Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Ólafur Bernódusson 828
Tónlistarfólkið og hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson skemmta með tónlitarflutningi á stofnfundi Gleðibankans í Bjarmanesi 10. desember 2008.
Ólafur Bernódusson 860
Myndin var tekin á opnu húsi hjá vefstofunni Árbliki í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf í desember 1999. Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks, sem er annar frá vinstri, er að sýna óþekktum mönnum hvernig vefstóll virkar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 957
Adolf H. Berndsen kíkir á bátana sem liggja við Skúffugarinn í höfninni 13. júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1101
Myndin var tekin 29. júlí 2010 þegar athafnasvæði Sorphirðu Vilhelms Harðarsonar var opnað formlega. Á bekknum hvíla lúin bein feðgarnir Adolf H. Berndsen til vinstri og Adolf J. Berndsen (d.27.8.2018) til hægri. Milli þeirra situr vinur þeirra Lárus Ægir Guðmundssson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1265
Myndin var tekin 13. desember 2012 þegar Ólafur Bernódusson, aðstoðarmaður jólasveinanna, var að koma í sjoppuna til að skipta um föt eftir heimsókn í leikskólann Barnaból.
Ólafur Bernódusson 741
Hjónin Guðrún Guðbjörnsdóttir og Gylfi Sigurðsson njóta veðurblíðunnar við gamla skólahúsið í Reykjarfirði nyrðri 23. júní 2012 eftir að hafa gengið á hvíta sand á Þaralátursnesi.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1213
Ekki er vitað hvenær þessar myndir voru teknar né um borð í hvaða bát það var. Greinilega hafa menn lent í góðum afla því stíurnar bakborðsmegin eru fullar af fiski. Mennirnirnir á myndinni eru óþekktir en maðurinn sem situr í lúkarskappanum gæti verið Árni Ólafur Sigurðsson á unglingsárum ? Ef þú veist eitthvað um þessar myndir vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 938
Hafsteinn Pálsson slökkviliðsstjóri í árlegri heimsókn í Höfðaskóla 11. desember 2007. Þá fer hann yfir ýmislegt gagnlegt í sambandi við eldvarnir á heimilum.
Arnar HU 1 - safn 121
Sævar Berg Ólafsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1067
Myndin var tekin 30. apríl 2010 af áhöfninni á Sæfara SK 112 sem var að koma úr grásleppuumvitjun. Frá vinstri: Steinn Rögnvaldsson Hrauni, Árni Karlsson (d.19.7.2011) Víkum og Vignir Sveinsson Höfnum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1098
Feðginin Stefán Sveinsson og Stefanía Hrund Stefánsdóttir 29. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 877
Myndin af þessum skipsfélögum var tekin 28. júlí 2006 á bryggjunni á Skagaströnd. Sefán Kristinsson (d.19.5.2011) (Kúti) er til vinstri og Sigurjón Guðbjartsson til hægri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn106
Hjónin Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Anna H. Aspar (d.1.9.1999) á 60 ára afmælisdegi Bernódusar 17. mars 1979.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1048
Lárus Ægir Guðmundsson málar með gluggunum á gamla Hólanesfrystihúsinu H-59 sunnan undir Höfðanum. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en líklega hefur það verið sumarið 2016.
Arnar HU 1 - safn 115
Hallbjörn Freyr Ómarsson um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 779
Myndin var tekin í húsnæði listamiðstöðvarinnar Nes 31. maí 2008 líklega þegar miðstöðin var formlega opnuð. Á henni eru að spjalla saman Sigurjón Guðbjartsson til vinstri og Sigurður Sigurðarson til hægri. Opnunin var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir 1. júní 2008.
larus026
Séra Egill Hallgrímsson ávarpar fólk í hófi í Fellsborg í október 1991. Hófið var haldið í tilefni af vígslu Hólaneskirkju þennan dag.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1314
Valdimar Jón Björnsson að dunda í garðinum sínum við Hólabraut 31, 10. ágúst 2011
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1073
Myndin var tekin á Skúffugarðinum 2. mars 2010. Stefán Jósefsson útgerðarmaður á Ólafi Magnússyni HU 54 er lengst til vinstri en með honum eru verkstæðismennirnir Óli Axel Óskarsson til vinstri og Hjörtur Guðbjartsson til hægri.
Arnar HU 1 - safn 119
Gunnar Helgason um boð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 897
Séra Guðmundur Karl Brynjarsson blessar húsnæði Rauðakross deildarinnar á Skagaströnd þegar það var tekið í notkun í apríl 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 959
Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) við vinnu um borð í óþekktum bát við Smágarð við Skúffugarðinn 13. júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 821
Magnús Guðmannsson bóndi á Vindhæli til vinstri og Jón Heiðar Jónsson til hægri 3. september 2006 líklega að snúast eitthvað kringum hross.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 730
Sigurjón Guðbjartsson um borð í bát sínum Hafrúnu HU 12 í snjómuggu 28. janúar 2015.
Arnar HU 1 - safn 95
Fiskvinnsla um borð í Arnari HU 1 21. júlí 2003. Mennirnir á myndinni eru frá vinstri: Stefán Sveinsson, Guðlaugur Hjaltason og Slavko Velemir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1043
Feðginin Sigurður Bjarnason og Inga Lára Sigurðardóttir hlaupa með hundi sínum 26. ágúst 2007. Í baksýn er fólk að snúast í kringum hrossahóp.
Ólafur Bernódusson 756
Hjónin Jón Hallur Pétursson og Guðríður Friðriksdóttir á toppi Herðubreiðar 16. ágúst 2003 í hópi með göngufólki á vegum Ferðafélags Akureyrar. Vinstra megin við þau í fjarlægð sér í hvel Vatnajökuls.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1291
Vignir Sveinsson bóndi í Höfnum og þáverandi oddviti Skagabyggðar spjallar við Magnús B. Jónsson þáverandi sveitarstjóra á Skagaströnd 19. september 2012. Þeir eru staddir neðan við grjótskriðuna ofan við bæinn Tjörn á Skaga og í baksýn er Tjarnarbrekkan.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1076
Halljörn Björnsson til vinstri spjallar við Lárus Ægi Guðmundsson til hægri 25. mars 2010. Þeir eru staddir við tún þar sem Hallbjörn og nokkrir félagar hans gerðu tilraun til kornræktar en Lárus var í heilsubótargöngu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1296
Myndin var tekin 3. ágúst 2012 af hjónunum Guðrúnu Pálsdóttur og Ólafi Bernódussyni. Í kerrunni er Ólafur með fullverkaðan hákarl sem hann er að koma í frost til geymslu. Þá hafði verkunin tekið rúma sex mánuði. Fyrst u.þ.b. þrjá mánuði í kæsingu og síðan rúma þrjá mánuði í þurrkun í hjallinum. Áður höfðu þunnu beiturnar - glerhákarlinn - verið teknar inn enda eru þær fljótari að þorna en þykku beiturnar - skyrhákarlinn - sem sést í kerrunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 707
Um borð í Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015. Mennirnir eru frá vinstri: Ingvar Þór Jónsson, Hólmgeir Kristmundsson og Guðmundur Andersen. Maðurinn í baksýn er óþekktur.
Arnar HU 1 - safn 77
Myndin var tekin um borð í Arnari HU 1 af nokkrum áhafnarmeðlimum. Í fremri röð frá vinstri: Gunnar Helgason, Hafsteinn Auðunn Björnsson og óþekktur. Standandi frá vinstri: Baldur Magnússon, Valdimar Viggósson, tveir óþekktir, Hans Birgir Högnason, óþekktur og Elvar Freyr Aðalsteinsson. Ef þú þekkir óþekktu mennina vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Ólafur Bernódusson 844
Hjónin Björn Hallbjörnsson og Lilja Ingólfsdóttir fylgjast með Landsbankahlaupi 5. maí 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 804
Gunnlaug Árnason (Laugi) (d.14.9.2016) og Adolf H. Berndsen (Dolli) spjalla saman á tröppunum á Karlsskála í júlí 2007
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 746
Ekki er vitað um borð í hvaða bát myndin var tekin né hvenær en líklega hefur það verið kringum 1965. Á vinstri helming hennar eru að gantast, frá vinstri: Árni Ólafur Sigurðsson, Stefán Jósefsson og óþekktur. Á hægri helmingnum sést að þetta var hafísár og Strandafjöllin eru í baksýn. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1396
Adolf H. Berndsen á fundi í Fellsborg 19. janúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 802
Feðgarnir Pétur Eggertsson og Viktor Pétursson að smíða hænsnakofa í garðinum við Hólabraut 16 í júlí 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 737
Sigurjón Ástmarsson 4. febrúar 2015.
Arnar HU 1 - safn 128
Björgunar- og slökkviæfing um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Mennirnir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1139
Þröstur Líndal Gylfason að sinna kindunum sínum á Kjalarlandi 15. maí 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1053
Feðgarnir Snæbjörn Elfar Arnarsson og Arnar Ólafur Viggósson á köldum degi 28. nóvember 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1061
Á myndinni spá þeir í spilin, rafvirkjarnir Hjalti Reynisson til vinstri og Hallbjörn Björnsson til hægri. Milli þeirra stendur Adolf H. Berndsen þáverandi oddviti sveitarfélagsins. Myndin var tekin 2. febrúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1203
Hörður Aðils Vilhelmsson í jólaheimsókn í Reykholti á Þorláksmessu 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 844
Myndin var tekin 11. maí 2008 af hjónunum Gunnari Þór og Gígju Heiðrúnu Óskarsdóttur að reisa Trampolin í garðinum hjá sér.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1140
Steindór R. Haraldsson við eimingartæki 6. maí 2003. Tækin notaði hann til að ná út ákveðnum efnum úr ýmsum hráefnum. Eimuðu efnin notaði hann svo í kryddblöndur sem hann setti á markað.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1120
Helga Guðmundsdóttir og Árni Björn Ingvarsson á Kántrýhátíð 13. ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1425
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 19. ágúst 2012 af þeim Fritz Hendrik Berndsen og Kolbúnu Björgu Viggósdóttur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 766
Hjónin Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Soffía Lárusdóttir (d.31.3.2010) koma í kofabyggð krakka 18. ágúst 2006 en þá var heimsókn þangað eitt af skemmtiatriðunum á þáverandi kántrýhátíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1080
Hjónin séra Úrsula Árnadóttir og maður hennar Guðmundur Ágúst Gunnarsson í garðvinnu við prestbústaðinn á Skagaströnd að Hólabraut 30, 24. maí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1155
Hressir menn 19. apríl 2004 fyrir utan Bjarmanes. Frá vinstri: Magnús B. Jónsson sveitarstjóri, Adolf H. Berndsen oddviti, Jakob Guðmundsson bóndi á Árbakka, Björn Guðmundsson frá Árbakka og Lárus Ægir Guðmundsson athafnamaður.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1283
Sigurður Bjarnason til vinstri og Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) til hægri í sólskini 18. júlí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1090
Feðgar að slá 15. júní 2010. Slavko Velemir situr á sláttuvélinni og sonur hans Stefán Velemir ber grasið í kerruna.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1013
Sigurður Sigurðarson heldur sér í formi með því að skokka um bæinn 31. maí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 770
Þröstur Líndal Gylfason glaðbeittur á bíl sínum í júlí 2008.
Arnar HU 1 - safn 101
Einar Þór Ásgeirsson um borð í Arnari HU 1 24. júní 2004.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 838
Myndin var tekin 11. júní 2008. Þá voru menn hálfnaðir með að rífa viðbyggingar við Árnes áður en uppbygging hússins hófst. Karlarnir á myndinni eru frá vinstri: Guðmundur J. Björnsson gröfumaður, Helgi Gunnarsson verktaki, Sigurður Björnsson smiður og Heiðmar Kristjánsson handlangari.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn118
Ólafur Bernódusson sumarið 1986.
larus038
Myndin var tekin 1. ágúst 1991 eftir að glerlistaverki var komið fyrir sem altaristafla í austurglugganum í Hólaneskirkju. Til vinstri standa presturinn séra Egill Hallgrímsson, Leifur Breiðfjörð glerlistamaður og höfundur töflunnar er í miðjunni en lengst til hægri er Lárus Ægir Guðmundsson formaður byggingarnefndar kirkjunnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1267
Tiltekt í garðinum við Hólabraut 16 12. júlí 2011. Pétur Eggertsson eigandi garðsins er lengst til vinstri, Geir Arnarson í miðið og Einar Ari Einarsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1133
Sigurbjörn Björgvinsson verktaki staddur í malarkrúsinni ofan við Spákonufellsrétt 11. mars 2003.
1
…
10
11
12
…
32
Leita í myndasafninu
Leita