Beint í efni
Skagaströnd.is

Allar myndir
Fólk

Hópmyndir

Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Konur
Menn
4.740 myndir
Flæði
Reitir
Guðmundur Guðnason821
Sóley Benjamínsdóttir frá Skálholti á fermingardaginn sinn 1964.
Guðmundur Guðnason729
Hjálmfríður Bjarnadóttir frá Bjarnarhöfn (Bankastræti 8).
Guðmundur Guðnason840
Þórgunnur Snædal bróðurdóttir ljósmyndarans Guðmundar Guðnasonar.
Guðmundur Guðnason794
Andrés Baldursson og séra Pétur Þ. Ingjaldsson 1964 eftir fermingu Andrésar.
Guðmundur Guðnason882
Bóndinn á Ferguson dráttarvélinni er líklega Guðmann Magnússon frá Vindhæli.
Guðmundur Guðnason837
Óþekktir leikarar í óþekktri leiksýningu í Tunnunni sennilega árið 1963. Ef þú veist eitthvað um það sem myndin sýnir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason904
Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir
Guðmundur Guðnason811
Lengst til vinstri á þessari mynd er María Jónsdóttir úr Sænska húsinu (Hólabraut 23), ?Margrét Valdimarsdóttir? Hólabraut 1 og óþekkt. Ef þú þekkir þær vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason890
Sigurbjörg Angantýsdóttir í mars 1962
Guðmundur Guðnason719
Leikarar í Vekjaraklukkunni, sem sýnt var um páska 1964 á vegum Höfðaskóla í leikstjórn Bernódusar Ólafssonar. Frá vinstri: Guðmundur Guðmundsson í Skeifunni, Guðmundur Ingi Jónatansson í Höfðabrekku, Kolbrún Jónsdóttir í Sænska húsinu, Gunnlaugur Sigmarsson, Brynja Axelsdóttir frá Læk, Alda Jónsdóttir Hjallholti, Jóhanna Ásmundsdóttir í Þorfinnshúsi og Steindór Haraldsson frá Höfðakoti. .
Guðmundur Guðnason744

Á myndinni eru Haukur Jóhannsson frá Breiðavaði með harmonikku og líklega Sigurður Þorsteinsson með hattinn og Nanna Tómasdóttir. Myndin var mjög líklega tekin í gamla samkomuhúsinu á Aðalgötu 1 á Blönduósi.

Guðmundur Guðnason902
Kristján Guðmundsson frá Hágerði
Guðmundur Guðnason720
Ingvar Jónsson hreppsstjóri sinnir starfi sínu sem kynnir á sjómannadegi. Bak við hann er Björgvin Jónsson í Höfðabrekku. Rauðhærði strákurinn í bláu peysunni til vinstri er Óskar Jóhannesson. Myndin tekin á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason931
Adolf J. Berndsen sem lengi var oddviti hreppsnefndar á Skagaströnd
Guðrún Guðbjörnsdóttir099

Guðbjörg Gylfadóttir á efsta palli á frjálsíþróttamóti. Sigríður Gestsdóttir er til vinstri við Guðbjörgu en konan til hægri er Sólveig Þráinsdóttir sem keppti árum saman fyrir HSÞ (Suður Þingeyinga). Myndin er tekin á Norðurlandsmóti.

Guðmundur Guðnason879
Guðrún Þóranna Jónsdóttir frá Ártúnum. Myndin var tekin einhverntíma á sjöunda áratugnum.
Guðmundur Guðnason779
Gunnar Jón Jónsson frá Asparlundi. Myndin var sennilega tekin 1969.
Guðrún Guðbjörnsdóttir051
Jóhanna Thorarensen fædd 1911.
Guðmundur Guðnason742

Jón Tryggvi Jökulsson frá Núpi í Laxárdal

Guðmundur Guðnason800
Hrönn Árnadóttir á fermingardaginn 1970.
Guðmundur Guðnason878
Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason900
Bylgja Angantýsdóttir í mars 1962
Guðmundur Guðnason680
Fermingarmynd af Eygló Gunnarsdóttur.
Guðmundur Guðnason810
Anna Bára Sigurjónsdóttir frá Sunnuhlíð á fermingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason976
Á myndinni er Ole Aamundsen athafnamaður á Skagaströnd ásamt konu sinni Margréti Jóhannesdóttur og vinnustúlkunni Sigurlaugu Friðgeirsdóttur. Ole, sem var norskur að uppruna, var lengi umboðsmaður á Skagaströnd fyrir Shell olíufélagið og rak líka lýsisbræðslu og útgerð um tíma.
Guðmundur Guðnason752
Óþekkt fólk. Vinsamlegast sendu okkur athugasemd ef þú þekkir fólkið.
Guðmundur Guðnason793
Hjónin Helga Kristjánsdóttir (d. 3.6.2002) og Ásmundur Magnússon (d. 2.2.1996) verksmiðjustjóri með hluta barna sinna. Börnin eru, talið frá vinstri: Jóhanna Ásmundsdótir, Ásmundur Ásmundsson og Halldóra Ásmundsdóttir. Myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason734
Halla Jökulsdóttir frá Núpi í Laxárdal.
Guðmundur Guðnason748
Lárus Árnason frá Ási.
Guðmundur Guðnason761
Þessar fallegu stúlkur tóku þátt í keppninni: Ungfrú Austur Húnavatnssýsla 1969, sem haldin var í Húnaveri. Fegurðardrottningin sjálf situr á steininum. Þessi keppni var liður í fegurðarsamkeppni Íslands því sigurvegararnir í hverri sýslu fyrir sig tóku síðan þátt í keppni um fegurðardrottningu Íslands sem haldin var í Reykjavík. Stúlkurnar á myndinni eru frá vinstri: Sóley Guðmundsdóttir Eiríksstöðum, Anna Grímsdóttir Ljótshólum sem varð sigurvegari, Kristín H. Guðmundsdóttir Hvammstanga og tvær óþekktar stúlkur. Ef þú veist hverjar þær eru vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason898
Börnin á myndinni eru, talið frá vinstri: Jóhanna Bára Hallgrímsdóttir, Gísli Snorrason og Sigurbjörg Árdís Indriðadóttir. Myndin var tekin í mars 1962.
Guðmundur Guðnason792
Þorgrímur Pálmason frá Holti
Guðmundur Guðnason891
Þessi mynd var sennilega tekin 1963. Drengirnir eru, frá vinstri: Hannes Björnsson, óþekktur og Kristján Björnsson. Strákarnir sitja á skúrþaki nálægt húsi sem faðir þeirra Björn Aðils Kristjánsson (d. 25.5.2005) frá Þórshamri var að byggja í Kópavogi á þeim tíma.
Guðmundur Guðnason869
Brimið gengur yfir hafnarsvæðið á þessari mynd. Ekki er ljóst hvenær myndin var tekin.
Guðmundur Guðnason868
Jóhann Ingibjörnsson á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason791
Systurnar Jóhanna Ásmundsdóttir til vinstri og Halldóra Ásmundsdóttir til hægri. Þær áttu heima á Bogabraut 9, þar sem myndin var tekin kringum 1960.
Guðmundur Guðnason883
Þetta barn er óþekkt en ef þú veist hvaða barn þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason829
Hér hefur þetta góða fólk áð á ferð sinni. Frá vinstri: Frímann Lúðvíksson frá Steinholti, Þórður Jónsson (d. 25.12.2009), Guðríður Bergsdóttir (d. 10.6.1996) konan hans og óþekktur drengur. Þórður og Guðríður bjuggu í Skjaldbreið (Fellsborg 7) á Skagaströnd með tveimur börnum sínum.
Guðmundur Guðnason831

Auður Björnsdóttir Ísfeld frá Brandsstöðum

Guðmundur Guðnason844
Óþekkt fólk. Ef þú þekkir fólkið vinsamlegast sendu okkur þá athugasemd.
Guðrún Guðbjörnsdóttir038
Á myndinni eru fermingarbörn 1955 í gömlu kirkjunni á Skagaströnd. Talið frá vinstri í aftari röð: Fjóla Ólafsdóttir frá Kambakoti, Ólína Hafsteinsdóttir, séra Pétur Ingjaldsson, Helgi Ingi Sigurðsson, Gylfi Sigurðsson. Fremri röð: Vilberg Jóhannesson, Helga Haraldsdóttir, Frímann Lúðvíksson, Eðvarð Jóhannesson og Jónas Skaftason.
Guðmundur Guðnason802
Birna Bjarnadóttir á fermingardaginn 1970
Guðmundur Guðnason812
Sigurður Pálmason á femingardaginn 1962
Guðmundur Guðnason875
Þessi óskýra mynd var tekin á þorrablóti í Húnaveri. Ekki er vitað hvenær.
Guðmundur Guðnason889

Björn Aðils Kristjánsson (d. 25.5. 2005) frá Þórshamri með syni sína tvo árið 1963. Hægra megin við Björn er Hannes Björnsson en vinstra megin er Kristján Björnsson

Guðmundur Guðnason809
Guðmundur Guðnason (d. 21.11.1988) til hægri með óþekktum vini sínum uppi á Höfða. Ef þú þekkir manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason864
Sigrún Kristófersdóttir á fermingardaginn sinn 1961
Guðmundur Guðnason830
Systurnar Guðrún Berndsen til vinstri og Steinunn Berndsen til hægri.
Guðmundur Guðnason912
Sönghópur stúlkna treður upp á skólanum. Frá vinstri á myndinni eru: Guðbjörg Þorleifsdóttir, Sigríður Gestsdóttir,Lára Guðmundsdóttir, Sigríður Birna Björnsdóttir, Elsa Lára Blöndal, Lára Bylgja Guðmundsdóttir og Sigrún Lárusdóttir.Myndin er sennilega tekin árið 1967.
Guðmundur Guðnason808
Ester Axelsdóttir frá Læk á fermingardaginn 1962.
Guðmundur Guðnason781
Sundmót í sundlauginni á Skagaströnd 1969. Gömlu búningsklefarnir eru enn í notkun og byggingin til vinstri var stór kyndiklefi. Maðurinn lengt til vinstri, með hattinn, er Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) frá Sunnuhvoli að taka tíma. Næst honum er Karl Þórólfur Berndsen (d. 12.2.1995) frá Karlsskála einnig í tímatöku. Maðurinn fyrir miðri mynd með bindi er Steindór Haraldsson úr Höfðakoti og lengst til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson sundkennari með meiru. Aðrir á myndinni eru óþekktir.
Guðmundur Guðnason789
Börnin sem hér eru með afa sínum og ömmu eru, talið frá vinstri: Ásmundur Ásmundsson, Kristján Pétur Ásmundsson, Jóhanna Ásmundsdóttir og Halldóra Ásmundsdóttir. Amma barnanna hét Petrína Steinþórsdóttir en afinn hét Kristján H. Jóhannsson og voru þau móðurforeldrar barnanna.
Guðmundur Guðnason866
Jóhann Björn Þórarinsson (Baddi) á fermingardaginn sinn 1961.
Guðmundur Guðnason788

Hrafnhildur Pálmadóttir frá Holti

Guðmundur Guðnason852
Þessi götumynd er gjörbreytt í dag því öll húsin sem sjást á myndinni eru horfin og ný komin í stað þeirra. Myndin var sennilega tekin kringum 1960. Lengst til vinstri sér í útihús tilheyrandi Sunnuhlíð (Bogabraut 19) þá kemur Akurgerði (Hólabraut 9). Goðhóll (Hólabraut 10) er næstur og ef vel er að gáð má sjá Þorkel Magnússon (d. 30.8.1968), íbúa þar, fyrir utan húsið.Til hægri er svo Baldursheimur sem stóð á milli þar sem í dag eru Hólabraut 10 og Fellsbraut 9.
Guðmundur Guðnason817
Guðbjörg Þorbjarnardóttir frá Akurgerði með litlu systur sína Sonny Lísu Þorbjarnardóttur.
Guðmundur Guðnason895
Mynd frá karlakóramóti sem haldið var í félagsheimilinu á Blönduósi 9. júní 1963. Myndin sýnir einhvern óþekktan karlakór syngja en síðan sungu kórarnir greinilega allir saman, eins og sjá má á öðrum myndum hér í safninu. Ef þú þekkir hvaða kór þetta er vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Guðmundur Guðnason886
Fermingarbörn ganga til kirkju 1965. Frá vinstri: Reynir Sigurðsson, Rúnar Jósefsson, Ólafur Bernódusson, Ísleifur Þorbjörnsson, tveir óþekktir, Kristófer Einarsson og Frits Bjarnason.
Guðmundur Guðnason877

Eiríkur Grímsson frá Ljótshólum.

Guðmundur Guðnason778
Margrét Haraldsdóttir (d. 24.6.2000) frá Jaðri.
1

8
9
10

79
Leita í myndasafninu
Leita