Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Hópmyndir
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Ingibergur Guðmundsson 435
Myndin var tekin í Skíðaskálanum í júní 1986 þegar haldið var upp á 40 ára brúðkaupsafmæli Guðmundar Jóhannessonar (d.17.4.2018) og Soffíu Lárusdóttur (d.31.3.2010). Á myndinni eru, við borðið nær, frá vinstri: Kári Kristjánsson (d.11.12.1990), Jónína Valdimarsdóttir (d.12.3.2020) og Lára Kristjánsdóttir (d.6.9.1993). Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011) er svo við borðið fjær okkur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir141
Hjónin Ingibjörg Björgvinsdóttir (d.14.2.2018) og Steindór Rúniberg Haraldsson á köldu gamlaárskvöldi 1998.
Ólafur Bernódusson1047
Myndin var tekin í júní 1997 á 20 ára afmælishátíð leikskólans Barnaból. Börnin standa stolt hjá afmælistertunni sem gestum var boðið upp á í tilefni dagsins. Börnin eru, frá vinstri: Patrik Snær Bjarnason, Elna Ragnarsdóttir (nær), Ívar Gylfason (fjær), Ómar Ísak Hjartarson, Þórey Fjóla Aradóttir, Guðjón Örn Arason og Sunna Gylfadóttir.
2001128
Leikárið 1980 - 1981 setti Leikklúbbur Skagastrandar á svið leikritið Stalin er ekki hér, undir leikstjórn Sögu Jónsdóttur. Á myndinni eru Magnús B. Jónsson og Elín Njálsdóttir í hlutverkum sínum í verkinu.
Ingibergur Guðmundsson 491
Myndin var tekin á sundmóti líklega 1985 á litla einnota myndavél og því eru gæðin ekki mikil. Á henni er Gunnar Svanlaugsson að leggja strákunum lífsreglurnar. Næst honum, í rauðri skýlu, er Árni Jón Guðmundsson (d.8.1.2006). Aftan við hann í svartri skýlu með höndina fyrir munninum er Sigurbjörn Fanndal Þorvaldsson (d.13.8.2000) en aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir159
Myndin var líklega tekin í Bergen 1992. Þá var þar í smíðum frystitogarinn Arnar Hu 1 fyrir Skagstrending hf. Hópur fólks frá Skagaströnd, sem tengdist útgerðinni á einn eða annan hátt, fór til Bergen þegar skipið var afhent. Arnar kom svo í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 22. desember 1992. Á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Þórey Jónsdóttir, María Alexandersdóttir, Guðbjörg Viggósdóttir og óþekkt kona.
2001009
Skátar í skátafélaginu Sigurfara ganga í fararbroddi með fána í skrúðgöngu frá Hólaneskirkju (eldri) eftir messu þar. Myndin var líklega tekin kringum 1960. Maðurinn lengt til vinstri er Ingólfur Ármannsson félagsforingi. Fánaberar eru frá vinstri: Anna Skaftadóttir, Fjóla Jónsdóttir,Þórunn Bernódusdóttir, Kristinn Lúðvíksson og óþekktur, Aðrir í göngunni eru óþekktir. Húsin í baksýn eru Stóra Berg til vinstri og Iðavellir til hægri.
20250725_142634
Íbúar Sæborgar sitja úti á stétt og njóta veðurblíðunnar 25. júlí 2025. Frá vinstri: Guðbjörg Eiríksdóttir, Lýður Hallbertsson, Vilhjálmur Skaftason, Hjördís Sigurðardóttir, Guðrún Sigurðardóttir, Óli Albertsson og Árni Hjaltason.
Ingibergur Guðmundsson 391
Kaffipása í eldhúsinu í Fellsborg á æfingu á leikritinu Fyrsta öngstræti til hægri sem Leikklúbbur Skagastrandar setti á svið veturinn 1987-´88 undir leikstjórn Þrastar Guðbjartssonar (d.17.7.2021). Á myndinni eru, frá vinstri: Jane Sillar, Sveinbjörg Dóra Sveinbjörnsdóttir (d.25.9.2006) (fjær), hnakkasvipur Williams Sillar (nær), Óskar Óskarsson, Bóel Hallgrímsdóttir, Sigrún Jónsdóttir og óþekkt.
Ingibergur Guðmundsson 557
Myndin var tekin við aparóluna á tjaldsvæðinu sumarið 1989 þegar haldið var upp á 50 ára afmæli Höfðahrepps. Þá hafði rólan verið sett upp nokkrum dögum fyrr og naut mikilla vinsælda hjá yngri kynslóðinni eins og sjá má á myndinni. Í rólunni er Arnar Ólafur Viggósson og drengurinn í appelsínugulu buxunum er Jónas Þorvaldsson. Aðrir á myndinni eru óþekktir en ef þú þekkir einhvern af þeim vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson1200
Þessi mynd var tekin einhverntíma á árunum í kringum 1985 í kaupfélaginu á Skagaströnd. Þá var meðal annars seldur fatnaður og efni í búðinni. Jón Jónsson (d. 9.7.1991), sem þá var útibússtjóri kaupfélagsins, stóð fyrir tískusýningu í búðinni rétt fyrir jólin. Lögð var krossviðsplata á frystikistuna og þá var komið svið. Krakkar og unglingar voru fengin til að sýna fötin og eins og sést á myndinni var mikill áhugi fyrir sýningunni því búðin fylltist af fólki. Á þessari mynd sýna þrjár ungar stúlkur nýjustu tísku þess tíma fyrir sinn aldur.
Guðrún Guðmundsdóttir 093
Jóhanna Thorarensen (d.6.3.2004) og Snorri Gíslason (d.29.5.1994) kíkja á söngtexta fyrir rútubílasöng. Þau voru á ferðalagi með Húnvetnskum eldri borgurum á öldrunarmót í Reykjanesi við Ísafjarðardjúp 16. - 20. ágúst 1988.
Ingibergur Guðmundsson 564
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Hún sýnir fólk frá norðurlöndunum sem voru gestir Skagastrandar. Fólkið er að bíða við skíðaskálann eftir að kjötið grillist. Það var síðan borðað inni í skálanum. Lengst til hægri eru Skagstrendingarnir Þorvaldur Skaftason í gulum jakka, Ólafur Guðmundsson (d.7.4.2015) með hatt og Rolf Árnason (d.3.6.2014) í rauðum jakka. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
2001010
Myndin var tekin á tröppum Höfðaskóla einhverntíma á árunum 1960 - 1965 af skátunum í skátafélaginu Sigurfara á Skagaströnd. Í fremstu röð eru, frá vinstri: Jóhann Ingibjörnsson, óþekkt, Jóhanna Valdimarsdóttir, Kristín Lúðvíksdóttir, ?Hrefna Júlía Júlíusdóttir?, Sigrún Kristófersdóttir og Pétur Jóhannsson. Önnur röð, frá vinstri: Kristinn Lúðvíksson, Helga Ólafdóttir, Bergdís Sigmarsdóttir, Fjóla Jónsdóttir, ?Jóhanna Hallgrímsdóttir? og Sigurður Bjarnason. Þriðja röð, frá vinstri; Lárus Ægir Guðmundsson, Pálfríður Benjamínsdóttir, Halla Björg Bernódusdóttir, Anna Skaftadóttir, Sigrún Jósteinsdóttir (Siddý) og Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi). Fjórða röð, frá vinstri: Ísleifur Haraldsson, óþekkt, Guðrún Þórbjarnardóttir, Þórunn Bernódusdóttir og Birgir Júlíusson. Efsta röð, frá vinstri: Búi Þór Birgisson, Stefán Ingólfsson, Ómar Þorbjörnsson, Árni Sigurðsson, Grétar Haraldsson og Hallbjörn Björnsson. Aftan við hópinn standa félagsforingjarnir, Þórður Jónsson til vinstri og Ingólfur Ármannsson til hægri.
Guðrún Guðmundsdóttir 084
Félagsstarf aldraðra, undir leiðsögn Guðrúnar Þ. Guðmundsdóttur, hélt sýningu í Höfðaskóla í desember 1987 á munum sem fólkið hafði búið til. Á myndinni eru þrjár konur af sýnendunum sem voru mun fleiri. Konurnar eru, frá vinstri: Hrefna Jóhannesdóttir (d.9.11.2011), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og Elísabet G. Kristjánsdóttir (d.21.3.1991).
Ingibergur Guðmundsson 478
Fundur í skíðadeild umf Fram vorið 1985 utan við skíðaskálann. Umræðuefnið var smíði á palli meðfram húsinu og fleira. Á myndinni er skíðadeildarfólk. Standandi, frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Pétur Eggertsson og Guðmundur J. Björnsson. Sitjandi, frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Þorbjörg Magnúsdóttir, Soffía Lárusdóttir, Bjarney Valdimarsdóttir og Ólafur Bernódusson.
Ólafur Bernódusson1212
Fjölda margar konur og stelpur tóku þátt í kvennahlaupinu á Skagaströnd 19. júní 1993. Á myndinni eru konurnar samankomnar á tjaldsvæðinu, búnar að fá merkta boli, og eru að búa sig undir að fara af stað.
Ingibergur Guðmundsson 542
Verðlaunahafar í einum aldursflokki í Landsbankahlaupi Hlaupin fóru fram í nokkur ár og var þá hlaupinn ákveðinn hringur um bæinn. Mikil þátttaka var ávalt í hlaupunum enda góðar veitingar í boði í bankanum eftir þau. Drengurinn lengst til hægri er Jónas Þorvaldsson en hinir tveir eru óþekktir. Maðurinn í hægra horninu er Róbert Þórðarson (d.26.11.2011) sem var útibússtjóri bankans á Skagaströnd um árabil. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 541
Lárus Ægir Guðmundsson ræsir einn riðil, af nokkrum, í Landsbankahlaup. Hlaupin fóru fram í nokkur ár og var þá hlaupinn ákveðinn hringur um bæinn. Mikil þátttaka var ávalt í hlaupunum enda góðar veitingar í boði í bankanum eftir þau. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en gaman að sjá fótabúnað keppendanna.
Halldór Gunnar Ólafsson 007
Myndin var tekin um borð í Örvari Hu 21 1992 eða 93. Karlarnir á henni eru að beinhreinsa flök fyrir erlendan markað. Þeir eru, frá vinstri: Níels Grímsson, Karl Rósinbergsson (d.29.3.2004) og Axel Jóhann Hallgrímsson (d.25.2.2018).
Gréta 090
Hólmfríður Magnúsdóttir (d.6.7.2013) frá Syðra Hóli með börn sín og Rósabergs G. Snædal (d.9.1.1983). Börnin eru, frá vinstri: Hólmsteinn Snædal (d.31.12.2015), Gígja Snædal og Húnn Snædal. Myndin var líklega tekin einhverntíma upp úr 1950.
2001126
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru Bjarnhildur Sigurðardóttir og Karl Berndsen í hlutverkum sínum.
Ólafur Bernódusson1223
Sundlaugin á Skagaströnd var tekin í gegn og endurbætt 1986. Þessi mynd var tekin á "endurvígsludegi" laugarinnar 31. ágúst 1986. Á henni eru krakkar að láta líða úr sér í heita pottinum eftir busl í lauginni. Krakkarnir eru, frá vinstri: Arnar Haukur Ómarsson, óþekkt (nær), Guðbjörg Kristmundsdóttir (nær), Jóhanna Viktoría Sveinsdóttir (fjær), Guðmundur Henry Stefánsson, tveir óþekktir og Viktor Pétursson.
Ingibergur Guðmundsson 442
Nemendur og starfsfólk Höfðaskóla dansa syngjandi kringum jólatré á litlu jólum 1985. Krakkarnir á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Katrín Sigurjónsdóttir, Rakel Jónsdóttir, Jóney Gylfadóttir, Elíasbet Hallbjörnsdóttir, þrjú óþekkt, Rafn Ingi Rafnsson, óþekkt, Davíð Reynisson og tvær óþekktar. Ef þú þekkir einhvern af óþekktu krökkunum vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 563
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin en á henni eru Magnús B. Jónsson sveitarstjóri í grænum jakka með gleraugu og Guðbjörg Viggósdóttir konan hans í rauðum jakka, innan um gesti frá norðurlöndunum. Myndin var tekin um borð í Arnari Hu 1.
Ólafur Bernódusson1067
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd eru, frá vinstri: óþekktur, Adolf Þór Lúðvíksson, ?? þórðarson, ?Sigurbjörn Kristjánsson? (nær), Ólafur Guðmundsson (fjær), Jón Ingi Ragnarsson, Magnús Filip Sævarsson (fjær), Stefán Agnar Gunnarsson (nær), Gunnlaugur Briem (fjær), óþekktur (nær), Guðjón Ebbi Guðjónsson (fjær), Leó Kristberg Einarsson (nær), Guðni Már Lýðsson, Lýður Ragnar Arason, Árni Halldór Eðvarðsson, Hermann Freyr Guðjónsson og Daníel Guðmundsson.
Ólafur Bernódusson1104
Myndin var tekin í maí 1996 þegar félagskonur í kvenfélaginu Eining héldu upp á afmæli félagsins. Myndin var tekin á hótel Dagsbrún. Konurnar eru, frá vinstri: Birna Blöndal (d.26.10.2018), tvær óþekktar, Fjóla Ævarsdóttir, Guðrún Magnúsdóttir, Íris Valgeirsdóttir, óþekkt, Kristín Ólafsdóttir með barn í fanginu, Ása Jóhannsdóttir (fjærst), óþekktar (í miðið og næst okkur), Hjördís Sigurðardóttir, óþekkt, Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007), Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010), Jóna Guðrún Vilhjálmsdóttir (d.13.7.2003) og þrjár óþekktar konur.
Ingibergur Guðmundsson 337
þessi mynd var tekin í Höfðaskóla kringum 1990. Hún sýnir hluta gesta að fylgjast með einhverri uppákomu á sal í skólanum. Ef til vill vortónleikum tónlistarskólans? Fólkið í öftustu röðinni er, frá vinstri: óþekkt, Ágúst Jónsson, Guðný Hjartardóttir (d.14.3.2011), Sigurjón Guðbjartsson (fjær), Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson (nær), Ásta Ósk Ásgeirsdóttir?, Kristín Karlsdóttir, Sigrún Guðmundsdóttir, Ingibjörg Lárusdóttir (d.20.9.2010) og Sigurbjörg Jónasdóttir. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Ingibergur Guðmundsson 366
Kristján Guðmundsson (d.16.4.1979), bóndi í Háagerði, brýnir ljá á hverfisteini sumarið 1965. Kristinn Guðmundsson (d.1.2.1986) fylgist með til vinstri og Jóhannes Pálsson (d.23.11.1986) dáist að handbrögðum Kristjáns á steininum.
Guðrún Guðbjörnsdóttir143
Ekki er vitað hvert tilefni myndatökunnar var né hvenær myndin var tekin í Fellsborg. Á henni eru Aðalbjörg Hafsteinsdóttir (d.10.3.2022) til vinstri og Hildigunnur Jóhannsdóttir (d.1.1.1996) til hægri báðar í íslenskum búningum.
Gréta 099
Mæðgurnar María Magnúsdóttir (d.2.2.2016) og Fjóla Jónsdóttir úr Asparlundi láta fara vel um sig á blettinum framan við Laufás. Myndin var tekin rétt fyrir 1950.
Ingibergur Guðmundsson 458
Hluti af fólkinu sem skipaði skíðadeildina og stóð fyrir byggingu Skíðaskálans 1984-85. Hér eru þau að halda upp á vel heppnaða vígsludag 5. apríl 1985. Frá vinstri: Ólafur Bernódusson, Guðmundur Jón Björnsson, Magnús Björn Jónsson, Guðbjörg Viggósdóttir og Þorbjörg Magnúsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 456
Myndin var tekin í 10 ára afmælishófi Leikklúbbs Skagastrandar þann 22. nóvember 1985 í Fellsborg. Þar skemmtu félagar klúbsins hver öðrum með ýmis konar atriðum sem ekki áttu öll erindi á opinberar skemmtanir. Á þessari mynd er Birna Blöndal (d.26.10.2018) að kenna ballet þeim, frá vinstri: Magnúsi B. Jónssyni, Ingibergi Guðmundssyni, Ólafi Bernódussyni og Guðmundi Hauk Sigurðssyni. Að sjálfsögðu klæddu menn sig upp í viðeigandi búninga en grín var gert að Guðmundi fyrir að hann hefði ekki haft efni á að koma sér upp balletbúningi. Eins og sjá má voru þeir félagar ákaflega liprir í hreyfingum þó dálítið megi setja út á samhæfingu þeirra.
Skagaströnd - safn538
Myndin er frá 1946-47. Á henni eru menn að leggja rafstreng í síldarverksmiðjuna sem þá var í byggingu. Strengurinn var viðkvæmur og því dreginn út af mönnunum á myndinni sem röðuðu sér á strenginn svo hann drægist ekki í jörðina og skaddaðist. Á myndinni er komið að því að leggja strenginn varlega niður í skurðinn. Mennirnir eru óþekktir, flestir starfsmenn vélsmiðjunnar Héðins hf sem sá um allan vélbúnað verksmiðjunnar. Myndin er úr bókinn: "Héðinn í 100 ár svipmyndir 1922 til 2022", en ljósmyndarinn er óþekktur.
Ingibergur Guðmundsson 348
Myndin var líklega tekin í vinnuviku í Höfðaskóla 1989. Á henni eru, greinilega að vanda sig, frá vinstri: Elísabet Vattnes Sigurbjörnsdóttir, Þóra Ágústsdóttir og Elín Ósk Ómarsdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 543
Verðlaunahafar í einum aldursflokki í Landsbankahlaupi. Hlaupin fóru fram í nokkur ár og var þá hlaupinn ákveðinn hringur um bæinn. Mikil þátttaka var ávalt í hlaupunum enda góðar veitingar í boði í bankanum eftir þau. Drengurinn í græna jakkanum er óþekktur en á efsta palli er Jóhannes William Grétarsson og númer 10 er Albert Ingi Haraldsson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Jónas 28
Myndin er úr leikritinu Gísl sem Leikklúbbur Skagastrandar setti upp veturinn 1979 - 1980 í leikstjórn Ragnheiðar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru þau Bjarnhildur Sigurðardóttir (d.22.4.2016) og Lárus Ægir Guðmundsson í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 575
Myndin var tekin í Rækjuvinnslunni hf en ekki er vitað hvenær. Konurnar vinstra megin við bandið eru, frá vinstri: Salóme Jóna Þórarinsdóttir, Gígja Óskarsdóttir?, Inga Rós Sævarsdóttir og Guðrún Angantýsdóttir. Konurnar hægra megin við bandið eru óþekktar.
Gréta 073
Systkini frá Neðri Harrastöðum, börn Önnu Gísladóttur (d.22.7.1998) og Davíðs Sigtryggssonar (d.3.7.1971). Aftast eru Jóhanna Davíðsdóttir til vinstri og Aðalheiður Davíðsdóttir til hægri. Í miðröðinni er Gunnar Davíðsson (d.14.8.1989) vinstra megin og Reynir Davíðsson hægra megin. Fremst er svo Jónína Davíðsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það kringum 1950.
Ingibergur Guðmundsson 501
Myndin var teikin í Fellsborg í nóvember 1984 á æfingu á Saumastofunni. Á henni eru leikararnir í sýningunni að syngja einn af söngvunum í henni. Frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Guðbjörg Gylfadóttir, Sigrún Jónsdóttir, Dagný Marín Sigmarsdóttir, Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir, Magnús B. Blöndal (d.7.9.2001), Elín Njálsdóttir, Hallbjörg Jónsdóttir og Guðmundur Haukur Sigurðsson.
Ólafur Bernódusson1057
Myndin var tekin í lok maí 1997 á útivistardegi Höfðaskóla. Kennararnir og annað starfsfólk klæddi sig í búninga og síðan var gengið um bæinn og farið í leiki á Hnappstaðatúninu. Á þessari mynd er hluti starfsfólks skólans tilbúinn í skrúðgönguna. Frá vinstri: Þórunn Bernódusdóttir, Helga Ólína Aradóttir, Hjördís Bára Þorvaldsdóttir (d.7.2.2022), Elín Rafnsdóttir, Unnur Kristjánsdóttir, Hafþór Freyr Sigmundsson með konu sína Kristínu Helgu Ólafsdóttur á bakinu, Lárus Ægir Guðmundsson, Hjálmfríður Guðjónsdóttir (fjær) og tvær óþekktar konur.
Guðrún Guðbjörnsdóttir161
Gylfi Sigurðsson flytur ræðu í hófi í Bergen sem haldið var 1992 til að fagna afhendingu Arnars Hu 1 til eigenda síns, Skagstrending hf. Arnar var smíðaður í Bergen fyrir félagið og kom í heimahöfn á Skagaströnd í fyrsta sinn 22. desember 1992. Aðrir en Gylfi á myndinni eru óþekktir.
Ólafur Bernódusson1218
Myndin var tekin í maí 2005 eða 2006 þegar Lárus Ægir Guðmundsson er að ræsa hóp barna af stað í víðavangshlaupi umf Fram. Börnin í röðinni eru, frá vinstri: ?? Helenudóttir, Birgitta Rut Bjarnadóttir,fjórar óþekkta stúlkur, Páll Halldórsson, þrjú óþekkt börn og Birkir Freyr Gunnarsson. Aftan við börnin eru, frá vinstri: Telma Bjarnadóttir, Katrín Sigurjónsdóttir, Stefán Velemir, Alex Már Gunnarsson?, Gígja Óskarsdóttir og Sæþór Ágústsson. Lengst til hægri á myndinni er Róbert Björn Ingvarsson. Ef þú þekkir óþekktu börnin endilega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 502
Myndin var tekin á æfingu á Saumastofunni í Fellsborg í nóvember 1984. Árni Geir Ingvarsson ljósameistari er til hægri og Guðmunda Ólafsdóttir aðstoðarmaður leikstjóra til vinstri.
Gréta 086
Konurnar á myndinni eru, frá vinstri: Aðalheiður Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum, Fjóla Sigurðardóttir (d. 15.7.1988) Laufási, Jóhanna Davíðsdóttir Neðri Harrastöðum og Þórey Ólafsdóttir frá Árbakka?. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin og hestarnir eru nafnlausir. Ef þú veist hver Þórey er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ingibergur Guðmundsson 336
Vinnuvikur voru haldnar á hverju ári í Höfðaskóla í nokkur ár. Þá var venjulegt skólastarf brotið upp í eina viku og nemendur unnu að óhefbundnum verkefnum með kennurum sínum. Þessi mynd var tekin í einni slíkri vinnuviku 1989 þar sem nemendur stóðu fyrir sýningu á verkefnum sínum. Þema vinnuvikunnar að þessu sinni var Höfðahreppur 50 ára. Á myndinni er fólkið að skoða samanburðarlíkön af hafnasvæðinu : 1900, 1939 og 1989. Fólkið er, frá vinstri: tveir óþekktir strákar, Þorlákur Ómar Guðjónsson, Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000), óþekkt stúlka, Guðjón Ebbi Guðjónsson, Guðrún Soffía Pétursdóttir, Þráinn Bessi Gunnarsson (fjærst), Guðrún Magnúsdóttir (í miðið), Aðalbjörg Hafsteinsdóttir (d.10.3.2022) (næst) með ömmustrákinn Hörð Aðils Vilhelmsson, Kristján Karlsson og óþekkt stúlka.
Halldór Gunnar Ólafsson 014
Um borð í Örvari Hu 21 var lítið gufubað. Þessi mynd var tekin af þremur skipsfélögum í baðinu einhverntíma á árunum 1992 eða 93. Mennirnir eru, frá vinstri: Hjalti Hólmar Indriðason (d.17.11.2020), Guðjón Árnason og Gestur Arnarson.
Gréta 109
Aftan á þessari mynd stendur:" Ögmundur Björnsson frá Syðra-Hóli, og kona hans, Guðrún Oddsdóttir, með son þeirra Ólaf". Ögmundur (d.9.8.1970), Guðrún (d.2.5.1976) og Ólafur ??
2001117
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni er Ragnhildur til vinstri (snýr baki í okkur) að leiðbeina leikurunum á æfingu. Þeir eru, frá vinstri: Guðmundur Haukur Sigurðsson, Anna Jóna Geirsdóttir, Ágústa Friðriksdóttir, tvö óþekkt, Bjarnhildur Sigurðardóttir (situr) og Anna Sjöfn Jónasdóttir.
Ingibergur Guðmundsson 498
Myndin var tekin í Höfðaskóla veturinn 1984 - 85 á einni af fyrstu æfingum á leikritinu Saumastofan. Fyrstu æfingar voru í skólanum áður en farið var á svið í Fellsborg. Á myndinni eru, frá vinstri: óþekkt, Guðbjörg Gylfadóttir, Guðmundur Haukur Sigurðsson, Hallbjörg Jónsdóttir, óþekkt og Halldór E. Laxnes leikstjóri.
Gréta 007
Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru Ásdís Magnúsdóttir frá Syðr Hóli með manni sínum Gunnlaugi Bragasyni (d.22.3.2009) og dóttur þeirra, Helgu Gunlaugsdóttur. Myndin var tekin við gamla bæinn á Syðra Hóli.
20250725_143424
25. júlí 2025 afhenti Minningasjóðurinn um hjónin frá Vindhæli og Garði hjúkrunarheimilinu Sæborg lítinn opinn rafmagnsbíl til að hægt væri að fara með heimilisfók rúnt um bæinn á góðviðrissdögum. Á myndinni takast þær í hendur Eydís Inga Sigurjónsdóttir deildarstjóri, sem heldur á gjafabréfinu, og Erla María Lárusdóttir fulltrúi minningarsjóðsins. Í baksýn má sjá, frá vinstri: Hólmfríði Pálsdóttur, Kristbjörgu Ragnheiðardóttur, Þórleifi Sigurðardóttur, Guðbjörgu Eiríksdóttur, Hjördísi Sigurðardóttur, Guðrúnu Sigurðardóttir, Óla Albertsson og Soffíu Jónasdóttur.
2001124
Á leikárinu 1981-1982 setti Leikklúbbur Skagastrandar upp leikritið Olympíuhlauparinn undir leikstjórn Ragnhildar Steingrímsdóttur. Á myndinni eru leikararnir Ágústa Friðriksdóttir standandi og Anna Sjöfn Jónasdóttir, sem liggur, í hlutverkum sínum.
Ingibergur Guðmundsson 593
Myndin var tekin í frímínútum á flippíþróttadegi i Höfðaskóla líklega kringum 1985. Nemendurnir á myndinni eru, frá vinstri: Anna María Magnúsdóttir, Sigurbjörg Jónasdóttir, Viktor Pétursson og Árný Guðrún Ólafsdóttir.
Guðrún Guðbjörnsdóttir170
Myndin var tekin í Hólaneskirkju eldri á sjómannadegi. Á sjómannadögum á Skagaströnd er hefð fyrir að kórinn sé eingöngu skipaður karlmönnum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Kristján Hjartarson (d.2.8.2003) situr við orgelið en í fremstu röðinni eru, frá vinstri: Þorvaldur Skaftason, Björgvin Karlsson, Karl Guðmundsson (d. 11.12.2011) og Gylfi Sigurðsson. Yfir lampann sér í Sigmar Jóhannesson (d.20.4.2000) og út við gluggann er Guðmundur Kr. Guðnason (d.21.11.1988). Milli þorvaldar og Björgvins sér í Árna Ólaf Sigurðsson en aftast til vinstri er Friðjón Guðmundsson (d.7.1.2001) og til hægri við hann sér í Sigurð Bjarnason (d.16.5.2022).
Gréta 029
Konurnar á myndinni eru óþekktar nema sú í miðjunni er líklega Ragnheiður Björnsdóttir (d. 6.11.1958) frá Syðra Hóli. Börnin eru líka óþekkt. Ef þú þekkir einhvern á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
2001053
Ekki er vitað hvenær þessi mynd var tekin um borð í Arnari HU 1. Á henni hressa sig á smá nammi, frá vinstri: Ernst Berndsen, Gunnar Jónsson, Guðmundur Gunnlaugsson, Bjarni Ottósson og Sigurjón Ingólfsson.
2001041
Hjónin Sigurður Guðmonsson og Hallbjörg Jónsdóttir. Ekki er vitað hvenær myndi var tekin.
Ingibergur Guðmundsson 457
Húsfylli var í vígslu Skíðaskálans þegar hún fór fram 5. apríl 1985 enda lögðu margir hönd á plóg til að gera hann að veruleika. Þessi mynd sýnir hluta gestanna á neðri hæðinni.
Guðrún Guðbjörnsdóttir163
Á myndinni eru vinnufélagarnir Kjartan Aðalsteinsson (d.21.12.1991) lyfjafræðingur og Hulda Árnadóttir (d.14.2.2007) hjúkrunarfræðingur stödd í lyfjaversluninni á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
1
…
75
76
77
78
79
Leita í myndasafninu
Leita