Beint í efni
Skagaströnd.is
↗
Allar myndir
Fólk
✕
Menn
✕
Flokkur
Annað
Atburðir
Atvinnumál
Jóla- og póstkort
Ljósmyndarar
Mannvirki
Náttúra
Samgöngur
Miðflokkur
Börn
Hópmyndir
Konur
1.877 myndir
Flæði
Reitir
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1616
Gísli Snorrason í lyftaranum sínum 26. maí 2011.
Ólafur Bernódusson 928
Myndin var tekin á Þorláksmessu 1998 þegar Skagstrendingur hf hafði keypt Blæng NK 177 af Síldarvinnslunni á Neskaupstað og breytt honum í Örvar HU 2. Á myndinni er Jóel Kristjánsson framkvæmdastjóri Skagstrendings hf til vinstri en Finnbogi Jónsson forstjóri Síldarvinnslunnar og stjórnarformaður Skagstrendings hf til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1037
Guðmundur Guðmundsson á tröppunum á Bjarmanesi á Kántrýhátíð 19. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1205
Hjónin Hugrún Sif Hallgrímsdóttir og Jón Ólafur Sigurjónsson spila í Djásn og dúllerí á þorláksmessu 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1477
Myndin var tekin í húsnæði Rannsóknarseturs Háskóla Íslands á Norðurlandi vestra í gamla kaupfélaginu á Skagaströnd 8. október 2011. Óli Albertsson er til vinstri og Adolf H. Berndsen til hægri.
Bernódus Ólafsson og Anna Aspar - safn109
Hjónin Bernódus Ólafsson (d.18.9.1996) og Anna H. Aspar (d.1.9.1999) dansa í gömlu Tunnunni, líklega á þorrablóti í febrúar 1966. Milli þeirra sést Ingvar Jónsson (d.18.1.2003) frá Sólheimum.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1695
Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Lýður Hallbertsson til hægri á bryggjunni 30. apríl 2010. Í baksýn er verið að taka veiðarfæri um borð í Arnar HU 1.
Guðrún Þórbjarnardóttir050
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er fjársafn skagstrendinga rekið síðasta spölinn heim að Spákonfellsrétt. Ekki er vitað hvenær myndin var tekin.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 976
Stefán Jósefsson á landleið á bát sínum Hafsteini frá því að draga upp grásleppunet 5. júní 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1319
Guðmundur Baldvinsson múrari og Steindór Haraldsson, með húfu, spá í framkvæmdir við Hólabraut 1, 15. ágúst 2012.
Ólafur Bernódusson 886
Myndin var tekin í júlí 1999 af Grétari Smára Hallbjörnssyni við síldarafurðir sem hann vann og pakkaði í dósir undir vörumerkinu: Kántrýsíld. Grétar var með nokkrar gerðir af marineringu og tvær eða þrjár stærðir af dósum. Grétar hætti framleiðslunni eftir að hafa komist að því að ekki var fjárhagslegur grundvöllur fyrir henni.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1270
Sigurbjörn Björgvinsson fyllir í skurð við íþróttahúsið með kranabílnum sínum 13. júlí 2011.
Ólafur Bernódusson 970
Myndin var tekin sumarið 1983 af feðgunum Birni Sigurðssyni (d.5.10.1999) og Guðmundi J. Björnssyni þar sem þeir eru að spá í bilun í bíl Guðmundar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1177
Mennirnir á myndinni eru 16. september 2010 að skoða uppskeruna á kornakrinum sem þeir voru með í tilraunaræktun sumarið 2010. Frá vinstri: Halldór Gunnar Ólafsson, Adolf H. Berndsen, Bjarni Jónasson, Sigurður Sigurðarson og Hallbjörn Björnsson.
Árni Geir Ingvarsson - safn 2 1466
Jón Sigurðsson til vinstri og Sigurður Ingimarsson til hægri í samkvæmi á vegum Lionklúbbs Skagastrandar í Fellsborg 26. febrúar 2011.
Guðrún Þórbjarnardóttir031
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Þórarinn Björnsson (d.24.12.1967) var lengi skipherra hjá Landhelgisgæslunni. Hann var ættaður frá Syðri Ey.
Guðrún Þórbjarnardóttir024
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Jón var bóndi í Réttarholti í 30 ár. Flutti síðan á Blönduós og var þar bæjarpóstur í mörg ár jafnframt því að binda inn bækur fyrir fólk.
Guðrún Þórbjarnardóttir128
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni styður Jón afastrákinn sinn Hobba eða Þorbjörn Jensson á hestbaki
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1651
Ian Witting sendiherra Breta á Íslandi kom í heimsókn til Skagastrandar sumarið 2011. Á myndinni er hann að kynna sér starfsemi fiskmarkaðarins. Sigurður Ingimarsson starfsmaður markaðarins er til vinstri, Ian Witting er í miðjunni og til hægri er óþekktur fylgdarmaður hans.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1066
Vorspjall sunnan undir Olís sjoppunni 30. apríl 2010. Frá vinstri Ernst Berndsen, Steindór Haraldsson og Lárus Ægir Guðmundsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1559
Jóhann Guðbjartur Sigurjónsson skipstjóri um borð í skipi sínu, Hafrúnu HU 12, 3. maí 2011.
Helgi Gunnarsson 32
Baldvin Hjaltason til vinstri og Sigurður Björnsson til hægri smíða áhorfendapallana í íþróttahúsinu 26. nóvember 1997.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1395
Hjónin Sævar Bjarnason og Eygló Guðbjartsdóttir á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011.
Ólafur Bernódusson 1016
Myndin er tekin á frumsýningu á Saumstofunni eftir Kjartan Ragnarsson 1985. Þá var verkið sett upp af Leikklúbbi Skagastrandar í leikstjórn Halldórs Einarssonar Laxness. Á myndinni eru undirleikararnir Kristján Blöndal til vinstri og Fannar Viggósson til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1423
Myndin var tekin 19. ágúst 2012 af bræðrunum Árna Geir Ingvarssyni til vinstri og Ragnari Smára Ingvarssyni til hægri á ljósmyndasýningu Árna Geirs í íþróttahúsinu. Þá stóð Kántrýhátíð sem hæst og skemmtilegt er að sjá mynd af þeim bræðrum á veggum á milli þeirra.
Ólafur Bernódusson 1021
Hallgrímur Jónsson (d.1.4.2013) prúðbúinn í Kántrýbæ í desember 1998.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1351
Feðgarnir Albert Ingi Haraldsson og Haraldur Árnason í Bjarmanesi 26. maí 2012.
Guðrún Þórbjarnardóttir033
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni dansar Jón við konu sína Þorbjörgu Halldórsdóttur (d.30.6.1970) í tilefni af gullbrúðkaupi þeirra. Dansinn fór fram í veislu sem haldin var í Skátaskálanum 1967.
Ólafur Bernódusson 1058
Hjónin Hallbjörn J. Hjartarson og Amy Eva Eymundsdóttir (d.7.3.2012). Myndin af þeim var tekin þegar Kántrýbær var vígður eftir endurbyggingu 27. júní 1998. Þau hjón voru eigendur Kántrýbæjar.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1371
Löndun á þorski 12. október 2012. Sævar Hallgrímsson hífir en hjá honum standa þrír áhugamenn um aflabrögð. Frá vinstri: Eiríkur Lýðsson, Ólafur Bernódusson og Guðni Már Lýðsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 982
Prufuskot úr fallbyssunni á Skagaströnd 30. maí 2008. Byssan er eftirlíking af tveimur byssum sem voru staðsettar á Höfðanum á Skagaströnd á öldum áður. Þar voru þær notaðar til að láta bændur í nærsveitum vita af komum kaupskipa. Þegar þeir heyrðu skotið vissu þeir að tími var kominn til að undirbúa kaupstaðarferð með afurðir sínar. Á myndinni heldur Björn Hallbjörnsson fyrir eyrun, óþekktur maður spjallar í síma og Hallbjörn Björnsson tekur mynd af skotinu. Hallbjörn var einn af hvatamönnum þess að byssan var smíðuð og keypt frá Danmörku.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 874
Feðgarnir Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) til vinstri og Sigurgeir Árnason til hægri með Jóhann Guðbjart Sigurjónsson á milli sín um borð í Hafrúnu HU 12 23. ágúst 2006.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1208
Karlar úr Lions 19. desember 2010 að gera klára kæsta skötu fyrir Þorláksmessuveisluna í Fellsborg. Frá vinstri: Slavko Velemir, Sævar Hallgrímsson, Árni Geir Ingvarsson, Halldór Gunnar Ólafsson og Guðmundur J. Björnsson.
Guðrún Þórbjarnardóttir046
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Myndin er klippt út úr blaði og því eru myndgæðin mjög léleg. Á henni spjalla við matborðið skagstrendingarnir Kristófer Árnason (d. 10.5.2000) til vinstri og Kristinn Guðmundsson (d.1.12.1986) til hægri.
Ólafur Bernódusson 953
Gunnar Albertsson (d.27.7.2019) fær sér Kók og Prins póló á vinnustað sínum á vélaverkstæði Hólaness hf í Salthúsinu. Myndin var tekin 1983.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 828
Rúnar Jósefsson notar þurrkinn í heyskap 7. júlí 2008.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1044
Þrír herramenn að spjalla austan undir vegg á rafmagnsverkstæði Neistans 29. ágúst 2007. Árni Guðbjartsson (d.20.2.2018) sjómaður er til vinstri, Rúnar Kristjánsson smiður er í miðið og Björn Hallbjörnsson rafvirki til hægri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1483
25. mars 2011. Ólafur Bernódusson spjallar við bræðurna Guðna Má Lýðsson til vinstri og Eirík Lýðsson til hægri um borð í Dagrúnu Hu 121.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1218
Á myndinni eru þeir félagarnir Stefán Jósefsson og Sævar Hallgrímsson við stýrið að koma frá því að vitja um silunganet 1. júlí 2011 á Hafsteini.
Guðrún Þórbjarnardóttir054
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti. Á henni er sonur hans Björgvin Jónsson (d.4.5.1992).
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1167
24. nóvember 2005 hafði fiskmarkaður Örva ehf tekið á 4000 tonnum af fiski það árið. Á myndinni eru Lárus Ægir Guðmundsson eigandi Örva til vinstri en til hægri er bróðir hans Ingibergur Guðmundsson sem var rekstrarstjóri Örva á þessum tíma.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 867
Hallbjörn Björnsson rafverktaki 17. ágúst 2009.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1347
Myndin var tekin 17. ágúst 2012 á íþróttavellinum. Þá fór fram "vatnsfótbolti", sem fer þannig fram, að einn úr hvoru liði hefur öfluga vatnsslöngu sem hann má nota að vild á andstæðingana. Á myndinni eru frá vinstri: Elvar Geir Ágústsson, Finnbogi Guðmundsson, Ernst Guðni Hólmgeirsson og Sigurjón Elí Eiríksson.
Guðrún Þórbjarnardóttir077
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru þau hjónin Jón og Þorbjörg Halldórsdóttir (d.30.6.1970) konan hans.
Ólafur Bernódusson 969
Myndin var tekin á sjómannadaginn 1983 af kappróðrarsveit, líklega af Örvari HU 21. Ræðararnir eru taldir frá vinstri: Ragnar Högnason, Kári Lárusson, Hjörtur Guðbjartsson, Gunnar Reynisson, Vilhelm Þórarinsson og ?Gestur Arnarson?. Stýrimaðurinn er óþekktur.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1449
Myndin var tekin 31. ágúst 2012 í íþróttahúsinu þar sem stóð yfir kynning á fyrirhuguðum hitaveituframkvæmdum í sveitarfélaginu. Á kynninguna mættu ýmsir hagsmunaaðilar sem kynntu sína vöru og þjónustu. Á myndinni eru frá vinstri: Tryggvi Þór Haraldsson forstjóri RARIK, Páll Friðriksson ritstjóri Feykis, Ingibergur Guðmundsson og Magnús B. Jónsson sveitarstjóri.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1622
Hjónin Árni Ólafur Sigurðsson og Hlíf Sigurðardóttir setja niður kartöflur 2. júní 2011 í garðinn sunnan við íþróttavöllinn.
Guðrún Þórbjarnardóttir - safn 009
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni er Ernst Georg Berndsen (d.21.8.1983) sem bjó lengst af í Karlsskála á Skagaströnd. Ernst var skipstjóri, lóðs í Húnaflóa og lengi hafnarvörður á Skagaströnd.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1062
Hjónin Guðmundur Ólafsson og Eygló Gunnarsdóttir á gangi á Oddagötu í síðdegissól 6. febrúar 2010.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1398
Myndin var tekin í samkomutjaldinu á Hnappstaðatúninu á Kántrýhátíð 12. ágúst 2011. Mennirnir eru frá vinstri: Guðmundur Jónsson, Magnús B. Jónsson og Ragnar Smári Ingvarsson.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1072
Sævar Rafn Hallgrímsson um borð í Ólafi Magnússyni HU 54 2. mars 2010 að gera klárt fyrir netavertíð.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1434
Jón Ólafur Ívarsson (d.29.12.2013) til vinstri og Lýður Hallbertsson til hægri spjalla saman á þorrablóti í Fellsborg 5. febrúar 2011.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1176
Á þessari mynd eru frá vinstri iðnaðarmennirnir Árni Halldór Eðvarðsson smiður, rafvirkjarnir og feðgarnir Hallbjörn Björnsson og Björn Hallbjörnsson og Halldór Gunnar Ólafsson hjá BioPol lengst til hægri. Þeir eru að fylgjast með, 24. september 2010, þegar gamli vigratskúrinn við höfnina var fjarlægður svo hægt væri að koma hinum nýja fyrir á sama stað.
Ólafur Bernódusson 918
Myndin var tekin í febrúar 1999 þegar tekinn var í notkun fjarfundabúnaður í Höfðaskóla. Mennirnir á myndinni eru allt iðnaðarmenn, sem sóttu nám til meistara í sínum greinum gegnum fjarfundabúnaðinn. Slíkur búnaður þótti mikil bylting og framfaraskref á þessum tíma. Mennirnir eru frá vinstri: Víðir Ólafsson rafvirki, Einar Haukur Arason húsasmiður, Hjalti Viðar Reynisson rafvirki og Björn Hallbjörnsson rafvirki.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1557
Guðríður Líneik Daníelsdóttir (24.1.2020) undirbýr veitingar á jólaballi Lionklúbbs Skagastrandar 26. desember 2011 í Fellsborg. Guðjón Guðjónsson Lionfélagi fylgist með og hjálpar til.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1369
Þórarinn Brynjar Ingvarsson og Vigdís Ósk Ómarsdóttir á Kántrýhátíð 17. ágúst 2012.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1318
Sigurður Jónsson spjallar við Sigurjón Ástmarsson, sem situr á Fergusoninum, 15. ágúst 2012. Báðir hafa þeir áhuga fyrir slíkum tækjum.
Guðrún Þórbjarnardóttir059
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Á henni eru fjórir menn frá Skagaströnd, líklega staddir við Skrapatungurétt en ekki er vitað hvenær myndin var tekin. Karlarnir eru frá vinstri: Fritz H. Magnússson (d.19.10.1965), Ole Aamundsen (d.??), Jónatan Á. Jónsson (d.17.7.1971) og Jón Sölvason.
Guðrún Þórbjarnardóttir021
Myndin er úr fórum Jóns Sölvasonar (d.17.8.1969) frá Réttarholti og rithöndin á henni er hans. Myndin er af Fritz H. Magnússyni (d.19.10.1965) sem bjó lengi í Ásbergi, sem stóð sunnan við Breiðablik á Skagaströnd. Giftur Körlu Ingibjörgu Helgadóttur (d. 25.9.1986). Þau hjón voru barnlaus.
Árni Geir Ingvarsson -safn 2 1055
Hjónin Ólafur Bernódusson og Guðrún Pálsdóttir nýta stutta dagsbirtu 27. desember 2009 til að ganga á skíðum.
1
…
13
14
15
…
32
Leita í myndasafninu
Leita