Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 741
Heiðar Elvan Friðriksson. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 973
Sigurbjörn Björgvinsson hjálpar konunni sinni Þórey Jónsdóttur hafnarverði með rafmagnið á höfninni 3. júlí 2008.
larus093
Kór Hólaneskirkju flísalagður 12. október 1991 áður en altarinu er komið þar fyrir. Baldur Haraldsson múrari sá um flísalögnina en hann er til vinstri á myndinni. Til hægri er óþekktur aðstoðarmaður hans.
larus034
Helgi Gunnarsson smiður og verktaki ávarpar fólk í hófi sem haldið var í Fellsborg í október 1991 í tilefni af víglu Hólneskirkju sem hann byggði með sínum mönnum. Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar kirkjunnar er til hægri.
Arnar HU 1 - safn 80
Guðmundur Finnbogason í vinnslunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 748
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996). Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1051
Félagarnir þrír á myndinni voru að gera sér glaðan dag 28. ágúst 2005 í Bjarmanesi. Frá vinstri: Skúli Tómas Hjartarson, Guðmundur Henry Stefánsson og Sigurbjörn Björgvinsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 706
Myndin var tekin 4. febrúar 2015 um borð í Arnari HU 1. Á henni spjalla saman Hólmgeir Kristmundsson til vinstri og Guðmundur Andersen til hægri.
Óþekktur ljósmyndari419
Óþekktur ræðumaður á óþekktu sviði. Ef þú þekkir manninn og/eða veist hvar myndin var tekin vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1397
Myndin var tekin 12. ágúst 2011 í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð. Frá vinstri: Ragnar Högnason, Kristján Pétur Guðónsson, Jón Sveinsson, Arnór Snorri Gíslason og óþekkt.
Arnar HU 1 - safn 94
Það er kalsamt og erfitt starf að berja ísingu af heilu skipi. Það skiptir þó miklu máli að það sé gert í tíma því hún hefur mikil áhrif á stöðugleika skipsins og mörg dæmi eru þekkt um slys sem urðu vegna mikillar ísingar á skipum. Á myndinni er verið að berja ísingu af rekkverki um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 985
Gunnar Alberstsson (d.27.7.2019) segir Vilhelm B. Harðarsyni gamansögu úr fortíðinni 30. maí 2008.
Arnar HU 1 - safn 107
Sigurður Sverrir Ólafur Hallgrímsson við vinnu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvernær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 775
Myndin var tekin 15. ágúst 2008 á kántrýhátíð. Á henni eru mágarnir Karl Guðmundsson til vinstri og Eðvarð Hallgrímsson til hægri að fylgjast með einhverju skemmtiatriði í Bjarmanesi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 830
Sigurbjörn Björgvinsson prófar nýja vespu í byrjun júlí 2008. Það er tilbreyting frá því að aka um á fjögurra öxla vörubíl eins og hann gerir í vinnunni.
larus013
Séra Egill Hallgrímsson les úr ritningunni fyrir altarinu í Hólaneskirkju eldri. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en séra Egill var vígður sóknarprestur í Skagastrandarprestakalli í maí 1991 og nýja kirkjan var svo vígð í október sama ár. Myndin hefur því verið tekin einhverntíma sumarið 1991 og messan hefur verið ein af síðustu athöfnunum í gömlu kirkjunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1180
Vilhjálmur Jónsson landar með lyftara á Skagastrandarhöfn 2. september 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 708
Grétar Smári Hallbjörnsson um borð í Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 808
Sigurjón Guðbjartsson skipstjóri og útgerðarmaður á leið, í einni af mörgum ferðum sínum, inn í vigtarskúrinn við höfnina. Myndin var tekin í júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1047
Frímann Lúðvíksson að mála gamla Hólanesfrystihúsið H-59 við Höfðann sem nú hýsir m.a. rannskóknastofur BioPol. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega var það sumarið 2016.
Ólafur Bernódusson 777
Bjarni Jónasson fyrrverandi starfmaður BioPol við skrifborðið sitt 26. janúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 787
Á myndinni, sem tekin var 18. ágúst 2006, hvílast vinirnir Sigurður Jónsson og Kisi á tröppunum við heimili sitt í Fjallsminni.
larus086
Örnólfur Hall arkitekt skoðar sköpunarverk sitt, Hólaneskirkju, í byggingu 10. október 1989.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn108
Guðmundur J. Björnsson að undirbúa dætur sínar fyrir að fara að sofa. Auður Eva Guðmundsdóttir nýkomin úr baði og systir hennar Elísabet Eik Guðmundsdóttir fylgist með í náttfötunum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 845
Bræðurnir Sigurjón Ástmarsson til vinstri og Ástmar Kári Ástmarsson til hægri í göngutúr 12. maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1390
Hljómsveitin Janus er lífseig en kemur ekki oft fram. Henni er þó almennt mjög vel tekið þegar hún treður upp enda þar miklir hæfileikamenn á ferð. Á þessari mynd, sem tekin var á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011, eru frá vinstri: Hjörtur Guðbjartsson, Fannar Viggósson, Þorvaldur Skaftason og Guðmundur Jónsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 841
Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) og Jónína Valdimarsdóttir spjalla saman á einhverri óþekktir samkomu í Fellsborg 1. maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1485
Myndin var tekin á bryggjunni 19. október 2011. Vilhjálmur Jónsson sjómaður til vinstri og Haraldur Árnason, starfsmaður fiskmarkaðarins, til hægri. Þeir eru að fara yfir stærðarflokkunina á fiskinum í körunum svo kaupendur fái réttar stærðir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1163
22. október 2010 var nýi vigtarskúrinn fluttur frá verkstæði Helga Gunnarssonar, þar sem hann var smíðaður, niður að hafnarvigtinni þar sem honum var svo komið fyrir. Helgi Gunnarsson gengur á undan bílnum til að vara vegfarendur við plássfrekum flutningi.
Axel Jóhann Hallgrímsson 31
Jónas Fanndal Þorvaldsson til vinstri og Ómar Jakobsson til hægri í Kántrýbæ á sjómannadegi 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 602
Hafþór Gylfason að beita línu haustið 2014.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 780
Þorgrímur þráinsson rithöfundur og Adolf H. Berndsen þáverandi oddviti á Skagaströnd spjalla saman við opnun listamiðstöðvar Nes 31. maí 2008 en Þráinn var í hópi þeirra fyrstu sem dvöldu í listamiðstöðinni. Opnunin var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir 1. júní.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1019
Spjallað á bryggjunni 17. apríl 2008. Verkstæðismennirnir Sigurjón Ingólfsson og Gísli Snorrason til vinstri spjalla við feðgana Lýð Hallbertsson og Eirík Lýðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1217
Myndin var tekin 7. júní 2011 af löndun úr strandveiðibátnum Bogga í Vík Hu 6. Sigurgeir Árnason, sem var með bátinn á þessum tíma, stærðarflokkar fisk upp úr kari en Sigurður Ingimarsson hjá fiskmkaðnum er við kranann. Til hægri eru kappróðrabátarnir Gustur og Gola bundnir við flotbryggjuna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 664
Hjónin Guðjón Sigurðsson aðstoðarskólastjóri og Vera Ósk Valgarðsdóttir skólastjóri í kaffistofunni í Höfðaskóla. Saman stýrðu þau skólanum 2014 til 2019.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1015
Finnur Kristinsson vélstjóri á Arnari Hu 1, með húfu á höfðinu, spjallar við olíuafgreiðslumann á bryggjunni á Skagaströnd 17. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 749
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) stendur á pallinum við heimili sitt í Stórholti eða Bankastræti 3. Í húsinu voru og eru þrjár íbúðir. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið á áttunda áratugnum.
Arnar HU 1 - safn 138
Fjórir skipverjar á bátadekkinu á síðutogaranum Arnari HU 1 sem var fyrsta skip Skagstrendings hf keyptur í janúar 1969. Arnar reyndist vel og lagði grunn að velgengni Skagtrendings hf í útgerðarmálum. Skipverjarnir á myndinni eru, talið frá vinstri: Magnús B. Jónsson, Óskar Þór Kristinsson, Ómar Jakobsson og Jón Haukdal Þorgeirsson (d. 21.1.2017)
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1432
Setið til borðs á þorrablóti 5. febrúar 2011 í Fellsborg. Fólkið er, frá vinstri: Stefán Jósefsson, Sævar Hallgrímsson, Þórunn Bernódusdóttir og Hörður Aðils Vilhelmsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 731
Jón Gunnarsson netamaður vinstra megin og Árni Ólafur Sigurðsson skipstjóri spjalla saman fyrir utan sjoppuna 28. janúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 831
Myndin var tekin 5. júní 2008 af tengdafeðgunum Jóni Ólafi Ívarssyni (Daddi) (d.29.12.2013) og Sigurbirni Björgvinssyni þar sem þeir eru að leysa lífsgátuna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 840
Elías Björn Árnason spilar á sviðinu í Fellsborg 1. maí 2008. Ekki er vitað um tilefni spilamennskunnar.
Arnar HU 1 - safn 134
Ingvar Þór Jónsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1134
Myndin var tekin 21. febrúar 2003 af hjónunum Birgi Árnasyni (d.2.2.2005) og Ingu Þorvaldsdóttur (d.14.12.2012) í Lödu jeppanum sínum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1162
Gamli vigtarskúrinn fjarlægður til að rýma fyrir nýjum, stærri og betri. Sigurbjörn Björgvinsson hífir, Rúnar Kristjánsson og Hallbjörn Björnsson passa upp á rafmagnskaplana en maðurinn við hornið á skúrnum er óþekktur. Myndin var tekin 24. september 2010.
Arnar HU 1 - safn 106
Guðjón Guðjónsson - Jonni Ebba - skipstjóri á Arnari HU 1 á sínum stað í brúnni 20. júlí 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1079
Svava Sigurðardóttir spjallar við Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) á blettinum heima hjá sér við Breiðablik 24. maí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 873
Sigurgeir Árnason tilbúinn með landfestina um borð í Hafrúnu HU 12 þegar lagt var að bryggju í Skagastrandarhöfn 23. ágúst 2006.
Arnar HU 1 - safn 125
Baldur Magnússon veifar til barna sinna og konu við komu Arnars HU 1 til hafnar á Skagaströnd. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 794
Feðgarnir Pétur Eggertsson til vinstri og Hrólfur Eggert Pétursson til hægri flaka þorkafla sinn eftir sjóferð snemma í september 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 705
Róbert Freyr Gunnarsson til vinstri og Hallbjörn Freyr Ómarsson hægra megin um borð í Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1135
Myndin var tekin 26. apríl 2003 í kaffistofu rafmagnsverkstæðisins Neistans. Á henni eru Hjalti Reynisson rafvirki til vinstri og Hallbjörn Björnsson rafvirki og eigandi Neistans er til hægri.
larus090
Gunnar Einarsson innanhúsarkitekt til vinstri og Örnólfur Hall arkitekt til hægri framan við gömlu Hólaneskirkju. Þeir félagar hönnuðu nýja Hólaneskirkju sem reist var 3-4 metra vestan við þá gömlu. Myndin var tekin 10. október 1989 en nýja kirkjan var vígð 20. október 1991.
Arnar HU 1 - safn 99
Á myndinni eru menn að berjast við að koma ísingu af Arnari HU 1 í sjóinn. Ísing sem hleðst á skip í vondum veðrum er stórhættuleg því hún hefur mikil áhrif á stöðugleikann. Mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Arnar HU 1 - safn 96
Jóhannes Heiðmar Indriðason við vinnu um borð í Arnari HU 1 25. mars 2004.
Ólafur Bernódusson 854
Árni Geir Ingvarsson gerir við holu í malbikinu á Bogabrautinni haustið 2013.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1496
Myndin var tekin 9. nóvember 2011 af Þór Arasyni (d.11.8.2018) þar sem hann var að vinna við einhverjar lagnir við Bogabraut 17.
Arnar HU 1 - safn 132
Karl Rósinbergsson (d.29.3.2003) til vinstri og Níels Grímsson til hægri við aðgerðaborðið, líklega á Arnari HU 1 - Japans Arnari- ,sem var fyrsti skuttogari Skagstrendings hf gerður út af félaginu 1973 - 1995.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1223
Myndin var tekin 4. júlí 2011 af Sigurjóni Ingólfssyni í gróðursetningarvinnu þegar félagar í Skógræktarfélagi Skagastrandar gróðursettu nokkrar aspir norðan við íþróttahúsið og birkiplöntur á skólalóðinni austan við Oddagötuna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1445
Ólafur Bernódusson á gönguskíðum 3. nóvember 2012.
1
…
9
10
11
…
32
Leita í myndasafninu
Leita