Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Guðrún Þórbjarnardóttir155
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er mágur Jóns, Halldór Halldórsson Snæhólm (d.28.11.1964), 50 ára gamall.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1405
Hjónin Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) og Guðrún Sigurðardóttir á þorrablóti í Sæborg 21. janúar 2011. Í baksýn sér í Herdísi Jakobsdóttur, dökkklædda, og Karitas Laufey Ólafsdóttur (d.15.10.2019).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1136
Vinnufélagar hjá Trésmiðju Helga Gunnarssonar fyrir utan verkstæðið 25. mars 2003. Magnús Hjaltason (d.16.6.2014) til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1404
Mæðginin Árni Geir Ingvarsson og Karitas Laufey Ólafsdóttir (d.15.10.2019) sparibúin á leið á þorrablót í Sæborg 12. janúar 2011.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn113
Tengdafeðgarnir Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) til vinstri og Ari H. Einarsson til hægri skála á dansleik í félagsheimilinu á Blönduósi. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 783
Myndin var tekin 18. ágúst 2006 af hjónunum Guðmundi Jóhannessyni (d.17.4.2018) og Soffíu Lárusdóttur (d. 31.3.2010).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1172
Bryggjuspjall 22. október 2010. Frá vinstri: Björn Ingi Óskarsson, Lýður Hallbertsson og Einar Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1386
Hallbjörn Björnsson þrífur heimkeyrsluna hjá sér á Hólabraut 17, 11. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1095
Myndin var tekin á svæði sorphirðunnar 29. júlí 2010. Á henni eru frá vinstri: Lárus Ægir Guðmundsson, Ingibergur Guðmundsson og Steindór Haraldsson.
Halldór Snæhólm
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er mágur Jóns, Halldór Halldórsson Snæhólm (d. 28.11.1964) frá Sneis í Laxárdal.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1042
Frístunda-fiskimaðurinn Ólafur Bernódusson flakar fisk í útgerðarskúrnum sínum 9. ágúst 2007. Þar eru flökin ýmist fryst roðlaus og beinlaus eða breytt í harðfisk í þurkskáp.
Guðrún Þórbjarnardóttir144
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á myndinni eru hjónin í Réttarholti, Jón Sölvason og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1160
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) að koma úr línuróðri 27. febrúar 2003 á Öldunni Hu 112 með góðan afla.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1152
Þessi mynd var tekin utan við íþróttahúsið 19. mars 2003. Carl Lehman Jakopsen íþróttakennari til vinstri og séra Magnús Magnússon til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1115
Magnús B. Jónsson í vatnspásu á leið á Spákonufellið - Borgarhausinn - á Jónsmessukvöldi 21. júní 2009 til að horfa þaðan á sólina sleikja yfirborð sjávar í norðri áður en hún fer að fikra sig upp aftur. Stúlkan á myndinni er óþekkt.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn102
Þessi mynd var líklega tekin 1946 eða 47. Á henni er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) að leika við dætur sínar. Halla Björg Bernódusdóttir stendur og horfir á pabba sinn hampa systur sinni Þórunni Bernódusdóttur. Myndin var tekin utan við Skálholt þar sem þau áttu heima á þeim tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 809
Ingibergur Guðmundsson við vinnu sína hjá Fiskmarkaðnum á Skagaströnd í júní 2007.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 817
Eðvarð Ingvason (d.29.5.2011) við vinnu sína sem smiður 27. mars 2007.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn124
Á myndinni, sem tekin var á sjómannadaginn 1969, er Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) að heiðra Guðmund Pétursson (d.30.7.1987) frá Höfðakoti til vinstri og Ingvar Jónsson (d.29.7.1978) úr Norður-Skála til hægri með heiðursmerki sjómannadagsins.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1420
Jóel Kristjánsson til vinstri og Gísli Snorrason til hægri 13. ágúst 2011 í samkomutjaldinu á Kántrýhátíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1392
Hjörtur Guðbjartsson spilar og syngur með hljómsveitinni Janus á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 829
Vinirnir Sigurður Bjarnason til vinstri og Adolf H. Berndsen til hægri spá í spilin sunnan við Breiðablik sumarið 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1008
Gísli Snorrason til vinstri og Sigurjón Ingólfsson starfsmenn Vélaverkstæðis Skagastrandar við vinnu í mjölskemmunni 13. febrúar 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1032
Myndin var tekin á Kántrýhátíð 18. ágúst 2006 af þeim Óla Jóni Bogasyni (d.6.2.2018) til vinstri og Steindóri R. Haraldssyni til hægri.
Guðrún Þórbjarnardóttir140
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er sonur hans, Björgvin Jónsson (d.4.5.1992).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1384
Hjónin Magnús B. Jónsson og Guðbjörg Viggósdóttir á fyrirlestri í Rannsóknarsetri Háskóla Íslands á Skagaströnd 13. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1208
Karlar úr Lions 19. desember 2010 að gera klára kæsta skötu fyrir Þorláksmessuveisluna í Fellsborg. Frá vinstri: Slavko Velemir, Sævar Hallgrímsson, Árni Geir Ingvarsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Guðmundur J. Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1205
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson spila í Djásn og dúllerí á þorláksmessu 2010.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1473
Hallbjörn Björnsson rafvirki við sérfræðivinnu í óþekktum bát í Skagastrandarhöfn 4. mars 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1186
Sambýlisfólkið Heiðar Sigurbjörnsson og Rósa Björg Högnadóttir 27. nóvember 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1477
Myndin var tekin í húsnæði Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í gamla kaupfélaginu á Skagaströnd 8. október 2011. Óli Albertsson er til vinstri og Adolf H. Berndsen til hægri.
Arnar HU 1 - safn 81
Gunnar Þröstur Ásgeirsson við vinnu um borð í Arnari HU 1. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Ólafur Bernódusson 835
Bjarni Ottósson og Guðbjörg Eiríksdóttir bjóða upp á súpu í samkomutjaldinu á Kántrýdögum 15. ágúst 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1322
Hjónin Einar Haukur Arason og Sigurbjörg Írena Rúnarsdóttir að skreyta Fellsbrautina 10. ágúst 2011 fyrir Kántrýhátíð dagana á eftir. Maðurinn til hægri er Eiríkur Lýðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1417
Feðgarnir Jónas Frímannsson til vinstri og Frímann Lúðvíksson til hægri á Kántrýhátíð 13. ágúst 2011. Milli þeirra sér í Ragnar Smára Ingvarsson.
Ólafur Bernódusson 834
Á Kántrýdögum í ágúst 2008 var Kristján Kristjánsson - KK - fenginn til að segja fólki til í gítarleik og hvernig fólk hagar sér þegar það spilar úti á götu með hattinn sinn á götunni fyrir framan sig. Á myndinni er KK í miðju með tveimur nemendum sínum þeim Fjölni Ásbjörnssyni vinstra megin og Halldóri Gunnari Ólafssyni til hægri á sviðinu í samkomutjaldinu.
Guðrún Þórbjarnardóttir164
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni eru hjónin frá Réttarholti Jón Sölvason og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970). Myndin var tekin í gullbrúðkaupsveislu þeirra hjóna í Skátaskálanum 1966.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1317
Sævar Hallgrímsson vinstra megin og Guðmundur Finnbogason hægra megin 10. ágúst 2011 að vinna við að skreyta Hólabraut fyrir Kántrýhátíð dagana á eftir.
Ólafur Bernódusson 861
Óskar Þór Kristinsson að koma í land á Arnari HU 1 rétt fyrir jólin 1999.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1161
Gísli Snorrason hjá Vélaverkstæði Skagastrandar við vinnu niður á höfn 14. september 2005.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1361
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 á Kántrýhátíð. Á henni eru félagarnir Frímann Lúðvíksson til vinstri og Vilhjálmur Skaftason til hægri. Í baksýn sér í Hjört Guðbjartsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1183
Í mikilli hláku 26. desember 2010 stíflaðist ræsi neðan við Læk og þá fór að flæða inn í kjallarann þar. Menn úr slökkviliðinu mættu á staðinn til að dæla upp úr kjallaranum. Gísli Snorrason er við dæluna en sonur hans, Arnór Snorri Gíslason, fylgist með til vinstri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1375
Þröstur Líndal Gylfason með afabarn í fanginu 12. október 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1403
Feðginin Slavko Velemir og Helena Mara Velemir á brekkusöng Kántrýhátíð 12. ágúst 2011
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn103
Feðginin Bernódus Ólafsson (d. 18.9.1996) og Þórunn Bernódusdóttur á góðum degi kringum 1947.
Guðrún Þórbjarnardóttir063
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er óþekktur maður. Ef þú þekkir hann vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1227
6. júlí 2011 voru feðgarnir Sigurjón Guðbjartsson, með húfu, og Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson um borð í bát sínum Hafrúnu Hu 12 nýkominni úr slipp. Á bryggjunni eru fóstursynir Jóhanns, Ernst Guðni Hólmgeirsson til vinstri og Mikael Garðar Hólmgeirsson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1141
Guðmundur Jón Björnsson gröfumaður að fara yfir málin í áhaldahúsi hreppsins 29. október 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1131
Ungir menn á Kántrýhátíð 14. ágúst 2010. Frá vinstri: Arnór Snorri Gíslason, Sindri Njáll Hafþórsson og Kristján Pétur Guðjónsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir041
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni eru óþekkt brúðhjón. Ef þú þekkir fólkið á myndinni vinsamlega sendu okkur þá athugasemd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1093
Myndin var tekin 12. júlí 2010 á Skúffugarðinum. Frændurnir Ólafur Bernódusson til vinstri og Árni Geir Ingvarsson til hægri glugga í flóruna til að komast að því hvort blómið, sem vex út úr járnskúffunni við fætur þeirra, sé baldursbrá eða freyjubrá (prestafífill). Niðurstaðan var að þetta væri baldursbrá sem er algeng meðal annars í fjörusandi. Freyjubráin er aftur á móti sjaldgæf og finnst eingöngu í sáðsléttum, túnum og görðum (Hörður Kristinsson 1998 og floraislands.is). "Áður fyrr var baldursbrá notuð til að leiða tíðir, leysa dautt fóstur frá konum, eftirburð og staðið blóð. Te af henni þótti hjartastyrkjandi og ormadrepandi svo eitthvað sé nefnt. Hún hefur verið kölluð fuðarjurt og móðurjurt vegna lækningamáttar síns á kvensjúkdóma (Ágúst H. Bjarnason 1994)."
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1394
Fannar Viggósson á bassa og Þorvaldur Skaftason á gítar, meðlimir í hljómsveitinni Janus, syngja og leika á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1154
Jósef Stefánsson uppi á Höfða að mynda bát föður síns, Ólaf Magnússon Hu 54, sem er á leið á sjó 26. október 2003.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1329
Magnea Valdimarsdóttir og Jóhann Berry á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 839
Séra Fjölnir Ásbjörnsson á sviðinu í Fellsborg 1. maí 2008. Tilefnið óþekkt.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1124
Guðjón Árnason til vinstri og Guðbrandur Magnússon til hægri spá í stillingarnar á myndavélinni til að ná góðum myndum á Kántrýhátíð 13. ágúst 2010.
Ólafur Bernódusson 1010
Á myndinni er Sveinn Ingólfsson með verðlaunaskjal sem hann vann sér inn á öldungamóti USAH 1983. Myndin var tekin í hófi í Kántrýbæ að mótinu loknu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1039
Tveir prestar á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006. Séra Magnús Magnússon til vinstri og séra Guðmundur Karl Brynjarsson til hægri. Báðir þjónuðu þeir á Skagaströnd í nokkur ár.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1336
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 af hjónunum Árna Geir Ingvarssyni og Herdísi Jakobsdóttur á ljósmyndasýningu sem Árni hélt á Kántrýhátíð 2012 í íþróttahúsinu.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1068
Myndin var tekin 10. apríl 2010 um borð í Arnari HU 1 í Skagastrandarhöfn. Á henni eru mennirnir tveir, sem skipast á sem skipstjórar á Arnari, að spá og spekúlera í einhverjum endurbótum um borð. Mennirnir eru Guðjón Guðjónsson vinstra megin og Guðmundur Henry Stefánsson hægra megin.
1
…
12
13
14
…
32
Leita í myndasafninu
Leita