Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1057
Sefán Sveinsson um borð í Sæfara SK 112, 19. janúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1076
Halljörn Björnsson til vinstri spjallar við Lárus Ægi Guðmundsson til hægri 25. mars 2010. Þeir eru staddir við tún þar sem Hallbjörn og nokkrir félagar hans gerðu tilraun til kornræktar en Lárus var í heilsubótargöngu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1191
Lárus Ægir Guðmundsson mokar snjó af kirkjutröppunum á Þorláksmessu 2010.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn123
Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) með dóttur sína Lilju Bernódusdóttur (d.9.2.2020) að spjalla við verðlaunahrútinn Sóma. Bernódus lagði sig eftir að rækta gott fé og átti marga verðlaunahrúta. Hann seldi töluvert af lömbum á fæti á hverju hausti, einkum hrútum. Myndin var tekin vorið 1962.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1475
Þessi mynd af Óla Axel Óskarssyni var tekin 4. mars 2011. Á henni er Óli um borð í óþekktum bát eitthvað að laga til í lestinni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1239
Myndin var tekin 23. mars 2012 á æfingu fyrir árshátíð Höfðaskóla þá um kvöldið. Á myndinni er Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri að tala við nemendurna og leggja línurnar fyrir daginn. Hjá henni er Ólafur Bernódusson námsráðgjafi skólans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1368
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012. Á henni eru þrír gítarleikarar að spila undir í brekkusöng í hólunum framan við stjórnsýsluhúsið. Gítaristarnir eru frá vinstri: Jón Ólafur Sigurjónsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Guðmundur Egill Erlendsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1069
Feðgarnir Fritz Hendrik Berndsen til vinsti og Adolf J. Berndsen til hægri sunnan við Olís skemmuna 30. apríl 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1236
Eiríkur Lýðsson leggur Dagrúnu HU 121 að bryggju 19. mars 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1482
Myndin var tekin 21. mars 2011 af þeim Magnúsi Hjaltasyni (d.16.6.2014) til vinstri og Rúnari Jósefssyni til hægri að taka stöðuna, líklega á hrossunum sínum.
Ólafur Bernódusson 773
Mæðginin Fjóla Jónsdóttir og Ari Jón Þórsson fylgjast með flugeldaskotum í hundslappadrífu á gamlaárskvöldi 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1229
Stefán Þór Árnason 1. desember 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1130
Feðgarnir Elías Gunnar Hafþórsson, sitjandi, og Hafþór Smári Gylfason skemmta í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúni á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010. Í forgrunninum er Anton Þór Einarsson.
Arnar HU 1 - safn 88
Þrír hressir karlar í vinnslunni á Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin en á henni eru frá vinstri: óþekktur, Hallbjörn Freyr Ómarsson og Tryggvi Hlynsson. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1209
Björn Hallbjörn til vinstri og Slavko Velemir til hægri pakka kæstri skötu fyrir Lionklúbb Skagastrandar 19. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1224
Hafrún Hu 12 máluð í dráttarbrautinni 5. júlí 2011. Hafþór Gylfason er efstur á myndinni með pensil, Karl Olsen er í bláa karinu með húfu og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson teygir sig með rúlluna neðan við Hafþór.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1365
Vinirnir Ómar Jakobsson til vinstri og Árni Björn Ingvarsson til hægri sparibúnir á planinu framan við Fellsborg 27. maí 2012. Tilefni myndatökunnar er ekki þekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1016
Lárus Ægir Guðmundsson hjá fiskmarkaði Örva telur kassa á bretti í löndun úr Arnari HU 1 á Skagaströnd 17. apríl 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1492
Myndin var tekin í Fellsborg 23. nóvember 2011 af feðgunum Agnari Gunnarssyni vinstra meginn og Trostan Agnarssyni til hægri. Þeir eru þarna í hófi sem haldið var til að fagna 20 ára vígsluafmæli Hólaneskirkju.
Guðrún Þórbjarnardóttir027
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Myndin er greinilega klippt út úr dagblaði og því eru myndgæðin mjög slæm. Maðurinn á henni er Steingrímur Davíðsson (d.9.10.1981) sem var skólastjóri á Blönduósi, oddviti þar og mikill skógræktarmaður.
Arnar HU 1 - safn 98
Ólafur Sveinn Ásgeirsson í spilhúsinu á Örvari HU 21 að fylgast með hífingum. Ekki er vitað hvenær myndin tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1103
Svenný Hallbjörnsdóttir og Hörður Ragnarsson spjalla saman við formlega opnun á athafnasvæði Sorphirðu Vilhelms Harsonar 29. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1231
Árni Geir Ingvarsson brytjar rabarbara - tröllasúru - í graut eða sultu 24. ágúst 2012. Áhugasamir lærlingar hans eru systkinin, frá vinstri: Kolbrún Jónsdóttir, Ísak Andri Jónsson og Sóley Sif Jónsdóttir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1012
Lárus Ægir Guðmundsson og Jónmundur Ólafsson (d.19.4.2017) skemmta sér í Kjalarlandsrétt 8. september 2007. Jónmundur er sá með hattinn.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1216
Myndin var tekin 13. október 2011. Á henni eru Pétur Eggertsson til vinstri, Geir Arnarson í miðjunni og óþekktur til hægri að fjarlæga gróðurleyfar úr garðinum hjá Pétri við Hólabraut 16. Ef þú þekkir óþekkta manninn vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 818
Guðmundur Rúnar Kristjánsson smiður við vinnu sína 27. mars 2007. Auk þess að vera húsasmiður er Rúnar afkastamikið skáld og rithöfundur.
Arnar HU 1 - safn 81
Gunnar Þröstur Ásgeirsson við vinnu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1190
Gunnar Reynisson kokkur á Arnari Hu 1 í stórbakstri á marengs-botnum um borð, 26. desember 2010. Líklega er hann að baka tertur fyrir jóla-barnaball á vegum Lionklúbbs Skagastrandar.
Arnar HU 1 - safn 87
Myndin var tekin 1. ágúst 2003 þegar tveir úr áhöfn Arnars HU 1 eru að flytja umbúðir milli skipa á gúmmítuðrunni á Arnari.
Guðrún Þórbjarnardóttir155
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er mágur Jóns, Halldór Halldórsson Snæhólm (d.28.11.1964), 50 ára gamall.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 735
Vilhelm Harðarson hreinsar snjó af stéttinni heima hjá sér með snjóblásara 3. febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1275
Sverrir Brynjar Berndsen vinnur við að koma upp auglýsingaskilti fyrir Spákonuhofið á Skagaströnd við þjóðveginn 18. júlí 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1133
Sigurbjörn Björgvinsson verktaki staddur í malarkrúsinni ofan við Spákonufellsrétt 11. mars 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 709
Hjörtur Guðmundsson skipstjóri fylgist með úti á brúarvæng á Arnari HU 1 fjórða febrúar 2015.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 768
Vinirnir Ingibergur Guðmundsson til vinstri og Magnús B. Jónsson til hægri í íþróttahúsinu 15. mars 2008 á einhverjum óþekktum viðburði.
Baldur Eðvarðsson - safn 15
Myndin var tekin í Skagastrandarhöfn um borð í nýsmíðinni Jörvi ÞH 300 frá Húsavík. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar hf einhverntíma á áttunda áratugnum. Mennirnir eru ?Valdimar Guðmundsson? (d. 4.4.2015) til vinstri og óþekktur til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1296
Myndin var tekin 3. ágúst 2012 af hjónunum Guðrúnu Pálsdóttur og Ólafi Bernódussyni. Í kerrunni er Ólafur með fullverkaðan hákarl sem hann er að koma í frost til geymslu. Þá hafði verkunin tekið rúma sex mánuði. Fyrst u.þ.b. þrjá mánuði í kæsingu og síðan rúma þrjá mánuði í þurrkun í hjallinum. Áður höfðu þunnu beiturnar - glerhákarlinn - verið teknar inn enda eru þær fljótari að þorna en þykku beiturnar - skyrhákarlinn - sem sést í kerrunni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1526
Trostan Agnarsson kennari og Hildur Ingólfsdóttir skólastjóri á Elínborgardegi Höfðaskóla í Fellsborg 16. nóvember 2011.
Ólafur Bernódusson 776
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir við áramótabrennu á gamlaárskvöld 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1170
Feðgarnir Ásgeir Axelsson (d.8.6.2011) til vinstri og Jóhann Ásgeirsson til hægri í réttinni við Vindhæli 10. september 2005.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 782
Feðgarnir Guðmundur Jóhannesson (d.17.4.2018) og Lárus Ægir Guðmundsson í Listamiðstöðinni Nes við formlega opnun hennar 31. maí 2008. Opnunin var hluti af hátíðahöldum sjómannadagsins sem var daginn eftir, 1. júní.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 825
Vinirnir Sigurður Bjarnason vinstra megin og Ágúst Jónsson hægra megin í göngutúr í köldu veðri seint í febrúar 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1444
Í ágúst 2011 var haldin sýning á verkum Sveinbjörns Blöndal (d.7.4.2010) í íþróttahúsinu. Á þessu málverki hefur Sveinbjörn málað son sinn Magnús Bjarna Blöndal (d.7.9.2001) þar sem hann er við uppáhalds iðju sína þ.e. að ríða út og temja.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1206
Aolf H. Berndsen vinstra megin og Matthías Hjaltason hægra megin á spjalli 15. desember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1528
Þrír kirkjugestir í Hólaneskirkju spjalla saman í anddyrinu 25. nóvember 2011. Frá vinstri: Jón Sigurðsson, Adolf H. Berndsen og Erlendur Magnússon.
Ólafur Bernódusson 859
Myndin var tekin á opnu húsi í vefstofunni Árblik í desember 1999. Þá hafði fyrirtækið nýlega hafið starfssemi í húsnæði gamla frystihúss Hólaness hf. Á myndinni er Fannar Viggósson framkvæmdastjóri Árbliks lengst til vinstri og Lárus Ægir Guðmundsson er annar frá hægri. Hinir mennirnir tveir eru óþekktir.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1092
Um miðjan júlí 2010 fylltist höfnin á Skagaströnd af síli og makríl í ca vikutíma. Menn voru fljótir að átta sig á þessu og í nokkur kvöld var fjöldi manns á Skúffugarðinum að veiða þennan gráðuga og sprettharða fisk á stöng. Þessi mynd var tekin af veiðimönnum 12. júlí 2010. Nær okkur á myndinni er Guðmundur Baldvinsson með einn á og fjær er Karl Olsen nýbúinn að setja í annan. Strákurinn á myndinni er óþekktur.
Ólafur Bernódusson 803
Sigurjón Guðbjartsson á kunnuglegum slóðum í stýrishúsinu á Hafrúnu HU 12, sem hann á og gerir út. Myndin var tekin 11. apríl 2007.
Skagaströnd - safn473
Halldór Gunnar Ólafsson sat um árabil í hreppsnefnd Sveitarfélagsins Skagaströnd meðal annars 2014 - 2018. Hann var síðan endurkjörinn fyrir kjörtímabilið 2018 - 2022 og var þá oddviti nefndarinnar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1419
Hjónin Guðrún Guðmundsdóttir og Árni Björn Ingvarsson utan við samkomutjaldið á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1382
Jóhannes Sveinsson til vinstri og Ari Jón Þórsson til hægri staddir á ljósmyndasýningu Árna Geirs Ingvarssonar á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1099
Hörður Ragnarsson til vinstri og Jón Gunnarsson til hægri á svæði sorphirðunnar 29. júlí 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1271
Magnús B. Jónsson sveitarstjóri tekur Hallbjörn Björnsson rafvirkja tali utan við Neistann, vinnustað Hallbjörns, 13. júlí 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 747
Á myndinni er verið að hífa inn - eða út - vél fyrir vefstofuna Árblik sem starfrækt var um tíma í gamla frystihúsi Hólaness hf. Mennirnir á myndinni eru óþekktir og ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1467
Sigurjón Guðbjartsson talar í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
larus037
Leifur Breiðfjörð glerlistamaður stendur hér við altaristöfluna í Hólaneskirkju 1. ágúst 1991 en hún er hans sköpunarverk og mikil kirkjuprýði.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 740
Myndin var tekin í réttinni við Vindhæli 10. sept 2005. Á henni eru Einar Guðmannsson til vinstri og föðurbróðir hans Guðmundur Einarsson bóndi á Vindhæli til hægri.
Guðrún Þórbjarnardóttir082
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Njörður Snæhólm (d.18.5.2003) yfirlögregluþjónn hjá Rannsóknarlögreglu ríkisins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1379
Hjalti Viðar Reynisson hleður fallbyssuna á Hólanesinu á Kántrýhátíð 18. ágúst 2012. Skömmu síðar hleypti hann af og síðan var varðeldur og brekkusöngur á svæðinu. Lilja Dögg Hjaltadóttir fylgist með pabba sínum í öruggri fjarlægð.
Guðrún Þórbjarnardóttir086
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Hallgrímur Guðjónsson. Líklega er þetta Hallgrímur bóndi á Hvammi í Vatnsdal (d.3.8.2018).
1
…
11
12
13
…
32
Leita í myndasafninu
Leita