Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 484
Myndin var tekin í september 1984. Á henni eru börn að taka upp í skólagörðunum sem þá voru starfræktir við Ránarbraut þar sem nú eru raðhúsin númer 19 - 23. Börnin á myndinni eru óþekkt en ef þú þekkir eitthvert þeirra vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 370
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en fólkið í sjóferðinni er, frá vinstri: óþekkt, Lára Guðmundsdóttir og Gunnar Svanlaugsson maður hennar.
Ólafur Bernódusson1151
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg 2014. Á henni eru, frá vinstri: Ísak Karl Tryggvason, Guðmann Einar Magnússon og Friðmar Kári Eiríksson. Á myndinni eru þeir að draga út vinningshafa í tertuhappadrættinu sem var einn af liðunum á dagskrá árshátíðarinnar.
Gréta 019
Aðalheiður Másdóttir úr Réttarholti til vinstri og Gréta Jónsdóttir úr Laufási til hægri í dúkkuleik í Höfðanum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir134
Þórhildur Jakobsdóttir úr umf Fram kemur í mark sem sigurvegari í einhverju hlaupi á íþróttamóti á Skagastrandarvelli. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og aðrir á henni eru óþekktir.
Jónas 38
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Hallveig Ingimarsdóttir, Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022), Rúnar Loftsson, Guðmundur Haukur Sigurðsson og Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) (fjær), Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) (nær), Ólafur Bernódusson og Magnús B. Jónsson.
Ólafur Bernódusson1126
Myndin var tekin í afmælishófi í Fellsborg þegar félagar í Leikklúbbi Skagastrandar, ásamt mökum, héldu upp á 20 ára afmæli klúbbsins í desember 1995 með kaffi- og skemmtikvöldi. Fyrir kvöldið var búið að skipta félögunum í hópa sem allir áttu að koma með eitt frumsamið skemmtiatriði. Einnig þurftu allir að mæta með einhvers konar höfuðfat. Á þessari mynd eru allir að taka þátt í einhverjum hreyfileik eins og sjá má. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Magnús Blöndal (d. 7.9.2001), Egill Bjarki Gunnarsson, Kolbrún Viggósdóttir, Ingibergur Guðmundsson, Kristín Jónsdóttir, Guðrún Pálsdóttir, Hjörtur Guðmundsson, Ingólfur Sveinsson, Björn Hallbjörnsson, óþekktur, Einar Haukur Arason, Ari Jón Þórsson og Halla Lýðsdóttir.
Ólafur Bernódusson1235
Myndin var tekin 28. júlí 1995 í gangnamannaskála á Auðkúluheiði. Á henni eru fólka að borða nestið sitt á skemmtiferð yfir heiðina. Fólkið er, frá vinstri: óþekkt barn, Ólafur Bernódusson, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Lárus Ægir Guðmundsson (fjær), Guðrún Garðarsdóttir (nær), Birgir Þórbjarnarson, Eðvarð Hallgrímsson og Jakob Jakobsson. Næst okkur á myndinni er Þorbjörg Eðvarðsdóttir með dóttur sína.
Gréta 032
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en það var gert af sviðinu í gömlu Tunnunni, sem nú hýsir Spákonuhofið. Tilefni dansleiksins gæti t.d. hfa verið eitthvert afmæli Umf Fram en það þó ekki vitað. Dansfólkið á myndinni er ekki þekkt .
2001049
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin né tilefni hennar. Á henni spila á gítara systurnar Guðrún Sigurðardóttir til vinstri og Hjördís Sigurðardóttir til hægri. Maðurinn með harmónikuna er Adolf J. Berndsen eiginmaður Hjördísar.
2001039
Á myndinni, sem líklega hefur verið tekin kringum 1957, er Reynir Sigurðsson hægra megin en strákurinn til vinstri er óþekktur (??Árni Ólafur Sigurðsson??).
Gréta 085
Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Aðalheiður Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum, Fjóla Sigurðardóttir (d.15.7.188) Laufási og Jóhanna Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Höfðaskóli - safn554
Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, heimsótti Höfðaskóla í október 2002. Á myndinni er hluta af nemendum og starfsfólki skólans að bíða komu hans.
Ólafur Bernódusson1213
Carl Erik Lehman Jakobsen kennir sund í litlu sundlauginni á Skagaströnd kringum 1995. Calle snýr baki í myndavélina en nemendur hans eru, frá vinstri: Sigurgeir Snævar Árnason, Arnór Snorri Gíslason, Ívar Gylfason, Kristján Pétur Guðjónsson, Rebekka Maren Þórarinsdóttir, ?Ragnheiður Erla Stefánsdóttir?, Guðmundur Björn Sigurgeirsson, ?Eydís Ósk Einarsdóttir? og Íris Ósk Jóhannesdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 389
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru, frá vinstri: Ástmar Kári Ástmarsson, Jóhanna Harðardóttir, Kolbrún Viggósdóttir, Anna Sjöfn Jónasdóttir og Ólafur Bernódusson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 446
Hjónin Inga Matthíasdóttir og Friðrik Gígja í skólaferðalagi með unglingum úr Höfðaskóla í maí 1986. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 527
Ólafur Magnússon Hu 54 í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 1996. Þessi Ólafur var 125 brl. en Jökull hf. keypti bátinn frá Hornafirði og gerði hann út til ársins 2005 en seldi svo haustið 2006. (heimild: "Sjósókn frá Skagaströnd & Vélbátaskrá 1908 - 2010" eftir Lárus Ægi Guðmundsson).
Jónas 58
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, í hlutverkum sínum, Guðmundur Haukur Sigurðsson vinstra megin og Gunnar Benónýsson (d.29.7.2003) til hægri.
Ingibergur Guðmundsson 400
Á skólamóti á Húnavöllum veturinn 1987 kepptu þessir drengir, ásamt fleirum, á vegum Höfðaskóla. Strákarnir í aftari röð eru, frá vinstri: Baldur Magnússon, Björn Sigurðsson, Atli Þór Þórsson, Reynir Lýðsson og Jón Heiðar Jónsson. Í fremri röð, frá vinstri: Friðrik Gunnlaugsson, Börkur Hrafn Árnason og Gunnar Halldór Hallbjörnsson.
Ingibergur Guðmundsson 559
Sumarið 1989 hélt Höfðahreppur upp á 50 ára afmæli sitt með grillveislu á tjaldsvæðinu. Á myndinni er fólk að gæða sér á grilluðum pylsum og appelsínusafa. Sitjandi fólkið er, frá vinstri: Guðný Finnsdóttir, Ólína Sveinsdóttir, Jakob Jakobsson, Þorbjörg Eðvarðsdóttir, Sigríður Einarsdóttir, óþekkt, Ólafur Ingibjörnsson og Hrönn Árnadóttir. Konan í bláa jakkanum í baksýn er Vilborg Magnúsdóttir og maðurinn í blá jakkanum til hægri er Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000). Ef þú þekkir óþekktu stúlkuna milli Sigríðar og Ólafs, vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 488
Myndin af bridgespilurunum í Bridgeklúbbi Skagastrandar var tekin í Fellsborg í janúar/febrúar 1985. Spilararnir við borðið fjærst eru, frá vinstri: Vilhelm Jónsson, Steinunn Grímsdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir og Kristinn Guðmundsson. Við borðið í miðjunni eru, frá vinstri: Gunnar Sveinsson (d.3.11.2020), Guðmundur Haukur Sigurðsson, Eðvarð Hallgrímsson og Kristófer Árnason (d.10.5.2000). Við borðið næst okkur eru, frá vinstri: Kristinn Jóhannsson (d.9.11.2002), Magnús Ólafsson (d.23.7.2012), Ólafur Bernódusson og Ingibjörg Kristinsdóttir.
Ólafur Bernódusson1228
Jónas Þorvaldsson kemur fyrstur, í sínum aldursflokki, í mark í Landsbankahlaupinu í maí 1987.
2001031
Á þessari óskýru mynd er Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) til vinstri og Árni Ólafur Sigurðsson til hægri. Stúlkan milli þeirra er óþekkt. Myndin var líklega tekin seint á sjöunda áratugnum
Ingibergur Guðmundsson 387
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni er Magnús B. Jónsson að skrifa í gestabók sem gekk milli manna í hófinu. Aðrir bíða eftir að röðin komi að þeim.
Ingibergur Guðmundsson 481
Myndin var tekin 1985 á tröppum Fellsborgar af krökkum úr umf Fram. Líklega var tilefnið unglingamót USAH á Húnavöllum og þetta því keppendur á því með farastjóranum Guðmundi Hauk Sigurðssyni. Fólki er eftirlátið að þekkja sjálf sig og aðra á myndinni.
Jónas 2
Hluti fermingarbarna í Hólaneskikju (eldri) vorið 1979 með presti sínum séra Pétri Þ. Ingjaldssyni (d.1.6.1996). Fermingarbörnin eru, frá vinstri: Björk Sveinsdóttir, Hjörtur Þórarinn Sigurðsson (d.9.5.2015), Guðbjartur Sævarsson, séra Pétur, Óli Axel Óskarsson, Bryndís Björk Guðjónsdóttir, Valdimar Viggósson, Rögnvaldur Ottósson og Margrét Ólafsdóttir. Í fermingarhópnum voru líka, en eru ekki á myndinni, Ingólfur Sveinsson, Sigrún Jónsdóttir og Sigurður Jónsson.
Ólafur Bernódusson1153
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru yngstu nemendur skólans að syngja fyrir gesti. Börnin eru, frá vinstri: Helga Margrét Steingrímsdóttir, Hugrún Sigurðardóttir, Ísabella Tryggvadóttir, Óðinn Örn Gunnarsson og Sóley Sif Jónsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 493
Verðlaunahafar á héraðsmóti USAH líklega sumarið 1984. Myndin var tekin á einnota myndavél og eru gæði hennar eftir því. Á myndinni eru í öftustu röð, frá vinstri: Kristinn Guðmundsson, Sigríður Gestsdóttir og Ingibergur Guðmundsson. í Miðröðinni, frá vinstri: Sigurður Guðmundsson, Lárus Ægir Guðmundsson og óþekktur. fremst, frá vinstri: óþekkt, Soffía Guðmundsdóttir og óþekkt. Ef þú þekkir óþekkta fólkið vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 543
Verðlaunahafar í einum aldursflokki í Landsbankahlaupi. Hlaupin fóru fram í nokkur ár og var þá hlaupinn ákveðinn hringur um bæinn. Mikil þátttaka var ávalt í hlaupunum enda góðar veitingar í boði í bankanum eftir þau. Drengurinn í græna jakkanum er óþekktur en á efsta palli er Jóhannes William Grétarsson og númer 10 er Albert Ingi Haraldsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 491
Myndin var tekin á sundmóti líklega 1985 á litla einnota myndavél og því eru gæðin ekki mikil. Á henni er Gunnar Svanlaugsson að leggja strákunum lífsreglurnar. Næst honum, í rauðri skýlu, er Árni Jón Guðmundsson (d.8.1.2006). Aftan við hann í svartri skýlu með höndina fyrir munninum er Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) en aðrir á myndinni eru óþekktir.
20250614_154712
Myndin var tekin 14. júní 2025. Á henni eru tveir læknar ásamt foreldrum sínum að fagna útskrift úr Háskóla Íslands. Fólkið á myndinni er, frá vinstri: Róbert Freyr Gunnarsson, Ívan Árni Róbertsson læknir, Aðalheiður Sif Árnadóttir, Sigríður Stefánsdóttir, Guðrún Anna Halldórsdóttir læknir og Halldór Gunnar Ólafsson. Ívan Árni og Guðrún Anna luku grunnskólanámi frá Höfðaskóla í sama bekk og voru alla tíð miklir vinir. Það heyrir til tíðinda að tveir bekkjarfélagar úr Höfðaskóla útskrifist sem læknar á sama tíma.
2001133
Leikárið 1978 - 1979 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Hart í bak, undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á þessari mynd eru, frá vinstri, leikararnir: Magnús B. Jónsson, Jón Helgi Eiðsson og Birna Blöndal í hlutverkum sínum í verkinu.
Ingibergur Guðmundsson 425
Myndin var tekin í október 1987 þegar sundlaugin á Skagaströnd var tekin aftur í gagnið eftir gagngerar endubætur á lauginni sjálfri og búningsaðstöðunni. Fremst á myndinni eru Guðmundur Sigvaldason (d.8.2.2017) til vinstri, þá nýbyrjaður sem sveitarstjóri og Sigfús Jónsson fráfarandi sveitarstjóri. Aðrir á myndinni eru óþekktir. Í baksýn gnæfa gömlu olíu-og lýsistankarnir sem stóðu þarna í skjóli við Höfðann.
Jónas 59
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru frá vinstri leikararnir: Ólafur Bernódusson, Elín Njálsdóttir, Gunnar Benónýsson (d. 29.7.2003), Hallbjörn Hjartarson (d.2.9.2022) og Hallveig Ingimarsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 454
Þessi mynd var tekin á Norðurlandsleikum æskunnar 1985 á Sauðárkróki. Á henni eru nokkrir krakkar úr umf Fram í USAH. Krakkarnir eru, talið frá hægri: Vilhjálmur Jónsson, Skúli Tómas Hjartarson, Jón Heiðar Jónsson, Guðný Finnsdóttir, Brynjar Pétursson og Reynir Lýðsson. Ljóshærða konan í bláum stakk og rauðri peysu er Þórhalla Guðbjartsdóttir en aftan við hana er Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Gréta 076
Strákarnir þrír á myndinni eru í sparifötunum sínum. Líklega var myndin tekin rétt fyrir 1950. Strákarnir eru, frá vinstri: Gunnar Davíðsson (d.14.8.1989) frá Neðri Harrastöðum, Guðmundur Kristjánsson (d.2.5.1977) frá Háagerði og Reynir Davíðsson frá Neðri Harrastöðum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir152
Nokkrir af forystumönnum Skagstrendings hf staddir í í Bergen, en þá var þar verið að smíða frystitogara fyrir fyrirtækið. Þetta var sumarið 1992 því togarinn - Arnar Hu 1 - kom í fyrsta sinn til heimahafnar 22. desember 1992. Hann var þá stærsta fiskiskip Íslendinga. Fólkið í röðinni hægra megin er, frá hægri: Helga Jóhannesdóttir, Sveinn S. Ingólfsson, óþekkt, Adolf H, Berndsen og Magnús B. Jónsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 418
Fólkið á myndinni sigraði í sveitakeppni hjá Bridgeklúbbi Skagastrandar veturinn 1987. Frá vinstri: Eðvarð Hallgrímsson, Kristinn Jóhannsson (d. 9.11.2002), Ingibjörg E. Kristinsdóttir og Málfríður Jóhannsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 394
Systurnar þórey Jónsdóttir til vinstri og Sigrún Jónsdóttir til hægri á hafnarsvæðinu á sjómannadegi árið 1987. Við hlið Sigrúnar er sonur hennar Hermann Freyr Guðjónsson. Fyrir aftan hann má sjá Slavko Velemir en á milli þeirra systra grillir í Hrólf Jakobsson (d.22.12.1996). Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Jónas 60
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru, frá vinstri: Guðbjörg Viggósdóttir, Elín Njálsdóttir (sitjandi), Hallveig ingimarsdóttir og Ólafur Bernódusson í hlutverkum sínum.
2001016
Upp úr 1960 ákváðu skátarnir í Sigurfara á Skagaströnd að byggja sér skála í Brandaskarðinu. Hafist var handa við bygginguna og steyptur sökkull (og plata?) sem skátarnir gerðu undir leiðsögn vanra manna. Einhverra hluta vegna varð aldrei meira úr framkvæmdum í Brandaskarðinu en í stað þess byggður skáli í suðurhlíðum Spákonufellsins. Myndin var tekin af framkvæmdunum í Brandaskarðinu. Á henni eru, frá vinstri: Sigurður Bjarnason, Jóhann Björn Þórarinsson, Frímann Lúðvíksson, Lárus Ægir Guðmundsson, Guðmundur Guðmundsson, Þórður Jónsson félagsforingi, Ísleifur Haraldsson (aftar), Sævar Rafn Hallgrímsson (nær), Reynir Sigurðsson, Hallbjörn Björnsson, Jóhann Ingibjörnsson, Pétur Jóhannsson og Bergur Jón Þórðarson.
Ólafur Bernódusson1236
Líklega var þessi mynd tekin í afmælisveislu hjá Ester Ösp Víðisdóttur einhverntíma kringum 1995. Á henni eru, frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Kristján Ýmir Hjartarson og Ester Ösp Víðisdóttir.
2001024
Á myndinni sem tekin var um jólin 1961 eru skátar úr Sigurfara að sýna leikrit í gömlu Tunnunni (nú Spákonuhof). Skátarnir á henni eru, frá vinstri: óþekktur, Bergdís Sigmarsdóttir, óþekktur, Þórir Ágústsson, óþekktur, Guðrún Þórbjarnardóttir, tveir óþekktir, Ester Axelsdóttir og tveir óþekktir. Þórður Jónsson hefur sent vini sínum, Ingólfi Ármannssyni, myndina og skrifaði aftan á hana: "Ska.10/1 ´62. Kæri vinur Þessi mynd var tekin á jólatréskemmtun hjá okkur og sýnir Grýlu og Leppalúða með nokkra syni sína. Við skreittum sinuns eiins og þú sérð og geði þetta mikla lukku. Skemmtuninn tókst mjög vel og skemmtu allir sér konunglega. Það komu um 130 manns um daginn og tæpir 100 um kvöldið og þó var veðrið mjög....."
Gréta 006
Myndin var líklega tekin um 1960. Vinstra megin á henni eru: systkinin Magnús B. Jónsson og Fjóla Jónsdóttir úr Asparlundi. Svo koma systur úr Akurgerði, frá vinstri: Guðbjörg J. Þorbjarnardóttir og Hrefna Þorbjarnardóttir, sem situr með barn í fanginu. Líklega er það eins systirin enn, Heiðdís Þorbjarnardóttir.
2001043
Á myndinni er Hallbjörg Jónsdóttir með sonardætur sínar. Í fanginu á Hallbjörgu er Elva Dröfn, þá kemur Halla Kristín og sú lengst til hægri er Aðalheiður Sif allar dætur Árna Ólafs Sigurðssonar. Myndin var líklega tekin kringum 1984.
Ólafur Bernódusson1075
Myndin var tekin í september 1996 þegar tekin var fyrsta skóflustunga fyrir íþróttahúsinu. Á henni er Magnús B. Jónsson sveitarstjóri að láta krakka úr Höfðaskóla draga um það hvert þeirra fái að taka skóflustunguna. Eldri krakkar og fullorðnir fylgjast með í nepjunni.
Ólafur Bernódusson1175
Myndin var tekin á Elínborgardegi á vegum Höfðaskóla í Fellsborg 15. nóvember 2012. Á henni eru nokkrir nemendur spennt að fylgjast með af svölunum. Frá vinstri: Elmar Jóhann Grétarsson, Anton Þór Einarsson, Rakel Jensína Jónsdóttir, Egill Örn Ingibergsson, Aldís Embla Björnsdóttir, Elvar Geir Ágústsson og Páll Halldórsson.
Ingibergur Guðmundsson 411
Sumarið 1987 fór hópur fólks frá Skagaströnd í nokkurra daga gönguferð um Hornstrandir. Á myndinni er hluti hópsins að hvíla sig efst á Skálakambi við Hlöðuvík. Fólkið er, frá vinstri: Jane Sillar, William Sillar, Kristinn Guðmundsson og tveir óþekktir (?Hjörtur Guðmundsson og Hafsteinn Pálsson?).
Ingibergur Guðmundsson 468
Myndin var tekin í maí 1985 þegar elstu nemendur Höfðaskóla voru að klára skólagöngu sína í þar. Á myndinni eru, frá vinstri: óþekktur, Davíð Reynisson, Stefán Ægir Lárusson, Arnar Erlingsson og Ágúst Ómarsson. Sá sem snýr baki í myndavélina er Þráínn Bessi Gunnarsson.
Ólafur Bernódusson1176
Myndin var tekin á árshátíð Höfðaskóla í Fellsborg annað hvort 2014 eða 2016. Á henni eru Helga Gunnarsdóttir kennari og Georg Þór Kristjánsson nemandi að kynna næsta atriði dagskráinnar.
Ingibergur Guðmundsson 512
Eitt af því sem skíðadeildarfólk gerði til að fjármagna byggingu skíðaskálans var að bera út jólapóstinn fyrir fólk á Skagaströnd. Á myndinni eru nokkrir þeirra að leggja af stað í útburð sem jólasveinar. Hjálparmaður þeirra, Eðvarð Hallgrímsson, ók þeim um bæinn því hreindýrin voru lasin. Jólasveinarnir eru, frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Ólafur Bernódusson, óþekktur og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ingibergur Guðmundsson 453
"Fimman" var íþróttamót fimm íþróttafélaga af Norðvestur- og vesturlandi sem haldin var nokkrum sinnum. Þessi mynd var tekin við verðlaunaafhendingu á slíku móti árið 1985. Lengst til hægri á veðlaunapalli er Sigríður Gestsdóttir úr umf Fram.
Ólafur Bernódusson1046
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból.
Ingibergur Guðmundsson 435
Myndin var tekin í Skíðaskálanum í júní 1986 þegar haldið var upp á 40 ára brúðkaupsafmæli Guðmundar Jóhannessonar (d.17.4.2018) og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010). Á myndinni eru, við borðið nær, frá vinstri: Kári Kristjánsson (d.11.12.1990), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993). Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) er svo við borðið fjær okkur.
Ingibergur Guðmundsson 382
Myndin var tekin í hófi í Fellsborg eftir frumsýningu Leikklúbbs Skagastrandar á leikritinu Síldin kemur og síldin fer vorið 1987. Á myndinni eru Jón Hilmar Indriðason, Björk Sveinsdóttir í miðjunni og Sigrún Jónsdóttir til hægri. Öll tóku þau þátt í sýningunni á einn eða annan hátt.
Ólafur Bernódusson1100
Í júní 1996 fékk áhöfnin á Örvari Hu 21 afhentan gæðaskjöld Coldwater Seafood. Skjöldinn fékk áhöfnin fyrir bestu framleiðslu og vöruvöndun um borð í frystitogara árið 1995. Á myndinni er Páll Pétursson, gæðastjóri hjá Coldwater, að tala við áhöfn Örvars og fleiri. Við hlið Páls situr Óskar Þórðarson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf sem átti og gerði Örvar út. Lengra til hægri, í dökkum jakka, situr Gylfi Guðjónsson útgerðarstjóri. Aðrir á myndinni eru karlarnir í áhöfn Örvars sem stóðu sig svona vel.
Höfðaskóli - safn398
Þessi vinahópur, fæddur 1989, var saman í bekk í Höfðaskóla. Frá vinstri: þórey Fjóla Aradóttir, Arnrún Bára Finnsdóttir, Ásþór Óðinn Egilsson (fjær), Guðmundur Ingi Ólafsson (d.8.11.2006) (nær), Almar Freyr Fannarsson og Sigþór Ottó Hallgrímsson. myndin var líklega tekin 2004 eða 2005.
2001511
Myndin var tekin í nýopnaðri kaupfélagsverslun við Bogabraut á Skagaströnd. Búðin var opnuð í núverandi (mars 2026) húsnæði 1975. Síðan þá hefur fyrirkomulagi þar innan dyra verið breytt nokkrum sinnum. Á myndinni er verslunarstjórinn Jón Jónsson og litla stúlkan er Guðmunda Ólafsdóttir. Konan með gleraugun er María Magnúsdóttir kona Jóns. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001128
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér, undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson og Elín Njálsdóttir í hlutverkum sínum í verkinu.
Jónas 28
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru þau Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Lárus Ægir Guðmundsson í hlutverkum sínum.
1
…
75
76
77
78
79
Leita í myndasafninu
Leita