsa Helgadóttir (baksvipur), Svava Guðrún Sigurðardóttir, óþekkt, Árný Elfa Helgadóttir, Inga Lára Sigurðardóttir og þrjár óþekktar. Ef þú þekkir óþekktu stúlkurnar vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1516
Myndin var tekin á einhverri Kántrýhátíð eða Kántrýdögum í samkomutjaldinu þar sem karlakór syngur fyrir gesti. Frá vinstri: Skarphéðinn Einarsson með gítar, Hafór Smári Gylfason, Þórarinn Grétarsson, Gylfi Sigurðsson, Magnús Líndal Þrastarson, óþekktur, Sigurður Bjarnason (d.16.5.2022), Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson, Árni Ólafur Sigurðsson, Sigurjón Guðbjartsson og Stefán Jósefsson. Við píanóið er Benedikt Blöndal.
Ólafur Bernódusson1106
Myndin var tekin í maí 1996 þegar félagskonur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Myndin var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni er Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) að halda ræðu. Aðrar kvenfélagskonur á myndinni eru, frá vinstri: Íris Valgeirsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Kristín Ólafsdóttir með barn í fanginu, Ása Jóhannsdóttir (fjær), tvær óþekktar konur og Hjördís Sigurðardóttir.
Ólafur Bernódusson1240
Myndin var tekin uppi á Jörundarfelli í Vatnsdal þegar þyrla frá ameríska flughernum var að koma með endurvarpa sem var komið þar fyrir. Björgunarsveitamenn af norðurlandi vestra sáu um að koma honum fyrir á sínum stað sem þeir höfðu undirbúið viku áður. Karlarnir voru síðan fluttir í þyrlunni niður af fjallinu eftir að vinnu við endurvarpann lauk.
2001028
Bræðurnir á myndinni eru Sigurður Guðmonsson til vinstri og Árni Guðmonsson til hægri. Báðir fluttu þeir með fjölskyldur sínar af Ströndum til Skagastrandar seint á fimmta átratugnum. Árni fórst í sjóróðri 7. nóvember 1948. Þá fór hann sem afleysingamaður fyrir son sinn á sjó með tveimur öðrum sonum sínum. Um miðja nótt í svarta myrkri hvarf hann af bátnum. Það uppgötvaðist ekki fyrr en eftir dálítinn tíma að hann var horfinn. Mikil leit var gerð að honum en hann fannst því miður aldrei.
Ólafur Bernódusson1056
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er verið að fylkja liði utan við skólann áður en lagt er af stað. Eins og sjá má eru kennararnir skrautlega klæddir.
2001123
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Guðmundur Haukur Sigurðsson til vinstri og Hallbjörn J. Hjartarson til hægri í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 562
Lengi var hefð fyrir því í Höfðaskóla að starfsfólkið hittist að kvöldi síðasta vinnudags fyrir jól og borðaði saman hangikjöt í skólanum. Myndin er frá einu slíku kvöldi líklega kringum 1995. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Hafþór Freyr Sigmundsson, Súsanna Þórhallsdóttir, Hjálmfríður Guðjónsdóttir, Bryndís Guðjónsdóttir, Helga Ólína Aradóttir, Ólafur Bernódusson, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir.
Guðrún Guðmundsdóttir 6
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Norðurland 12. - 15. júní 1990. Í ferðinni gisti hópurinn á Húsavík. Á þessari mynd eru, frá vinstri: Kristine Húnfjörð Blönduósi, Ingvar Jónsson (d.18.1.2002) Skagaströnd og Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) Skagaströnd.
2001008
Myndin var tekin í skátamessu í Hólaneskirkju (eldri) einhverntíma kringum 1960. Séra Pétur Þ. Ingjaldsson les ritningarlestur og skátar standa heiðursvörð. Skátinn til vinstri er líklega Árni Sigurðsson en sá til hægri Stefán Ingólfsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jónas 17
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru eftirfarandi í hlutverkum sínum, talið frá vinstri: Hallveig Ingimarsdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir,, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Guðmundur Haukur Sigurðsson og Elín Njálsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 434
Nemendur úr Höfðsakóla hlusta á Þór Gunnlaugsson lögreglumann halda fyrirlestur í vinnuviku í febrúar 1987. Lengst til vinstri sér í Eygló Gunnarsdóttur móður í rauðri peysu, svo koma tveir óþekktir strákar þá Viktor Pétursson, óþekkt stúlka, Auður Eva Guðmundsdóttir (fær), óþekktur (nær), Rakel Sara Gunnarsdóttir, Jóhanna Sólveig Hallgrímsdóttir og fjórir óþekktir nemendur. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu nemendunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Höfðaskóli - safn642
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin utan við vigtarskúrinn á höfninni. Á henni er Birgir Árnason (d.2.2.2005) hafnarvörður að grínast eitthvað við litla óþekkta stúlku (?Ragnheiði Erlu Stefánsdóttur?). Aftan við Birgi stendur Stefán Jósefsson.
Ingibergur Guðmundsson 574
Myndin var tekin 1987 eða 1998 þar sem menn eru að vinna við smíði íþróttahússins. Mennirnir á henni eru, frá vinstri: Helgi Gunnarsson verktaki við bygginguna, Baldvin Hjaltason og Sigurður Björnsson sem unnu hjá Helga.
Guðrún Guðmundsdóttir 043
Farin var sumarferð aldraðra í A-Húnavatnssýslu um Norðausturland dagana 21. - 24. júní 1993. Gist var á Hótel Tanga í Vopnafirði. Á myndinni er hópurinn, sem fór ferðina, búinn að stilla sér upp framan við Burstafell í Vopnafirði.
Halldór Gunnar Ólafsson 006
Örvar Hu 21 leggur af stað í túr því strákarnir á myndinni eru nýbúnir að sleppa. þeir eru frá vinstri: Þráinn Bessi Gunnarsson, Guðjón Árnason, Hólmgeir Kristmundsson, óþekktur, Björn Sigurðsson og Þröstur Árnason. Myndin var tekin 1992 eða 1993.
Ólafur Bernódusson1249
Anna Dröfn Guðjónsdóttir nær okkur og Soffía Lárusdóttir fjær spila fjórhent á píanó í Höfðaskóla á vortónleikum tónlistarskólans líklega kringum 1990. Til vinstri er kennarinn þeirra, Steinunn Berndsen.
20250725_143237
25. júlí 2025 afhenti Minningasjóðurinn um hjónin frá Vindhæli og Garði hjúkrunarheimilinu Sæborg lítinn opinn rafmagnsbíl til að hægt væri að fara með heimilisfók rúnt um bæinn á góðviðrissdögum. Á myndinni eru, frá vinstri: Eydís Inga Sigurjónsdóttir deildarstjóri, Hólmfríður Pálsdóttir, Bragi Bragason, Margét Alda Magnúsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Ottó Tulinius, Kristbjörg Ragnheiðardóttir, Þórleif Sigurðardóttir, Guðbjörg Eiríksdóttir, Lýður Hallbertsson og Vilhjálmur Skaftason.
Ólafur Bernódusson1108
Myndin var tekin í maí 1996 þegar félagskonur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Myndin var tekin á hótel Dagsbrún. Á henni er Lárus Ægir Guðmundsson framkvæmdastjóri Hólaness hf að færa félaginu afmælisgjöf. Steinunn Grímsdóttir veitir gjöfinni móttöku. Birna Blöndal (d.26.10.2018) situr framan við þau en aðrar konur á myndinni eru óþekktar.
Ingibergur Guðmundsson 588
Sindri Njáll Hafþórsson og Kritbjörg Una Guðmundsdóttir keppa á hoppubelgjum á flippíþróttadegi í Höfðaskóla. Hoppubelgirnir voru ein af þrautunum sem nemendurnir þurftu að fara í gegnum á deginum. Allt var þar í gamni gert þannig að ekki var um raunverulega íþróttakeppni að ræða.
Ingibergur Guðmundsson 469
Myndin var tekin í maí 1985 þegar elstu nemendur Höfðaskóla voru að klára skólagöngu sína í þar. Skólastjórinn Jón Sveinn Pálsson ávarpar nemendurna. Á myndinni eru, frá vinstri: baksvipur Stefáns Ægis Lárussonar, Þráinn Bessi Gunnarsson., baksvipur Davíðs Reynissonar (nær), óþekktur (fjær), Jón skólastjóri, tvö óþekkt og Sigríður Ásgeirsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 480
Vatnið í skíðakálanum þykir mjög gott. það er tekið úr lind norðan og ofan við skálann. Á myndinni, sem tekin var snemma vorið 1985, eru menn að grafa skurð að lindinni og koma fyrir safngeymi og plaströri frá honum að skálanum. Mennirnir á myndinni eru, frá vinstri: Ingibergur Guðmundsson, Magnús B. Jónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Ólafur Bernódusson.
Guðrún Guðmundsdóttir 028
Myndin var tekin í sumarferð aldraðra um Austurland 25. - 28. júní 1991. Í ferðinni gisti hópurinn á Hótel Edda á Hallormsstað. Á þessari mynd eru Elísabet Sigurgeirsdóttir (d.11.11.2015) fararstjóri og Ólafur Pálsson (d.26.3.2004) frá Björgum að fá sér kaffi á leiðinni í samkeppni við mývarginn.
Gréta 015
Konan hægra megin er óþekkt en sú til vinstri er María Magnúsdóttir (d.2.2.2016). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Ef þú þekkir óþekktu konuna vinsamlega sendu okkur þá arhugasemd.
Ólafur Bernódusson1233
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en líklega var það kringum 1990. Krakkarnir eru að bíða eftir að fá grillaða pylsu á útivistardegi í Höfðaskóla. Strákurinn með skyggnið er Kristján Gunnar Guðmundsson og vinstra megin við hann er Steinþór Karlsson. Strákurinn sem hallar sér út úr röðinni, nær okkur, er óþekktur en aftan við hann er Birkir Rafn Gíslason. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 576
Myndin var tekin af konum að vinna við færibandið í Rækjuvinnslunni hf. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru, hægra megin við bandið, frá vinstri: Díana Kristjánsdóttir, Þórdís Skúladóttir og Ingibjörg Dúna Skúladóttir (d.30.7.2023). Konurnar vinstra megin við bandið eru óþekktar.
2001029
Ekki er vitað í hvaða leikriti þetta fólk er að leika en líklega var það annað hvort Tengdamamma, í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar, eða Þvaðrið í leikstjórn Þóreyjar Jónsdóttur en þau voru sett upp 1959 og 1961 í gömlu Tunnunni. Leikararnir eru, frá vinstri: Guðmunda Árnadóttir og Bernódus Ólafsson.
Ólafur Bernódusson1120
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd er einhvert atriði í gangi sem áhorfendur kunna að meta. Þeir eru, frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), Adolf H. Berndsen, Elín Njálsdóttir og Steindór R. Haraldsson.
Ólafur Bernódusson1131
Myndin var tekin í apríl 1996 þegar brúðuleikhús kom í heimsókn til nemenda í Höfðaskóla og úr leikskólanum Barnaból. Auk barnanna á myndinni er hægt að finna nokkra kennara: Guðrúnu Sigurðardóttur, Birnu Blöndal (d.26.10.2018), Helgu Ólínu Aradóttur, Guðrúnu Hrólfsdóttur og Þórunni Bernódusdóttur. Þú verður sjálf/ur að finna konurnar og þau börn sem þú þekkir á myndinni.
Óþekktur ljósmyndari632
Hjónin á Litla - Bergi, Hinrik Nikulás Haraldsson (d.5.7.1981) og Guðrún Jónsdóttir (d.8.1.1964). Myndin er úr bókinni Ættir Austur Húnvetninga.
Ingibergur Guðmundsson 535
Gróðursetningarhópur úr Höfðaskóla í hlíðum Spákonufellsins líklega kringum 1994. Fullorðna fólkið er frá vinstri: Vilborg Magnúsdóttir, Guðrún Hrólfsdóttir, Ágúst Bragason og Jóney Gylfadóttir. Ágúst er að kenna krökkunum vinnubrögðin við plöntunina en börnin á myndinni eru óþekkt.
2001122
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Guðmundur Haukur Sigurðsson og Anna Jóna Geirsdóttir í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1132
Myndin var tekin í desember 1995 á eldvarnardegi í Höfðaskóla. Magnús Ólafsson (d.23.7.2012) þáverandi slökkviliðsstjóri til hægri að spjalla við nemendur. Reykkafarinn til vinstri er líklega Gunnar Stefánsson slökkviliðsmaður. Börnin á myndinni eru, frá vinstri: Almar Freyr Fannarsson (nær), óþekkt, Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022) kennari, Maríanna Ástmarsdóttir, Sigþór Ottó Hallgrímsson (fjær), Ívar Kristberg Einarsson (nær) og Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006).
Ingibergur Guðmundsson 482
Í allmörg ár var haldið Norræna skólahlaupið í skólum á Íslandi. Þessi mynd var tekin haustið 1984 þegar yngri nemendur Höfðaskóla eru að búa sig undir að hlaupa. Maðurinn með húfuna er Jón S. Pálsson skólastjóri. Í rauðum anorak vinstra megin við hann er Björk Axelsdóttir kennari. Konan í hvíta íþróttajakkanum er Guðrún Guðmundsdóttir kennari. Börnin eru, frá vinstri: Guðmundur Henry Stefánsson, óþekkt, Berglind Karlsdóttir?, Svanur Árnason, Börkur Árnason, Jónas Fanndal Þorvaldsson, Viggó Maríasson?(næst), Anna Dröfn Guðjónsdóttir (fjærst), tvö óþekkt á milli Viggós og Önnu, Hólmfríður Anna Ólafsdóttir, Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir í rauðri úlpu og Áslaug/Vilborg Jóhannsdóttir í blárri úlpu. Framan við þær systur eru óþekkt börn. Strákur í brúnni úlpu með blá vettlinga er líklega Kristján Gunnar Guðmundsson og við hlið hans í blárri úlpu með röndótta húfu er Þorlákur Ómar Guðjónsson. Í blárri peysu og rauðum buxum er Hafdís Hrund Ásgeirsdóttir?. Við hlið Jóns skólastjóra, rauðklædd með gleraugu, er Særún Níelsdóttir og framan við hana er systir hennar Bjarnhildur Hrönn Níelsdóttir. Strákurinn með hvítu vettlingana er Steinþór Karlsson. Önnur frá hægri er Arna Guðrún Jónsdóttir og lengst til hægri er Sigríður Margrét Oddsdóttir. Ef þú þekkir einhvert óþekktu barnanna vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson - safn 1494
Stúlkurnar á myndinni njóta kvöldblíðunnar við Víkina á Skagaströnd. Birta Dögg Bessadóttir breiðir út faðminn en hinar stúlkurnar eru óþekktar. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 465
Kristjana Jónsdóttir og Jón Arnar Arnarsson sigurvegarar í sínum aldursflokki á 17. júní móti umf Fram 1985. Í baksýn, frá vinstri: Heimir Guðmundsson, Sigfús Jónsson, Rúnar loftsson, Bjarney Valdimarsdóttir (fjær), tveir óþekktir (nær), Arnar Arnarsson (fjær), óþekktur og Erla María Lárusdóttir.
2001115
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni er Ragnhildur, sem snýr baki í okkur, að gefa leikurunum leiðbeiningar á æfingu. Leikararnir eru, frá vinstri Anna Jóna Geirsdóttir, Jónas Baldursson, Ágústa Friðriksdóttir, Þorvaldur Skaftason, Karl Berndsen, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Bjarnhildur Sigurðardóttir.
Gréta 041
Hjörtur Guðbjartsson leikur á trommurnar og Þorvaldur Skaftason á gítar í einhverri óþekktri hljómsveit á dansleik, líklega í Fellsborg. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
2001101
Myndin er af fjölskyldunni frá Akurgerði á Skagaströnd. Myndin var líklega tekin seint á níunda áratugnum því fjölskyldufaðirinn Þorbjörn Jónsson, sem lést 1986, er ekki á myndinni.
1
…
75
76
77
78
79
Leita í myndasafninu
Leita